Lögrétta - 10.07.1912, Side 1
Afgreiðslu- og innheimtum.:
ARIN8J. SVEINBJARNARSON.
I .auti<ive« 41.
Talsiml 74.
Ritstjori:
PORSTEINN GÍSLASON
Pingholtsstrœti 17.
Talsimi 178.
M :5jT>.
Reykjavík ÍO. jtílí 191S.
■VII. áry.
J árnbrautar sly sið
í Svíþjóð.
Hjer í blaðinu hefur áður verið skýrt frá
járnbrautarslysi í Svíþjóð 16 f. m , en myndin,
sem hjer fylgir og sýnir vagnarústirnar, er tek-
in skömmu eftir að slysið átti sjer stað. Nætur-
hraðlestin, sem fer frá Malmö til Stokkhólms,
rakst á aðra vagnlest, er hjelt kyrru fyrir á
járnbrautarstöðinni í Malmslátt. Þetta var kl. S
um morguninn. Orsökin var sú, að rangt hafði
veriö skift um spor og er sökin hjá einum
brautarþjóninum þar á stöðinni í Mamslátt.
Það var flutningalest, sem fyrir var, en farþega-
vagnar í hinni, sem að kom. Við áreksturinn
brotnuðu vagnarnir og einn byltist yfir annan,
og svo kviknaði í gasi í einum farþegavagnin-
um og alt stóð í björtu báli. Herlið kom til
hjálpar við björgunina. II menn fórust þegar,
en yfir 20 meiddust meira og minna. Síðari
fregnir segja 20 hafa látið lífið. Þeir, sem fór-
ust, voru sumir sænskir, sumir danskir. Slysíð
vildi til á afm’ælisdegi Gustafs Svíakcnungs.
Dóttir Aug. Strindbergs, er þarna fórst, eins og áður hefur verið frá sagt, var leikkonan Greta v. Philip, og var maður hennar, v. Ph. læknir, einnig
með lestinni, en komst lífs af, og þó sagt að hann hafi viijað íyrirfara sjer, er hann vissi konu sína dána. Þau voru á heimleið úr ferð, er þau fóru
til útlanda eftir lát Strindbergs.
1. O. O. F. 93579
Þjóðmenjasafnið opið sunnud., þriðjud. og
fimtud. kl. 12—2.
Lækning ók. f læknask. þrd. og fsd. 12—x.
Tannlækning ók. (f Pólthásstr. 14) 1. og 3.
md. 1 mán. 11—1.
Landakotsspftali opinn f. sjúkravitj. lo'/i
—12 og 4—5.
Islands banki opinn 10—272 og 5y*—7.
Landsbankinn io1/*—2’/»- Bnkstj. við 12—1.
Landsbókasafnið opið hv. virkan dag k).
12—3 og 5—8
Heilsuhælið opið til heimsókna 12—1.
Lrárus Fjeldsted,
Yflrpjettarm&lafœrslumaður.
Lækjargatft 2.
Hoíma kl. 1 1 — 12 og 4—7.
Bœkur,
innlendar og erlendar, pappír og allskyns
ritföng kattpa allir í
Bókaversl. Sigfusar Eymundssonar.
Jæjajyrirkomulag
eftir
tíuðjón Samiíelsson
húsagcrðarlistnema.
Bæjafyrirkomulag er eitt mesta á-
hugamál nútímans.
Við íslendingar höfum til þessa
tíma lítið gefið okkur að þessu máli,
og er það náttúrlegt. Bæir okkar
eru bæði fáir og smáir, og fólk hugs-
ar því, að það gildi einu, hvernig
þeim sje fyrir komið.
Máltækið segir: „F.kki er ráð
néma í tíma sje tekið'L Jeg held að
við ættum að fara að veita þessu
máli meiri athygli en við höfum gert.
Okkur ætti að lærast það af því, hvað
aðrar þjóðir hafa orðið að borga dýrt
hirðuleysi sitt í þessu atriði, að bíða
ekki oflengi.
Flestir munu nú vera komnir á
þá skoðun, að til þess að bær geti
þrifist, verði bæjarfyrirkomulagið að
vera ákveðið. Land það, sem bær-
inn stendur á, er ekki jarðarhluti,
sem maður getur reist hús sín á án
þess að hugsa íyrir framtíðinni. Um
leið og húsaskipunin er ákveðin, er
verðgildi lóðanna og heilbrigðisfyrir-
komulag bæjarins einnig ákveðið.
Iínski rithöfundurinn, Sir K. Unwin,
hefur sagt í riti sínu um bæjafyrir-
komulag: „Lyndiseinkunn bæjarbúa
myndast að miklu leyti af bæjarfyr-
irkomulaginu og húsunum". Þetta
er ef til vill mikið sagt. En það er
sannreynt, að því óhagganlegra sem
bæjarfyrirkomulagið er og því óvist-
legri sem húsakynnin eru — þess
ruddalegra er fólkið, þess ósiðaðri
eru unglingarnir og þess óhreinni eru
börnin.
Glaðlyndi suðurlandabúa er án efa
komið af því, hvað náttúran er fal-
leg, og hvað hinir gömlu bæir þeirra
eru fallegir og í góðu samræmi við
náttúruna. Camillo Litte segir í
„Der Stádtebau": „Bær, sem hefur
gott fyrirkomulag, töfrar manná lík-
an hátt og hinn fagri sönghljómur".
Bæjafyrirkomulagið á mikinn þátt
í heiibrigði og þrifnaði bæjabúa.
Þetta kemur fram á margan hátt. í
þröngutn og dimmum götum er ó-
þrilnaður ætíð meiri en í breiðum
og björtum. Sömuleiðis þar sem
hin auðu svæði bæjanna eru falleg
og þeim vel fyrir komið, ginna þau
fólkið út í sólskinið og hið hreina loft.
Margur myndi annars verða heima í
húsum sínum, sem ef til vill oft eru
dimm og óheilnæm. Sjúkrahús eru
bygð, og mikil fjárupphæð er látin á ári
hverju til þess að bæta lieilbrigðisá-
standið. Þetta er náttúrlega mjög
gott. Mundi ekki líka vera heppi-
legt, að verja dálitlu til þess að bæta
húsakynnin, og um leið bæjarfyrir-
komulagiðf í húsunum lifir fjöldi
fólks helming æfi sinnar, og í bæj-
unum alt sitt líf. Englendingar hafa
sjerstaklega gert mikið til að bæta
þetta tvent. Þeir segja líka, að það
eigi óefað ekki lítinn þátt ísjúkleika
mannanna, hvað hinum tveimur fyr-
nefndu atriðum sje ábótavant.
J. Stúbben segir í „Handbuch des
Stádtebaues": „Til þess að ein-
staklingnum geti liðið vel, verður
hann að geta notið fegurðar náttúr-
unnar. Það getur hann því að eins,
að hann sjái hana koma fram í hlut-
um þeim, sem hann umgengst. Eitt
af því stórkostlegasta í því atriði er
bæjarfyrirkomulagið".
Jeg ætla með grein minni að gefa
nokkrar upplýsingar um aðalatriðin
í bæjafyrirkomulagi, í von um, að
þær geti ef til vill komið að nokkr-
um notum.
Okkar fegurstu draumar í lífinu
eru oft ferðaendurminningar. Fal-
legir bæjahlutar, minnismerki og torg.
Þegar við höfum sjeð þessa staði,
sem okkur hafa þótt svo fallegir,
spyrjum við okkur sjálf: „Hvað hef-
ur það verið, sem gerði þessa staði
svo fallega?" Oft munum við finna
þetta. Og það eigum við að nota
okkur til þess að fá okkar bæjafyrir-
komulag fallegt. Þetta er ekki svo
að skilja, að sama fyrirkomulagið eigi
alsstaðar jafnvel við. Þvert á mótil
j Það, sem er mjög fallegt á einum
stað, getur verið mjög ljótt á öðrum.
Landslag og bæjafyrirkomulagið verð-
ur að vera í sem bestu samræmi
hvort við annað. í hverju sem er
verður listin ætíð hjákátleg og óvið-
kunnanleg, ef hún fylgir ekki því
náttúrlega. Þó er það margt, sem
reynslan hefur sýnt, að alstaðar á
vel við, og um það ætla jeg að gefa
upplýsingar.
Margir halda ef til vill, að bæir
okkar sjeu svo litlir, að það taki ekki
að hugsa um að hafa gott fyrirkomu-
lag í þeim. Þessu fer fjærri. — I
Englandi eru bæir með 600—1200
íbúum, og þeim er svo vel fyrir komið,
að fáir stórir bæir eru eins fallegir.
Flestir bæir eiga lika fyrir sjer að
vaxa, og þess vegna ætti að hugsa
um gott bæjafyrirkomulag sem fyrst;
reynslan hefur sýnt, að það er það
ódýrasta fyrir bæina.
Myndun bæjafyrirkomulags er í því
fólgið:
1. Að fastsetja allar aðalumferð-
argötur á þann hátt, að þær sjeu sem
stytstar og hægastar. Til þess að geta
ákveðið þessar götur, verður maður
að gera sjer áætlun um það, hvað
bærinn muni stækka á vissum ára-
fjölda. Vanalega eru tekin 50—70
ár. Einnig verður þá um leið að
ákveða, hvar flestar búðir skuli vera,
hvar vörugeymsluhús, verksmiðjur og
fiskþurkunarsvæði (ef þau eru f bæn-
um) skuli vera. Þetta sfðasta atriði
mun að eins koma fyrir í stærri bæj-
unum.
2. Að ákveða, hvar opinberar
byggingar skuli vera.
3. Hvar auð svæði skuli vera.
4. Að síðustu leggur maður aðr-
ar götur eftir því, sem best hentar.
Götur. Til skamms tíma álitu
menn, að beinar götur væru þær bestu
og fallegustu. Þessi hugmynd er
upprunalega komin frá Amerfku. Þar
myndaðist hún af því, að hinir stóru
bæir uxu upp á mjög stuttum tíma.
Lóðir urðu f háu verði, og þess vegna
varð að nota þær sem best; það
varð með því móti að skifta þeim f
ferhyrninga. Þessi aðferð er bæði
ljót og óhaganleg, þó hún hafi víða
verið brúkuð.
Beinar götur eru mjög tilbreyting-
arlausar, og kemur það mest af því,
að húsin, sem við þær standa, sjást
svo illa; þau sjást ekki fyr en mað-
ur stendur beint fyrir framan þau.
Öðru máli er að gegna, þegar göt-
ur eru bognar. Þá sjást þau í fjar-
lægð, og fjarsýnið (perspektivet) er
oft mjög fallegt.
Götur ættu helst aldrei að vera
beinar á lengri vegi en IOOO metr-
um; sjeu þær lengri, þreytist maður
að líta eftir þeim. Eins ber sjerstak-
lega að gæta, að láta götur aldrei
enda eða beygjast til hliðar án þess
að hús eða minningarmerki standi
fyrir endanum eða beygingunni.
Götum má líkja við ganga í hús-
um; hvorttveggja er til þess, að kom-
ast frá einum stað í annan. Við
kvörtum oft undan því, að gustur
komi gegnum gangana, þegar úti-
hurðin er opnuð, og við lokum henni
svo fljótt sem við getum. Á sama
hátt er með göturnar; við óskum
eftir, að sem minstur gustur sje í
þeim; hann verður aðeins minkaður
á þann hátt, að hafa þær bognar.
Jeg hef heyrt marga taþi um það,
hvað þeim finnist hlýrra að ganga göt-
ur þær, sem „Strykið" gengur í gegn-
um, en flestar aðrar götur í Kaup-
mannahöfn. Þetta kemur af því, að
götur þær, sem „Strykið" gengur í
gegnum, eru bognar, svo vindurinn
getur ekki komist eftir þeim. í bein-
um götum eru vindstrokur algengar,
sem þyrla rykinu upp á sumrum og
snjónum á vetrum. Oft hef jeg líka
heyrt fólk, sem býr við langar, bein-
ar götur, kvarta undan því, hvað þar
sje næðingasámt.
Á sfðustu árum hafa verið mjög
skiftar skoðanir manna um það, hvað
breiðar götur skuli vera. Um alda-
mótin 1900 og laust þar fyrir, höfðu
menn þá skoðun, að best væri að
hafa götur svo breiðar sem hægt
væri, enda myndaðist þá mörg gat-
an (Boulevard), sem var 50—60 m.
á breidd. Nú eru götur að mjókka
aftur; og í litlum bæjum ættu götur
að minsta kosti ekki að vera breið-
ari en þörf gerist. Það er ekki svo
að skilja, að jeg vilji hafa götur mjög
mjóar. Þvert á móti. — En mjög
breiðar götur eru dýrar og erfitt að
halda þeim við. Eftir mínu áliti
þyrftu fáar götur í hinum minni bæj-
um að vera yfir 15 álnir, og í hin-
um stærri bæjum þyrftu aðalumferð-
argöturnar að vera 20—25 álnir.
Við allar aðalgötur verða að vera
gangstígar (Fortov), sem væru 10—
15 cm. hærri en akvegurinn. Best
er að akvegurinn sje ávalur og halli
út til beggja hliða. Hlutfallið á milli
gangstíganna og akvegsins finst af
eftirfarandi dæmi. Ef öll gatan hef-
ur breiddina s, akvegurinn breiddina
f og hver gangstígur breiddina b, þá
er hlutfallið:
Sett upp í tölur:
s = 15 álnir.
b = V = 31 f = f ’ 15=9-
b == 3 álnir; f = 9 álnir.
Mjög mikil hindrun fyrir alla um-
ferð eru hornin, sem götur mynda,
þegar þær skerast hver yfir aðra í
beinni línu. Það er beinlínis hætta
að þurfa að ganga fyrir slíkt horn.
Þeir Islendingar, sem hafa verið í
Kaupmannahöfn, hafa vfst oft sjeð,
hversu erfitt það hefur verið, bæði
fyrir fólk og vagna, að komast áfram
á horninu á Östergade og Köbmager-
gade. Þó umferðin hjer sje ekki eins
mikil og þar, er hlutfallið það sama.
Mikla bót má ráða á þessu með því
móti, að láta götur aldrei skerast, eða
fara hvora yfir aðra, í beinni línu, held
ur að láta að eins aðra götuna ganga
beint áfram. Hinni götunni verður
að koma fyrir á þann hátt, þeg-
ar hún hefur skorist í beinu götuna,
að láta framhald hennar þá frá hinni
hlið þeirrar götu byrja 30—40 áln-
um til hliðar. Á þennan hátt verð-
ur umferðin betri og hægari. Gatan
verður meira innilukt, gefur betra
skjól fyrir vindum, og einnig fallegri.
Ef nauðsyn ber til að hafa ein-
hverja götu beina á löngum vegi, t.
d. ef landslagi er svoleiðis háttað,
iná gera hana fallegri með því móti,
að hafa hana misbreiða, og láta ekki
götuhliðarnar liggja samhliða. Á
þennan hátt verður gatan tilbreyti-
legri og húsin, sem við hana standa,
sjást miklu betur.
Þetta fyrirkomulag hefur á síðari
árum náð miklum framgangi. í bæn-
um Múnchen á Þýskalandi, sem er
talinn með fallegustu bæjum, hafa
tvær mjög stórar götur verið gerðar
með þessu fyrirkomulagi, og hafa
þær þótt mjög fallegar. Englending-
ar hafa líka mikið brúkað þessa að-
ferð í hinum minni bæjum.
Þegar gatan er misbreið, má ak-
vegurinn ekki fylgja götuhliðunum,
heldur verður hann að vera jafnbreið-
ur gegnum alla götuna. Misbreiður
akvegur hindrar umferðina og getur
oft orðið að slysi. Þessu verður best
fyrir komið á þann hátt, að láta gang-
stígana fylgja bugðunum á götunni,
og hafa svo t. d. grasbletti á milli
akvegsins og þeirra, þar sem gatan
beygist út. Húsin geta svo annað-
hvort staðið svo lítið upp frá göt-
unni og þá í beinni línu, en helst
ættu þau að fylgja beygingum göt-
unnar.
Einnig má gera götur tilbreytileg-
ar með þvf móti, að láta nokkuð af
húsunum standa dálítið upp frá þeim.
Fyrir framan þessi hús mætti svo
hafa grasbietti, og skrýða þá með
blómstrum. Yfirleitt ættu menn hjer
að hugsa um, að hafa vingjarnlegra
kringum hús sín, heldur en gert er.
Það þarf ekki að kosta svo mikið,
að hafa t. d. grasblett og skifta hon-
um í reiti með mjóum gangstígum.
1 þessum reitum mætti svo gróðursetja
ýms blóm t. d. „baldursbrá", „mjað-
jurt" o. s. frv., og þetta myndi geta
litið mjög vel út. (Frh.).
Haraldur prius.
Það er talað um í Danmörku, hver
nú muni gegna ríkisstjórn, er svo
ber undir, að konungur verður fjar-
verandi, því krónprinsinn er barn að
aldri. Nú í ár er ekki ráðgert neitt
ferðalag af konungi erlendis. En
svo taka við hinar venjulegu heim-
sóknir við konungahirðirnar úti um
Evrópu, sem hver nýr konungur
gerir. Þykir þá líklegast, að Har-
aldur prins, bróðir konungsins, komi
( hans stað. Haraldur prins var hjer
í för með föður sínuro sumarið 1907.