Lögrétta - 19.11.1913, Blaðsíða 4
196
L0GRJETTA
Reykj avík.
Slys. Síðasti. raánudag fjell stúlka,
Dýrleif Guðmundsdóttir að naíni, út
um glugga á 3ja lofti í húsinu á
Bergst.str. 45. Hún hafði verið
veikluð á geðsmunum og mun hafa
fleygt sjer út í einhverju óráðskasti.
Lftið sá á henni eftir byltuna, en þó
dó hún eftir 2 kl.st. Hefur laskast
innvortis.
Fálkino fer hjeðan á morgun til
Danmerkur.
Hnífstungur. Ryskingar höfðu
orðið milli nokkurra Fálkamanna og
íslendinga inni á kaffihúsi síðastl.
laugardagskvöld út úr ísl. fánanum,
að því er dagblaðið „Vísir" segir frá.
Hafði einn Fálkamanna, er leikurinn
barst út á götuna, stungið íslenskan
mann, Pálma að nafni Pálmason, með
hnffi í handlegg, tvær stungur, og
varð hann alluiikið sár og leitaði
þegar til læknis. En lögregluþjón*
arnir komu til og stiltu til friðar.
Dáin er hjer í bænum síðastl.
laugardagskvöld frú Guðrún Guð-
mundsdóttir ekkja Ólafs sál. Ólafs-
sonar bæjarfulltrúa frá Lækjarkoti.
Staka.
Sendið aura, líkn og lið
leggi hver, sem getur;
en fyrir það allra fremst jeg bið,
að fleygja þeim ekki’ í Pjetur.
Á r v a k u r.
Bónorð8baga. Það er sagt að
jungfrú Landvörn hafi nýlega fengið
svohljóðandi bónorðsvísu frá einum
pólitiskum lausamanni:
„1 mjer fjandi heitt er.....ið.
Helst vil jeg við sjeum eitt.
Heimti landið högg á bandið,
hjartanlega skal það veitt“.
ísaf. og L. H. B. Björn Krist-
jánsson hefur verið að reyna nú að
undanförnu að koma þeim í kunn-
ingsskap hvoru við annað, launvini
sínum L. H. B og fósturdóttur
sinni, ísaf.. Eftir Fram-fundinn 1. þ.
m. komst þetta svo langt, að L. H.
B. heimsótti meyna og fjekk að kyssa
hana, á 3ju sfðu. En er aðrir piltar,
sem vingott hafa átt við hana, fóru
að verða hræddir um hana fyrir L.
H. B., gerði hún opinbera afsökun
sfðastl. laugardag og segir, að það,
sem hún hafi lofað L. H. B„ sje ekki
annað en það, sem hún lofi öllum.
Yeðdeildarlögin nýn. Grein um
þau, frá Jóh. Jóhannessyni kaupm.
svar til bankamanns f ísaf., bíður
næsta blaðs vegna þrengsla.
Frí IjallÉdi til iiiðiL
Mannslát. Símað er frá Búðum
í Staðarsveit 17. þ. m. að merkis-
bóndinn Brandur Jóhannesson í Bárð-
arbúð við Hellna í Breiðavíkurhreppi
sje nýlega dáinn; hafði hann verið
að bjarga bát undan sjó, en brim
var. Lfkið ófundið enn.
Árangnrinn af nýja sfeola-
íyrirlcoinulagiiiu. Ummæli
háskólaprófessoranna um þetta
efni, sem frá var skýrt í 52. tbl.
Lögr., hafa vakið hreyfingu og
mótmæli, einkum frá kennurum
hinna almenna mentaskóla í Dan-
mörku. Á ársfundi þeirra, sem
haldinn var 20. okt., var málið
tekið til umræðu. Þar voru við
staddir ýmsir af háskólaprófess-
orunum, kenslumálaráðherrann
o. fl., er ljetu sig þetta mál varða.
Urðu miklar umræður bæði með
og móti. Otto Jespersen prófessor
tók eindregið í strenginn með
stúdentunum og móti prófessor-
unum. Hann sagði, að ef hann
ætti nú að byrja skólanám og
velja í milli gamla kenslufyrir-
komulagsins og hins nýja, tæki
hann hiklaust hið síðarnefnda.
»Stúdentarnir læra nú miklu
betur en við gerðum ýmislegt,
sem að notum má koma í lífinu«,
sagði hann. Einn af rektorunum
sagði, að oft hefði áður kveðið
við frá eldri mönnum sá dómur,
að stúdentamentunin væri i aftur-
för; sagðist hafa útskrifast með
ág.-einkunn í grísku og latínu,
og þó hefðu háskólaprófessorarn-
ir kallað sig og aðra, sem komið
hefðu til þeirra'með sama vitnis-
burði frá latinuskólunum, »alveg
þekkingarlausa«. Sumir báru sak-
ir á háskólakennarana, kölluðu
kensluna hjá þeim spilla því
verki, sem mentaskólarnir hefðu
unnið. »Prófessorarnir eru ekki
stúdentunum svo kunnugir, að
þeir hafi rjett til að fella yfir
þeim nú þegar svo harða dóma«,
sagði einn kennarinn. »Jeg lái
stúdentunum ekki, þó þeir komi
ekki á heimspekisfyrirlestrana,
því eins og þeim er nú háttað,
eru þeir hrein og bein óhæfa
fyrir háskólann. Ef prófessorun-
um finst illa vandað til stúdent-
anna, sem við sendum þeim, þá
get jeg með fullum rjetti sagt, að
það sje illa vandað til kennar-
anna, sem þeir senda okkur.
Prófessorarnir ættu ekki að kasta
grjóti; þeir búa sjálfir í glerhúsi.
Þeir ættu heldur fyrst og fremst
að hreinsa fyrir sínum eigin dyr-
um«. I. L. Heiberg prófessor
hjelt fram kostum eldra kenslu-
fyrirkomulagsins. En yfir höfuð
kom það fram, að enn væri of-
snemt að dæma um árangurinn
af nýja kenslufyrirkomulaginu,
þar sem aðeins væru 3 ár síðan
fyrstu stúdentarnir hefðu útskrif-
ast, sem þeirrar kenslu hefðu
notið, og enginn þeirra hefði enn
sýnt sig við próf.
Hermann Stoll á Spitsbergen.
Dr. H. Stoll, sem kunnur er hjer af
ferðum sínum á undanförnum árum,
var síðastl. sumar á Spitsbergen.
Hann hefur fundið þar stóran, ís-
lausan dal sunnan til í landinu, og
virðist svo af frásögninni sem dalur
sá hafi ekkí áður verið kunnur. Dal-
urinn var vaxinn mosa og grasi,
og blóm voru þar jafnvel einnig.
Þar var fjöldi hreindýra og svo leit
út sem stöðugt rensli væri af hrein-
dýrum frá vesturströndinni yfir í
Adventdalnum á austurströndinni.
Dalur þessi á að fá nafn eftir dr. H.
Stoll.
Stórt minnismerki var afhjúp-
að við Leipzig 18. okt. í haust til
minningar um hina frægu orustu,
sem þar var háð fyrir 100 árum,
16.—19. okt., og endaði þannig, að
Napoleon mikli beið þar ósigur.
Minnismerkið er griðarstór turnbygg-
ing, sem kostað hefur 6 milj. marka.
Jeppi á Fjalli í Kristjaníu.
Hann var leikinn í Nýnorskuleikhús
inu þar í haust og hafði til þess
verið þýddur á landsmálið. En nem-
endur frá verslunarskólanum þar í
borginni höfðu tekið sig saman um
að gera uppþot á leikhúsinu. Urðu
út af þessu áflog á áheyrendabekkj-
unum. Málmennirnir höfðu verið við
þessu búnir og stráðu pipar í augu
óróaseggjanna. Svo komu hnífar á
loft og ýmsir voru bornir í burtu
sárir. Jeppi var í rúmi barónsins
meðan á þessu stóð. En hlje varð
á leiknum um hríð, meðan verið var
að koma óróamönnunum út.
»Verdens Gang«, eitt helsta blað-
ið í Kristjaníu, var í haust selt, eftir
kröfu frá skuldheimtumönnum blaðs-
ins, fyrir 50 þús. kr. Fyrri eigend-
ur höfðu lagt í blaðið 400 þús. kr.
hlutafje og síðan bætt þar við nokk-
urri lúlgu, en alt var þetta fje upp-
jetið. Það er hlutafjelag, sem hefur
keypt blaðið, og sá, er nú tekur
við ritstjórn þess, heitir Oppedal,
frá Þrándheimi.
Cordósamálið. Símað er frá K.-
höfn í gær, að dómur sje fallinn í
máli Cordosa-feðganna og þeir báð-
ir dæmdir til betrunarhússvistar.
Gjaldkeramálið. Um embættis-
rækslu Landsbankastjóranna í sam-
bandi við það mál, mun frekar verða
rætt < Lögr. bráðlega.
Bíó-kaffihúsið
(inngangur frá Bröttugötu) mælir
meö sínum a la carte rjettum,
smuröu brauöi og miðdegismat.
Nokkrir menn geta fengiö hús-
næði og fæði. Sími 349.
Virðingarfylst.
Hartvlg Nielsen.
Uassagelæknlr
Guðmundur Pjetursson.
Heima kl. 6—7 e. m.
Spítalastíg 9 (niðri). Sími 894.
Frossen Laks, Helleflynder, Lam,
Saltet Lam, Sild.
Et i disse Artikler indarbejdet Agentur-
firma önsker at repræsentere islandske
Exportörer for direkte Salg efter forud
optagne Ordrer mod kontant Betaling.
Ingen Itisiko. Intet Kommisionssalg.
Billet, mrk. Island 9282 modtager
Waldemar Jacobsons An-
nonce-Expedition. Köben-
havn.
ÁRNI EIRÍKSSON,
Austurstræti 6.
MeA e/s »Ceres«, »NorrejyIIand« og »Sterling« eru komn-
ar nýjar birgðir af alskonar
Vefnaðarvöru og Prjónavöru
og öðrum vörum, sem verslunin ætíð hefur.
Ennfremur er verið að taka upp Jólavörurnar: Jóla-
gjafir, Nýársgjafir, leikföng og Jólatrjeskraut, sem alt kemur á
Jólaliasarimi i vikunni.
Jólatrjen eru komin.
OTTO M B NSTED'r
dartsfca sm^örliki er best.
um tc^unbirnar
„0m”„Tip-Top”„5va^c”c%a
Smjörliki& frd:
Otto Mönsted Vf.
4.
Kauj:mannahöfn oq /Irojum
i öanmörku.
Vjer ^reiðum t>r\£c\r\ toll
af efnivörum vorum og hjá oss er því verðid lægst
eftir gœðum. Biðjið þess vegna um
Súkkulaði »s Kókóduft
„SIRIUS“,
frá
Frihavnens Chocolade-
& Cacaofabrik.
Sfirifstofa
9
Eimskipaljelag Islands,
Austurstrœti 7. Opin kl. 5-7.
Talsími 409.
s
S. C. JCraul
Forsendelseshus
(útsendingahús)
Horsens
sendir ókeypis öllum
skrautverðskrá sína.
Talsími 801.
Oddur Gíslason •
yfirrjettarmátaflutnlngsmaður,
Lanfásveg 22.
Venjul. heima kl. n—12 og 4—5.
Vátryggið «,£. í „Geaeral".
Varnarþing í Reykjavík. — Stofnsett 1885.
Sig Thoroddsen.
Heima 3—5. Talsími 227.
Eiríkur Einarsson,
yfirdómslögmaður,
Laugaveg 18 A. (uppi). Tals. 433.
Flytur mál fyrir undirrjetti og yfir-
dómi. Annast kaup og sölu fast-
eigna. Venjulega heima kl. 12—1
og 4—5 e. h.
J6. jtiagnns (iim) Ixknir,
sjerfræðingur í húðsjúk-
dómum.
Viðtalstími kl. 9—11 árdegis.
Kirkjustræti 12.
Dannet dansk Dame,
dygtig til Madlavning, Haandarbeide
og al Husgerning, soger Stilling i
Reykjavik. Vedkommende har Præ-
liminæreksamen, taler Engelsk og
Tysk, vil gerne tage sig af Bern og
læse med dem. Man bedes skrive til
Frk. Jensen, Sönder Boulevard 941
Eobenhavn.
Eggert Claessen
yfirrjettarm&lafiutnlng8maður.
Pósthó88trætl 17. Venjulega heima kl. 10—II
og 4—5. Talsfml 16.
sekúndunni er kölluð L, lengd stýflu-
kantsins í sentímetrum B, (bunu-
breiddin), og vatnsdýptin á hælnum
d, er reglan táknuð þannig:
BxdxVd
— So
Það sem erfiðast kann að þykja í
þessum útreikningi, er að draga út
kvaðratrótina. Þó er það ofur ein-
falt, jafnvel fyrir þá, sem hafa ekki
lært þá reikningsaðferð, því að hjer
er aðeins að ræða um kvaðratrótina
af vatnsdýptinni, tölu sem við mæl-
ing lækja og smávatnsfalla naumast
er nokkurntíma stærri en 30. En kvað-
ratrótin af dýptinni er sú tala, sem marg-
földuð með sjálfri sjer gefur dýptina.
Ef dýptin t. d. er 25, þá er kvaðrat-
rótin af dýptinni 5, af því að 5 X 5
er 25. Sje dýptin 36, verður kvað-
ratrótin 6. Liggi dýptin á milli 25
og 36 sentímetra, þá er kvaðratrótin
Kka á milli 5 og 6, og má fljótlega
finna, með því að prófa sig áfram,
hvað hún er hjer um bil, t. d. fyrsta
desímalinn á eftir heilu tölunni 5 í
tugabroti því, sem táknar kvaðrat-
rótina, og það er nógu nákvæmt að
taka fyrsta desímalinn aðeins með.
Sje t. d. vatnsdýptin 31, finnum
vjer að 5,5 X 5,5 er nokkru minna
en 31, en 5,6X5,6 nokkru stærra
en 31, og notum vjer þá töluna 5,5.
Dæmi upp á útreikning lítratöl-
unnar: Stýflukanturinn sje 150 sm.
að lengd, vatnsdýptin á hælnum 16
sm. Vjer byrjum með því að finna
kvaðratrótic a af 16, og er hún 4.
Því næst margföldum vjer: 4X16
eru 64, ©g 64x150 eru 9600, og
loks eru 9600 deilt með 50 sama
sem 192. Þarna renna þá 192 lítrar
á hverri sekúndu. Að framan var
gefin sú regla, að hestaflatalan finst
með því að margfalda metratölu
fallhæðarinnar með lítratölu vatns-
megnsins og deila útkomunni með
100. Setjum nú að í læk þeim, sem
þetta dæmi er tekið af, megi fá 5
metra fallhæð. Þá verður hestafla-
talan.
- ^ 1 9 6 hestöfl.
100
Þessi lækur nægir þá hverju heim-
ili, enda er hann fremur stór, eftir
því sem bæjarlækir garast, en aftur
er fallhæðin, 5 metrar, mjög lítil
eftir því sem hjer tíðkast.
Annað dæmi: Lengd stýflukants-
ins (bunubreiddin) er 75 sm., vatns-
dýptin niður á hælinn 10 sm. Kvað-
ratrótin af 10 er h. u. b. 3,1, og
svo set jeg upp:
Lttratalan er 75x10x3,1
so
= 46,5 lítrar.
Til þess að menn þurfi nú ekki
að fælast útreikning þennan á lítra-
tölunni, set jeg hjer loks töjiu, sem
má finna Htratöluna í, eftir mismun-
andi bunubreidd og dýpt.
Til þess að taflan verði notuð,
þarf Iengd stýflukantsins (bunubreidd-
in) að standa á 25 sm., og er ávalt
hægt að haga því svo. Þá er taflan
notuð þannig, að farið er í þann
dálkinn, sem rjetta bunubreiddin
stendur yfir, og niður eftir honum
uns komið er í línuna, sem rjetta
vatnsdýptin stendur framan við. T.
d. ef stýflukanturinn er 150 sm., og
dýptin á hælnum 16 sm., þá flnn-
um vjer beint niður undan 150 og
Lítratala á sekúndn.
3 *» 3 Bunubreiddin í sm.
W ó. 3 3' 25 50 75 100 125 150 175 200 225 250
4 4 8 12 16 20 24 28 32 36 40
G 7,3 14,7 22 29 36 44 51 58 66 73
8 11,3 22,b 34 45 56 68 79 90 102 113
10 15,8 32 47 63 79 95 111 126 142 158
12 20,8 42 62 83 104 125 146 166 187 208
14 20,2 52 78 105 131 157 183 210 236 202
16 32 64 96 128 160 192 224 256 288 320
18 38,2 76 114 153 191 229 267 306 344 382
20 49,8 100 149 199 249 299 349 398 448 498
beint aftur undan 16 töluna 192,
sem er lítratalan. Ef dýptin hefði
nú ekki verið, 16 heldur 15 sm , þá
er lítratalan minni en 192, en meiri
en 157, sem svara til dýptarinnar
14 sm.; liggur þá lítratalan hjer um
bil mitt þar á milli, eða sem næst
175 lítrum.
Sjeu menn nú hvorki vissir í að
reikna út Ktratöluna, eða flnna hana
eftir töflunni, er til þriðja ráðið ó-
brigðult, og það er að skrifa ein-
hverjum verkfræðingi sem kann þetta,
segja honum bunubreiddina og dýpt-
ina, og fá hjá honum útreikninginn.
Aðferð þessi, sem hjer hefur verið
lýst, til þess að mæla vatnsmegnið,
er ekki nákvæm, en hún er í flest-
um tilfellum handhægasta aðferðin,
og nægilega nákvæm til þess að
gefa rjetta hugmynd um nothæfi
lækja. Ef mælingin á að vera mjög
nákvæm, verða bæði reglurnar um
útbúnað stýflunnar og útreikning
Ktratölunnar svo margbrotnar, að
menn mundu verða hræddir við þær
ef jeg setti þær hjer. En það sem
hjer hefur verið sagt, vonast jeg til
að menn skilji þegar þeir hafa lesið
það tvisvar.
Ef lækjarfarvegur er nokkurnveg-
inn jafnbreiður og jafndjúpur á dá-
litlum kafla, má einnig finna vatns-
megnið með því að margfalda sam-
an þverflatarmál vatnsins í ferdesi-
metruni ogíhraða^þess á hverri sek-
úndu ,í desímetrum. Þá kemur út
Iítratalan á hverri sekúndu. En þessi
aðferð er venjulega miklu ónákvæm-
ari en sú aðferð, sem lýst var hjer
að framan, og lýsi jeg henni því ekki
frekar.