Lögrétta - 28.08.1912, Síða 4
172
LÖGRJETTfA
Oordosa-málid.
Svo er nefnt mál, sem um þessar mundir vekur mjög mikla at-
hygli í Khöfn. Það er ijársvikamál. Aðalmaðurinn heitir Harry Cordosa
og var nýlega tekinn fastur í Noragi, er hann kom þangað á skipi frá Ame-
ríku á leið til Khafnar. Fjelag það, sem hann veitir forstöðu, ásamt föður
sínum, L. Cordosa, og ákært er fyrir sviksamleg viðskifti og fjeglæfra, heitir
„The american Exchange Co.“. Það hefur fengist við sölubrall í mjög
stórum stýl, er nú þykir sýnt, eða að minsta kosti mjög grunsamlegt, að
alt sje bygt á sviksamlegum tilgangi. Myndin hjer er frá rjettarhaldi í
þessu máli. Vinstra megin sjest L. Cordosa, þar sem hann er að forsvara
starfsemi fjelagsins að syni sínum fjarverandi.
Prestafundurinn á lólui
31. jiíní — I. júlí 1912.
Um hann er Lögr. skrifað:
Pr e s t a f un d u r in n á Hólum
stóð í tvo daga; byrjaði með messu-
gjörð í Hóladómkirkju að viðstöddu
fjölmenni. Vígslubiskup framkvæmdi
altarisþjónustu, en sr. Stefán B. Krist-
insson á Völlum steig í stólinn og lagði
út af guðspjalli dagsins, Matth. 5.
Þessir prestar og prófastar sóttu fund-
inn: Úr Eyjafjarðarprófastsdæmi: Síra
Geir Sæmundsson vígslubiskup á Akur-
eyri; sr. Stefán B. Kristinsson, Völlum;
sr. Þorsteinn Briem, Hrafnagili. — Úr
Skagafjarðarprófastsd.: Sr. Árni Björns-
sonpróf., Sauðarkrók; sr. Hallgr. Thorla-
cius, Glaumbæ; sr. Sigfús Jónsson, Mæli-
felli; sr. Björn Jónsson, Miklabæ; sr. Guð-
brandur, Viðvík; sr. Pálmi Þóroddsson,
Höfða. Úr Húnavatnssýslu : Sr. Ludvig
Knudsen, Bergstöðum.
Eftir messu setti vígslubiskup fundinn
með ávarpsræðu til presta og safnaða,
er hann hvatti til samvinnu að eflingu
trúarlífsins hjá þjóð vorri. Því næst
voru þessi mál tekin fyrir og rædd af
prestum og leikmönnum:
i. Skilnaður ríkis og kirkju.
Um það mál flutti sr. Björn í Miklabæ
er verðið á
undum af
langan og ítarlegan fyrirlestur; komst
hann að þeirri niðurstöðu, að ekki væri
þjóðinni ráðlegt, nú sem stendur, að
hrapa að skilnaði. Urðu síðan fjörugar
umræður um málið. Nokkrir ljetu þá
skoðun sína í ljósi, að fríkirkja væri hið
æskilegasta fyrirkomulag. En flestir tóku
þó 1 þann strenginn, að skilnaður væri
enn ekki tímabær. Almennur áhugi fyr-
ir málinu svo lítill, en hann væri aðal-
skilyrði fyrir velfarnan fríkirkju.
2. Líknarstarfsemi. Vígslu-
biskup flutti erindi um líknarstarfsemi í
sveitum, einkum til þess að hjúkra sjúk-
um. Lýsti líknarstarfsemi í þessa átt í
Rvík og áAkureyri. Þar hefðu konur
bæjarins haldið þessu góða starfi uppi;
hvatti konur í sveitum til að gera hið
sama. — Biskup hafði leitað álits hjer-
aðslæknisins á Akureyri um þetta mál,
og las upp brjef frá honum, þar sem
hann taldi málið mjög nauðsynlegt.
Kvaðst hann mundi fús að veita stúlk-
um, er nema vildu þessi störf, jókeypis
tilsögn, um tveggja mánaða tíma, við
sjúkrahúsið á Akureyri. — Hjeraðslæknir
Jónas Kristjánsson mælti og hið besta
með þessari líknarstarfsemi, og kvaðst
fús til að veita stúlkum ókeypis tilsögn
við sjúkrahúsið á Sauðarkrók. — Þær
frú Briem á Hrafnagili og frú Margrjet 1
Brimnesi þökkuðu fyrir hönd kvenna
þessa áskorun biskupsins og tilboð lækn-
anna.
öllum teg
3. B i b 1 í u s a m t ö 1. Sr. Guðbrand-
ur í Viðvík vakti máls á því, að á hjer-
aðsfundi á Sauðarkrók hefði verið rætt
um, hvernig hægt væri að glæða kirkju-
rækni fólksins; og hefði verið samþykt
tillaga í þá átt, að prestar hjeldu trúar-
samtals-fundi eftir messu, í kirkjunni.
Áleit hann heppilegast, að framkvæmdin
væri á þá leið, að prestar hjeldu biblíu-
lestrarfundi með safnaðarfólkinu, þegar
því yrði við komið. Tóku fundarmenn
þessu vel og voru ræðumenn allir því
meðmæltir, að slfkt kæmist á.
Var nú dagur að kvöldi kominn og
fundi frestað til morguns. Safnaðarfólk-
ið bjóst til brottferðar, en prestar tóku
náttstað í hinum rúmgóðu húsum Hóla-
staðar.
, Að morgni hins 1. júlí gengu prestar
aftur til fundar, og komu fyrst saman í
dómkirkjunni til morguntíða. Sr. Þor-
steinn Briem talaði út af 1. Þess. 5, 8—24.
Því næst hófst fundurinn f skólahúsinu
nýja.
4. Nýtt og g a m a 11. Sr. Lúðvig
Knudsen flutti erindi, út af ræðu sr. Fr.
Bergmanns, er hann flutti í Rvíkur-dóm-
kirkju síðastl. sumar og nefndi: »Bjart-
sýni trúarinnar«. Mótmælti ræðumaður
sjerstaklega þeirri skoðun, að »heim-
boð« Jesú Krists (dæmisagan um hina
miklu kvöldmáltíð) væri eingöngu miðað
við þetta líf, og þeim orðum Fr. B., að
Jesús frá Nasaret hefði sjeð »guð og
kærleikann á bak við alt« (c. lfka það
illa); kvaðst ekki lengur geta fylgst með,
er menn ættu að finna guð í öllu, líka
»í syndinni«. — Út af erindi þessu urðu
allmiklar umræður og hnigu þær f þá
átt, að kirkjan hefði á undanförnum öld-
um lagt of einhliða áherslu á, að kenna
mönnum að deyja, en gleymt um of hinu,
að kenna mönnum að lifa gleðiríku lífi
fyrir kraft Jesú Krists. — Beindist talið
og nokkuð inn á mismun gömlu og nýju
stefnunnar. En þar sem fundarmenn
virtust hafa meiri áhuga á »praktisku«
starfi fyrir guðsrfki en hinum vísinda-
legu niðurstöðum guðfræðinganna, var
ekki gengið neitt verulega inn á deilu-
atriðin og engin ályktun um þau tekin.
5. Barnaguðsþjónustur. Sr.
Guðbrandur í Viðvfk leiddi athygli fund-
arins að nauðsyn þess, að prestarnir
næðu snemma tökum á barnshjartanu og
áleit, að eitt ráðið til þess væri, að halda
barnaguðsþjónustur við og við. Óskaði
ræðumaður eftir því, að heyra álit fund-
arins um það, hvernig heppilegast væri
að haga þeim. Umræður urðu allmikl-
ar og hnigu að því, hvernig slíkar guðs-
þjónustur yrðu best við hæfi barna. —
Skýrðu þeir þar frá reynslu sinni sr. Björn
í Miklabæ og sr. Þorsteinn Briem. —
Fundurinn áleit heppilegt, að prestar
hjeldu við og við barnaguðsþjónustur og
bæri sjerstaklega að leggja N.-Tm. til
grundvallar við þær.
6. Hvernig á að prjedika nú
átímum? Vígslubiskup innleiddium-
ræður um mál þetta. Hugsunin um þetta
hefði márkað djúp spor í lífi sínu sem
prests. »Mig langar til að geta sýnt
mönnum frelsarann eins dýrðlegan og jeg
sjálfur sje hann«. Lagði áherslu á, að
prjedikunin ætti erindi til lífsins, og sál-
in væri lögð inn í talaða orðið. Taldi
nauðsyn á, að breyta um hinn eldri ræðu-
búning, án þess þó að víkja frá grund-
vellinum, sem er Jesús Kristur, eins og
hann er sýndur oss í N.-Tm. — Ut af
þessu erindi biskups urðu miklar um-
ræður og innilegar, sem sýndu, hve prest-
ar eiga erfiða aðstöðu, þegar söfnuðir
sinna ekki orði þeirra frekar en nú ger-
ist alment.
7. »Kirkjan brennur*. Fyrir-
lestur með því heiti hjelt sr. Stefán á
Völlum, og gerðu menn góðan róm að
máli hans.
8. F æ k k u n k i r k n a. Sr. Björn
taldi varhugaverða niðurlagning og sam-
steypu kirkna, og færði ýmsar ástæður
fyrir því, að það hefði skaðleg áhrif á
trúarlífið og þjóðlífið.-— Ut af þvíspunn-
ust umræður um hina stórkostlegu sam-
steypur prestakalla, sem gerðu fækkun
kirkna nauðsynlega.
9. Fermingar-formáli. Um-
ræður í sömu átt og á Akureyrarfundin-
um í fyrra. Samþ. samskonar till. og þar,
Þegar öll þessi mál voru rædd, gengu
prestar að lokum til dómkirkjunnar og
áttu sameiginlega guðsþjónustu, þar sem
Geir biskup lagði út af orðunum í Jóh.
17., um, að vjer allir mættum verða eitt.
— Var þá lokið fundi þessum og var
hann góður og uppbyggilegur, þótt fá-
mennur væri. Fyrir mitt leyti fjekk jeg
feiðina vel borgaða.
Einti ctf' prestunuin.
Þessa vísu segja menn að merkur
prestur hafi kveðið einu sinni á alþingi
þegar Bjarni frá Vogi var að tala:
„Að horfa’ á hann er h............
að hlusta’ á hann er kvalræði,
að hleypa’ á hann væri heilræði,
að hengja’ hann væri snjallræði".
Annar kvað þetta:
„Að annara dómi óvitur,
að eigin hyggju spekingur
— tvístígur hann talandi
með tólgarbros á andliti".
Stöfunardeild fyrir byrjendur
held jeg áfram næsta vetur með sama
fyrirkomulagi og verið hefur við
barnaskólann í Bergstaðastræti 3, —
Jeg vildi biðja aðstandendur að gefa
sig fram sem fyrst.
Hólmfríður Porláksdóttir.
Undirrituö kennir börnum að
stafa, o. fl. ef óskað er.
Anna Magnúsdóttir,
Túngötu 2.
Bggert Claessen
yfirrjettarmá.Iaflutning8maður.
Pósthússtræti 17. Venjulega heima kl. 10—11
og 4—5. Talsími 16.
Oddur Gíslason
yfirrjettarmálaflutningsmaður,
Laufásveg 22.
Venjul. heima kl. 11—12 og 4—5
jPfyT Nýútkomin er H.enslubóli
í þykkvamálsfræöi eftir Hall-
dór Briem. 2. útgáfa. Kostar í bandi
kr. 1,25
Aðalútsölumaður: Sigurður Krist-
jánsson bóksölumaður í Reykjavfk.
Nýútkomin
Landkortabók,
í bandi kr. 1,25, fæst hjá bóksöl-
um, en aðalútsalan er í Reykjavík
hjá útgefanda
Morten Hansen.
Lyklar týndir; skilist á Baróns-
stíg 16.
Skrijtð ejtir!!!
Creme, alullar Fermingar-
Cashemir 0,75—1.00 — Prima
grátt Kjólavergarn 0,50. —
Röndótt Kjólavergarn 0,50—
0,63. — Fagurblátt, járnsterkt
Kjólacheviot 0,70. — Gott, fal-
legt, heimaofið Kjólaklæði af
ýmsum litum 0,75. — Röndótt-
ir, fallegir vetrarkjólar 0,80. —
Fagurblátt Kamgarns-Cheviot
1,00. — Svört og mislit kjóla-
tau af öllum litum 0,85—100
—1,15—1,35.
2 al. breið, góð herra-
fataefni 2,00—2,35—3,00. —
Sterk drengjaföt 1,00— Járn-
sterk grá skólaföt 1,35. —
Faguiblátt, sterkt drengja-
cheviot 1,15. Okkar þekta,
fagurbláa, járnsterka ofurhuga-
cheviot: fínt 2,00 — gróft 2,35
— prima 2,65. — Fagurblátt,
þykt pilsa cheviot 1,15. —
Fallegt, gott, svart klæði 2,00.
— Fagurblátt Kamgarns-serg-
es til fata frá 2,00. — Grá- og
grænröndótt hversdagspilsa-
efni 1,00—1,15.— Þykk kápu-
og frakka-efni 2,00—-2,35—
2,75. — Kápuplysch svart og
allavega litt. — Okkar al-
þekta, fagurbláa, jótska veiði-
klúbba-serges til herrafata og
dömufata 3,15—4,00—5,00.—
Góð Hestateppi 4,00—5,00. —
Falleg ferðateppi 5,00—6,50.
Hlý ullar-sængurteppi 3,50—
—4,00—5,00.
Vörurnar sendast burðar-
gjaldsfrítt. — í skiftum fyrir
vörur eiu teknir hreinir prjón-
aðir ullarklútar á 60 aura pr.
kíló, ull fyrir 1,00—1,50 pr.
kíló.
Jydsk Kjolekleedehus,
Köbmagergade46, Köbenh.K.
%fgf* Auglýsingum í „Lög-
rjeltu“ tekur ritstjórinn við
eða prentsmiðjan.
Stainolíu
hækkað um 5 krón
ur pr. tunnu.
ið danska steiialii-hliitaljelag.
Islands-deild.
jr*1
landi
Undirritaðir hafa tekið að sjer aðalútsölu lijer á
landi á svon'efndum
Hexamótorum
og Penia-mótorum tilbúnum af verkfræðingafirmainu
Frits Egnell í Stokkhólmi.
Mótorar þessir eru með öllum nútímaendurbólum.
Þeir eru sterkir og einfaldir, eyða lítilli olíu og brenna
hverskonar ölíu.
Verðið er töluvert lægra en á hinum algengustu —
þvi miður úreltu — mótortegundum, sem mest eru not-
aðar hjer á landi.
Þeir, sem ætla sjer að eignast nýjan mótor, ættu að
leita sjer upplýsinga um þessa, áður en þeir afgjöra kaup
við aðra. Enginn mótor hefur íleiri kosti en llexa-mót-
or; um það er hægt að íá fullkomnar upplýsingar hjá
^ug. jlygenring, og íjolger Debell,
Hafnarfirði. Reykjavík.
I
I
Bolínders mótorar
í báta og skip
eru hestir og traustastir allra mótora, og hafa orðið
hlutskarpastir keppinautar á öllum sýningum, þar sem
þeir hafa verið sýndir.
Bygging þeirra og samansetning er mjög einföld, —
meðferð öll því vandaminni og auðveldari. — Þeir eyða
minni olíu en nokkrir aðrir mótorar, og má nota til þeirra
jarðolíu, óhreinsaða steinolíu eða algenga steinolíu, eftir
vild. Þessir mótorar eru tilbúnir ýmist með breytilegum
skrúfublöðum (skiftbar propel), sem er venjulegast í fiski-
bátum, eða með breytilegum möndulsnúningi.
Verksmiðjan býr einnig til mótora til notkunar á
landi með hagfeldasta fyrirkomulagi.
Upplýsingar, verðlistar o. s. frv. fást hjá oss og hjá
umboðsmönnum vorum.
Timbur- og kola-verslunin „Reykjavík",
einkasali fyrir Island.
Umboðsmaður vor fyrir Vestfirði er:
Karl Olgeirsson faktor á ísafirði.
Miklar birgðir af
allskonar TIMBRI
hefur h|f Timbur- og
kolaversl. „Reykjavík“.
oi mefl 1S. i