Ingólfur


Ingólfur - 01.12.1907, Blaðsíða 3

Ingólfur - 01.12.1907, Blaðsíða 3
INGOLFUR 391 f Ámi Thorsteinssou landfógeti andaðist á föstudagsmorguninn 29. f. m., nær áttræður að aldri., Hann yar fæddur á Arnarstapa und- ir Jökli 6. apríl 1828. Yar faðir hans Bjarni amtmaður Thorsteinsson, bróður- son séra Jóns Steingrímssonar prófasts á Prestbakka á Síðu; var ætt þeirra úr Skagaíirði og liggur ein rót hennar til Jóns biskups Arasonar; en móðir Árna var Þórunn dóttir Hannesar biskups Finnssonar. Árni varð stúdent við Reykjavíkur- skóia 1847, tók próf ílögum við Hafnar- háskóla 1854, varð sýslum. Snæfellinga 1856; landfógeti og bæjarfógeti 1861. Síðar vóruembættin greind og gegndi Árni þá landfógetaembættinu unz það var lagt niðnr 1904. Hann var kon- nngkjörinn alþingismaður á þingunum 1877—1903 og forseti efri deildar 1886, 1887, 1893—1903. Hann var frábær reglumaður um all- an embættisrekstur sinn, svo að því er við brugðið. Á alþingi var hann mjög réttlátur og sanngjarn í forsetastöríum sínum, eu tók að öðru leyti lítinn þátt í lagasetning og talinn nokkuð íhalds- samur. Bn góðan þátt átti hann í ýmsum nytsömum frainkvæmdum ,svo sem stofnun fornleifafélagsins og spari- sjóðs Reykjavíkur. Hann hafði mikinn hug á búnaðarmálnm; ritaði hann grein- ir af skynsamlegu viti um tiskveiðar og nokkur atriði landbúnaðar. Hann hafði mikið yndi af garðrækt og ber garður hans þess ljósust merkin, því að sá garður er efalaust fjölskrúð- ugastur biettur og bezt ræktaður á ölla íslandi. Árni var hófsraaður um alla hluti, óhlutdeilinn, staðfastur og trygglyadur. Kona Árna var Sophía dóttir Hannes- ar kaupm. Johnsena, Steingrimssonar biskups, og vóru þau syskinabörn. Hún lifir mann sinn. Börn þeirra eru á lííi: Hannes lögfræðingur, Árni söng- skáld og Þórnnn kona Franz Siemsens f. sýslumanns. Talnabandið. Enskur konsúll „fyrir Færeyjar og ísland.“ Dönum heiir lengi verið um það hug- að að tengja sem fastast sarnan „hjá- lönd“ sín og „nýlendur“ norður í höf- um. Þeir hafa kostað kapps um að fela lönd þessi í eiuu heildarhugtaki og leitast við að venja sjálfa sig og aðra á að skoða þau öll sem tökir eða perl- ur á sama bandinu. Færeyjar-lsland- Grænland er þeim hugðnæm halarófa og sumir þeirra geta, af ásettu ráði, ekki nefnt svo eitt þeirra, að þeir nefni þau ekki öll. Br stórdaninn Daníel Bruun þar fremstur í ílokki og hefii hann hvað eftir annað leikið þetta bragð frammi fyrir alheimi, t. d. á Parísar- sýningunni, til þess að innræta ölluin að þessi lönd væri öll sem eitt og hvert sem annað*. Hefir þetta orðið landinu að stórtjóni og stuðlað drjúgt að því, að ýmsir útlendingar halda að hér búi réttlausir skrælingjar, eins og á Græn- landi. Nú hefir enska stjórnin hallast á þennan *) Samskonar hragöi beittu Þjóðverjar Dani þegar þeir tóku upp nafnið „Slesvík- Holstein11. Gerðu þeir þar með Suðurjótland og Holstein að einu huglaki í meðvitundmanna, létu svo eitt yíir hvorltveggja ganga og hrifs- uðu baiði löndin uf Dönum í einum rykk. meiðinn og slipað sama lconsúlinn yfir Fœreyjar og Island. Maður sá sem skipaður er hefir áð- ur verið konsúll Breta í Færeyjum. Þar hefir houum verið reist íbúðarhús og þar verður aðalheimili hans framveg- is, en nú er bætt við hann konsúlstörf- unum fyrir Islaud. Er búist við að hann fái einhvein hérlendan mann til þess að annast störfin í fjarveru sinni. En til Jiess er þó ekkert fé veitt og fær starfsmaðurinn vegsemdina eina að verkalaunum. Hér hefir dönsku stjórninni eflaust þótt hlaupa vel á snærið að geta lítils- virt ísland í augum heimsins, því að varla leikur vafl á því, að þetta tiltæki er af hennar rótum runnið. Að minsta kosti hefir hún lagt ljúft samþykki til þess. Það eru órjúfanlegar orsakir til þess, að upptalning „hjálendnanna“ hlaut að verða endaslepp í titli þessa nýja kon- súls: „Færeyjar-ísland“ —því að Græn- land er „lokað land“, þar sem enginn ódanskur má stíga sínum fæti og ein- okun danska ríkisins getur leikið sér í kyrrþey að dauðateygjum þjóðarinnar eins og fressköttur að feigri mús. — Að öðrum kosti er ekki hætt við, að þá perlu hefði vantað á bandið. Óvíst er enn, hvort utanríkisráðgjaii Dana heflr gert þetta með eindæmi sinu, án þess að leita umsagnar ráðgjafa ís- lands. En deig hefir þá enn verið ein- urðareggin Hafsteins, ef hann hefir lát- ið óskorið þetta innlimunarbandið. Tiltækið er augljóst spor aftur á bak, og miðar tii hnekkis virðingu og sjálf- stæði lands vors. Er stjórnarráðmu skyldast að ganga fram í því að fá þessu breytt þegar í stað. Það ætti ekki að vera ókleift. Og enginn íslenzkur maður ætti að styðja tilræði þetta með því gerast undirtylla Færeyjakonsúlsins. Slíkt dáð- leysi má engum uppi haldast. Keykjasaudur. f'sfimar hefir talsvert yerið unnið að heftingu sandfoks á Reykjasandi á Skeið- um; biefir þar verið. tekin til fyrirmynd- ar aðferð Eyjólfs Guðmundssonar í Hvamrni, sem svo *vel hefir gefist á Landi. Skóggræðslumálastjórnin, Ryd- er höfuðsmaður og Prytz prófessor, höfðu að einhverju leyti hönd í bagga með framkvæmd verksins, en kostað var það af landssjóði, Búuaðarfélagi íslands, sýslusjóði Árnessýslu og jarðarieganda. Alls var unnið fyrir um 900 kr. Þar af varið til grjótgarðahleðslu 385,40 og til timburgirðinga 531,27 kr. — Lengd grjótgarðanna 700 faðrnar og timburgirðinganna 415 faðmar. Faðm- urinn í grjótgörðunum kostaði 55 aura en í timburgirðingunni 1,28 kr. Timdurgirðingarnar voru settar þar sem erfitt var að ná í grjót. Þann kost hafa þær fram yfir grjótgarðana að þær má draga upp og hækka eftir því sem að þeim berst sandurinn. Fyrir þessu verki stóð Gunnlaugur Kristmundsson, sem var við sand- græðslunám erlendis. („Freyr“). Jólabazar Þjóðólfs. Bróðir vor Þjóðólfur er farinn að hafa til sýnis gripi þá, sem eiga að vera til sölu á jólabazar blaðsins. Fyrsti gripurinn er kvarnastokkur, sem hringlar mjög mikið í. Lætur mjög fagurlega í hon- um og heyrist svo sem hann segi: „Sál í mér la-la“. Stokkurinn heitir „Jónasarvinur“. Tímatal. Tveim rímfróðum mönnum, öðrum í „Ingólfi“ 12. tölublaði þ. á., og hiuum í „Austurlandi“ 5. tölubl. s. á.. ber ekki saman um íslenzkt tímatal og rímtöflur. Muh ef til vill orsök þess að þeir hafi ekki við hendina rit þau við að styðjast til samanburðar, sem til eru á íslenzku um tímatal og viljum vér geta þeirra hér: Rím: Hólum 1671. Rím Þórðar biskups: Skálh. 1692. (gamlaatíl). Lesrím Jóns bisk- ups Árnasonar: Hól. 1707. Fingrarím hans: Kmn. 1739 (og síðar) — Lesrím Odds læknis Hjaltalíns: Beitistöðum 1817 (um tunglkomur), og B. Gunn- laugssonar: „Nokkrar einfaldar reglur til að útreikna tunglsins gang“,: Viðey 1828. Eftir ritum þessum mætti all- mikið fara. Um páskakomu væri fróðlegt að vita, hvort þá bæri upp á þessi ár: 1954, 2049, 2076, 2106, 2201 og 2297? jRrib. Erlend símskeyti til Ingólfs frá K. £. Khöfn. 2ð/u kl. 41°. e. h. Látinn er norskur leikari, Henrik Klausen (63 ára gamall). Þýzka stjórnin hefur lagt fyrir rík- isþingið lagafrumvarp um félög og sam- komur, en samkvæmt þeim á þýzk tunga .að talast við almennar samkomur. Yfir- völdin geta þó veitt undanþágu frá þessu. [Hér er að líkindum átt við for- réttindi þýzkunnar i hinum pólsku löndum Prússa]. Ástandið í Portúgal heldur áfram að vera athugavert. Lýðveldissinnaflokkur- inn eykst veruiega. Við jarðskjálftann í Karatag (í Buch- ara) fórust 4000 manna, en 200 varð bjargað. Hraðlest milli Barcelóna og Velenzía (á Spáni) féll í gær niður af brú yfir Canesfljótið. Fundist hafa 20 lík og 80 særðra manna. Ríkisþingsmennirnir, er tóku þátt í íslandsförinni, halda Hafstein ráðherra veizlu í kvöld. Prússneska stjórnin hefir lagt fyrir þingið (landdaginn) frumvarp, er heirn- ilar stjórninni að taka pólskar landeign- ir eignarnámi í þarfir þjóðarinnar. Paulsen kaupmaður í Sandved á Sjá- landi hefir verið tekinn fastur fyrir víx- ilfalsanir að upphæð 400,000 krónur. Til Þorsteius Erliugssouar. Hirðmenn sköju’ út hneykslið það að lieyrðist konungs-drápan þin — Gott! þér kom í kollinn að kasta perluni fyrir svín. 7. okt. 1907. Steplian Q. Stepliansson. KartöfLur “VíxiToor nýkomið í verslun Kristins Magnússonar. Tálssími 17. Nýtt lierfi. Sigurður Sigurðsson búfr. pantaði í sumar sléttunarherfi fyrir Guðmund Sigurðsson plægingarmann í Garðsauka, og skrif'ar hann nú Sigurði um herflð á þessa leið: „Nú er ég búinn að reyna herfið. Vafalaust heíir ekki komið öllu betra herfi hér til* lands, sem hfier það ætl- unarverk að rífa heila og ófúna strengi niður í smælki og mjúka mold. Auk þess hefir það aðra kosti fram yfir önnur heríi, t. d. gengur aldrei úr skorðum, það má draga það yfir gróna jörð án þess að hún rispist, létta það og þyngja eftir vild, o. s. frv. Þá er það mikisvert, hve fyrirhafnarlítið er að taka það í sundur þegar þarf að fiytja það milli bæja, og að það er hættulaust í flutningi þar sem tindarn- ir leggjast flatir niður. Herfið er rammsterkt og stórvirkt11. Þetta herfi kostar 70 kr. í innkaupi, og fæst hjá Audrew Hallingwort í Kristjaníu. (,,Freyr“). Græöir. Samkvæmt ákvörðun stofnfundar, verður fundur haldinn í fiskveiðafélaginu Græðir miðvikudaginn 11. des. kl. 6 e. rn í Bárubúð. Áríðandi að aliir féiags- menn mæti, þar á íundinum verður ákveðið um starf fé- lagsins n. ár ásamt fi. Stjórnin. með cemi týnd á göt- uin hæjarins. Skilist í Félagsprentsmiðjuna. sem haldið vautaði á, týndist á leiðinni frá Söluturninum til bæjarbryggjunn- ar fyrra laugardag. Silfurhólkur var á stafnum og í hann var grafið nafn eiganda.Finnandier beðinn að skila stafnum til ritstjóra Ingólfs og taka við fundarlaunum. i — a neröorsi tii íeigu á Laufásvegi 17. fyrir einhleypa menn. Carl F, Bartels ú.rara.löm* Laugavegi 5, Talsimi 137 Hefir mikið úrval af allskonar úrum og klukkum, úrkeðjum karla og kvenna- armböndum, armhringum o. fl. Munið að kaupa úrin með Fálka- merkinu. Kæfubelgur. Sá sem skilið hefir eftir kæfubelg við bæjardyr mínar s. 1. sumar, vitji hans hið bráðasta, ella verður farið með hann sem óskilafé. Hábæ við Grettisgötu Þórður Þórðarson.

x

Ingólfur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ingólfur
https://timarit.is/publication/189

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.