Alþýðublaðið - 01.06.1963, Qupperneq 5

Alþýðublaðið - 01.06.1963, Qupperneq 5
R/ETT VIÐ KARL KARLSSON Þeir eru fáir sem ekki þekkja hann Karl Karlsson, fyrr verandi vatnsmann við Reylcja- víkurhöfn. Þeir sem ekki vita hver hann er, hljóta að muna eftir manninum, sem um langi árabil ýtti á undan sér eins konar vagrii, sem geymdi marga metra af slöngum. Karl gegndi því hlutverki ,að sjá fiskibátum fyrir vatni og þau voru mörg sporin, sem haníi átti við höfnina — annað hvort með vagninn eða dragandi slöngur á eftir eér. Karl er „fullkominn“ Reyk- víkingur. Hann fæddist hér 28. janúar 1892, og ólzt upp hjá móður sinni ásamt tveim öðrum systkinum. Þegar ég rceddi við hann fyrir skömmu, sagði hann mér, að móðir sin, sem liét Jarþrúður Þórarinsdóttir, hefði unnið fyrir þeim systidnunum, þar til þau sjálf gátu firið að taka til höndunum. Hún vildi ekki segja sig á sveítinn, og þess vegna varð hún að vinna við kola- eða vatnsburö alian daginn, og á kvöldin arkaði hún inn í Þvottalaugar og þvoði þar fatnað fyrir ýmsar fjöl- skyldur í bænum. Stundum kom hún ekki heim fyrr en liðið var langt fram á nótt. Það var erfitt í þá daga að sjá þrem börnum farborða, og þá sérstak- lega þegar ein kona átti í hlut. Þegar Karl var 12 ára gam- all hóf hann sína sjómennsku. Hann réðst sem kokkur í flutn- ingabátinn ,,To venner,, RE 21, en hann flutti vörur til hafna við Faxaflóann. Karl Knrlsson var fermdur 1906, og þrem dög- um seinna réð hann sig á bát, sem var kallaður Kristján síld- arpungur og hafði tinkennis- stafina RE 78. Hann var eign ísfélags Faxaflóa og var á rek- netum í Jökuldjúpinu. Var þetta 28 tonna bátur, einmastr- aður. Árið eftir, eða á r.æstu vertíð, réð ha.in sig á skútu sem hét Keflavík. Árið 1911 fór hann svo á hið fræga skip Kútt- er Harald RE 113 ,en um hann hefur verið oirt' kvæði, sem aílir þekkja og flestir hafa sungið einhvern tíman. Kart var aðeins eitt úthald á Haraldi, en fór síðan til Vestmannaeyja þar sem hann var fjórar vertíðir og þar af tvær formaður á Haf- frúnni VE 122. Þá hefst nýtt tímahil á sjó- mannsferli Karls. Hann kemur til Reykjavíkur og ræður sig á togara. Var það togárinn Apríl RE 151, og á honum var hann í þrjú ár, en þtnn tíma var Þorsteinn Þorsteinsson, kennd- ur við Bakkabúð, skipstjóri. Þá komst hann í siglingar með vél skipinu Borg, sem rildð átti, en Eimskip gerði út. Sigldu þeir meðal annars til Noregs með saltkjöt, sem sög- ur herma, að aldrei haíi verið etið, heldur fleygt í sjóinn nokkru seinna, þar eð bragðið af því féll Norðmönnum ekki í geð. Að siglingunum loknum fór hann aftur á togara 1920. Hét sá Apríl eins og hinn fyrri en var þá alveg nýr. Þar var nann einnig með Þorsteini frá Bakka- búð í þrjú ár, en þá tók Valdi- mar Guðmundsson við skip- stjórninni og hjá honum var Karl í 7 úr. Síðan var hann nokkur ár í viðbót á öðrum tog- urum, en kom í land 1932, og hafði þá verlð á sjó samfellt í nær 30 ár. Þó ber þess að geta, að fyrir nokkrum mánuðum fór Karl á sjóinn með togara, en öf hár blóðþrýstingur leyfði honum ekki að fara fleiri en eina ferð. Hann er þó ákveðinn í því að reyna aftur þegar þrýst ingurinn fer að minnka. Þegar liann gat ekki lengur verið á sjónum, var það næst bezta að vera einhvers staðar nálægt sjó, bátum og sjómönnum. Og það hefur honurh tekist. Það er til vísa eftir Jón Fljótshlíðarskáld, sem segir: Sjómannslíf á svölum bárum, sýnir flestum óblíð kjör. Ég man vel frá yngri árum eftir margri slíkri för. Það er liægra og hættuminna hendur rétta móti auð inni í stofu og ylinn finna en að sækja þangað brauð. Sumir menn eru þannig gerð ir, að það væri einfaldara að ætla, að sjór rynni um æðar þeirra í stað blóðs. Þessir menn eru haldnir svo ákafri þrá og löngun til að vera á sjórium, að það er oft meira af vilja en getu ,að þeir stunda sjómennsk- una. Karl sagði mér, að þegar hann kom á togarar í fyrsta sinn, þá hafi engin vökulög verið til, og þá voru það aðeins, vond veður, sem veittu sjómönnunum tæki- færi til að sofa. Annars voru þeir við vinnu meðan þeir stóðu uppi. Þegar vökulögin gcngu í gildi 1922 fengu þeir 6 tíma svefn. „Það var Jón Baldvins- son, sem marði þéssi lög í gegn með einu atkvæði, og það var ekki um annan mann meira tal- að og betur á þssum árum,“ sagði Karl. Árið 1928 báru þrír þing- mehn Alþýðuflokksins fram nýtt frumvarp, og samkvæmt því átti hvíldartíminn að vérá átta stundir. Náði það fram að ganga Við skulum láta Karl segja okkur fleira frá þessurn dög- um: „Þegar ég byrjaði, vax líf- trygging sjðmannsins 400 krón- ur, og var sú upphæð greidd f tvennu lagi. Þá gerðist sá at- burður í Kaupmannahöfn, að kelturakki einhverrar hefðar- konu varð fyrir vagni og drapst. Konan kærði ökumanainn og fékk greiddar 450 krónur í skaðabætur. Var mikið um þetta talað hér heima, og þótti lilá- legt af líf dansks kelturakka skyldi vera nietið 50 krónum meira en líf íslenzks sjómanns.“ Fyrstu lögin um slysatrygg- ingu sjómanna voru sett 1917. Þá voru örorku- og dánarbætur ákveðnar, en sjómean urðu þó að greiða helminginn af iðgjald- inu. Fjórum árum seinna var þessum lögum breytt og hækk- uðu þá allar bætur. 1925 hækk- uðu bæturnar enn, og þurftu sjómenn þá ekki lengur að greiða iðgjald. En til að fá þessar kjarabæt- ur þurfti langa og stranga har- áttu ,og verður sú saga ekki rakin hér. Nú er Karl Karlsson rúmlega 70 ára gamall, og býr með konu sinni á Hrafnistu og þar iíður honum vel. Hann hefur verið farsæll maður. Þrátt fyrir langa starfsævi er hann fullur af lífs þrótti og orku, og hans heitasta ósk er að komast á sjóinn. Hon- um er það nokkur huggun, að frá Hrafnistu getur hann horft yfir flóann, sem hann hefur svo oft átt leið um á skipum og bátum. Og þegar hann er ekki á norðan og ekki er verið að bræða í Kletts-verksmiðj- unni getur hann fundið sjávar- lyktina. En það nægir honum ekki alltaf, því oft má sjá hann á gangi niður við höfn. — úr.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.