Ingólfur - 09.09.1906, Side 3
9. sept, 1906.]
INGOLFUR.
153
Reykjavík
selur allskonar vefnaðaryöru
mjög góða og ódýra:
Barnahúfur, Dagtreyjutau, En*kt vaðmál, Flonell,
Flauel, Kvennslifs, Kjólatau, Klæði,
Léreft, Lifstykki, Millipils, Peysur stórar og smáar,
Nærfatnað, Rekkjuvoðir, Silki í svuntur, Sirz,
Sængurdúk, Sjöl stór og smá, Svuntutau, Tvinna.
Karlmannaföt, Karlmannafatatau,
Alt efni til fata.
Q-reiður, Höfuðkamba, Harmonikur, Skóflur o. m. fl.
Ennfremur skinn og leSur handa skósmiðum og söðlasmiðum, og alt
sem að þeim iðnum lýtur. —
ur og feldi hina báða. Hlaut hann þá
silfurbeltið.
„Norðri“ segir, að Akreyringar hafl
tekið hinum fram um' fagurt glímulag og
telur hann Jóhannes Jósepsson fremstan
þeirra, þótt hann léti leikinn að þessu
sinni.
Nýr hellir.
Séra Friðrik Friðriksson heflr skrifað í
Fj.k. lýsing á helli, sem nýlega er fund-
inn í hrauninu suður af Hafnarfirði.
Helli þenna íundu piltar úr Reykjavík,
sem stofnað hafa skemtigöngufélag, er
þeir kalla „Hvat“ og er hellirinn því
nefndur Hvats-hellír.
„Hann er 152 fet á lengd, 40 fet á
breidd, þar sem hún er mest, og á að
gizka 6—7 álnir á hæð, þar sem hæst
er; alstaðar má ganga uppréttur. Grjót-
garður er hlaðinn 59 fet inn af munn-
anum; sá garður liggur þvert yfir hellinn
og á parti í boga fyrir mynnið á afhelli
nokkurum vinstra megin; er hanu eins
og bás, höggvinn út í bergið, og er 27 fet
á lengd og garðurinn er 20 fet á lengd
og lx/a alin á hæð, þar sem hann er
hæstur. Ekki var unt að sjá, að fé hefði
verið geymt þar ipni.“
Inn úr þessum helli er glufa nálægt
munnanum og liggur inn í lítinn afhelli,
vel manngengan með stórgrýttu gólfi.
Inn úr honum er önnur glufa, er skríða
má í gegn á fjórum fótum og er þar fyrir
innan hana hellir, nær kringlóttur að lög-
un eða sporöskjulagaður. Hann er 10 fet
á hæð þar sem mest er, og breiddin 20
fet, en lengdin nokkuru meiri. Eftir gólf-
inu er hraunbálkur all-mikill og lægðir
báðumegin.
Úr afhelli þessum liggur enn glufa inn
í fjórða afkimann. „Sá hellir er 61 fet á
lengd, og nokkuð jafnbreiður allur, er
breiddin 8—10 fet og hœðin 4 fet minst
og liðug 5 fet mest. Innst inni er hann
íhvolfur og er hvelftng yfir honum öllum,
skreytt smágervu dropsteina-útflúri. Hell-
irinn er ekki ósvipaður hvelfdum gangi í
kjallarakirkju; gólfið er slétt og fast og
lítið sem ekkert er þar lausagrjót inni.
Svo er hann fallegur, að erfiðleikarnir við
inngönguna í gegnum 3 glufurnar og stór-
grýtið í framhellunum gleymist, þegar inn
er komið. Lengd alls hellisins frá botni
þess insta og aftast í þann fremsta er
rétt að segja 300fet. í innri hellunum
eru engin merki þess að menn hafi þar
fyr inn komið.“ —
Höfuðborgin.
Fyrsta símskeyti frá útlöndum kom
hingað til Reykjavíkur 3. þ. m. og var
dagsett 27. ágúst. Pað or frá hr. J. W.
Faber & Co. í Newcastle, til Jes Zimsens
kaupmanns og segir, að íslenzkt smjör
hafi síðast selst á 89—100 krónur hver
100 pund.
Ekkert islenzkt smjör þá fyrirliggjandi,
en talsverð eftirspurn og von um hærra
verð.
Botnsköfu mikla befir Akureyrarbær
keypt. Er það vél til þess að grafa
brott sand og leir á grynningum við
höfnina og dýpka hana þar sem þörf
gerist. Það er fyrsta botnskafa, sem
fluzt hefir hingað til lands. (Nl.)
Bátstapi varð norður á Steingrímsfirði
fyrir skömmu. Drukknuðu 5 menn í
fiskiróðri. Formaður var Pétur Þórðar-
son frá Gróttu á Seltjarnarnesi, fyrrum
lögregluþjónn og næturvörður í Reykja-
vík.
Kensla í ensku.
Frá 15. þ. m. geta menn fengið hjá mér
kenslu í ensku, bæði að tala og rita mál-
ið. Mig er að hitta í Aðalstræt 9 kl.
12—1 daglega.
ý Hallgrímur Melstcð bókavörður varð
bráðkvaddur í gærmorgun.
A sjó og landi.
Tíðarfar. Aðfaranótt 21. ágúst hvítn-
aði niður í sjó norður í Húsavík og
frostnótt var þar 23. s. m.
Töður náðust með góðri verkun í
Þingeyjarsýslu, þótt þær rigndi nokkuð,
þvi að kuldinn varði þær skemdum.
Yerð á ull. Kaupmaður einní Húsa-
vík sendi Garðari Gíslasyni ull i vor
(hvíta) og seldist hún á kr. 1,10 pundið.
Nýlega hefir frézt frá útlöndum, að ull
hafi fallið í verði alt að fimtungi. Þó
keypti Jón í Múla ull í Húsavík á kr. 1,04
pundið (með umbúðum) þar á staðnum.
Brennisteinsfél. Englendinga (Wall-
ace & Co.) hefir hætt brennisteinsnámi
sínu í Þingeyjarsýslu að fullu og selt
hafurtask sitt þar, Yerður þá ekkert
úr járnlrautarlagningunni upp í Reykja-
hlíðar-námur, né öðrum þeim stórvikjum,
er félagið hafði í hyggju að framkvæma.
Skarlatssóttar kennir enn í Eyjafirði.
Yeiktist nýlega unglingsmaður í Arnar-
nesi. Sóttvörn skipuð. (Nl.)
Gránufélagið hefir nýlega haldið árs-
fund sinn á Oddeyri og mættu þar 12
fulltrúar auk félagsstjórnar. Félagið
hefir lengi verið á heljarþremi og furðar
margan, hvað það hjarir á horriminni.
Kaupstjóri lagði fram ársskýrslur um
hag félagsins „sem eigi hafði breyzt til
batnaðar.“ — Félagið er í botnlausum
skuldum við Holme stórkaupmann í
Kaupmannahöfn, skuldar honum 423 þús.
kr. Hefir Holme boðist til að gefa upp
„töluvert“ af skuldinni, ef hann fengi
meginhluta henuar borgaðan og fól fund-
urinn stjórn sinni og kaupstjóra að leita
við hann frekari samninga um það mál.
Maður drekti sér 2. þ. m. í Hafnar-
firði, Kristján Jónsson, fyrrum bóndi í
Hliðsnesi, 62 ára að aldri.
Möðruvallaprestakall hefir stjórnin
veitt sr. Jóni Þorsteinssyni á Skeggja-
stöðum, þótt hann fengi færri atkvæði en
hinn umsækjandinn.
Skipströnd á íslandi á 25 árunum
1879—1903, segir sænskt blað eftir skýrslu
sjókorta-deildarinnar dönsku hafa orðið
237, en skipbrotsmenn 2110; af þeim
týndust 95 menn, 87 í strandinu sjálfu,
en 8 í hrakningum á landi, frá strand-
staðnum.
JÚ1ÍU8 Jörgensen