Lögrétta

Tölublað

Lögrétta - 14.07.1915, Blaðsíða 3

Lögrétta - 14.07.1915, Blaðsíða 3
LÖGRJETTA Sæll, Godafoss! Hólpin er gnoðin bæði; í ís og eldi, ef hún í voðann giftu’ í skútnum ber. Siglirðu, Goðafoss, í vorsins veldi, verður ei boðum sigurgjarnt á þjer. Þjóðdáðin snjalla, íslendinga orkan, áfram upp hallann! Skin á tindum er. Áfram, svo mjallhvít, helköld hafísstorkan hopi að kalla’ og gljúpni fyrir þjer. þversum-mannanna innan Sjálfst.- fl„ segir Isaf., að 8 voru henni fylgj- andi, en 6 hafa þá verið á móti. Út af þessu klofnaSi Sjálfst.fl. sí'ðastl. föstudagskvöld, 9. þ. m., og sögSu þeir ráðherra og Sv. Björnsson sig þá úr honum, og líklega einnig sjera Sig. Gunnarsson, og ef til vill fleiri, þó ekki sje Lögr. fullkunnugt um það. AS minsta kosti er þaö víst, að þeir sjera Sig. Gunnarsson og sjera Björn Þorláksson gengu báðir móti Sjálfst.fl. í kosningum daginn eftir. Um bændaflokkinn er það að segja, aö hann hefur til þessa komiö fram i neöri deild sem sjerstakur flokkur viö nefndakosningar, en sagt er, aö hann sje nú aö gliSna í sundur og muni helst detta úr sögunni. Mun þá óvíst um suma af þeim, sem þar eru, hvar þeir skipa sjer. En ruglingur sá, sem enn er á öllu þessu, og óvissan, sem yfir þvi hvíl- ir, hlýtur aS lama mjög starfsemi þingsins. Væntanlega raknar fram úr þessu áður langt um líður. En veröi þaö ekki, þá er útlit fyrir, að þetta verði magurt þing. Stjórnarfrumvörp. Eins og þegar hefur veriö getiö um hjer i blaöinu, lagði stjórnin 22 frv. fyrir þingið. Þingiö hefur skip- að þessar nefndir í þeim: Fjárlög og fjáraukalög 1914—15': Bj. Kr., Egg. Pálsson, P. Jónsson, Sig. Sig., Sk. Th., Sv. Bj. og Þór. Ben. Samþ. landsreikninganna og fjár- aukalög 1912—1913: Hj. Sn., M. Kr. og Stef. Stef. Gullforði íslandsbanka og seöla- aukning íslandsbanka og breyting á Landsbankalögum : Bj. Kr., H.Hafst., Hj. Sn., Jón á Hvanná, Jón Magn., Sig. Gunn. og Þorl. Jónsson. Tolllög: Bj. Hallsson, Bj. Kr., Ein. J., Matth. Ól. og Sig. Gunn. Verðlag á víxlum: Ben. Sv., Jóh. Eyj., Matth. Ól., Sv. Bj. og Þorl. J. Ráðherrafjölgun: H. Hafstein, Sig. Egg., Sig. Gunn., Stef. Stef og Sk.Th. Stækkun kirkjugarðsins í Reykja- vik: Guðm. H., Hj. Sn., Jón Magn., Matth. Ól. og Þór. Ben. Sparisjóðir: Bj. Hall., G. Egg., Guöm. H., Matth. Ól., Stef. Stef. Breyting á stýrimannaskólalögum, stofnun vjelstjóraskóla, atvinnu viö siglingar og atvinna við vjelgæslu: Eir. Br., Hák. Kr., Karl Ein., Karl Finnb. og Kr. Dan. Ógilding viðskiftabrjefa: Bj. Þorl., Guðm. Ól. og Karl Ein. Útflutningsbann á vistum frá Eng- landi: Jós. Bj., Magn. Pjet., Stgr. J; Mat á lóðum og löndum í Reykja- vík: Eir. Br., Guðm. Bj. og Karl Ein. Rafveita: Guðm. Bj., Karl Ein., Magn. Pjet. Ullarmat: Bj. Þorl., Guðm. Ól., Jós. Bj. Breyting á bæjarstjórnarlögum ísafjarðar: Kr. Dan., Sig. St., Stgr.J. Þingsályktunartillögur 1. Um skipun sjávarútvegsnefndar (n. d.). 2. Um að skipa nefnd í fjárlögin (e. d.). 3. Um að skipa nefnd til að ihuga og gera tillögur um dýrtíðarráðstaf- anir o. fl. (n. d.). 4. Um skipun landbúnaðarnefndar (n. d.). 5. —6. Um skipup nefndar til að ihuga og koma fram með tillögur ttm strandferðir (í báðum deildum). 7-—8. Um skipun nefndar til að í- huga og koma fram með tillögur um lög um þingsköp handa alþingi (í báðurn deildum). Starfsmenn Alþingis eru nú þessir: Skrifstofustjóri; Einar Þorkelsson. Skrifarar á skrifstofu: Einar Hjör- leifsson stud. med., Pjetur Magnús- son cand. jur. og Helgi Salómonsson kennari. Skrifarar í efri deild: Árni Pálsson bókavörður, Pjetur Zophoniasson, Jón Ásbjörnsson, Friðrik Jónasson, Ragnar Hjörleifsson og Páll Jónsson. Skrifarar i neðri deild: Vilmund- ur Jónsson stud. med., Pjetur Lárus- son organisti, Páll E. Ólafsson, Eirik- ur Albertsson, Andrjes Björnsson, Skúli Thoroddsen, Tryggvi Hjör- leifsson og Baldur Sveinsson. Gæslumaður í lestrarsal: Kristinn H. Ármannsson stud. Pallaverðir: Magnús Gunnarsson og Kristján Helgason. Stríðið. Khöfn 10. júlí: „Þjóðverjar hafa hrundið árásum bandamanna og sótt fram við Souchez, en bandamenn hafa hrundið Þjóðverjum frá 631. hæð- inni, nálægt Ban Sapt. Austurríkismenn hafa eyðilagt ítalskt herskip og hrundið árásum Itala á suðurvígstöðvunum. Við Dardanellasund og á austur- herstöðvunum er alt óbreytt." 6. þ. m. var símað frá Khöfn, að Þjóðverjar hefðu náð fram um 1500 metra hjá Croix des Carmes og tek- ið þar fanga, og má einnig sjá það á skeytum ensku stjórnarinnar, að viðureignin þar hafi verið hörð. Það er sagt, að Þjóðverjar muni nú hafa aukið her sinn allmikið á vest- urherstöðvunum og við búið, að við- ureignin verði þar snarpari hjer eft- ir en að undanförnu. í skeytum ensku stjórnarinnar frá 12. þ. m. er sagt, að nú sje þýska herskipið „Königsberg“ eyðilagt, en það hefur frá þvi i haust, sem leið, hafst við uppi í Refugi-fljótinu í Austur-Afriku, en tveir vígbátar voru nú sendir þangað til þess að vinna á því, og segja þeir, sem þá ferð fóru, skipið algerlega ónýtt, eftir tvær á- rásir, sem gerðar voru 4. og II. þ. m. f Rússlandi er sagt, að til standi ráðaneytisbreyting, og hefur keisar- inn kvatt þingið saman í ágústmán. Skortur á skotfærum og hergögnum kvað nú mjög kreppa að Rússum. í Balkanlöndunum, sem hlutlaus hafa verið, er alt kyrt enn, enda þótt flokkur Venizelos’s hafi sigrað við kosningar i Grykklandi. Konstantín konungur liggur enn sjúkur. Frjettir. Söngfjelagið „17. júní“ gaf mönn- um kost á að heyra til sin laugard. 10. og sunnud. 11. þ. m. kl. 9 um kvöld- ið í Báruhúsinu. Voru samsöngvar þessir vel sóttir, eins og við var að búast, nálega hús- fyllir bæði kvöldin, og munu flestir hafa farið mæta vel ánægðir heim að kvöldi, ef dæma má eftir hinu mikla lófaklappi, sem söngmönnunum var látið í tje. Söngskráin var sjerlega vel valin, og söngnum stýrt með list af Sigfúsi Einarssyni organleikara. Fóru sam- söngvar þessir yfirleitt hið besta fram, enda eru söngkraftar góðir; hafa margir þeirra fjelaga mjög góða rödd og sumir afbragðsfagra og full- komna. Einkum fanst mjer mikið varið í að heyra „Söngfuglana“ eftir O. Lindblad og „Matrosen Chor“ eft- ir R. Wagner og svo hin hugnæmu lög eftir H. Kjerulf: „Er um nótt“ og „Serenade ved Strandbredden“ sem hljómuðu aðdáanlega. í sumum lögunum voru bæði flokkssöngvar og einsöngvar. Þeir Einar Indriðason og Pjetur Halldorsson sungu einsöngv- ana, og er rödd Pjeturs bæði aðdáan- lega fögur og hljómmikil og henni beitt snildarlega. Undirspil í „Matro- sen Chor“ ljek Eggert Guðmunds- son á flygel, og i síðasta laginu, ,;Völuspá“, Ijeku þau frú Valborg Einarsson og Eggert fjórhent, og tókst það afbragðs vel. Mikið fagnaðarefni má það vera Beykjavíkurbúum að eiga svona góð- an söngflokk og geta annað slagið átt kost á að heyra hina ágætu sam- söngva hans. Aðkomandi. Nýja Iðunn. 1. heftið er komið út, með fjölbreyttu efni. Fremst er ljóð- leikur eftir Guðm. Guðmundsson: Gleðilegt sumar!, samtal milli vor- dísa og vetrar, falleg kvæði, svo sem vænta má, og var hann leikinn hjer á sumardaginn fyrsta siðastl. Tvær smásögur, önnur þýdd af Á. H. B., hin af E. H. Kvæði eftir Jak. Thor- arensen. Tvær greinar um heimspeki- leg efni eftir Ág. H. Bjarnason. Byrj- un á Endurminningum æfintýra- nianns, eftir J. Ólafsson, sagt frá bernskudögunum, fram til skólaár- anna. Grein eftir mag. Sig. Guð- mundsson og önnur eftir J. Ól., nokkrir ritdómar og stökur. Dáin er nýlega í Khöfn í hárri elli frú Sigríður Ásgeirsson, ekkja Ás- geirs kaupmanns hins eldra frá ísa- firði og móðir Ásg. sál. Ásgeirssonar etatsráðs og þeirra systkina. Veðrið og hafísinn. Á sunnudaginn var kom ákaft norðanveður með kulda, og gránaði í fjöll. Hafís dreif að landi fyrir norðan og var vonsku veður. ísinn hafði fylt Eyjafjörð að innan, út fyrir Svalbarðseyri, og gerði hann miklar skemdir á bryggj- um á Akureyri og víðar. Á mánudag var sagt íslaust á Siglufirði og þar útifyrir. Strandferðaskipið „ísafold“ kom 11. þ. m. sunnan um land að austan, hafði komist kringum landið, en þó ekki á allar hafnir norðanlands. Hún fer hjeðan aftur austur um land á morgun. Nýtt prestakall. Bolvíkingar sækja um það til Alþingis, að Hólasókn sje gerð að sjerstöku prestakalli. Vife síðasta manntal töldust þar 952. Baskerville-hundurinn, saga eftir Conan Doyle, sem út hefur komið neðanmáls í Lögrjettu fyrir nokkrum árum, er nú sýnd á Nýja kvikmynda- húsinu. Var það í fyrsta sinn í gær- kvöld og þá troðfult hús og mjög vel látið yfir sýningunni. Embættisafsögn. Sigurður Ólafs- son sýslumaður í Árnessýslu hefur sótt um lausn frá embætti frá 1. ág. næstk. Settur læknir í Þistilfjarðarhjeraði er Þórhallur Jóhannesson kand. med. frá 1. ág. næstk. Alþingismenn eru nú allir komnir, hinn síðasti, Magnús Kristjánsson, í gærkvöld. Pjetur Jónsson skyldi við „Goðafoss“ á Borðeyri og kom þaðan landveg suður á Hvalfjarðarströnd á föstudagskvöld, en síðan á vjelbáti liingað. Vjelbátur fórst suður í Gerðum s. 1. sunnudagsmorgun, rak í land af legunni og brotnaði í spón, segir Morgunbl. Báturinn var eign Guðm. Þórðarsonar og vátrygður í Samáb. fyrir 3500 kr. Druknun. 6. þ. m. druknaði ung- lingsstúlka frá Háamúla í Fljóts- hverfi i Þverá eystri, var á leið að Múlakoti og reyndist áin þar á milli meiri en ætlað var. „Lagahreinsun“ heitir nýútkomin ritgerð eftir Lárus H. Bjarnason pró- fessor, þörf hugvekja um ýmsa galla á lagasetning okkar, og þó einkum um það, hve óaðgengileg lögin sjeu, þar sem ýmsum þeirra hefur verið breytt hvað eftir annað, en að þeim breytingum verður að leita hingað og þangað, innan um stjórnartíðindin eða lagasöfn, í stað þess að hafa lög- in fyrir sjer í heild. Vill hann láta gera heildir úr þessu og flokka lögin, en minnist jafnframt á ýmislegt ósam- ræmi i löggjöfinni og úrelt lagaá- kvæði, og svo það, að í gildi sjeu höfð ákvæði úr lögum, sem aldrei hafa til verið á íslensku nje birt hjer á landi. Er það sýnilegt, að hjer þarf umbóta við, og því gott, að hreyft sje við því. Ritgerðin mun eiga að koma fram í Andvara. Konstantin Grikkjakonungur, sem nú hefur lengi legið sjúkur. öauluerjatiæjarmalið ei. Úttektin á Gaulverjabæ. 1700 kr. í ofanálag á 1200 kr. hús, eftir að það hefur fengið aðgerð fyrir 2500 krónur. í 17. og 27. tbl. Lögr. hef jeg skýrt mál þetta að nokkuru, og gat þess í hinni síðari grein, að mjer hefði bor- ist til eyrna, að Skúli Grímsson hefði fengið ákveðið 1700 kr. ofanálag á í- búðarhúsið eitt, en að mjer þætti það ótrúlegt, af því mjer væri kunnugt um, að fullnaðar-viðgerð gæti ekki farið fram úr 4—500 kr. Nú veit jeg að sagan um i7oo krónurnar er sönn og alt ofanálag á jörðina er milli 2 og 3 þúsund kr., sem Skúli kref- ur stjórnarráðið um, af því að Jón Magnússon getur ekki svarað því. Væri eigi furða, þótt stjórnarráðinu væri farið að þykja fyrverandi um- boðsmaður og sýslumaður búa vel í haginn fyrir kirkjujarðasjóð, ef að- gerðir þeirra eiga að tæma hann um 2—3 þús. kr.; jeg hafði, sem um get- ur í áðurnefndri grein, lýst yfir því við umboðsmann, að jeg ætlaði ein- ungis að eiga við fyrirrennara minn um ofanálag jarðarinnar og aldrei krefja stjórnarráðið um það. Þá væri og eigi að undra, þótt skrifstofu- stjóri sá, sem, að kunnugra sögn, hef- ur unnið að málalokum þeim, sem enn eru orðin, bak við tjöldin, færi að verða hreykinn af starfi sínu. Af því að mál þetta hefur vakið óvenjumikla eftirtekt, get jeg eigi stilt mig um, að lýsa nokkuð úttekt jarðarinnar, sem, eins og að ofan seg- ir, kostar kirkjujarðasjóð 2—3 þús. kr., ef stjórnarráðið tekur ekki alvar- lega í taumana. Til þess að taka út íbúðarhúsið, voru valdir tveir „fagmenn" — hver valinu stýrði veit jeg eigi — þeir Gísli Brynjólfsson á Haugi og Sig- urður Magnússon í Tungu, sjálf- sagt ófærustu og ómögulegustu menn hreppsins, og þótt víðar væri leitað, til þess að vinna þetta verk, og svo sótti Skúli þann þriðja út á Eyrar- bakka, en hann þekki jeg að engu. Um Gísla er mjer kunnugt, að hann hefur tekið út vörur í óleyfi út í ann- ars manns reikning og eigi borgað, og Sigurður var sá, sem stýrði járnkarlinum, þegar gera átti húsbrot- ið á mjer nóttina milli 7. og 8. júni; hefur hann, ef til vill, þótt best fær til þess að meta til peninga afreks- verk sín, skemdir þær, er hann vann á húsinu með járnkarlinum. Þó þyk- ir mjer hitt liklegra, að Skúli hafi engum treyst betur en þeim til þess að gera úttektina að sínu skapi. Menn þessir ákváðu ofanálag á í- búðarhúsið 1700 kr. og buðust til þess að staðfesta þá virðingu með eiði fyrir guði, mönnum og samvisku sinni. Þrem árum áður, þegar Jón Magnússon sótti um að fá keyptan Gaulverjabæ, var sama húsið metið til peninga á 1200 — segi og skrifa tólf hundruð — krónur. Ári síð- ar, eða fyrir tveim árum, end- urbætti Jón Magnússon húsið og varði til þess 2500 kr., og þó vanta nú 1700 kr. til þess að hús, sem var 1200 kr. virði, sje í því ástandi, sem vera ber. Það þarf engum blöðum um það að fletta, að hjer eru bein svik í tafli, og mjer, sem þekki íbúð- arhúsið í Gaulverjabæ úti og inni, dylst alls eigi, að höfuðsvikin eru í úttektargerðinni síðustu. Það væri vissulega full ástæða til 115 Til Qoðaloss. Elfar-blossa og auðnu hnoss yfir þig fossi daga og nætur; gæfan hossi, Goðafoss, gefi þjer kossa Ránar-dætur. J. ól. þess að hið opinbera skærist í athæfi þessara manna eftir því sem lög standa til. Til eyrna hefur mjer borist, að fyr- verandi ábúandi Gaulverjabæjar, Jón Magnússon, ætli að borga með til- styrk góðra manna virðingarverð hússins, 1200 kr., og hirða svo hús- ið af jörðinni, og er slíkt mjög eðli- legt, þar sem húsið hlýtur að vera 15—16 hundruð króna virði til niður- rifs. p. t. Rvik 13. júlí 1915. Björn Gíslason. Hýi bankastjörinn. Jeg er einn af þeim, sem álít það til bóta, að bætt væri við bankann lögfróðum bankastjóra, eins og ráð- gert er i einu af frumvörpum stjórn- arinnar, og undarlegt þótti mjer, að B. Kr. bankastjóri skyldi leggjast svö .mjög á móti því i þinginu eins og hann gerði á mánudaginn, og hitt ekki síður undarlegt, að heyra fylgi- fisk hans, Bjarna frá Vogi, leggja eindregið á móti þessu af sparnaðar- mensku, þvi hennar hef jeg aldrei fyrri orðið var hjá þeim manni. En þessum nýja bankastjóra eru auðvitað ætluð verk að vinna i bank- anum, sem öðrum er nú borgað fyrir. Gæslustjóralaunin sparast, sem eru 1000 kr. til hvors um sig af gæslu- stjórunum, og auk þess hefur bank- inn siðastl. ár borgað öðrum þeirra, Vilhj. Briem, 1515 kr., og hef jeg það eftir bestu heimildum, enda þótt ótrú- legt megi virðast. Svo mun lögfræð- ingum þeim, sem fyrir bankann starfa nú, vera borgað árlega alt að 3000 kr. Eru þá 6000 kr. bankastjóralaunin upp unnin, svo að þau þurfa engan útgjaldaauka að skapa, ef rjett er með farið. Þetta mættu þingmenn vel at- huga og geta þeir fengið upplýsing- ar um það hjá bankastjóranum, hvort ekki sje alt það rjett, sem hjer er sagt. Rvík 13. júlí 1915. N. N. ÁSKORUN. í 27. tölublaði Lögrjettu skoraði jeg á þá 27, sem undirskrifuðu „blað- sneypuna“, sem þar er minst á, að gefa sig fram. En þar sem ekkert svar hefur komið frá þeim, verð jeg enn að skora á Einar Einarsson í Brandshúsum, sem sníkti undirskrift- irnar, að koma fram með ástæðurnar fyrir þessu verki sínu, ef nokkrar eru, eða þá að viðurkenna það hreint og beint, að hann hafi gert þetta að ástæðulausu, af einskærri fúlmensku. Ef hann verður ekki við þessari á- skorun minni en seilist til að klína sinni eigin skömm á náinn, skal hann hvers manns níðingur heita. Reykjavík 14. júlí 1915. Björn Gíslason. FRÁ FÆREYJUM. Brjef þaðan frá 21. júní segir svo mikla þurka, að menn muni ekki aðra eins. Víða er svo mikill vatnsskortur þá þar í bygðunum, að menn verða að sækja sjer vatn með miklum erfið- leikum langt upp í fjöll. Vegna þurk- anna er allur gróður skrælnaður, þar sem jarðlag er þunt. En eftir þur- viðra-vor er fuglatekja þar í björg- unum venjulega mikil og er farið að starfa að henni í byrjun júlímánaðar. Tvö hvalveiðafjelög hafa bæki- stöðvar sínar í Færeyjum og hafa aflað vel í vor. I hafinu kringum eyj- arnar er nú mikið af stórhvelum.

x

Lögrétta

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögrétta
https://timarit.is/publication/196

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.