Lögrétta

Issue

Lögrétta - 30.06.1909, Page 3

Lögrétta - 30.06.1909, Page 3
L0GRJETT A. 131 Tekjur landsímans 1. ársfjórðung 1909. Símskeyti innanlands: Almenn skeyti . V eðurskeyti . Símskeyti til útlanda: Almenn skeyti . Veðurskeyti . . Símskeyti frá útlöndum Símasamtöl .... Talsímanotendagjald 3409.70 1200,00 4609,70 1730,42 312.47 Viðtengingargjöld og einkaleyfisgjald Aðrar tekjur........................ 20,42,89 1098,76 Kr. 7751,35 (3598.04*) 7990,40 ( 3946,85) i727.95 1 2370,76) 500,00 í ' ' 647,80 ( 397,46) Samtals kr. 18617,50 (10313,01) Reykjavík 26. júní 1909. O. Forberg. *) 1. ársfjórðungur 1908. til þess að ljetta syndapokann á herð- ; um „húsbóndans". Fjarstæða ein er það hjá ísaf., að ekki hefði verið gerlegt að setja annan mann við hlið Tr. G. í bank- anum, að hann mundi ekki hafa þolað það. En mátti hann þá ekki segja af sjer starfinu, ef honum hefði fund- ist þetta óþolandi, — sem annars er ekki svo hætt við að orðið hefði? Hann hefur stjórnað bankanum hing- að til með tvo gæslustjóra við hlið sjer, svo að tngin ástæða var til að óttast vandræði af því, þótt fjórða manninum væri bætt þar við. Einum svartasta skugganum yfir þessa ráðherra-athöfn kastar einmitt það, að Tr. G. var ekki einu sinni gefinn kostur á, að segja starfinu af sjer. Hann var alls ekki látinn vita af því, að til stæði, að honum yrði vikið frá, þótt það sje annars algeng regla, þegar slíkt stendur til, enda þótt um óvalda menn sje að ræða. Það er eins og ráðherra hafi ekki getað neitað sjer um þá ánægju, að vtkja Tr. G. frá. Og þó er kjarkur- inn hins vegar svo veill, að hann lætur ekki birta frávikningarskjalið fyr en hann er kominn burt frá landinu. Þetta er ómennileg aðferð og lítt sæmandi þeim manni, sem falið er að fara með vald í nafni heillar þjóðar. Það á hjer enn við, sem þingmað- urinn sagði í vetur um bankarann- sóknarráðstöfunina, að völd í hönd- um B. J. væru sama sem opinn voði í óvita höndum. Eftirmæli. Merkiskonan Vilborg Eiríksdóttir andaðist hinn 17. okt. 1908 að heim- ili sínu Kotvogi. Hún var fædd 31. okt. 1834 að Tjörfastöðum á Landi; fluttist hún þaðan 2 ára gömul með foreldrum sínum að Litlalandi í Ölfusi. Er hún var á 9. ári, misti hún móð- ur sína, en dvaldi svo hjá föður sín- um á Litlalandi, þar til hún árið 1857 fluttist að Kirkjuvogi í Höfnum, og þar giftist hún 22. janúar 1858 hinum al- kunna merkismanni dbrm. Katli Ket- ilssyni frá Kotvogi, sem dó hinn 13. maí 1902. í Kotvogi byrjuðu þau búskap og bjuggu þar í 2 ár, en vorið 1859 fluttust þau hjón að Hvals- nesi, en voru þar aðeins 1 ár, og fluttust vorið 1860 að Kotvogi og bjuggu þar með rausn og sóma í 42 ár, enda var hún samtaka manni sínum í allri bústjórn og starfsemi. Eftir það að hún misti mann sinn, eða 6 síðustu árin, hafði elsti sonur hennar aðallega búsforræði með henni, uns hún hætti alveg við búskap á næstliðnu vori. Þau hjón eignuðust 7 börn, en af þeim eru 5 á lífi, 3 synir og 2 dætur; 1 son mistu þau uppkominn og annan á ungum aldri. Vilborg sál. var fyrirmynd sem eiginkona, móðir og húsmóðir. Hún naut og að maklegleikum elsku og virðingar í sinni sveit, sem ein hin mikihlæfasta og merkasta kona bygð- arlagsins. Með mikilli hepni gegndi hún Ijósmóðurstörfum f Hafnarhreppi yfir 40 ár. Allir bágstaddir og fá- tækir, sem nálæg henni voru, leituðu hennar og áttu, þar sem hún var, ör- ugt athvarf með framkvæmdarsama og örláta hjálpsemi. Kunnugur. Á Vífilstöðum. Hjer líður svali fjöllum frá og fríkka tekur sveitin, en þó er eins og þrútni brá, er þennan lít jeg reitinn; því hjer er sem jeg horfi á val, er helja laugar blóði. — Á velli þessum vígi skal þó verja’ af dug og móði. Hvað er vort þyngsta þjóðarböl? Hvað þjáir fólkið sárast? Hvað veldur tíðast kröm og kvöl svo kærleiks-augun tárast? Það er án vafa veikin sú, sem veldur hvítadauða. Því hefjum allir hendur nú og heftum árás nauða. Og hjer skal reisa hælið það, sem hjálp má besta veita, því hingað á hinn hreina stað mun hópur þjáðra leita. Hjer veitist svölun særðum lýð í sólarblænum þýða, og drjúpi líknardöggin fríð þeim dauðans sem að bíða. Hvert kærleiksverk, sem unnið er, mun ávöxt bera sfðar; þess sönnun full mun finnast hjer í framrás seinni tfðar. — Ef viltu þerra þrungna brá og þú átt gull í hlöðum, jeg ræð þjer til að reisa þá eitt rúm á Vífilstöðum. Pjetur Pálsson. Reykjavík. Æskuvlnir og vandamenn trú- boðskonunnar íslensku frá Kína, Steinunnar Hayes, biðja »Lögrjettu" að flytja þeim öllum sínar hlýjustu þakkir, sem tekið hafa þátt í að veita henni og manni hennar, dr. Hayes, góðar viðtökur, bæði hjer í Reykjavík og á Akranesi, þennan stutta tíma, sem þau hafa dvalið hjer. Til Ameríkn lögðu hjeðan á stað með „Ceres" á sunnudaginn nokkrir menn, yfir 20 alls. Þar á rneðal var Sigurður Sölvason söðlasmiður með fjölskyldu sína, er heim fluttifyrir tveimur árum, og mun flest af þessu fólki áður hafa verið heim flutt að vestan, en því leist ekki á atvinnu- útlit hjer nú, þótt tíðin megi heita einmuna góð bæði til lands og sjávar. Ringlioltsstræti hefur nú verið lengt alla leið suður á Laufásveg, og mun eiga að lengjast síðar norð- ur að Hverfisgötu, enda væri sú breyting mjög til hægðar stórum parti af bænum. Stúdentar. Úr Almenna menta- skólanum útskrifuðust í dag: Skólanemendur: Eink. stig. Jónas Jónasson .... . I ág.106 Sveinbj. Theódór Jakobsson I. 103 Halldór Kristjánsson . . . I. 102 Kristján Ólafur Björnsson . I. 97 Bjarni Snæbjörnsson . . . I. 93 Þórður R. A. Þorgríinsson . I. 88 Halldór J. Þorsteinsson . . I. 87 Halldór Kristinsson . . .11. 82 Símon J. Þórðarson . . .11. 78 Eiríkur Einarsson . . . .11. 78 Vigfús I. Sigurðsson . . .11. 73 Utanskólanemendur: Guðmundur Ásmundsson .11. 79 Jón Jóhannesson . . . .11. 77 Marten A. Th. Bartels . .11. 72 Jónas Stephensen . . . III. 62 Þetta er síðasti árgangurinn f skól- anum, sem próf tekur í grísku. Frá útlöndnm eru nýlega komin: Ó Ólafsen konsúll, Guðjón Sigurðs- son úrsmiður, Guðm. Oddgeirsson verslunarmaður, frú Kristín Pálsson, stúdentarnir Alex. Jóhannesson, Ingv. Sigurðsson og Tr. Þórhallsson. Ói. H. Johnsen, fyrv. yfirkennari í Odense, er nýlega kominn hingað og dvelur hjer í sumar um tíma, eins og undanfarin sumur. Haniel Bruun kapt. er hjer nú staddur, og fer hjeðan í fornmenja- rannsóknir ásamt Finni Jónssyni pró- fessor, sem enn er þó eigi kominn hingað, en fór frá Khöfn upp til Austljarða. „Óðinn“. í júníblaðinu er mynd af Einari Helgasyni garðyrkjufræð- ingi og 4 myndir úr gróðrarstöð- inni í Reykjavfk og grein um hana; upphaf á fróðlegri og skemtilegri grein um Jökuldal, eftir Jón heit. Pálsson, sem nýlega andaðist í Reyk- holti; 2 kvæði eftir Jónas Guðlaugs- son; rnynd af sfra Jóni Jónssyni frá Stað og Hringhendur eftir Ben. Guð- mundsson. ísland erlendis. Frá Khöfn er skrifað 13 júní síðastl.: „Heldur brosa landar hjer að „ísafold". Hún er að fárast yfir því að Heimastjórnarmenn sjeu altaf að skrifa um Björn ráðgjafa í dönsk blöð. En svo er mál með vexti, að maður sá sem skrifar lang mest af íslenskum frjettum í dönsk blöð, er einmitt blaðamaður við „ísafold", skrifar þar undir nafninu „Svipall", en í „Politiken" skrifar hann íslensk- ar frjettir undir merkinu - n - n. Sá hinn sami mun og ekki vera óvið- komandi Hafnarfregnrita blaðskeyta- sambandsins „ísafoldar", „Ingólfs" og „Þjóðólfs". Mönnum hjer finnst, að „ísafold" og Björn ráðgjafi ættu að hafa betri gætur á sfnum eigin húskörlum og kenna ekki öðrum mönnum um þeirra gerðir". Próf í stjórnfræði tóku nýlega í Khöfn Georg Ólafsson (gullsmiðs í Rvík) og Ólafur Björnsson (ráðhefra), báðir með 2. eink. Frk. Hulda Hansen, kenslukona frá Rönne á Bornhólmi, hefur nú haldið hjer þrjá fyrirlestra um Albert Thorvaldsen, og heidur hinn fjórða og sfðasta í kvöld. Hún er alvön því, að halda fyrirlestra, talar vel og með glöggum skilningi og áhuga á efninu. í fyrsta fyrirlestrinum rakti hún ræturnar að listastefnu Thor- valdsens og sagði frá æskuárum hans, alt til þess, er hann varð frægur myndhöggvari fyrir Jasons-líkneski sitt. Næst sýndi hún skuggamyndir af hinum helstu karlmannalíkneskjum Thorvaldsens og skýrði frá því, hvern- ig hver um sig hefði hefði orðið til og, hvernig frægð Thorvaldsens barst út um heiminn. í þriðja fyrirlestr- inum sýndi hún helstu kvenlíkneski Thorvaldsens með skuggamyndum, og svo ýmsar af greypimyndum hans, og lýsti hvorutveggja. í kvöld ætlar hún að tala um listaverk hans í Frú- arkirkjunni í Khöfn og sýna myndir af hinum helstu þeirra. Góður rómur hefur verið gerður að þessum fyrirlestrum, og aðgang- urinn að þeim hefur verið svo ódýr, sem fremst má verða, aðeins 25 au. á hvern, ef aðgangur hefur verið keyptur að öllum í einu, en annars 50 au. Á föstudagskvöldið kemur ætlar frk. Hulda Hansen að tala um kven- rjettindahreyfinguna í Danmörku. En 3. n. m. fer hún norður um Iand, dvelur á Akureyri um tíma og ætlar að halda þar fyrirlestra um Thor- valdsen, og ef til vill einnig á ísa- firði og Seyðisfirði. Hingað kemur hún aftur sunnan um land 26. n. m. Þá ráðgerir hún að halda fyrirlestra um Georg Brandes og ef til vill einn- ig um atvinnulíf í Danmörku. 82 83 burt, en annar nýr og jainstór settur upp í staðinn. Hugbjartur hafði með sigrinum, sem á undan var genginn, unnið sjer íjett til þess að skjóta fyrst. Hann miðaði með mikilli nákvæmni og mældi fjarlægðina með auganu, en hjelt boganum framundan sjer með örina á strengnum. Svo stje hann eitt skref fram, lyfti boganum og dró hann. Orin þaut í markið, og hitti það innan við innri hringinn, en þó ekki i mið- depilinn. »Þú hefur ekki tekið nægilegt tillit til golunnar«, sagði Húnbogi og dró boga sinn. »Annars hefði þetta skot hepnast þjer betur«. Um leið og hann sagði þetta, stje hann á blettinn, sem skotmönnunum var afmarkaður, og skaut sinni ör til marksins svo fljótt, og að því er virtist svo athugalaust, að áhorfendurnir urðu þess varla varir, að hann liti þangað. Þó stóð ör hans í skotspæninum, og tveimur þumlung- um nær miðdeplinum en ör Hugbjarts. »Látirðu þennan gortara sigra þig, þá ættirðu skilið að hengjast«, sagði Ji'ihann prins við Hugbjart. »Enginn gerir betur en hann getur, og eigi heldur, þótt hann búist við hengingu«, svaraði Hugbjartur eins og áður. »En afi minn fjekk orð fyrir að vera góður bogmaður.. . .« »Hvern fjandann varðar okkur hjer um afa þinn og ætt þina!« sagði prins- inn og tók fram í fyrir honum. »Skjóttu nú aftur, þræll, og skjóttu eins vel og þú getur, — annars skaltu hafa verra af«. Hugbjartur stje nú aftur á skotmanna- blettinn, dró boga sinn og hitti í þetta sinn alveg í miðdepil skotmarksins. »Það var fallega gert! Fallega gert, Hugbjartur!« hrópuðu áhorfendurnir, því Hugbjartur átti þar marga kunn- ingja, en Húnbogi var öllum óþektur. »Alveg í miðdepilinn! Alveg i mið- depilinn!« kallaði hver til annars. »Lengi lifi Hugbjartur!« var hrópað. »Betur getur þú ekki skotið«, sagði Jóhann prins og leit háðslega til Hún- boga. »Jeg ætla samt að reyna að merkja örina hans«, sagði Húnbogi. Siðan skaut hann aftur, og var nú sýnilegt, að hann vandaði sig meira en áður, enda hitti hann ör Húnboga svo vel, að hann klauf hana. Áhorf- endurnir stóðu eins og steini lostnir. Þetta kom öllum svo óvænt, að þeir gleymdu að láta aðdáum sína í Ijósi með ópum, eins og þó var venjulegt. »Það er fjandinn sjálfur, en ekki nokk- ur menskur maður«, hvisluðu bænd- urnir hver að öðrum. »Annað eins skot og þetta hefur ekki áður sjest á Englandk. »Nú bið jeg prinsinn um leyfi til að setja skotmálið eins og tíðkanlegt er norður í landi«, sagði Húnbogi. »0g vel sje hverjum vöskum bónda, sem reyna vill það skotmál til þess að á- vinna sjer bros frá þeirri stúlku, sem hann ann«. Hann sneri sjer við og bjóst að ganga burt frá leiksviðinu. »Láttu þjóna þína gæta mín, prins, ef þjer svo líst«, mæiti hann. »Ánnars ætla jcg aðeins að bregða mjer burtu til þess að skera mjer ör af næstu trjágrein«. Jóhann prins gaf nokkrum af mönn- um sinum merki um, að þeir skyldu elta Húnboga og sjá um að hann stryki ekki buirt. En mannþyrpingin fór þá að fussa og sveia, svo að hann tók þá fyrirskipun aftur. Hennar þurfti heldur ekki, því Hún- bogi kom aftur að vörmu spori með hjer um bil sex feta langa píiviðar- grein, þráðbeina og litlu gildari en mannsfingur. Hann fór með gætni að íletta af henni berkinum og sagði uin leið, að það væri lítilsvirðandi fyrir góðar s-kyttur, að bjóða þeim að skjóta eptir jafnstórum skotspæni og þeim, sem áður hefði verið notaður þarna. Sagði hann, að hver sjö ára gamall drengur ætti að geta hitt svo stórt mark. »En þann, sem hittir þessa píl- viðargrein úr eitt hundrað og fimtíu álna fjarlægð; kalla jeg bogmann, sem verður væri þess, að heita konunglegui’ bogmaður, og það jafnvel hjá öðrum eins manni og Rákharði Englandskon- ungi«, sagði hann, gekk yfir leiksviðið og stakk þar niður greininni. »Afi minn var annálaður bogmaður eftir orustuna við Hastings«, sagði Hug- bjartur, »og hef jeg þó aldrei lieyrt þess getið, að hann hafi sett sjer annað eins skotmark og þetta, enda reyni jeg mig ekki á því. Ef þessi maður ætlar sjer að kljúfa greinina þarna, og gerir það, þá gefst jeg upp fyrir lionum, því jeg álit, að slíkt geti enginn maður, nema með djöfulsins hjálp. Enginn gerir betur en hann getur, og jeg vil ekki skjóta eftir því marki, sem jeg er fyrirfram viss 11 m að hMta ekki«. »Þú ert huglaus rakkk, sagði .Tóhann prins. »En skjóttu þá, Húnbogi! Hittir þú þetta mark, þá segi jeg það, að þú ert einstakur maður. En þú slcalt ekki hrósa þjer af því fyr en þú hefur sýnt, að þjer takist það«.. »Jeg skal gera hvað jeg get, eins og Hugbjartur segir«, svaraði Húnbogi; »en meira gerir enginn«. »Siðan dró hann boga sinn, en i þetta sinn var auðsjeð, að hann vand- aði sig sem best. TTann reyndi bog- ann fyrst og setti á hann nýjan streng, því hinn var farinn að verða slakur. Svo midaði hann með gætni á skot- markið, en áhorfendurnir biðu þess fullir eftirvæntingar, að örin flygi af strengnum. Og skotmanninum brást ekki bogalistin; örin klauf pílviðar- greinina. Þá var lostið upp djmjandi fagnaðarópi, og Jóhann prins varð svo lunfinn, að hann gleymdi í bráðina aliri gremju til Húnboga. »Þessir þrjá- tíu dúkatar eru þin eign, og eins þetta veiðihorn«, sagði hann; »þú hefur vel unnið til hvorstveggja. Og jeg skal tvöfatda upphæðina, ef þú vilt ganga i þjónustu mína og í lífvörð minn. Því aldrei hef jeg sjeð önnur eins tök á boga og þú hefur, nje aðra eins skot- hæfni«. »Fyrirgefðu, herra prins«, svaraði Húnbogi. »En það heiti hef jeg unnið, að ef jeg gengi nokkru shmi íþjónustu

x

Lögrétta

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lögrétta
https://timarit.is/publication/196

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.