Ingólfur

Ataaseq assigiiaat ilaat

Ingólfur - 09.09.1906, Qupperneq 3

Ingólfur - 09.09.1906, Qupperneq 3
9. sept, 1906.] INGOLFUR. 153 Reykjavík selur allskonar vefnaðaryöru mjög góða og ódýra: Barnahúfur, Dagtreyjutau, En*kt vaðmál, Flonell, Flauel, Kvennslifs, Kjólatau, Klæði, Léreft, Lifstykki, Millipils, Peysur stórar og smáar, Nærfatnað, Rekkjuvoðir, Silki í svuntur, Sirz, Sængurdúk, Sjöl stór og smá, Svuntutau, Tvinna. Karlmannaföt, Karlmannafatatau, Alt efni til fata. Q-reiður, Höfuðkamba, Harmonikur, Skóflur o. m. fl. Ennfremur skinn og leSur handa skósmiðum og söðlasmiðum, og alt sem að þeim iðnum lýtur. — ur og feldi hina báða. Hlaut hann þá silfurbeltið. „Norðri“ segir, að Akreyringar hafl tekið hinum fram um' fagurt glímulag og telur hann Jóhannes Jósepsson fremstan þeirra, þótt hann léti leikinn að þessu sinni. Nýr hellir. Séra Friðrik Friðriksson heflr skrifað í Fj.k. lýsing á helli, sem nýlega er fund- inn í hrauninu suður af Hafnarfirði. Helli þenna íundu piltar úr Reykjavík, sem stofnað hafa skemtigöngufélag, er þeir kalla „Hvat“ og er hellirinn því nefndur Hvats-hellír. „Hann er 152 fet á lengd, 40 fet á breidd, þar sem hún er mest, og á að gizka 6—7 álnir á hæð, þar sem hæst er; alstaðar má ganga uppréttur. Grjót- garður er hlaðinn 59 fet inn af munn- anum; sá garður liggur þvert yfir hellinn og á parti í boga fyrir mynnið á afhelli nokkurum vinstra megin; er hanu eins og bás, höggvinn út í bergið, og er 27 fet á lengd og garðurinn er 20 fet á lengd og lx/a alin á hæð, þar sem hann er hæstur. Ekki var unt að sjá, að fé hefði verið geymt þar ipni.“ Inn úr þessum helli er glufa nálægt munnanum og liggur inn í lítinn afhelli, vel manngengan með stórgrýttu gólfi. Inn úr honum er önnur glufa, er skríða má í gegn á fjórum fótum og er þar fyrir innan hana hellir, nær kringlóttur að lög- un eða sporöskjulagaður. Hann er 10 fet á hæð þar sem mest er, og breiddin 20 fet, en lengdin nokkuru meiri. Eftir gólf- inu er hraunbálkur all-mikill og lægðir báðumegin. Úr afhelli þessum liggur enn glufa inn í fjórða afkimann. „Sá hellir er 61 fet á lengd, og nokkuð jafnbreiður allur, er breiddin 8—10 fet og hœðin 4 fet minst og liðug 5 fet mest. Innst inni er hann íhvolfur og er hvelftng yfir honum öllum, skreytt smágervu dropsteina-útflúri. Hell- irinn er ekki ósvipaður hvelfdum gangi í kjallarakirkju; gólfið er slétt og fast og lítið sem ekkert er þar lausagrjót inni. Svo er hann fallegur, að erfiðleikarnir við inngönguna í gegnum 3 glufurnar og stór- grýtið í framhellunum gleymist, þegar inn er komið. Lengd alls hellisins frá botni þess insta og aftast í þann fremsta er rétt að segja 300fet. í innri hellunum eru engin merki þess að menn hafi þar fyr inn komið.“ — Höfuðborgin. Fyrsta símskeyti frá útlöndum kom hingað til Reykjavíkur 3. þ. m. og var dagsett 27. ágúst. Pað or frá hr. J. W. Faber & Co. í Newcastle, til Jes Zimsens kaupmanns og segir, að íslenzkt smjör hafi síðast selst á 89—100 krónur hver 100 pund. Ekkert islenzkt smjör þá fyrirliggjandi, en talsverð eftirspurn og von um hærra verð. Botnsköfu mikla befir Akureyrarbær keypt. Er það vél til þess að grafa brott sand og leir á grynningum við höfnina og dýpka hana þar sem þörf gerist. Það er fyrsta botnskafa, sem fluzt hefir hingað til lands. (Nl.) Bátstapi varð norður á Steingrímsfirði fyrir skömmu. Drukknuðu 5 menn í fiskiróðri. Formaður var Pétur Þórðar- son frá Gróttu á Seltjarnarnesi, fyrrum lögregluþjónn og næturvörður í Reykja- vík. Kensla í ensku. Frá 15. þ. m. geta menn fengið hjá mér kenslu í ensku, bæði að tala og rita mál- ið. Mig er að hitta í Aðalstræt 9 kl. 12—1 daglega. ý Hallgrímur Melstcð bókavörður varð bráðkvaddur í gærmorgun. A sjó og landi. Tíðarfar. Aðfaranótt 21. ágúst hvítn- aði niður í sjó norður í Húsavík og frostnótt var þar 23. s. m. Töður náðust með góðri verkun í Þingeyjarsýslu, þótt þær rigndi nokkuð, þvi að kuldinn varði þær skemdum. Yerð á ull. Kaupmaður einní Húsa- vík sendi Garðari Gíslasyni ull i vor (hvíta) og seldist hún á kr. 1,10 pundið. Nýlega hefir frézt frá útlöndum, að ull hafi fallið í verði alt að fimtungi. Þó keypti Jón í Múla ull í Húsavík á kr. 1,04 pundið (með umbúðum) þar á staðnum. Brennisteinsfél. Englendinga (Wall- ace & Co.) hefir hætt brennisteinsnámi sínu í Þingeyjarsýslu að fullu og selt hafurtask sitt þar, Yerður þá ekkert úr járnlrautarlagningunni upp í Reykja- hlíðar-námur, né öðrum þeim stórvikjum, er félagið hafði í hyggju að framkvæma. Skarlatssóttar kennir enn í Eyjafirði. Yeiktist nýlega unglingsmaður í Arnar- nesi. Sóttvörn skipuð. (Nl.) Gránufélagið hefir nýlega haldið árs- fund sinn á Oddeyri og mættu þar 12 fulltrúar auk félagsstjórnar. Félagið hefir lengi verið á heljarþremi og furðar margan, hvað það hjarir á horriminni. Kaupstjóri lagði fram ársskýrslur um hag félagsins „sem eigi hafði breyzt til batnaðar.“ — Félagið er í botnlausum skuldum við Holme stórkaupmann í Kaupmannahöfn, skuldar honum 423 þús. kr. Hefir Holme boðist til að gefa upp „töluvert“ af skuldinni, ef hann fengi meginhluta henuar borgaðan og fól fund- urinn stjórn sinni og kaupstjóra að leita við hann frekari samninga um það mál. Maður drekti sér 2. þ. m. í Hafnar- firði, Kristján Jónsson, fyrrum bóndi í Hliðsnesi, 62 ára að aldri. Möðruvallaprestakall hefir stjórnin veitt sr. Jóni Þorsteinssyni á Skeggja- stöðum, þótt hann fengi færri atkvæði en hinn umsækjandinn. Skipströnd á íslandi á 25 árunum 1879—1903, segir sænskt blað eftir skýrslu sjókorta-deildarinnar dönsku hafa orðið 237, en skipbrotsmenn 2110; af þeim týndust 95 menn, 87 í strandinu sjálfu, en 8 í hrakningum á landi, frá strand- staðnum. JÚ1ÍU8 Jörgensen

x

Ingólfur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ingólfur
https://timarit.is/publication/189

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.