Landið - 13.07.1917, Page 2
L ANDIÐ
1 to
Til, Stephans G. Stephanssonar skálds.
Kvæði, eftir Ingibjörgu Benediktsdóttur, flutt í samsæti, er Reykvíkingar héldu skáldinu 17. júní sl.
Hve vildi hún nú bjóða þig velkominn heim
með viðkvæmni, móðirin góða.
Hún sæl er að fagna hér syninum þeim,
er söng henni þrá sinna Ijóða;
og sjaldan var heimþrá svo hjartnæm og klökk,
— hún höndina réttir með ástúð og þökk.
Svo hljómþungar vorbylgjur vestan um sæ
þú vígt hafðir fósturjörð þinni,
og tónarnir dýpstu þó bæru þann b!æ,
að byrgður var grátþungi inni,
þín hjartaslög titruðu í hreimunum þeim.
Þær hljómöldur nú hafa borið þig heim.
Og móðirin hýra bar háttðakranz,
er hnýtti’ henni vorið að enni,
og sefgrænum feldi með sóleyjafans
það sveipaði um brjóstin á henni.
Með fegurstu blómin það beið eftir þér,
að betur þú sæir, hve fögur hún er.
Hve væri’ hún þá sæl, ef hún veitt gæti þér
á vorblíðu-kvöldunum sínum,
að augnablik fyndir þú fullnægju hér
í fegurstu draumunum þínum,
— já, fyndir að heimþrá þín hefði nú rætzt,
og hugirnir enn gætu’ í vordraumum mætzt.
stöðu sinnar að vera laus við
það.
Þannig skýrir ráðherrann frá, og
munu þeir sem hann þekkja, eigi
vefengja það sem hann segir
Þess vegna verður árásin líka að
vera í kajbátahernaðarformi. Eng-
inn þorir að skrifa tneð nafnivaivx^
þá gervinafni, svo sem »Jóa Jóns-
son“ í Vísi.
Kafbátahernaðurinn er víðar en
við England, hann er hér í fullum
blóma, en sá er munurinn að kaf-
bátarnir þýzku hafa númer og má
þekkja þá af því. Hér eru þeir
númers-Iausir. Enginn veit hyaðan
þeir koma eða hvert þeir fara, en
fólkinu er ætlað að hirða, notfæra
sér og melta það, sem þeir skilja
eftir f kjölfari sínu.
Alveg má telja víst að Fram-
sóknarflokkurinn hafi óbeit á þess-
um lævísu skrifum Tímans og ó-
maklegum árásum á vissar stéttir
og vissa menn, sem ritstjórninni
finst að standi sér eða skjólstæð-
ingum sfnum hagsmunalega í vegi.
gjargráðanejnð.
Framsöguræða Bjarna Jónssonar frá Vogi.
Vér höfum ísléndingar hlotið
vandræði ýmiskonar af þeim miklu
Hjaðningavígum, sem nú geysa um
heim allan. Er þess fyrst að geta,
að þessi vandræði hófust með þeim
hætti, að þær ófriðarþjóðir er til
náðu, tóku að hefta viðskifti vor
við önnur lönd, og höfum við af
því beðið tjón allmikið. Auk þess
var tekið það ráð, að beita sultin-
inum sem aðalvopni, og með því
var oss íslendingum stíað frá verzl-
un við þá þjóð, sem oss hafði um
langan aldur reynst hagstæðast að
verzla við, nefnilega Þjóðverja. Ég
hélt því fram í fyrirlestri í árs-
byrjun 1916, að vér ættim að hafa
menn í Englandi, Þýzkalandi og
Vesturheimi til að gæta hagsmuna
vorra, svo að sem minst tjón hlyt-
ist af ófriðnum fyrir siglingar og
verzlun þessa lands, með því að
komast að hagkvæmum samningum
við stórþjóðirnar og hinar helztu
hlutlausu þjóðir.
Þá verður enn þrengra um Oss
og meiri bönd lögð á verzlun ís-
lands, er Énglendingar meinuðu
oss að skifta við hlutlaus lönd
austan hafs, Norðurlönd og Hol
land. Það sjá allir hvílík vandræði
hlutu að stafa þar af, enda er kunn-
ugt orðið-, hversu mikill hnekkir
viðskiftum landsins hefur staðið af
þessu. Þó versnar enn um allan
helming, er hafnbannið var lagt á
England. Urðum vér við það al-
gerlega milli steins og sleggju, þar
sem önnur aðal-ófriðarþjóðin segir:
„Þér megið ekki sigla til annara
landa án þess að koma við hjá
oss“, en hin þjóðin segir: „Við
sökkvum vægðarlaust hverju skipi,
sem til Englands siglir". Þetta
horfði til stórvandíæða, en fyrir
milligöngu brezka ræðismannsins
hér fengum vér þó að láta skip
sigla beina leið frá Danmörku til
Islands, án þess að koma við í
Englandi, og höfum vér þann veg
fengið nokkuð af vörum og skipum
austan um haf. Og síðasti liðurinn,
sem veldur oss mestri hættu, er
það, er Bandaríkin gengu í ófriðinn.
Ég skal þá með örfáum orðum
rekja það, sem gert hefur verið af
hálfu stjórnar og þings til að af-
stýra vandræðum síðan ófriðurinn
byrjaði.
Mönnum mun vera það í minni,
að fyrst var leigt skip, sem
„Hermod" hét, og látið fara eina
ferð til Vesturheims, — en síðan
ekki söguna meir. Þá var skipa-
leiga ekki nema 14000 kr. fyrir
þetta stóra skip, og hefði því ,ef
um nokkra framsýni hefði verið að
ræða hjá oss, verið sjálfsagt að
halda áfram leigunni, eða jafnvel
að festa kaup á skipinu, en stjórnin,
sem þl sat að völdum mun ekki
hafa treyst sér til að ráðast f slíkt
stórfyrirtæki sakir þess að hún var
þá farin frá og gegndi aðnns störf-
um um stundarsakir. Ég fór þá til
kaupmanna og Ieitaöist við að leiða
þeim fyrir sjónir, hvern hag sigl-
ingar vorar og verzlun gæti haft
af þvf að vér hefðum sjálfir ráð á
skipum til vöruflutninga, og reyndi
að fá þá til að haida áfram ieig-
unni. En sú férð fór á sömu leið
og tvær ferðir aðrar, sem ég var
sá öfundlausi viðskiftaráðunautur
hér á landi. í annað skiftið viidi
ég fá þá til að hefja siglingar milli
íslands og Liverpool, og hugðist
með því r ð ryðja braut hugmyndinni
um að vér kæmim oss upp verzlunar-
flota sjálfir. Þeir sögðu: „Það er
ljómandi falleg hugmynd, sem þú
kemur með, en hvernig dettur þér
í hug, að samtök náist hjá íslenskri
kaupmannastétt til slíkra fram-
kvæmda?"
Nú geta menn séð eftir á hvor
hafði réttara, sá maður, sem ekkert
vit átti að hafa á viðskiftum og
verzlun eða hinir, sem talið var að
hefði einir alla þekkinguna.
1915 kom sá flokkur, sem ég
hef talist til, með tillögu um að
birgja landið að kornvöru og var
í framsögunni einnig talað um kaup
á steinolíu og kolum. Tillagan var
feld, en stjórnin lýsti þv'í yfir, að
hún hefði í hyggju að gera alt
hvað hún gæti til að sjá landinu
fyrir nægilegum birgðum. Svo tók
hún líka skip á leigu, Bisp, en þá
var skipaleiga stigin svo mjög, að
þetta skip, sem var miklu minna
en Hermod, kostaði nú 65,000 kr.
í stað þess sem Hermod kostaði
aðeins 14,000 kr.
Ekki myndi það Þjóðverjum lfkt,
að sjá svo illa borgið hag sínum,
og sjá ekki svo langt fram í tím-
ann og að hverju myndi reka um
vöruflutninga i skipalausu landi.
Það hefði því verið sjálfsagt að
gera leigusamning til lengri tíma
eða jafnvel öllu heldur kaupa skip,
því að þessi háa skipaleiga borgar
skipsverðið að mestu á einu ári.
En þetta var mönnum ekki ljóst
þá. Menn héldu að stríðið gæti
aldrei lengi staðið, sérstaklega þótt-
ust menn tryggir um að Þjóðverjar
gætu ekki haldið út lengur en svo
sem 2—3 mánuði, enda þótt það
væri bersýnilegt hverjum hugsandi
manni, að þjóðirnar stóðu svo jafnt
að vígi, og viðureign þeirra hlaut
að verða löng og að líkindum
jafntefli.
Annað var það og, sem stjórnin
gerði, sem sé samningarnir við
Breta. Hefur mörgum þótt þeir
orka tvímælis að ýmsu leyti. Á
síðasta þingi voru þeir til umræðu
og lét ég þá f Ijósi þá skoðun
mína, að þeir væri góðir að því
er snertir réttindi landsíns, en
að öðru leyti efasamir, og ekki
gott að segja hversu sjálfráður
annar málsaðilinn hefur verið.
Svo stóð þegar aukaþingið kom
saman, að ekki var komið í nein
stórvandræði og engin bersýnileg
hætta á því að atvinnuvegirnir
stöðvuðust eða siglingar teptust
svo að landið lenti í sveltu. En
þegar leið fram til jóla, var það
auðséð hverjum glöggum manni
að hverju fór. Það hlaut að reka
á*ð því að Þjóðverjar hertu á kaf-
bátahern&ðinura fram úr hófi.
Ég gat þess þá til styrktar tillögu,
sem ég bar fram viðvíkjandi mat-
jurtarækt og kolanámi hér á landi,
þar sem ég sá, að af hafnbanninu
myndi leiða skort á kolum og mat-
vælum, að innan skamms mundu
Þjóðverjar herða á kafbátahernað-
inum og leggja fullkomið hafnbann
á England, og mundi oss þá lítið
lið í samningum við Engla. Þetta
er nú komið fram hvorttveggja að
sumu Ieyti. En því miður hafði
aukaþingið ekki nógu opin augun
til að sinna þessu máli. Það hefði
þó vel mátt vera búið að útvega
útsæði á þeim tíma, sem leið frá
þessu þar til hafnbannið hófst, því
að þá var ekki komið útflutnings-
bann í Danmörku.
Eins er með kolin. Hefði verið
byijað að brjóta þau í vetur, hefði
ekki farið svo, að menn hér í
Reykjavík hefðu þurft að hætta
vinnu sinni vegna kolaleysis. Hitt
mun aftur verða miklu erfiðara, þó
byrjað sé í sumar að brjóta kolin,
Húseignin á Gerðabakka
í Garði í Gullbringusýslu (áður eign verzlunarinnar
Edinborg) verður seld við opinbert uppboð, sem
haldið verður þar á staðnum laugardaginn þann 11.
ágúst kl. 12 á hádegi.
Keflavík, 5. júlí 1917.
Olafur V. Ofeigsson.
að ná þeim hingað þegar vetur
fer að. •
Nú er svo komið, að kol eru
orðin of dýr til að reka fiskiveiðar,
og hef ég séð þess ljósan vott út
um gluggann minn, þar sem 14—
15 botnvörpuskip hafa nú legið
aðgerðalaus mánuðum saman úti
á höfninni. „
Nú heyri ég sagt, að komið hafi
fram hlutur í sfðustu samningum,
sem ekki hefur þekst áður, þar
sem verkun á sfld er svo ákveðin,
að ekki tekur tali að veiða hana,
því að kostnaðurinn verður helm-
ingi meiri en ella vegna þeirrar
verkunaraðferðar, sem nú er til
skilin. Má búast við, að kostnaður
við útgerðina sé orðinn svo hár,
og skilyrðin að öðru leyti svo ill,
að útgerðin stöðvist með öllu.
Eina ráðið, sem þó ekki er ráð
nema framkvæmt sé, liggur ekki í
valdi neins íslendings að fram-
kvæma. Það er að stjórnin fengi
verð afurðanna hækkað um 100%.
Þá mætti reka útgerðina í sumar
án stórtjóns. Þetta hefur þingmála-
fundur á Skarðsströnd og aðrir
þingmálafundir í Dalasýslu skorað
á stjórnina að reyna. En þetta er
ekki nein skyldukvöð; ekkert er
heimtað af stjórninni nema tilraun,
því að allir vita, að hún hefur eigi
mátt til þess að knýja það fram.
Það er þá auðséð, að þessi at-
vinnuvegur liggur í kaldakoli. Og
það er töluvert vafamál, hvort hægt
verður að nota gufuskipin og vél-
bátana til að afla fisks til soðn-
ingar mönnum, þar sem kol og olía
eru bæði dýr og lftt fáanlcg. Þá
væri hugsanlegt, að eigi yrði í
annað hús að venda en nota opna
báta, og þá kæmi sér illa, hve sá
atvinnuvegur er úr sér genginn og
bátar orðnir fáir. Ég get vel fall-
ist á þá skynsamlegu tillögu eins
útgerðarmanns, Elfasar Stefánsson-
ar, að vissast væri, að landsstjórn-
in næði í tæka tíð viðarfarmi frá
Ameríku, til þess að geta smíðað
sér fleytu, ef í nauðir ræki. Það
annað er öllum auðsætt, að fram-
leiðsla Vesturheims eða Bandaríkj-
anna er takmörkuð, og gróði jarð-
arinnar á hverju ári hefur ekki gert
mikið betur en fæða íbúana.
Ennfremur er mörgum þúsundum
smálesta sökt í sjó. Því er hugs-
anlegt, að þar sem svo miklu er
sökt og Bandaríkjamenn ætlast til
að þeirra bandamenn sitji fyrirhlut-
lausum þjóðum um vörukaupin, að
svo geti farið, að íslendingar geti
engin matvæli fengið vestan um
haf eða annarsstaðar að, fremur
en aðrar hlutlausar þjóðir, Það
virðist koma ljóst fram í þessari
styrjöld, að framvegis muni hyggi-
legast og varlegast, að hver þjóð
geti búið að sfnu. T. d. gæti þetta
komið fyrir íslendinga þegar í
haust, en hér er Htill forði. Þvf
rfður á, að gera ráðstafanir, áður
en sá háski dettur á, er mestur
getur orðið, að sultur taki að þjaka
þessari þjóð. Hefði ég verið ein-
valdur í landinu í vor, hefði ég
skipað öllum bændum að færa frá
öllum ám sínum og sent þeim 5
þúsundir manna úr kaupstöðunum
til að vinna fyrir þá f sumar, gegn
því að þessir kaupstaðarbúar fengi
góðan viðurgjörning og sæmilegt
kaup til að geta lifað veturinn af.
Hér í Reykjavík er hættast við
sultinum, og liggur því nærri að
gera ráðstafanir. Hingað til hafa
menn verið svo bjartsýnir, að þeir
hafa ekki hirt að gjöra ráðstafanir.
Niðurstaða minnar ræðu verður þá
þessi: „Búist við hinu illa; hið
góða skaðar ekki“. Skipum nefnd
til að íhuga, hvaða ráð eru til að
afstýra hættu þeirri, er getur að
minsta kosti vofað yfir, ef hún ekki
vofir yfir þegar.
Að svo mæltu vil ég æskja þess,
að þessi þingsályktunartillaga, sem
hér liggur fyrir, verði samþykt og
nefndin kosin.
fjárhagur lanðsins.
Frá honum skýrði fjármálaráð-
herra Björn Kristjánsson við fyrstu
umræðu fjárlaganna í Nd. Er þetta
hið helzta úr yfirliti því, er hann gaf:
Tekjurnar 1916 hafa til þessa
reynst...............kr. 31237,052
en voru áætlaðar ... — 2,104,100
Mismunur.............— 1,132,952
Þessi tekjuafgangur liggur í
því aðallega, að flestir tekjulið-
irnir urðu hærri en áætlað var,
svo sem t. d. útflutningsgjald, það
reyndist ..............kr. 302,729
var áætlað...........— 210,000
mismunur.............1 — 92,729
Tóbakstollur reyndist . — 553i238
var áætlaður ........— 500,000
mismunur......... ... — 53,338
Kaffi- og sykurtollur... — 366,956
var áætlaður ............— 325,000
Mismunur.............— 4L956
Símatekjur reyndust... — 359,023
voru áætlaðar........— 195,000
Mismunur.............— 164,023
Langmest munar þó um verð-
hækkunartollinn, sem ekki var á
áætlun.
Hann nam um kr. 524,484, þar
af 6% á landbúnaðarafurðum, en
94°/o af sjávarafurðum.
Svo hafa og ýmsar aðrar tekjur
farið fram úr áætlun, svo sem
ábúðar- og lausafjárskattur, tekju-
skattur, aukatekjur, erfðafjárskattur,
vínfangatollur o. fl.
Tveir tekjuliðir hafa reynst lægri
en áætlað var, sem sé:
Vitagjald um kr. 6,297,00 og
endurgjald á öðrum fyrirframgreiðsl-
um um kr. 3,498,00.
Þá eru útgjöldin 1916.
Þau reyndust......kr. 2,938,274
en voru áætluð . ... — 2,248,084
Mismunur............— 690,190