Ingólfur - 10.11.1906, Page 2
188
samvinnan milli vor og þeirra að geta
stofnast án nokkura kala eða úlfúðar frá
fyrri deilum.
En auðvitað er það á hinn bóginn, að
stefna landvarnarflokksins getur aldrei
vikið frá því takmarki sem henni er sett
og því er oss nauðsynlegast að hrjóta
gagngjört til mergjar, hvað felst sannar-
lega í þeim tillögum til breytinga á stjórn-
arástandinu frá hinum flokkunum, [sem
virðast miða í áttina.
Fullkomið sjálfstæði íslands er mark
vort og mið, en á þeirri leið verður að
stíga mörg spor og vér getum þessvegna
vel átt samleið með þeim, sem nefna ef
til vill ekki á stefnuskrá sinni vort síð-
asta tahmark ef þeir kveða að eins skýrt
á um fylgi sitt við það næsta spor í átt-
ina, sem vér teljum æskilegt og fært að
stíga.
Krafan um algert sjálfstæði íslands að
iokum hefir komið fram í, og búið undir
öllu því, sem ritað hefir verið um stjórn-
armálið í blöðum landvarnarmanna. Engin
breyting, er bægt getur oss frá því tak-
marki um langa ókomna tíma, getur orð-
ið þegin af landvarnarmönnum. En jafn-
hliða þessu verða menn að minnast þess,
að Róm var ekki bygð á einum degi, og
algert afnám alls stjórnmálasambands við
erlent ríkísvald heimtar af oss alt það
sama, sem aðrar þjóðir hafa orðið að
gjalda fyrir óháða stöðu sína í þjóðafé-
laginu.
Hver sú breyting, sem komið gæti til
mála að ganga að af hálfu laudvarnar-
manna, verður fyrst og fremst að byggj-
ast á þeirn grundvelli, að samband vort
við Dani, hvert svo sem það verður, sé
stofnað með fullfrjálsu samningsvaldi ís-
lendinga frá þeirra hálfu. Með því höf-
um vér brotið það mál til mergjar niður
á fastan grundvöli hins elzta sáttmála, er
landsmenn gjörðu við útlent vald, vegna
þess að þeir gátu ekki staðið einir, og
hefði vel mátt una við og getað leitt oss
til þess þroskastigs, er sjálfstæði heimtar,
ef sáttmálinn hefði verið hahlinn eftir orð-
um hans og anda. í slíkri viðurkenning
Dana um samningsvald vort felst einnig
að réttum þjóðarlögum viðurkenning um
drottinvuld vort yfin eigin málefnum og
þess vegna er það stórvægilegur ávinn-
ingur í framsókn vorri til fullkomins
sjálfstæðis, sem aflast með stofnun sam-
eiginlegrar nefndar beggja þjóðanna, er
leggi til um ákvörðun sambandsins milli
lands og ríkis- Ekkert gat skjótar og
rækilegar rutt úr vegi vorum einni meg-
inhindrun þess, að samþegnum vorum geti
skilist, að vér erum frjálsir að því að ala
oss upp sjálfa til fullkomins sjálfstæðis á
þann hátt, er oss þykir henta.
Svo framarlega sem starfað verður að
samnÍDg nýrra sambandslaga milli vor og
Dana á þessum grundvelli geta allir land-
varnarmenn án þess að víkja frá hugsjón
sinni og stefnu tekið það til athugnnar,
hvar vér viljum sjálíir setja þjóðarvaldi
voru takmörk eins og nú steudur. En
innan þeirra marka geta landvarnarmenn
ekki, án þess að bregðast sínu eigin mál-
INGOLFUR.
efni, látið sír lynda neina erlenda íhlut-
un eða afskifti af stjóru né 1 ggjöf lands-
ins. Hin næsta óhaggaulega krafa vor
verður því að vera algerð aðgreining sér-
mála vorra, er vér sjálflr sköpum oss með
sambandslögunum,fráölium dönskum valds-
gtofnunum að undanteknum konungi vor-
um einum eða þeim er hann kynni að
setja í sinn stað í sérmálastjórn íslands.
Með þeim skilningi er landvarnarmenn
halda föstum um áhrif og merking ríkis-
ráðstengslanna, leiðir það af þessu með
öðrum orðum, að vér krefjumst þess hvað
s?m öðru líður, að sérmál vor skuli vera
borin upp fyrir konungsvaldinu idan rik-
isráðsins danska.
Eins og Ingólfur hefir oftlega drepið á
áður hafa tillögur landvarnarmanna um
það, hvert næsta spor ætti að stíga til
breytinga, hlotið að vera nokkuð með
ýmsu móti og sérstaklega hljóta nýir at-
burðir og horfur málsins eftir því sem
tíminn líður að ráða miklu um það, hvar
vér viljum láta staðar numið, með næstu
skipun stöðu vorrar og stjórnar. En það
er hvorttveggja, að landvörn hófst upp-
haflega gegn ákvæðinu um ríkisráðstengsl-
in, enda er það og víst að rneð afnámi
þess hefir einni megiuhindrun, auk þeirr-
ar sem áður var nefnd, .verið rutt úr vegi
vorum til þess sjálfstæðis, er fyrir oss
vakir að ísland skuli hljóta að lokum.
Skoðanir almennings og hugir allra betri
manna landsins eru óðum að hneigjast til
sannfæringar um brýna nauðsyn gagngerðr-
ar breytingar á stjórnarástandinu. Yér
landvarnarmenn höfum reist flokk vorn til
þess að afla oss samvinnu annara að tak-
marki voru, og því eigum vér fyrstir allra
að gleðjast yfir því sem unnið er af öðr-
um flokkum eða flokksmönnum í sömu
átt, og síðastir allra að gera samvinnu
eifiða milli vor og þeirra með óþörfum
ýfingum, er snerta ekki né efla að neinu
þann málstað er vér viljum berjast fýrir
og láta sitja í fyrirrúmi fyrir öliu öðru,
unz hann vinst.
Varöveizla íslenzkra rímhalaga,
Allir sem unna viðreisn og endurfæð-
ing þjóðlegra lista hér á landi, hljóta
fremst af öllu að óska þess, að oss mætti
takast að forða frá gleymsku öllu því í
grundvelli vors fyrra þjóðlífs, sem byggja
verður á listir komandi tíma hjá
oss.
Yér vitum allir, hve mjög orðsins list
gnæfir yfir allar aðrar Iistir hjá íslend-
ingum og á það rót sína að rekja til eðl-
is og uppruna frumbyggjenda þessa lands,
til örbirgðar vorrar og menningarskorts á
síðari tímum, og loks að miklu leyti til
landshátta vorra, Landnámsmenn Iifðu
svo að segja öllu sínu andlega lífi í hetju-
sögum og kvæðum, og menning þeirra
miðaði til afreksverka er gáfu hetju-skáld-
unum ný yrkisefni mann frá manni. Á
lægingartímum þjóðarinnar lifði andi henn-
ar í sálmarími og söguljóðum þeirn, er
[10. nóv. 1906].
kallast rímur. Fátækt manna og hin er-
lenda kúgun bældu niður og kæfðu önn-
ur ytri lífsmörk listarinnar hjá þjóð vorri.
Að undantekinni lít lfjörlegrl skurðlist og
öðrum ófullkomnum listariðnaði, lifði feg-
arðarþrá og skapandi afl andans hjá þjóð-
inni á þessurn tímum, einungis í huga
manna og á tungu þeirra. Og loks hafa
sömu yfirburðir orðlistarinnar hér á landi
Dærst og varðve.tst af hinum miklu fjar-
lægðum milli einstaklinganna í fámenni
voru, svo að Iistarþróttur og efni íslend-
inga hafa sótt áfram í sömu átt, einnig
eftir að okurkló útlendrar kúgunar og
svefnþorai ókunnugra yfirráða yfir oss
hefir að nokkru leyti létt af þjóð vorri á
síðustu tímum.
Önnur tegund listar, sem er náskyldust
list bundins og óbundins máls, sönglistin,
hefir þó ef svo mætti segja, létt sig upp
úr auðn þeirri og dauða, er ríkt hefir um
andans líf bjá þjóðinni. Pví hefir ekki
verið gefinn nægilegur gaumur, að vér
eigum þar gimstein, illa geymdan að vísu
eins og flesta aðra dýrgripi vora, en þó
ekki glataðan með öllu. Pað sem hér er
átt við eru rímnalög frá þeim tímum er
rímnakveðskapur var. algengur á íslandi
og þjóðin var sjálf höfundur laganna.
Þessi einkennilega sönglist íslendinga
hefir varðveitst lengur en sá almennings-
siður að stytta kvöldvökur með rímna-
kveðskap. Eftir að meiri smekkvísi í
Ijóðagerð hafði af misskilningi snúið sér
frá söguljóðunum til annara yrkisefna og
dyradómur Jónasar Hallgrimssonar hafði
unnið bug á Fróðáiundrum leirburðarins
hjá hinum og þossum flækingsskáldum
vorum á síðustu öld, lifðu samt lengi á
vörum þjóðarinnar lög þau er báru fram
rímnakveðskapinn. Ómurinn af íslenzk-
um kvæðalögum barst niður til vorra
tima frá áheyrendum alþýðusöngvaranna,
sem voru illu heilli og ófyrirsynju flæmd-
ir af baðstofubekkjunnm. of snemma. í
stað þess að deyða þennan lífseiga vísi
alíslenzkrar þjóðlegrar kvæðalistar hefði
átt að vernda hann og styrkja og reisa
við á hærra stig bæði með máli og tón-
um. Fyrr en annað hærra og betra var
í boði handa fólkinu áttu ekki alþýðu-
söngvarar rímna og mansöngva að víkja.
En þótt trygð alþýðunnar hafi svo
lengi staðist hin skaðlegu og vanráðnu
frumhlaup framfara og útlendra stælinga
frá yfirstéttinni íslenzku jafnt í þessu sem
öðru, þá er þó yfirgnæfandi hætta á því,
að hin ósviknu rímnalög vor glatist óðum
með hverju ári sem líður án þess að sann-
arleg vísindaleg rannsókn sé hafin til þesí
að forða því frá gleymsku, sem enn finst
af því tagi á vörum þjóðarinnar,
Eg get alls ekki látið mér. nægja fyrir
mítt leyti að hvíla mig við þá von, að
séra Bjarná Þorsteinssyni takist að leysa
þetta hlutverk af hendi með þeirri aðferð
sem hann beitir og með svo litlu fé sem
hann getur varið til þessa. Fyrst og
fremst er það öldungis óhæfilogt að taka góð-
ar og gildar uppskriftir hinna og þessara á
rímnalögum hér og þar .út um bygðir
landsins. Sá sem safnar slíkum lögum,