Lögrétta

Issue

Lögrétta - 01.05.1912, Page 2

Lögrétta - 01.05.1912, Page 2
92 LOGRJETTA minsta kosti samtals um 90 milj. pd. sterl. Enskt blað frá 21. f. m. telur tjónið, sem bæði White Star-línan, ýms ábyrgðarfjelög og einstakir menn hafi beðið af slysinu, um 3 milj. sterlingspunda eða yfir 54 milj. kr. ísjakinn, sem fyrir „Titanic" varð, var mjög stór; hafði toppurinn verið yfir 100 fet yfir sjávarmál. Merkilegt þykir það, hve lítið farþegar urðu árekstursins varir. Jakinn leið aftur með skipshliðinni og skildi við það án þess að menn grunaði í fyrstu að nokkur veruleg hætta væri á ferðum. Þar sem skipið hafði áður fengið aðvörun um, að hafið væri þarna ekki hreint, er það undarlegt, að farið skyldi vera með svo miklum hraða. En af því að þetta var fyrsta ferð, þá mun kepnin hafa verið því meiri að sýna flýti skipsins milli álfanna og vinna því orðstír. Ismay línuforstjóra er af sumum kent um, að svo hart var farið, en hann neitar, að hann hafi nokkur afskifti af því haft. Hann er nú kyrsettur í New-York, þar til yfir- heyrslur um slysið hafa farið fram. Smith skipstjóri fær besta vitnisburð hja öllum, sem af komust. Ein sagan, sem sögð er af honum, er þessi: Honum skolaði yfir borð, þegar skipið sökk, og náði hann haldi á ein- hverju flaki, sem á floti var. Þá sá hann barn í sjónum skamt frá, greip það, synti með það til eins bátsins og ljet það þar upp. Sá, sem bátnum stýrði, þekti skipstjóra og ætlaði að taka hann upp í bátinn. „Nei, nei", svaraði skipstjóri hálfmállaus, synti burt aftur og hvarf. Skipshöfnin var alls um 900 manns, og björguðust af henni, eins og áður segir, 210. Farþegar voru yfir 1400 og af þeim bjargast tæp 500, svo að farist hafa af þeim nokkuð yfir 900. Farþegar voru frá ýmsum löndum, en flestir þó enskir eða amerfskir. Skipshöfnin var að mestu leyti frá Southampton, og er því slysið þar tilfinnanlegast, enda segja ensk blöð, að í heilum götum þar komi þetta slys hart niður svo að segja í hverju húsi. Byrjað var auðvitað þegar að safna samskotum til þess að bæta úr tjóninu, „Titanic" var sjerlega ríkulega út búið skip, skrautíburðurinn afar- mikill og svo auðvitað öll hugsanleg þægindi, er koma má fyrir í skipum. Til merkis um það er sýnt hjer á undan á einni myndinni eitt af baðher- bergjum skipsins. Sálmurinn, sem getið er um hjer á undan, að hljóðfæraflokkurinn á „Titanic" hafi sungið, þegar skipið var að sökkva, er til í íslenskri þýð- ingu eftir síra Matth. Joch.: „Hærra, minn guð, til þín" o. s. frv. („Nearer, my God, to Thee"). Kola-einkasalan. Svo sem kunnugt er, hefur sá orðið árangurinn af störfum nefndar þeirrar, sem skipuð var af síðasta alþingi til að athuga milli þinga, hver ráð mætti finna til að afla landsjóði aukinna tekna, að hún ræður löggjafar- valdinu til þess, að lögbjóða einokun á kolum og selja kolaverslunina á leigu, þannig, að kolin sjeu seld innlendum mönnum við nánar ákveðnu verði, gegn 1 kr. og 50 aura afgjaldi, er greiðist landsjóði fyrir hvert tonn af kolum, sem selt er, og að kol þau, er útlendir menn kunni að þurfa að kaupa hjer á landi, megi einokunarhafi selja við því verði, er honum þókn- ast, gegn 2 kr. 50 au. afgjaldi til landsjóðs af hverju tonni af kolum, er þannig seljist. Út af þessum tillögum milliþinganefndarinnar viljum vjer undirrit- aðir lýsa því yfir, að ef það er talið nauðsynlegt að afla landsjóði tekna af kolaversluninni hjer á landi, þá teljum vjer allir æskilegra, og viljum miklu fremur hlíta því, að lagður verði 1 kr. 50 a. eða 2 kr. tollur á hvert tonn af kolum, sem flytst hingað til landsins, og að verslunin með kol verði frjáls framvegis eins og hingað til. Á þann hátt yrði landsjóði aflað jafnmikilla tekna eins og hann fengi, ef tilögur nefndarinnar um einokun á kolum næðu fram að ganga, en hins vegar væri þá synt fram hjá öllum þeim annmörkum, er vjer teljum vera á einokunar-fyrirkomulaginu. Með þessu móti værí þá einnig girt fyrir það, að útlendingum verði, með aðstoð laganna, seld kol við hærra verði en öðrum, og þar með afstýrt þeirri hættu, að oss verði gerð lík skil, eða önnur enn verri, hjá öðrum þjóðum, er vjer eigum viðskifti við. pr. pr. Hlutafjel. P. I. Thorsteinsson &. Co.: Hlutafjel. »island«: Thor Jensen. Jes Zimsen. Trawlfjel. Bræðurnir Thorsteinsson: pr. Fiskiveiðahlutafjel. »Draupnir«: P. J. Thorsteinsson, Th. Thorsteinsson. Thor Jensen. pr, Hlutafjel. »Fram«: Fiskiveiðafjel. »Alliance«: Eiías Stefánsson. Magnús Magnússon, Gunnar Gunnarsson. Jes Zimsen. Geir Zoéga. Th. Thorsteinsson. 0. Johnsen & Kaaber. Pjetur J. Thorsteinsson. B. H. Bjarnason. J. P. T. Bryde: Hlutafjel. Timbur- & kolaversl. »Reykjavík«: N. B. Nielsen. T. Fredriksen. pr. Rich. N. Braun: pr. Verslun Jóns Pórðarsonar: pr. H. P. Duus: L. Miiller. Pórður L. Jónsson. Jakob Jónsson. R. P. Levi. Helgi Zoéga. Ben. S. Pórarinsson. Jón Bjarnason. Egill Jakobsen. Bj. Guðmundsson. Guðjón Sigurðsson. Reinh. Andersen. Jón Brynjólfsson. Versiunin Björn Kristjánsson: Jóhann Jóhannesson. Guðm. Ólsen. Jón Björnsson. Siggeir Torfason. JÓn Helgason. H. S. Hansson. pr. Versl. »Vöggur«: pr. Hlutafjel. »Kveldúlfur«: Garðar Gíslason. Þórður Bjarnason. Richard Jensen. Kristján Torfason Agent for Mory & Col. BoufogneS/M: frá Flateyri. E. Chouillou.. pr. Gufubátsfjel. Faxaflóa: for The scottish lcelandic Fishing Co. Ltd.: Oddur Gísiason p. t. formaður. Garðar Gíslason. Manager. Ofanskráð yfirlýsing, sem er skýr and- mseli á móti einokunarfrumvarpi fjár- málanefndarinnar, er undirrituð af öllum þeim kaupmönnum hjer í Reykjavík, sem hafa haft nokkra kolaverslun siðast- liðið ár. Ennfremur af öllum þeim út- gerðarmönnum í Reykjavík, sem nota kol sem nokkru nemur, og þar að auki af mörgum kaupmönnum, sem eru hin- um samdóma, og munu vafalaust fleiri bætast við seinna, þegar tími vinst til þess. Aðalatriðið er, að hjer er um að ræða alla þá menn, sem ýmist flytja kolin hingað til Faxaflóa eða nota þau, en það er mikill meiri hluti þeirra kola, er flutt eru til landsins, og um helmingur þeirra kola, sem hagnýtt eru af innlend- um mönnum, og virðist því augljóst, að ekki sje það rjettlátt, að hið komandi alþingi lögleiði kolaeinokunarlögin beint á móti vilja þeirra manna. Þessir menn mótmæla einokunarlög- unum ekki einungis vegna hafts þess, er þau leggja á verslun innlendra manna, en einnig vegna þess, að þeir óttast að aðrar þjóðir, t. d. Englendingar, muni gjalda okkur líkan greiða í viðskiftum okkar við þá, eins og fjármálanefndin hugsar til þeirra, ef frumvarp hennar fær fram að ganga; en þar í er ákveðið, að einkasalinn hafi tögl og hagldir eins og honum þóknast við útlendinga. Þeir óttast meðal annars, að Englend- ingar muni þá leggja afarháan innflutn- ingstoll á alt íslenskt srojör, er þangað er flutt, en þar er eini markaðuriun fyrir það, og væri það illa farið, þannig að eyðileggja smjörsöluna. Þá yrðu líklega öll rjómabúin að hætta, og væri það ekki smáhnekkir fyrir landbúnað vorn, að missa þessa stóru tekjugrein, sem aðeins 1910 nam 270 þús. kr., og sem samkvæmt skýrslu Búnaðarfjelagsins hefur óðskrefa fleygt áfram síðan 1901, að fyrst fór að bóla á henni. Meðan alt íslenskt smjör var selt hjer á landi, munu víst flestir játa, að hæsta meðalverð aldrei mun hafa verið meira en 60 aúra pr. pd. En ef nú kæmi til, að útflutningur yrði að hætta vegna þess, annaðhvort að innflutningstollurinn i Englandi yrði svo hár, að ekki væri hægt að hagnýta þann markað Iengur, eða vegna annara hindrana, sem Englendingar mundu leggja í veg fyrir okkur, er mundu leiða til sömu vandræða, að eftirleiðis yrði að selja alt íslenska smjörið í landinu sjálfu, þá má ganga út frá því vísu, að ekki einu sinni þetta verð, 60 aura pr. pd., mundi nást að meðaltali, þar eð framleiðsla smjörsins hefur vaxið meira en þörf þjóðarinnar, ekki sfst vegna hinnar sí- vaxandi notkunar smjörlíkisins. ^rið 1910 voru útflutt til Englands ca. 300,000 pd. af smjöri, og seldist hvert pund að meðaltali fyrir 90 aura, eða alls 270 þús. kr. Þannig eru að minsta kosti 30 aurar, sem fást mundi minna fyrir hvert pund, ef selja ætti innanlands alt íslenska smjörið, sem nú er flutt út, og verður það samtals 30 X 300,000 = 90,000 kr., sem bændastjett vor mundi missa af beinum tekjum. Auk þess sem það smjör, sem nú er selt innanlands fyrir 70—80 aura pd., líka mundi lækka, og mundi það fje einnig nema talsverðri upphæð, er einnig lendir á bænduro. Það er áætlað, að kolasalan til út- lendinga nú muni nema ca. 40,000 smá- lestum á ári, og er ætlast til að land- sjóðstekjur af þeim muni nema 1 kr. pr. smálest, fram yfir það, sem krafist er af innlendum mönnum, þar eð fjármála- nefndin leggur til að einkasalinn greiði 2 kr. 50 a. af hverri smálest, sem seld er til útlendinga, en 1 kr. 50 a. af hverri smálest, sem seld er til innlendra manna, og verður það þannig um 40,000 kr. sem landsjóði mundi áskotnast frá út- lendingum meir en tiltölulega frá inn- lendum; með því að lögleiða frumvarp fjármálanefndarinnar og veita einkaleyfi til, ekki eingöngu að krefjast 1 kr. meira af útlendingum, heldur einnig heimid til að fara með við- skifti þeirra eins og honum þóknast, þá getur farið svo, að þær 40,000 kr., sem landsjóði þannig áskotn- ast, kosti íslenska sveitabændur 90,000 kr. tap á smjöri sínu, og er það beint tap fyrir landið sjálft 50,000 kr. Þannig verða þær 40,000 kr., sem landið reikn- ar sjer í tekjur af hærra tolli á útlend- inga, beint teknar af íslenskra baenda fje. Sömuleiðis er Englendingum 1 lófa lagið, ef þeir vilja hefna sín fyrir góða meðferð á fiskiflota sínum, er þeim er fyrirhuguð í einokunarfrumvarpinu, að tolla allan þann fisk, er okkar floti ár- lega færir þeim, segjum t. d. með einu sterlingspundi á smálestina, sem ekki er hátt áætlað, ef á annað borð yrði tollað. Fiskur sá, nýr og saltaður, sem hjer er um að ræða, mun nema sem stendur um 3000 smálestum á ári, og yrði þá skaði af tolli þessum fyrir ísl. útgerðar- menn og kaupmenn 3000 £ eða ca. 55,000 kr. árlega. Slíkt tap fyrir íslenska flotann yrði að sjálfsögðu mjög tilfinnanlegt, og þó er engin vissa fyrir, að þessi tollur ekki yrði 2—3 sinnum hærri, og er þá ger- samlega fyrirbygt, að íslendingar geti hagnýtt sjer þann markað. Þegar íslensku skipin koma með farma sína til Englands, er greitt fyrir þeim eins og væru þau innlend þar. Þau fá að nota hinar ágætu skipakvíar, bæði þar sem fiskurinn er seldur, og einnig þar sem skipin eru sett til hreinsunar og viðgerðar, fyrir sama gjald og inn- lendir menn greiða, og sem nú sem stendur aðeins er smáræði. Við fáum að nota húsakynni þeirra við fiskiskipa- kvíarnar endurgjaldslaust. Fiskur vor er látinn þar á land og seldur án nokk- urs innflutningsgjalds. Hjer eiga Eng- lendingar hægt með að leggja á okkur þau gjöld, að skipum vorum verði mjög örðugt, ef ekki ómögulegt, að nota þau hlunnindi, sem þau hingað til hafa haft. Fjármálanefndin mun ef til vill hugsa sem svo, og ráðleggja okkur, að leita annara landa með sölu á smjöri voru og fiski. En hætt er við að þau ráð muni reynast álíka holl Lokaráð og ein- okunarfrumvarpið í heild sinni mun reyn- ast fyrir land og lýð. Við allir, sem ritað höfum nöfn okk- ar undir yfirlýsingu þessa, höldum því fyrir konur og karla, mjög ódýrar og góðar. Síuría Sónsson. fram, að bæði tekjur landsjóðs og vel- ferð Iandsbúa verði betur gætt með því að tolla kolin í stað þess að selja út- lendingum verslunina á leigu, og mun jeg sfðar, er tími vinst, ítarlega færa sönnur á það, samhliða því, að jeg einnig skal athuga þetta mikla Völundar- smíði nefndarinnar — einokunarfrum- varpið — nánar. Tekið mun verða eftir því, að undir mótmælabrjefið vantar nafn eins mikils- metins manns, formanns kaupmannafje- Iagsins í Reykjavík, ræðismanns Breta, framkvæmdarstjóra fyrir firmanu Cop- land & Berry 1908 Ltd., herra kaupm. Asgeir Sigurðsson. Flestir munu hafa búist við að sjá nafn hans þar efst á blaði, þar honum sem formanni Kaup- mannafjelagsins ber að vera á verði fyrir því, að ekki sje ráðist á verslunar- frelsi landsins — sem breskum konsúl, að gæta hagsmuna þeirrar þjóðar, sem hann er ræðismaður fyrir —, sem for- stjóra firmans C. &B. að gæta hagsmuna þess. (Það firma rekur hjer kolaverslun). Hví vildi þessi maður ekki fylgja oss að málum með mótmælin? Vill hann sjálfur skýra frá því, til þess að drepa niður þær kviksögur, sem þegar eru komnar á loft hjer í bænum; eða getur nefndin gefið skýringar um þetta. Hvorutveggja verður tekið með bestu þökkum. Thor Jensen. Umferðir yfir Holtavörðuheiði. Davíð bóndi Stefánsson í Forna- hvammi hefur talið vegfarendur yfir Holtavörðuheiði árið 1911, og varð útkoman þessi: Janúar 20, febrúar 39, mars 61, apríl 142, maí 137, júní 165, júlí 260, ágúst 252, september 390, október 130, nóvember 32, desem- ber 21. Samtals 1649. Til samanburðar má minna á, að samkvæmt Lögr. V. árg. 55. tbl. fóru 12660 menn yfir Hellisheiði á einu ári (1. nóv. 1909 til 31. okt. 1910). Gaman væri að fleiri vildu hafa tölu á vegfarendum yfir fjall- vegi hjá sjer, og láta mig vita. Jón Þorláksson. Jóhann Sigurjónsson. „Fjalla- Eyvindur" verður leikinn á Dagmar- Ieikhúsinu í Khöfn í fyrsta sinn 15. þ. m. — „Bóndinn á Hrauni" er ný- lega kominn út hjá Gyldendals-bóka- verslun og tekinn til sýningar í Kngl. leikhúsinu í Khöfn, segir blaðið „Riget", flytur ritdóm um leikritið og hrósar því. 171 Kári: Þú ert svo sorgbitin. Jeg hjelt þjer þætti vænt um að jeg fór ekki. Halla (stendur upp): Hefðir þú faðmað mig að þjer og sagt mjer að þjer þætti vænt um mig, þójeg sje orðin ljót og þrátt fyrir alla mína eymd, þá hefði jeg orðið glöð. — En það gerðir þú ekki. K á r i: Þú veist þó, að jeg hætti við ferðina þín vegna. Halla: Ertu viss um það? Varstu ekki hrædd- ur við að gera þig sekan í nýjumglæp? — Þú hefur víst hugsað meira um hinn mikla dómara en um mig. Kári: Jeg hef orðið fyrir dómi mannanna — þess vegna hugsa jeg svó oft um þann mikla og óendanlega dóm. H a 11 a: Þú/vegur gjörðir þínar gagnvart mjer á vogarskálar veru, sem þú ekki þekkir. Það er rangt. Jeg vil enga samvisku 5vuritu- Kjólatau, fleiri hundruð tegundir. Sturla jónsson. Ffíí [jallÉii til Minik Búnaðarsamband Austurlands. Ráðanautaskifti eru að verða þar. Ben. Kristjánsson fer frá, en Ben. Blöndal tekur við. Jafnframt er ráða- nautsstaðan sameinuð kennarastöð- unni við Eiðaskólann, segir „Austri". Trúlofanir: Frk. Anna Stefáns- dóttir konsúls Jónssonar og Ottó kaupm. Vathne á Seyðisfirði. Frk. Sigfríð Konráðsdóttir kaupm. Hjálm- arssonar í Mjóafirði og Páll Guttorms- son bankaritari á Seyðisfirði. Húsbrunar. 14. f. m. brunnu í Keflavík verslunarhús, og þar inni talsvert af vörum, eign Vilhj. Kr. Hákonarsonar, hvorttveggja vátrygt. Aðfaranótt 16. f. m. brann íbúðar- hús á Borg í Skötufirði. Aðfaranótt 27. f. m. brunnu til kaldra kola á Akureyri 4 af húsum O. Tuliniusar. Vörur höfðu verið geymdar í einu þeirra. I einu var afgreiðsla Thorefjelagsins. Tvö húsin voru fjós og hlaða. Sími til Hríseyjar í Eyjaíirði. Árskógshreppur í Eyjafirði hefur feng- ið heimild til 3000 kr. lántöku til þess að koma Hrísey í símasamband. óspakseyri í Strandasýslu hefur Metúsalem Jóhannesson á Akureyri keypt af fyrv. sýslumanni Marínó Hafstein, og segir „Gjallarh-, að hann ætli að reka þaðan verslun og fiski- veiðar í stórum stíl". Reykjavík. Síðastl. laugardagskvöld var ó- vanalega góða skemtun að fá í Iðn- aðarmannahúsinu. Þar söng sænsk leikkona, frú Ingibjörg Johansen, alls- konar þjóðvísur af mikilíi list, röddin hrein og hljómfögur, og efni vísn- anna meðhöndlað sem góðri leikkonu sæmir. Þá spilaði fiðluleikarinn Óskar Johansen nokkur sænsk þjóðlög, vel að vanda. Því næst voru sýndir nokkrir þjóðdansar, sjerlega fallegir og fjörugir; það voru 9 manns, sem dönsuðu alls. Allir, sem stigu dans- inn, voru klæddir litskrúðugum þjóð- búningum. Það var regluleg unun að horfa á þessa gömlu þjóðdansa, og væri óskandi að frú Johansen vildi halda áfram að kenna svona dansa hjer og gefa almenningi tækifæri til að sjá þá við og við. Það var auðheyrt, að áhorfendurnir skemtu sjer; jeg man ekki eftir að 172 hafa okkar á milli. Þú verður að vera mjer, eftir þínu eðli, illur eða góður. — Þú veist ekki, hvort þinn mikli dómari kærir sig um það, sem þú kallar góð- verk. Honum þykir ef til vill vænna um illverkin. Hvernig hefur honum far- ist við mig? Þú gætir ekki verið mis- kunnarlausari við þinn versta óvin. Hvers vegna finn jeg til hungurs, fyrst jeg fæ ekki mat? — Jeg hef ekki óskað þess, að jeg fæddist í heiminn. Jeg heíði síst af öllu kosið að vera manneskja. Jeg hefði fremur kosið að vera sandurinn, sem þyrlast tilgangslaust um öræfin. Ef nokkur guð er til, er hann vondur. —■ En það er enginn guð. Kári: Þú æsir sjálfa þig. Þú ættir að auð- mýkja þig og biðja guð um að hjálpa okkur. — Án hans erum við duft og aska. Halla: Jeg óska engrar meðaumkunar. Hrópa þú á hjálp. (Hteðnisiega) Jeg er viss um, að hann heyrir til þín — eigi hann ekki annríkt við að losa um einhvern jökul-

x

Lögrétta

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lögrétta
https://timarit.is/publication/196

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.