Lögrétta

Issue

Lögrétta - 16.10.1912, Page 2

Lögrétta - 16.10.1912, Page 2
200 LÖGRJETTA / versiun Jóns Zoega Epli fdst margskonar ávextir: Vínber „Bananer“ Melónur Laukur og m. m. fl. Notið nú talsímann! Hringið upp nr. 128 og pantiðl ^Zarsfun dóns SEoaga, Bankastræti 14. Myndin er frá komu Zeppelins til Khafnar 19. f. m. og sýnir stjórnendabátinn á loftskipinu »Hansa« og Zeppelin sjálfan þar uppi. Skipið fór á 6 kl.tímum frá Hamborg til Khafnar. Slys á SteingrimsjirBi. I.augardaginn 5. okt. reru margir bátar á Steingrímsfjörð, en snögg- lega skall á aftaka vestanveður og urðu flestir að hleypa yfir á Selströnd; þetta fataðist þó einum og fórst hann með fjórum mönnum á. Sást það af nærstöddum bátum, að seglið rifn- aði og er mælt, að báturinn bafi laskast nokkuð um leið, og í sömu svipan veltist holskefla yfir hann og reið honum að fullu. Þeir, sem þarna druknuðu, voru þessir: formaðurinn, Sigurður Kárason, og Benedikt Sæ- mundsson, báðir úr Bolungarvík, Jón Eðvald Magnússon, unglingsmaður frá Kirkjubóli ytra í.Steingrímsfirði, og Halldór bóndi Jónsson í Miðdalsgröf í Steingr.f.; lætur hann eftir sig konu og 5 eða 6 börn ung. Að Halldóri er mikil eftirsjá; hann var prýðilega greindur maður og hag- leíksmaður á marga grein. skrifaði meðal annars svo fagra hönd, að óvíða sjest hennar líki. Hann átti líka mörg handrit í fórum sínum, því bæði var hann hagorður og vel fær að rita óbundið mál og safnaði auk þess alþýðukveðskap, hvar sem til hans náði og nokkurs var virði. Hann ljet sjer umhugað að tala og skrifa íslensku sem best, enda fór betur um tunguna hjá honum en flestum öðr- um. Halldór var enginn auðmaður, en bjó snoturlega, og vel var um gengið hjá honum utan húsa og innan. Hann naut almennings trausts og hafði á höndum trúnaðarstörf fyrir sveitarfjelag sitt. J. Th. Hóstur í ungverska þiug:> inu. Það kom saman 17. f. m. og hófust þar þegar álíka læti og sfðastl. vor, nema nú voru ekki skot- vopn á lofti. Mótsöðumenn stjórnar- innar höfðu slík ólæti í frammi, að ekkert var unt að gera; þeir bljesu í pípur og æptu að forseta, Tissa greifa, og yfirráðherranum, dr. Lukacs. Alt, sem kasta mátti, hafði þó verið borið burtu úr salnum, þar á meðal blekbytturnar. Forseti reyndi að tala, en það var ógerningur. Svo sleit hann fundinum eftir 2 tíma setu í forsetastólnum, en setti hann aftur að lítilli stundu liðinni. En alt gekk eins og fyr. Enn sat forseti í 2 tfma, en bað þá varaforseta að taka við. En það var sama. Enn var reynt að fresta fundi tvisvar, en ólæt- in hófust aftur jafnskjótt og fundur var settur. Loks þraut þolinmæði forseta og gerði hann boð eftir lög- regluliði. Ruddust þá 100 lögreglu- þjónar inn í þingsalinn. Forseti hafði skrifað upp nöfn þeirra, sem verst ljetu, og bað lögreglumennina að koma þeim út. Var fyrst farið vel að þeim, en þeir neituðu, bjuggust til varn- ar bak við borð og stóla og buðu lög- reglumönnunum þaðan byrginn. Lög- reglumennirnir sóttu eftir þeim, sem stóðu á lista forsetans, en hinir vörðu þá. Einn greip listann af lögreglum. og reif hann sundur, en hinir klöpp- uðu. Ruddust nú ófriðarmennirnir á lögregluliðið og þar fremstur í flokki Karolyi greifi, og hrukku lögreglu- mennirnir fyrir og út úr salnum. Einn af þeim kvaðst ekki leggja hendur á frjálsa þingmenn, og var mikið klappað fyrir þeim ummælum. Nú kom yfirlögreglustjórinn til og skip- aði að fyrirmælum forseta væri tafar- laust hlýtt, og var þá þingsalurinn ruddur með fjölda lögregluliðs. Karo- lyi greifi datt í þeirri viðureign og meiddist svo, að læknar urðu að taka hann að sjer. Sumir voru bundnir, áður þeim yrði komið út. Hafði þessi leikur staðið frá kl. 10 um morguninn til kl. 8 um kvöldið. Næsta dag, er forseti setti þing- fund, byrjuðu sömu lætin. Forseti frestaði þá þegar fundinum og kall- aði lögreglulið til hjálpar, og viku þá ófriðarmennirnir sjálfkrafa út úr salnum. Fundur var aftur settur eftir tíma hlje og var þá samþykt tillaga um, að útiloka ófriðarflokkinn frá Stefán Tissa greifi. þingfundum, 50 þingmenn frá 30 næstu fundum, en 10 frá 15 næstu fund- um. Síðan var fundum þingsins frestað um óákveðinn tíma. Sama dag kom út æsingagrein í blaði verkmannaflokksins, og var það gert uppfækt. Búist var við uppreisn á götunum um kvöldið, en úr því varð þó ekki. Lætin eru út af kröfu um almenn- an kosningarrjett og hófust í vor, er helsti mótstöðumaður þeirrar kröfu, Stefan Tissa greifi, var gerður for* seti þingsins. Kosningalögunum var slegið á frest, en stjórnin fjekk sam- þykt ný herskyldulög, sem mótflokk- ur hennar vildi láta bíða þar til af- gert væri um kosningarjettinn. Stjórn- in hefur fylgi meiri hluta þingsins, en það er minni hlutinn sem róst- urnar gerir. Tyrkir og- ítalir. Það geng- ur enn í þófi milli þeirra um friðar- samningana. Stjórn ítala vill ekki frá þeirri kröfu falla, að Tyrkir viður- kenni fullveldi Ítalíu yfir Trípólis, en það kveðst Tyrkjastjórn ekki geta gert, því með því ætti hún á hættu, að Arabar risu upp alstaðar annar- staðar í ríkinu með árásum gegn sjer fyrir það, að hafa að nauðsynjalausu selt landið af hendi, meðan lands- menn sjálfir hjeldu þar vörnum uppi. Aftur á móti hefur Tyrkjastjórn boð- ist til að taka samskonar fyrirkomu- Iagi og nú er á stjórn Egyftalands. Tyrkneskur kediv skuli að nafninu til stjórna landinu, en ítölum skuli heimilt að hafa þar her til gæslu. Egyftaland er enn að nafninu tyrk- neskt land og kedivinn þar er land- stjóri soldánsins í Konstantínópel, en Kitchener lávarður, sem í reyndinni stjórnar landinu fyrir hönd ensku stjórnarinnar, kallast aðeins stjórnar- umboðsmaður eða aðalkonsúll Eng- lands. Svo hefur verið þar lengi, og Englendingar sækjast ekki eftir neinni opinberri viðurkenningu frá Tyrkja- stjórnar hálfu á fullveldi yfir Egyfta- landi, en láta sjer nægja að hafa það í reyndinni, og líkt er um Frakka í Túnis. Það þykir því líklegt, að Italir verði að sætta sig við að taka þessu boði Tyrkjastjórnar. Annars hefur verið gert ráð fyrir því í friðarsamningunum, að Ítalía borgi til Tyrklands fyrir þá lands- hluta, sem hún gerir tilkall til að fá umráð yfir, en hefur eigi tekið með hervaldi, gjald, sem afborgist á 66 árum. Svo hefur verið gert ráð fyrir lánsútvegun handa Tyrklandi, 600 milj. líra, og taki þá Ítalía að sjer ábyrgð á IOO milj. af því. Enn- fremur að Arabar í Trípólis haldi fullkomnu trúarbragðafrelsi og að ítalir skili aftur eyjum þeim, sem þeir hafa tekið í Grikklandshafi. Ilervarnir ISreta og ný- lemlur þeirra. Borden, hinn nýi stjórnarformaður Kanada, hefur í sumar verið í heimsókn í Lundún- um og hefur farið mjög vel á með honum og ensku stjórninni. Nú er hann kominn heim og hefur 1 ræðu, sem hann hefur haldið nýlega, mælt mjög vingjarnlega til Bretlands. Sagði hann, að þrátt fyrir fjarlægð- irnar væri móðurlandið og nýlend- urnar eins og óskift heild, er til þess kæmi að halda uppi valdi og áhrif- um hins bretska ríkis. Það, sem um hefur verið rætt, er þátttaka nýlendanna í hervörnum ríkisins, hver hún skuli vera og hvernig henni skuli háttað. Nú segja síðustu fregnir íútl. blöðum, að Borden fylgi því fram að Kanada styrki enska flotann með því að leggja til 3 stórherskip, og sama styrk, eða enn meiri, vilji Ástralía leggja fram. j'lýjustu striðsjregnir. Grikkland tekur Krítey. Símað er frá Khöfn í gærkvöld: „Grikkland hefur lýst yfir, að það taki Krítey. — Hernaðarástand í reyndinni komið á". í síðustu útlendum blöðum er þess getið, að þingmenn frá Krítey sjeu komnir til Aþenu og muni nú fá sæti í gríska þinginu. Hefur það vetið fyrirboði þess, sem skeytið segir frá. Björnstjerne Björnson. Gylden- dals bókaverslun er nýlega byrjuð á útgáfu af úrvali úr ræðum hans og blaðagrcinum. Þetta úrval á að koma út í 35 heftum og kostar hvert um s g 30 aura. Formála fyrir þessu verki hefur J. E. Sars prófessor skrifað. Fellibylur í Japan. Seint í síð- a ,tl. n.ánuði kom slfkur fellibylur í J pan, að menn segja annan slíkan ckki hafa komið þar á síðustu 50 árum. Tjónið er gífurlegt, áætlað um 40 milj. yena. Hús og skip hafa brotnað í þúsur.dum og fjöldi manna mist lífið. Skotið á Roosevelt. Símað er frá Khöfn í gærkvöld, að Roosevelt hafi verið skotinn í brjóstið úr skammbyssu af sósíalista og særður, en sárið sje þó ekki hættu- legt fyrir líf hans. Kuud ISorlin prófossor skrifar nú hverja greinina eftir aðra í dönsk blöð um íslensk stjórn- mál, og snýr sjer af öllum mætti gegn Sambandsflokknum. Tvær grein- ar eru eftir hann í „Pólitiken«, frá 16. f. m. og 5. þ. m., og ein í »Riget«, frá 23. f. m. í greininni í „Riget" hefur hann alveg endaskifti á sannleikanum þar sem hann segir frá rökstuddri dag- skrá alþingis um frestun stjórnar- skrármálsins. Hann skýrir með mestu nákvæmni frá, hvernig á því standi, að úr henni hafi verið feld klausa um það, að nýjar samningaumleitanir við Dani skyldu fram fara á grund- velli sambandslaganefndarfrv. frá 1908. Segir, að meiri hlutinn hafi orðið að gera þetta vegna þess, að það hafi verið heimtað af minni hlutanum. En alt er þetta sannleikanum gagn- stætt. Rökstudda dagskráin mun vera prentuð orðrjett í flestum ís- lenskum blöðum, eins og hún var samþykt (Lögr. 44. tbl.), en hún var samþykt með þeirri klausu sem K. B. segir að úr henni hafi verið feld. Við þessa frásögn sína styður hann svo tilgátur um það, hver vera muni stefnuskrá hins nýja Sambands- flokks. Greinin í „Pólit." frá 16. f. m. virðist helst vera skrifuð með því markmiði, að vara konunginn við því, að koma ekki eins fram í ís- landsmálum og faðir hans hafi gert. í síðari greininni mælir K. B. fast fram með jarlshugmyndinni. Roald Amundsen heimskautsfari lítur nú svona út. Hann fer nú land úr landi og flytur fyrirlestra um suðurheimskautsförina. Járnbraut yfir Sahara. NefnJ, sem haft hefur það mál til rar.n- sóknar, hvort gerlegt væri að leggja járnbraut yfir Sahara, hefur nýlega komið fram með álit sitt, og telur þetta ekki ógerlegt, en mjög dýrt. Verði brautin lögð, sameinar hún eignir Frakka í Norður-Afríku og Mið-Afríku. Noregs saga. Af hinni miklu Noregs sögu, sem H. Ascehoug forlagið er að gefa út og jeg mintist eitt sinn á í Lögr., eru nú komin út 74 hefti, og er þá helmingnum af henni lokið; það eru 6 hálf bindi, því að hvert bindi er í tveim hlutum. Fyrsta bindið, eftir prófessor Alexander Bugge, er alt komið út og nær fram til 1030. Fjórða bindið, sem nær frá 1537 1660, eftir prófessor Yngvar Nielsen, er einnig alt komið út. Þá er fyrra hlutanum af fimta bindinu, um ein- veldistímann fram til 1746, eftir dr. Osc. Alb. Johnsen, einnig lokið, og síðari hlutinn af seinasta bindinu, um árin 1885 til 1905, eftir prófessor J. E. Sars, var eitt af því, sem fyrst kom út. Þetta ágæta rit er líka vandað að öllum ytra frágangi og með mörgum góðum myndum og uppdráttum. Alt á það að verða komið út 1914, þá er Norðmenn halda 100 ára stjórnar- skrárhátfð sfna. B. Th. M. Þóröur Edílonsion læknir og frú hans, Helga Benediktsdóttir Gröndals, komu heim úr utanlands- för í fyrra kvöld og höfðu verið í þeirri ferð 4 mánuði. Fyrst í Khöfn, og gekk hann þar á spítala um hríð. Fóru þau svo til Þýskalands og voru í Berlín 10 daga. Þá til Svfþjóðar og voru þar viku. Nú síðast voru þau aftur í Khöfn. í Svíþjóð voru þau nokkra daga hjá síra Júlíusi Þórðarsyni. Honum lfður mjög vel, og hann er vinsæll og í góðu áliti. í Berlfn hittu þau Pjetur Jónsson söngvara. Hann er þar við eitt af stærstu leikhúsunum og hefur komið þar fram hvað eftir annað í litlu hlutverki, en býst nú við stærra hlutverki innan skamms. Laun hans eru nú í byrjuninni 300 mrk. á tnán- uði. En kennarar hans láta mjög vel af söng hans. Hann var eitt sinn fenginn til þess að syngja í grammófón 12 ísl. sönglög og fjekk fyrir það 300 mrk. Kveðst Þórður læknir búast við að Pjetur eigi góða framtíð fyrir höndum þar syðra. í Árósum hittu þau hjónin Svein- björn Sveinbjörnsson kennara og er hann þar í miklu áliti. Hann er nú meðal annars kennari barna konungs- ins í frönsku og ensku. Það segir Þórður Iæknir, að Jó- hann Sigurjónsson hafi nú fengið nýtt leikrit tekið á Dagmarleikhúsinu, en nafn á því veit hann ekki. Fjalla- Eyvind á að fara að leika í Krist- janíu og ef til vill í Þýskalandi. Alþjóðaþing i Qenf. Þar var 17. alþjóðaþingsamkoman háð í síðastliðnum mánuði og voru þátttak- endur 170, stjórnmálamenn frá ýms- um löndum, þar á meðal 40 frá Norðurlöndum. Þessi fundur átti að haldast í Róm 1 fyrra, en fórst fyrir vegna þess að þá var þar kól- erusýki. Síðan hafa ítalir sagt upp þátttöku í þessum þinghöldum vegna opinberra ummæla frá milliþinga- stjórn þeirra um stríðið milli Ítalíu og Tyrklands, en þau ummæli þótt- ust ítalir ekki mega þola. Milli- þingastjórnin var komin saman í París 4. okt. í fyrra og samþykti þá ályktun í þá átt, að það Ijeti í ljósi; aðfinslu út af því, hve skyndilega ítalir hefðu ráðist í þetta stríð, svo að utanaðkomandi áhrif til friðarum- leitana hefðu ekki komist að. f milliþingastjórninni er meðal annara Fr. Bajer frá Khöfn. Aðalviðfangs- efni þessara funda eru reglur fyrir samningum milli ríkja og alþjóða- friðarmál. í þetta sinn var aðalum- ræðuefnið um gerðardóma milli ríkja.. Einn af þeim, er ræður fluttu þæ,- var Hagerup sendiherra Norðmanna í Khöfn. Stríðskostnaður Tyrkja f Ítalíu- stríðinu var sagður seint í fyrra mán*- uði alls orðinn 167 milj. kr.

x

Lögrétta

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lögrétta
https://timarit.is/publication/196

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.