Lögrétta

Eksemplar

Lögrétta - 20.03.1918, Side 2

Lögrétta - 20.03.1918, Side 2
46 LÖGRJETTA LÖGRJETTA kemur út á hverjum mið- vikudegi, og auk þess aukablöð við og við, minst 60 blöð alls á ári. Verð kr. 7.50 árg. á íslandi, erlendis kr. 10.00. Gjalddagi 1. júlí. bæði af stjórnarvöldum og einstök- um mönnum. Hefur þessi vetur, sem af er, líka rætst svo sem verða muni enn einn prófsteinn á menningarþroska bænda í þessu efni. Væri því óskandi að þeir stæðust þá eldraun sem virðist vera fyrir dyrum, svo þeir verði ekki enn einu sinni fyrir skapraun af fyrir- hyggjuleysi, því í þetta sinn verður, hana ekki ljett að bera, hvort heldur sem litið er á skaðann eða skömm- ina. Það mætti líklega segja sem svo, að óhætt væri að bíða átekta, sjá hvernig öllu reiðir af í vor, áður en frekara verður lagt til málanna. Svo er þó ekki. Enda ekki ráð, nema í tíma sje tekið. Hvernig sem öllu reið- ir af, hvort það verður vel eða illa, má ekki við svo búið standa. Það er þegar komið svo mikið af prófsteinum og eldraunum í þessu efni, að lengur má ekki láta undir höfuð leggjast, að búa svo um, að öllu sje jafnan óhætt, hvað sem á gengur, og til þess þarf ekki að bíða úrslitanna í vor. Ætti það að vera eitt af þeim verkefnum, sem liggur fyrir næsta alþingi að ráða fram úr. Hefur oft legið minna fyrir en það, að reyna að koma í veg fyrir fjenað- arfelli eftirleiðis með lögum. Nú er það væntanlega öllum nægilega ljóst, að ekki má lengur láta reka á reið- anum með þetta málefni, því nú er sá háski, að eiga nokkurn hlut á hættu, hvað þá heldur að láta það koma fyrir, að fjenaður falli af fyrir- hyggjuleysi, að efnalegt sjálfstæði þjóðarinnar virðist að miklu lleyti komið undir því, að öllu reiði vel af. Er óþarfi að lýsa afleiðingum þeim er nú yrðu af almennum fjenaðar- felli. Gangur þeirra er svo augljós öllum, sem eitthvað vilja um það hugsa. Reynsla undanfarinna ára hefur sýnt og sannað, að bændur eru enn ekki alment færir um að sjá fjenaði sínum borgið í löku árferði, hvað þá heldur fullkomnum harðindum, með hafís og kulda langt fram á sumar, sem mörg eru dæmi til. Mætti hún vera næg til að 'sýna það, að of langt verður þess að bíða, að þeir fari alment og af eigin hvötum að setja svo vel á, að fóðurskortur og fellir detti úr sögunni. Lög þau, sem nú gilda til trygg- ingar góðum heyásetningi, koma alls ekki að tilætluðum notum. Bera um^ ræður frá síðasta alþingi, auk reynsl- unnar, þess ljósastan vott. Sumstað- ar er þeim alls ekki hlýtt, — t. d. ekki til forðagæslumenn — annar- staðar eru þau víðast slælega hald- ín, algerlega án þess að afstýrt sje þeim voða sem með þeim er ætlað að koma í veg fyrir, en á því eiga auðvitað sveitastjórnir og forða- gætslumenn mesta sök, meðfram af því, að í þeim er ekkert ákvæði, sem beinlínis heimilar þeim að ákveða hve margt hver einstakur bóndi má setja á vetur, sem ekki hlýtir ráðum forða- gætslumanna. Hafa bændur því al- gerlega farið eftir sínu höfði með á- setninginn, og afleiðingarnar af því orðið aftur sú reynsla, sem þegar er fengin. Er því auðsætt, að ekki verð- ur lengur tekið tillit til þeirra radda,' sem vilja láta frjálsræði og ábyrgð- artilfinningu hvers einstaks bónda ráða um það, að sjá hyggilega far- borða fjenaði sínum, þó búast megi við, að lög með sliku ákvæði, sem að ofan er getið, verði ekki vei metin, En eins og það er víst, eins víst er það, að slíku ákvæði mundi ekki oft þurfa að beita, væri það að eins til. Það eina, sem ætti að vera fullnægj- andi, er það, að aldrei sje á haustin sett fleira á, en nægilegt fóður er fyrir í harðasta vetri, og því sje stranglega framfylgt. Ætti það að vera lægsta krafan, sem gerð er, þeg- ar sett er á að haustinu. Mín tillaga í þessu máli verður því sú, að inn í förðagætslulögirt sje bætt ákvæði, seni beinlínis heimilar sveitastjórnum að ákveða hve margt hver einstakur bóndi má setja á vetur, sem ekki hlýt- ir ráðum forðagætslumanna um á- setninginn. Ætti jafnframt a.,ð gera að skyldu, að koma á í hverjum hreppi á landinu heyásetningssamþykt, sem lögð sje til grundvallar við ásetn- inginn. Nýjar bækur: Schiller: Mærin frá Orleans. Rómantiskur sorgarleikur Dr. phil. Alexander Jóhannesson þýddi. Verð óbundin kr. 4,00, í bandi kr. 5,50. Guðm. Finnbogason, dr. phil.: Vinnan. Kostar óbundin kr. 3,00. Murphy: Börn, foreldrar og kennarar. Þýtt hefur Jón Þórarins- son fræðslumálastjóri. Kostar óbundin kr. 3,00 Guðm. Guðmundsson: Ljóð og kvæði. Nýtt safn. Innb kr 7,00 og kr. 11,00. Magnús Jónsson: Marteinn Lúther. Æfisaga. Innbundin kr 6,50, óbundin kr. 5,00. Jón Helgason, biskup: Kristnisaga, 3. bindi (lok miðaldanna og sið- bótartíminn).. Obundin kr. 8,00 Bækurnar fást hjá bóksölum, eða beint frá Bókaverslun Sigf. Eymundssonar, Reykjavík. Selskinn og Tófuskinn kaupir Heildverslun Gardars Gíslasonar í Reykjavík hæsta verdi. Símnefni: „GARÐAR“. Talsími 281. Til vara vildi jeg svo benda á ráð, er mjer hefur hugkvæmst, sem þegar hefði átt að vera fyrir löngu upp tekið, ráð, sem gæti haft töluvert víð- tæk áhrif, ef því væri fylgt út í ystu æsar. Er það sem sje, að allir þeir, sem lán veita bændum, landssjóður, bank- ar, sparisjóðir, kaupmenn, kaupfje- lög og einstakir menn, setji það að skilyrði fyrir lánum framvegis, að sýnd sje yfirlýsing frá forðagætslu- manni, undirskrifað af hreppstjóra, um að þeir hafi nægilegt fóður í harðasta vetri fyrir þann búpening, sem þeir setja á vetur. Gætu þetta orðið óskráð lög, regla, er allir settu sjer, sem lán veita bænd- um. Yfirlýsingar slíkar ættu forða- gætslumenn að gefa hverjum bónda, sem fullnægir henni, um leið og hey- ásetningur fer fram að haustinu. Yrði þetta fremur til að auka láns- traust bænda, en veikja, auk þess sem það væri sómi hvers þess, er gæti sýnt slíka yfirlýsingu, sem þá er hjer er átt við. Er þetta sú vægasta og sjálfsagð- asta krafa, sem hægt er að gera á hendur bændum af lánardrotnum, og þá einkum vegna þess, að hún kostar ekkert afsal, nema ef vera skyldi á áhyggjum þeim, er ávalt hljóta að þjá þá meira eða minna, sem komast í fóðurþröng. En slíkt afsal ætti bændum að vera ljúft að láta af hendi. Hugsanlegt er það, að það sem hjer er farið fram á síðast, þyki sumum ef til vill nokkuð strembið. Þeim bendi jeg því að eins á eitt atriði, sem sýnir að svo er ekki, þegar betur er að gætt. Allir vita, að bankar og aðrar lánsstofnanir heimta vátrygg- ingarskírteini sem aukatryggingu fyr- ir lánum út á hús og skip. Það er álitið sjálfsagt. Er þá til of mikils mælst, þó búpeningur lands- manna, aðallífsstofn og aðaleign mik- ils meiri hluta þjóðarinnar, sje háður einhverju tryggingarskilyrði, að því er til lánveitinga kæmi út á hann? Á Þorraþræl 1918. Ó. P. Sögufölsun. í söguágripi er nefnist „íslending- ar og ófrjðurinn mikli“, sem blað Sig. Eggerz flytur, stendur m. a. þessi klausa (16. febr.): „Á þessu tímabili höfðu orðið stjórnarskifti. Sig. Eggerz hafði sagt af sjer embætti, sökum þess að konungur synjaði stjórnarskrá vorri staðfestingar. Við stjórninni tók Einar Arnórsson prófessor.“ Meiningin með þessum ummælum getur ekki verið önnur en sú, að nú- verandi konungur vor, Kristján X., hafi synjað stjórnarskrá vorri stað- festingar á ríkisráðsfundinum 30. nóv. 1914, þegar Sig. Eggerz beiddist lausnar. Blaðið hefur ekki leiðrjett þessa missögn, og lítur þvi helst út fyrir að þetta sje vísvitandi tilraun til rangfærslu á orðnum atburði, jafn- framt því sem þar er þá farið með ósannindi um konung. Eins og sjá má í Lögbirtingablað- inu frá 10. des. 1914 var gangur máls- ins á umræddum ríkisráðsfundi þessi: 1. Sig. Eggerz leggur til að stjórnarskráin verði staðfest, og tjá- ir sig um leið samþykkan „fyrirvar- anum“, sem þingið hafði samþykt. 2. Þessu svarar konungur þannig: „Eins og jeg tók fram á rikisráðsfundi 20. okt. 1913 e r þ a 8 ásetningur minn að stað- f e s t a frumvarp til stjómarskipun- arlaga“ o. s. frv. 3. í næstu ræðu sinni lýsir Sig. Eggerz því yfir, að hann geti ekki „svo leitt sem mjer þó þykir það, lagt stjórnarskrármálið fram fyrir Yðar hátign til staðfestingar". 4. Næsta rseða könungs byrjar þannig: „Úr því ráðherra íslands ekki vill bera stjórnarskrárfrumvarp- ið Upp til staðfestingar“ o. s. frv. 5. Endirinn á umræðunum um þetta atriði er sá, að Sig. Eggerz segir: „Um leið og jeg held fast við um- mæli mín, leyfi jeg mfer að taka aftur tillögu mína um staðfestingu stjórn- arskrárinnar." Það sem gerðist á ríkisráðsfund- inum að því er snerti staðfestingu stjórnarskrárinnar var því það, að konungur var reiðubúinn til að stað- festa, en ráðherrann, sem í fundar- byrjun lagði lögin fram til staðfest- ingar, tók síðan þá tillögu aftur, og þá gat konungur ekki staðfest þau, fyr en hann var búinn að útvega sjer nýjan ráðherra, sem vildi undirskrifa staðfestinguna með honum. Þá fór líka staðfestingin fram, eins og kunn- ugt er. Það eru því bein ósannindi, að kon- ungur hafi synjað stjórnarskrá vorri staðfestingar, og situr fremur illa á blaði fjármálaráðherrans að breiða þau út. Þar af leiðir, að það er líka ósatt, að Sig. Eggerz segði af sjer embætti af þessari ástæðu. Það skiftir raunar litlu hverjar ástæður voru til fráfar- ar S. E., svo litlu, að líklega eru flest- ir landsmenn búnir að gleyma þeim. Að f o r m i n u til var ástæðan sú, að S. E. neitaði að bera upp lög, meira að segja stjórnskipunarlög, sem alþingi hafði samþykt, fyrir konungi til staðfestingar, en það væri brot á þingræði, ef sá ráðherra sæti áfram. En að efninu til átti ágreiningurinn rót sína að rekja til þess, að kon- ungur og forsætisráðherra ætluðu að gefa út auglýsingu nokkra í Dan- mörku, sem S. E. ekki vildi telja sjer oviðkomandi, þó erfitt sje að sjá hvernig slík auglýsing gæti komið íslendingum nokkuð við. Ágreinings- efni þetta var næsta lítilfjörlegt, og kom það best í ljós þegar S. E. var farinn frá, og honum vitrari maður tekinn við, því að þá gekk greiðlega að jafna þetta. Historicus. Þorra-þankar 1 g 1 8. Nú er heldur dauft til dala, dofin rós um hlíð og bala sefur vært í vetrardvala; vindar gnauða’ um kaldan snjá; frýs í botn hvað frosið getur, fyllist ísum hvala setur. Fólkið óttast fimbulvetur færist yfir lönd og sjá, Víða kvíða virðar hljóðir, voða boða haturs glóðir, blóðgar rúnir ríkar þjóðir rita söguspjöldin á. Leið um hafið Bretar banna, brotið er lögmál guðs og manna, flekkuð trúin sæla, sanna, syndarinnar vaxa gjöld. Óteljandi angurstárin yfir flæða djúpu sárin, sem að græða síðla árin; svona er háttað vorri öld. Hvar er ábyrgð heimsins drotna; hrokans öldur verða að brotna; stjórnarbrautin blóði flotna býr þeim dapurt æfikvöld. Borgir hrundar, bæir auðir, barna og kvenna hungursnauðir, bunkar hræva blóði rauðir bera víða hátt við ský. Vitni um hver valdhafanna virðing sje á lífi manna, ber það alt nær sögu sanna, sviftir blæju öldin ný. Húnar þykja þjóðum slæmir, þá með rjettu sagan dæmir; kristnum langtum síður sæmir sig að ata blóði í. Þú, sem líf og ljósið veitir, láttu kífið firrast sveitir, um sem drífa eldar heitir eyða, meiða, drepa’ og hrjá. Læknaðu sár í særðum hjörtum, sefaður tárin geislum björtum, er í bárum sorgar svÖrtum sjálfs þín skíni himni frá. Gæddu friði’ og frelsi lýðinn, falli niður blóðug stríðin. Kærleiks bið jeg boðum hlýðin blessist þjóðin stór og smá. Guðl. Guðmundsson. Stríðið. Síðustu frjettir. Hermanna-, varkmanna- og bænda- ráðstefnan rússneska, sem átti að í- huga friðarsamninga Þjóðverja og Rússa í Brest Litovsk, hefur nú geng- ið til atkvæða um málið. Sagt er, að á ráðstefnunni væru 3000 fulltrúar. En af þeim greiddu eigi atkvæði nema tæp 500. Með 453 atkv. gegn 30 var samþykt að ganga að friðar- skilmálum Þjóðverja, og eru það þeir skilmálar, sem frá var sagt í síðasta tbl. Fregnin um þetta er frá 16. þ. m. Að því er best verður sjeðj er það Lenin, sem beitt hefur sjer fyrir því, að koma, þessari samþykt fram, því í síðari fregnum eru samn- ingarnir nefndir friðarsamningat Lenins. Það er haft eftir manni úr sendiherrasveit Breta í Petrograd, að Lenin hafi aldrei verið jafnfastur i sessi og nú. Fregn frá 17. þ. m. segir að social-radikali flokkurinn, þ. e. bændaflokkurinn, sem Kerensky átti upphaflega heima í, geymi sjer rjett til að mótmæla samningunum, og sama frjett segir, að þingið í Káka- sus vilji ekki viðurkenna samning- ana, en það er að sjálfsögðu vegna þess, að lönd eru látin þar af hendi við Tyrki, einkum vegna Batum-hjer- aðsins. Fram til þess, er rússneska full- trúaráðið hafði samþykt friðargerð- ina, var • hernaðinum haldið áfram. Þjóðverjar höfðu tekið Odessa. Fregn um það kom 14. þ. m. Og stjórn Maximalista var, eins og áður segir, komin frá Petrograd til Moskva, en þar var ráðsamkoman haldin. Trot- sky, sem vikið hafði úr utanríkisráð- herra-embættinu, varð hermálaráð- herra og yfirforingi hersins. Hann varð eftir í Petrograd, er hinir stjórn- endurnir fóru þaðan, til að verja borgina. Það hafði valdið mil^lu um framhald ófriðarins, að í staðinn fyr- ir afvopnun og heimsending rúss- neska hersins, kvað töluvert að því að honum væri breytt í hinar svo nefndu „Rauðu hersveitir", en þær munu ekki skoðast sem reglulegur her, heldur borgaraher, og voru þær víða uppivöðslumiklar og jafnframt boðberar Maximalistakenninganna. Þessar hersveitir vöktu styrjaldirnar í Finnlandi, Ukraine og víðar. En nú virðist hernaðurinn stöðvaður, að minsta kosti í bráð, og úr Uppreisn gegn Maximalistastjórninni í Rúss- landi hefur ekkert orðið. En í fregn frá 17. þ. m. segir, að Þjóðverjar hafi skipað ráðanaut við hlið rússnesku stjórnarinnar og hafi hann neitunar- vald í öllum málum. Fregn frá 14. þ. m. sagði; að Rúss- ar væru að semja frið við Ukraine, en það var eitt af friðarskilyrðunum í Brest Litovsk, að svo væri gert. En i Póllandi er kur gegn miðveldunum. Fyrst vildu Pólverjar fá að taka þátt í friðargerðinni í Brest Litovsk. Mið- veldin höfðu ekki á móti því, að stjórn þeirra sendi þangað fulltrúa, en frá hálfu Rússa var því mótmælt, svo að ekkert varð úr því. En út af þessu sagði forsætisráðherra Pól- lands, Jan v. Kuchavzewsky, af sjer og fór alt ráðaneytið frá. Það mót- mælti, að nokkur ákvæði yrðu gerð þar snertandi rjettindi Póllands án þess að til væru kvaddir. fulltrúar þaðan og krafðist þess, að öll þau hjeruð, sem á Vínarfundinum 1814-15 hefðu verið talin til konungríkisins Pólland9, skyldu haldast undir hinu nýja, óháða pólska ríki. En á friðar- fundinum var hjeraðið Cholm lagt til Ukraine, en Vínarfundurinn hafði talið það til Póllands. í þessu hjeraði var 1909 tæp t milj. íbúa og hafa Pólverjar og Ukrainemenn blandast þar saman og óljóst, hverjir muni vera fjölmennari, og svo eru tvenns konar trúarbrögð þar ráðandi, grísk- kaþólsk og rómversk-kaþólsk. Hin nýja stjórn Póllands heldur áfram andblæstri gegn miðveldunum út af þessu máli. Frá Finnlandi segja síðustu frjett- ir, að stjórnarherinn hafi nú byrjað öflugu sókn gegn Rauðu hersveitun- um. Svinhufud, forsætisráðherra Finna, hafði fyrir skömmu flúið frá Finnlandi til Berlín og fregnskeytin segja, að hann hafi borið Svíum þar illa söguna, en sagt fullkomið ófrið- arástand milli Finna og Rússa. Er ágreiningurinn við Svía mest út af Álandseyjamálinu, og voru þá sagðar þar róstur miklar. Eyjabúar vilja sameinast Svíþjóð. Nú segja síðustu fregnir að bráðabirgðastjórn hafi verið sett á laggir í eyjunum. Um Eystrasaltslöndin segja fregn- irnar, að menn sjeu ekki á eitt sáttir í Þýskalandi. Alþýski flokkurinn vilji leggja þau öll undir Þýskaland. En fylgi hans kvað fara rjenandi. Kurland hefur verið viðurkent sjálf- stætt hertogadæmi, og landstjórn þess hefur boðið Vilhjálmi keisara her- togatign. í Rúmeníu hefur Averescu neitað, að ganga að friðarkostum miðveld- anna og sagt af sjer. En varla getur hugsast, að það hefti framgang frið- argerðarinnar. Um Síberíu heyrist nú ekkert nýtt en sagt að Kínverjar hafi gert samn- inga við Maximalistastjórnina, og má ætla, að þeir sjeu henni samhuga um, að veita viðnám gegn Japönunl þar. Á vesturvigstöðvunum eru alt af sagðar miklar stórskotaorustur, og loftárásir báðumegin frá. Á París rjeðust nýlega 60 þýskar flugvjelar í hóp, og til Englands er sagt frá annari árás af þýskum flugvjelum, en enskar flugvjelar hafa ráðist á Coblens. Hollendingar hafa oft átt erfitt að- stöðu, til að geta haldið uppi hlut- leysi sínu í ófriðnum, en þó aldrei fremur en nú. Bretar hafa sett þeim

x

Lögrétta

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögrétta
https://timarit.is/publication/196

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.