Lögrétta

Eksemplar

Lögrétta - 11.03.1914, Side 4

Lögrétta - 11.03.1914, Side 4
50 L!0GR’JETTA JOuóvig Jlnósrsen ÆirRjusírœti 10. Stærsta úrval í bænum af cXafaefhum. Nýtt með hverju skipi. 50 aura gelur Klæðaverksraiðjan „Tðunn“ pundið af livítri, góðri og vel þurri haustull. Verð á aniuiri ull þnr eftir. Sjömsnn! Óskað er eftir tilboði frá duglegum manni til að taka að sjer formensku á vjelarbát til að reka eftirlit úr landi með fiskiveiðum i Garðsjó, frá 1. apríl til 20. des. næstkomandi. Ætlast er til að formaðurinn ráði vjelarmann og háseta og kosti sig og þá að öllu leyti. Einnig er ætlast til að hann megi stunda fiskiveiðar á eftirlits- svæðinu og eigi allan afla sinn, þó svo að ekki komi í bága við eftirlitið og á þann hátt, sem nákvæmar verður samið um. Tilboð óskast komið fyrir 25. mars til Þórarins Böðvarssonar verslunarstj. í Geröum. INSTED^ dan^Ra smjörliki er besf. wm tegunfeirnar „0 rn” „Tip-Top’9„5vai e ” „Lquc” Smjörlikib fce^t frd: Otto Mönsted Kaupmönnahöfn 03 /íro^um i öanmörku. Um fánann. Einhver S. P. ritar um hann í 56. tbl. Lögr. f. á. og segir meðal annars, að „íslendingum væri það lítill sómi, ef þeir ekki gætu komið sjer saman um, hvernig þessi „blessaður dúkur á að vera að lit'. Ennfremur vill hann „benda mönnum á þann sannleika, að hvernig sem gerð fánans yrði, mundi hann niðjum vorum jafnhelg- ur og ástfólginn; þeir mundu aldrei finna til neinnar óánægju út af lit eða lögun á fána sínum". Þetta, sem S. P. segir, er ekki óalgengt hugsunarleysi. — .Það er ekki sopið kálið, þótt í ausuna sje komið". Eins er það með fánamál okkar. Við megum ekki kasta til þess höndunum, að velja okkur fána, og ættum við að hljóta sæmd af honum, þar sem hann blaktir, en ekki það gagnstæða. Við eigum sögu, íslendingarnir, með okkar eigin menningu og sjer- kennum, sem ávalt skipar okkur í þá heild, sem við erum fæddir í. ög með mörgum myndum úr lífi annara þjóða höfum við fegrað okk- ar fámenna hóp, með því að velja það, sem hefur átt við okkur, og höldum áfram að gera það. Nú er komið að okkur að velja okkur fána. Hinar Norðurlandaþjóð- irnar hafa flestar valið sína fyrir löngu, og það á bernskualdri þjóð- lífs þeirra, og þó eru þeir fallegir fánarnir sumir hverjir. Ættum við nú, íslendingarnir, loksins, þegar Ijós- geislinn nær til okkar, að bregða við höllum lófanum, taka bara eitthvað af handahófi? Höfum við ekki haft minst tvö merki áður — fugl og fisk, höfði og hrygg rændan? Erum við ekki óánægðir með þau merki? Og voru það þó ekki þeir dánu, sem gáfu okkur þau? Ættum við ekki að læra nokkuð þar af, og búa þann nýja svo úr garði, að honum yrði ekki ekki raskað, að hann stæðist dóm niðja vorra? — Svo mikla menn- ingu ættum við að eiga nú, og þykj- umst eiga, að við ættum að geta gert verk okkar öll þannig, að þau bæru á sjer þjóðernismerkið fram og upp, en ekki aftur á bak — einnig f þessu örlitla spori, að skapa okkur fána, sem væri jafnfallegur öðrum þjóðarfánum, nema fegri væri, í staðinn fyrir að breyta annara þjóða fánum og aflaga þá, eigum við að leita að honum i okkar eigin þjóðarsál, og hljótum að finna hann þar. Að einu leyti má segja að við stöndum ver að vfgi en þjóðir þær, sem hafa valið sjer fána fyrir löngu. Það er ekkert eftir handa okkur af þessum fallegu, einföldu merkjum, og við getum heldur ekki breytt þeim svo, að þau verði fallegri en þau eru. Bláhvfti fáninn, sem allir þekkja nú orðið svo vel, er ekki okkar, þó að litirnir sjeu það; það er búið að velja hann löngu á undan okkur. Við vitum það nú. Það er bara lftið dæmi, er sýnir, að allir eiga nokkuð af sömu litunum, sömu fegurðinni, hvort sem það er einstaklingur eða heil þjóð, og sjáifsagt hafa þeir ekki vitað það þá, sem báru hann fram, bláhvfta fánann, að hann var staðar- fáni suður á Balkan. Faninn okkar á að vera svo sjálfstæður sem mögu- legt er, og hlutlaus út á við; við verðum þvf að leita að honum hjá okkur sjálfum meira en gert hefur verið hingað til. Það eru til dulræn merki frá löngu liðnum öldum, sem höfðu sfna sjer- stöku merkingu, eftir þvf, hvernig þeim var snúið, og þvf meira gildi hafa þau af þeim, sem um leið eru stærðfræðisleg undirstöðuatriði flat- ar- og rúmmálsfræðinnar, svo sem þrfhyrningur, og margskonar marg- hyrningar; einnig eru rúnir og vopnamerki; mætti reyna að stilla þessum merkjum saman á ýmsa vegu, og helst samkynja merkj- um f hvern feld (annars er hætt við, að hann yrði of laus) og svo mörg- um eða fáum, sem hægt er að kom- ast af með, og hvert með sínum lit, og þannig, að bæði litir og lögun merkjanna haldi eðli sfnu, þegar þeim er blandað saman, og láta þau ganga hvert upp í annað eftir stærðfræði- legum lögum — þangað til feldurinn er þakinn, eins og maðurinn, sem býr hann til, vill hafa hann.— Merk- in má tengja og hnýta saman eftir þvf, hvernig Iiggur f þeim, en aldrei á þann veginn að þau missi jafn- vægi sitt — eða svo mikið að þau týni sfnu upprunalega eðli*). Liti finnur hver sá, er reynir, og þeir eru margir f fslenskri náttúru, og f sálarlífi okkar, og ótrúlegt væri, ef við leituðum lengi og vel hjá okk- ur sjálfum, — þegar við nú vitum, að við megum ekki nota t. d. bláhvfta fánann og sjálfsagt einnig ekki nokkra aðra, — að við ekki fyndum eitthvað jafn-fallegt þessum forboðnu. Að fáninn yrði dýrari eftir þvf sem hann verður fjölbreyttari, er svo eðlilegt, og ætti það ekki að vera næg mótbára gegn honum, ef hann einungis yrði fallegur og við okkar hæfi. Jóh. S. Kjarval. * * * Aths. Grein þessi er skrifuð áð- ur en höf. er kunnugt um skipun fánanefndarinnar. En sú nefndar- skipun hefur sýnt bæði honum og öðrum, að stjórninni er ant um, að gerð fánans takist sem best, og mega menn vel bera fult traust til fánanefndarinnar f þessu, enda hafa líka blöðin hjer orðið vel við áskor- un hennar um, að leggja niður þræt- ur um fánagerðina meðan nefndin sæti að störfum. En grein þessa virtist Lögr. samt rjett að birta, þar sem hún er frá einum málaranum okkar. Höf. er f Khöfn, og greinin er þar skrifuð, en birting hennar hefur dregist nokkuð. Ritstj. Fjölnytjahús. Það eru hyggindi, sem ( hag koma. Hvenær skyldu íslendingar kom- ast á það hyggindastig, að byggja almenningshús sfn eins og skynsömu fólki er samboðið, svo að þau verði fjölnytjahús! Hvergi getur verið meiri hagsýni og þörf f þessu efni en einmitt hjer. Vegna loftslagsins getum vjer ekki án húsa verið; vegna þess að byggingaefni þarf svo mjög að kaupa frá öðrum löndum, er það dýrara hjer en vfða annarstaðar, og vegna þess að fjelög þau, er húsin eiga að nota, oftast eru smá og efna- lítil, þurfa húsin að borga sig sem best. En til þess verður að nota þau svo sem kostur er. í öllum kauptúnum iandsins og fjölbygðum þorpum, þar sem kirkja er, barnaskólahald og fundahöld, gæti og ætti eitt hús að nægja og vera notað til alls þessa. Og hverjum manni á að geta legið f augum uppi, hve mikið væri með þessu sparað, móts við það, að hafa 3 hús til þessara nota, eða jafnvel fleiri, og hve miklu betra þetta eina hús mætti gera með samanlögðum efnum allra, er hlut eiga að málum. Friðrik prestur Friðriksson getur þess nú nýlega f ferðasögu sinni um Ameríku, að hann var þar við messu f kirkju, sem búin var út fremur sem fundarsalur en venjulegt kirkjuhús, en hvergi hafi hann orðið var við meiri hjartanleika. Oftast eru f vestanblöðunum boðaðir stærri fundir og skemtisamkomur f kirkjunum, og f þeim eru þar einnig haldnir skólar. í þessu sem sjálfsagt mörgu öðru lftur út fyrir að þeir þar sjeu langt á undan okkur f hagsýninni, þó efnin til að byggja sjeu Ifklega ekki minni nje erfiðleikarnir við að koma húsunum upp meiri en hjer. En hjer gera menn sig árlega og víða um land seka í bersýnilegu ráðleysi f þessu efni. Sífelt er verið að klöngra upp Ijelegum, óvistleg- um kofum, sínum f hverju lagi og sfnum til hverra nota f sama bæ, kaup- túni, þorpi eða sveit, f stað þess að *) Sjálfur þekki jeg fæst af þessum merkjum, en margur mun sá á Fróni, er þekkir, og því bendi jeg á þau hjer, ef vera kynni að þeir vildu reyna að leysa þrautina á þennan hátt; jeg skal og gera hvað jeg get. Höf \ samlaga alt í eitt gott og vandað hús. Til dæmis má nefna Hafnarfjörð, þó líkt eigi sjer stað vfða. Þar er nú til bindindismannasamkomuhús, kvikmyndaleikhús, barnaskólahús og bráðum tvær kirkjur, en viðunanlegt fundahús vantar bæinn. Líklegt er að alt þetta hefði mátt sameina f einu myndarlegu húsi, sem væri miklu betra og eigi dýrara en hin eru til samans, þau er til eru. í Keflavfk á nú f 3. eða 4. sinn að efna til nýrrar kirkju. Til er þar þó barnaskólahús nýbygt og Templ- arahús. Skyldu þeir nú ekki geta selt hús þessi eða breytt þeim fbúðt arhús, en byggja svo kirkjuna með þeirri hagsýni, að hún nægði þorpinu til allra almennra nota? Og þannig ætti að fara að alstaðj ar á landinu, þar sem eftirleiðis eru bygð slfk hús fyrir almenna notkun. Allir, sem að slfku standa, safnaða- stjórnir, sveitastjórnir, skóla- eða fræðslumálastjórnir, stjórnir einkafje- laga (Templarar o. s. frv.) og yfir- stjórnir þessara stofnana (biskup, fræðslumálastjóri og landsstjórnin) — allir þurfa að snúa hjer að einu máli, og koma f veg fyrir þá krafta- sandrung og fjáreyðslu, sem sam- fara er gamla fyrirkomulaginu á þessu sviði. Það er verkefni fyrir efnilega húsasmiði að leggja á ráð til hent- ugs fyrirkomulags á þessum fjöl- nýtishúsum, svo alt fari vel í þeim. Notkuninni er þannig háttað, að hún þarf sjaldan að rekast á. Og þótt svo bæri við, að fáum sinnum á ári þyrfti einn að hliðra til fyrir öðrum, er það minni bagi, en að láta hus standa notkunarlaust mestan hluta ársins, eins og nú á sjer stað með marga af þessum almenningskofum. Hagkvæmnin og hirðingin fer þá líka oftast eftir tekjunum. í fjölnýtishúsum í kaupstöðum, kauptúnum og fjölbygðum þorpum, mundi fara vel á því, að umsjónar- maður hússins ætti íbúð f einhverj- um hluta þess. Mig hefur lengi tekið sárt til þess rænuleysis Frfkirkjusafnaðarstjórnar- innar f Rvfk, að reyna ekki að láta Frfkirkjuna vinna meira fyrir sjer en gert hefur verið. En nú er búið að halda f henni Eimskipafjelagsstofn- fundinn og tór alt vel, svo nú má vænta að farið verði að leigja hana til fundahalda, ekki sfst þar sem nú er tilfinnanleg vöntun fundarsala í Reykjavík, og hefur um spilst síð- an pósthúsið lagði Bárubúð undir sig. Er ekki mögulegt að fá menn til að rœða þetta almenningshúsabygg- ingamál? Orðin liggja til þess fyrst, eins og margs annars. Og við um- ræður skýrast málin. Þangað til fram- kvæmdirnar verða almennar, er um það „góð vfsa aldrei of oft kveðin". B. B. Minningar ieðra vorra eftir Sig- urð Þórólfsson er hentug bók öllum fróðleiksfúsum alþýðumönnum, eink- um „ungmennafjel.'meðlimum. Dr. Valtýr Guðmundsson skrifar um I. bindið (Eimreiðin XVII. ár 1. h.): „Framsetningin er eintöld og látlaus og hæfilega mikið tekið af hverju tægi: Landsmálasögu, atriðin úr hetjulífinu, menningarsögu og þjóðháttum, bókmentasögunni, goða- fræði o. s. frv. Má það lofsvert heita, hve vel höf. hefur tekist að takmarka sig f hverri grein, og taka hvorki of mikið nje of Iftið. Og þó er framsetningin einkar glögg og skilmerkileg, og ónákvæmni eða villur mjög óverulegar". Um 2. bindið, meðal annars (Eimr. XVII. ár 2. h.): „ . . . og er bókin góð bók og þörf, svo góð, að margir „lærðu" mennirnir, mættu þakka fyrir ef annað eins lægi eftir þá. Það má auðvitað fetta fingur út í hitt og þetta, en þá má heldur ekki gleyma hinu, hve mikla örðugleika er við að strfða og hve mikla elju þarf til að rita slfka bók f hjáverkum". Bókin er 37 arkir, kostar 5 kr., fæst hjá bóksölum. óCuréir og gluggar. Eyvindur Arnason. Vátryggið fyrir eldsvoða í General- Stofnsett 1885. — Varnarþing I Reykjavik. Sig. Thoroddsen. Sími 227. Umboð8menn óskast á Akranesi, Keflavik, Vlk, Stykki8hólmi, Ólafsvik. „I9unnardúkar“ eru ódýrustu, haldbestu fatatauin. Það viðurkenna allir, sem reynt hafa. — tJr miblu að velja. Sjómenn! <SiriRur Cinarsson, Yfirdómslögmaður, Laugaveg 18 A, (uppi). Talsimi 433. Flytur mál fyrir undirrjetti og yfir- dómi. Annast kaup og sölu fasteigna. Venjulega heima kl. 12—1 og 4—5 e. h. S. C. Xraul7 a Forsendelsoshus (útsendingahús) Horoens _ sendir ókeyplg öllum skrautverðskrá sína. ’Xalsimi 801. Slíöíatnadur, vandaður, fallegur, ódýrastur [i skóverslun Jóns Stefánssonar. Laugaveg 14. Pappír •» ritf æri er best að kaupa í Pappírsversl- un Pór. B. Þorlákssonar, Yeltu- sundi 1. brúkuð islensk alls- konar borgar enginn betur en Helgi Helgason (hjá Zimsen) Reykjavík. Eggert Claessen yflrrjettarmálaflutnlngemaður. Pétthðwtræti 17. Venjolega halæa kl. 10—11 eg 4—5. Talalæl 16. Oddur Qlslason yflrrJettarmálaflutnlngsmaOur, Laufásreg 22. Venjul. heima kl 11—12 og 4—5. ygr Auglýsingum i „Lög- rjettu(í tekur afgreiðslan við eða prentsmiðjan. Prentsmiðjan Gutenberg.

x

Lögrétta

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögrétta
https://timarit.is/publication/196

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.