Lögrétta


Lögrétta - 26.05.1920, Blaðsíða 2

Lögrétta - 26.05.1920, Blaðsíða 2
* LðGRJlTTA LÖGRJETTA kemur út á hverjum mið- vikudegi, og auk þess aukablöð við og við, f'erð io kr. árg. á Islandi, erlendis 12 kr. 30 au. Gjalddagi 1. júlí. ísafjarðarsýslu, að hún skipi riefnd manna innan sýslunnar, til þess að athuga hjeraðsskólamál Vestfjarða, og gera tillögur um framkvæmdir þess. b. Á meðan skólinn á Núpi starfar í því formi sem nú er, væntir fundurinn að sýslan og hrepparnir styrki hann með ríflegu fjárfram- lagi.“ ■— 2. Samgöngumál. Samþykt svohlj. áskorun: „Fundurinn skorar eindregið á hjeraðsbúa að styrkja með hlutabrjefakaupum útvegun og kaup á flutningskipi fyrir Vestfirði." — 3. Rafveita. Svohlj. áskorun sam- þykt: „Fundurinn skorar á sýslu- nefndina aS láta rannsaka hvernig hreppar sýslunnar geti fengið ódýr- asta raforku, og hlynna að því, að þeir geti sem fyrst náð í hana til nauösynlegrar notkunar.“ ■— 4. Hafn- armál. Samþykt svohlj. áskorun: „Fundurinn skorar á alþingismann kjördæmisins að beita sjer fyrir því við þing og stjórn, að rannsakað verði, og gerð áætlun um, hvað kosta muni að dýpka höfnina á Súganda- firði, x sambandi við byggingu öldu- brjóts." — 5. Iðnaður. Svohlj. álykt- un samþykt: „a. Funduririn telur hina brýnustu þörf á, að efla sem xnest heimilisiðnað, og væntir þess, að í öllum kauptúnum hjeraðsins verði komið á fót kenslu í þeirri grein, þar sem skólabörn og aðrir ungling- ar geti notið tilsagnar, og beinir því sjerstaklega til skólariefnda sýslunn- ar. b. Fundurinn telur nauðsynlegt, að komið sje á stofn tóvinnuvjelum fyrir Vestfirði, sem að mirista kosti kembi og spinni, 0g skorar á sýslu- nefnd V.-ísaf jarðarsýslu að taka mál- i'ð til athugunar." — 6. Vinnuhjúa- verðlaun. Svohlj. áskorun samþykt: „Fundurinn skorar á hjeraðsbúa að beita sjer fyrir eflingu verðlaunasjóðs vinriuhjúa/' —- 7. Póstmál. Samþykt svohlj. áskorun: „Fundurinn skorar á póststjórnina að breyta samgöng- um til ísafjarðar þannig, að póstur gangi frá Reykjavik um Borgarnes, Stykkishólm, yfir Breiðafjörð að Brjárislæk, þaðan póstleið til ísafjarð- ar og til baka aftur að Brjánslæk." — 8. Sund. Samþykt. svohlj. áskor- un: „Fundurinn skorar á sýslunefnd V.-ísafjarðarsýslu að styrkja sund- nám í sýslunni á líkari hátt 0g síðast- liðið ár.“ Suðureyri, 3. apríl 1920. í umboði fundarins. Friðrik Hjartarson. Kr. A. Kristjánsson. Húsaleigulögin. Eftir Svein Jónsson. Það eru og hafa verið mjög skiftar skoðanir um þessi „húsaleigulög" iijer í Reykjavík. Sem betur fer, hefur enginn annar kaupstaður á landinu' alitið nauðsynlegt, að setja slik lög, og hafi þeir heiður og þökk fyrir; mun jeg víkja að því síðar. Það hafa verið og munu verða mjög skiftar skoðanir manna um það, hvað bæjar- stjórnir eigi að láta til sín taka um atvinnugreinar bæjarmanna, og sjer- staklega um það, hvort þær eigi að taka þær að miklu eða nokkru leýti í sínar hendur. Jeg er þeirrar skoð- unar, að bæjarstjórn, eins og Reykja- víkur, eigi aldrei að taka sjálf að sjer atvinnugreinar bæjarmanna, og allra síst nema þá að hún geti full- nægt þörfinni, að öðrum kosti er það að eins til þess að öll sómatilfirin- mg fyrir því að kaup og sala sje sanngjörn hverfi, og sjerstaklega er það skaðlegt, hvað þá tijfinningu snertir, að vera sjálfstæður maður sem mest sjálfum sjer nógur. Öll yfir- völd landsins, og þá ekki síst sveitar og bæjarstjórnir, ættu að styðja að sjálfstæði manna; það er hvoru- tveggja í senn, sveita- og bæjarfje- iögunum til hagnaðar, og svo hitt, scnx ekki er mins't á metunum, að maðurinn eignist sjálfstæði, fullnægi cðlishvöt sinni, sem rnaður fljótt verður var við í lífi hvers manns, t. d. þegar barnið í fyrsta sinn gengur emsamalt, hvað það verður hróðugt, og oft er það notað við börn, ef þau geri þetta eða hitt, t. d. borði vel, þá verði þau stór eins og pabbi og mamma; þetta er þáð sem jeg vil glæða hjá öllunx, og ekki sist hjá þeim fátæku; hinir eru vanalega rjálfum sjer nógir. Jeg veit ekki hvernig það er, en mjer finst t. d. hvað húsaleigu hjer í bæ snertir, hafi nú farið að ýmsu leyti út um þúfur, siðan þær raddir fóru að heyrast hjer, sjerstaklega í bæjarstjórninni, að bærinn ætti að sjá um að húsnæðiværi hjer nóg handa öllum. Það var víst jóh. sál. Jóhannesson sem hjelt j essu fram, þegar hann var bæjar- íulltrúi. Mjer þótti það þá, og þyk- ir enn, mesta fjarstæða, svo mikil fjarstæða að jeg hjelt helst að hanri væri að „spekúlera‘‘ í húsasölu fyr- ir sjálfann sig (sem þó ekki var), en hvað hann meinti, veit jeg ekki. Hef- ur bærínn á ýmsan hátt skift sjer af uiáli þessu síðan, og finst mjer öll afskifti hans í því máli hafa orðið Cil þess, að húsaleigjendur hafa lagt áxar í bát, látið bæinn hafa áhyggj- urnar; hvötin til að byggja orðið roinni og sanrigirni á báða bóga. Með j>essu á jeg ekki við þurfalinga bæj- arins. Fyrir þá á bærinn að sjá um húsnæði auðvitað, en fara mjög var- lega í það. Jeg veit fyrir víst, að það er þýð- ingarlítið að skrifa um lögin. Bæj- arstjórnin sjer ekki sólina fyrir þeim, sjer ekki það herfilega órjettlæti sem húsaeigendur verða fyrir, aðrir mega ráða yfir eignum sínum óáreittir af öllum, að eins ekki húsaeigendur i Reykjavík, þeim á að skarnta hús- rúm í sínu eigin húsi, og sömuleiðis leiguna, og er hún að miklu leyti mið- uð við það, hvað húsið kostaði fyrir ic, 20 til 30 árum. Svo er dregin frá íyrning m. m., og ætti að fylgja j>eim reglum til hlítar, þá mundi það enda með þvi, að í húsi, sem væri t. d. 50 ára, sem með vanalegum pen- ingalánskjörum ætti að vera búið að borga upp, þar yrði lítil eða engin húsaleiga, þó gengið væri út frá hinu upphaflega verði. Tökum t. d. hús, sem kostaði fyrir 30 árum 10 þús. kr, Það mundi nú kosta minst 25 þús. l\ú vita allir, að í húsi, bygðu fyrir 30 árum, getur verið alveg eins góð íbúð eins og nú i nýju húsi. En þá ætti jafnstór íbúð í j>ví gamla að kosta 40 krónur á móts við IOO kr. í því nýja. Það vil jeg segja mörgum leigjendum til verðugs hróss, að þeir eru æði margir sem ekki nota sjer j etta óviðunandi ranglæti; þeir hugsa sem svo: jeg fæ hærra kaup nú en fyrir 10 árum, allir hlutir hafa stigið upp, og er því sanngjarnt 'að húsaleiga geri það líka. En það eru ekki allir leigjendur sem hugsa svp. Margir þeir ríku, sem samkvæmt úr- skurði húsaleigunefndar búa við lága ieigu, hugsa sem svo: Það er marg- íalt ódýrara fyrir mig að leigja með pessum kjörum en að byggja sjálfur. Með öðrum orðum: Þeir fátæku geta ekki bygt, en þeir ríku byggja ekki, því með vernd húsaleigulaganna búa jeir margfalt ódýrara en ef þeir bygðu sjálfir. Mjer finst, ef hugsað væri skynsamlega, þá ætti að álykta scm svo: Hvað getum við gert, sem bvetur menn til að byggja, ef það eru lög hjer í Rvík, að bærinn eigi að sjá um að allir hafi húsnæði, þeir sem eru hjer, og eins þeir, sem koma hingað og vilja setjast hjer að, }>á flnst mjer bærinn verða að gera meira on takmarka eignarrjett húseigenda. Órieitanlega gæti það verið afarþægi- íegt fyrir bæjarstjómina,ef húnþyrfti ckki annað en segja við þennan eða hinn, t. d. húsaeigendur, þið verðið aö láta okkur hafa nóg húsnæði; eða þá, sem hafa peninga, þið verðið að lita þá, éða við sjómennina, þið verð- ;ð að láta okkur hafa nógan fisk; ef einhvern vantar föt, þá verða fata- sölumennirnir að láta þau af hendi. Svona mætti halda áfram að tína upp ; en lögin vanta, sem heimila þetta, og j>ó löggjafarþing okkar væri liðugt, að samþykkja húsaleigulögin í stríðs- byrjun, .þá mundi það nú hvorki sam þykkja þannig löguð lög, og heldur ckki húsaleigulög, þó það vildi ekki afnema þau án álits bæjarstjórnar. Þeir töldu sjálfsagt, að þau, eins og aðrar stríðsákvarðanir, hyrfu úr sög- unni. Hvað gerir svo bæjarstjórnin eða borgarstjóri ? Leitar að eins álits liúsaleigunefndar. Það var af skiljan- iegum ástæðum, að hún vildi ekki af- fifcma þau. En hvað kom það henni við ? Við höfum ekki kosið hana til að gæta rjettar okkar. — Nei, það er hæjarstjórnin, sem á að gera það. Tlúsaleigunefndinni er að eins kunn- ugt um, hvað margir eru óánægðii hver við annan; hún verður að fara eftir lögunum, og þau eru svo úr garði gerð, að jeg, sem á hús og vil komast í það 0g býð leigjendunum jafngóða íbúð í nýju húsi, fæ þetta ekki, en þeir fá að sitja, og það þó húsaleiga sje ekki boi'guð á rjettum tima, jafnvel þó drátturinn sje svo mánvtðum skiftir, þá er það ekki gild ástæða fyrir uppsögn á húsnæðinu, Eftir að þannig lyktaði, bjóst maður við, að málið yrði rætt á bæjarstjórn- arfundi, en það hefur ekki orðið enri þá. En þó heýrist mannr, að ýmsum bæjarfultrúum finnist, að þeir þurfi eitthvað að breyta; fara með okkur húséigendur eins og sagt er í rúss- t.esku sögunum um fangana, sem íiuttir voru milli.fangahúsanna, látn- ir hafa það betra eða verra, alt eftir því hve þolinmóðir þeir voru. Nú finst sumum bæjarfulltrúunum að við húsaeigendur höfum verið þolinmóð- ir, hegðað okkur þannig, að slaka megi á verstu böndunum, en að sleppa okkur lausum, sje hætta, — einhver íádæma hætta. — Hvað skyldu þeir halda um okkur, ef okkur væri slept? Ekki mundum við strjúka, liklega heldur ekki brenna húsin, — máske teka alla leigjendurna út á götu, standa í dyrunum með reiddan hnef- ann og segja við þetta húsnæðislausa fólk: Þið fáið aldrei að komast í hús, við höfum grætt svo lítið á ykk- ur, nú búum við í 12 herbergjum, og sofum sinn mánuðinn í hverju. Eða halda þeir, að við förum að ónáða bæjarstjórnina? Jeg hugsa helst, að við gengjum á fótunum eftir sem áð- rr, við hefðum átt að skána við hirt- inguna, enda hefur það verið þörf, eftir því, sem orð liggja til okkar, sem eigum hús; jeg man eftir í fyrsta sinni sem jeg heyrði okkur nefnda þessu virðulega nafni „andsk. húsa- braskara", að mjer brá töluvert; jeg bjelt við værum frjálsir að smíða og selja hús eins og sjómaðurinn að róa og selja aflann sinn. Það er vont, að hafa ekkert að jeta, það er líka vont, að hafa ekki hús yfir höfuðið á sjer; hvorutveggja er riaðusynlegt. Þetta virðulega nafn, sem við fengum, sent smíðuðum eða ljetum smíða hús, og einhverra orsaka vegna seldum þau, heyrði jeg fyrst hjá Sig. Sigurðssyni búfr.; hann var þá aðalmaðurinri í verkamannafjel. Dagsbrún, og þaðan hefur ætið andað kalt til húsafram- leiðenda. Nú eru þeir sjálfir líka tekn- ir við, farnir að byggja hús. Þar verður ekki hugsað um að græða, þeir ljetta þar stórri byrði af bæjar- búum, því alt þetta húsaleigulaga- íargan er til komið af því, að þeir gátu ekki vitað það, að þessir húsa- braskarar rökuðu saman peningum svona miskunnarlaust, frá fátækum almúganum; þeir gátu varla horft á peningana, sem við tókurh hjá þeim i iku, hvað þá hinum; auðvitað sjá j>eir einstaka dökka bletti hjá ýmsum mönnuhi hjer í bæ, án þess þeir fari iil „andsk. húsabraskaranna“, t. d. Thor Jensen, Copland og fl. Copland borgar þó núna í útsvar sem næst eins og helmingurinn af öllum gjald- endum hjer í Rvik, ef byrjað er á þeim, sem lægst hafa útsvar. Þáð eru um 3 hundruð gjaldendur, sem hafa eitt þús. kr. og meira, í þeim góða hóp finn jeg að eins tvo, sem máske mætti segja, að væru eða hefðu stundað það, að leigja og selja hús, annar með eitt ]>ús. kr. og hinn með 12 hundruð kr. Hvar er þá allur auð- unnn, sem húsaeigendur 0g húsa- braskararnir hafa grætt? Það er mál • tæki, sem segir: aumur er öfundslaus maður. Það á vel við húsaeigendurna og húsaleigumálin. Vill einhver benda ntjer á þessa óttalega ríku húsabrask- ara? Jeg finn þá ekki,. og niðurjöfn- unarnefndin finnur þá auðsjáanlega ckki heldur, og finst manni þó, að hún finni það, sem feitt er á stykkinu, Sjálfsagt er mikill meiri hluti af þeim, sem hafa orðið gjaldþrota hjer í bæ, einmitt menn, sem voru að braska í því að byggja hús, og ]>á er hægt að finna rnarga, sem ekki urðu öðru vísi gjald]>rota, en að missa ait sitt og alt, sem þeir áttu í húsinu, bankarnir heimtuðu sitt, og ekki var að vænta styrks úr neinni átt. Svo J>egar búið er að niða niður þennan atvinnuveg, og húsin eru orðin of fá, :þá er tekið til þess ráðs, að semja húsaleigulög, sjálfsagt til að auka framleiðsluna á húsum, hvetja menn ;til að byggja, pg hvötina finna þeir fielst með því að taka ráðin af þeim, isem eiga hús eða byggja þau, skamta þeim húsnæði og húsaleigu; þetta ier sannarlega lokaráð, hvorutveggja ráðin verka í þeröfuga átt. Þarf iengar útskýringar á því, það sjá allir menn, að það er ekki hægt að ráð- ;ast í húsabyggingaf, þegar maður á von á, að þegar húsið er búið, verði lionum skamtað húsrúmið og svo ' letgan, ef aðrir búa í húsinu, og enn itef jeg ekki heyrt, að húsaleigunefnd iio.fi úrskurðað húsaleigu eftir dýr- tíðinni. Mitt álit og margra annara, bæði húsaeigenda og leigjenda, er að ]>essi húsaleigulög með húsaleigu- skamti, hafi gert ilt eitt, og ekkert írnnað, spilt sambúð milli manna, spilt húsunum svo, að ekki er þugsað um að hafa þau í lagi, spilt fyrir aukning húsa og, það sem allra verst er, þau hafa spilt fyrir húsnæðunum. Það er enginn vafi á, að margur maðurinn hefði þrengt meir að sjer íyrir leigjendum, hefði hann haft von ttm að geta losnað við þá aftur. Jeg á við haust eða vor. Og dæmin sanna þetta. Bæði í Vestmannaeyjum og á Akureyri voru 0g eru mikil húsa- vandræði; til Akureyririga voru send ]>essi margumræddu húsaleigulög, þeim til blessunar. En hvað skeði? öæjarstjórnin þar áleit, að hún væri ckki kosin til að beita bæjarbúa slík- um órjett, og neitaði þessu góða til- Loði, og maður hefur ekki heyrt, að ]>ar hafi nokkur maður orðið illa úti hvað húnsæði snertir. Sama má segja um Vestmannaeyjar; alt hefur gengið j>ar ]>olanlega, og þó hefur verið þar um fjölda mörg ár meira húsnæðis- leysi, eða ekki minna, en hjer. Margir segja, að bæjarstjórn hjer geri margt axarskaftið, en húsaleigulögin eru það versta af þeim öllum; þar er engin brú af skynsemi. Fyrst eru nú lögin, og svo er húsaleigunefndin með alræðisvaldi. Hennar dómi verða allir að hlíta, bæði með húsnæði og húsa- ietguna, en hún sjálf (nefndin) kostar okkur bæjarbúa með húsrúmi og pappir 10—15 þús. kr. á ári. Það er nú ekki mikið, eða svo finst sumum bæjarfulltrúununi víst ekki, því ef jieir lina eitthvað á lögunum, þá telja að minsta kosti sumir, að það verði að setja nýja nefnd, sem á að virða ölt hús í bænurn, og ákveða húsaleig- t;na eftir virðingu. Það gæti veriö svo skynsönt nefnd, að við þetta væri unandi, En er hún nauðsynleg? Þvi mikið kostar hún okkur; svoeruþess- ar nefridir viðsjálsgripir, t. d. ligg- ur næst að hugsa svo um húsaleigu- nefndina. Hún þykist ekki (svo jeg taki eitt dæmi) geta leyft húseiganda að segja upp húsnæði í sínu húsi, þó húseigandinn útvegi annað í staðinn engit verra. Það hefur þó vaila verið aðaltilgangur laganna, heldur hitt, að íeyna að láta menn hafa húsnæði, en bókstafurinn gildir. Svo ákveður húri húsaleiguna og fer þar að eins og hún húgsi: Þess lægri húsaleigu, sem við akveðum, þess fleiri'byggja. Jeg álít, að bæjarstj. og húsaleigunefnd hljóti að hugsa svo, því hjer vantar fremur hús en peninga. Annars sje jeg ekki, að bæjarstjórn sje það áríðandi, að peningarnir sjeu fremur í vasa Páls en Pjeturs. Það sem húsaleigunefndin leggur til grundvallar, þegar hún á- kveður húsaleigu (að jeg held), er: hvað húsið kosti eigandann. Það er, eins og jeg hef áður sagt, íbúðirnar eru kann ske alveg jafnar. Annað húsið er nýtt, en hitt er 20—30 ára. Það gamla getur vel verið í ágætu síandi, en það nýja bygt af vanefnum, og þvi ilt í alla staði, — hvernig er svo hægt að ákveða húsaleigu V3 hærri í nýja húsinu? Það væri sama og að segja við sjóntanninn: Já, góði minri, þú varst svo fljótur að hlaða, iielmingi fljótari en hinir, — þú verð- 'tr að selja þinn fisk helmingi ódýr- ara. Nei! snúið þið við blaðinu, góðu bæjarfulltrúar, sleppið j>ið öllum húsaleigulögum, Játið húsaeigendur aiveg ráða, hjálpio fátækum að borga 1 úsaleiguna með þeim peningum, sem kúsaleigunefndiri kostar núna, og hvetjið menn til að byggja, og hjálpið öllum, sein byggja vilja, með ráðum og dáð, t. d. með ]>ví, að selja mönn- um lóðir með góðum borgunarskil- málum, svo sent J>eim, að þær megi borgast á 25 árum, þeir sem þær heldur vildu en leigulóðir, sem að mínu áliti eru verstu úrræði, svo er \afalaust hægt að byggja að mun ðdýrara, ef útsjón og hagsýni er við- höfð. Mjer hefur oft dottið i hug, hvort nefnd af hyggnum og reynd- unt mönnum í, húsabyggingum, sem ’-æri launuð svo, að hún gæti gefið ^ig við húsabyggingarfyrirkomulagi, mundi ekki geta gert rnikið gagn; jeg held alt af, bæði með timbur- 0g steinhús, að í þau sjeu bornir of mikl- ir peningar; það væri að minsta kosti liess'vert, að athuga, hvort ekki mætti gera einhverjar framfarir með okkar góða grástein, svo hann yrði okkur ódýrasta byggingarefnið. Þórður Sigurðsson fyrv. bóndi á Hæli í Flókadal. Margir þektu Þórð á Hæli, þrekvaxna og mikilvirka; að yrkja skylt er eftirmæli um aldna kappann þróttarstyrka. Stóru búi stýra kunni stefnufast, með góðum arði, cetíð röð og reglu unni, rausn j>eim sýndi’ er bar að garði. Fáir ræktu bú sitt betur, brast þar eigi hyggnismerki; störfum sinti sumar og vetur; sjálfstæður í orði og verki. í orðavala erigum líkur, örugt samt til mála lagði, ntjög ei talirin mentaríkur, margt þó gott sem karlinn sagði. Iíoll en fábreytt heimakenning horfði glögt til framavona; jtaðan góð og gömul menning gekk i arf til fóstursoria. Þverrar vani góður og gildur, gleymast sumar fornar dygðir, rnargskyns lausung, tíska og tildur teygist út um landsins bygðir. S. J. Enskar orðabækur. Eins og að líkindum lætur er hjer 4 landi keypt eigi all-lítið af enskum orðabókum á seinni árum. Það stafar a f sívaxandi rækt sem hjer er lögð vtð enska tungu. Hver einasti maður sem það mál lærir, svo að lærdómur geti heitið, kaupir að sjálfsögðu ensk- enska orðabók, því bæði er það, að ensk-íslenska orðabók eigum við ekki nenia svo litla, að hún er allsendis ó- nóg þeim er til nokkurra hlita vilja nemá málið, eða lesa hverjar enskar bækur sem fyrir koma, og svo hitt, að flestum er það ljóst, að þeir læra margfalt meira með því að nota al- cnska orðabók, en nteð því, að nota bók, sem þýðir orðin á arinað mál, hvort sem það er nú íslenska eða íkmska. Alt um það getur náttúrlega ertginn hjá ]>ví komist að hafa líka ensk-íslensku orðabókina, því á byrj- unarstigiriu þurfa allir á henni að halda, enda er hún ágæt skólabók. En hitt verður ekki um of brýnt fyrir mönnum, að þvi fyr sem þeir fara að nota alenska orðabók meðfram, því betri verður árangurinn af lestrj jfeirra. Erigin þjóð á slíkar orðabækur yf- ir móðurmál sitt sem Englendingar, og það hygg jeg að segja megi, að allar þær orðabækur ensk-enskar, sem nú eru á markaðinum á Eng- landi, sjeu góðar bækur, hver eftir sinni stærð. En eigi að síður eru j>ær bó geisilega mismuriandi að gæðunt og fer því þó fjarri að hinar betri sjeu dýrari en þær, sem óvandaðri eru. Það er því ilt til þess að vita, að orðabækur þær, sem einna mest munu keyptar hjer, eru einmitt hinar lakari, eins og. t. d. Nuttalls og Collins, þott bctri bækur, eins og t. d. Chambers’s Twentieth Century Dictionary og Annandales, báðar "agætar bækur, sjeu einnig allmikið keyptar. En yngri og jafnframt miklu merk- ari en allar þessar bækur, er orða- bók sem Clarendon Press í Oxjord fvrst ghf út árið 1911. Af henni hef- ur síðan hver útgáfan rekið aðra. Hún neínist „The Concise Oxford Dictionary of Current English‘‘ og höfundar hennar eru Itræðurnir H. W. Fowler og F. G. Fowler, sem áð- ur voru orðnir þjóðkunnir fyrir hina ágætu bók sína „The King’s Eng- !ish“, er allir ntenn nú lesa, sem læra vilja að skrifa fagra og óbrjálaða ensku. Orðabók þeirra er tvímæla- laust hin vandaðasta alþýðúorðabók sem samin hefur verið á nokkru ntáli, og hún er ekki síður vísindabók en aiþýðubók, enda er hún í rauninni e.kki ennað en smækkuð útgáfa af hinni heimsfrægu Oxford-orðabók. stærstu orðabók heimsins, sem mestu málfræðingar Breta hafa unnið að í heilan marinsaldur og nú um það levti lokið við. Að orðabók Fowlersbrærða hefur ekki verið keypt hjer í stað annara, stafar vitanlega af þvi að fáir hafa, sent eðlilegt er, nokkuð til hennar þekt. En á Englandi er hún nú riot- uð mest allra orðabóka, og mig minrt-

x

Lögrétta

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögrétta
https://timarit.is/publication/196

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.