Landið


Landið - 13.07.1917, Side 2

Landið - 13.07.1917, Side 2
L ANDIÐ 1 to Til, Stephans G. Stephanssonar skálds. Kvæði, eftir Ingibjörgu Benediktsdóttur, flutt í samsæti, er Reykvíkingar héldu skáldinu 17. júní sl. Hve vildi hún nú bjóða þig velkominn heim með viðkvæmni, móðirin góða. Hún sæl er að fagna hér syninum þeim, er söng henni þrá sinna Ijóða; og sjaldan var heimþrá svo hjartnæm og klökk, — hún höndina réttir með ástúð og þökk. Svo hljómþungar vorbylgjur vestan um sæ þú vígt hafðir fósturjörð þinni, og tónarnir dýpstu þó bæru þann b!æ, að byrgður var grátþungi inni, þín hjartaslög titruðu í hreimunum þeim. Þær hljómöldur nú hafa borið þig heim. Og móðirin hýra bar háttðakranz, er hnýtti’ henni vorið að enni, og sefgrænum feldi með sóleyjafans það sveipaði um brjóstin á henni. Með fegurstu blómin það beið eftir þér, að betur þú sæir, hve fögur hún er. Hve væri’ hún þá sæl, ef hún veitt gæti þér á vorblíðu-kvöldunum sínum, að augnablik fyndir þú fullnægju hér í fegurstu draumunum þínum, — já, fyndir að heimþrá þín hefði nú rætzt, og hugirnir enn gætu’ í vordraumum mætzt. stöðu sinnar að vera laus við það. Þannig skýrir ráðherrann frá, og munu þeir sem hann þekkja, eigi vefengja það sem hann segir Þess vegna verður árásin líka að vera í kajbátahernaðarformi. Eng- inn þorir að skrifa tneð nafnivaivx^ þá gervinafni, svo sem »Jóa Jóns- son“ í Vísi. Kafbátahernaðurinn er víðar en við England, hann er hér í fullum blóma, en sá er munurinn að kaf- bátarnir þýzku hafa númer og má þekkja þá af því. Hér eru þeir númers-Iausir. Enginn veit hyaðan þeir koma eða hvert þeir fara, en fólkinu er ætlað að hirða, notfæra sér og melta það, sem þeir skilja eftir f kjölfari sínu. Alveg má telja víst að Fram- sóknarflokkurinn hafi óbeit á þess- um lævísu skrifum Tímans og ó- maklegum árásum á vissar stéttir og vissa menn, sem ritstjórninni finst að standi sér eða skjólstæð- ingum sfnum hagsmunalega í vegi. gjargráðanejnð. Framsöguræða Bjarna Jónssonar frá Vogi. Vér höfum ísléndingar hlotið vandræði ýmiskonar af þeim miklu Hjaðningavígum, sem nú geysa um heim allan. Er þess fyrst að geta, að þessi vandræði hófust með þeim hætti, að þær ófriðarþjóðir er til náðu, tóku að hefta viðskifti vor við önnur lönd, og höfum við af því beðið tjón allmikið. Auk þess var tekið það ráð, að beita sultin- inum sem aðalvopni, og með því var oss íslendingum stíað frá verzl- un við þá þjóð, sem oss hafði um langan aldur reynst hagstæðast að verzla við, nefnilega Þjóðverja. Ég hélt því fram í fyrirlestri í árs- byrjun 1916, að vér ættim að hafa menn í Englandi, Þýzkalandi og Vesturheimi til að gæta hagsmuna vorra, svo að sem minst tjón hlyt- ist af ófriðnum fyrir siglingar og verzlun þessa lands, með því að komast að hagkvæmum samningum við stórþjóðirnar og hinar helztu hlutlausu þjóðir. Þá verður enn þrengra um Oss og meiri bönd lögð á verzlun ís- lands, er Énglendingar meinuðu oss að skifta við hlutlaus lönd austan hafs, Norðurlönd og Hol land. Það sjá allir hvílík vandræði hlutu að stafa þar af, enda er kunn- ugt orðið-, hversu mikill hnekkir viðskiftum landsins hefur staðið af þessu. Þó versnar enn um allan helming, er hafnbannið var lagt á England. Urðum vér við það al- gerlega milli steins og sleggju, þar sem önnur aðal-ófriðarþjóðin segir: „Þér megið ekki sigla til annara landa án þess að koma við hjá oss“, en hin þjóðin segir: „Við sökkvum vægðarlaust hverju skipi, sem til Englands siglir". Þetta horfði til stórvandíæða, en fyrir milligöngu brezka ræðismannsins hér fengum vér þó að láta skip sigla beina leið frá Danmörku til Islands, án þess að koma við í Englandi, og höfum vér þann veg fengið nokkuð af vörum og skipum austan um haf. Og síðasti liðurinn, sem veldur oss mestri hættu, er það, er Bandaríkin gengu í ófriðinn. Ég skal þá með örfáum orðum rekja það, sem gert hefur verið af hálfu stjórnar og þings til að af- stýra vandræðum síðan ófriðurinn byrjaði. Mönnum mun vera það í minni, að fyrst var leigt skip, sem „Hermod" hét, og látið fara eina ferð til Vesturheims, — en síðan ekki söguna meir. Þá var skipa- leiga ekki nema 14000 kr. fyrir þetta stóra skip, og hefði því ,ef um nokkra framsýni hefði verið að ræða hjá oss, verið sjálfsagt að halda áfram leigunni, eða jafnvel að festa kaup á skipinu, en stjórnin, sem þl sat að völdum mun ekki hafa treyst sér til að ráðast f slíkt stórfyrirtæki sakir þess að hún var þá farin frá og gegndi aðnns störf- um um stundarsakir. Ég fór þá til kaupmanna og Ieitaöist við að leiða þeim fyrir sjónir, hvern hag sigl- ingar vorar og verzlun gæti haft af þvf að vér hefðum sjálfir ráð á skipum til vöruflutninga, og reyndi að fá þá til að haida áfram ieig- unni. En sú férð fór á sömu leið og tvær ferðir aðrar, sem ég var sá öfundlausi viðskiftaráðunautur hér á landi. í annað skiftið viidi ég fá þá til að hefja siglingar milli íslands og Liverpool, og hugðist með því r ð ryðja braut hugmyndinni um að vér kæmim oss upp verzlunar- flota sjálfir. Þeir sögðu: „Það er ljómandi falleg hugmynd, sem þú kemur með, en hvernig dettur þér í hug, að samtök náist hjá íslenskri kaupmannastétt til slíkra fram- kvæmda?" Nú geta menn séð eftir á hvor hafði réttara, sá maður, sem ekkert vit átti að hafa á viðskiftum og verzlun eða hinir, sem talið var að hefði einir alla þekkinguna. 1915 kom sá flokkur, sem ég hef talist til, með tillögu um að birgja landið að kornvöru og var í framsögunni einnig talað um kaup á steinolíu og kolum. Tillagan var feld, en stjórnin lýsti þv'í yfir, að hún hefði í hyggju að gera alt hvað hún gæti til að sjá landinu fyrir nægilegum birgðum. Svo tók hún líka skip á leigu, Bisp, en þá var skipaleiga stigin svo mjög, að þetta skip, sem var miklu minna en Hermod, kostaði nú 65,000 kr. í stað þess sem Hermod kostaði aðeins 14,000 kr. Ekki myndi það Þjóðverjum lfkt, að sjá svo illa borgið hag sínum, og sjá ekki svo langt fram í tím- ann og að hverju myndi reka um vöruflutninga i skipalausu landi. Það hefði því verið sjálfsagt að gera leigusamning til lengri tíma eða jafnvel öllu heldur kaupa skip, því að þessi háa skipaleiga borgar skipsverðið að mestu á einu ári. En þetta var mönnum ekki ljóst þá. Menn héldu að stríðið gæti aldrei lengi staðið, sérstaklega þótt- ust menn tryggir um að Þjóðverjar gætu ekki haldið út lengur en svo sem 2—3 mánuði, enda þótt það væri bersýnilegt hverjum hugsandi manni, að þjóðirnar stóðu svo jafnt að vígi, og viðureign þeirra hlaut að verða löng og að líkindum jafntefli. Annað var það og, sem stjórnin gerði, sem sé samningarnir við Breta. Hefur mörgum þótt þeir orka tvímælis að ýmsu leyti. Á síðasta þingi voru þeir til umræðu og lét ég þá f Ijósi þá skoðun mína, að þeir væri góðir að því er snertir réttindi landsíns, en að öðru leyti efasamir, og ekki gott að segja hversu sjálfráður annar málsaðilinn hefur verið. Svo stóð þegar aukaþingið kom saman, að ekki var komið í nein stórvandræði og engin bersýnileg hætta á því að atvinnuvegirnir stöðvuðust eða siglingar teptust svo að landið lenti í sveltu. En þegar leið fram til jóla, var það auðséð hverjum glöggum manni að hverju fór. Það hlaut að reka á*ð því að Þjóðverjar hertu á kaf- bátahern&ðinura fram úr hófi. Ég gat þess þá til styrktar tillögu, sem ég bar fram viðvíkjandi mat- jurtarækt og kolanámi hér á landi, þar sem ég sá, að af hafnbanninu myndi leiða skort á kolum og mat- vælum, að innan skamms mundu Þjóðverjar herða á kafbátahernað- inum og leggja fullkomið hafnbann á England, og mundi oss þá lítið lið í samningum við Engla. Þetta er nú komið fram hvorttveggja að sumu Ieyti. En því miður hafði aukaþingið ekki nógu opin augun til að sinna þessu máli. Það hefði þó vel mátt vera búið að útvega útsæði á þeim tíma, sem leið frá þessu þar til hafnbannið hófst, því að þá var ekki komið útflutnings- bann í Danmörku. Eins er með kolin. Hefði verið byijað að brjóta þau í vetur, hefði ekki farið svo, að menn hér í Reykjavík hefðu þurft að hætta vinnu sinni vegna kolaleysis. Hitt mun aftur verða miklu erfiðara, þó byrjað sé í sumar að brjóta kolin, Húseignin á Gerðabakka í Garði í Gullbringusýslu (áður eign verzlunarinnar Edinborg) verður seld við opinbert uppboð, sem haldið verður þar á staðnum laugardaginn þann 11. ágúst kl. 12 á hádegi. Keflavík, 5. júlí 1917. Olafur V. Ofeigsson. að ná þeim hingað þegar vetur fer að. • Nú er svo komið, að kol eru orðin of dýr til að reka fiskiveiðar, og hef ég séð þess ljósan vott út um gluggann minn, þar sem 14— 15 botnvörpuskip hafa nú legið aðgerðalaus mánuðum saman úti á höfninni. „ Nú heyri ég sagt, að komið hafi fram hlutur í sfðustu samningum, sem ekki hefur þekst áður, þar sem verkun á sfld er svo ákveðin, að ekki tekur tali að veiða hana, því að kostnaðurinn verður helm- ingi meiri en ella vegna þeirrar verkunaraðferðar, sem nú er til skilin. Má búast við, að kostnaður við útgerðina sé orðinn svo hár, og skilyrðin að öðru leyti svo ill, að útgerðin stöðvist með öllu. Eina ráðið, sem þó ekki er ráð nema framkvæmt sé, liggur ekki í valdi neins íslendings að fram- kvæma. Það er að stjórnin fengi verð afurðanna hækkað um 100%. Þá mætti reka útgerðina í sumar án stórtjóns. Þetta hefur þingmála- fundur á Skarðsströnd og aðrir þingmálafundir í Dalasýslu skorað á stjórnina að reyna. En þetta er ekki nein skyldukvöð; ekkert er heimtað af stjórninni nema tilraun, því að allir vita, að hún hefur eigi mátt til þess að knýja það fram. Það er þá auðséð, að þessi at- vinnuvegur liggur í kaldakoli. Og það er töluvert vafamál, hvort hægt verður að nota gufuskipin og vél- bátana til að afla fisks til soðn- ingar mönnum, þar sem kol og olía eru bæði dýr og lftt fáanlcg. Þá væri hugsanlegt, að eigi yrði í annað hús að venda en nota opna báta, og þá kæmi sér illa, hve sá atvinnuvegur er úr sér genginn og bátar orðnir fáir. Ég get vel fall- ist á þá skynsamlegu tillögu eins útgerðarmanns, Elfasar Stefánsson- ar, að vissast væri, að landsstjórn- in næði í tæka tíð viðarfarmi frá Ameríku, til þess að geta smíðað sér fleytu, ef í nauðir ræki. Það annað er öllum auðsætt, að fram- leiðsla Vesturheims eða Bandaríkj- anna er takmörkuð, og gróði jarð- arinnar á hverju ári hefur ekki gert mikið betur en fæða íbúana. Ennfremur er mörgum þúsundum smálesta sökt í sjó. Því er hugs- anlegt, að þar sem svo miklu er sökt og Bandaríkjamenn ætlast til að þeirra bandamenn sitji fyrirhlut- lausum þjóðum um vörukaupin, að svo geti farið, að íslendingar geti engin matvæli fengið vestan um haf eða annarsstaðar að, fremur en aðrar hlutlausar þjóðir, Það virðist koma ljóst fram í þessari styrjöld, að framvegis muni hyggi- legast og varlegast, að hver þjóð geti búið að sfnu. T. d. gæti þetta komið fyrir íslendinga þegar í haust, en hér er Htill forði. Þvf rfður á, að gera ráðstafanir, áður en sá háski dettur á, er mestur getur orðið, að sultur taki að þjaka þessari þjóð. Hefði ég verið ein- valdur í landinu í vor, hefði ég skipað öllum bændum að færa frá öllum ám sínum og sent þeim 5 þúsundir manna úr kaupstöðunum til að vinna fyrir þá f sumar, gegn því að þessir kaupstaðarbúar fengi góðan viðurgjörning og sæmilegt kaup til að geta lifað veturinn af. Hér í Reykjavík er hættast við sultinum, og liggur því nærri að gera ráðstafanir. Hingað til hafa menn verið svo bjartsýnir, að þeir hafa ekki hirt að gjöra ráðstafanir. Niðurstaða minnar ræðu verður þá þessi: „Búist við hinu illa; hið góða skaðar ekki“. Skipum nefnd til að íhuga, hvaða ráð eru til að afstýra hættu þeirri, er getur að minsta kosti vofað yfir, ef hún ekki vofir yfir þegar. Að svo mæltu vil ég æskja þess, að þessi þingsályktunartillaga, sem hér liggur fyrir, verði samþykt og nefndin kosin. fjárhagur lanðsins. Frá honum skýrði fjármálaráð- herra Björn Kristjánsson við fyrstu umræðu fjárlaganna í Nd. Er þetta hið helzta úr yfirliti því, er hann gaf: Tekjurnar 1916 hafa til þessa reynst...............kr. 31237,052 en voru áætlaðar ... — 2,104,100 Mismunur.............— 1,132,952 Þessi tekjuafgangur liggur í því aðallega, að flestir tekjulið- irnir urðu hærri en áætlað var, svo sem t. d. útflutningsgjald, það reyndist ..............kr. 302,729 var áætlað...........— 210,000 mismunur.............1 — 92,729 Tóbakstollur reyndist . — 553i238 var áætlaður ........— 500,000 mismunur......... ... — 53,338 Kaffi- og sykurtollur... — 366,956 var áætlaður ............— 325,000 Mismunur.............— 4L956 Símatekjur reyndust... — 359,023 voru áætlaðar........— 195,000 Mismunur.............— 164,023 Langmest munar þó um verð- hækkunartollinn, sem ekki var á áætlun. Hann nam um kr. 524,484, þar af 6% á landbúnaðarafurðum, en 94°/o af sjávarafurðum. Svo hafa og ýmsar aðrar tekjur farið fram úr áætlun, svo sem ábúðar- og lausafjárskattur, tekju- skattur, aukatekjur, erfðafjárskattur, vínfangatollur o. fl. Tveir tekjuliðir hafa reynst lægri en áætlað var, sem sé: Vitagjald um kr. 6,297,00 og endurgjald á öðrum fyrirframgreiðsl- um um kr. 3,498,00. Þá eru útgjöldin 1916. Þau reyndust......kr. 2,938,274 en voru áætluð . ... — 2,248,084 Mismunur............— 690,190

x

Landið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Landið
https://timarit.is/publication/194

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.