Lögrétta - 01.10.1919, Qupperneq 3
Til vjelbátsferða við Rangársand
1800. Milli Patreksfj. og RauSasands ;
800. Lagarfljótsbátur 800. Til vjel-
bátsferða við Mýrasýslu 800. Til vjel-
bátsferða á Hvítá 300 kr., alt hv. á.
Til bygginga nýrra vita : Svalvogs-
viti 17500 kr, f. á., Galtarviti 23500
f. á., Hríseyjarviti 19 þús. f. á.,
Kambsnessviti 20 þús. s. á., Strætis-
hornsviti 20 þús. f. á., Papeyjarviti
19 þús. f. á., Stokksnessviti 35 þús
s. á., Hvanneyjaviti 6 þús. f. á.
Tveir prestar, Björn Stefánsson
cg Jónmundur Halldórsson. hafa
fengið uppbót á húsabótakostnaði
með því skilyrði, að hús og mann
virki verði jarðeign, B. St. 1200 kr.
og J. H. 10000 kr.
Magnús Jónsson dócent fær 1500
kr. hv. á. til rannsókna á krikjusögu
íslands. — Til kennara i gotnesku,
engilsaxnesku og germönskum fræð-
um (dr. Alex. Jóh.) eru veittar 3500
kr. hv. á. Til styrktar handa íslensk-
um stúdentum, sem nám stunda við
erlenda háskóla (í fræðigreinum,
sem ekki eru kendar hjer) 8000 kr.
hv. á. Verslunarskóli Kaupmannafjel.
fær 9 þús. og Samvinnufjelagsskólinn
7 þús. hv. á. Til að reisa barnaskóla í
kauptúnum og sjávarþorpum og
heimavistarskóla í sveitum eru ætl-
aðar 20 þús. kr. hv. á.
Bókmentafjelagið fær 3500 hv. á.
og áskilið, að 3000 kr. af því sje var-
ið til þess að flýta útgáfu íslands-
lýsingar Þorv. Thoroddsens. Jón
Þorkelsson skjalavörður fær 5000 kr.
x. á. til utanferðar til skjalarannsókna
og Hannes Þorsteinsson skjalavörður
5000 kr. i sama skyni s. á. Fjelagið
„íslendingur“ fær til þess að við-
halda andlegu sambandi og kynningu
við íslendinga vestan hafs 8000 kr.
f. á., 3000 s. á. Styrkur til skálda og
listamanna er nú 20 þús. kr.- hv. á.
Bjarni frá Vogi fær fyrir að halda
áfram þýðingu á Faust 1200 hv. á.
Til undirbúnings ísl. orðabókarinnar
fær sjera Jóh. L. L. Jóhannsson 4800,
Jakob Smári 4000 og Þorbergur
Þórðarson 1800 kr. hv. á. Sigfús
Blöndal fær til að fullgera íslensk-
dönsku orðabókina 15000 hv. á. Geir
T. Zoega rektor til nýrrar, aukinnar
útgáfu íslensk-ensku orðabókarinnar
5000 f. á. Halld. Briem bókavörður
til að semja og fullgera ísl. málfræði
jooo kr. hv. á. Bjarni Sæmundsson til
fiskirannsókna 600, dr. H. Jónsson til
gróðurrannsókna 4000, dr. Helgi Pjet-
urss til jarðfræðisrannsókna 4000,
Guðm. G. Bárðarson til sama 1800,
Frímann B. Arngrímsson til steina-
rannsókna 1200, Páll Þorkelsson til
málsháttasafns 600, Finnur Jónsson
á Kjörseyri til fræðaiðkana 600, Bogi
Th. Melstð til að rita íslandssögu
800, Sigf. Sigfússon til að fullgera
þjóðsagnasafn 600, Páll Eggert Óla-
son til rannsókna á sögu og bók-
mentum íslands frá upphafi prent-
aldar út siðaskiftaöld 1800, alt hv.
s. Pjetur Zophoníasson til að ljúka
\ið sjóðarannsóknir Jóh. sál Krist-
jáns_sonar 800 kr. f. á. Til vcðurat-
hugana og veðurskeyta 43300 kr. f.
á., 18800 s. á. Til jarðeðlisrannsókna
1 sambandi við norðurför R. Arnund-
sens 5500 f. á., 1500 s. á. Til íþrótta-
sambands fslands 1000 kr. hv. á. og
12000 f. á. til þess að senda íþrótta-
menn á Olympíuleikana í Antvverpen.
Þessir kennarar fá utanfaraistyrk,
allir f. á.: Ásgeir Ásgeirsson cand,
theol. 2000, Freysteinn Gunriarsson
cand. theol. 4000, Guðm. Ólafsson
2000, Guðm. Jónsson 2500 og Arnór
Sigurjónsson (viðbótarstyrk) 400 kr.
Sjerstaka námsstyrki fá : Guðmundur
Marteinsson til að ljúka verkfræðis-
námi í Þrándheimi 1200 hv. á.,
Trausti Ólafsson til að ljúka efna-
íræðisnámi 2000 f. á., Helgi II. Ei-
íiksson til að ljúka raffræðisnámi
700 f. á., Jón Dúason cand. polit. til
að kynna sjer bankafyrirkomulag í
Vesturheimi og v-íðar 6000 kr. f. á.
og auk þess er Landsbankanum heim-
ilað, að greiða honum aðrai 6000
sama ár; Eyjólfur Björnsson til raf-
fræðináms í Gautaborg 1000 kr. hv.
á., Jón Eyþórsson til veðurfræðináms
í Kristjaníu 2000 hv. á., Sigurður
Sigurðsson frá Hoffelli til að kynna
sjer samvinnumál í Englandiisoo f.
á., Sig. Guðmundsson til húsgerða-
náms 1500 hv. á., Jóh. Helgason til
myndskurðanáms 2000 f. á. Jón Guð-
mundsson ostagerðarmaður fær tn
Noregsferðar 2000 f. á. Ungmenna-
fjel. íslands fær 2000 hv. á
Til endurbyggingar bryggju á
Blönduósi eru veittar 6000 f. á. Til
hafskipabryggju á Búðareyri við
Reyðarfjörð 3500 f. á. Til biyggju-
gerðar á Blönduósi 18000 f.á. Styrkur
3
er ljós fyrir yður. — Hver sem vill lýsa upp sitt heimili með góðu
ó d ý r u en þó þægilegu ljósi, kaupir að eins DELCO LICrHT.
Spyrjið um verð hjá umboðsmanni Delco Light á íslandi
Siourjíii Pjetirssyiii, Hifiarstræti 11.
til Stykkishólmsbryggju 8800. Til
Einars Magnússonar i Vestmanna-
eyjum til að fullgera bát til uppskip-
unar í brimi við suðurströnd lands-
ms 5000 s. á. Til Byggingarfjelags
Rvíkur 6000 hv. á. Til Flugfjeiagsins
15000 f. á. Til kolanáms í Gili i Hóls-
hreppi i ísafj.sýslu 12000 f. á. Til
steinsteypubryggju á Kópaskeri 8000
f. á. í vfðurkenningarskyni fær Sig.
Jónsson frá Litla-Lambhaga 500 kr.,
Sveinbjörn Sveinsson á Hámundar -
stöðum í Vopnafirði 2000, frú Bríet
Bjarnhjeðinsdóttir 2000 og Þórunn
Gísladóttir fyrv. ljósmóðir 500 kr.,
Guðm. Hjaltason í Tröð í Álftafirði
fyrir bjargráð, 1000, Jón Sturlaugs-
son á Stokkseyri, fyrir sama, 1000.
Þorvarður Bergþórsson, fyrir hrepp-
stjórn o. fl., 1000 kr., alt f. á.
Landsstjórninni er veitt heimild til
að kaupa Ólafsdal í Dalasýs'u fyrir
sanngjarnt verð. Henni er heimilað
að ábyrgjast alt að 1 milj. kr. lán fyr-
ir Akureyrarkaupstað, 300 þús. fyrir
Hólshrepp í Isafj.sýslu og 100 þús.
fyrir Búðahrepp í Suður-Múlasýslu,
til raforkustöðva og rafveitu.
Stjórnarskráin.
Hún var afgreidd sem lög frá þing-
inu skömmu fyrir þinglokin, og þar
með fylgir að sjálfsögðu þingrof og
nýjar kosningar. En ekki ætlast þing-
menn td þess, að nokkurt ákvæði i
stjórnarskránni verði gert að kapps-
niáli við þær kosningar.
Skilyrðið um 5 ára búsetu fyrir
kosningarrjetti var samþykt i Nd.
með töluverðum atkvæðamun. Þegar
til Ed. kom, var meiri hluti stjórnar-
skrárnefndarinnar þar þeirri breyt-
ingu mótfallinn, eins og komið hafði
fram rneðan nefndir beggja deilda
unnu sarnan, en bar þó ekki fram
breytingartillögu við það atriði, með
því að hann taldi enga von um, að
samkomulag gæti náðst i þinginu um
þetta. En i nefndaráliti Ed. segir, að
hann „telji enn fyrirkomulag það,
sem stungið var upp á af minni hluta
samvinnunefndarinnar, að öllu leýti
betra en það, sem ofan á varð i sam-
vinnunefndinni og Nd.“ Halldór
Steínsson bar fram þá breytingartill.
i Ed., að i stað 5 ára kæmi 3 ár, og
að setja mætti með lögum frekari
skilyrði fyrir kosningarrjetti, en sú
till. var feld. Nd. hafði samþykt, að
gera einnig vissa kunnáttu i íslensku
að skilyrði fyrir kosningarrjetti, þ. e.
að kjósandi „tali og riti ísl. tungu
stórlýtalaust“, en það feldi Ed. í
burtu, og ljet Nd. síðan þar við sitja.
Þá breytingu gerði Alþingið einnig
á frv. stjórnarinnar, að nú er sam-
komudagur reglulegs Alþingis ákveð-
inn • 15. febrúar. Þessu má þó, eins
og áður, breyta með lögum.
Þingsályktunartillögur.
29. Um leiðbeiningar v'ð íslend-
inga, sem flytjast heim úr öðrum
löndurn. Flm.: B. J. frá Vogi. —
Neðri deild Alþingis ályktar að skora
á stjórnina að láta ákveðinn mann
eða menn í annari skrifstofu hafa á
hendi leiðbeiningar við íslendinga þá,
sem vilja hverfa heim úr öðrum lönd-
um, svo sem að fá þeim atvinnu, jaríý-
næði, hlutdeild í fyrirtækjum og ann-
að, sem þeim er þörf til vistar hjer
á landi.
30. Um rannsókn skattamála.
Flm.: Þorst. Jónss. o fl. — Alþingi
ályktar að skora á landsstjórnina að
láta rannsaka, hvernig skattamálum
ríkisins skuli best fyrir komið, og
heimilar henni til þess nauðsynlegt
fje úr ríkissjóði.
Fossamálin.
Þingið var í meira lagi aðgerða-
dauft í þeim málum. Álitsskjal fossa-
nefndar þingsins var b'rt í 38. tbl.
Lögr. og tillögur, sem hún bar fram.
Nd. visaði sjerleyfislagafrumvarpi
nefndarinnar, og sömuleiðis till. henn-
ar um, að ríkið nemi vatnsorku i
Sogi, • t*l stjórnarinnar til nánari at-
hugunar. En hin till. nefndarinnar,
um vatnsorku í almenningum og af-
rjettum, var samþ. Einnig var sam-
þykt, en þó allmikið breytt, till. sú,
scm fram kom í byrjun þings, um
Sogið, og er hún nú svohljóðandi:
„Alþingi ályktar, að skora á lands-
stjórnina, að gera nú þegar ráðstaf-
anir til þess, að landið nái fullum
umráðum og notarjetti á allri vatns-
ork í Soginu, alt frá upptökum þess
og þar til ér það fellur í Hvítá, ásamt
nauðsynlegum rjettindum á landi, til
hagnýtingar vatnsorkunní. Til fram-
kvæmda þessu, heimiliast stjórninni
að verja fje úr ríkissjóði, eftir því,
LÖGRJETTA
sem nauðsyn krefur, og að halda á-
fram rannsóknum og mælingum til
undirbúnings virkjunar Sogsfossanna.
Kosningar.
Síðastl. laugard., 27. f. m., fóru
f’-am í samein. þingi venjulegar kosn-
ingar.
í verðlaunanefnd Gjafar Jóns Sig-
urðssonar voru endurkosnir skjala-
verðirnir dr. Jón Þorkelsson og H.
Þorsteinsson og háskólakennari Jón
Aðils. — 1 fulltrúaráð íslandsbanka
1920—22, var kosinn Guðm. Björnson
landlæknir með 17 atkv. (K. Ein.
fjekk 14). — Yfirskoðunarmaður
Landsbankans var kosinn Pjetur Jóns-
son alþm. með 17 atkv. (Guðj. Guðl.
fjekk 16). -— Yfirskoðunarmenn
landsreikninganna voru kosnir Matth.
Ólafsson, Kristinn Danielsson og Jör.
Brynjólfsson. — Framkv.stjóri Söfn-
unarsjóðs var kosinn Eirikur pró-
fessor Briem. — í dansk-íslensku lög-
jafnaðarnefndina voru þeir endur-
lcosnir Jóh. Jóhannesson, E. Arnórs-
son og Bjarni Jónsson. — Þjóðvina-
fjelagsstjórnin var endurkosin.
Að þessu loknu mintist forseti Sam-
einaðs þings starfa þingsins, og hefur
það afgreitt 67 lög og 19 þingsálykt-
unartillögur, en haft til meðferðar
127 lagafrumvörp og 36 þingsálykt-
unartillögur.
Var svo þingi slitið.
+
Grímur Jónsson
cand. theol.
29. f. m. andaðist hjer á Landa-
kotsspítala Grímur Jónsson cand.
theol. frá ísafirði. Var hann fyrir
skömmu fluttur hingað sjúkur að
vestan, og með sama skipi kom einn-
ig Árni Jónsson, bróðir hans, fyrv.
verslunarstjóri, mjög veikur, og fór
til Khafnar ásamt frú sinni.
Grímur var fæddur 14.' júlí 1855,
varð stúdent 1875 og kandidat í guð-
íræði 1878. Hann var lengi forstöðu-
maður barnaskólans á ísafirði, en
annars gegndi hann þar ýmsum störf-
um, og á síðustu árum var hann af-
greiðslumaður Samein. gufusk.fjel.
Hann var gáfaður maður og fróður
um margt, fríður sýnum, glaðlynd-
ur og skemtinn. Börn hans eru þau
Jón verslunarstjóri á Súgandaíirði,
frú Sigríður, kona Guðm. Ólafsson-
ar málafl.manns hjer, og Sigurður
cand. phil.
Nýjar kosningar
15. nóvember.
Það mun vera ábyggilegt, að kosn-
ingar til Alþingis eigi að fara fram
15. n. m., svo að langur tími er ekki
ekki til undirbúnings, en 4 vikum
þar á undan eiga þingmannaefnin að
hafa skilað framboðum sínurp, og
verða þau þá að vera kominn frarn
17. þ. m.
Þingið hefur skilið svoleiðis við í
þetta sinn, að það leggur kjósend-
um ekki til nein mál, sem ftokkum
skifti við kosningarnar. Stærsta
málinu, sem það hafði til meðferð-
ar, þ. e. fossamálinu, vísaði það af
höndurn sjer til stjórnarinnar.
Engin líkindi eru til þess, að nokk-
ur einn af þeim þingflokkum, sem
töldust vera til á þessu þingi, sem
nú er nýslitið, fái meiri hluta við kosn-
ingarnar. Framtiðarflokkaskipunin
getur því vart myndast fyr en næsta
þing kemur saman. En fyrsta verk
þess þings hlýtur að verða, að skapa
meirihlutaheild, sem tekið g'etl að
sjer ábyrgð á myndun samstæðrar
stjórnar.
Uppskeran í Danmörku. I sumar
er uppskeran í Danmörku með allra
besta móti, og vegna hagstæðrar
veðráttu hefur nýting orðið ágæt víð-
ast hvar, að eins voru einstaka menn
c-f fljótir á sjer að flytja uppskeruna
í hús. Víðast hvar hefur rúgurinn gef-
ið 12—16-falda uppskeru. Hveitiupp-
skeran varð best sunnan til á Sjá-
landi; þar varð húnió—29-föld, ann-
1 arstaðar 16—20 föld. Bygg gaf 14—
24-falda uppskeru á Sjálandi, en 13
—15-falda á Fjóni. Hafrar voru ó-
víða komnir í hús, þegar frjettist. Á
Fjóni gáfu þeir 18—20-falda upp-
skeru.
Á Suðurjótlandi varð uppskeran
framar öllum vonum, akrarnir eru
þar ekki í eins góðu lagi eins og í
heimalandinu, og áburður var þar af
skornum skamti, en regn af himni
vann upp á móti því, sem ábótavant
var af manna hálfu. Á Suðurjótlandi
(var kartöfluræktin töluvert aukin i
sumar, frá því. sem hefur verið,
sprettan er þar allgóð, en sýki tölu-
\erð í kartöflum.
íandi, en þeir náðu þangað ekki, og
kom P. H. heim seint i ágúst, en sjera
Fr. Fr. dvaldi til og frá i Danmörku.
tram eftir september.
Hafnarverkfallið í Khöfn. Því er
nú loks lokið, segir símfregn frá 27.
f. m.
Hulda skáldkona, frú Unnur
Benediktsdóttir frá Húsavík, fór til
Englands með „íslandi“ í gær og
verður þar, og ef til vill einnig eitt-
hvað i Khöfn, næstkomandi vetur.
„Sögur Rannveigar“, eftir E. H.
Kvaran, eru nú kornnar í bókaversl-
anirnar. Kosta kr. 5,50, og i bandi
kr. 8,00.
Frjettir.
Alþingismenn af Austurlandi fóru
heimleiðis með Lagarfossi í gær-
kvöld, en Suðurland fer með þing-
menn að vestan og norðan innan
skamms. Það fer lengst til Akureyr-
ar.
Dánarfregn. Dáin er á Lækjamóti
i Húnavatnssýslu 17. f. m. merkis •
konan frú Margrjet Eiriksdóttir.
Skip sekkur. Enskur botnvörpung-
nr rakst 24. f. m. á grynningar við
Öndverðarnes og varð mjög lekur.
Annar enskur botnvörpungur reyndi
að draga hann hingað til hafnar, en
hann sökk á leiðinni, hjer vestur i
tlóanum, en mönnunum var biargað.
Skipið, sem sökk, hjet Florence John-
son..
I. C. Poestion hefur nýlega verið
gerður heiðursdoktor háskolans í
Grátz.
Nýtt gistihús í Rvík. Það mun nú
vera fullráðið, að reist verði stórt og
vandað gistihús hjer i bænum, svo
fljótt sem verða má, norðan við
Hverfisgötu, á horninu við Kalkofns-
veginn, andspænis stjórnarráðshús-
inu. Er sá staður vel valinn, og upp-
drættir hafa verið gerðir af bygg-
ingunni. Forstöðumaður fyrirtækis-
ins mun Jónas Lárussön eiga að
verða, mjög efnilegur maður, sem all-
lengi hefur fengist við veitingastarf-
semi í Khöfn, og var hann hjer
heirna um tíma í sumar.
Gunnar Gunnarssonskáld fór heim-
leiðis til Khafnar með „Islandi" í
gærkvöld. Hann hefur verið með
ieikaraflokknum, sem kvikmyndar
Sögu Borgarættarinnar, en skildist
við hann í Reykholti fyrir nokkru og
kom suður hingað. Nú er og leik-
endaflokkurinn allur kominn hingað
og síðastliðna viku hefur verið leik-
ið hjer, í Hafnarfirði og inni við Ell-
iðaár. Hefur fjöldi manna hjcðan úr
bænum verið fenginn til að vcra við
sýningarnar og hús hafa verið reist
lijer, sem eiga að sýna kirkju og bað-
stofu í sveit.
Lýðháskóli á Færeyjum. Á öðrum
stað hjer í blaðinu er prentað ávarp
frá Færeyingum um samskot til
stofnunar lýðháskóla þar í eyjunum,
og leita þeir styrktar til þess að
koma honum á laggir um öll Norður-
lönd. Munu allir lesendur Lögr. skilja
efni ávarpsins, þótt það sje prentað
á færeysku. Eins og sjá má neðan-
undir ávarpinu hafa 3 blöð hjer tek-
ið að sjer að veita samskotum við-
töku, og væri óskandi, að þetta nauð-
synjamál frænda okkar i Færeyjum
tengi sem bestar undirtektir hjer á
iandi.
Sjera Friðrik Friðriksson er ný-
kominn úr för til útlanda, ætlaði á-
samt Pjetri Halldórssyni bóksala að
sækja bindindismannafund 1 Finn-
á Grænlandi.
(Niðurl.)
I 6. gr. 1. hluta stendur: „Danskir
ríkisborgarar njóta að öllu leyti sama
rjettar á íslandi, sem íslenskir borg-
arar fæddir þar, og gagnkvæmt.“ —
Með þessu er íslendingum fyrst og
fremst veittur jafn, þ. e. ekki minni
íjettur, en dönskum borgurum á
Grænlandi. En þvi næst hafa íslend-
ingar — þar sem lokunarlög Græn-
lands eru ógild gagnvart íslandi —
sama rjett á Grænlandi og íslenskir
borgarar i Danmörku. íslendingar,
sem settust að í landinu, mundu
standa þar undir dönskum lögnm og
að líkindum hafa varnarþing i Kaup-
mannahöfn, eins og Danir, sem búa
á Grænlandi (í þjónustu einokunar-
innar). Lokunarlög Grænlands eru
sem sje fullgild gagnvart dönskum
borgurum, þótt þau ríði í bága við
þjóðarjettinn, en dönsk lög, sem
koma í bága við þjóðarjettinn, eru
ógild gagnvart annara ríkja borgur-
um. Grænland er þannig, sem stend-.
ur, lokað fyrir Dönum og opið fyrir
Islendingum.
3. liður 6. gr. er svona: „Bæði
danskir og íslenskir ríkisborgarar
hafa að jöfnu, hvar sem þeir eru bú-
settir, frjálsa heimild til fiskveiða
innan landhelgi hvors annars.“
Þessi liður greinarinnar var sam-
þyktur með svohljóðandi athugasemd
nefndarinnar: „Að því, er sjerstak-
lega snertir hinn gagnkvæmlega rjett
til fiskiveiða í landhelgi, hefur þvi
verið haldið fram af hálfu íslendinga,
að eins og ástatt-er, sje þessi rjettur
miklu meira virði fyrir Dani en ís->
lendinga. Það hefur því komið fram
ósk um, að íslendingum veittist kost-
ur á að stunda fiskveiðar í landhelgi
Grænlands. Þetta getur ekk( orðið,
meðan stjórn Grænlands er með'þeim.
hætti, sem nú, en það er einsætt, að ef
dönskum ríkisborgurum verður að
meira eða minna leyti veittur kostui
á að stunda fiskveiðar í landhelgi
Grænlands, þá munu íslenskir ríkis-
borgarar verða sama rjettar aðnjót-
andi.“
Þessi athugasemd sýnir, að hvorki
íslensku lögfræðingarnir í nefndinni
hafa þekt nje nent að kýnna sjer þau
fáu lagaákvæði, sem til eru viðvíkj-
andi rjettarstöðu danskra borgara á
Grænlandi. En þar sem danskir ríkis-
borgarar höfðu rjett til að fiska í
íandhelgi Grænlands áður en sam-
bandslögin voru samin, hlýtur þessi
athugasemd að vera tómir staðleysu
stafir, og rjettur danskra og íslenskra
ríkisborgara til að fiska í landhelgi
Grænlands vera óskertur fyrir henni.
Hvað lokun Grænlands gagnvart
íslandi snertir, getur ekki verið að
íæða um rjettarfarslegt áframhald af
því sem var, áður en fullveldi íslands
var viðurkent. Slíkt áframhald á sjev
tkki stað samkvæmt þjóðarrjettinum.
^ Það sem þar skiftir rnáli, er yfirlýs-
ing og viðurkenning fullveldisins, og