Lögrétta - 29.06.1910, Qupperneq 1
Aígreiðslu- og innheimtum.:
ARINBJ. SVEINBJARNARSON
I .sm^aví-e 41.
Talsími 74.
LOGRJETTA
Ritstjóri
PORSTEINN gislason
Pingholtsstræti 17.
Talsimi 178.
Reykjavík 29. jiiní 1910.
V. árg.
Forngripasafnið opið á hvern virkan dag kl.
12—2.
Lækning ók. í læknask. þrd. og fsd. 12—1.
Tannlækning ók. (f Pólthússtr. 14) 1. og 3.
md. í mán. 11—1.
Landakotsspítali opinn f. sjúkravitj. io1/^
—12 og 4—5.
Islands banki opinn 10—272 og 572—7.
Landsbankinn io1/^—2*/*. Bnkstj. við 12—1.
Lagaskólinn ók. leiðbeining 1. og 3. ld. í
mán. 7—8 e. m.
Landsbókasafnið opið hv. virkan dag kl.
12—3 og 5—8.
HThAThomsen- 'Öy
c'v „
tUFNARSTR' 17-18 19 20 21-22 • KOLAS '12’ LÆKJAKT-17
• REYKJAVÍK*
Faxaflóagufubáturinn „Ingólfur'1
fer til Borgarness 5., 10. og 13. júlí.
- - Keflavíkur og Garðs 8,, i5-°g
22. júlí.
Lárus Fjeldsted,
Y íirrj ettarmíilafœrslumaOur.
Lækjargata 2.
Heima kl. 11 — 12 og 4—5.
Ijrakfarir
ráðherrablaðsins.
Ritstj. ísaf. látinn kingja höfuð-
efni hennar frá 22. nóv. síðastl.
Og játa, að blaðið hafi favið með
rakalausan óhróðursáhurð á sak-
lausa menn.
í ísaf. frá II. þ. m. er grein með
fyrirsögninni: „Löghlýðni. Lög eiga
að ganga jafnt yfir alla". Út af ó-
hróðursáburði á landsyfirdóminn í
þeirri grein hefur nú ráðherrablaðið
farið sannnefnda sneypuför. Svo er
sagt, að yfirdómendurnir sneru sjer
fyrst til ráðherra, því allir vita, að
hann er launritstjóri blaðsins, og færðu
honum j'firlýsingu, sem þeir heimt-
uðu að ritstjórn blaðsins væri látin
skrifa undir og birta síðan í næsta
tbl. ísaf. Ráðherra hafði farist hjer
líkt og úti íDanmörku forðum; hann
hafði afneitað blaðinu og ekkert þótst
kannast við greinina. En yfirlýsingin
kom ekki í næsta tbl. Ljetu þá yfir-
dómendurnir birta ritstj. ísaf. sátta-
kæru út af því, að í fyrnefndri grein
sje „borið á landsyfirrjettinn, sem nú
er, að hann hafi gerst forsprakki
andstæðinga ráðherrans, sem berjist
á móti þeirri viðleitni hans, að láta
lögin ganga jafnt yfir alla, og vilji
koma frá völdum þeirri stjórn, sem
vill að embættismenn landsins sjeu
jafn háðir landsins lögum og yfir-
stjórn eins og alþýðan". Þessi og
fleiri ummæli í greininni töldu þeir
„freklega meiðandi" fyrir sig, og
kváðust ætla að koma fram ábyrgð
á hendur ritstjóra blaðsins.
Nú fór hugurinn að digna ísaf.-
megin, og í blaðinu 18. þ. m. eru
ummælin afturkölluð og afsökuð, að
því er tvo af yfirdómurunum snertir,
en öllu skelt á dómstjórann einan,
Kr. Jónsson. En það yfirklór mat
yfirdómurinn einskis. Málið var svo
tekið fyrir af sáttanefnd Reykjavíkur
21. þ. m., og varð þar sú sætt, að
„kærði skuldbindur sig til að setja
eftirfarandi yfirlýsingu athugasemda-
laust í næsta blað ísaf. Skal hún
sett með venjulegu meginmálsletri á
1. eða 2. síðu blaðsins, og skal vera
svohljóðandi orð fyrir orð:
„Eftir kröfu dómendanna í yfir-
dóminum lýsir ritstjórn ísafoldar því
yfir, að það, sem í grein eftir „Á-
Með ss „Ceresw í versl.
DAGSBRÚN:
Rlúsus, Mótorhúfur, Stormslæður, Bród-flibbar.
Mjög stórt úrval af Bróderingum svissneskum.
, Matrósaliúíur
Yms prjönavara. d,kl*3iogflaueli 1,10-2,25.
og m. m. fl.
horfanda" í 38. tbl. þ. árg. með fyrir-
sögn „Löghlýðni. Lög eiga að ganga
jafnt yfir alla", er sagt um lands-
yfirrjettinn, að hann berjist í broddi
embættismanna til þess um fram alt
að koma frá þeirri stjórn, sem vilji
að embættismenn landsins sjeu jafn-
háðir landsins lögum og yfirstjórn
eins og alþýðan", er eigi að ritstjórn-
arinnar vitund á neinum rökum bygt,
og vill hún því eigi að ummæli þessi
standi ómótmælt á ábyrgð blaðsins".
Verði þessi sætt eigi efnd, skuld-
bindur kærði sig til að greiða kær-
endunum 400 kr. til handa heilsu-
hælinu á Vífilsstöðum, og skal upp-
hæð þessi vera greidd innan þriggja
daga frá því næsta blað kemur út“.
Sáttafundir eru haldnir í hegning-
arhúsinu, uppi, kl. milli 9 og 10
að morgni dags, og því gekk fregnin
svo um bæinn, er lokið var sættinni,
að ritstjóri ráðherrablaðsins hefði setið
að „meiri háttar frúkosti uppi hjá
Sigurði".
Það er líka ekkert smáræði, sem
ísaf. ritstj. stakk þarna inn fyrir vestið.
Það er hvorki meira nje minna en
alt höfuðefni ísaf. frá 22. nóv. síðastl.,
þ. e. a. s. alt staglið um baráttu
ráðherrans við „embættisvaldið" og
fyrir „lagajöfnuðinum".
Þetta stagl var aldrei annað en
flautafæða, sem ráðherrann ljet þeyta
í bjargarleysinu í vetur. Hann hefur
við engum embættismanni hreyft,
ekki með einu orði fundið að em-
bættisfærslu þeirra Kr. Jónssonar eða
E. Briems, nje yfir höfuð nokkurs
embættismanns á öllu landinu. En
það eru starfsmenn alþingis, sem
hann hefur ráðist á, þeir menn, sem
af alþingi hafa verið settir til þess
að Vframkvæma eftirlit með æðsta
embættisvaldi landsins í meðferð þess
á peningastofnun þjóðarinnar. Það
er þetta eftirlit, sem æðsti embættis-
maðurinn, ráðherrann, hefur brotið
af sjer með ólögum og ofbeldi.
Eftirtektavert er það í „yfirlýsing-
unni", sem prentuð er hjer á undan,
að yfirdómendurnir láta „ritstjórn",
en ekki ritstjóra ísaf. gefa yfirlýs-
inguna. Þetta er vafalaust orðað
svo af þeim til þess að fá það fram,
að ráðherrann sjálfur, launritstjóri
blaðsins, gefi yfirlýsinguna jafnframt
ritstjóranum.
En hart er það fyrir blað, ekki
síst aðalstjórnarblað landsins, að verða
að jeta ofan í sig óhróðurssamsetn-
ing um menn og stofnanir með þeim
ummælum, að þau „sjeu ekki að rit-
j stjórnarinnar vitund á neinum rökum
bygð".
Fádæma hrakför má það heita,
slfkt og þvílíkt.
Danska jiingið.
Símað er frá Khöfn í morgun:
»Ríkisdagurinn er kominn sam-
an. Nýr vinstriflokkur myndaður
af núverandi stjórnarandstæðing-
um«.
Menn, sem nýkomnir eru frá
Khöfn, segja það víst, að Claus
Berntsen verði falið að mynda hið
nýja ráðaneyti. Hann er úr miðl-
unarflokknum gamla.
Prússneska kosningalagafrum-
varpið, sem mest hefur gengið á
út af í Berlin og fleiri borgum
Prússlands síðan það kom fram
í vetur sem leið, var loks tekið
aftur af Bethmann-Hollweg, eftir
að því hafði verið breytt fram og
attur í þinginu svo að enginn
flokkur var orðinn ánægður með
það.
Landsbankareikn-
ingurinn nýi.
„Vestri" flytur aðsenda grein um
hann 18. þ. m., og farast greinar-
höf. svo orð um reikninginn :
„Nýju bankastjórarnir leyfa sjer að
tilfæra áætlað tap bankans með tölu,
sem svarar nákvæmlega til dóms
ransbknarnefndarinnar þar um. Þessi
tala er svo notud í reikningsbrotinu
sem hver 'önnur tala, eins og hún
vceri sannleikurinn sjálfur, og hefur
audvitað áhrif á útlit og útkomu
reikningsins. . . . hjer finst mjer vera
að ræða um hvorki meira nje minna
en bersýnilega rangfærshi á reikn-
ingi bankans. Jeg segi þetta sem
mitt álit og vil feginn heyra álit
þeirra manna um það, sem bærir eru
um það að dæma.
Álit mitt er bygt á því, að jeg fæ
ekki betur skilið, en að það sje hrein
og bein rangfærsla — því að orðið
fölsun skal ekki notað — á reikn-
ingi, að setja á hann vísvitandi þann
„póst" eða þá tölu, sem breytir
hinni sönnu, reikningslega rjettu loka-
útkomu reikningsins. Nú hlýtur það
að vera öllum ljóst, nýju bankastjór-
unum ekki síður en öðrum mönnum
með óskertri skynsemi, að þessi tap-
upphæð þeirra, 385 þús. krónur, er
óhjákvœmilega röng. Því hvað sem
tap bankans kann að verða — ef
það á annað borð verður nokkuð —,
þá er hjer um bil óhugsandi, að það
endilega hljóti að verða upp á eyrir
385 þús. kr., en ekki t. d. 384,999
kr. eða 400,000 kr. En af því leið-
ir, að í reikningum má ekki tilfæra
neitt tap annað en það, sem orðið
er og reikningslega má sýna og
sanna, að fram sje komið, þegar
reikningurinn er gerður. Þar má
hvorki vera of- eða vantalið um einn
eyri, því ef svo er, raskar það loka-
útkomu reikningsins og gefur mönn-
um ranga hugmynd um efnahaginn.
Reikningur bankans á vissulega að
vera sönn, nákvœm, óhlutdrœg og
áreiðanleg skýrsla um hag bankans
á þeim tíma, sem reikningurinn nær
yfir, en hann á sannarlega ekki að
vera nein „Krukkspá" um það, sem
einhverjum — kannske miður óhlut-
drægum — náungum dettur í hug,
að geti skeð einhverntíma eða aldrei.
Auk þess, að þessi reikningsfærsla
nýju bankastjóranna er í mínum aug-
um herfileg rangfærsla, þá er hún og
harðvítug árás á öryggi (solvens)
bankans og tiltrúna til hans utan-
lands og innan, og kemur sú árás
vissulega úr hörðustu átt, þar sem
það eru bankastjórarnir sjálfir, sem
henni ráða. — Fyrir það tiltæki eitt
— þó öllu öðru væri slept — ættu
þeir afsetning skilið, og er vonandi,
að ráðherrann láti nú ekki undir höf-
uð leggjast að gæta skyldu sinnar
gagnvart Landsbankanum. Enda
mundi sú afsetning bæði þokkasælli
og hafa við ólíkt betri rök að styðj-
ast, heldur en feigðarflansafsetning
hans á gömlu Landsbankastjórninni
22. nóvember síðastliðinn.
Rcuisorc.
Próf í læknaskólanum
í júní 1910.
Lokapróf:
Hinrik Erlendsson II. betri einkunn.
Magnús Júlíusson 1. einkunn.
Miðpróf:
Árni Árnason.
Björn Jósefsson.
Konráð Konráðsson.
Stóðust allir prófið; Árni Árna-
son fjekk ágætis einkunn í öllum
greinum.
Eljan strandar
nálægt Reykjarflrði.
Sú fregn kom hingað í gær, að
„Eljan", eitt af Wathnesskipunum,
væri strönduð nálægt Reykjarfirði.
Hún kvað róa þar á blindskeri út-
undan Reykjanesi, norðan við fjörð-
inn, hjer um bil 3 kortera róður
undan landi. Ekkert hefur nákvæm-
lega um það frjest enn, hvernig hún
standi föst nje, hve mikið hún sje
brotin. En vörur úr henni er verið
að flytja til lands.
Björgunarskipið „Geir" lagði hjeð-
an á stað norður þangað í gærmorgun.
Miklar vörur höfðu ekki verið í
skipinu, salt og timbur og eitthvað
fleira. Póst hafði „Eljan tekið á
Akureyri hingað, allan, sem þar var
fyrir.
Reykjavík.
Alm. mentaskólinn. Þaðan út-
skrifast 15 stúdentar á morgun, þar
á meðal ein stúlka, Laufey Valdi-
marsdóttir Ásmundssonar heitins rit-
stjóra, og kvað hún hafa næsthæstan
vitnisburð.
Kapphlaup fór hjer fram á sunnu-
daginn var ofan frá Árbæ. Sigurjón
Pjetursson sigraði.
Bjarni Sighvatsson, sonur Sig-
hvats Bjarnasonar| bankastjóra, kom
heim frá Khöfn í gærmorgun, hefur
verið þar síðan skömmu eftir nýár í
„Privatbankanum", til þess að kynn-
ast erlendri bankastarfsemi. Hann er
bankaaðstoðarmaður í íslandsbanka,
og hefur verið samið svo við „Pri-
vatbankann" af bankastjórn íslands
banka, að ungir menn frá ísl. bank.
gætu fengið að vera þar ákveðinn
tíma og taka þátt í öllum banka-
störfum til frekari æfinga. Aður
hefur Viggó Björnsson verið þar og
næst á Einar Indriðason að fara
þangað.
Prestar vígðir. Síðastl. sunnudag
vígði Þórh. biskup Bjarnarson hjer
tvo presta: Bjarna Jónsson, sem verð-
ur 2. prestur Reykvíkinga, og Brynj-
ólf Magnússon til Grindavíkur.
Bogi Th. Melsteft sagnfræðingur
kom hingað frá Khöfn í gær og
dvelur hjer á landi um tíma í sumar.
Herskipið »Heimdallur« er hjer
nú um tíma til strandgæslu í stað
Fálkans, er fór til Khafnar til manna-
skifta. Yfirmaður Heimdalls er Brock-
meyer, sem Fálkanum stýrði í fyrra.
Heimdallur er nú æfingaskip fyrir
sjóforingjaefni, eða skólaskip; nem*
endur eru þar nær 40. Þeim Heim*
dallsmönnum var haldin hjer dans*
veisla í fyrra kvöld.
Fjórir Svíar komu hingað með
„Ceres" í gær, alt landbúnaðarmenn,
og ætla að ferðast hjer eitthvað.
Þeir eru þrír frá Karlstad: Otto Sand-
berg, Georg Wennerstöm og Fridolf
Alin, en einn frá Gautaborg: Hilmer
Eriksson.
Biskupsvígslan á Hólum. Þórh.
Bjarnarson biskup ieggur á stað með
„Vestu" á morgun norður. Sagt að
ýmsir fleiri fari þangað hjeðan tii
þess að vera þar við staddir.
Landlæknir fer á stað í eftirlits-
ferð með „Vestu" á morgun, fer til
„Patreksfjarðar og þaðan landveg
um Vestfirði, en gerir ráð fyrir að
koma aftur sjóveg af Ísafirði 22. júlí.
Málaferla-leiðangur hefur laun-
ritstjóri ísaf. hafið gegn Lögr., með
17 stefnum á föstudaginn var og
3 í viðbót á laugardaginn. Flest
eru málsefnin tínd upp úr blöðun-
um, sem út komu meðan banka-
farganið stóð sem hæst, eftir 22.
nóv. haust. En ekki eitt orð af
því verður aftur tekið, enda er þar
öðru máli að gegna en um ísaf.
greinar, þvi alt, sem í Lögr. stend-
ur, er »á rökum bygt«.
ísaf. munu nú verða gerð sömu
skil bráðlega.
Yeðrið hefur verið hlýtt undan-
farna daga, rúml. viku tima, svo
að nú fer grasvexti vel fram, enda
veitti ekki af því, því alt til þess
var gróður óvenjulega rýr.
Aflabrögð eru góð hjer við íló-
ann nú.
Kappsund fór hjer fram fyrra
sunnudag við Grettisskálann. 20
menn reyndu sig í tveim ílokkum,
annar undir 18 ára, en hinn yfir.
í yngri fl. varð Ásg. Ásgeirsson
fljótastur, en í eldri fl. Stefán Ólafs-
son frá Fúlutjörn. Þeir tveir og
fjórir aðrir fengu verðlaun.
Konungur segir af sjer? Það
er sagt, að Manúel Portúgalskon-
ungur sje í þann veginn að afsala
sjer konungdómi, og á þá að taka
við honum frændi hans, Alfons her-
togi af Oportó. Orsökin kvað vera
illar fjármálaástæður í ríkinu og
svo samsæri, er gerð hafa verið
gegn konungi, en höfuðmaðurinn í
þeim er þektur stjórnmálamaður
Cordoró að nafni. Hann hefur
verið tekinn fastur og hefur játað.
í versl. DAGSBRÚN
er stórt úrval af Ljereftum,
allar tegundir, sem nota þarf.
Flannelettc og Tvisttau, gott, breitt og ódýrt.
Al-klæði í peysuföt frá 2,85—5,48.
Silki í svuntur, Slipsi, stærsta úrval í bænum,
Tau í svuntur og kjóla. O kögruð ái,68—4,40.