Lögrétta

Ataaseq assigiiaat ilaat

Lögrétta - 29.08.1917, Qupperneq 1

Lögrétta - 29.08.1917, Qupperneq 1
Ritstjóri: ÞORST. GÍSLASON. Þingholtsstræti 17. Talsími 178. AfgreiÖslu- og innheimtum.: ÞÓR. B. ÞORLÁKSSON. Bankastræti II. Talsími 359. Nr. 41. Reykjavík, 29. ágúst 1917 XII. árg. Theodor Roosevelt hvetur Bandaríkjamenn til aíi fara í striöiö. Hann á 2 syni, og þeir eru báöir komnir í herinn. Hlutafjelagið ,Völundur, íslands fullkomnasta trjesmíðaverksmiðja og timburverslun Reykjavík hefur venjulega fyrirliggjandi miklar birgðir af sænsku timbri, strikuðum innihurðum af algengum stærðum og ýmislegum listum. Smíðar fljótt og vel hurðir og glugga og annað, er að húsabygging- um lýtur. Sv. J ónsson & Co. Kirkjustræti 8 B. Reykjavík hafa venjulega fyrirliggjandi miklar birgðir af fallegu og endingargóðu veggfóðri, margskonar pappír og pappa — á þil, loft og gólf — og gips- uðum loftlistum og loftrósum. Símnefni: Sveinco. Talsími 420. Bækur, innlendar og erlendar, pappir og alls- konar ritföng, kaupa allir í lókaverslun Slglúsar Eymundssonar. f== Klæðaverslun H. Andersen & Sön Aðalstr. 16. Stefnsett 1888. Sími 32. Par eru fötin saumuð flest. Par eru fataefnin best. I ---* Lárus Fjeldsted, yfirrjettarmálafærslumaður. LÆKJARGATA 2. Venjulega heima kl. 4—7 Lokun skólanna. Á þaS mál var minst í síöasta tbl., og þar er einnig prentuö tillaga sú, sem fram er komin í þinginu um heimild fyrir stjórnina til þess að láta loka skólunum næsta vetur. í tillögunni er ekki skipun, heldur að eins heimild, en samt er hún skoðuð sem bending um, að1 vilji þingsins hnigi i þá áttina, að lokað skuli skól- unum. En það hefur Lögr.heyrt,að margir af forkólfum mentamálanna hjer eru þessu mjög mótfallnir. Svo er um rektor Mentaskólans, hr. Geir Zoega, eins og minst var á í síðasta tbl. Dr. Helgi Jónsson skrifaði þar einnig á móti till. Og í ísaf. var henni mót- mælt siðastl. laugardag af Ág. H. Bjarnason prófessor. Um lokun háskólans er það fyrst og fremst að segja, að hún mundi verða til þess að reka alla hina yngstu af stúdentunum til háskólans í Khöfn, og kemur þetta illa heim við umsókn þá, sem nýlega var send hjeðan fyrir milligöngu stjórnarráðsins um undan- þágu fyrir stúdentana hjeðan, sem út- skrifuðust síðastl. vor, frá því, að þurfa að koma til háskólans í Khöfn á þessu hausti, en sú undanþága var fengin, eins og áður hefur verið skýrt frá hjer í blaðinu. Lítil eða engin bót er að því, að láta háskólakenslu fara fram í 2 eða 3 kenslustofum Menta- skólans að eins fyrir þá háskóla- menn, sem ætla að taka fyrri eða síð>- ari hluta embættisprófs næsta vor. Hvað er þeim vandara um en hin- um? Hin venjulega rás skólanámsins er með lokuninni heft um eitt ár, og það gerir minst til, hvort áhrifin at þessu koma fyrst niður á þeim, sem eiga að taka embættispróf vorið 1918, eða þeim, sem næstir koma á eftir þeim, og ættu að taka prófið 1919, en verða nú að bíða eftir því til 1920. En önnur hugmmynd virðist vel mega koma til greina, ef nauðsynlegt þætti að losna við að hita kenslustofur há- skólans næsta vetur, og hún er sú, að prófessorarnir hefðu kensluna heima hjá sjer fyrir alla þá nem- endur, sem kenlu sækja í þvt skyni, að taka stðar próf við háskólann. Þeir mtinu ekki vera fleiri en svo, að þetta mætti vel lánast. Híbýli sín þurfa kennararnir auðvitað að hita hvort sem er, og þann aukna kostnað við hitttnina, sem af þessu leiddþmættivel bæta þeim, og gætu það varla orðið mjög tilfinnanleg fjárútlát. Þeir há- skólafyrirlestrar, sem ætlaðir eru al- menningi, legðust þá að eins niður, og þeir menn og konur, sem háskóla- fyrirlestrana sækja án þess að vera með þvi að búa sig undir próftöku, yrðu að ntissa af fræðslunni. Það væri alt, sem niður væri felt. Geti einhverjir af háskólakennurunum ekki haft kensltt heima hjá sjer, t. d. ýms- ir af þeim, sent kenna í læknadeild- inni, þá mundi ntega fá rúm fyrir þá kenslu í Mentaskólahúsinu, með nokk- urri tilhliðrunarsemi, enda þótt full- kontin kensla færi þar fram. Núverandi þing er að stofna 3 ný kennaraembætti við háskólann. Er það ekki dálítið undarlegt, að unt leið og það gerir þetta, skuli það rnæla svo fyrir, að skólanum skuli lokað. Kennaraembættin eru þá bersýnilega til þess eins stofnuð1, að launa kenn- urunum, en alls ekki vegna þarfar á kenslustarfi þeirra. 1 síðasta tbl. er sagt frá uppástung- um, sem rektor Mentaskólans hefur sent alþingi unt sparnað við skóla- haldið. Hann segir, að ntjög mikið mætti spara þar eldsneytiseyðsluna með því að leggja niður að eins leik- fimi og smíðanám, þar sem stórir sal- ir eru hitaðir að eins vegna þessara námsgreina tveggja. Svo segir hann, að> bekkina mætti hafa í vetur ein- um færri en síðastl. vetur, 8 nú í stað 9 þá. Hefur hann með þessu fært áætlaða kolaeyðslu úr 35 tonnum nið'- ur í 25 tonn. Einhverjir af þingmönn- unum úr nefndunum, sem bera fram tillöguna um lokun skólanna, hafa sagt, að námsmenn utan úr sveitum mundu ekki sækja skólana hjer í Reykjavík næsta vetur, vegna þess, hve dýrt væri orðið að halda sjer hjer uppi. En rektor Mentaskólans hefur sagt Lögr. að' milli 70 og 80 af nem. skólans eigi heimili hjer í bænum. Svo sjeu komnar til sín umsóknir um inn- töku i skólann frái4 nýjum mönnum, sem tekið hafa próf við Akureyrarsk. og um ýmsa skólapilta úti um sveitir veit hann það', að þeir ætla að sækja skólann næsta vetur. Hann hyggur, að mjög litil brögð muni verða að því, að piltar úr sveitum sæki ekki skólann vegna dýrtíð'ar í Reykjavík, og honum ætti að vera það mál kunn- ugra en öllum öðrum. Þurfi til hitunar á Mentaskólanum 25 tonn af kolum, og sje verð kola- tonnsins gert 300 kr., þá kostar hit- unin alls á árinu 7500 kr. Kennara- skólinn mun með álíka sparnaði varla þurfa meira en helming til hitunar móti Mentaskólanum, því skólastof- urnar eru þar meira en þeim mun færri, og skólatíminn miklu styttri. Um stýrimannaskólann er sama að segja. Yrði þá eldsneytissparnaður- inn við' lokun þessara þriggja skóla nálægt 15000 kr. En mundi ekki mega finna ýmsa 15 þús. kr. útgjaldaliði á fjárlögunum, sem mörgum við nána athugun þætti rjettara aö fella niður, en lialda skólunum opnum í staðinn? í þingsályktunartillögunni stendur, að greiða skuli öllum kennurum við landsskólana full laun, „eftir þvi sem verið' hefur“, þótt skólunum verði lok- að. Um föstu kennarana er það að' segja, að ekki væri hægt að kippa af þeirn laununum. En það segir í til- lögunni, að stundakennurum skuli einnig borga full laun. Við Menta- skólann stendur nú svo á, að þar verður næsta vetur einum bekk færra en síðastl. vetur. Vegna þess þarf skólinn alls ekki eins marga stunda- kennara nú, og hann þurfti síðastl. vetur. En með þingsályktunartillög- unni væri landsjóður skyldaður til að borga i vetur komandi öllum stunda- kennurunum, sem skólinn þurfti í fyrra, þótt nú standi svo á, að engin þörf væri fyrir kenslu þeirra i skól- anum þennan vetur. Sumir kennarar Mentaskólans og Háskólans hafa stundakenslu í öð'rum skólum, sem landið kostar, t. d. Stýrimannaskól- anum. Þeir eiga þá, eftir þingsálykt- unartillögunni, ekki að eins að fá full embættislaun, þótt skólunum sje lok- að, heldur einnig stundakennaralaun- in við hina skólana, — alt fyrir að gera ekki neitt. í fjárlagafrv. stjórnarinnar nú eru kennaralaun við Háskólann áætluð 49.300 kr., við Mentaskólann 34.200 kr., við Akureyrarskólann 13.800 kr., Kennaraskólann 9.900 kr. og Stýri- mannaskólann 6.800 kr. Þar við bæt- ast launaútgjöld, sem þingið er að skapa með stofnun nýrra háskóla- embætta. En þegar litið er á þessar u.pphæðir, sem allar eiga að borgast eftir sem áður, þótt skólunum sje lokað, að viðbættum dýrtíðaruppbót- um, þá verður úr því alveg óskiljan- leg smámunasemi, að fara að loka skólunum vegna 15—20 þús. kr. út- gjalda til hitunar, enda þótt þar við bætist kostnaður til ljósa. Um þá skóla, sem kostaðir eru að nokkru leyti af landsjóði er ráð fyrir því gert, að þeim sje greiddur svo mikill hluti styrksins úr landsjóði, sem nemur venjulegu kaupi kennar- anna.Einn af þeim skólum erKvenna- skólinn hjer. En forstöðunefnd skól- ans hefur í skjali til þingsins látið uppi þá skoðun, að sparnaður við lokunina komi þar að litlu gagni. Skólinn verði hvort sem er að borga úr sínum sjóði 3000 kr. í húsaleigu, en gjöld til hans frá nemendum falli niður. Er því beðið um, að skólinn megi halda öllum þeim styrk, sem honum er ætlaður á fjárlögunum, enda þótt honum verði lokað. Skól- anum hafa borist umsóknir frá 90 stúlkum, og 70 af þeim eiga heimili víðs vegar úti um.land. Þegar talað er um kostnað við skólahúsahitunina hjer á undan, er gert ráð fyrir, að eingöngu yrði not- að til hennar dýrasta eldsneytið, þ. e, kol. E11 að meira eða minna leyti mundi mega nota þar, eins og annar- staðar, mó til hitunar, og við það minkar kostnaðurinn. Strídid. Kanslaraskiftin á Þýskalandi. Þó Vilhjálmur keisari lýsti því yfir í byrjun ófriðarins, að Þjóðverjar berðust hvorki til fjár nje landa, held- ur að eins til þess að verja hendur sínar og föðurland, og þó hann síð- asta haust tilkynti bandamönnum, að fúsir væru Þjóðverjar til friðarsamn- inga, þá er lítill efi á því, að i upp- hafi ófriðarins bjuggust Þjóðverjar við skjótum sigri, og öflugir flokkar þar í landi hafa ætíð krafist þess, að Þjóðverjar fengju eitthvað fyrir snúð sinn. A 11 a r ófriðarþjóðirnar hugð- ust að græða á ófriðnum og voru Þjóðverjar þar engin undantekning. En ófriðurinn hefur orðið þeim öllum mikil vonbrigði, hugsunarhátturinn breyst mikið í öllum löndunum, og það má fullyrða, að allur almenningur er nú löngu orðinn þreyttur á hörm- ungum ófriðarins og vill nú feginn friðinn, þó stjórnir sumra landanna og herforingjar lifi enn í voninni um frægð og sigur og vilji ekki slíðra sverðið. Að minsta kosti er nú auðsætt, að þýska þjóðin hefur krafist þess, áð- ur en lagt er í fjórða sinn út í vetrar- hernað, að þing og stjórn gerði það öllum almenningi ljóst, hvert stefnt væri, og hvar alt þetta ætti að lenda. Hún vildi afdráttarlaust vita, hvort berjast skyldi til landvinninga eða að eins til þess að verja hendur sínar, hvort Þjóðverjar kysu að halda nú ófriðnum áfram, eða vildu bjóða frið- arkosti, sem líklegir væru til sam- komulags, og ef svo væri, skyldu ó- vinirnir í engum vafa um afstöðu þeirra. Þýska þjóðin vildi gera hreint fyrir sínum dyrum pukurlaust, hvað svo sem yrði ofna á, gera öllum ljóst hvað um væri barist. Hjer var að gera upp mikinn reikn- ing og þá aðallega milli þeirra, sem væntu frægðar og fjár af áframhaldi ófriðarins, og hinna, sem lögðu mesta áherslu á skjótan frið og samkomu- lag milli þjóðanna. Öflugir flokkar áttu hjer hlut að máli, og má nærri geta, að báðir hafa sótt sitt mál fast. Þjóðin stóð á þýðingarmiklum tíma- mótum. Úrslitin komu opinberlega fram við kanslaraskiftin og ræðu dr. Michaelis, nýja kanslarans, þ. 19. júlí, og þau urðu á þá leið, að frið- arsinnar báru hærri hlut. Auðvitað fer því fjarri, að hjer sje að ræða um menn, sem vilji frið með hvaða kostum sem er, því öll þýska þjóðin stendur sem einn maður gegn því, að saminn sje friður með afarkostum fyrir Þjóðverja. Um það er engin deila. Ræða kanslarans 19. júlí. — — Með hugann snúinn til guðs, og í fullu trausti til þreks þjóðar vorrar, hef jeg árætt að taka þetta erfiða starf að mjer, og mun gæta þess eftir málefnum en ekki mönn- um, svo sem kraftar mínir frekast leyfa. .Yður verð jeg að biðja um ein- læga samvinnu í sama fyrirmyndar- anda og drotnað hefur hjá oss í þessu þriggja ára sríði, og í anda þess göf- uga manns, sem þjóðin á svo mikið að þakka, og gegnt hefur þessu starfi í átta ár á undan mjer. Starfsemi hans hefur oft orðið fyrir bitrum á- rásum, oft samfara heift og hatri, en sæmra hefði það verið, að minni hyggja, og göfugmannlegra, ef hatr- ið og heiftin hefðu numið staðar við lokuðu dyrnar. Það verður eigi fyr öllum ljóst, en saga þessa ófriðar er rituð, hvað Bethmann-Holweg hefur unnið sem kanslari fyrir þýska ríkið. Þá kunnum vjer fyrst allir að meta hann. , Ef jeg hefði ekki óbifanlega trú á því, að vjer berðumst fyrir góðu mál- efni, þá hefði jeg verið algerlega ó- fáanlegur til þess að taka þennan starfa að mjer. Vjer verðum sífelt að hafa fyrir augum, hversu ástatt var fyrir þrem árum og óhrekjandi sann- anir eru fyrir, en þá er það líka sann- að mál, að aðrir neyddu oss út i ó- friðinn, að Þýskalandi stóð feykna- hætta af herbúnaði Rússa og útboði rússneska hersins, sem hafið var með mikilli leynd. Að taka þátt í fundar- haMi og láta Rússa draga her sinn saman meðan á því stóð, hefði verið sjálfsmorð.Þó ensku stjórnmálamönn- unum væri það fullljóst, eins og sjá má af blábók þeirra, að herútboð Rússa hlyti að leiða til ófriðar við Þjóðverja, mæltu þeir ekki eitt orð móti því, en formaður minn í embætt- inu sendi stjórn Austurríkis þau boð 29. júlí 1914: „Sambandsskyldur vor- ar uppfyllum vjer fúslega, en hinu verðum vjer að mótmæla, að Austur- ríki og Ungverjaland hleypi öllum heimi i ófriðarbál vegna þess að þau hafa ekki farið að ráðum vorum.“ Þannig ritar enginn maður, sem vill kveikja alheims-styrjöld. Þannig talar og skrifar enginn annar en sá, sem berst fyrir friðnum, og hann barðist lika fyrir honum í fulla hnefana. Oss var einn kostur nauðugur: ófriður- inn. Og eins og þetta var um sjálfa styrjöldina, eins er það með allan hernaðarhátt, sjerstaklega kafbáta- hernaðinn. Vjer vísum með fullum rjetti þeirri ásökun til baka, að kaf- bátahernaðurinn sje ósamrímanlegur alþjóðarjetti, og að hann komi í bága við almenn mannrjettindi. Eng- lendingar haf þrýst þessu vopni í hendur vorar. Með verslunarbanninu, sem er algerlega móti alþjóðalögum, hafa þeir sagt oss hungurstrið á hendur og heft verslun vora við hlut- lausu löndin. Hinar veiku vonir um að Ameríka, í broddi hlutlausu þjóð- anna stöðvaði þennan ólöglega yfir- gang urðu að engu og síðasta tilraun- in, sem Þjóðverjar gerðu til þess að stytta ófriðinn, að bjóða óvinunum undirhyggjulaust friðarsamninga, bar

x

Lögrétta

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögrétta
https://timarit.is/publication/196

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.