Lögrétta - 27.01.1909, Page 1
Aígreiðslu- og innheimlum.:
ARINBJ. SVEINBJARNARSON,
Laugavet; 41.
Talsími 74.
Ritstjór P
Þ 0 RST EIN N GISLASON,
Pingholtsstræti 17.
Talsimi 178.
Reykjavík 27. janúar 1909.
IV. ílr-sr.
Augrilækning ókeypis i. og 3. þrd. í mán.
kl. 2—3 í spítalanum.
Lækning ók. í læknask. þrd. og fsd. 12—I.
Tannlækning ók. (í Pósthússtr. 14) i.og 3.
md. í mán. 11 — 1.
Landakotsspítali opinn f. sjúkravitj. lo'/a—
12 og 4-5.
Hlutabankinn opinn 10—2'/2 og 5V2—7.
Landsbankinn 10*/.—2V2. Bnkstj. við 12—I.
H/tFNARSTR' 171819 20 21'22'KOLAS|-2- LÆKJAKT l-Z
* REYKJAYIK •
er lang-fjölbreyttasta verslunin.
í Pakkliúsdeildínni eru seldar
allar matvörur og aðrar þunga-
vörur, alt til sjávarútgerðar, timb-
ur, járn, saumur, farfi o. s. frv.
í Nj'lenduvöriideildinni (Ný-
höfn) allar matvörur (nauðsynja-
og sælgætisvörur) í smærri kaup-
um, nýlenduvörur, tóbak o. s. írv.
1 Kjallaradeildinni allar drykkj-
arvörur, áfengar og óáfengar.
í Vefnaðarvörudeildinni allar
mögulegar vefnaðarvörur og alt
sem kvenfólk og börn þurfa til
fata, inst sem yst.
í Klæðskerudeildinni alt sem
karlmenn þurfa til fata, hátt og
lágt.
í Basardeildinni allar mögu-
legar járnvörur, ljósáhöld, gler-
vörur, glysvörur o. s. frv.
Tlxomsens Magasín er langbesia
verslunin, því aðaláherslan er lögð
á það, að vörurnar sjeu sem
vandaðastar, en um leið svo ó-
dýrar sem unt er.
Tliomseus Magasín er lang-
þœgilegasta og hagkvœmasta versl-
unin, því annars fjölgaði ekki
viðskiftamönnum hennar dag frá
degi og ár frá ári.
>Bóka- og pappírsverslun
<j Arinbj. SYfimbjarnarsDnar
Lauírayeg 11.
Talsími 74.
Eins og getið er um áður hjer
í blaðinu, komu gífurlegir jarð-
skjálftar á Suður-Ítalíu skömmu
fyrir áramótin, báðumegin við
Messína-sundið, sem aðgreinir
Sikiley frá Ítalíu. Jarðskjálfta-
svæðið var allstórt um sig, og
eyddust mörg þorp og smábæir,
en verst urðu úti borgirnar Mess-
ína, Reggíó og Palmi. Jarðskjálft-
inn dundi yfir mánudaginn 28.
desember, kl. 5 að morgni. Allir
voru í fasta svefni, og það var
niðamyrkur, þegar jörðin alt i
einu fór að titru og þrír ákaflega
snarpir kippir komu hver á eftir
öðrum og vörpuðu höllunum og
húsunum um koll ofan á menn-
ma sofandi.
í Messína, sem er að vestan-
verðu við sundið, á Sikiley, voru
um 160,000 íbúar, og þar varð
ákaflega mikið manntjón. Auk
þess að húsin hrundu ofan á í-
búana, þá reis upp voðaleg alda
úti á hafi, 16 álna há, og steypt-
ist yfir borgina og skolaði ýms-
um skipum hátt upp á land, og
sópaði jafnvel burtu heilli járn-
brautarlest með farþegum og ílutn-
ingi. Húsin voru flest sexloftuð
og hrundu flest með þeim hætti,
að loftin hrundu niður, en vegg-
irnir stóðu eftir, allir með rifum
og sprungum og voru til mikill-
ar tálmunar við björgunina. Tal-
ið er, að 3/4 hlutar borgarinnar
hafi hrunið til grunna, en húsin
í þeim fjórða hlutanum, sem uppi
hjekk, flest svo skemd, að þau
eru óbyggileg. 70,000 manns er
talið að farist hafi í Messína, þar
á meðal 2 heilir herflokkar (»regi-
ment«).
í Reggíó, sem er að austan-
verðu við sundið, á meginland-
inu, voru um 50 þús. íbúar, og
þar dundi jarðskjálftinn yfir á
sömu stundu og með sema hætti
og á Messína Þar er talið að
farist hafi um 20 þús. manns og
í hjeraðinu í kring um 7 þús.
Palmí er bær á meginlandinu,
tæpum 5 mílurn norðar en Reggíó,
með um 14 þús. íbúum. Það
var fallega hýstur bær, í miklum
uppgangi, með blómlegri verslun,
og átlu þar heima margir auð-
menn og ekki allfáir íþróttamenn.
Þar stendur ekki steinn yfir steini.
Óðara en frjettin um jarðskjálft-
ann barst til Rómaborgar, brugðu
konungur og drotning við og fóru
suður á jarðskjálftasvæðið til að
líkna þeim sjúku og særðu og
skipa fyrir um tilraunir til að
bjarga þeim, sem eftir hjöruðu.
Eymdin vargífurleg. Þegarjarð-
skjálftunum slotaði, kom upp eld-
ur í Messína á mörgum stöðum
og tókst illa að slökkva hann, þó
rigningin dyndi altaf úr loftinu.
Ofan á þetta bættist rotnunarfýl-
an, sem lagði upp af líkunum
niðri í rústunum, og þykir til-
tækilegast að hella klórkalki yfir
líkin og láta þau vera kyr niðri
í rústunum, þangað til þau leys-
ast í sundur. Fyrsta bjargræðið
var að koma þeim veiku og
særðu í burlu á hjúkrunarstaði,
og hjálpuðust að því herskip
ýmsra þjóða, auk annara skipa.
Þannig fluttu ítölsk herskip burtu
frá Messína fyrstu dagana 12,200
særða menn, rússnesk herskip
1250, ensk 1139 og þýsk 900, alls
15,500. Líka þurfti að útvega
matvæli handa þeim, sem eftir
lifðu, því þeir voru yfirkomnir úr
hungri, enda liafa gjafir komið úr
öllum áttum til að bæta úr bág-
indunum. í Róm var óðara sett
nefud manna með hertoganum
af Aozta með oddvita til að taka
á móti gjöfum, og gáfu konungs-
hjónin alls 1,200,000 lírur (líra
= 72 au.), páfinn 100,000, ekkju-
drotningin 20,000, Kardínála sam-
kundan 20,000. Játvarður Eng-
landskonungur hefnr gefið 500 £
(£ = 18 kr.), Alexandra drotn-
ing 250 £ og prinsinn af Wales
250 £, Roosevelt forseti 500
dollara; Frakklandsbanki 100 þús.
franka, bæjarstjórnin í Paris
30 þús. franka; þingið í Banda-
ríkjunum 800 þús. dollara; Tyrkja-
soldán 1000 pund, Wilhjálmnr
keisari sex gistiskála, og einn
auðmaður í Bandaríkjunum, Na-
than Straus, hefur gert út á sinn
eigin kostnað feykilega stórtgufu-
skip, hlaðið matvælum, og sent
lækninn sinn með því til að likna
þeim bágstöddu.
Ein af plágunum, og ekki hin
minsta, eru þjófarnir og ræningj-
arnir, sem sitja um að stela öllu
fjemætu, sem þeir geta fest hend-
ur á. Það litur svo út, sem alt
illþýði úr ítaliu hafi safnast sam-
an á jarðskjálftasvæðinu til að
maka krókinn, enda hefur verið
safnað þar saman allmiklu her-
liði, bæði til að bjarga og til að
lialda reglu, og tekur það ekki
með mjúkum höndum á ræningj-
unum; bver, sem er grunaður um
ránskap, er óðara skotinn.
Tekist hefur að bjarga allmörg-
um með lífi upp úr rústunum.
í rústunum í Messína fanst ung
söngmey frá leikhúsinu; liún var
sjálf alveg heil á hófi, en hún lá
með barnið sitt dautt í fanginu
og vildi ekki með neinu móti láta
bjarga sjer, svo að það varð að
taka hana burtu með valdi. Skamt
þaðan hafði ung stúlka, 16 ára
gömul, verið að grafa með hönd-
unum niður í rúst, til að reyna
að bjarga móður sinni og syst-
kinum. Herílokkur, sem þar fór
um, ætlaði af meðaumkunarsemi
að taka hana með sjer, en stúlk-
an fleygði sjer um hálsinn á her-
foringjanum og grátbændi hann
um að hjálpa sjer, þangað til hann
komsl við og Ijet menn sína hjálpa
stúlkunni, þó hann b)rggist ekki
við neinum árangri af því; en það
tókst svo vel, að þeir björguðu
allri fjölskyldunni, 5 manns, heilli
á liófi. Fögnuður og þakkláls-
semi ungu stúlkunnar var óum-
ræðileg. Ungur maður, sem var
orðinn alveg úrkula vonar um
björg, var grafinn upp úr rúst-
unum, og það fyrsta, sem hann
bað björgunarmenn sína um, var
vindlingur. í einu hrundu húsi
heyrði herflokkur einn, sem gekk
þar fram hjá, raust, sem altaf
stagaðist áorðunum »Ave Maria«.
Þeir grófu í rústina og gengu á
hljóðið, og fundu að loknm páfa-
gauk, sem í sifellu þuldi þessi orð,
og sat við hliðina á ungri stúlku,
sem enn þá var með lifi.
Eitt, sem hefur kvalið þá, sem
komist hafa lifs af, einna mest,
er þorsti. Allar vatnsæðar hafa
farið í sundur, og ekkert vatn
fengist nema með saltbragði eða
brennisteinsbragði, svo það hefur
orðið að flytja að ógrynnin öll af
vatnsámum, og ekki tekið i mál
að brúka neitt af því til að slökva
með eldsvoðana, það er of dýr-
mætt til þess.
NiiiálaMiir
u
á Akureyri.
Akureyringar frumvarpsmenn.
Traustsyfirlýsing til stjórnar-
innar.
Það voru mikil fagnaðarlæti hjá
frumvarpsandstæðingum í haust,
er það frjettist, að þeir hefðu unn-
ið Akureyrarkjördæmið. Þeir
bjuggust ekki sjálfir við sigri þar
og þeim kom fregnin um hann
á óvænt. Fádæma-gauragangur frá
þeirra hálfu síðustu dagana fyrir
kosningarnar, þar á meðal með
Alberti-málið sæla, hefur truflað
kjósendur þar, eins og víðar, og
ráðið kosningaúrslitunum.
Eu ekki reynist þeim aðferð-
in endingargóð þar. Það sýnir
þingmálafundur, sem Sigurður
Hjörleifsson, þingmaður Akureyr-
inga, hjelt í fyrra kvöld. Fund-
urinn var vel sóttur. Ekki hefur
Lögr. fengið aðrar fregnir af hon-
um, en um sambandsmálið. Til-
laga frá þingmanni og frumvarps-
audstæðiugum, um breytingar á
sambandslagafrumvarpinu, var
feld með 123 atkv. gegn 87.
Samþykt var aftur á móti svo
hljóðandi til laga með 114 atkv.
gegn 87:
»Med því að fundurinn lítur svo
á, að ákvceðin í frumvarpi sam-
bandslaganefndarinnar þurfi ekki
að orka tvímælis, að tandið skuli
vera fullvalda ríki, skorar fundur-
inu á alþingi, að gera eigi nein-
ar þœr bregtingar á frumvarp-
inu, er spilli rjetlindum þeim, land-
inu til handa, er í frumvarpinu
felast, nje stefna að því, að lefla
fjárhag landsins í voða, og sam-
þgkkja frumvarpið óbregtt, svo
framarlega, sem eigífást bregting-
ar, sem landinu mœltu verða að
hagsbóta.
Þessa tillögu hefur Lögr. fengið
orðrjetta í símskeyti, en eigi breyt-
ingartillögur þær, sem S. H. bar
fram.
Annað simskeyti, sent frá Akur-
eyri í dag, hljóðar svo:
»200 kjósendur Akuregrarkaup-
staðar hafa undirskrifað áskorun
til þingsins, umað samþgkkja sam-
bandslagafrumvarpið, og trausts-
gfirlgsingu til ráðherranse.
Reykj avík.
Bæjavstjórnin. Fundur 21 jan.
Eftir tillögum skólanefndar synj-
aði bæjarstjórn beiðni um styrk
til barnaskólans í Bergstaðastræti,
en samþykti, að börn úr þeim
skóla fái að njóta sama rjettar til
sundkenslu og börn barnaskóla
bæjarins, og fól borgarstjóra að
leita samninga við stjórn bað-
húss Reykjavíkur um ókeypis böð
handa börnum skólans.
Skrautgarðsnefndin skýrði frá
því, með hverjum kjörum erfða-
festulöndin við suðurenda tjarnar-
innar mundu fást. Eftir nokkrar
umræður var málið tekið út af
dagskrá.
Eftir nokkrar umræður um út-
svör á vinnuhjú var svo hljóð-
andi tillaga samþ.:
»Bæjarstjórnin skorar á niður-
jöfnunarnefnd kaupstaðarins að
fylgja fram ákvæðum bæjarstjórn-
arlaganna um, að leggja útsvar
eftir efnum ogástæðum á alla þá,
sem hafa fast aðsetur í bænum,
þar á meðal vinnuhjú«.
Lúðrafjelaginu veittur 500 kr.
styrkur og 120 kr. i húsaleigu
þetta ár, eins og næstl. ár, þó með
því skilyrði, að fjelagið haldi uppi
ókeypis lúðrablæstri eigi sjaldnar
en að undanförnu, og auglýsi fyrir
fram, hvenær það leiki ókeypis.
Laun handa heilbrygðisfulltrúa
voru ákveðin 1909: 600 kr. og
Júlíus Halldórsson fyrv. hjeraðs-
læknir kosinn heilbrygðisfulltrúi.
í viðurkenningarskyni fyrirlangt
starf í þarfir bæjarfjelagsins veitti
bæjarstjórnin Ólafi ólafssyni fyrv.
bæjarfulltrúa 300 kr. ellistyrk ár-
lega, frá 1. jan. þ. á. að telja.
Ráðherra kom með »Vestu« nú
á sunnudaginn var.
Takið eftir!
Til leigu eru 4 herbergi, einkar hentug
hvort heldur er fyrir eina fjölskyldu, eða
fyrir alþingismenn, því húsgögn geta fylgt,
ef um er samið í tíma. Ritstj. vísar á.
Frá Ameríku er nýkominn hing-
að Skafti Brynjólfsson lögfræð-
ingur frá Winnipeg, áður þing-
maður í Canada, og frú hans.
Þau eru á skemtiferð og ætla að
dvelja hjer á landi til næsta hausts.
Verða hjer í bænum í vetur, ferð-
ast um landið í sumar og dvelja
hjer síðan aftur um tíma, áður
þau fara heim.
Þorvarður Porvarðsson prent-
smiðjustjóri kom úr utanlands-
för með »Vestu« nú á sunnu-
daginn. Hann fór hjeðan til Sta-
vangurs í Noregi og kvæntist þar
26. nóv., og kom konan nú hing-
að með honum. Hún er íslensk,
Gróa Bjarnadóttir að natni, en
hefur verið um hríð í Noregi,
og er ekkja eftir norskan kaup-
mann.
Frá Stavangri fóru þau til Björg-
vinar, þaðan til Kristjaníu, þá
til Khafnar, og svo suður til Ham-
borgar, en dvöldu síðan í Khötn
um tíma, áður en þau hjeldu
heim hingað.
Veður er altaf mjög óstöðugt og
stormasamt. í gær og fyrri nótt
var asahláka og hvass útsunnan-
vindur, svo að snjólaust er nú
orðið að mestu.
Riddarar af dannebrog eru þeir
orðnir Sighv. Bjarnason banka-
stjóri og Sigf. Eymundsson bók-
sali.
Bankavextir lækka. íslands-
banki auglýsir á öðrum stað hjer
í blaðinu niðurfærslu á útláns-
vöxtum um '/2%, úr 6°/o í 5'/2%,
frá því í dag. Vextir eru færðir
niður um V20/0 í Danmörku í dag,
en um sama leyti færir England
vextina upp. Danir munu vera
að taka stórt ríkislán í Frakk-
landi, og er líklegt, að vaxtaniður-
færslan standi i sambandi við það,
en hún sýnir, að horfurnar í pen-
ingamálunum eru að batna í Dan-
mörku.
Maður slasaðist við uppskipun úr
koltiskipi hjer á höfninni á föstu-
daginn var, Guðmundur Gíslason.
Kolasekkur datt ofan á hann og
braut annan fotinn.
„Þjóðólfs-madurinn“.
»Það er auðsjeð, hverja hann
umgengst núna«, sagði ísafoldar-
maður einn og hló við, þegar hann
hafði lesið tremstu greinina i Þjóð-
ólfi á föstudaginn var.
Hann átti ekki við barnalegu
ráðleggingarnar til ráðherrans um
það, hvenær og hvernig hann ætti
að losna við embættið, því þær
eru svo Þjóðólfslegar, sem frek-
ast má verða, þó ísaf. hafi farið
með eitthvað líkt áður.
En hann átti við það, að Þjóð-
ólfur er þarna að ríta niður fram-
farastefnu núverandi ráðherra í
innanlandsmálum, þau verk, sem
Þjóðólfur hefur sjálfur veitt lion-
um fylgi til, en ísaf. hefur maldað
á móti.
Þegar ísafoldar-maðurinn kom
að þeim kaílanum í greininni, þá
hló hann og sagði þetta, sem til
er fært hjer á undan.
Og það er ekki liægt að neita
því, að þetta er satt.
Þeir Isafoldarliðar eru búnir að
dáleiða Þjóðólfsmanninn, og gera
hann líklega að miðli hjá sjer áð-
ur en lýkur. Kári.