Landið - 27.10.1916, Side 3
LANDIÐ
179
cSiéfié fiaupmenn yéar ávalf um
Rina alRunnu sœfsqff Jrá aléin~
sqfayaréinni „Sanifas“ i tfíayRavíR.
Fyrir lanpienn og iannfélðg
Sama sem Víking (mjólk)
er á Lager hjá
Ó. G. Eyjólfsson & Co.
Afgreiðsla Landsins
er í Bárubúð (uppi).
„Landið“
kemur út einu sinni í viku
og kostar 3,00 kr. árgang-
urinn, ef fyrirfram er greitt,
en 4,00 kr ef greitt er eftirá.
t kaupstöðum má borga á
hverjum árstjórðungi. Utgef-
andi: Félag í Reykjavík.
Afgreiðslan er í Bárubúð
(uppi). Opin á hverjum degi
kl. 11—3 Pósthólf 353.
Sími 596. Um alt sem að
henni lýtur, eru menn beðn-
ir að snúa sér til afgreiðslu-
mannsins.
Ritstjóri og ábyrgðar-
maður: Jakob Jóh. Smári,
mag. art., Stýrimannastíg 8
B. Venjulega heima kl. 4—5
e. h. Talsími 574
Xosningaúrslitin.
Reykjayík:
Jörundur Brynjólfsson kosinn
með 797 atkv. og Jón Magnússon
með 725 atkv. Þorvarður Þorvarðs-
son fékk 700 atkv., Knud Ziemsen
694, Sveinn Björnsson 522 og
Magnús Th. S. Blöndahl 285.
Ógildir voru 141 miði og átti
alþýðuflokkurinn meiri hluta þeirra.
Yestmannaeyjar:
Karl Einarsson kosinn með 288
atkv. Sveinn Jónnsson (heimastj.m.)
fékk 39 atkv.
Seyðlsflörður:
Jóhannes Jóhannesson kosinn
með 119 atkv. Karl Finnbogason
(langsum) fékk 107 atkv. Þrír seðlar
ógildir.
Akureyri:
Magnús Kristjánsson kosinn með
212 atkv. Sigurður Einarsson dýral.
fékk 113 atkv. og Erlingur Frið-
jónsson 155.
ísafjörður:
Magnús Torfason kosinn með
272 atkv. Sigurjón Jónsson fékk
208.
Mýrasýsla:
Pélur Pórðarson í Hjörsey kos-
inn með 215 atkv. Jóhann Eyjólfs-
son hlaut 152 atkv.
Dalasýsla:
Bjarni Jónsson frá Vogi kosinn
með 160 atkv. Benedikt í Tjalda-
nesi fékk 108 atkv.
Vestur-ísafj.sýsla:
Matthías Ólafsson kosinn með
171 atkv. Sr. Böðvar fékk 90 atkv.,
en Halldór læknir 87.
i.rnessýsla:
Sigurður Sigurðsson kosinn með
541 atkv. og Einar Arnórsson með
442 atkv. Jón Þorláksson fékk 42Ó
atkv., Gestur á Hæli 406 og Árni
í Alviðru 181.
Rangárvallasýsla:
Kosnir eru sr. Eggert Pálsson
með 475 atkv. og Einar Jónsson
með 435 atkv. Sr. Skúli Skúlason
fékk 238 atkv.
Gullbr.- og Kjósarsýsla:
Kosnir eru Björn Kristjánsson
með 491 og Kristinn Danielsson
með 490 atkv. Einar Þorgilsson
fékk 435 atkv., Þórður Thoroddsen
207 og Björn í Grafarh. 181.
Húnavatnssýsla:
Kosnir eru Pórarinn Jónsson á
Hjaltabakka með 301 og Guðm.
Ólafsson með 269 atkv. Guðm.
Hannesson fékk 240 og Jón Hann-
esson 188 atkv.
Snður-Múlasýsla:
Kosnir eru Sveinn Ólafsson í
Firði með 483 og Björn R. Stefáns-
son með 308 atkv. Sigurður H.
Kvaran fékk 281, Guðm Eggerz
272 og Þórarinn Benediktsson 254
atkv.
Vestur-Skaftaf.sýsla:
Gísli Sveinsson kosinn með 194
atkv. Lárus í Kirkjubæjarklaustri
fékk 156 og sr. Magnús á Prests-
bakka 97 atkv.
Snæfellsnessýsla:
Halldór Steinsson kosinn með
267 atkvæðum. Óscar Clausen fékk
176, Páll V. Bjarnason 103 og
Ólafur Erlendsson 63 atkvæði.
Skagafjarðarsýsla:
Kosnir eru Magnús Guðmunds-
son mcð 401 atkvæði og Ólafur
Briem með 374 atkv, Jósep Björns-
son fékk 330 atkv, og Arnór
Árnason 197.
Fréttir.
Mngnús Stepliensen
landshöfðingi átti áttræðisafmæli
fyrra miðvikudag.
Heiðurssamsæti átti að halda honum,
en hann baðst undan.
Brnnl.
I fyrri viku brann fjós og hlaða
á Borg á Mýrum. Brunnu þar inni
8 kýr. Eigi vita menn um upptök
eldsins.
Er þetta tilfinnanlegur skaði fyrir eig-
andann, séra Einar Friðgeirsson.
Es. „íslaiid4*
fór til útlanda fyrra föstudag.
Es. „Gullfoss“
fór héðan á hádegi í gær, norður um
land til útlanda.
Mjólknrverðið.
Mjólkursalarnir tilkyntu um daginn,
að verð á mjólk ætti að hækka upp í
36 aura potturinn þ. 15. þ. m. Tók þá
verðlagsnefnd í taumana og ákvað há-
marksverð á mjólk 32 aura pt. En
mjólkursalar svöruðu með því, að hætta
Peir, sem Jrtast
hinna ágætu lieimilisvéla (eða
einhvers annars), er ég útvega
til allra héraða landsins, sendi
mér línu. — Ég hefi nú birgðir af
ýmsum vélum o. fl., er hvert heim-
ili þarfnast, og útvega auk þess
flest annað (ætt sem óætt), er menn
óska og fáanlegt er.
Stefán B. Jóusson,
Reykjavík.
Hólf 315. Sími 521.
að selja mjólk, og sendu stjórnarráð-
inu kæru út af verðlagi verðlagsnefnd
ar. Hefur nú stjórnarráðið felt úr gildi
32 aura hámarkið, en lögfest 35 aura
hámarksverð 1 staðinn, á meðan mais
hækkar ekki í verði.
Á „svarta Hstann“
er sagt, að Bretar hafi sett 4 hérlend
verzlunarhús: A. Obenhaupt, H. Th.
A. Thomsen, Braun og sfldarbræðslu-
verksmiðju fyrir norðan. Banna þeir
viðskifti við og flutning til þessara
fyrirtækja raeðan stríðið stendur.
Ástæðan er þýzkt þjóðerni Oben-
haupts og Brauns, þýzk ræðismenska
Thomsens, en um hið fjórða vitum
vér ekki.
í næsta blaði
kemur ýtarlegt svar við vörn ráð-
herra í samningsmálinu.
Framsóknarsjóður íslands
heitir sjóður einn, er farþegar á Gull-
fossi stofnuðu á leiðinni til New-York.
Á hann að styrkja efnilega Islendinga,
sem hafa ekki efni til að afla sér
þeirrar mentunar, er lífsstarf þeirra
krefst.
Hugmyndin er frá hr. kaupm. Thor
Jensen og gaf hann þegar 1500,00 kr.
og aðrir farþegar 1500,00 kr. Enn frem-
ur lofaði hr. Thor Jensen að greiða
3000,00 kr. í sjóðinn árlega í 5 ár.
Að vestan safnaðist sjóðnum á 3.
hundrað króna.
Bráðabirgðastjórn var kosin: Thor
Jensen (form.), Jón Björnsson (vara-
form.), Árni Eiríksson (ritari), Arent
Claessen (féhirðir), Hallgrímur Bene-
diktsson, Jónatan Þorsteinsson, Sigur-
jón Pétursson.
Sjóðstofnun þessi ber vott um rausn
og höfðingsskap og væri vel, ef anenn
vildi þar við auka, sem stofnendur
hafa byrjað.
Prá strídinu.
Á vesturvígstöðvunum er barizt
Iátlaust og þykjast bandamenn
vinna nokkuð á, en lítið mun það
vera. Af Rússum heyrist nú ekkert,
enda mun veðrátta hamla hernað-
atframkvæmdum þar eystra.
Grikkir eru enn milli steins og
sleggju. Flota þeirra hafa banda-
þjóðirnar krafizt að fá og ennfrem-
ur heimta þeir nú, að hersveitir
Grikkja í Larissa (í Þessalíu, norður
í landi) verði fluttar suður á Pel-
opsskaga. Mun þeim þykja Grikkir
ótryggilegir og eigi vilja hafa þá
réf.t að báki sér.
Annars heyrist um smáskærur
fyrir norðan Saloniki. En aðalsókn-
in, sem boðuð hefur verið, sést
ekki ennþá.
Austurríkismenn hafa rekið Rú-
mena öfuga út úr Transsilvaníu
(Siebenbiirgen) og í Dobrudscha
hefur her Búlgara (undir yfirstjórn
Mackensens) sótt fram og tekið
Constanza, sem er sá eini hafnar-
bær Rúmena er nokkuð kveður að.
Þaðan lágu skipaleiðirnar til Mikla-
garðs og Trebizond, og til Odessa
á Rússlandi. Þaðan liggur og aðal-
járnbrautin vestur og norður um
alla Rúmeníu Er því sigur þessi
harla mikilvægur fyrir miðveldin.
Constanza liggur við Svartahafið,
all langt fyrir norðan hin fornu
takmörk Búlgaríu og Rúmeníu.
Stúrgk forsætisráðherra í Austur-
ríki kvað hafa verið skotinn af
rithöfundi nokkrum, Adler að nafni.
Ekki eru til greindar ástæður.
Þegnskylduvinnan.
Svo fór um hana hér í Reykja-
v(k, að með henni voru greidd
272 atkv., en móíi henni 1229
atkv Auðir voru 436 seðlar, en
ógildir 13.
Hviti hanzkinn. 174
fá tvær lotur enn, og svo þarf ekki meira
um þetta að ræða«.
Clifford skildi ekki neitt í þessu. Glerbrot-
in gengu frá manni til manns og var dýft
ofan í ýms glös Honum datt í hug, að hér
væri nú ef til vill horfnu demantarnir, en
hratt' þeirri hugsun frá sér. Cliífórd hafði vit
á demöntum og vissi, að þeir litu aldrei
þannig út. Hann huggaði sig við það, að
hann gæti komið næsta dag, þegar enginn
væri viðstaddur, og rannsakað nákvæmlega.
Nú þóttist hann hafa fengið nóg í þetta
skifti og ætlaði til frú Mantons að skýra frá
árangrinum.
Hann var í þann veginn að fara, þegar
dyrum herbergisins var lokið upp og Reyne
kom inn. Hann var enn í veisluklæðum og
hafði vindling ( munninum.
»Þið eruð bjálfar«, sagði hann. »Hvers
vegna getið þið ckki látið Dawlish autningj-
ann óáreittan?«
»Hann hefur umgengizt skrítið fólk síð-
ustu dagana*, sagði ungi maðurinn harð-
neskjulega. »Og mér hefur oftar en einu
sinni fundist hann þekkja mig. Svo komum
við honum hingað, til þess að hann geri
ekkert af sér. Þegar hann er búinn að sitja
eina nótt í myrkri, þá má gera ráð fyrir,
að hver vitglóra sé farin aftur«.
175
Rayne varð dimmur á svip við þessa út-
skýringu.
»Þú værir góður stjómmálamaður!« urraði
aði í honum. „Það er engin von þess, að
Dawlish fái vitið aftur. Og samt bikar þú
þér alla þessa fyrirhöfn og stofnar þér í
hættu, til þ ess eins að kvelja þennan aum-
ingja. Og ofan á alt saman er hann slopp-
inn úr greipum þínum*.
»Getur það átt sér stað?«, spurði ungi
maðurinn skelfdur.
»Já, svo er sem ég segi. Dawlish er fífl,
en hann er rammur að afli. Ég býst við,
að hann hafi ósjálfrátt ratað út sömu leið
sem hann kom, því að aðaldyrnar eru ennþá
lokaðar og læstar*.
»Það getur orðið okkur bagalegt», sagði
ungi maðurinn.
»Hvaða vitleysal Hver ætli skifti sjer af
því, hvað hann segir, fífiið. Við skulum ekki
eyða tímanum í þetta. Rjettu mjer einn
steininn. Þetta er ekki vel ger{ ennþá. Þeir
eru langt of hættulegir eins og þeir eru«.
»Það er jeg einmitt að segja«, mælti
Sefton. »Ég þyrði ekki að ferðast með þá
á mjer«.
»Þú gætir það heldur ekki. Þetta fólk
veit fullvel, hverjum það á grátt að gjalda.
Það heíur ekki sigað lögreglunni á okkur —
176
af eintómri varúð. En þið getið reitt ykk-
ur á, að hvert tangur og tetur verður rann-
sakað hjá okkur, þegar við leggjum af stað.
Verkið má til að vera vel af hendi leyst,
annars fáið þið enga borgun fyrir það. Hvar
eru hinir steinarnir?«
Rayne sneri sér að Sefton. Clifford virt-
ist Sefton verða órór og hikandi.
»Það tjáir ltklega ekki að ætla sér að
dylja þig þess«, svaraði Sefton þrjóskulega.
„Þú manst, að mér voru fengnir þeir í
hendur, þegar búið var að ná gripunum, og
ég geymdi þá í koffortinu mínu. En þegar
ég ætlaði að taka þá upp í gærkveldi, þá
voru þeir horfnir*.
Rayne blótaði. Hann fölnaði af reiði, en
reyndi þó að stilla sig.
»Það er laglegt*. sagði hann lágt og
grimmlega. »Ef svo er, þá missir fjelagið
meira en miljón. Og þú hefur farið ógæti-
lega með það, sem þér var trúað fyrir. Af
hverju gættirðu þeirra ekki? Af hverju varstu
ekki hér allan tímann?*
*Ég gerði það«, fullyrti Sefton. »Ég gætti
giipanna dag og nótt og hef ekkert úr bæn-
um farið«.
»Þú þykist þá ekki hafa farið neitt úr
borginni?« spurði Rayne.