Lögrétta

Issue

Lögrétta - 17.04.1907, Page 4

Lögrétta - 17.04.1907, Page 4
64 L0GRJETTA. ill ágreiningur sje á milli þingsins og stjórnarinnar, sprottinn af banni stjórnarinnar gegn því, að sjerfræð- ingar. sem ekki eru þingmenn, sjeu kvaddir til ráða. Khöfn 16. apnl: Þrætan milli Stolipins og Golovins er útkljáð. í gær hófst í London nýlendumála- tundurinn og flutti Bannermann ræðu. Allir ráðaneytisforsetar bretsku ný- lendanna eru á fnndinum. Botha hjelt ræðu á hollensku og vottaði hollustu Transwaals. í fyrra var stofnað fjelag i Gauta- borg til þess að reka fiskiveiðar við ísland og sækir nú um ríkissjóðs- styrk. 50 þús. kr. A. T. Möller hefur höfðað mál gegn Túliniusi. Konungshjónin heimsækja Krist- janíu í lok þessa mánaðar. Rithönd Jöns Arasonar. Fróðlegt er það og eigi síður skemti- legt, að nú er fundin rithönd Jóns Ara- sonar, á brjefi einu, sem er í Árna- safni, og þá um leið víst, að hann hefur ritað rímnabók mikla, sem kend er við Staðarhói, og helgikvæðabók. Báðar þessar bækur eru í Árnasafni og sama höndin á þeim og á brjef- inu. Dr. Jón Þorkelsson færir örugg- ar ástæður fyrir því, að enginn ann- ar hafi getað skrifað brjefið en Jón- Arason. Rithöndin er skýr og föst og með heldur fornlegri blæ, en hjá sam- tíðarmönnum, og ber það með sjer, að hún er eftir munklærðan mann. Vafalaust hefur oflítið verið gert úr klerklegum lærdómi Jóns Arasonar. Hann stóð í svo miklum stórræðum, að skugga bar á bókvísina. (Nýtt kirkjublað). Meðiilalin rerdlagsskránna sem gilda frá ió. maí 1907 til jafn- lengdar 1908, er þessi: I Norðurmúlas. og Seyðisfj.kaupst. 76 a. — Suðurmúlasýsht..................60 — — Austur-Skaptafellssýslu . . . . 53 — — Vestur-Skaptafellssýslu . . . .53 — — Vestmannaeyjasýslu . . . , . 69 — — Rangárvallasýslu ...... 53 — — Arnessýslu......................61 — — Gullbrtngu- og Kjósarsýslu og Reykjavíkurkaapstað . . . .59 — — Borgarfjarðarsýslu..............51 — — Mýrasýslu.......................58 — — Snæfellsness- og Hnappadalss. , 59 — — Dalasýslu.......................57 — — Barðastrandarsýslu...............64 — — Isafjarðarsýslu og Isafj.kaupst. . 65 — — Strandasýslu....................57 — — Húnavatnssýslu..................54 — — Skagafjarðarsýslu...............58 — — Eyjafjarðarsýslu og Akureyrarkst. 57 — — Þingeyjarsýslu..................58 — Heykjavík. Jón Trausti. Nú um sumarmál- in kemur ut eftir hann ný skáldsaga hjer í Rvík, góðum helmingi lengri en Halla. Þessi nýja saga gerist að mestu í smákaupstað hjer á landi og er viðburðarik og efnismikil. Halla kemur út í danskri þýðingu einhverntíma á þessu ári. Um læknishjeraðið satkja: Guð- mundur Hannesson Akureyrarlæknir, Jón H. Sigurðssan Rangvellingalæknir, Sig. Magnússon spítalalæknir í Khöfn, Stgr. Matthíasson settur iæknir hjer, og Sæm. Bjarnhjeðinsson holdsveikra- læknir. U. M. F. R. Herra ritstjóri! U. M. F. R. leyfir sjer hjer með að biðja yður að veita yfirlýsingu þessari rúm í blaði yðar. Rvík. 6. febr. 1907. f. h. U. M. F. R. Helgi Valtýsson: „Ungmennafjelag Reykjavíkur" fylgir eindregið því, að Islendingar taki upp sjerstakan fána, er verði löggiltur, en noti eigi erlendan fána. Fjelagið fylgir fánatillögu Stúdentafje- lagsins í Reykjavík. Ennfremur lýsir fjelagið óánægju sinni yfir því, að Islendingar skuli bindast samtökum gegn þessu rjettmæta sjálf- stæðismálefni þjóðarinnar. Samþykt á fundi 24. mars 1907“. Bæjarstjórnin. Fundur 4. apríl. Afsalað forkaupsrjetti að erfðafestu- landi Pálma kennara Pálssonar, Meist- aravelli, er hann selur fyrir 20 þús. kr. með húsum og mannvirkjum. Samþ. að Matth. Matthíasson kaupm. breyti 440 feral. af erfðafestulandi sínu, Efraholtsbletti, í byggingarlóð og selji fyrir kr. 1,60 feral. Samþ. brunab.v. á þessum húsum: H. Hafsteins ráðh. við Tjarnarg. kr. 33,976; J. Eyfjörðs við Kárast. 5,114. Samþ. að bæta 460 kr. við fjárveit- ingu til viðbótarbyggingar barnaskói- ans, til þess að búa út dyravarðaríbúð í kjallaranum. Beiðni kom fram frá Einari Gunn- arssyni 0. fl. um leyfi til að byggja kiosk á hentugum stað í bænum. Vísað til bygginganefndar. Kosin 4 manna nefnd til þess að sjá, ásamt bæjarfógeta, um viðtökur gesta þeirra, sem væntanlegur eru til bæjarins í sumar: Ásg. Sigurðsson kaupm., Halld. Jónsson bankagj.k., Kr. Jónsson yfird. og Kr. Ó. Þorgríms- son kaupm. Jóni Magnússyni bæjarfulltrúa falið nú í utanför sinni að leita hófanna um lántöku handa bæjarfjelaginu með sjer- stöku tilliti til vatnsverksins. „Jón forseti“ kom inn nú fyrir helgina með 25 þús. af vænum fiski, eftir 6 daga útivistartíma. Jón Magnússon skrifstofustjóri fór utan 8. þ. m, í erindum fyrir mót- tökunefnd konungs og danskra þing- manna. Kemur aftur í næsta mánuði. Borgarastríð hefur staðið yfir þessa dagana hjer í bænum, milli margra drengja í Vesturbænum og Austurbænum. Orustuvóllurinn er Skólavörðuholtið, og hata þeir bar- ist þar með fylktu liði. í vikunni sem leið höfðu Vesturbæjardrengir sigrað í höfuðorustu snarpri, en nú á sunnudaginn stóð önnur höfuðor- usta og rjettu þá Austurbæjardreng- irnir hlut sinn. Margir drengir urðu að leita læknis eftir þann bardaga og var einn handleggsbrotinn. Sláturfjelags-stjórnin situr hjer á fundi þessa dagana, eða 6 menn úr henni: Ág. Helgason, Birtinga- holt; B. Bjarnason, Gröf; sr. E. Páls- son, Breiðabólsstað; Guðm. Olafs- son,Lundum; V. Guðmundsson, Haga og Þ. Guðmundsson, Hala. Form. nefndarinnar er kosinn Ág. Helga- son, en varaform. sr. E. Palsson. í framkvæmdarstjórn með væntanl. for- stjóra, sem enn eróráðinn, eru kosn- ir: B. Bjarnarson í Gröf og Páll Ste- fánsson í Ási, sem flytur í vor að Elliðavatni. Endurskoðunarmenn hef- ur stjórnin kosið þá Eggert Bene- diktsson í Laugardælum og Ól. Ól- afsson í Lindarbæí Rangárvallasýslu. Stjórnin býst við að ljúka störfum sínum að þessu sinni á föstudag. Kirkjusamsöngurinn verður hald- inn í kvöld. Stjórnarfrumvörpin verða öllu fleiri að sumri, en á þinginu 1905; voru þá 40. Kirkjumálanefndar-frum- vörpin fylla nú töluna. Kosningar- lögin til alþingis, með hlutfallskosn- ingum og 7 kjördæmum, koma aftur fyrir þingið, en töluvert breytt. Fræðslufrv. og kennaraskólafrv. koma aftur sem næst í sömu mynd og stjórnin lagði þau fyrir þingið 1905. Stórir bálkar eru um skipun læknis- hjeraða, og um vegi. Skýrt verður frá innihaldi helstu frumvarpanna í næstu blöðum. Leikhúsið. Þar er nú tekinn fyr- ir nýr leikur enn, „Dauðasyndin", eftir þýskan höfund, O. E. Schmidt. Það er góður leikur og efnismikill, og yfirleitt vel sýndur. Aðalpersónurn- ar leika þau Jens Waage og frk. Guðrún Indriðadóttir. Meðal annars á innri-missjónin þarna ágætan for- mælanda, sem Friðf Guðjónsson sýn- ir mjög vel. Næst á undan hefur nokkrum sinn- um verið leikinn »Jeppi á Fjalli« og tókst Árna Eiríkssyni þar ágætlega að vanda í höfuðhlutverkinu. Allskonar kústar, burstar og skrúbbur fást í Sápuversluninni, Austurstr d. U ísl. SMJ0R íæst hjá c7líc. c3/ 'arnaon. Allskonar STANGASÁPUR fást í Sápuversluninni. Austurstræti 6, svo sem Salmiaksápa, Marselle, 3 teg., Coku-sápa, Pálmasápa o. íl. Þrikveikjaðar hvergi jafn góðar og ódýrar og hjá Nic. Bj arnason. Vanille-bökunurduft og allskonar Kfí Vf)l) i brjefum fæst í sápuversluninni, AUSTURSTRÆTI 6. jMatarðeilðin selur daglega: Nýjar Rjúpur á 25 au.y nýtt nautakjöt °g nýtt ijvanneyrarsmjör. cr/iomsens tMagasin. Auglýsingum i „Lög- rjettu“ veitir viðtöku Jón kaupm. Brynjólfsson, Aust- i urstræti 8. Altaí miklar birgðir af LEÐRI og SKINNUM af öllum tegundum, og öllu, sem tilheyrir söðlasmíði og «lcóísimíöi, í Leðurversluninni í Austurstræti 3. Golt að geta valið úr hjer á staðnum. Verðið iægra en að panta. Pantanir utan af landinu afgreiddar með 4—5 daga fyrirvara. Virðingarfylst. Jóii Brynjólfeson. Píjitcrtsiilja Beitjatítir við Rauðarárstíg1, býr til og selur skolpitípur af öllum stærðum, og pípur lil frá- ræslu frá húsum og grunnum. Miklu ódýrari en pípur þær, sem hjer hafa fengist til þessa. Spyrjið um verð hjá mjer, áður en þjer festið kaup annarstaðar. Böðvar Jónsson. Nýkomnar miklar birg’ðir í viðbót við það sem áður var til af Vindlaliylkjum, Seðlaveskjum, Tösknm. Verðið er afár-lágt! Leðurverslunin í Austurstreeti 3. JÓN BRYNJÓLFSSON. Prentsmiöjan Gutenberg.

x

Lögrétta

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lögrétta
https://timarit.is/publication/196

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.