Lögrétta - 02.11.1921, Blaðsíða 2
1
LÖGRJETTA
við Seyðisfjarðarkaupstað, og út-
sýn frá ýmsum sérkennilegum
st.öðum í nánd við Seyðisfjörð.
Austf jarðaf jöllin eru mjög til-
breytingarík, en þau hafa lítt ver-
ið sýnd á málverkum fyr en nú
tun, og þóttust menn helst geta
gert sér skiljanlega framkomu
sögunnar á þann veg. En lang-
orður er J. J. enn um málið og
lætur hugann reika víða. Fer hann
nijög á v^lligötur, lendir í þoku
hjá Kjarvai, enda er hann fyrsti og sér þá ofsjónir. Þykist hann
austfirski málarinn.
Stofurnar tvær, sem Kjarval
sýnir nú myndir sínar í, eru altof
litlar, og þar að auki er birtan
þar ekki svo góð $em æskilegt
væri. En margir hafa komið þang-
að, og töluvert hefir selst, einkum
af vatnslitamyndum. Sagt er að
þeir, sem kaupa fyrir málverkasafn
landsins, ætli að taka eitthvað af
stærri myndunum. — Aður hefir
Skógarhöli Kjarvals verið keypt
þangað, sem er mjög fallegt mál-
verk, en hefir ekki fengið vel val-
inn stað í safninu, og ef til vill
eitthvað fleira af málverkum hans.
Heine-þýðingar.
Það var einn gamall gylfi.
Það var einn gamall gylfi.
Hans hár var grátt, hans hyggja
þung. ;
Sá veslings gamli gylfi
tók kqnu, er var ung.
í höfl var hirðsveinn fríður.
Hans hár var hjart og létt hans
lund. |
Sá sveinn bar silkislóðann,
er drotning dró við grund.
Hvort kantu gamla kvæðið ?
Það er svo ljúft, það er svo leitt.
Þau urðu að blikna bæði;
þau unnust alt of heitt.
Gaktu!
Ef baka meyjarsvik þér sorg,
þá svanna annan taktu!
Eða heldur burt úr borg
bregð þér strax, og gaktu!
Þá brátt þú finnur blávötn skygð,
þar bakka grátpíll þekur.
Þar grætur þú úr hjarta hrygð,
og hugraun enda tekur.
Og upp á fjallið er þú snýr,
þú andvarpar af striti.
En efst þér berst að eyrum gnýr
af amarvængjaþyti.
Þá verða muntu emi að
og endurborinn vakna,
og frjáls úr lofti líta það,
hve lítils þarftu að sakna.
Eg vildi, —
Eg vildi að þið værað orðin
að vorsins blómum, mín ljóð,
svo teiga mætti ykkar angan
mitt ástkærasta fljóð.
Eg vildi að þið væmð orðin
að vinarkossum, mín ljóð,
svo ykkur fengí öll á vangann
mitt ástkærasta fljóð
Eg vildi að þið væruð orðin
að vænum baunum, mín ljóð.
Þá syði eg baunasúpu,
er svei mér yrði góð.
Sváfnir þýddi.
-------0--------
Landráðamálið enn.
J. J. hefir nú í Tímanum Jýst
yfir því með skýmm orðum, að
hann eigi engan þátt í birtingu
landráðasögunnar í erlendum blöð-
um, og verður sú hlið málsins þá
enn dularfyllri en verið hefir, því
honum var eignað þetta af mörg-
sjá Jón Magnússon forsætisráð
herra þar á hlið við sig, en það
er ekki annað en missýning. Mbl.
hefir ekki flutt einn staf um þetta
mál fyrir J. M. né af hans hvöt-
um. Yfir höfuð hefir það ekki
flutt annað um málið en símskeyt- *
in frá Khöfn og eina stutta skýr-
andi grein, fyr en nú, að J. J. fór
að gerast margorður um það í Tím-
anum og leiðrétta þurfti sumt af
því, sem þar kom fram. Mbl. veit
alls ekki til þess, að útgefendum
þess sé á nokkurn hátt ant um
þetta mál, og alt tal hr. J. J. um
þá í sambandi við það' fellur al-
veg máttlaust niður. Eða hvaða
ástæðu getur hann ímyndað sér
til þess, að þeir færu að skifta sér
af öðru eins máli og þessu? Án
þess að Morgunbl. dæmi neitt um
gáfur eða djúphygni hr. J. J., þá
finst því stagl hans um útg. Mbl.
í sambandi við þetta mál ekkert
greindarmerki. Eða h,vað kemur
þetta landráðamál við deilum um
samvinnufélagsskap og kaup-
mensku? Hann verður að útskýra
það nánar, ef hann ætlast til að
rætt sé um það við sig í því sam-
bandi. Morgunblaðið hefir ekkert
á móti því, að málið sé rannsak-
að, en hins vegar getur það ekki
talið þá rannsókn meðal nauð-
synjamála, og það fær ekki skilið,
að nokkur flokkas’kifting geti átt
sér stað um það mál, eins og þó
vjrðist vaka fyrir J. J. En svo sem
fyr er sagt, er grein hans um
þetta full af þokusýnum. J. M.,
Morgunbl. og útg. þess virðast
hafa fengið einhverjar óljósar
tröllamyndir í huga hans, og hann
þykist sjá þessa ímynduðu óvini í
kringum sig, þótt þeir séu hvergi
nærri. Og fálmgjarnt er honum
enn, eins og Tímanum hefir löng-
um verið, til peningaskáps Morg-
unblaðsins. En meðan hann hefir.
jafngreiðan aðgang og ætla mál
að hann hafi að peningaskáp *
Sambandsins, og getur leikið sér
út um allar álfur á hverju sumri,
þá sýnist það vera óþarfi fyrir
hann, að vera að hnýsast í pen-
ingaskápa annara.
í greinum J. J. um landráða-
málið er altaf hamrað á því, að
stjórnin hafi fengið það í hendur
þriggja manna nefndinni, þeim
Jóh. Jóh., Sv. Bjömssyni og H.
Snorrasyni, en þetta er rangt, eins
og J. J. hlýtur að vita. í Lögr. 13.
okt. (og einng í Mbl.) hefir verið
sagt frá því, að stjórain afhenti
málið stjómarskrárnefnd þingsins,
en hún kaus síðan þessa þrjá
menn, sem nefndir eru hér á und-
an til þess a§ rannsaka það. í
stjómarskrámefndinni vora þá
þessir 12 menn: Úr Nd. Sigurður
Stefánsson, Þórarinn Jónsson, Þor-
leifur Jónsson, P. Ottesen, Sveinn
Bjömsson, Stefán Stefánsson og
Jón Sigurðsson; úr Ed. Einar
Árnason, Guðm. ólafsson, Hjört-
ur Snorrason, Joh. Jóh. og Sigurj.
Friðjónsson. Á þessa nefnd
hlýtur að falla ábyrgðin á vali
þeirra Jóh. Jóh., Sv. B. og Hj.
Sn., ef um nokkur mistök væri að
ræða, en ekki á forsætisráðherra
eða iandsstjómina, og hitta þá'1
allar ásakanir J. J. um pukur og
hlutdrægni og þar fram eftir göt-
iri eiour liar uétruooar ooso elii?
5 Zritisfj 0
*%r
%
InsurancE Company Ltd., bnndon
V á t ry ggip gegn eldi: hús, vörur, innbú og annað lausafé.
-^=^fiuErgi uissari né ódýrari uátrygging.^=—
Vátryggingarskírteini gefur aðalumboðsmaður félagsins á íslandi
Garðar Gislason
Símnefni »Vátrygging« Reykjavík Sími 28 1.
Umboð8menn félagsins út um land eru:
Páll Skúlason, Akureyri Versl. Aðalst. Kristjánssonar, Húsavík
Páll G. Þormar, Norðfirði Einar Methúsalemsson, Seyðisfirði
Guðm. Loptsson, Eskifirði Þorsteinn Þorsteinsson, Vík
Viggo Bjöinsson, Vestmannaeyjum Sigurður Guðmundsson, Eyrarbakka
Gunnar Halldórsson, Stykkishólmi Stefán Sigurðsson, ísafirði
H. Theodors, Borðeyri.
unum suma af helstu samvinnu-
forkólfum þingsins,sem þeim Tíma-
mönnunum hefir hingað til verið
gjamara til að skjalla en skamma.
-------0------
nfltt UErsíunarfélag.
Nýmæli má telja það, að fjórir
menn íslenskir, ásamt þýzkum
kaupsýslumönnum, hafa ákveðið
að beita sér fyrir stofnun íslensks-
þýsks verslunarfélags. Eru ís-
lensku mennimir þeir Sigfús
Blöndahl konsúll, Alexander Jó-
hannesson dr., Bjami Jónsson frá
V ogi og Eínar Arnórsson pró- i
fessor.
Fyrirkomulag þessa félags er
hugsað á þá leið, að það hafi
heimili og varnarþing hér á Is-
landi og skrifstofu í Þýskalandi,
líklega Hamborg, og á það að full-
nægja íslenskum lögum í hvívetna.
Hlutverk félagsins á að vera heild-
sala íslenskra afurða í Þýskalandi
og þýskss vamings á Islandi.
Hlutir í félaginu er ætlast til
að verði kr. 100, 500 og, 1000, og
er upphæð hlutafjárins ákveðin
100,000 kr.
Félag þetta mun, ef það kemst
á stof-n, beita sér fyrir beinum
skipaferðum milli íslands og
Þýskalands til þess að spara um-
hleðslukostnað og fá lægra farm-
gjald.
Hinir íslensku forgöngumenn
félagsstofnunarinnar hafa von um
að félagið muni geta staðið vel
að vígi að fá leyfi til útflutnings
á vöram frá Þýskalandi hingað,
því að góðir menn og áhrifamiklir
standa að félaginu í Þýskalandi.
Torskilin bæjanöfn í Skaga-
f.jarðarsýslu. Svo heitir bæklingur
sem nýkominn er út eftir Margeir
Jónsson á Ögmundarstöðum í
Skagafirði, og birtist hann fyrst í
blaðinu „íslendingi“ á Akureyri,
en er nú gefinn út aukinn og end-
urbættur frá því, sem þar var.
Það er auðséð, að höf. hefir gert
sér alt far um að rannsaka efni
það sem hann ritar um, sem grand
gæfilegast, því hann rekur ítar-
lega sögu ýmsra þeirra bæjar-
nafna, sem hann fæst við að skýra
og er því ekki lítill fróðleikur í
bæklingnum, og gott er það, að
menn geri sér far um að skilja
og leiðrétta þau bæjanöfn, sem af-
lagast hafa.
Ný lesbók handa bömum og
unglingum er komin út á Akureyri,
á kostnað Þórhalls Bjarnarsonar, en
gefin út að tilhlutun kennarafélags-
ins þar. í formálanum segir, að bók-
in sé fyrst og fremst ætluð til lestr-
aræfinga í barnaskólum, eða. við
barnakenslu. Ýmsir kennarar hafi
kvartað um, að alt of lítið væri til
af þess konar bókum. Síðasta hefti
Lesbókarinnar, sem til sé, hafi
reynst alt of þungt til þess að nota
það strax á eftir hinum. Ætlast sé
til þess, að Ný lesbók geti dugað
heilan vetur í 6 ménaða skóla.
Frá útlöndum.
Wirth kanslari myndar stjóm í
Þýskalandi.
Fundir hófust aftur í þýska
ríkisþinginu 20. f. m. Voru þá um
sama ieyti orðin heyrinkunn úr-
slitin í Efri-Schlesíumálinu og var
almenn óánægja yfir þeim í
Þýskalandi. Wirth sagði af sér
völdum og alt ráðuneyti hans og
færði þetta mál til ástæðu fyrir
lausnarbeiðninni .
Degi síðar fekk Wirth áskomn
um að mynda stjóm aftur og
varð hann við henni. Ber þetta
vott um að þingið treystir honum
best allra þeirra, sem við stjóm-
mál iást í Þýskalandi, til þess að
sitja við stýrið. Þrátt fyrir samn-
inga meiri hluta-jafnaðarmanna
og afturhaldsmanna og ráðagerð
þeirra um stjórnarrayndun, varð
meiri hlutinn í þinginu því fylgj-
andi að láta Wirt sitja við völd
áfram. Hefir því þessi atburður
orðið honum til traustsyfirlýsing-
ar.
Nýja stjórnin er nokkuð öðru-
vísi skipuð en sú fyrri. Walther
Rathenau, sem var cndurreisnar-
ráðherra, er ekki í stjórninni og
embætti hans ‘er óskipað enn.
Söm uleiðis hefir Schiffer, sem var
dómsmálaráðherra í fyrra ráðu- ,
neytinu ekki verið tekinn í nýja
ráðuneytið. Bauer er utanríkisráð-
herra í nýja ráðuneytinu, e» von
Rosen, sem var áður utanríkisráð-
herra er mi orðinn fjármálaráð-
herra. Kemur það mjög á óvart
því flestir spáðu að hann mundi
verða gerður að sendiherra. Stjórn
in styðst nser eingöngu við meiri-
hluta-jafnaðarmenn og miðflokk-
inn.
Ganga má að því vísu, að stefna
nýja ráðuneytisins verði nokkuð
(innur en áður var. Wirth kanslari
mun þykjast laus allra mála um
ýmislegt það, sem hnn hafði geng-
ist undir við bandainenn, fyrst
Þjóðverjar fengu ekki Vilja sinn í
Efri-Schlesíu málinu.
Fyrsta verk stjómarinnar var
það, að taka afstöðu til skifting-
ar Efri-Schlesíu. Þingið félst á
stefnu stjórnarinnar í því máli og
sendi stjómin síðan Bandamönn-
um ávarp út af skiftingunni. í
ávarpi þessu segir stjórnin, að
skiftingin sé óréttlát bæði fjár-
hagslega og landskipulega, þar
sé hallað á Þjóðverja og friðar-
samningamir frá Versailles séu
brotnir, með skipim þeirri er al-
þjóðasambandsráðið hefir gert á
fundi sínum í Genf í haust. Mót-
mælir stjórnin því eindregið skift-
ingunni og segist aðeins tilnefna