Lögrétta - 30.05.1917, Blaðsíða 1
Ritstjóri:
ÞORST. GÍSLASON.
Þingholtsstræti 17.
Talsími 178.
AfgreiÖslu- og innheimtum.:
ÞÓR. B. ÞORLÁKSSON.
Bankastræti 11.
Talsími 359.
XII. árg.
Aðalfundur
h.f. „Lögrjettu“ verdur haldinn á afgreiðslustofu blaö-
sins, Bankastræti 11, laugardaginn 2. júní kl. 8^2 síðd.
STJÓRNIN.
Nr. 26.
Bækur,
innlendar og erlendar, pappi'r og alls-
konar ritföng, kaupa allir i
Btkaverslon Slflfðsar [ymundssanar.
Lárus Fjeldsted,
yfirrjettarmálafærslumaður.
LÆKJARGATA 2.
Venjulega heima kl. 4—7 siöd.
r
Klæðaverslun
H. Andersen & Sön
Aðalstr. 16.
Stofnsett 1888. Sími 32.
Þar eru fötin sauniuð flest.
Þar eru fataefnin best.
I -=^=J
Ómildir dómar
um
íslenskar jarðfræðisrannsóknir.
Eftir Guöm. G. Bárðarson.
Hin síSustu ár, síöan menn fóru
aö braska i námuleit hjer á landi,
hafa blöðin í sambandi viö fregnir
þær, sem þau hafa flutt af afrekum
þeirra manna sem a'5 þessu hafa
unniö, alloft fariö lítilsvirðandi orö-
um um jarðfræðisrannsóknir er hjer
hafa verið geröar (sjá ísafold 1908).
Um leiö og þau hafa skýrt frá því
aö þessi eöa hinnalþýðumaðurinn hafi
fundið nýjar og merkilegar jarö-
myndanir, hafa þau stundum hnýtt
þeim athugasemdum við, a|ð þetta
hafi jarðfræöingarnir hlaupið yfir á
hundavaöi, og meö því gefið í skyn,
aö rannsóknir þeirra hafi veriö lít-
ils eöa einskis viröi. — Þeim hefur
sjaldan oröiö aö vegi aö fletta upp
ritum þeirra, sem fengist hafa viö
rannsóknir hjer, til þess aö ganga úr
skugga um, hvort hinar svo kölluöu
nýju myndanir væru áöur ókunnar,
eða hvort hinar nýju skýrslur ykju
þaö sem rit eldri manna hafa gert.
Þaö má þó ekki minna vera en aö
þeim fáu mönnum, sem vjer höfum
átt* og varið hafa kröftum sínum
til aö rannsaka land vort og auka
þekkingu á því, sje sá sómi sýndur,
að lofa þeini aö- eiga heiðurinn fyrir
það, sem þeir liafa fundið, en eigi
sjeu reittar af þeim fjaörirnar til aö
skreyta aöra með, ekki sist þar sem
flestir þessara merkismanna eru fyr-
ir löngu komnir undir græna torfu.
Þetta var afsakanlegt meöan rit
ýmsra þessara fræöimanna lágu
grafin og gleymd í handritum í bóka-
söfnum eða dreifö í hinum og þess-
um útlendum tímaritum. Þannig lágu
hinar merku athuganir Sveins læknis
Pálssonar um jöklana hjer á landi,
er voru hinar fyrstu er skýröu til
fulls eölí jökla og áhrif þeirra á lönd-
in, óprentaöar í dagbókum hans, en
útlendur maður fann hiö sama löngu
síðar og hlaut allau heiöurinn fyrir.
Nú hefur Þorv. próf. Thoroddsen
safnaö öllu því helsta saman í eina
heild, sem jarðfræðisrannsóknir hafa
leitt í ]jós hjer á landi fram að vor-
11111 dögum, og dregiö það fram í
dagsbirtuna, er því hverjum einum
vorkunnarlítie að fletta upp í ritum
hans** , og ganga úr skugga um,
hvaö nytt er eöa áöur kunnugt.
* Eggert Ólafsson, Bjarni Pálsson,
Sveinn Pálsson, O. Olavíus, Jónas
Hallgrímssoil) þorvaldur Thorodd-
sen og Helgi Pjeturss. — Auk þess-
ara íslendinga mætti og nefna marga
erlenda menn, sem fengist hafa við
rannsóknir hjer.
** Lýsing íslands. — Landfræðis-
sagan, — Feröabókin, — jaröfræðis-
kortiö o. fl.
Eggert Ólafsson vicilögmaöur og
Bjarni landlæknir Pálsson rannsök-
uöu víða surtarbrandsmyndanir á
ferðum sínum, sýndu athuganir þeirra
þegar, að rannsóknir á slíkum mynd-
unum gætu haft víötæka þýöingu fyr-
ir jarösögu landsins, eins og síðar
kom á daginn, er safn Jap. Steen-
strups úr surtabrandslögunum hjer á
landi var rannsakað. í ferðabók
þeirra fjelaga er og allítarlega lýst
eöli surtarbrandsins og nothæfi hans
til eldsneytis, og kemur það aö flestu
leyti furðuvel heim við þaö sem síö-
ari tíma rannsóknir hafa leitt i ljós
um sams kyns kolamyndanir erlend-
is. Þar er þess og getið, aö bæta
megi brandinn til eldsneytis meö þvi
að breniia hann á sama hátt og við-
ur var brendur til kola, og sagt aö
ýmsir hjer á landi hafi gert það og
reynst vel. —■ Hefur þessari athug-
un verið minni gaumur gefinn en
skyldi. Brúnkol og surtarbrandur
bæði hjer á landi og annarstaöar hafa
allajafnan allmikið vatn í sjer fólgiö
(um 20% eða meira), sem dregur
mjög úr hitagildi þeirra, en þetta
hefur verið handhæg aðferð til aö
losa þau við allmikið af því.
Þeir sem síðar hafa fengist viö
rannsóknir hjer, hafa allmikiö aukiö
þekkingu vora á þessum myndunum,
getið um nýa fundarstaði og lýst
sumum þeirra allnáiö, og sumir rann-
sakað kolaefnisinnihald þessara kola-
myndana og hitagildi.*
Hinir ómildu dómar um rannsóknir
jaröfræðinga á þessum kolamyndun-
um hafa mjög bitnað á Þorv. Thor-
oddsen, því hann er sá maðurinn, sem
ítarlegast hefur rannsakaö landiö, og
langmest ritað um þessar rannsóknir
sínar og annara. En þennan dóm á
hann síst skilinn. 1 feröaskýrslum
sínum getur hann alstaðar um surtar-
brands og kolamyndanir í hjeruðum
þeim, sem hann fór um, og bætti
mjög viö þekkingu vora á þeim.
Reyndar haföi hann ekki tíma til að
rannsaka lög þessi mjög nákvæfn-
lega, því hann hafði mörg önnur
verkefni með höndum, þar sem hann
var að safna athugunum til víðtæks
jarðfræðiskorts yfir landið og full-
kominnar íslandslýsingar. Þó lýsir
Jhann ýmsum lögum allítarlega, t. d.
kolamyndununum í Stálfjalli,** sem
blöðin hafa flutt mestar fregnir um
hina síöustu tíma. Þar lýsir hann
mjög vel afstööu laganna til annara
myndana, getur um þykt kola- eða
surtarbrandslaganna og lýsir ásig-
komulagi þeirra, segir aö þar finnist
kol, sem sjeu öllu betri en þau við
Hreðavatn, sem áður höfðu verið tal-
in bestu brúnkol hjer á. landi. Af lýs-
ingu hans má ráða það að hiti frá
hraunlögum, sem runniö hafa yfir
myndun þessa, muni hafa haft áhrif
á efstu kolalögin og gert þau betri
en ella mundi. — Hann bendir og á
hverir annmarkar sjeu á því, aö
koma kolunum burt frá nátnum þess-
um. Af þessu, sem hann ritar um lög
þessi, þó ekki sje þaö langt mál, má
fá meiri og áreiöanlegri fróðleik um
nothæfi náma þessara, en af öllum
þeim skýrslum, sem blöðin hafa ver-
ið látin flytja um þær undanfarið, því
lýsing hans er hlutdrægnislaus og
skýr það sem hún nær. — Eftir því
sem jeg hef komist næst eru allir
þeir kolafundir, sem blööin hafa flutt
fregnir af undanfarið, nefndir í ritum
Þ. Th., og þeir markaðir á jaröfræö-
iskort hans. Svo er bæði um kolin
(eða surtarbrandinn) á Skarðströnd i
* Þannig prófaöi hinn danski jarð-
fræðingur Johnstrup kol frá Hreða-
vatni og fann í þeim 61.8% af kola-
efni, en í surtarbrandi frá Brjámslæk
vorti að eins 34% af kolaefni sam-
kvæmt rannsóknum lians. — Nú
síðustu árin voru kol og surtar-
brandur frá ýmsum stöðum hjer á
landi rannsökuð efnafræöislega af
Asg. sál. Torfasyni.
** Ferðabókin, II, bls. 8—9. — Lög
þessi hafa sumar fregnir taliö ný-
fundin.
Reykjavík, 30. maí 1917.
Dalasýslu, í Dufansdal og Þernudal,
Botni í Súgandafirði, Stigahlið, í döl-
unum fram af Bolungarvík o. s. frv.
Jeg hef fjölyrt um þetta efni af
þeirri ástæöu, að sú skoðun virðist
hafa verið aö þróast hjer á landi,
einkum í sambandi við námutrúna,
sem vaknað hefur hjer síðustu ár, að
jarðfræðirannsóknir, sem hjer hafi
verið gerðar, hafi veriö lítils eða
einskisvirði, því þær hafi ekkert nýti-
legt leitt í ljós í þeim greinum. Með
því er reynt að varpa skugga á við-
leitni, sem einstakir menn hafa sýnt
í því að afla þekkirigar á jarðfræði
landsins, og gera lítið úr fræðigrein,
sem í öllum siðuðum löndum er mik-
ilsmetin og álitið sjálfsagt að styrkja
af almanna fje. Enda er nú í flestum
löndum búið að koma á fót stofnun-
um, er vinna að jarðfræðirannsókn-
um hver í sínu landi. Hafa þær í þjón-
ustu sinni marga jarðfræðinga, er
geta gefið sig einhuga við rannsókn-
um. Er verkefni þeirra að rannsaka
og gefa út ýtarlegar lýsingar og
skýrslur um kolanámur, málmnámur,
mómyndanir, jarðvegsmyndanir,berg-
tegundir og alls konar jarðmyndanir
aörar í löndum þessum og gefa út
ýtarleg jaröfræðiskort, er sýni út-
breiðslu þessara myndana o. fl. o. fl.
í Danmörku t. d. var slíkri stofnun
komið á fót fyrir nálega 30 ár-
um og hefur hún síðan stöðugt unnið
aö rannsóknum þar i landi.
Menn mega ekki dæma hinar ís-
lensku jarðfræðisrannsóknir eftir því
hve mikiö er órannsakað af jarðmynd-
unum landsins, heldur eftir því, hve
miklu þeir menn hafa afkastað, er
við þær hafa fengist, miðað við þann
tíma og fje, sem þeir gátu til rann-
sóknanna varið. ■—■ Verður eigi með
sanni sagt að árangurinn sje lítils-
virði, ef allra ástæöna er gætt.
Þrátt fyrir afrek þessara manna er
þó afarmikið enn óunnið í þessu efni,
því ýtarlegar sjerrannsóknir vantar
hjer enn í flestum greinum jarðfræð-
innar, og án þeirra er eigi auðið aö
fá fullkomna þekkiugu á jarðfræði
landsins. Pljer er fyrir höndum
margra áratuga verk fyrir ötula jarð-
fræðinga, er geti starfað einhuga að
rannsóknum. En þær komast aldrei í
framkvæmd hjer nema landið sjálft
styðji þær og komi þeim í reglubund-
iö horf, eins og títt er í öörum menn-
ingarlöndum. Því einstakir menn liafa
ekki efni á því, og ekki er. við að bú-
ast að önnur lönd telji sjer skylt að
annast slíkt fyrir okkar hönd.
Framan af lögðu Danir allmikið fje
fram til rannsókna hjer á landi,
danska stjórnin kostaði ríflega rann-
sóknarferðir þeirra fjelaga Eggerts
Ólafssonar og Bjarna Pálssonar, ferð-
ir þeirra Sveins Pálssonar og Jónas-
ar Hallgrimssonar, Olaviusar, Steen-
strupS o. fl. voru og kostaðar af
dönsku fje. —■ Nú fyrir alllöngu höf-
um vjer fengið sjálfstjórn og aðskil-
inn fjárhag og síðan hefur danska
stjórnin ekki talið sjer jafnskylt og
áður aö rannsaka landið; hún hefur
þar á móti snúið sjer meira til Græn-
lands. Eru árlega gerðir út vísinda-
menn til rannsókna þar í landi frá
Danmörku, og mikiö fje veriö lagt
fram til að afla þekkingar um land-
ið, enda er Grænland nú í ýmsum
greinum mun betur rannsakaö en ís-
land.
Hjer heima var Þ. Th. um eitt skeiö
sá eini, er gaf sig við jaröfræðisrann-
sóknum, og varö hann að stunda þær í
frítímum sínum frá annríku embætti,
með lítilfjörlegum styrk af almanna-
fje, er lengi vel var veittur meö eft-
irtölum. — Með frábærum dugnaði
hefur honum tekist að inna af hendi
þrekvirki í jaröfræöi og landafræöi
íslands, sem hann hefur hlotiö fyrir
alment lof og margs konar viöur-
kenningu meöal erlendra vísinda-
manna. En til þess aö hann gæti ein-
huga starfað aö því aö rita um rann-
sóknir sínar, hljóp ríkissjóöur Dana
undir bagga og veitti honum árlega
styrk til þeirra starfa. — Dr. Helgi
Pjeturss hefur og notiö dálítils styrks
úr landsjóöi til jaröfræöisrannsókna,
og auðnaðist honum þau fáu ár sem
hann hefur starfaö aö þeim að gera
ýmsar stórmerkar athuganir í jarð-
fræði landsins. :—■ Þá held jeg að alt
sje upp talið, sem landið hefur lagt
fram til jarðfræðisrannsókna hjer
síðan vjer fengum sjálfstjórn.
Aðalfundur
Búnaðarfjelags íslands 1917.
Niðurl.
Leiðbeiningarferðir í sauðfjárrækt
hefur Jón H. Þorbergsson farið fyr-
ir fjelagið í vetur, eins og í fyrra. Fór
hann nú um Múlasýslur, Skaftafells-
sýslur og nokkurn hluta Rangárvalla-
sýslu, skoðaði fje á 112 bæjum og
hjelt fyrirlestra á 25 stöðum fyrir
1050 mönnum, er flestir voru bænd-
ur. Um störf hans að þessu árið sem
leið er skýrsla frá honum í Búnaðar-
ritinu.
Sauðfjárræktarfjelagi einu í Leir-
ár og Mela sveit, var veittur lítils-
háttar styrkur, 1 kr. fyrir hvern fje-
lagsmann, 24 kr.
Fóðurtilraunir sauðfjár voru gerðar
í vetur á 2 bæjum, sömu og áöur, á
Leifsstöðum og í Síðumúla. Verður
væntanlega haldið áfram og bætt við
2 bæjum öðrum. Skýrslur um tilraun-
irnar undanfarna vetur eru komnar
út í Búnaðarritinu.
Búnaðarnámsskeið hafa í vetur
verið haldin 2 í ísafjarðarsýslu, sem
Búnaðarsamband Vestfjarða gekst
fyrir, en búnaöárfjelagið sendi fyrir-
lestramann til og styrkti auk þess með
fje. Mun það einnig styrkja náms-
skeið Búnaðarsambands Austur-
lands. Guðmundur kennari Hjaltason
hefur enn -sem fyrri haldið fyrir-
lestra á allmörgum stöðum fyrir fje-
lagið, snertandi búnað.
Hússtjórnarkensla. Eftir tilmælum
Búnaöarsambands Vestfjarða voru í
vetur haldin 4 námsskeið í Isafjarðar
og Stranda sýslum. Greiddi búnaðar-
fjelagið kaup kenslukonunnar. Kenn-
ari var þar ungfrú Guðrún Ólafsdótt-
ir frá Reykjarfirði. Fjelagið haföi
boöist til að láta halda hússtjórnar-
námsskeið í vetur í Snæfellsnessýslu,
en eftir ósk þaðan var því frestað í
þaö sinn. Verða vonandi haldin næsta
vetur, ef því verður viö komið. —
Kvenrjettindafjelagi íslands hefur
veriö heitinn styrkur til nokkurra
vikunámsskeiöa hjer í Reykjavík í
vor fyrir húsmæður, þar sem sjer-
staklega verði hugsað um að kenna
hagsýni og sparsemi í meðferö mat-
væla með tilliti til dýrtíðarinnar nú.
Mjólkurmeðferðarkenslan á Hvit-
árvöllum. Um hana verður að vísa til
skýrslu kennarans, sem mun koma út
í Búnaðarritinu. Þar hefur, eins og
undanfarna vetur, nemendum veriö
veitt nokkur tilsögn í að búa til al-
gengan mat, baka brauð o. fl. Frú
Þóra Þorleifsdóttir hafði þá kenslu
á hendi.
Utanfararstyrkur var áriö sem leið
veittur þessi: Til vatnsveitunáms o.
fl. Valtý Stefánssyni búfræðiskandí-
dat 600 kr. Sú styrkveiting heldur
áfram þetta ár og hið næsta. — Til
búnaöarskólanáms i Danmörku Níl-
jóni H. Jóhannessyni og Gunnari
Hallssyni, síðari hluti, 200 kr. hvor-
um, og til búnaðarháskólanáms í
Noregi Eðvald Bóassyni, fyrri hluti,
200 kr. — Til verklegs búnaöarnáms
í Noregi og Danmörku, Guðjóni Ei-
ríkssyni, Bergi Jónssyni, Skúla Á-
gústssyni, Birni Þórhallssyni, Jóhanni
Eiríkssyni, Guðmundi Jóhannssyni og
Eið Sigurðssyni 100 kr. hverjum. —-
Til verklegs garðræktarnáms Ragn-
ari Ásgeirssyni 100 kr. — Til ferðar
um Noreg, Danmörku og Svíþjóð til
að búa sig undir framkvæmdarstjóra-
starf hjá Ræktunarfjelagi Norður-
lands var Sigurði Baldvinssyni veitt-
ur 500 króna styrkur. — Enn-
fremur styrkti fjelagið Jón H.
Þorbergsson með 300 kr. til utan-
farar árið sem leið, aðallega til að
kynna sjer verslunina meö íslenska
hesta, en sá styrkur var ekki greidd-
ur fyr en eftir nýjár 1917, því aö ut-
anfararfjeð 1916 var uppgengið. —
Enn var utanfararstyrkur veittur
þeim Einari Jósefssyni Qg Þorbergi
Kjartanssyni, 150 kr. hvorum, til
verklegs búnaðarnáms (í Bretlandi
og Danmörku) og Önnu Friöriks-
dóttur rjómabússtýru 200 kr. til að
læra að sjóða niður mjólk, en þessir
styrkir eru greiddir af vöxtum gjafa-
sjóðs C. Liebe.
Verkfæraútvegun hefur gengiö
tregt áriö sem leið og í vetur vegna
samgönguteppunnar. Jafnvel heyhita-
mælana, sem fjelagið hefur útvegað
mönnum frá Stefáni járnsmiö Stef-
ánssyni á Akureyri, hefur verið tregt
um aö fá, vegna þess að mælisglösin
sjálf hafa ekki fengist. Nú hefur ver-
ið gerð tilraun til aö fá þau frá
Ameríku með Gullfossi. Þess er get-
ið í ársfundarskýrslunni í fyrra, aö
tilraunir voru gerðar til að fá betri
ljái frá Englandi og Ameríku, en ekk-
ert hefur oröiö ágengt. í fyrra vor
hjet fjelagið einum manni, Magnúsi
búfræðing Kristjánssyni í Múla í
Nauteyrarhr., styrk til að kaupa mó-
eltivjel, en af einhverjum ástæðum
gat hann ekki fengið vjelina þá, hvað
sem síðar hefur orðið.
Efnarannsóknir, sem búnaðarfje-
lagið kostaði, voru i minna lagi árið
sem leið, vegna veikinda og dauða
Ásgeirs Torfasonar. Aö eins 8 mó-
sýnishorn úr Flóanum, tekin af dr.
ITelga Jónssyni og rannsökuð eftir
tilmælum hans, og 3 sýnishorn af
vatni frá Hólum til undirbúnings á-
veitutilraunanna þar. í vetur hafa ver-
iö reynd þorskhrogn og þorsksvíl
til skepnufóðurs, og 2 jarðvegsteg-
undir, sem hugsað er um aö reyna til
áburðar. Var annað af þeim fjöru-
leðja frá Bessastöðum, og fanst að í
henni var 6% af köfnunarefni. Hygg-
ur bóndinn nýi gott til að hafa þarna
við túnið hjá sjer áburðarnámu með
þriöjungi köfnunarefnismagns á móts
viö Chili-saltpjetur, og mun ekki
lengi láta dragast að aö reyna hana.
Tilraunir meö smjörgerð og osta-
gerö. Þess er getið í ársfundarskýrsl-
unni í fyrra, að Gísli Guðmundsson
gerlafræðingur væri að byrja tilraun-
ir meö smjörgerð. Hefur hann haldið
því áfram og fjelagið greitt honum
styrk þann til áhaldakaupa ög mjólk-
urkaupa', sem lofað var, rúmar 100
kr. Gráðaostagerðinni hefur Jón Guð-
mundsson á Þorfinnsstöðum haldið á-
fram og fjelagið greitt honum þann
150 kr. styrk til áhaldakaupa, sem
lofaö haföi verið. Ostageröin tókst
ágætlega áriö sem leið að dómi Gísla
Guömundssonar. Rann osturinn út
hjer i Reykjavík fyrir kr. 4.20—4.40
kg., og fengu færri en vildu. Sýnis-
horn hafa verið send til útlanda. Jón
hefur auglýst, að gráðaostagerð verði
í sumar í Ólafsdal, og hefur hann
boðist til aö taka menn til kenslu.
Ólíklegt að ekki hafi einhver viljað
sinna því boði.
Jarðýrkjubók II. Enn er ekki kom-
ið handritið af henni, enda hefði
varla verið ráðlegt að gefa hana út
nú sem stendur, með því afarverði,