Lögrétta - 08.02.1911, Síða 2
22
L0GRJETTA.
Lðgrjetta kemur út á hverjum mið'
vikudegi og auk þess aukablöð við og við,
minst 60 blöð als á ári, Verð: 4 kr. árg.
á íslandi, erlendis 5 kr. Gjalddagi 1. júli.
„Hyer var hann?“
Danska blaðið „Pólitiken" flytur 2.
jan. grein með þessari fyrirsögn, er
það segir, að sjer sje send af kunn-
um, dönskum stjórnmálamanni sunn-
an frá Miðjarðarhafsströnd. Þarsegir:
„Sex tíma ferð í vestur frá Nissa
er Hyéres, er stendur í fjallshlíð, og
eru krókóttar miðaldagötur upp eftir
henni, en uppi á fjallinu eru rústir af
kastalaborg. Neðan við fjallið eru
íbúðarhús í nútíðarstíl. Bærinn er á
stærð við Helsingjaeyri og Hilleröd
til samans og hefur víst aldrei stærri
verið. En á miðöldunum voru ríkin
smá, og Hyéres með umhverfi sínu
var þá sjálfstætt furstadæmi. 1254
var það sameinað greifadæminu
Provence, er þá var sjálfstætt, og er
Provence 1481 sameinaðist konungs-
ríkinu Frakkland, rann Hyéres sam-
an við Frakkland. í byrjun 18. aldar
átti Frakkakonungur í ófriði við her-
togann af Savoyen, og 1707 tóku
herflokkar hertogans Hyéres. í þeim
herflokkum voru mestmegnis Þjóð-
verjar, Savoyenmenn og Genúamenn,
en eftir því, sem Louis Bronard
segir í bók einni, er hann hefur
ritað og kallar: „Eitt horn af
Provence", var foringi þeirra íslend-
ingur, og um hann er sagt — öfugt
við herflokkana, sem hann stýrði —
að hann hafi verið „rjettlátur maður
og mannúðlegur". Þetta, að íslend-
ingur hefði haft herstjórn í þjónustu
hertogans af Savoyen, vakti eftirtekt
mína, og af því honum var hrósað,
fór mjer að þykja vænt um hann.
Jeg hafði aldrei fyr heyrt um hann
getið. En þar sem jeg (og án efa
fleiri af lesendum »Pólitiken«s) hefði
gaman af að fá eitthvað meira um
hann að vita, þá leyfi jeg mjer að
spyrja íslenska sagnfræðinga: Hver
var þessi íslendingur? Veit nokkur
maður nokkuð um hann?
X X X«-
Nýlt kosningalagafrumvarp
d Italíu.
ítalska stjórnin lagði í vetur fyrir
þingið nýtt kosningalagafrumvarp,
sem hefur það nýmæli inni að halda,
að eftir því er kjósendunum gert að
skyldu, að neyta kosningarrjettar síns.
Þeir kjósendur, sem ekki greiða at-
kvæði án þess að hafa gild forföll
fyrir sig að bera, svo sem sjúkdóm,
fjarveru o. s. frv., eiga að verða fyrir
sektum, og þar að auki á að vera
hægt að svifta þá um tíma rjetti til
þess að gegna opinberum störfum.
Jafnaðarmönnum er mjög illa við
þetta ákvæði, því þeir neyta kosn-
ingarrjettar síns allra stjórnmalaflokka
best. En það eru hægriflokkarnir,
sem verst sækja kosningar, og Luzz-
atti yfirráðherra vill með þessu ákvæói
reka þá til kosninganna. Það er tal-
ið víst, að ef lögin nái fram að
ganga, þá styrki þau mjög hægri-
flokkana.
Kosningarjetturinn á að vera bund-
inn við það, fyrir utan aldurstak-
mark og óspilt mannorð, að kjós-
andi kunni að lesa og skrifa. Til
þess að prófa þetta, skal nefnd skip-
uð í hverju kjördæmi, er gefi hverj-
um kjósanda vottorð áður en hann
kýs.
Frá Haiiti. Þar er ókyrt enn, segja
útlend blöð, og ef til vill borgara-
styrjöld í aðsigi. Núverandi forseti
heitir Símon, og hefur stjórnin verið
að taka lán í Bandaríkjunum til
vopnakaupa. Nýr þjóðbanki tekur
þar til starfa í vetur, stofnaður með
fje frá Þýskalandi, Bandaríkjunum
og Frakklandi.
Forsetaval 1 Chili er nýlega farið
fram og kosinn Ramson Barros Luco.
Ákærur gegn ráöherrum
í Búlgariu.
Þar var skipuð 12 manna nefnd
í vetur í þinginu til þess að rann-
saka ákærur, er bornar voru fram
gegn ýmsum af þeim mönnum, sem
gegnt hafa þar ráðherraembættum.
Þegar nefndin kemur fram með skýrslu
sína, verður svo ákveðið, hvort kæra
eigi þá fyrir ríkisdómi.
Einn, Gudev að nafni, sem tvíveg-
is um tíma hefur verið yfirráðhera, er
sakaður um, að hafa dregið sjer mörg
hundruð þúsund franka af almanna
fje. Annar, Genadiev að nafni, sem
var verslunarmálaráðherra, er sakað-
ur um að hafa misbrúkað stöðu sína
til þess að gefa burt dýrmæt einka-
leyfi. Hinn þriðji, Pajakov, var sak-
aður um, að hata falsað gerðabók
stjórnarráðsins og dregið sjer óleyfi-
lega fje af ríkisins eignum o. s. frv.
Akærugreinarnar eru alls 67. Paja-
kóv aó af slagi í þingsalsdyrunum
meðan umræðurnar um ákærugrein-
arnar fóru fram.
Stophneykslanleg- inein-
loka er það hjá „Fjallkonunni" um
daginn og „ísafold" í fyrra, að vera
að skamma sína pólitisku mótstöðu-
menn fyrir trúrækni þeirra. Eftir
Lækjartorgsfundinn í fyrra reyndi
ísaf. hvað eftir annað að gera Knud
Zimsen verkfræðing hlægilegan fyrir
það, að hann skyldi starfa að barna-
guðsþjónustum hjer í bænum. — Því-
líkt ódæði, að innræta börnum bæj-
arins guðsótta og góða siðu! — Það
sómdi vel blaðinu, sem margoft hafði
talið sig hlynt kirkju og kristindómi,
að sparka í eina mentamann bæjar-
ins, úr leikmanna hóp, sem starfar opin-
berlega að kristindómsmálum, af því
að hann hafði aðra skoðun en blaðið
á stjórnmálum.
Sömu meinlokuna flytur Fjk. fyrir
nokkrum dögum í illa saminni háð-
grein um safnaðarfund dómkirkju-
safnaðarins 28. f. m. Þótt æsinga-
fullur stjórnmálamaður talaði svo af
sjer á þeim fundi, bæði gagnvart
sóknarpresti og sóknarnefndaroddvita,
að hann yrði seinna að biðja fyrir-
gefningar, var hreinn óþarfi að hlaupa
með það í blöðin; og sjá mætti Fjk.
það, að það er stórbagaleg meinloka
fyrir hennar eigið lið, að vera að
blanda saman trúmálum og stjórn-
málum á þennan hátt. Veithúnekki
að sumir æstir trúleysingjar eru henn-
ar menn? Hafa andstæðingablöðin
skammað þá fyrir það ? Eða veit
hún ekki t. d. að sr. Ólafur fríkirkju-
prestur er ákafur flokksmaður stjórn-
arinnar, og hafa þó stjórnmálaand-
stæðingar hans í fríkirkjunni aldrei
ráðist á hann fyrir það á safnaðar-
fundum, nje andstæðingablöðin hnýtt
að honum fyrir trúrækni hans. Eða
skyldi Fjk. halda, að enginn megi
vera trúrækinn nema prestar? — Það
eru væntanlega fáir svo »steinblindir
á báðum«, að þeir ætli að trúræknin
sje uppgerð ein, ef menn fylla ekki
einhvern sjerstakan stjórnmálaflokk,
— fyr mætti nú vera meinloka.
Yfir höfuð held jeg að blöðin ættu
að vera svo hyggin, að þau sæju, að
það borgar sig best, þegar til lengdar
lætur, að vega heiðarlega að mót-
stöðumönnum sínum, hrekja andmæli
þeirra, en vera ekki að bíta í hæl-
ana á þeim.
Áhorfandi.
Skammbyssuskot á Hagemanns
Kollegium í Khöín. Það gerðist í
síðastl. mánuði á Hagemanns Kolle-
gium — sem er stúdentaheimili í
Khöfn, er styrkir bæði karlstúdenta
og kvenstúdenta, — að einn af stú-
dentunum, James Thomsen að nafni,
bað eitt kvöld kvenstúdentinn Ellen
Nielsen að koma upp í herbergi sitt,
kvaðst þurfa að tala við hana um
alvarlegt mál. Þegar þangað kom,
kl. 11 um kvöldið, bar hann upp
bónorð, og hafði víst einnig gert það
fyr, en fjekk nei. Hann dró þá, eftir
nokkra stund, skammbyssu upp úr
vasa sínum og skaut nokkrum skot-
um á frk. Nielsen. Ein kúlan fór í
gegnum kinnina á henni, önnur særði
hana bakvið eyrað, hin þriðja fór
gegnum kjól hennar, en særði hana
ekki. Stúlkan kallaði auðvitað á
hjálp og hljóp til dyra. En þegar
námsfjelagar þeirra komu til, lá J.
Thomsen í andarslitrunum á gólfinu,
hafði síðast snúið skammbyssunni að
sjálfum sjer og skotið sig. Stúlkan
var flutt á sjúkrahús og verður jafn-
góð aftur. J. Thomsen stúdent var
frá Randers, 28 ára gamall, og las
mannvirkjafræði. Frk. Nielsen var
frá Ódense og stundaði söngfræði. Á
stúdentaheimilinu voru alls 44 karlstú-
dentar og 5 kvenstúdentar. Þar kvað
jafnan hafa verið besta regla.
Stjórnmála-hugvekja,
eftir H ö g n a.
Herra ritstjóri I
Jeg heiti á frjálslyndi yðar, að birta
fyrir mig þessa stjórnmála-hugvekju, þótt
hún sje sjálfsagt andstæð skoðunum yðar.
Jeg vil nefnilega hafa konungssam-
band og ekkert annað, svo sem vjer eig-
um rjett á samkvæmt gamla sáttmála og
fleiri fornum brjeíum.
Og 1 því bandi skal ekki vera neitt
„skítti", heldur íslensk vorull ellegar
hrosshár, eftir því, hvort álítst sterkara,
og má altaf kveða nánar á um það.
Syðri enda bandsins vil jeg vetja um
ráðhússturninn í Kaupmannahöfn, en
festa nyrðri endann í Eiríksjökul.
Önnur tillaga hefur mjer borist til
eyrna, svofeld: Syðri enda bandsins
skal festa í efsta vestishnappagat forsæt-
isráðherra Dana, en nyrðri endanum skal
vefja um háls Björns Kristjánssonar.sem
væntanlega verður orðinn ráðherra ís-
lands, þegar sambandið kemst á.
Þessari tillögu er jeg algerlega mót-
fallinn. Jeg sje nefnilega fram á það, að
hversu mjúkt og ljett, sem bandið verð-
ur, hlýtur hálsinn á Birni að særast und-
an því, og yrði þá sífeld óánægja frá
vorri hálfu, íslendinga, með þess konar
fyrirkomulag.
En á ráðhússturns- og Eiríksjökuls-
sambandinu get jeg ekki sjeð neina veru-
lega galla. Að visu er það fyrirsjáan-
legt, að ekki verður hægt að strengja
svo bandið, sem liggur yfir þrjú hundr-
uð mílna svæði, að það liggi ekki í sjó;
ekki sfst þegar þess er gætt, að sjórinn
kvað vera eigi alllítið bunguvaxinn, þótt
undarlegt megi virðast.
Svona samband verður því þeirri einu
hættu undirorpið, að hákarlar bíti það
sundur, og má það ekki viðgangast. En
jeg þykist nú sjá ráð til að afstýra þeirri
hættu: Vjer skulum veida alla hdkarla
— hvern og einn einasta.
Teg hef nýlega átt tal við viðskifta-
ráðunaut vorn um þetta mál, og telst
honum svo til, að vjer íslendingar mund-
um hafa mjög mikinn hagnað af slfkri
veiði, með þvl að spurn eftir hákarla-
lýsi sje geisimikil á heimsmarkaðinum
um þessar mundir, segir hann.— Og er
þá sá agnúi úr sögunni.
Hjer er snúið inn á nýja braut í stjórn-
málum vorum og má búast við alls kon-
ar mótbárum og grýlum á henni. En
það hlægir mig, að jeg hygg, að örðugt
verði að hagga roksemdafærslu minni
hjer að framan. Jeg mun og verða reiðu-
búinn að halda uppi svörum fyrir þessa
stefnu í ræðu og riti, meðan andstæð-
ingar mínir halda sig við málefnið; hins
vegar mun jeg leiða hjá mjer allar ill-
deilur, áflog og ryskingar og — umfram
alt ólukku málaferlin.
Aðal-málgagn þessarar stefnu verður
hið nýupprisna, góðkunna sjálfstæðis-
blað »Fjallkonan«, og geta menn snúið
sjer þangað með hógværlega ritaðar
greinar um málið.
Mjer er víst óhætt að fullyrða, að vjer
sjálfstæðismenn munum fylgjast fast og
standa sem einn maður í pessu sambands-
mdli. Hefur þetta verið rætt á flokks-
fundum vorum — pukursfundum þó — og
fengið einróma ágætis undirtektir.
Fram, fram, sjálfstæðismenn!
Áfram til framtíðarlandsins ! Þess hins
sólglæsta lands, — þar sem vjer getum
haft hermál og utanríkismál fyrir leik-
knetti og keypt oss gráfíkjur fyrir vara-
sjóð Landsbankans, ef hann , verður þá
ekki týndur aftur — að segja.
Rússneskir ræningjar í Austur-
l'íki. Nýlega voru handteknir 40
Rússar í Krakau, er grunaðir voru
um að hafa átt þátt í ránum, er þar
höfðu verið framin, og þóttist lög-
regluliðið hafa komist að því, að hjer
væri um að ræða leynilegt ræningja-
fjelag.
Reykjavík.
»Lord Nelson«, nýi botnvörpung-
urinn þeirra Jes Zimsens konsúls og
fjelaga hans, „Mars"-fjelagsmanna,
kom hingað á mánudagsmorgun frá
Englandi. Hjalti Jónsson er þar
skipstjóri. Skipið er fallegt, stórt og
sterkt, 154,71 tonn nettó. Það fór
út aftur til veiða í gær.
Jón Magnússon bæjarlogeti fór
til Vestmannaeyja með „Ceres" um
daginn, hjelt þar þingmálafund og
kom aftur heim með „Lord Nelson"
á mánudagsmorgun.
Yerslunarstjóraskifti eru orðin
hjá Sameignarkaupfjelagi Reykjavík-
ur, Sveinn Sigfússon hættur, enda
hefur hann verið veikur síðan um
áramót, legið rúmfastur, en við hef-
ur tekið í hans stað Karl Nikulás-
son áður verslunarstjóri H. Th. A.
Thomsens verslunar.
Skjaldarglíman síðastl. miðviku-
dagskvöld fór svo, að Sigurjón Pjet-
ursson hjelt Ármannsskildinum. Hann
feldi alla, en enginn hann, hafði 10
vinninga, en 11 tóku þátt í glím-
unni. Næstur var Hallgr. Benedikts-
son með 9 vinninga, þá Guðm. Sig-
urjónsson með 7, Bjarni Bjarnason
með 6 o. s. frv. Guðmundur Ste-
fánsson glímdi ekki í þetta sinn,
hefur ekki iðkað glímur í vetur og
ekki verið hjer heima um hríð; kom
vestan af fjörðum kvöldið áður en
glíman fór fram og var nú aðeins
áhorfandi. Húsfyllir var við glím-
una, eins og venja er til.
Bæjarstjórnin. Fundur 19. jan.
Borgarstjóri tilkynti, að hann hefði
ráðið verkfr. Sig. Thoroddsen fyrir
150 kr. á mán. 3 fyrstu mán. ársins
til þess að gegna byggingarfulltrúa-
störfum og nauðsynlegum verkfr.-
störfum, er fyrir koma.
Kosinn til að stýra fundum í for-
föllum borgarstjóra Kl. Jónsson land-
ritari.
5 börnum veitt ókeypis kensla.
Fundur 2. febr. Hafnarfrv. samþ.
með lítils háttar breytingum.
Samþ. að kæra forstöðumannHjálp-
ræðishersins til sekta fyrir brot á
byggingarsamþ og svo timbursmið
þann, sem hefur unnið að breyting
skúrs fyrir hann.
Afsalað forkaupsrjetti að Bráðræðis-
bletti, er selja á fyrir 930 kr.
Jóni Hannessyni í Austurkoti leigð-
ur Móabæjarkálgarður í ár fyrir 8 kr.
afgjald.
Veðrið hefur síðustu vikuna verið
mjög hlýtt og stilt, eins um alt land.
Veðurskeytin sögðu einn morguninn
9V2 st. hita á Akureyri og 9 st. hita
á Seyðisfirði.
»Fóstbræður«. Svo nefnir sig nú
fjögra manna söngflokkurinn: þeir
bræður Pjetur og Jón Halldórssynir,
Einar Indriðason og Viggó Björns-
son. Þetta eru alt valdir söngmenn
og vel æfðir saman, eins og bæjar-
menn hafa við ýms tækifæri átt kost
á að heyra. Á öðrum stað í blað-
inu auglýsa þeir söngskemtun í kvöld.
ltausnartiltektir ráðherra hinar
síðustu eru þær, að hann hefur
rekið Árna Árnason kirkjuþjón
frá starfi sínu við dómkirkjuna.
Hverjar ástæðurnar hafa verið, veit
Lögr. ekki, en hetur heyrt, að
mörguni þykir þetta undarlegt. En
matarhola er þarna, þó lítil sje, og
þetta sýnir, að ráðherra á fylgis-
menn enn, eða hyggur sig eiga.
Fróðlegt erindi verður það án
efa, sem Jón alþm. Ólafsson flytur í
„Fram" næstk. laugardagskvöld, sbr.
auglýsingu á öðrum stað í blaðinu.
Menn ættu að mæta stundvíslega.
Koninir iilþingismenn. Með
Flóabátnum í gær komu frá Borgar-
nesi Stefán Stetánsson Eyfirðinga-
þingmaður og báðir þingmenn Skag-
firðinga. Þorleifur í Hólum, þingm.
A.-Skaftfellinga hafði komið með
austanpósti í fyrra dag.
íbúatal Kristjaníu reyndist við
manntal í vetur: 243,801; hafði fjölg-
að um rúm 16 þús. frá aldamótum,
en sfðasta áratug sfðastl. aldar um
74V2 þús.
Guðmundur Hjaltason hefur í
vetur haldið 25 fyrirlestra hjá ýms-
um Ungmennafjelögum í Árness- og
Rangárvallasýslum og í Kjósarsýslu.
Hann lætur vel af þessum fjelögum.
Stærst segir hann að tvö sjeu: ann-
að á Eyrarbakka, hitt undir Eyja-
fjöllum. Einnig hefur hann farið
fyrirlestraferð um Borgarfjarðarhjer-
aðið.
Mokafli í Yestmannaeyjuin er
sagður af þeim, er komu þaðan með
»Lord Nelson« í fyrradag.
Bylta af hesti. Úr Húnavatns-
sýslu er sögð sú fregn, að Sigurður
Sigurðsson bóndi á Húnstöðum hafi
nýlega dottið af hesti á leið frá
Blönduósi og meiðst svo, að hann
beið bana af. Hafði slysið viljað til
fyrri hluta nætur, en hann fundist
daginn eftir, og þá með lífsmarki,
verið fluttur til næsta bæjar, en lát-
ist litlu síðar.
Sigurður var í merkustu bænda
röð og eigi meira en miðaldra maður.
Dáinn er 4. f. m. Konráð Magn-
ússon bóndi á Syðravatni í Skaga-
firði.
Næsta stórstúkuþing verður hald-
ið á Seyðisfirði 27. maí í vor, sam-
kvæmt ákvæði framkvæmdarnefndar
stórstúkunnar.
Snæbjörn í Hergilsey. Lögr. gat
gat þess í síðasta tbl., að Snæbjörn
hreppstjóri Kristjánsson í Hergilsey
hefði fengið heiðursmerki dannebrogs-
manna. Nú er henni sagt af manni,
sem nýkominn er að vestan, að hann
hafi neitað að taka við því, ef þeir,
hann og Guðmundur sýslumaður,
fengju ekki aðra rjetting mála sinna,
eða bætur fyrir ofbeldisverkið, sem
enski botnvörpungskapteinninn framdi
á þeim síðastl. haust.
Vjelarbátur fórst frá ísafirði rjett
fyrir áramótin með fimm mönnum.
Formaður var Hrólfur Jakobsson, er
áður var hjer i Reykjavík, dugnaðar
maður og góður sjómaður. En hinir
voru: Sveinn Halldórsson húsm. af
ísafirði, dó frá konu og 6 börnum;
Jón Arnason, unglingsmaður, Jón
Jónsson og Guðm. Guðmundson.
Þessir þrír síðastnefndu, og svo Hrólf-
ur, voru ókvæntir menn; allir afísa-
firði. — Eigandi bátsins var Árni
Gíslason bæjarfulltrúi, en báturinn
var eigi vátrygður.
Bátskemdir urðu töluverðar á ísa-
firði í ofsaroki 22. f. m. og sukku
þá tveir vjelarbátar þar inni á Poll-
inum.
Þingmannaskipið „Vesta" er
mjög á eftir áætlun, fór frá Akur-
eyri fyrst í gær og kvað vart geta
komið hingað fyr en 13. þ. m.
»La Revue Scandinave«. Svo
heitir nýja Norðurlanda-tímaritið, sem
farið er að koma út á frönsku. Lögr.
hefur áður getið um undirbúninginn
að stofnun þess. P'yrsta heftið kom
út rjett fyrir síðastl. áramót. Fremsta
greinin er eftir próf. G. Brandes, og
mest er heftið bókmentalegs efnis.
Þó er þar grein eftir franska prófess-
orinn Paul Verrier um þúsund ára
hátið Normandís, sem nú er bráðum
fyrir höndum, eins og áður hefur
verið skýrt frá hjer í blaðinu.
Ludvig Holberg. Carlsbergs-
sjóðurinn ætlar að kosta vandaða
útgáfu af öllum ritverkum hans,
er byrja á að koma út nú bráð-
um, en síðan á að koma eitt bindi
á ári í næstu 25 ár. Hverl bindi
verður um 800 bls. Leikritin
koma í 3. og 4. bindinu. Um út-
gáfuna sjer Carl S. Petersen bóka-
vörður.
Snjór í Ítalíu. í síðasta tbl. var
getið um, að veturinn hefði verið
harður í Suðurevrópu. 7. jan. tept-
ust járnbrautarferðir á Ítalíu af snjó-
um. Lestin frá Róm stansaði skamt
frá Piaczensa og varð að bíða þar
20 klst. áður hún fengi haldið ferð-
inni áfram.