Lögrétta

Issue

Lögrétta - 06.05.1908, Page 1

Lögrétta - 06.05.1908, Page 1
LOGRJETTA = Ritstjóri: ÞORSTEINN GÍSLASON, Þingholtsstræti 17. = M 19. Reykjavík 6. maí 1908. III. árg. ag QÚ HThAThomsen- M EAFNARSTR-1718 19 20 2122 - KOLAS 12- LÆKJART-1-2 « REYKJAVÍK • er besta búbót íl heimili, nauðsynleg á ferðalögum, ómissandi á shipum. Úr einum böggli, sem kostar 1 krónu, fást 11 pottai* mjólk. Besta Þupmjölkin fæst í THOISEKS MAGASÍE Arinbj. Sveinbjarnarsonar hefur til sölu: Vasabækur af ýmsum gerðum, blý- anta, pennastangir, strokleður, reikn- ingseyðublöð, reikningsspjöld, grifíla, pappír og umslög af ýmsum tegund- um, 10 au. brjefsefnin góðu, The Stan- dard Register endurbætt, penna, blek o. m. fl. Hinn fjórði Alpjóðafundur hinna frjáls- ari fríkirkjuflokka, hatdinn í Boslon í Am. síðastl. sept. Eflir Matth. Jochumsson. Það hefur oft verið fundið kirkju- blöðum vorum til foráttu, hve fátt og sjaldan þau hafi frætt lesendurna um stórtíðindi hinna ótalmörgu kristnu trúarflokka í öðrum löndum, þótt ekkert kirkjublaðanna hafi verið eins hreint um allar vitundir í því efni eins og hin gamla „Sameining" frá Winnipeg. Nú þótt frjálslyndari flokkarnir jmeð Únítörum Englands og Amer- íku fremst broddi fylkingar) eigi ekki upp á háborðið enn hjá hinum rjett- trúuðu kirkjum, hvort sem þær kalla sig ríkiskirkjur eða (ranglega) frí- hirkjur, þá er fyrir löngu svo langt ^omið, að það er fásinna, að ætla sjer að þegja í hel hina frjálsari og uPplýstari flokka, eða láta sem þeir sjeu úr sögunni, einmitt meðan þeir eru að gegnsýra sem óðast allar lífs- skoðanir hins mentaðaheims — gegn- sýra allan kjarna kristinna safnaða í Frá sambandslag’anefndiimi. Útkomu þessa blaðs var frestað vegna símskevtis f»á Khöfn um, að sambandslaganefndin væri nú að ljúka störfum sínum, og bjóst Lög- rjetta þá við, að geta í þessu blaði flutt ljósar fregnir af gerðum hennar. Nú hefur blaðið fengið svohljóðandi símskeyti frá Jóni Magnús- syni skrifstofustjóra: „Khöfn 6. maí 1908, kl. 4 síðd. Sambandslagafrumvarpið er mt sam- Þykt* Gróður árangur. Verður l»it*( ásamt nefndaráliti að v iKu liöinni64. Hinar góðu frjettir, sem borist hafa af samkomulagi í sambands- laganefndinni, reynast þá rjettar. En nefndarálitið mun vera ósamið enn og því eru samkomulagsatriðin ekki birt strax; nefndarmenn vilja, að álitsskjalið og frumvarpið verði samferða. I næsta tölubl. má vænta Ijósari fregna af samkomulagsatriðunum. Líklega koma íslensku nefndarmennirnir heim með »Ceres« 22. þ. m. öllum löndum. Og nú er vjer vit- um, að mikill hluti landa vorra, sem flutt hafa til Vesturheims, fylgja þess- um flokkum, virðist það vera hrein og bein skylda nefndra blaða, að sleppa ekki bestu tækifærum, án þess að fræða menn hjer heima — hlut- drægnislaust og með rökum — um það, hverjum stefnum þessir flokkar fylgi. Því þótt hinir „rjetttrúuðu" vandlætingamenn kalli þá einatt kristn- innar ófriðarseggi og skaðræðismenn, hefur það minna að þýða en álit nálega allra hinna vitrustu framfara- manna hins mentaða heims. Afþeim eru þessir flokkar kallaðir frumherj- ar og verjendur alls frelsis og sann- leika, þ. e. hins sanna og ódauð- lega kristindóms, sem ekki verður með valdi varinn eða kirkjuríki. Á nefndu allsherjarþingi*) (Cong- ress) mættu nærfelt 2500 fulltrúar, en alls tóku 8—10 þús. manna þátt í samkomunum — flest þarlent fólk, og einungis 250 fulltrúar frá Evrópu, en frá 16 þjóðum og 33 kirkjuflokk- um, þar á meðal nokkrir páfatrúar- menn. Þar sáust Hindúar, Japanar og fl. Asíumenn, og spekingar frá „austri og vestri", og með því Úní- tarar þykja helstu leiðandi menn í Boston og þar í næstu ríkjum, mættu þar ýmsir skörungar úr eldri og stærri trúarflokkunum, og var þar hið feg- ursta samþykki allra trúarflokka á milli. Forseti þingsins var dr. Samúel A. Eliot (sonur rektors Harward-há- skóla), allra manna lærðastur og tígu- legastur sýnum. Elstir og einna göfg- astir menn á fundinum voru þeir öld- ®) Þingið var stofnað 1900 og skal hald- ið annaðhvort ár. Hið fyrsta var haldið í Lundúnum, annað í Leyden á Hollandi, þriðja í Genf í Sviss, en þetta í Boston. ungarnir Edward Everet Hale og Booker T. Washington. Hann var í æsku sinni þjáður svertingi;1) nú er hann og hefur lengi verið prýði öld- ungadeildarinnar í Kongressinum, og er allra manna vitrastur og mál- snjallastur. Dr. Hale er frægasti kennimaður Únítaraflokksins, og er nú níræður, og kapelluprestur á þingi Bandaríkjanna; fá það embætti ekki aðrir en gömul stórmenni þjóðarinn- ar, enda er það einungis virðingar- staða. Frá Þýskalandi mætti Plei- derer (Hamack afsakaði sig), og frá Frakklandi ýmsir höfuðprestar, en langflestir mættu frá Englandi. Að lýsa dýrðinni og hátíðahöld- unum í Boston þessa viku, sem þing- ið stóð, er óhugsandi, þar sem alt er í stærri stíl en sjá má í sjálfri París, auk heldur annarstaðar í gamla heiminum. Tremont-musterið var val- ið til að setja þingið í. Þar ergylt- ur salur, sem rúmar margar þúsundir manna. Þar var vígsluræoan haldin af forsetanum, sem síðar skal getið. Þar glóðu ótal skildir og á tveim hinum stærstu þessi orð Krists: „Sannleikurinn mun gera yður frjálsa" og „Þú skalt elska drottinn þinn guð, og náungann eins og sjálfan þig“. Breitt, himinblátt band var lagt eftir miðjum hliðsvölunum og á það dregin 200 nöfn frægra manna með gullstöfum. Margir töluðu hinn fyrsta dag og með einurð og andagift. Hjer er klausa um frelsið í kirkjulífi Banda- ríkjanna, úr ræðu háskóla-rektorsins Elliots; geta menn þá í fljótu máli sjeð, hvað fríkirkjur eru eða trúar- frelsi frá hálfu ríkisins. Hann sagði: 0 Það er mælt, að hann sje- kominn af negrahöfðingjum fram í kyn. Kaupbstir íögrjcttu er Sj ómannalíf eflir R. Kipling. Nýir kaupendur, sem fengið hafa blaðið, geta vitjað sögunnar til af- greiðslumannsins á Laugavegi 41. „Frelsið í ríki voru í tilliti til kirkna- eigna og sjerstöðu kirkna, er þannig til orðið, að alríkið ásetti sjer að efla kirkjur og kirkjulíf með því að veita þeim fult sjálfsforræði, og þá var sjálfsagt, að leysa alt kirknafje frá sköttum og skyldum til ríkisins — alveg eins og allar aðrar upp- eldis- og velgerðastofnanir. Auk þess hefur alríkið hjálpað hverjum trúar- flokki, er byggja vildi kirkjur. Allir kristnir trúarflokkar, og eins Gyð- ingar, Búddatrúarmenn og Konfúsí- usar, njóta fulls jafnrjettis semslíkir, enda líka verndar ríkisins, án þess það hlutist hið minsta til um fyrirkomu- lag nokkurs trúarfjelags. Fyrir þá sök nefnir hjer í landi enginn maður deilur milli ríkis og kirkju, eins og kunnugt er, að jafnan brennur við í Evrópu". Prestur einn, sem G. A. Gordon heitir, talaði margt fróðlegt orð um „trúna og frelsið". „Vjer Ameríku- menn erum hvorki postulamenn, Kal- vínsmenn nje Lúters. Trú vor er bygð á reynslu. Vjer segjum eins og dulspekingurinn: „Vjer lifum í guði, eins og fuglinn lifir í loftinu og fiskurinn í sjónum. Guðfræðingar vorir hafa verið reyndir trúmenn og stórmenni, svo sem þeir Edwards, Bellamy, Hopkins, Émmons, Taylor, Bushnell, Park og Únítararnir Chann- ing og Parker. Allir lögðu þeir á- herslu á breytnina og hver þeirra fyrir sig til bjó sjer sína trú í lífs- ins þjónustu. Hjer í landi, einkum að austanverðu, er frelsið trúarinnar lífsskilyrði. Enginn þykir algildur, en allir njóta heiðurs og jafnrjettis. Vjer spyrjum ekki, hvort sá eða sá háskólakennari hafi rjetttrúaðar skoð- anir, eða frjálsar, heldur, hvort hann sje hæfur maður, lærður og einarð- ur, svo og, hvort hann meti sann- leikann meira en erfðakenningar. —- — Frelsið köllum vjer skilyrði allrfi vísindaframfara. Einkum þróast hjer við Harward-háskóla sú stefna, að reiða sig á sigur sannleikans og dóm- stól samviskunnar. Frejsið er og trúarlífsins skilyrði, í öðru lífslofti lifir enginn sannleiksvinur fullu ltfi. Það sem heiður himinn gildir hjá stjörnumeistaranum, gildir frelsið hjá þeim, sem leita guðs og sannleikans. Frelsið er vorið og sumarið í öllu andans lífi".— (Frh.).

x

Lögrétta

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lögrétta
https://timarit.is/publication/196

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.