Lögrétta - 25.08.1915, Blaðsíða 2
LÖGRJETTA
138
Nýjustu bækur:
íslensk söngbók. 300 söngvar. 2. útg. endurskoöuö. Verð innb. kr. 1.75.
Guðm. Finnbogason: Vit og strit. Verð innb. kr. 1.35.
Fást hjá bóksölum.
Bókaverslun Sigf. Eymundssonar, Rvík.
LÖGRJETTA kemur út á hverjum miff-
vikudegi og auk þess aukablöff við og við,
minst 60 blöff alls á ári. Verð: 4 kr. árg. á
lslandi, erlendis 5 kr. Gjalddagi I. júlí.
H. N. ætlaði sjer aS prjedika og
flytja fyrirlestur á Blönduósi í heim-
leiðinni. Mjer fanst það vekja almenna
sorg, að hann gat ekki látið úr því
verða. Menn höfðu hlakkað svo mik-
ið til. Og frjetst hafði, að menn ætl-
uðu að fjölmenna úr allri austursýsl-
unni til þess að hlýða á hann.
Sannleikurinn er áreiðanlega sá, að
hugir þjóðarinnar eru óðum að ljúk-
ast upp þessi siðustu ár fyrir öllum
nýjum hugsunum og öllum nýjum
fróðleik, sem til hennar nær. En ekki
sist, þegar þær hugsanir og sá fróð-
leikur kemur að einhverju leyti ei-
lífðarmálunum við. Ef jeg hefði ver-
ið í nokkrum vafa um það áður, þá
hefði allur sá vafi horfið í þessari
ferð. Mjer er vel kunnugt um það, að
þetta er ekki eindregið gleðiefni öll-
um, sem eftir þessu hafa tekið. Sum-
um finst nú vera að renna- upp ný
hindurvitna og hjátrúar-öld. Aðrir
eru hræddir um, að aukin umhugsun
um eilífðarmálin muni veikja áhug-
ann á því lífi, sem oss er ætlað að lifa
hjer á jörðunni. Enn aðrir hafa fest
ást á gömlum trúarkenningum og
óttast, að nú sje þeim hætta búin.
Jeg ætla ekkert um það að deila að
þessu sinni, hvort það sje rjett eða
rangt, sem fyrir þessum mönnum vak-
ir. Jeg bendi að eins á breytinguna.
Það er áreiðanlega hollast hugsandi
inönnum að athuga tákn tímanna og
loka ekki augunum fyrir þeim, hverj-
um augum, sem menn kunna á þau
að líta.
Búskapurinn.
Jeg var í Norðurlandi frá 8. júlí
til 15. ágúst. Mestallan júlimán. voru
sífeldir kuldar. Hitinn venjulegast frá
núlli til 5 stiga, þar sem jeg var stadd-
ur. Og áður höfðu kuldarnir verið
álíka, nema dag og dag. Mig stór-
furðaði á þvi, hvað túnin spruttu,
þrátt fyrir kuldann. Það leyndi sjer
ekki, að þau eru nokkurn veginn ó-
drepandi, þar sem góð rækt er í þeim.
Ekki allfáir sögðu mjer, að hjá sjer
hefði töðufall orðið í meðallagi. Hjá
flestum mun það þó hafa orðið tölu-
vert minna, einkum þeim, sem slógu
snemma. En merkilegt samt í mínum
augum, hvað grasið var mikið á tún-
unum.
Þar á móti voru grashorfur lengi
afarillar utan túns. Síðustu vikurnar
spratt jörð nokkuð, en sumstaðar mun
grasvöxtur hafi beðið þann hnekki af
kuldanum, að hann hafði ekki mikið
gagn af hlýindunum, þegar þau loks-
ins komu.
Ekki voru bændur samt neitt dauf-
ir í dálkinn, enda höfðu naumast
verulega ástæðu til þess. Einn bónd-
inn sagði mjer, að hann hefði að jafn-
aði fengið 8 kr. fyrir hvert kindar-
reifi. Peningarnir voru að streyma
inn í sveitirnar fyrir hestana, um 200
kr. fyrir þriggja og fjögra vetra
hesta, sem lítið eða ekkert hefur ver-
ið kostað til, og langt um meira fyrir
suma. Jeg heyrði sagt, að einn skag-
firski bóndinn hefði selt þá 22. Svo
er fjárverðið, sem í vændum er í
haust. Alt hefur hækkað i verði, sem
selt er. Vegabótamenn keyptu mjólk
fyrir 18 au. pottinn langt uppi í sveit.
Einn bóndi, sem bú reisti í vor;
keypti ærnar á 40 krónur. Margir
töldu það fásinnu þá. Ekki vantar
mikið á, að afurðir ærinnar þetta eina
sumar borgi ærverðið alt.
Fólkið vill búa.
Mikið hefur verið um það talað,
að fólkið tolli ekki í sveitunum, sje
friðlaust eftir því að komast í kaup-
staðina. Mjer virðist það ekki nema
hálfur sannleikur. Með vaxandi menn-
ing sveitafólksins hefur ástin á sveit-
unum áreiðanlega eflst. Sjálfsagt eiga
bændaskólarnir drjúgan þátt í því.
Hinu verður ekki neitað, að fólk er
fremur ófúst á að vera í vinnumensku
Jeg gæti trúað því, að það sje eitt af
merkismálunum, sem vitmönnum
bændastjettarinnar ríður á að ráða
fram úr, að finna fyrirkomulag, sem
vinnufólkið sættir sig við og ekki
lamar hættulega hagnað bændanna.
Fremur ósennilegt er, að það sje í
raun og veru ókleift.
Það, sem búlaust fólk í sveitunum
þráir mest, er að geta reist bú sjálft.
Það vill langhelst vera kyrt í sveit-
inni. En það vill „eiga með sig sjálft“.
Og engin jörð fæst, hvorki til bygg-
ingar nje kaups. Væri nokkur jörð
seld fyrir norðan, þá hefði hún sjálf-
sagt hækkað mikið úr því verði, sem
hún var í fyrir fáum árum. Samt má
að líkindum ekki draga af miklar á-
lyktanir af einu koti, sem keypt var
fyrir fáum árum fyrir 2000 kr., en
selt í vor fyrir 5200, því að það kot
er mjög nærri kauptúni, og kaupandi
átti þess sjerstakan kost að gera sjer
mikið úr því. En hvað um það —
menn hafa sterka trú á búskapnum,
— þó að þeir berji sjer svona við og
við, — bæði þeir sem reka hann og
þeir sem ekki eiga þess kost að eiga
við hann fyrir sjálfa sig.
Fjöldi manna þráir ekkert annað
fremur en að mega rækta landið,
geta ræktað það. Allur meginhluti
landsins liggur annaðhvort ónotaður,
eða þá ekki notaður nema að ofurlitlu
leyti. Menn eiga þess engan kost að
nota það. Og menn eru ávíttir fyrir
það að leita burt. Þetta er alt saman
nokkurn veginn svo öfugt og andhæl-
islegt, sem það getur verið.
Peningana vantar.
Menn virðist ekkert greina á um
það, að jarðræktin svari kostnaði.
Menn eru sammála um það, að mjer
skilst, að hún sje öruggasti atvinnu-
vegur landsmanna. Meðal annars hef-
ur þetta sumar sýnt það á Norður-
landi. En það er fyrst og fremst pen-
ingaleysið og óhentug lánskjör, sem
stýfla framfarirnar og reka fólkið
burt úr sveitunum.
Þetta er eitt af þeim vandamálum,
sem stjórnmálamenn okkar verða að
ráða fram úr. í þessu efni er ekki
til neins að vísa mönnum á hinar og
aðrar dygðir, sem eigi að fleyta öllu
áfram. Það þarf að útvega peninga
til þess að rækta landið, eins og til
annara framfara. Og þá peninga, sem
landbúnaðinum eru ætlaðir, verður
ja.fnframt að nota til þess að fjölga
býlunum. Með öðru móti er ókleift
að halda í sveitunum meiru en litlu
broti af þeim fjölda, sem þar ætti að
vera og þar gæti lifað góðu lífi.
Eitt dæmi.
Jeg ætla að endingu að minnast á
eitt dæmi peningaleysisins, sem sá
maður sagði mjer sjálfur, er í hlut á.
Hann keypti jörðina af landssjóði
í fyrra vor, og greiddi þá afborgun,
sem áskilin var. Jörðin er í veði fyrir
því, sem eftir stendur. Hann tók við
henni með bæjargreni, sem með öllu
var ólíft í. Síðan hefur hann reist
mikið og vandað steinhús, sem vænt-
anlega stendur margar aldir og full-
nægir húsnæðis-þörfum þeirra, sem
á jörðinni búa eftirleiðis. Lántöku-
magn jarðarinnar vex ekkert við
þetta. Hann fær ekki einum eyri
meira út á jörðina, þó hann hafi gert
þetta.
Nú hagar svo til á jörðinni, að
stórt svæði, þar sem aldrei hefur ver-
ið sleginn nokkur baggi og eingöngu
er bithagi, liggur ágætlega við vatns-
veitu. Kostnaðurinn hefur verið at-
hugaður nákvæmlega. Hann mundi
verða um 2000 krónur. Ráðunautur
Búnaðarfjelagsins áætlar, að þegar
vatnsveitan væri komin í lag, mundi
mega heyja á þessu svæði um 2500
hesta árlega.
En maðurinn vissi ekki af neinni
þeiri stofnun á landinu, sem mundi
lána þessar 2000 krónur til þess að
koma upp þessum slægjum!
Er það undarlegt, að framfarirnar
sjeu nokkuð hægfara hjá okkur, með-
an við búum við annað eins ástand ?
Einar Hjörleifsson.
Gaman oo aluara.
„Gaman er að börnunum/' sagði
konan, sem átti þau spaugileg. Skatta-
mennirnir nýju eru litlu óskemtilegri,
hvort sem þeir heita Gísli, Þórður,
Jakob, Ottó, „Sanngjarn“ eða önnur
ósköp. Öllum virðist þeim sameigin-
leg öfundin yfir því, að bændur hafa
nú fyrst í eitt skifti fengið s a n n-
g j a r n t verð fyrir lagðana af þeim
fáu kindum, sem þeir nú eiga, eftir
undanfarna 2 ára óárun og offörgun.
Fyrir það á nú að leggja á þá ,,stríðs-
skatt“! Ekki þarf að taka tillit til
þess, að þeim er nú, sem öðrum, alt,
sem kaupa þarf, miklu dýrara en ver-
ið hefur, t. d. vinna öll; kaupamenn,
sem áður kostuðu 12—15 kr- um viku'
kosta nú 20—24 kr., án þess að vera
duglegri, 0g vinna þó skemri tíma á
dag, nú 10—12 tíma, en 12—15 áður.
Líkt er um flestar vörur: —V* dýr-
ari nú en verið hefur, o. s. frv.
Tapast hefur poki á veginum frá
Jóni á Vaðnesi upp að Geithálsi, sjó-
hattur, skinnstakkur, jakki og fl.
Finnandi er vinsamlega beðinn að
gera mjer aðvart.
Háarima, 9. ág. 1915.
Sigurður Guðnason.
Svo ýkja þessir skattaherrar stór-
um verð landvörunnar. Gæruverðið í
fyrra, sem þeir eru að „sítjera“ í, varð
til eftir að gærusalan var um garð
gengin að mestu. Mest af ullinni var
selt fyrir kr. 4.10 — 4.18 kgr. eða
2.05—2,09 pd. „Sanngjarn" segir
4.90 eða 2.45. Kynlegur er þessi sónn
um það, að kjötið verði gert of dýrt
fyrir landsmenn. Eiga bændur að
neita boðum, sem þeir fá í það frá
útlöndum, eftir að þeir á eigin kostn-
að eru búnir að bæta svo vöruvönd-
unina, að það hefur náð áliti? Og
hví er ekki sami sónninn um fiskinn,
sem unnið er að á alls landsins kostn-
að að gera svo útgengilegan, að ó-
kleift er fyrir landsmenn að kaupa
hann?
En því hefur sá „sanngjarni"'
gleymt, eins og fleiru, að nú var kraf-
ist betri verkunar á ullinni en áður og
hafðir matsmenn við móttökuna. En
það má telja víst, sje ullin verkuð vel
og flokkuð eftir gæðum, að þá megi
koma henni í það álit, að svipað verð
sem nú fáist sem oftast fyrir hana.
Og ætti þetta að kenna bændum að
hafa betri samtök um slíkt, eins og
þeir nú hafa um smjörið í rjómabú-
unum og sláturfjárafurðirnar i Slát-
urfjelögunum.
Nýskattingar tala um að leggja
skatt á gróða bænda af framleiðslu-
vörum þeirra, umfram það er þeir
kosta til, eða sem fenginn er án til-
verknaðar framleiðenda. Sama ætti
þá líklega að gilda um aðra. Verka-
fólk alt fær þá líklega að borga nýjan
skatt af kauphækkun þess, ef það
ekki afkastar meiri vinnu en meðan
kaupið var lægra? Kaupmenn fá þá
að borga nýjan skatt af þvi, sem þeir
hækka verð á vörum umfram nauð-
synlegan tilkostnað, 0. s. frv.
Það er siður en svo að haft verði
á móti því, að skattar sjeu á lagðir.
eftir tekjum. En ef fara á að hafa það
fyrir mælikvarða, sem verið hefur
áður, eða hvað ætla má að tekjurnar
sjeu í meðalári, og þjóðfjelagið eign-
ar sjer það, eða hluta af því, sem um-
fram verður er betur gengur; er þá
ekki jafn-„sanngjarnt“ að það bæti
upp hallann er illa gengur? Það hlýt-
ur svo að vera miðað við það sem
áður hefur átt sjer stað. Hingað til
hafa framleiðendur orðið að nota af-
gang góðu áranna, til að bæta sjer
upp halla óáranna. Breytingin verður
þá að eins sú, að landssjóður hirðir
gróðann og bætir skaðann, er hann
ber að höndum. Skyldi sú aðferð
reynast heppilegri ?
Vel líkar mjer sú tillaga hins „sann-
gjarna“ í Lögr. að láta ráðh. ein-
an um að leggja á þennan nýja skatt.
Þess ætti að mega vænta að í ráð-
herrastöðunni yrði oftast maður, sem
hugsar áður en hann ályktar. En til-
lagan hefði getað farið lengra í sam-
ræmi við hugsunina. Eða er ekki
brotaminst að þingið gefi ráðherra
eitt skifti fyrir öll heimild til að gefa
út lög þau, sem honum sýnist þörf
á fyrir landið ? Slíka heimild gæti
þingið, með afbrigðum frá þingsköp-
um, afgreitt á einum degi, og þing-
menn síðan farið heim eftir velunnið
dagsverk — og svo sparaðist allur,
þinghaldskostnaður framvegis. Eitt-
hvað mætti við það fje gera. Og trúa
mætti núverandi ráðherra til að leysa
verkið af hendi, slikur pennastarfs-
berserkur sem hann er. Hafi hann
unnið einn þriðja alls þingsstarfsins
fyrsta þingár sitt, í fyrra, má búast
við að hann nú geti tekist á hendur
að framkvæma það alt. Flest annað
eru smámunir hjá skattalöggjafa-
starfinu, sem nú á að fá honum ein-
um í hendur.
Sanngjarnt væri, að „sanngjarn"
fengi „skatt“ af því sem sparast viö
þetta fyrirkomulag. B. B.
Stríðið.
Khöfn 20. ág.: „Þjóðverjar hafa
tekið Kowno og Novo Georgiewsk.
Rússar hörfa frá stöðu sinni í nánd
við Kalwarja. Þjóðverjar hafa tekið
járnbrautarlínuna milli Bjelystok og
Brestlitowsk og brotist inn yfir kast-
alana hjá Brestlitowsk. Rússar hafa
hörfað austur fyrir Bugfljótið.“
í síðasta tbl. fjell af vangá burtu
skeyti, er sagði, að bandamenn sæktu
lítið eitt fram á vesturherstöðvunum.
Franskt loftskip hefði verið eyðilagt.
Her Þjóðverja nálgaðist Kowno,
hefði tekið Lomza og sækti fram á
allri austurherlínunni.
Nú um hríð hefur mest kveðið að
viðureign Þjóðverja og Rússa á
austurherlínunni. í Póllandi hafa
Þjóðverjar sótt mjög mikið fram, og
eins norður við Eystrasaltið. Þar
stýrir Hindenburg árásinni, og nú
hefur her Þjóðverja um hríð sótt að
Ríga. Síðustu fregnir benda á, að
þar sje allmikil fyrirstaða af Rússa
hálfu, og hafa Þjóðverjar nú einnig
sótt þar á með herskipum og sjóor-
usta staðið í Rígaflóa, en nánar fregn-
ir af henni hafa ekki borist enn. Lík-
legt er, að Þjóðverjar hugsi sjer að
sækja austur með Eystrasalti alla
leið að St. Pjetursborg, og þar sem
þeir nú hafa tekið Warschau, hafa
þeir náð miklu meiri tökum en áðui
á járnbrautarsambandinu þar eystra.
Á syðri hluta herlínunnar þar eystra
hafa Rússar, eftir síðustu fregnum að
dæma, hnekt framrás Þjóðverja í bili.
Þó er það auðsætt, að viðureigninni
hallar nú yfirleitt alstaðar á Rússa.
Það var sagt um síðastliðin mán-
aðamót, að hvorir um sig mundu
hafa um 1 y2 miljón þar á orustusvæð-
inu undir vopnum. En sá er mun-
urinn, að Þjóðverjar eru vel búnir að
vopnum, en Rússa vantar þau. Þeir
eyða nú landið um leið og þeir yfir-
gefa það í hendur Þjóðverjum, brenna
bæi og þorp og spilla ökrum, en flytja
undan alt það, sem þeir geta með
sjer haft..
Um Tyrki er það einnig sagt, að
hjá þeim sje nú vopnaskorturinn að
verða mjög tilfinnanlegur. Austur-
ríkismenn og Þjóðverjar hafa viljað
fá að koma hertækjum til þeirra yfir
Rúmeníu, en það hefur ekki fengist.
Um þetta hefur lengi gengið í miklu
þófi, svo að um tíma var svo að heyra
sem ófriður ætlaði úr því að verða,
og miklar og sundurleitar sögur hafa
gengið um það, að öll Balkanríkin
væru að dragast inn í ófriðinn. Báðir
málsaðilar hafa boðið þeim, hverju
um sig, mikið til fylgis við sig. En alt
virðist vera óútkljáð enn um afstöðu
þeirra til ófriðarins. Tyrkir hafa lát-
ið af hendi land við Búlgara, hvað
sem undir því býr, og bæði Austur-
ríkismenn og Rússar hafa boðið
Rúmenum landaukning. Þjóðverjar
bjóða nú Serbum friðarkosti á kostn-
að ítala, og margt gerist nú þar syðra.
sem ótrúlegt hefði áður þótt. Venize-
los er aftur tekinn við stjórn í Grikk-
landi, en óvíst nú, hvað það boðar, er
ítalía er komin út í ófriðinn banda-
mannamegin. Og nú hefur frjetst, að
ítalir hafi sagt Tyrkjum stríð á hend-
ur, og koma þeir þá einnig inn í leik-
inn við Dardanellasundið. Alt til
þessa hefur sókn bandamanna þar
gengið á annan veg en þeir ætluðust
til í fyrstu og er megn óánægja yfir
því í Englandi.
Um viðureign ítala og Austurríkis-
manna er ekki mikið að segja og virð-
ist hún ganga i þófi. Og sama er að
segja um viðureignina á vesturher-
stöðvunum.
Mikið umtal varð hjer síðastliðinn
laugardag út af skeyti frá Khöfn, er
sagði, að Þjóðverjar hefðu brotið
hlutleysi Danmerkur, án þess að geta
frekar um í hverju það brot lægi. En
svo kom í ljós, að þar var að ræða
um viöureign þýskra varðskipa við
enskan kafbát, er farið hafði suður
um Eyrarsund. Stjórnarráðið spurð-
ist fyrir um þetta hjá skrifstofu sinni
í Kaupmannahöfn og fjekk svohljóð-
andi svar:
„Bretskur kafbátur strandaði á
Salthólma á leið til Eystrasalts. Þýsk
varðskip urðu vör við strandið og
skutu á hann. Þau voru utan við
landhelgislínu. Helmingur kafbáts-
manna fjell fyrir skotum þýsku skip-
anna, en þau hurfu frá, er danskir
fallbyssubátar komu þar að. ’
Danska stjórnin mótmælti þessu
broti á hlutleysi Dana, og Þjóðverjar
munu sennilega biðja afsökunar. Mál
þetta er af lítilli þýðingu og er alveg
samskonar og þá er Rússar brutu
hlutleysi Svía með því að skjóta á
þýska herskipið Albatros, sem strand-
aði við Gotland.“
í gær fjekk stjórnarráðið aftur svo-
hljóðandi skeyti frá skrifstofu sinni
í Khöfn:
„Saltholmsmálinu er lokið með ein-
faldri afsökun Þjóðverja.“
í blöðum þeirra þjóða, sem í ó-
friðnum eiga, er nú oft deilt um hern-
aðaraðferðina, á sama hátt og áður
var um það deilt, hverjir hefðu átt
upptökin að ófriðnum, hverjum hanrt
væri að kenna. Frá beggja hálfu eru
bornar fram sakir fyrir brot á hern-
aðarreglum þeim, sem taldar voru
gildandi áður en ófriðurinn hófst. En
reglur þær hafa af hvorugum verið
haldnar svo, að ekki megi með rjettu
að því finna, og slíkar reglur verða
án efa aldrei settar, að þeim verði til
fullnustu fylgt, þegar á reynir og um
líf og sjálfstæði heilla þjóða er að
tefla. Sakaráburður um þessi efni frá
hvorum um sig af þeim, sem við eig-
ast í ófriðnum, verður því að skoðast
með allri varúð, enda hefur það hvað
eftir annað sannast, að blaðasögur um
hryðjuverk i stríðinu hafa reynst
uppspuni einn. Hjer eigast við
helstu mentaþjóðir heimsins og
mannúðar- og siðferðis-reglunum
er án efa af báðum fylgt fram
að svo miklu leyti, sem hægt er
að gæta þess í slíkum ófriði.
Einstök dæmi sanna auðvitað ekkert
í þessu máli, því sjálfsagt er, að brot
koma fyrir á mannúðar- og siðferðis-
reglum hjá þeim, sem við hernaðinn
fást, eins og stöðugt á sjer stað í
borgaralegu lífi.
Frjettir.
Dáin er á Landakotsspítalanum
hjer í bænum kvöldið 23. þ. m. frk.
Anna Sigríður Arasen, eftir þunga
legu. Hún var dóttir Ara Arasens
læknis á Flugumýri í Skagafirði,
fædd þar 1. des. 1853 og ólst þar upp
hjá foreldrum sinum. Faðir hennar
dó 1881, en eftir það var hún hjá
móður sinni, þangað til hún andað-
ist, 1893. Þá fluttist hún til Reykja-
víkur og var hjer eftir það. Bjuggu
þær hjer saman systurnar, Kristín
kenslukona, sem andaðist 26. febr.
síðastl. ár, og Anna Sigríður. Þriðja
systirin, frk. Guðlaug Arasen kenslu-
kona, lifir þær, og ljet hún sjer mjög
ant um systur sína í veikindum henn-
ar, en bróðir þeirra er Þorvaldui
Arasen bóndi á Víðimýri í Skaga-
firði. Frk. Anna Sigríður var greind
og góð kona, mikið gefin fyrir bæk-
ur, glaðlynd, trygglynd og vel látin
af öllum. sem henni kyntust.
Einar Hjörleifsson rithöfundur og
frú hans, eru nýkomin heim úr ferð
um Norðurland; hafa verið þar frá
því snemma í júlí.
Aflabrögð hafa verið góð norðan-
lands frá því í júlí, síldarafli mikill
á Siglufirði og Eyjafirði. Einnig er
nú sagður góður afli á Vestfjörðum.
„ísland“, hið nýja og vandaða skip
Sam. gufuskipafjelagsins, kom hing-
að í morgun, og er það fyrsta ferð
þess milli landa. Það mun vera vand-
aðasta farþegaskipið, sem hjer hefur
verið í förum. Skipstjóri á því er
Aasberg kafteinn, sem áður var skip-
stjóri á „Botníu“ og mörgum er hjer
að góðu kunnur.
Landsbankinn og pólitíkin heitir
bæklingur, sem nýkominn er út, eft-
ir Árna Árnason frá Höfðahólum, og
heldur höf. því þar fram með rjettu,
að bankastjórar Landsbankans ættu
ekki að gefa sig við pólitískum deilu-
málum, og að þeim ætti að vera bönn-
uð þingseta og flokksmálaafskifti
eigi síður en dómendum yfirdóms-
ins.