Lögrétta

Tölublað

Lögrétta - 08.02.1911, Blaðsíða 3

Lögrétta - 08.02.1911, Blaðsíða 3
L 0 G R J E T TA. 23 Þingmálaf. i N.-Isafj.sýslu var 3. þ. m., fulltrúafundur, og var þingmaður, Sk. Thoroddsen þar. Lögr. hefur fengið þessar frjettir af fundinum: í samb.málinu lilil mótslaða gegn þingm., 22 : 1. — Fundur- inn einbeittur með sljórnarskrár- breytingu og lýsti yfir óánægju við stjórnina fyrir það, að bún flytti ekki frumv. um það mál. Botn- vörpungasektunum öllum vildi fundurinn halda til landsjóðs. Samþykt var áskorun til alþing- is um ransókn á gerðum stjórnar- innar í bankamálinu. í sambandi við það mál hafði verið borin fram vantraustsyfirlýsing til ráðherra, en þingmaðurinn hafði mælt hann undan henni með þeim orðum, að ekki væri meiri ástæða til hennar út af þessu máli en mörgum öðr- um, enda mundi alþingi ekki þurfa hvatningar við í þessa átt. Um tvö af stjórnarfrumvörpun- um hafði þingm. sagt, að þau yrði að drepa undir eins, frumvörpin um barnafræðslu og flutning al- þingis. ísland erlendis. Próf í mannvirkjafræði hefur ný- tekið í Khöfn Geir G. Zoéga, sonur G. Zoéga yfirkennara við Mentaskól- ann hjer í Rvík, með hárri 2. eink. Hann kemur heim hingað innan skams og verður aðstoðarmaður hjá Jóni Þorlákssyni landsverklræðingi. Rolf Nordenstreng, sænski (eða finski) rithöfundurinn, sem margt hef- ur áður um íslensk mál ritaðog Lögr. hefur þýtt greinar eftir, — hefur nú enn ritað ítarlega grein um íslensk stjórnmál í „Finsk Tidskrift" (sept- ember 1910). Þá grein hefðu marg- ir Islendingar gott af að kynna sjer, og mun Lögr. nánar minnast á hana síðar. Hún segir hiklaust til synd- anna, og höf. er auðsjáanlega ná- kunnugur stjórnmálaþjarkinu hjer bæði af lestri blaða og Þingtíðinda. Um viðskiftaráðanautinn okkar segir hann, að hverjum, sem heyrt hafi fyrirlestra hans í Svíþjóð síðastliðið vor, hljóti að vera Ijóst, að þar sje ekki hættulegur „agitator". Svo aumlegir fyrirlestrar bæði að inni- haldi og framsetningu geti á engan hátt vakið samhug með íslandi. Óg þetta er án efa rjettur dómur; allir útdrættir, sem sjest hafa af þess- um fyrirlestrum viðskiftaráðunauts- ins, eru hörmulega fátæklegir og vesaldarlegir. Þingmálafundir í Skaga- f*pAi. í .síðasta blaði var getið um þingmálafund á Sauðárkróki. Annar fundur var haldinn að Reykjalaug litlu síðar, fjölmennur fundur, og hafði gengið enn meir móti stjórninni en Sauðárkróksfundurinn, Heimastjórnar- menn verið í niiklum meiri hluta í atkvæðagreiðslu um sambandsmálið. Annars hefur Lögr. ekki fcngið nán- ar fregnir af fundinum. Þingmálafuudur í Horg- arnoHÍ var haidinn síðastl. laugar- dag. Uppsýslumenn, sem með ör- fáum undantekningum eru Heima- stjórnarmenn, komust ekki á fundinn vegna vatnavaxta. Norðurá með öllu ófær. Þingmaðurinn komst ekki á fundinn og eigi heldur sýslumaðurinn í Arnarholti. En Jóhann í Sveina- tungu var staddur úti á Hvanneyri og komst því á fundinn. Svo fór samt, að Heimastjórnarmenn höíðu einsatkv. meiri hluta(53:52) í sam. bandsmálinu. — Nánari fregnir af fundinum síðar. Þiugmálaíiindur í Vestni.- eyjuin er nýhaldinn af þingmanni hjördæmisins. í stjórnarskrármálinu og bankamál- inu voru þar samþyktar samskonar tillögur, frá þingmanninum, og hjer á Reykjavíkurfundinum. Fundurinn vildi fá síma til eyjanna, en mótmælti loftskeytum. Unga Island u »> Jeg undirritaður hef keypt barnablað- ið „Unga ísland" með öllum gógnum og gæðum þ. 1. þ. m. Bið jeg því útsölu- menn og kaupendur vinsaml. að snúa sjer til mín með a 11, er að blaðinu lýt- ur. Einnig greiðslur gamalla skulda og nýrra. Janúarblaðið, sem var óprentað, er jeg tók við, verður sent með póst- um í febrúar, næsta blað í mars og tvö- falt blað í apríl. Slðan verður alt í röð og reglu, sem best má verða, bæði af- greiðsla og annað. Eru kaupendur og útsölumenn vinsamlega beðnir að verða eigi óþolinmóðir, þar eð svona stendur á. Skal þeim bættur allur halli og bið margfaldlega síðar. „Unga fsland" vonar, að það eigi sömu vinsældum að fagna og áður hjá ísl. æskulýð. Verður nánar skýrt frá „fram- tíðarstefnu" þess í 1. tbl. þ. á. Kaupendur í Reykjavík og nágrenni geta snúið sjer til mín í talsíma (nr. 20) eða þá á prentsmiðju D. Östlunds, því þar verður afgreiðsla blaðsins fyrst um sinn. Hafnarfirði 5. febr. 1910. Helgi Valtýsson. Allt af sjálfri sjer lík. Með því aðjeg hef sannfrjett, að frú Bríet Bjarnhjeðinsdóttir hafi nú undanfarna daga gengið um bæinn millimálsmelandi manna.jafnt karl- manna sem kvenmanna, til þess að sýna þeim óþverra-brjef, sem hún eignar mjer, þá lýsi jeg yfir því, að jeg hef hvorki skrifað henni nje öðrum nokkurt brjef með líku inni- haldi og það, sem mjer er sagt að í því sje. Jeg læt mig engu skifta, hvort þessi uppspuni er að ö 11 u leyti frá frú Bríet sjálfri, eða einhver gár unginn hefur leikið á liana til þess að láta hana, sem altaf er jafn rólfær til svonalagaðrar iðju, hlaupa með það henni sjálfri til svívirðing ar, en þ a ð finst mjer máli skifti, hvort kvenþjóðin á ekki heimting á þvi, að sú kona, sem ekki blygðast sín fyrir að bera á sjer og sýna annað eins brjef, sje skylduð til að gangaábuxum. Keykjavík, 3. febrúar 1911. Guðrún Björnsdóttir. Stiídenta-óeirðir í Ódessu. 21. des. í vetur varð uppþot í Ódessu í Rússlandi, sem síðan hefur mikið verið talað um. Tilefnið var almenn- ur stúdentadansleikur, sem haldinn var þar í háskólanum 18. des. For- gönguna höfðu bæði kennarar við háskólann og stúdentar úr stjórnar- flokknum. Stúdentar af stjórnarand- stæðingaflokki voru eitthvað óánægð- ir með undirbúning dansleiksins og höfðu samtök um, að spilla því, að nokkuð yrði af honum. Þeir fóru þannig að, að þeir dreifðu um dans- salsgólfið efni, sem gaf frá sjer svo illa lykt, að ekki var vært í salnum. Það varð undir eins uppvíst, hverjir valdir voru að þessu, og voru þeir fyrst dustaðir til þar inni, en síðan var þeim fleygt út. Svo var loftað í salnum og dansleiknum haldið áfram. Er sagt, að hann hafi síðan farið vel fram. En 21. des. hjeldu 250 kvenstú- dentar fund og mótmæltu þar harð- lega þeirri meðferð, sem mótstöðu- flokkur dansleiksins hafði orðið fyrir, og lýstu yfir samhug með þeim. Slíkir fundir sem þessi eru óleyfilegir í Rússlandi, nema með samþykki há- skólastjórnar og undir umsjón lög- reglustjórnar. En hvorugu þessu skeyttu kvenstúdentarnir og neituðu að slíta fundinum, þótt þeim væri skipað það bæði af háskólastjórn og lögreglu. Svo átti enn að verða al- mennur stúdentafundur um dansmál- ið, en úr honum varð þegar í byrj un blóðugur bardagi og urðu nokkr- ir sárir af skammbyssuskotum. Lög reglulið var þar við hendina, að því er sagt er eftir samráði við dans- leiks-stúdentana og til þess að veita þeim lið. Endirinn varð sá, að yfir 100 stúdentar voru handteknir og settir í fangelsi, og þar sátu þeir að minsta kosti fram yfir áramótin. Mál ið var tekið til umræðu í dúmunni, og þar vakti það harðar þrætur. En endalyktirnar eru enn eigi sagðar í síðustu útlendum blöðum, sem hing- að hafa komið. Wliklar viðsjár hafa verið nú undanfarið innan þingmannaflokks stjórnarmannahjer. Þeir hafa beðiðráð- herra að segja af sjer áður þing komi saman, en hann neitar. Svo hafa þeir verið að hóta honum vantrausts- yfirlýsingu, en hann skeytir því engu. Hann þjáist ekki af „valdalystar- leysi" núna, gamli maðurinn. En þingmennina bagar það eitt í sókninni, að þeir vilja allir, hver um sig, verða eftirmenn hans. una. Keflvíkingar og Keldhverfingar. Hvergi á landinu hefur shremmi- lega lagabrotið«, sem þingvinir ráð- herra hjer í Rvík, B. Kr., J. Þ., B. Sv. og J. P. ætluðu honum að gera, fengið áheyrn kjósenda, svo vitanlegt sje, nema í Keflavík og í Kelduhverfi. Þess er getið hjer Keflvíkingum til huggunar, að Keldhverfingar reynd- ust þeim litlu snjallari í Iögspekinni, samþyktu með 23 : 3 sömu vitleys- Eitursýra fyrir messuvín. í smá bænum Volossovó í Rússlandi, skamt frá St. Pjetursborg, kom það fyrir vetur, að 22 menn sýktust skyndi lega eftir altarisgöngu í hinni lút hersku kyrkju þar í bænum. 4 dóu bráðlega, eftir miklar kvalir, og um nokkra var talið óvíst, hvort þeir mundu lifa eða deyja. Kirkjuþjónn- inn hafði í misgripum helt eitursýru í kaleikinn í staðinn fyrir messuvín. „Ef fil Iiosning:a kæmK ísaf. huggaði sig við það, eftir ósig- urinn á þingmálafundunum, að »ef til kosninga kæmi«, þá væri áreiðanlegt, að stjórnarliðið yrði hjer í meiri hluta. Ályktunin er ekki laus við að vera dalítið barnaleg. En síst hafa Heima- stjórnarmenn á móti því, að »til kosninga komi« sem allra fyrst, og ísaf. styður þá væntanlega að þvf, að svo verði. Jarðskjálftar. Á gamlársdag í vetur fanst allmikill jarðskjálfti í San Francisko og vakti mikla hræðslu, en gerði lítinn eða engan skaða. Litlu fyr voru jarðskjálftar f Grikk- landi og gerðu töluvert tjón, menn fórust þar ekki. Grænland. Þar eru fbúar nú þús., og er sagt, að fjölgunin mikil nú siðari árin. 12 sje en Frá Spáni. Canalejas yfirráð- herra sótti nú um áramótin um lausn fyrir ráðaneyti sitt, en konungur bað hann að mynda nýtt ráðaneyti og gerði hann það. í Kína Svartidauði. morgun, að Símað er frá Khöfn svartidauði geysi í Alþiiigiskjörskráin, Einsog auglýst er á öðrum stað hjer í blaðinu, liggur alþingiskjörskrá Reykjavikur 1911— 1912 til sýnis á bæjarþingstof- unni 1.—16. þ. m. Hver kosningarbærHeiniastjórnar- inaður ætti að athuga það nú þegar sjálfur, hvort nafn hans er á kjör- skránni, og segja skrifstofu ílokksins til þess tafarlaust, ef það stendur þar ekki. — Skrifstofan er í Aðálstræti 8, og er opin hvern virkan dag kl. 8—10 síðd. Geta má þess, að alþingiskjörskráin er, að sögn, í þetta sinn óvenjulega hroðvirknisleg. Þar kvað vanta menn, sem lengi hafa staðið á kjörskrá og eiga að vera þar enn. Japansiuenn áFilippseyjuni. Þær sögur ganga, að Japönum sje mjög í hug að ná Filippseyjum frá Banda- mönnum, og er sagt, að japanskir menn fari þar um til þess að æsa innfædda Iýðinn upp gegn yfirráðum Ameríkumanna. ^tjórnapfruinvöriiin. Sum- ii af þingmönnum hafa nú getað náð í þau, nokkur að minsta kosti — á dönsku, Á islensku eru þau ekki til enn. Sjálfstæðisráðherr- ann hefur í þessu breytt frá fyrri venju og gert danska textann að frumtexta frumvarpanna. Daniel Lehniann, einn af þektustu bókaútgefendum Khafnar og einn af stjórnendum útgáfufjelagsins „Leh- mann & Stage", er nýlega dáinn, 64 ára gamall. Frá Persíu. Ráðaneytið þar sagði af sjer um síðastl. áramót vegna hót- unar ensku stjórnarinnar um, að taka þar f taumana, ef stjórninni tækist ekki innan 3 mánaða að koma á friði og ró í landinu. Panamaskurðurinn. Bandaríkja- þingið veitti nýlega 12V2 milj. doll- ara til þess að víggirða Panama- skurðinn. Taft forseti kallaði það eigi aðeins rjett Bandaríkjanna, að víggirða skurðinn, heldur líka skyldu þeirra. Wagner. Nýlega er það komið fram, að til er æfisaga Wagners tón- skálds rituð af sjálfum honum á ár- unum 1868 til 1873. Hún kvað eiga að koma út næsta vor í 4 bindum. fáit enn þá hjá .Toh Zimsen. Skiftafundur verður haldina í þrotabúi Guau- laugs Þorsteinssonar kaflisala íuánn- daginn 13. þ. m. kl. 12 á hádegi í þinghúsinu hjer. Verður þar skýrt frá hag búsins og lögí fram skrá yfir skuldir þess. Bæjarfógetinn i Reykjavik, 8. febrúar 1911. Jón Magnússen. Fyrir þingmenn. 2 eða 3 samstæð herbergi til leigu með eða án húsgagna. Laufásveg“ 14. Þar eð jeg nú í ár hef samið við verksmiðjuna um kaup á 1500 SJÓFÖTim, get jeg nú selt þau fyrir sarna lága verðið og fyr, þrátt tyrir verðhækkun á línolíu og ljerefti. Reynslan hefur sýnt, að betri olíuföt fást ekki en hjá mjer. liomíö. sjáið itf( dæmið! Nærföt, Peysur, Verkmannaföt, Kojuteppi og Lök er alþekt, að best og ódýrast eru í Aðalstræti 9. Brauns versl. „Hamborg,“. Nýárskveðja úr iofti. Það vakti mikla gleði í Berín á gamlárskvöld í vetur, að þá sigldi yfir borgina loft- skip og var báturinn alt í kring Ijós- um skreyttur, en úr þeim mátti lesa: „Glcðilegt nýár", kveðju til borgar- búa. Forsetakosning í Sviss fór fram ( vetur og hlaut kosningu fyrv. vara- forseti M. E. Ruchet. Sjómenn! Iluiið hugfast að mesta og besta tii*valiö af Sjófatnaði ©r í X IYl^liPOOI Sem undanfarandi ái* er veröið á sjóíatnaðin- vim mjög lágt. IVIavgai* nýar tegvmclii*. OTTO MBNSTEDs dansíta smjörliUi erbe^h Ðiðjiö um leyundírnar ,Sóley” „ Ingótfur" „Hchla " eða Jsafold ömjðrlikið fœ$Y einungis fra : Ofto Mönsted h/f. Kaupmannahöfn o3/fro'5um i Danmörku. • %

x

Lögrétta

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögrétta
https://timarit.is/publication/196

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.