Lögrétta


Lögrétta - 09.07.1919, Síða 1

Lögrétta - 09.07.1919, Síða 1
Útgefandi og ritstjóri: ÞORST. GÍSLASON. Þingholtsstræti 17. Talsimi 178. LOGRJETTA Afgreiðslu- og innheimtum.: ÞÓR. B. ÞORLÁKSSON. Bankastræti II. Talsími 359. Nr. 28 Reykjavík 9. júlí 1919. XIV. ár. Klæðaverslun H. Andersen & Sön Aðalstræti 16. Stofnsett 1888. Sími 32. Þar eru fötin saumuð flest. Þar eru fataefnin best. Ný þingskipun. I. Þjóðfjelagsþróunin. Það er nú orðið nokkuð langt síö- an að Herbert Spencer hjelt þvi fram, að ekki væri til neins að ætla sjer að s k a p a stjórnarskipun eins lands; hún yrði að þ r ó a s t eft- ir lands- og þjóðarhögum. Og þetta er auðvitað hverju orði sannara, ef vel á að fara og þjóðirnar eiga ekki að rasa úm ráð fram. En þá er að teyna að hafa sem gleggstar gætur á því, hvert þróunin stefnir, og reyna svo að greiða götu hennar, með því að taka það og greiða fyrir því, sem virðist nýtilegt og heillavænlegt, en hafna göllunum. En er nokkuð um þetta hugsað hjer á landi? Er ekki alt látið velta eins og verkast vill? Vel má vera, að gáfumennirnir á þingi og í stjórn hugsi bæði eitt og annað í þessu efni, en samt sem áður ber þess lítil merki, hvort heldur er í löggjöf eða stjórn, að þeir taki veru- legt tillit til hinnar þjóðfjelagslegu þróunar. Þó eru nú um öll lönd slík heljar-öfl að starfi utan þinga og utan stjórna, að það er jafnvel við því búið, að þau spyrni h-inu aldna stjórnarfyrirkomulagi um koll þá og þegar. En þá er of seint að rumska og sjá að sjer. Betra að taka hæfi- legt tillit til þeirra, meðan tími er til. Einnig hjer á landi eru nú ýms slík þjóðfjelagsöfl farin að láta til sín taka utan þings og stjórnar, er geta valdið meiri eða minni breytingum eða jafnvel byltingum í þjóðfjelags- lífinu, ef þau fá ekki að starfa og njóta sín á sjer eðlilegan og lögmæt- an hátt. En hver tekur eftir þessu? Og þó er ákveðin og meira að segja mjög svo áberandi þróun að fara fram hjer sem annarstaðar, þróun, sem getur orðíð að byltingu, ef ekki er sint rjettmætuní kröfum hennar, meðan tími er til. Það ættu nefnilega bæði þjóðræðið og þingræðið að muna, að það eru til önnur öfl, sem eru jafnvel sterkari en það hvort- tveggja, en þetta eru hin þjóðfjelags- legu öfl stjettaskipunarinnar. Þetta mun nú sumum þykja kynieg kenning og nýstárleg. En lítum þá að eins í kringum okkur og hyggjum að því, sem er að gerast. Það fyrsta, sem maður þá rekur augun í, er þetta, að allar stjettir landsins eru að sameina sig hver fyrir s’g og fá sjer fulltrúaráð og forustu. Nú hafa bændur flestir tekið hönd- um saman, bæði í framleiðslufjelóg- um — eins og t. d. rjómabúum og sláturfjelögum — og svonefndum samvinnufjelagsskap, sem aðallega er fólginn í kaupskap og verslun. Þeir hafa og nú sitt búnaðarþing, blað og skóla, og kjósa sjer fulltrúa til þess að halda sínum málum fram, en Bún- aðarfjelaginu beita þeir fyrir sig, til þess að ná í sinn skerf og ríflega það úr ríkissjóði, og býta honum síðan út meðal bænda og búnaðarfjelaga landsins, án þess þó að gera lands- stjórninni frekari greiti fyrir því. Sjómenn hafa og sameinað sig í hásetafjelögum og útgerðarmenn all- flestir í útgerðarmannafjelagi; en Fiskifjelagið á víst að verða eitthvað í líkingu við Búnaðarfjelagið, þótt stjórn þess sje næsta undarlega skip- uð og umboðsmenn þess út um land og sendimenn sjeu oft annara stjetta, enda Hta sjómenn hálfgerðum vantrú- araugum á þessa umboðsmenn sína. Þá bafa kaupmenn sameinað sig og kosið sjer fulltrúaráð í svonefndu „Verslunarráði fslands", en verslun- armenn í verslunarfjelögum. Einna eftirtektarverðast er þó ef lil vill verkamannasambandið, sem nú er líka að komast álaggirnar.Ýmsiðn- fjelög og verkamanna, er nefna sig „Verklýðsfjelög Reykjavíkur", hafa nú tekið höndum saman og kosið sjer fulltrúaráð, er skiftist í þrjár nefiid- ir, framkvæmdanefnd, fjármálanefnd og fræðslunefnd og eru þrír fulltrú- ar í hverri. Framkvæmdanefndin ann- ast allar framkvæmdir fjelagsins, íjármálanefnd fjármálin, en „fræðslu- nefndinni" er ætlað að fræða fjelag- ana um tilgang o'g starfsemi slikra fjelaga, bæði utan lands og innan. Öllum þessum fjelögum, sem í sam- bandinu eru, er nú jafnframt fyrir- skipað að ganga í Alþýðusambandið, sem er kosningasamband verkamanna úm land alt. Loks hafa nú starfsmenn ríkisins og embættismenn, til þess neyddir af launakjörum sínum og dýrtíðinni undanfarin ár, verið að sameina sig og gengið í allsherjarsamband með mörgum undirdeildum, svonefnt „Samband starfsmanna ríkisins", og kosið sjer fulltrúaráð og fram- kvæmdanefnd, sem jafnvel getur fyr- irskipað Öllum fjelögum sínum hið ýtrasta til“þess að fá rjettmætumkröf- um sínrfm fullnægt. Af þessu sjest nú, hvert stefnir, jafnt hjer á landi sem annarstaðar. Hver stjett þjóðfjelagsins fylkir sjer í eina oddfylking, kýs sjer fulltrúa- ráð með framkvæmdastjórn í broddi, og hún kýs sjer loks oddvita, sem verður aðalfúlltrúi allrar stjettarinn- ar út á við. Það má sjá það á tvennu, að hjer er um veruleg þjóðfjelagsöfl að ræða. Aannað er það,að að minsta kosti sum af þessum stjettasamböndum hafa myndað með sjer kosningasamband til þess að taká þátt bæði í þingkjöri og sveitakjöri. Og þó sjest þetta kann ske enn betur á hinu, sem er ekki enn komið í ljós hjer á landi, að stjettir þessar geta, að minsta kosti sumar hverjar, hafið allsherjarverkföll, ef þær fá ekki kröfum sínum fullnægt, og með því komið af stað meiri eða 'minni þjóðfjelagsbyltingum. Er nú rjett að láta alla þessa ríg- bundnu stjettaskipun.sem er að verða, með öllu afskiftalausa, þegar farið verður að semja grundvallarlög rik- isins ? Er það rjett að láta eins og hún sje ekki til? Mjer finst það fákænska og af tvennum ástæðum, bæði af því að hún utan þings og utan stjórnar getur valdið meiri eða minni bylting- um; en þó einkutn af hinu, að með því að veita fulltrúum allra þessara stjetta lögtrygða hluttöku í löggjöf og stjórn ríkisins, ávinnur ríkið tvent, vitið og þekkinguna á einstökum atvinnu- greinum landsins, og svo trygging- una fyrir því, að reipdráttur stjett- anna fer fram innan þings, á ð u r en lögin, sem misklíðinni valda, verða til, en með því er girt fyrir skjótar cg hættulegar þjóðfjelagsbyltingar. II. Stjettir og stjettakjör. Það er öllurn mönnum vitanlegt, þótt ekki hafi verið nægilega að því gáð til þessa, að þjóðfjelagið mynda tómar stjettir, er hver upp á sinn hátt cg þó allar í sameiningu starfa að því að viðhalda þjóðfjelagsheildinni.Hver stjett starfar að sínu hlutverki í þjóð- fjelagsheildinni og þjóðfjelagið get- ur oftast nær alls ekki án hennar verið. Það sjest best á því, í hvílík vandræði þjóðfjelagið kemst i hvert skifti, sem einhver stjettanna leggur niður, störf sín. Og 'það er besti próf- steinninn fyrir því, hversu nauðsyn- leg einhver stjett er í landinu, að hve miklu leyti þjóðfjelagið getur an hennar verið eða ekki. Þjóðfjelagið getur, að minsta kosti enn sem kom- ið er, verið án bílstjóra, þótt þeir leggi niður störf sín, fen það getur ekki verið án bænda, sjómanna, verkamanna og starfsmanna ríkis- ins. Þjóðfjelagið getur verið án ein- stakra kaupmanna, en það getur ekki verið til án einhvers konar kaupskap- ar yfirleitt. En — er það nú ekki eftirtektar- \ert, að lítið sem ekkert tillit hefur verið tekið til þessa í stjórnarskrá landsins og stjórnarfari ? Menn hafa altaf verið að hlaupa eftir hinum al- menna kosningarrjetti og rýmka hann, rjett eins og það væri sjálf- sagt, að hver óvalinn náungi í land- inu hefði bæði kosningarrjett og kjörgengi, undir eins og hann hefði aldur til, þótt hann hefði á engu vit og kynni ekkert gott að leggja til landsmála. En fyrir þetta erum við nú líkt og aðrar þjóðir að hrapa nið- ur í þetta alkunna stjórnmálaforað, þar sem sá ræður mestu, sem einhvern veginn hefur haft rnest lag á því að afla sjer fylgis meðal múgsins. En um stjettirnar í landinu, þær sem bera þjóðfjelagið uppi, er ekkert hugsað. Er það rjett látið ráðast, hvort þæi fá nokkurn fulltrúa eða engan á þingi þjóðarinnar. Þetta má nú ekki lengur svo til ganga. Hver stjett í landinu, sem get- ur talist nauðsynleg, á siðferðislega heimting á að fá trygðan einn eða fleiri fulltrúa í annari hvorri þing- deildinni, auk þeirra málsvara, sem hún kann að geta komið inn á þing með þjóðkjörinu eða hinum almenna kosningarrjetti. Það liggur og í augum uppi, að ef það er talið æskilegt og sjálfsagt, að sjerþekking á einstökum atvinnu- greinum landsins og nauðsynjamál- um hverrar stjettar eigi að kornast inn á þingið, þá verður að tryggja þetta með sjerstöku kjöri og sjer- stakri þingskipun, með svonefndu stjettakjöri og stjettaþingi. Það rekur hvort sem er, eins og að ofan er sýnt, að þessu, þar sem hver stjett í land- inu er að fylkja sjer um sín áhuga- mál og kjósa sjer sitt fulltrúaráð og forustu. Væri nú ekki rjett að athuga það í tima, áður en gengið er frá grundvall- arlögum ríkisins, hvort ekki mundi tiltækilegt og rneira að segja ráð- legt, að breyta þannig þingskipun og stjórnarskipun landsins, að hún sam- svaraði kröfum tímans og þróun þeirri, sem þegar er farin að gera vart við sig í þjóðfjelaginu ? Mætti þá ef til vill skipa neðri deild Alþingis líkt og verið hefur, þjóðkjörnum þingmönnum úr einstök- um kjördæmum landsins, þó þannig, að meira tillit væri tekið til kjósenda- tölunnar í hverju kjördæmi en verið hefur. Þessi deild nefnist þá þ j ó ð- þ i n g i ð, þar sem hún væri kosin með þjóðkjöri. En efri deild ætti að skipa með stjettakjöri, þannig að hver af aðal- stjettum landsins fengi þar sína fulí- trúa, er kosnir væru af allri stjett- inni. Yrði efri deild þá, af því að hún væri kosin með stjettakjöri, svonefnt stjettaþing. Nú hefur verið bent á það hjer að framan, að fimm stjettir hefðu hjer á fandi komið á hjá sjer föstu skipu- lagi, og ef vel er að gáð, þá eru þetta aðalstjettir landsins, nefnilega: bændur og búalið, sjómenn og far- menn, iðnaðar- og verkamenn, k^up- sýsíumenn og starfsmenn ríkisins. Ef þingsætin í efri deild yrðu nú 15, en það er minsta breyting frá því sem er, þá fengi hver þessara stjetta 3 fulltrúa í efri deild, auk þeirra full- trúa i neðri deild, er hún kynni að geta aflað sjer með hinum •almenna kosningarrjetti. Méð þessari skipun efri deildar væri vitið og sjerþekkingin á ein- stökum atvinnugreinum þjóðarinnar komin inn í þingið. Og þvi ætti sjer- hvert það mál, sem varðaði að ein- hverju leyti atvinnureksturinn í land- inu eða kjör stjettanna, að leggjast fyrst fyrir þessa deild þingsins. Þar yrðu þá málin rædd frá sjónarmiði hverrar þeirrar stjettar, er ljeti þau að einhverju leyti til sín taka. Og þar yrðu þau ekki útkljáð, fyr en stjett- irnar, með fulltrúaráðin utan þings að baki sjer, kæmu sjer sainan á ein- hverjum viðunanlegum grundvelli. Stor Svensk motorfabrik rned verkligt og gott anseende, tilverkare av motorer och motor- vinschar, söker en hufvudförsáljare för Island. Specialite: Fiskebátsmotorer. Svar till „PRIMA MOTOR-DUGLIG SÁLJARE". AB. S. Gumaelius’ Annonsbyrá, Stockholm, Sverige, f. v. b. Efri deild, stjettaþingið, ætti því jafnan að fjalla um atvinnumálin, aður en þau kæmu til kasta þjóð- þingsins eða neðri deildar. Og ef svo reðri deild gerði einhverja breytingu á samþyktum efri deildar, ætti málið aftur að fara til efri deildar. Ef hún gæti þá ekki felt sig við breytingar þær, sem gerðar væru, en færi sínn fram, yrði að útkljá málið í samein- uðu þingi. Þótt nú slík þingskipun væri stór- bót frá því sem er, þá dylst mjer ekki, að skipun efri deildar gæti með tíð og tíma orðið enn betri, ef fleiri yrðu þingsætin og stjettirnar gætu þar af leiðandi fengið fleiri fulltrúa inn í efri deild, helst alt fulltrúaráð stjett- arinnar, því að þá væru engin öfl til utan þings, er gætu andæft eða mót- mælt gerðum þingsins og stjettirnar yrðu því að* sætta sig við þær. En nú býst jeg við, að flestum vaxi í augum að auka þingmannatöluna, enda skal jeg ekki að svo komnu ráða til þess, fyr en hitt er reynt. Minna iná þó á það, að Alþingi hið forna taldi ekki á sig að hafa 51 goða, þeg- ar -flest var, en sú tala mundi sam- svara því, ef 26 þjóðkjörnir sætu í neðri deild, en 25 stjettkjörnir skip- uðu- efri deild. Er alls ekki sagt, að ijölgun þingmanna í efri deild upp í 25 þyrfti að vera nokkur kostnaðar- auki fyrir landið, því að vel gæti ver- ið, að stjettirnar vildu sjálfar borga fulltrúum sinum þingsetuna að ein- hverju eða öllu leyti . Æskilegast væri, að mínu viti, að efri deild yrði eins og smámynd af stjettaskipun þjóð'fjelagsins, þannig að hver stjett í landinu gæti sent þangað 5 fulltrúa, og þá yrði full- trúaráð hennar fult og óskorað. Mætti þá hugsa sjer, að efri deild yrði t. d. þannig skipuð: I. Starfsmenn landsins, t. d.: 1 lög- ffæðingur, 1 læknir, 1 prestur, 1 kennari, r verkfræðingur. II. Kaupsýslumenn, t. d.: 1 hag- fræðingur, 1 útgerðarmaður, 1 kaup- rnaður, 1 kaupfjelagsmaður, 1 versl- unarmaður. III. Iðnaðar- og verkamenn, t. d.: 1 byggingameistari, I múrari, 1 trje- smiður, 1 vjelamaður, 1 verkamaður. IV. Sjómenn og farmenn, t. d.: 1 strandgæslumaður, 1 vitamálamaður, 1 hafnarstjóri, 1 skipstjóri, 1 háseti. V. Bændur og búalið. 1 búnaðar- fjelagsmaður, 1 áveitumaður, 1 fóssa- fræðingur, 1 bóndi, 1 vinnumaður. I Þetta er nú að eifls laust sýnishorn | af deildinni, sem stjettirnar með | stjettakjöri sínu gætu breytt og bætt eftir vild. Konur eru hjer ekki sjer- staklega nefndar, af því að þær geta nú þegar samkvæmt löggjöf landsins, rækt hverja þá stöðu, sem þær vilja ; cg hafa fullkomin skilyrði til; „mað- I ur“ merkir því hjer, það sem það á að rnerkja, karl eða kona. En það væri ekki litið þjóðvit, sem væri saman komið í slíkri deild og ekki lxtil þekk- ing á öllum landshögum, Eini gall- inn á þessu virðist mjer sá, að þetta mundi auka þingræðui-nar og lengja Þingtíðindin, en þá yrðu þau líka ó- líku merkilegri bók fyrir alla þekk- ingu á þjóðhögmn en þau nú eru. Annars skal jeg nú ekki orðlengja frekar um stjettaþingið, en að eins bæta því við, að stjettakjörið gæti orðið ofur einfalt og verið samfara þjóðkjörinu. Gaidurinn væri sá,að hver kjósandi teldi sig til einnar og að eins til einnar stjettar, þótt hann legði gjörva hönd á margt. En í vafatil- fellum gæti það legið undir úrskurð kjörstjórnar, til hvaða stjettar helst bæri að telja hann. Svo gætu kjör- seðlarnir verið jafn-marglitir og aðal- stjettirnar eru margar, þannig að hver stjett hefði sinn lit. Þá væri sá hnútur leystur. Nú skal jeg að eins bæta nokki-um orðum við um sjálft stjórnarfyrir- komulagið, sem ætti að hvíla á þess- ari þingskipun. III. Stjórnia. Rjettast hygg jeg, að forsætisráð- herr'a væri tilnefndur af sameinuðu þingi, þannig að hann hefði fylgi meiri hluta þings, en að hann til- nefndi svo aftur undirráðherra sína annað hvort úr flokki þingmanna — helst stjettarþingsmanna — eða utan- þingsmanna, líkt og forseti Banda- íikjanna gerir nú. Hann bæri þá einn ábyrgð á stjórninni gagnvart þinginu, en undirráðherrarnir bæru ábyrgð á gerðum sínum gagnvarthon- um, þannig að hann gæti stefnt þeim til ábygðar fyrir dóm, eins og þingið gæti stefnt sjálfum honum fyrir íandsdóm. En með því að hann til- nefndi sjálfur ráðherrana og bæri ábyrgð á gerðum þeirra, fengi hann yfirtökin gagnvart þeim og jafn- framt væri að miklu leyti girt fyrir l:apphlaupið á þingum um stöður þessar. En til þess að tryggja það enn frekar, að ráðherrar þessir yrðu rnenn með sjerþekkingu á málum þeim, er þeir ættu að veita forstöðu, gæti forsætisráðherra valið ráðherra sína í samráði við fulltrúaráð þeirra stjetta, sem þar ættu einna helst hlut að máli. Þá ætti bæði hann og undir- ráðherrann vísan stuðning þeirrar stjettar eða stjetta, svo lengi sem vel og viturlega þætti stjórnað. Um skiftinguna á ráðherrastörfun- um vildi jeg að eins leggja það til, að dómsmálin og kenslumálin yrðu aðskilin. Þar kem jeg raunar við við- kvæman blett — fjölgun ráðherra úr 3 í 4. En það kemur ekki til af góðu, cg er þó bráðnauðsynlegt. Öll vor skóla og uppeldismál eru í ólestri, liklegast helst af því, að lögfræðing- ar, sem ekki hafa neina sjerþekkingu á málum þessum, hafa veitt þeim forstöðu hingað til. En þetta er eitt- hvert íuesta nauðsynjamálið, sem öll framtíðarheill þjóðarinnar og kom- andi kynslóða er undir komin, og þyrfti því að athugast frá rótum. Þjóðin stendur og fellur með því, hvaða uppeldi, mentun og menningu hún fær á öllum sviðum þjóðlífsins. Því verður' maður með viti og sjer- þekkingu á þessum málum að setjast hjer við stýrið, og þess vegna verð- ur að skilja mentamálin frá dóms- málunum. Ráðherrarnir verða þá 4: dóms- málaráðherra, kenslumálaráðherra, atvinnu- og samgöngumálaráðherra og verslunar- og fjármálaráðherra. Tekur forsætisráðherrann að sjer for- stöðu þeirrar stjórnardeildar, sem hann er færastur um, en undiráð- herrarnir þrír hinar hverja um sig. Á öllum ráðherrafundum sker að sjálfsögðu atkvæði forsætisráðheri-a úr öllum ágreiningsatriðum, þar sem hann einn á að bera ábyrgðina gagn- \-art þinginu. Til mála gæti auðvitað komið, að „taka alla ráðherrana af“, nema for- sætisráðherrann, en láta forstöðumenn stjórnardeildanna hverrar fyrir sig vera eins konar „undirráðherra" hans, hvern í sinni stjórnardeild. Þá

x

Lögrétta

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögrétta
https://timarit.is/publication/196

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.