Landvörn - 03.01.1903, Side 2
LANDV0EN.
menn sjá nú, að menn villtust út í það, að
vilja fleygja frá Islendingum löggjafarvaldi
þeirra í skiftum fyrir auðvirðilega breyting á
fyrirkomulagi umboðsstjórnarinnar, að eins
til þess, að nokkrir sérgóðir og ófyrirleitnir
uppskafningar gœtu haft von um, að ná völdum
og hagnaði fyrir sjálfa sig, þjóð vorri til blóð-
ugs tjóns og óheilla.
Það sanna var og er, að fáar þjóðir í
Norðurálfu munu hafa haft tiltölulega auðsveip-
ari og samvizkusamari umboðsstjórn en vér
Islendingar höfum haft á tímum gildandi stjórn-
arskrár. Lögum alþingis heíir verið hlýtt, all-
oftast orðrétt, gerræði hefir því sem nær aldrei
verið beitt með því að gefa út reglur eða fyrir-
skipanir að þinginu fornspurðu. Hlutdrægni og
ranglæti umboðsstjórnar mun alstaðar annars-
staðar bera höfuðið hærra, en hér hefir átt sér
stað, og enginn getur sagt með neinum sanni,
að þjóðarfátækt vor, menningarleysi og fram-
taksskortur stafi aðallega af því, að umboðs-
stjórn vor hafi ekki gegnt skyldu sinni eða
brotið lög á mönnum.
Þar á móti er sannleikurinn sá, að póli-
tískt þroskaleysi alþingis, sérplægni, festu-
leysi gegn ytri áhrifum og persónulegur sundr-
angarandi meðal einstakra þingmanna hefir
verið og er enn hinn voðalegasti þröskuldur
fyrir framförum Islendinga og þjóðlegri vel-
megan. Því næst hefir í sjálfri löggjöf lands-
ins staðið annað ljón á vegi fyrir þjóðþrifum
vorum og það eru yfirráð Danastjórnar yfir
vilja alþingis, þá sjaldan er marist hefir í
gegnum þingið eitthvert lagaboð í þjóðlega átt,
eitthvert orð af viti frá fulltrúaþingi voru, er
miðaði að sannri velferð Islendinga sem sér-
stakrar þjóðar.
Hinn fyrri þröskuld, þroskaleysi alþingis,
átti þjóðin að geta komist yfir með tímanum.
Vér vorum á bernskualdri í stjórnmálum og
þess var ekki að vænta, að svo smá þjóð með
svo feiknamikíð ætlunarverk gæti strax fengið
þroskað þing. En það átti að vera prófsteinn
og eldraun Islendinga um það, hvort þjóð vor
ætti rétt til sjálfstæðs lífs, ætti rétt til að halda
merki sínu fram með forna tungu, þjóðerni og
siði, hve snemma oss tækist að reisa upp af
almenningi hyggið, stefnufast alþingi með ís-
lenzkum anda og þó jafnframt með virðingu
fyrir reynslu og vísindum annara þjóða.
Þannig átti að „byggja land vort með lög-
um“ og þess sýnast öll merki, að viðreisn al-
þingis hafi nú verið nálæg — bæði af því, að
löggjafarsamkomur geta ekki sokkið dýpra í
óþinglegri ringulreið og barnaskap en nú er
orðiö hér og líka af því, hve rótgróinn viðbjóð
og lítilsvirðingu fjöldi manna hefir nú fengið
á framkomu fulltrúa vorra, er áður voru.
Upp af þeim rústum hefði hlotið að rísa þjóð-
legra og hyggnara þing.
En þá er hinn síðarnefndi þröskuldur, yfir-
ráð dönsku stjórnarinnar yfir löggjöf vorri.
Þeim þröskuldi átti alþingi Islendinga að fá
rutt úr vegi og linna aldrei á kröfu um það
fyr en því var orðið framgengt. Án þeirrar
meginbreytingar átti aldrei að taka á móti því
að haggað væri við stjórnarskránni og umþessa
kröfu átti þingið fyrst og fremst að geta komið
sér saman, hvað sem flokkaskipun í innanlands
málum leið. En enginn getur sagt, að alþingi
Islendinga hafi sýnt flokkadráttarlausa staðfestu,
um svo langan tíma i þessu máli, að þingið hafi
með því getað áunnið sér virðing Danastjórnar.
Meira að segja voru vitleysur þær, er komu frá
þinginu í ýmsum sérmálum þess svo hrapal-
legar og sýndu svo mikið mentunarleysi, að
það var naumast furða, þótt Danastjórn hryllti
við því, að sleppa tökunum af slíku þingi.
Ræður þingmanna, tillögur og atkvæði voru
yfirleitt á þann veg, að hyggnari mönnum hlaut
að finnast land vort i voða þann dag, sem slík-
ir menn hefðu orðið einráðir um velferð lands-
ins. En þrátt fyrir þetta allt var tírninn og
lífið fyrir höndum til þess að halda kröfunni
fram til þess að sýna síðar, að þjóð vor
verðskuldaði að fá kröfunni framgengt.
Þá tekur þingið 1902 hið skreflanga spor
út yfir öll þau mörk, sem þinginu voru sett og
vill skjóta loku fyrir það, að vér getum nokkru
sinni síðar komist yfir þann þröskuldinn —
yfirráð Danastjórnar . í sérmálalöggjöf vorri.
Því þó svo kynni að fara, að einhver þjóðlegur
þingmaður risi upp síðar með hyggilegar tillögur
til þess að auðga íslendinga sjálfa af auðsupp-
sprettum þeirra eigin lands, þá væri auðgertað
þagga hann niður með einu orði, einni bend-
ingu frá ríkisráðherranum um lögfestinguna, um
jafnrétti samþegnanna á Islandi — svo framar-
lega sem þinghneyxlið 1902 verður endurtekið.
En spor alþingis 1902 gengur jafnvel enn
lengra. Hinir skammsýnu fulltrúar, fylgismenn
sér verri manna, hafa beitt höfðatölu sinni til
þess að reyra að þingi Islendinga á komandi
tímum það helsi erlendra áhrifa, sem þyrfti
miklu fjölmennari og þroskaðri þjóð en Islend-
inga til þess að slíta af þinginu aftur. Allir
möskvar eru svo riðnir í nýja fyrirkomulaginu
og allir önglar eru svo egndir, að dragast munu
af sjálfu sér að hinni nýju stjórn allir hinir
óþjóðlegustu, sérplægnustu smjaðrarar útlenda
valdsins, sem þjóð vor á til — og hér eru í
fárnenninu næg efni í slíka menn. Á eina
hlið vofir yfir hverjum þeim Islendingi, er vill
reisa sig þar á eftir með þjóðleg nýmæli, hlífð-
arlaus og eindregin óvinátta erindrekans danska.
Á aðra hlið blasir við hverjum þeim, er leggja
vill hönd að niðurlæging Islendinga, í þjóðernis-
lausa auðmýkt við ríkispólitíkina dönsku, endur-
gjald bitlinga, embætta og náðar, frá háborði
erindrekans. Getur nokkrum blandast hugur
um, hvern veginn þeir muni fremur kjósa síðar,
sem lögðu svo auðsveipir niður eyrun 1902,
þegar þeim var skipað að viðurkennast undir
löggjöf ríkisráðsins danska í sérmálunum ?
Rit þetta mun vægðarlaust og hispurslaust
flytja hverja rökstudda grein frá góðum drengj-
um á Islandi, er vilja taka í þann streng að
reisa þjóðina undan fargi og kúgun þessara ó-
hafandi leiðtoga. Persónulegar skammir mun
verða forðast að láta blandast inn i umræðurn-
ar, enda þðtt varla sé hægt að gera sér miklar
vonir um, að þeir sömu menn, er gert hafa ís-
lenzku þjóðinni hina hróplegu smán og hneysu
með uppgjöfmni 1902 verði svo smekkvísir að
taka skammalaust á móti neinum réttlátum
dómum um gerðir þeirra. Á hinn bóginn er
rétt að geta þess einnig, að það álítzt ranglátt
að gefa ekki bneykslisleiðtogunum i fullum mæli
hverjum um sig, sem til þess vinnur sérstaklega,
rækilegt endurgjald fyrir skammir og getsakir
af því tagi, sem þeir eru vanir að láta fylgja
ræðu sinni um opinber málefni.
„Heimastjórnin^
er ekki
sjálfstjórn.
Það felst í orðinu sjálfstjórn, að þar er átt
við þá stjórn, sem þeguarnir sjálfir hafa ráð
yfir samkvæmt sínum eigin lögum. Og í því
er aftur trygging þess, að stjórnandinn verði
þannig valinn, að hann sé hæfur til að koma
fram vilja þegnanna og að valdi hans verði vel
fyrir komið.
Það má telja þrjú aðalskilyrði þess, að
stjórn sé vel fyrir komið. Fyrsta skilyrðið er,
að stjórnandinn sjálfur sé óháður boði og
banni annara hagsmuna heldur en þeirra eða
þess félags eins, sem hann er settur yfir.
Annað skilyrðið er það, að stjórnandinn
sé í sjálfn sér vel hæfur til þess að gegna
akyldu sinni.
Hið þriðja megiuskilyrði er, að stöðu
stjórnandans sé svo fyrir koinið, að honum veit-
ist létt að afla sér þ e k k i n g a r á kröfum og
högum þegna sinna og að honum veitist það
auðvelt að beita þvi valdi vel og öfluglega, sem
honum er fengið í hendur.
Alþingi hefir á siðustu árum virzt hafa
augun opin að nokkru leyti fyrir hinum tveim
síðasttöldu aðalskilyrðum þess, að íslandi verið
stjórnað þolanlega. og þó er það einkum hið
allrasíðasta skilyrði. sem fjöldi þingmanna hafa
lagt meata áherzlu k.
Á þinginu hafa komið fram mjög margar
og mismunandi skoðanir í þessar áttir, en þó
má segja, að flokkur hafi fyrst myndast í þing-
inu til þess að koma fram pólitiskum kröfum í
þessa stefnu, þegar tillaga dr. Valtýs var borin
upp á þinginu 1897.
Áður hafði þingið í sjálfstjórnarkröfum sín-
um haldið fram fyrirkomulagi, er átti að tryggja
Islendingum öll hin ofangreindu þrjú höfuð
skilyrði þess, að landstjórnin gæti sannarlega
kallast frjáls og þjóðleg, eða með öðrum orðum
gæti kallast sannarleg sjálfstjórn.
Með hinni pólitisku hreyfingu Valtýs í
stjórnarskrármálinu var lagður hyrningarsteinn-
inn undir það frumvarp, scm Danastjórn hefir
nú tekist að smeygja inn á þingið undir þögn
og samþykki fuiltrúa þeirra, er þar sátu síðast.
í þvi frumvarpi er byggt ofan á hyrning-
arsteininn algert afnám þeirrar kröfu frá hálfu
íslendinga, að æðsti stjórnandi landsins í sér-
málum þess skuli vera óháður útlendu valdi.
Hin svo kallaða Valtýska fór ekki lengra en
svo að láta af þ e s s a r ij kröfu til endurbóta
á stjórnarfarinu, en hið sameinaða samþykktar-
atkvæði síðasta alþingis lét það skýrt tekið
fram, að slíkri kröfu skyldi ekki verða hreyft
framar. Með þessu var útkljáð allt tilefni til
deilu milli hinna fyrri pólitisku flokka um
það, hvort þögn Valtýskunnar merkti samþykki
á innlimun sérmálanna eða ekki og virðist auð-
séð á orðalagi síðasta stjórnarfrumvarpsins
að Dönurn hefir þótt þögnin ótryggilegri viður-
kenning, heldur en þau beinu, skýru ákvæði,
sem báðir flokkar hafa nú fallist á.
Það er afarnauðsynlegt, að allir þeir góðu
íslendingar, sem vilja hið bezta í þessu rnáli,
geri sér vel ljóst, að hið nýja fyrirhugaða
stjórnarfar vantar það fyrsta, nauðsynlegasta
meginskilyrði þess, er felast verður í sannri
sjálfstjórn. Þá fyrst, er þeir hafa gagnskoðað
þenna höfuðgalla þes3a nýja fyrirkomulags, geta
þeir dæmt um, hvort hinar aðrar tvær aðal-
kröfur til stjórnarbótar geta nægt oss og þá geta
þeir einnig að síðustu dæmt um, hvort nýja
fyrirkomulagið hefir í raun réttri komið ár
iandsmanna vel fyrir borð í þeim tveim megin-
atriðnm, sem síðast voru talin.
Ég skal fyrst nefna þá kröfu til góðrar
sjálfstjórnar, að trygging sé fyrir því, að stjórn-
andinn sé vel hæfur að mannviti og öðrum
kostum, er góðum stjórnanda eru nauðsynlegir.
Þessi trygging fæst með því í frjálsum
stjórnarskipunum siðaðra þjóða nú á dögum,
að fulltrúasamkomur þjóðanna geti átt öflugan
þátt í því að koma þeim mönnum til valda, er
hafa reynst hæfir menn. Löggjafarþing
Norðurálfumanna, er búa við takmarkað kon-
ungsveldi, ala upp flokksforingja eða þiughöfð-
ingja, er vinna sér fylgi meiri hlutans og eiga
þeir þá í vændum að verða ráðunautar konungs-
valdsins, er fyrri stjórnendur njóta ekki lengur
þjóðhylli í því félagi, er þeir hafa stjórnað.
Hvernig er það tryggt með hinu nýja fyrir-
komulagi, að meiri hluti þjóðar og þings á ís-
landi geti ráðið því á komandi tíinum, hvern
mann þeir fá skipaðan í hinn æðsta valdasess
vorrar innlendu stjórnar?
Til þess að gera sér vel ljósa kosti og
lesti fyrirkomulagsins í þessa átt er bezt að
hugsa sér, hver málefni þau aðallega mundu
verða, er kynnu að reisa eða fella þjóðhylli
hins fyrirhugaða íslandsráðgjafa. Það er ekki
líkindi til, að framkvæmd ráðherrans á umboðs-
vahlinu innaniands mundu geta valdið miklu í
því máli. Þó ráðherrann reyndist of góður
vinur vina sinna við embættaskipun eða útbýt-
ing annarra opinberra hlunninda á almanna