Lögrétta

Tölublað

Lögrétta - 13.04.1910, Blaðsíða 4

Lögrétta - 13.04.1910, Blaðsíða 4
72 L0GRJETTA. UanbTæi ysrsliarisli. Innkaup á útlendum varningi, gegn fyrirfram greiðslu og sölu á ísl. afurðum, annast fljótt og vel A. Guðmundssoii, 2. Coraniercial Street, Leith. _ Talsími 244 hefur margar góðar vörutegundir á boðstólum. ÍÞar á meðal: Norðlenska sauðaKjötið — hvergi jafn-ódýrt. ísl. smjör og kæfa. Saltmoti margsk. — jafngott og annarstaðar en þó ódýrast. Verkmannaskó sterkasta og ódýrasta. Allskonap nauðsynjavörur. Allir, sem skifta við versl. Kaupangur, vita að þar eru aðeins góðap vöpup, með góðu verði. verður haldinn laugardaginn 23. þ. m. á Hótel ísland og byrjar kl. 9 síðdegis. c&jelagssíjórnin. Hafnarnefnd: Tr. Gunnarsson, J. Þorláksson. Skattanefnd: H. Jónsson, Kl. Jóns- son. Heilbrigðisnefnd: Þ. Thoroddsen. Stjórn Fiskimannasjóðs: Tr. Gunn- arsson. Vatnsveitunefnd: J. Þorláksson, Bríet Bjarnhjeðinsdóttir. Gasnefnd: borgarstjóri, K. Zimsen, L. H. Bjarnason, G. Björnsdóttir, P. J. Guðmundsson. Kosnir prófdómendur við unglinga- skóla Ásgr. Magnússonar við vor- próf nú í vor: skólakennarar Þorl. H. Bjarnason og Jóh. Sigfússon. Mælt með prestaskólakernara Eiríki Briem sem prófdómanda við stýri- mannapróf í vor. Bætt inn á alþingiskjörskrá 90 kjósendum samkv. kærum, en kærur 14 manna ekki teknar til greina. 13 menn feldir burt af skránni. Kosin í nefnd til þess að gera til- lögur um breytingar á lögreglusam- þykt kaupstaðarins (sjerstakl. um hundahald): K. Magnússon, K. Zim- sen, Kl. Jónsson. Skipaðir embættismenn í slökkvi- liðið: Jóh. Lárusson og Erasmus Elíasson, undirsveitarhöfðingjar í*hús- rifrildisliði; Sigurður Þorsteinsson, deildarstjóri við 1. dælu, Hjalti Sig- urðsson, Ari B. Antonsson, Jóh. Magn- ússon og Árni Jónsson, flokkstjórar við 1.—4. dælu; Kristófer Sigurðs- son yfirmaður við sjálfstæða stigann. Samþ. að veita Ben. Jónssyni sót- ara 100 kr. úr bæjarsjóði eitt skifti fyrir öll í stað eftirlaunahækkunar, er hann sótti um. Norðangarðiu' hefur verið hjer það, sem af er þessari viku, með grimdarfrosti. Mest var það á mánudagsmorguninn, 6,8 stig hjer í Rvik, en 14 st. á ísafirði, 8 á Akureyri, 10 á Grímsstöðum og 5 á Seyðisfirði. Litlu lægra var frostið í gær. A undan höfðu ver- ið góð hlýindi um tíma. Ilarnaskólinn í Bergstaðastræti hefur 31. f. m. fengið staðfestingu og viðurkenningu stjórnarráðsins samkv. fræðslumálalögunum. Hef- ur skólahaldarinn, Asgr. Magnús- son, látið prenta reglugerð fyrir skólann, staðfesta af stjórnarráðinu. Inílóensuveikin, sem gengið hef- ur hjer í bænunr, má nú heitaúti. Margir hafa legið af hennar völd- um lengri eða skemri tíma, en fá- um mun hún hafa orðið að bana. L. H. Bjarnason lagaskólastjóri hefur legið veikur um tíma, af in- flúensuveikinni, en er nú þegar al- bata. Mann tók út síðastl. Iaugardag af fiskiskipinu »Sea-gull«. Maður- inn hjet Sæmundur Jóelsson, ung- ur maður. Tveir aðrir af skip- verjum höfðu meiðst í sama skift- ið. Skipið kom inn hingað í gær- dag. Leikhúsið. Þar er nú nýbyrj- að á nýjum leik, »ímyndunar- veikinni«, eftir Moliére, skemti- legum leik og fjörugum. Aðal- hlutverkið leikur Árni Eiriksson og tekst það vel, en það er að sýna ímyndunarveika karlinn. Yinnu- konu hans, sem er önnur aðal- persóna leiksins, leikur frú Ste- fanía Guðmundsdóttir. Hún hefur ekki leikið í vetur fyr en nú. Dóttur karlsins leikur frk. Guð- : rún Indriðadóttir, en konu hans frk. Þuríður Sigurðardóttir; lækn- ana Helgi Helgason og Jónas H. j Jónsson, hiðlana Herb. Sigmunds- son og Friðf. Guðjónsson, og bróður karlsins St. Runólfsson. Yfir höfuð var vel leikið. Sjer- staklega skemtu mennsjervel við leik vinnukonunnar og annars biðilsins (Fr. G.) auk ímyndunar- veika karlsíns sjálfs, sem alla fær til að hlæja. Sjálfsagt verður þessi leikur vel sóttur. Finnland. Áður hefur verið skýrt frá því hjer í blaðinu, að Rússakeisari lagði fyrir Dúmuna lagafrumvarp, er gerði að engu sjálfstæði Finnlands. Þetta frum- varp er nú gengið í gegn. En sím- að er frá Khöfn 7. þ. m., að Finnar ætli að risa upp og mótmæla þeim aðförum. Úr Skagaíirði er skrifað 20 mars: „Hjer er versta tíð, jarðleysur og fann- fergja. Sýslunefndarfundur skagfirð- inga er nýlega afstaðinn; fá merk mál voru þar til umræðu. Marka- breytingarmál frá landbúnaðarfjelag- inu kom þar fyrir og var því vísað heim í sveitirnar til umsagna, og mjög hæpið að það gangi í gegn. Talið er víst, að síra Hallgrímur Thorlacíus sje að berjast fyrir að verða konungkjörinn næst; þá fær þjóð vor það, sem hana vantar". „Barðinn“, flutningaskip Elef- sens hvalveiðamanns á Mjóafirði, kom hingað í fyrra dag til þess að sækja hingað verkafólk. Með honum komu nokkrir farþegar að austan: Axel Tulinius sýslumað- ur á Eskifirði, síra Jóhann Svein- bjai'narson á Hólmum, Ivonráð Hjálmarsson kaupm. á Mjóafirði, Jónas Gíslason á Nesi í Loð- mundarfirði, Vilhj. Árnason á Há- nefsstöðum í Seyðisfirði, Sigurð- ur Eiríksson kaupm. á Höfða- brekku í Mjóafirði, Vilh. .Tensen kaupm. á Eskifirði o. íl. Aflabrögð á Austfjörðum. Síld var inni á Reyðarfirði, þegar »Barðinn« fór þar um nú fyrir nokkrum dögum og veiddist í lagnet. Hvalir höfðu verið inst inni í firðinum. Hvalveiðar voru þá nýbyrjaðar eystra, þó aðeins af einum bát og hafði hann far- ið út 3 daga í röð og fengið hval í hverri ferð. Sá bátur var frá Ellefsen. Gufubátur fcrst. Guíubáturinn »Hrólfur« frá Seyðisfirði fórst 30. f. m. nálægt Selvogsgrunni. Hann var þá á heimleið hjeðan frá Reykja- vík. Skipverjar voru 12 og 2 far- farþegar, og var öllum bjargað af ensku botnvörpuskipi, er flutti þá til Vestmannaeyja. Samábyrgðarumboðsmenn hafa verið skipaðir: Gunnar Olafsson alþm. í Vestmannaeyjum, Helgi Jónsson verslunarm. á Stokkseyri, Hjálmar Sigurðsson kaupm. íStykk- ishólmi, Jón á Jónsson bankabók- ari á ísafirði og Otto Tulinius kaupm. á Akureyri. Svartdælir halda i sumar 100 ára afmæli sveitar sinnar. Prestastefna verður haldin á Hólum í Hjaltadal 7.—9. júlí í sumar. Þar er áformað að vígslu- biskup Norðlendinga, síra Geir Sæ- mundsson, verði vígður 10. júlí. KKtur í ilamsal. Nú nýlega vildi það hræðilega slys til í þorp- inu Ököríto í Ungarn, að300manns, sein var að dansa inni í hlöðu, brann þar inni. Ungt fólk hafði safnast þarna saman til að dansa, en húsið fyltist brátt, en þó vildu fleiri og fleiri komast inn. Dyrun- um var þá lokað. En einhverjir, sem lokaðir voru úti, höfðu þá hefnt sín með því að kveykja í liús- inu. Eftir örstutta stund stóð alt í báli. Dyrnar voru aðeins einar og þar tróðst fólkið undir og varð svo eldinum að bráð. 300 manna fórust, en 75 komust af, með meiri og minni meiðslum. Munurinn á framkomu fyrv. og núv. ráðherra okkar út á við er sá, að Hannes Hafstein kom svo fram fyrir íslands hönd í Danmörku, að mótstöðumaður hans þar, dr. K. Berlín, kallar hann í dönskum blöð- um hafa gerst foringja „Landvarnar- manna", en hjer heima kom H. H. fram eins og sáttasemjari milli Dana og íslendiriga. Björn Jónsson hefur farið þveröfugt að, smjaðrað og flat- magað í Danmörku, en altaf þótst vera fullur af sjálfstæðisrembingi hjer heima fyrir. lliíinæAi. Þægileg íbúð og einstök herbergi á skemtilegum stað í bænum. Guðjón Sigurðs- son, Ingólfshvoli, visar á. Sfígar, ómissandi eign fyrir hvert hús, t. d. ef brnna ber að höndum, fást 1 Timbur- og kolaverslunin „REYIÍJAVÍR“. eru aftur komnar í Timbur- og Kolaversl. „ReyKjavik44. Th. Chorsteinsson S Co., Hafnarstæti, fengu með »Ceres« tvær nýtísku- tegundir af Flibbum úr írsku ljer- efti, sem seldar verða svo að segja með innkaupsverði. 3 stk. fyrir aðeins 1 kr. Regnkápur, með mjög góðu sniði, á kr. 18,00. Skinnjakka á kr. 18,00 og 19,00. Skinnvesti frá kr. 9,00—18,00. Nýjar birgðir af Höttum og Húf- um. Sumarhúfur, fóðraðar og ófóðrar- pr. kr. 1,00. Drengjaföt og drengjapeysur. Ullarpeysur á fullorðna, hvítar og misl. Enska og þýska sportsokka. Hvalfirðingar, sem kynnu að þurfa timbur í vor eða sumar, ættu sem fyrst að snúa sjer til hr. Jóns hreppstjóra Sigurðs- sonar í Kalastaðakoti. Timbur oy kolaverslunin „Reykjavík“. Hamburg W. v. Fssen & W. Jacoby. (Eigandi Waldemar v. Essen. Stofnað 1869). Vöruafgreiðsla. Skipaafgreiðsla. Vátrygging. Meðmæli: Die Deutsche Bank. Innilegt pakklæti vottum við öllum þelm, er sýndu okkur hluttekningu við dauða og geftrun elsku litlu dóttur okkar Láru Sigríði. Valg’erður Freysteinsd. Gísli Helgasou. Firri aðalfundur verður haldinn í Bárubúð (nppi) langar- daginn 16. apríl næstk. kl. 5 síð- degis. Reikjavík n. apríl 1910. Björn M. Ólsen, p. t. forseti. Flestar teg,uii<iÍT* af fást nú í Timbur- oy kolaversluninni „ lteykjavik“. Sömuleiðis innan-, utanhiiss- og milliveg'gjapapiti. Þakjári kemur í þessum mánuði. I}eill farmur af TIMBRI kemur snemma í Maí og sömuleiðis nokkuð með tveim næstu ferðum Wathnes-skipa. Til leigu frá 14. maí er stór stofa með svefnherbergi, á góðum stað. Skemtilegt útsýni. Uppl. á Lindargötu 8 B. uppi. 2 Til lelgu tvær þriggja-herbergja í búð- ir á Spítalastíg. Ritstjóri ávísar. Eggert Claessen yfirrjettarmálaflutningsmaður. PÓ8thÚ88træti 17. Venjulega heima kl. 10—11 og 4—5. Talslmi 16. Z\\ almennings! Athygli manna skal vakin á því, að eg undirritaður hef nú tækifæri til þess, að bjóða almenningi að leysa af hendi allskonar járnsmíðar. Hef jeg á boð- stólum allskonar járn til húsbygginga og leysi þesskonar járnsmíðar svo vel af hendi og ódýrt, að menn eiga ekki kost á, að fá jafngóð kjör annarstaðar. Jeg hef miklar birgðir af járni fyrir hendi, en það, sem ekki er fyrir hendi, verður útvegað svo fljótt sem kostur er á. Öll stærri smfði verða tekin á „akkorð", ef óskað er, og vinna öll verður fljótt og vel af hendi leyst. Jeg ráðlegg mönn- um að reyna þetta, og munu þeir, sem eitt sinn hafa byrjað á viðskiftum við mig, ekki leita annara. Af sjerstökum smíðum vil jeg benda á járngrindur og hlið. Til sveitamanna! Jeg vil benda sveitamönnum sjerstak- lega á, að jeg býð þeim hestajárn smíð- uð úr stáli, sem eru mjög hentug, end- ingargóð og ódýr, einkum í stærri kaup- um og sjeu þau pöntuð í tíma. Enn fremur alt smíði, er sveitamenn þarfnast. Páil Magnússon. Bergstaðastræti 2, Reykjavík. 2—3 lierbergi (niðri) á góðum stað, með eldhúsi, óskast til leigu strax. Upplýsingar í Pósthússtr. 15. Sjómaður. Ungur maðui’, sjóhraustur og duglegur, getur fengið starf sem matrós á s/s Trygve, sem liggur hjer á höfninni. Snúi sjer til skipstjórans. RjólK frá Gunnsteini i Skild- inganesi er ekki seld lengur í Tjarnargötu 4. Guðrún Jónsdóttir. 2 Iicrbcrgi til leigu á góðum stað í bænum, með eða án hús- gagna. Ritstj. ávisar. HöskuF unglingur getur fengið ársatvinnu við keyrslu á brauðum og aðra snúninga. Daníel Bernhöft. Tiniiumann vantar á Hotet ísland. ViiinnKona óskast frá 14. maí. Ritstj. ávísaar. Leikið í Iðnaðarmannahús- inu Laugardag 16. apríl, kl. 8V2 síðdegis. Tekið á móti pöntunum á aðgöngu- miðum í afgr. ísaf. Undirritaður lætur framvegis s e 1 j a iiijollc, rjóma og æliyr 1 i'ii I Scauf jií-lioll í wi Cjarnargötu h-m Hvergi annarstaðar í Reykjavíb. p. t. Reykjavlk 5. apríl 1910. Dan. Danielsson. Taiitar þig cKKi húsnæði? Komdu i Bergstaðastræti 3. Þar geturðu valið um herbergi, góð og akemtileg, móti sól, með forstofuinngangi, hvort sem þú vilt heldur eitt eða fleiri, með öllu tilheyrandi eða tóm. Talsíini 208. Sigurður jlíiagnússon læknir býr nú KirKjustræti 10. Viðtalstími 11—12. Talsími 204. Smáauglýsingar tekur „Lögrjetta" framvegis fyrir lægra verð en áður. En þá verður borgun að fylgja jafnframt Brúkuð íslensk frimerki kaupir með hærra verði en áður Inger Ostlund. Auglýsingum í „Lög- rjettu“ tekur ritstjórinn við eða prentsmiðjan.

x

Lögrétta

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögrétta
https://timarit.is/publication/196

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.