Lögrétta

Útgáva

Lögrétta - 18.05.1910, Síða 4

Lögrétta - 18.05.1910, Síða 4
9g L0GRJETTA. ©\ií sjórnanna. Biðjið útgerðarmenn yðar um smjörlíki frá „Kö- benhavns Marg,arinefabrik“, sem er búið til úr hreinu og ósviknu efni, lítið litað og hvítt eins og sauðasmjör. Fæsí frá forðabúri verksmiðjunnar á Akureyri og beint frá verksmiðjunni. Áreiðanlegum kaupendum er gefrnn gjaldfrestur, sje mikið keypt í einu. Jón Stefánsson, Akureyri. Listverslunin Pósthússtæti 14: Nýjar myndir og kort. j$rjej ]óns Siguríssonar. Hið íslenska bókmentatjelag hefur af- ráðið að gefa út safn af brjefum fóns Sigurðssonar á aldarafmæli hans næsta ár, og hefur það falið okkur undirskrif- uðum að sjá um útgáfuna; en við höf- um tekist starfið á hendur í von um að- stoð góðra manna. Eru það því virð- ingarfylst tiimæli okkar til allra þeirra utanlands og innan, er kynnu að hafa í höndum brjef frá Jóni Sigurðssyni eða önnur skjöl eða skilríki viðvíkjandi æfi hans, að gefa okkur kost á að fá þau ljeð til afnota á einn eður annan hátt, eftirþvf sem um semst í þvl efni; en við munum fara með brjefin nákvæmlega eftir því, sem fyrir verður lagt. Þeir, sem vilja verða við þessum til- mælum okkar, eru beðnir að gera það hið bráðasta að unt er, með því að tíminn er mjög naumur. Við skulum geta þess, að brjefin mætti senda Lands- bókasafninu eða Bókmentafjelaginu, ef menn kysu það heldur en að senda þau öðrum hvorum okkar. Reykjavík 29. Apríl 1910. Jóm Jensson. Þorleifur H. Bjarnason. Til lei^n stofa og svefnher- bergi á Amtraannsstíg 4, hjá S. Guðmundssyni. I hegmngarhúsinu fæst: Hestajárn, Ljábakkar, Amboð, Kommóður, Hnappheldur, Reiptögl. Þar eru einnig bundnar bækur og gert við skótau. S. Pjetursson. Tvíbura-kerra til sölu; upplýs- ingar á afgreiðslu Lögr. Hjer með tilkynnist vinum og vandamönn- um, að okkar elskulega dóttir, Halldóra Krist- rún, andaðist á heimili okkar hjer i bænum 14. p. m. Jarðarförin fer fram þriðjudaginn 24. þ. m. og hefst huskveðjan kl. Ih/a f- h. Hafnarfirði 16. mai 1910. Þóra Jónsdóttir. Hafliði Þorvaldsson. Hjer með tilkynnist vinum og vandamönn- um, að minn hjartkæri eiginmaður, Guðmund- ur Ásmundsson, andaðist á Landakotsspitala 15. þ. m. Jarðarförin fer fram 23. þ m. Húskveðjan hefst kl. II‘/a árdegis við Landa- kotsspitalann. Reykjavik 17. mai 1910. Ingibjörg Helgadóttir. 1 JVWXA'VAAJLfl ) brúkuð íslenzk, alls- f konar borger enginn f betur cn í Helgi Helgnson (hjá Zimsen) £ Eeykjavík. < /L ! íri! Aí ■ ivS-V' n**A Hamburg W. v. Fssen & W. Jacoby. (Eigandi Waldemar v. Essen. Stofnað 1869). Vöruafgreiðsla. Skipaafgreiðsla. Vátrygging. Meðmæli: Die Deutsche Bank. Síðastliðið haust var mjer dreginn í Auðkúlurjett mórauður sauður, vetur- gamall, með mínu marki, tvfstýft fr. hægra, hálftaf fr. vinstra, óbrennimerktur og óauðkendur. Þennan sauð get jeg því aðeins átt, að einhver hafi fóðrað og gelt hann fyrir mig veturinn 1908—1909, því þá vantaði mig af heimtum mórauð- an lambhrút með sama marki. —Jeg vil því hjer með skora á hvern þann, sem getur helgað sjer sauð þennan eða gefið upplýsingar viðvíkjandi honum, að til- kynna mjer það sem fyrst. Og ef ein- hver á sammerkt við mig, verður hann að semja við mig um markið. Snæringsstöðum í Austur-Húnavatns- sýslu, 20. apríl 1910. Gudmann Helgason. Flöskur, þriggja pela, kaupir hæsta verði Siggeir Torfason. Brúkuð islensk frimerki kaupir með hærra verði en áður Inger Ostlund. dan$fca smjörlihi cr beýh álnavörubúð H .. ■ l m eru nýkomnar miklar birgðir af allskonar ÁLNAV0RU, Prjónlesi o. fl. Gerid svo vel og Jiynnid yður fyrst verdlag hjd öðrum kaupmönnum og komið svo til vor, þd GANGA KAUPIN GREIÐAST. Islandsgliman 1910 verður liáð í Reykfavík sunnudaginn 1*. júní um verðlauna- grip íþróttafjelagsins „Grettis*4 á Akureyri, MSlandsbeltiö. — Nánara síðar á götuauglýsingum. — Keppinautar um íslandsbeltið verða að hafa tilkynt þátttöku sína í glímunni stjórn »Grettis« á Akureyri eða herra verslunannanni Sigurjóni Pjeturssyni í Reykjavík 12 stunduin á undan glímunni. Akureyri 4. mai 1910, p. t. í stjórn »Grettis« Karl Sigurjónsson. Oddur Björnsson. Vigfús Sigfússon. Steinsmiðir, sem vilja taka að sjer í samnings- vinnu steinsteypu á heyhlöðu 12X 12 al. með 5 al. háum veggjum, leiti sjer upplýsinga og komi með tilboð fyrir 25. þ. m. til §ig. Björnssonar, Grettisgötu 38. BiðjiÖ um lequndimar „Sóley” „ Inyólfur " „ Hehla " eða JsafoId,, Smiörlikið fcesL einungi^ fra : V Oífo Mönsted h/f. '&n Kaupmannahöfn og/fró$um ,0 /<Z\ i Oanmörku. Reykjavíkur liggur almenningi til sýnis á bæjarþingstof- unni 15.— 22. þ. m. Kærur sendist borgarstjóra fyrir 17. júní næstkomandi. Borgarstjóri Reykjavíkur, 14. maí 1910. <3*áll Cinarsson. Prentsmiðjan Gutenberg. 222 223 »hvort jeg á að vera vinur þinn eða óvinur. Það fer eftir því, hvernig við- tali okkar lýkur í þetta sinn«. Rebekka varð hrædd, þegar Brjánn kom inn, og hörfaði aftur á bak, inn í insta horn herbergisins. Samt var það anðsjeð, að hún bjóst til varnar. »Þú hefur enga ástæðu til að hræð- ast mig, Rebekka«, sagði Brjánn. »Þú veist það sjálf, að þú hefur enga á- stæðu til þess nú, þótt þú kunnir að hafa haft hana áður«. »Hvert er þá erindi þitt hingað, herra riddari?« sagði Rehekka. »Segðu það viðstöðulaust í sem íæstum orðum. Ef þú átt hingað eitthvert annað erindi en það eitt, að sjá þá eymd, sem þú hefur sökt mjer i, þá láttu mig heyra það, en annars bið jeg þig að lofa mjer að vera í friði. Sporið frá þessu lífi og inn 1 eilífðina er stutt, en það er hræðilegt, — og jeg hef ekki langan tíma til undirbúnings«. »Jeg heyri það, Rebekka«, svaraði Brjánn, »að þú sakar mig enn um þá óhamingju, sem jeg svo feginn vildi afstýra«. »Herra riddari«, sagði Rebekka; »jeg vildi helst geta komist hjá því, að þurfa að bera sakir á nokkurn mann. En liggur það ekki í augum uppi.að fyrir oí'- sóknirfráþjer verð jegnú að líða dauða«? »Þetta er misskilningur hjá þjei', Rebekka«, svaraði Brjánn. »Jeg gat ekki sjeð það fyrir, sem nú er fram komið, og jeg gat ekki heldur hindrað það. En það er fjarlægt tilgangi mín- um. Hvernig átti jeg að sjá það fyrir, að þessi gamli auli mundi koma hing- að? Hann kom öllum á óvart«. »Samt sast þú í dómnum, sem dæmdi mig«, sagði Rebekka, »og þú varst dómnum samþykkur, þótt þú vissir, að jeg er alsaklaus. Jeg heyrði ekki betur en að það væri þú, sem ættir að koma hertýgjaður fram á vígvöllinn til þess að sanna, að jeg væri sek og verðskuldaði refsingu«. »Þetta er alt saman rjett, stúlka min«, svaraði Brjánn. »En enginn þjóð- flokkur kann það eins vel og þinn þjóðflokkur, að aka seglum eftir vindi og nota jafnvel mótbyrinn sjer i hag«. »BöIvaðir sjeu þeir tímar, sem kent hafa ísraels börnum þá list«, sagði Re- bekka. En þið, sem hrósið ykkur aí frelsi og forrjettindum i mannfjelaginu — ykkar skömm er enn meiri, þegar þið styðjið annara hleypidóma þvert ofan í sannfæring sjálfra ykkar«. »Þetta eru hörð orð, Rebekka«, sagði Brjánn. »En seðillinn, sem kendi þjer að heimta hólmgöngumann, — frá hverjum heldurðu að hann hafi verið? Hann var auðvitað frá mjer«. »Það er aðeins frestur um litla stund, sem jeg hef fengið«, sagði Rebekka, »frestur til þess að lifi með dauðann fyrir augum í fáein dægur. Það var lítil bót. En var þá þetta alt, sem þú varst fær um að gera til bóta fyrir það, að þú hafðir leitt óhamingju yfir sak- lausa stúlku og orðið þess valdandi, að lífl hennar var bráð hætta búin?« »Nei, stúlka mín«, svaraði Brjánn; »það var engan veginn alt, sem jeg ætlaði mjer að gera. Ef gamli aulinn hefði ekki gleypt við uppástungunni, sem álpaðist út úr Hermanni karlin- um, að jeg ætti að berjast fyrir regl- una, þá hefði einhver óvalinn maður orðið til þess, og þá ætlaði jeg sjálfur að koma fram í dularbúningi eins og umferðariddari og berjast fyrir þig. Mjer hefði þá verið sama, hvort Lúkas gamli hefði valið einn, tvo eða þrjá af þeim mönnum, sem hjer eru fyrir, til þess að eiga vopnaviðskifti við mig, — jeg hefði kastað þeim öllum til jarðar. Á þann hátt hefði þá sakleysi þitt sann- ast, Rebekka, og þá ætlaði jeg að láta þig vera einráða um, hver verðlaun þú dæmdir mjer fyrir sigurinn«. »Þetta er ekkert annað en gort og stórmenskulæti, herra riddari«, sagði Rebekka, »ekki annað en drýgindatal um það, hvað þú hafir ætlað að gera, et þjer hefði ekki sýnst rjettara að gera annað þveröfugt. Þú tókst á móti handskanum mínum, og fái jeg nokk- urn mann til þess að berjast fyrir mig, þá verður hann að mæta þjer á hólm- gönguvellinum. — Og samt ertu að lát- ast vera vinur minn og verndari?« »Vinur þinn og verndari ætla jeg að vera«, sagði Brjánn og var alvarlegur, »þrátt fyrir alt það háð og alla þá ó- virðing, sem jeg hlýt að baka mjer með þvi. Gættu vel að þessu og last- aðu mig svo ekki íyrir það, að jeg set upp skilmála áður en jeg varpa frá mjer öllu því, sem jeg hef áður lifað fyrir, til þess að frelsa lif einnar Gyð- ingastúlku«. »Útlistaðu þetta betur fyrir mjer«, sagði Rebekka, »þvi jeg skil þig ekki«. »Jæja þá«, svaraði Brjánn; »jeg skal tala svo ljóst sem auðið ei'. Ef jeg ekki kem til hólmgöngunnar, þá missi jeg alla sæmd og tign í reglu okkar. Gamli Goðdalarefurinn hefur lagt þar snöru fyrir mig. Jeg sje nú eftir, að jeg skyldi láta Harald klausturhaldara aftra mjer frá því, að gera það, sem jeg ætlaði mjer að gera, en það var, að kasta handskanum heint framan í andlitið á stórmeistaranum, þessum hjátrúarfulla aulabárði, fyrir að ljá eyru jafn heimskulegum ásökunum og fram voru bornar gegn eins göfuglyndri og fallegri stúlku og þú ert«. »Hjer eiga hvorki við stóryrði nje gullhamrasláttur«, sagði Rebekka. »Þú hefur gengið með fúsum vilja að þvi, sem orðið er, annaðhvort að verða orsök í þvi, að saklaus stúlka sje líf- látin, eða þá að missa lífsstöðu þína og sóma. Og til hvers er að eyða orð- um um það framar? Þú hefur valið«. »Nei, Rebekka«, sagði Brjánn með blíðari máh’óm en áður; »jeg hef ekki valið. Það ert þú, sem nú átt að velja um þetta fyrir mig. Ef jeg kem á hólmgönguvöllinn, þá verð jeg að halda uppi heiðri mínum; og geri jeg það, þá verður þú brend á báli, því hjer er ekki til sá riddari, sem fær sje um að fást við mig á vígvellinum. Þeir Rikharður konungur ljónshjarta og gæðingur hans ívar hlújárn eru þeir einu, sem treystandi er til þess. ívar liggur veikur, eins og þú veist, og

x

Lögrétta

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögrétta
https://timarit.is/publication/196

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.