Lögrétta

Issue

Lögrétta - 24.04.1922, Page 2

Lögrétta - 24.04.1922, Page 2
2 LÖORJBTTA ef v-era skyldi gamlar „guðsorða- bækur“, sem enginn lítur í. Slík beimili eru kalblettir í þjóðlífi voru, en fátíð eru þau, sem betur fer. Jeg spurðist fyrir um bóka- eign þeirra Haddingdæla og var sagt, að flestöll beimili ættu eng- ar bækur! Jeg bafði beldur ekki orðið þeirra var á þeim bæjum, sem jeg hafði komið inn á. Norð- menn hafa þó miklu meiri bóka- kost en vjer, marga heimsfræga rithöfunda, og ódýrar hafa bæk- urnar lengst af verið. Þá hafa þeir og allgóða barnaskóla og sfcóla- skyldu, og þrátt fyrir alt þetta er ástandið ekki betra! Jeg kalla þetta eftirtektarvert, ekki sístfyr- ir þá, sem halda að bamaskólarn- ir tryggi góða alþýðumentun. — Þegar maður veit þetta, verður margt skiljanlegra, sem fyrir aug- un ber, t. d. hvernig allir byggja eftir gömlum sveitarsið og hag- nýta sjer alls ekkert ágætar leið- beininga'bækur, sem hafa verið gefnar út. Mennimir kunna hvorki að nota bækur nje meta. Þeir eiga mikið eftir að læra, þeir góðu menn! Ferðafólk. Á gistihúsinu, sem jeg bjó á, var fjöldi manna, karla og kvenna- Sumir voru þar um kyrt og tóku sjer sumarhvíld í sólskininu og góða veðrinu. Aðrir komu og fóra, vora aðeins nótt- ina yfir. Þessi ferðamannastraum- ur stafar af því, að allur fjöldi bæjarbúa lyftir sjer upp á sumrin, hálfs mánaðar tíma eða svo. Þeir fara þá allajafna mikinn hluta leiðar á jámbraut, en úr því fara þeir fótgangandi og oft langar leiðir. Bæði er lítið um hesta og vagnflutningur dýr, en svo þykir unga fólkinu flestu það bæði holi- ara og frjálslegra að ganga. Sting- ur þetta mjög í stúf við það sem gerist heima. Það er gaman að sjá allan þennan feröamannastraum og útbúnað inanna. Fólkið er ljettklætt.en þó vel búið gegn veðri og vindi, skór nokk- uð luralegir, en sterkir mjög og vandaðir. Nesti sitt og nauðsynjar allar hafa menn í allstórum, vatns- heldum striga- eða ljereftsmal á baki sjer, og ganga ólar yfir báðar axlir. Er það ekkert smáræði, sem menn flytja þannig á bakinu. Mig minnir að sumar stúlkurnar bæru yfir 3 f jórfiunga. Svona ganga heilir hópar af konum og körlum all-langar dag- leiðir frá einu gistihúsi til annars, og liggur vel á fólkinu, er hóparnir hittast á kvöldum á gistihúsunum og hver segir öðrum frá æfintýrum sínum á ferðalaginu. Stundum er og farið langar leiðir yfir fjöll og firnindi, og legið úti eða gist í selj- um á fjöllum uppi. Enginn efi er á því, að þetta ferðalíf og útivist öll er mjög gott og heilsusamlegt fyrir borgarlýðinn, sem situr alt árið hreifingarlítill inni í húsum sínum, og eitthvað er það mannlegra að sýna dug sinn og dugnað í því að ganga langar leiöir og stundum tor- færar, heldur en að komast varla bæjarleið, nema á bykkju, eins og siður er hjer heima. Það er eins og fólkið alt sje farlama aumingjar. Jeg gæti trúað því, að margt unga fólkið trúlofaðist á þessum ferða- lögum, en hvergi sá jeg þó neitt eða heyrði, sem bent gæti á, að siðspill- ing fylgdi þessum sumarferðum. Það hygg jeg, eftir því sem and- inn er í Noregi, aö fæstum mundi detta í hug, þó þeir færu að sunnan, norður á land í kaupavinnu, að kúldast í lestum strandfesrðaskiþ- anna, sjóveikir og illa haldnir. Marg- ir myndu fara í smáhópum gang- andi, og sennilega sömu leið og fyr gerðist: yfir Kaldadal og Stórasand. Geta slíkar ferðir verið hinar skemtilegustu, ef samfylgdarfólkið er gott. Þó yrði oftast að hafa ein- hvern viðbúnað til þess að komast yfir Geitlöndin og Norðlingafljót, sem að vísu væri hægur galdur. Yfir Harffangurfjöllin. Eftir tæpa tveggja daga dvöl lögðum við aftur af stað með járnbrautarlest- inni. Lá níi leiðin upp í botninn á Haddingjadal, og þaðan yfir fjöll og fyrnindi, sem greina dalinn og HarðangurfjörSinn, ■— sveitirnar austan fjalls og vestan, eins og nefnt er í Noregi, Er þetta mikil tröllaleið, og liggur alveg upp í jöklum þar sem hæst er. Þar heitir Finse, og er þar brautarstöð með gistihúsi og öllum nauðsynjum fyr- ir ferðamenn. Fara menn þangað hópum saman á sumrin og ganga á jökla, fára á skíðum og skemta sjer við allskonar vetraríþróttir um há- sumarið. Þetta kann að þykja kyn- legt, en er þó auðskilið, því stund- um ætlar sumarhitinn að gera út af við borgarlýðinn, og fer hann þá að þrá snjó og svala. Að vísu er næg- ur snjór og nokkur jökull þar uppi, en lítið þó hjá jökulbreiðunum ís- lensku, og þætti mjer ekki ólíklegt, að útlendir ferðalangar og sjervitr- ingar flyktust þangað, ef samgöng- ur væru auðveldar og vel í haginn búið fyrir þá. Hins vegar stendur oss sennilega margt nær en að draga að oss slíkt hyski. Sviplegt er það fyrir oss íslend- inga, að fara þarna yfir fjöllin. — Niðri í dölunum stóð barrskógur- inn í fullum blóma og gróður allur miklu bragðlegri og stórvaxnari en gerist hjá oss. Þegar ofar dregur fara barrtrjen að verða lægri og kyrkingslegri. Þeim fer svo óðum að fækka, en í stað þeirra kemur spengi- leg björkin, með ljósgræna limið og hvítan stofninn. Hún er harðgerðari en furan og grenið. Þegar enn hærra kemur fer björkin einnig að verða icyrkingsleg, lægri og kræklóttari, en hverfur svo að lokum. En um það bil að björkin fer að láta á sjá, og þrífast illa, sjest það ljóslega hvar sem gróður er, að hann er sömu ieg- undar og á íslandi. Maður kannast við alt, jurtirnar og graslagið. Má af þessu sjá, að veðurlag vort er jafnilt og á fjöllum uppi í Noregi, þar sem barrskógar þrífast ekki og björkin naumast. Sýnist þetta út af fyrir sig gefa litlar vonir um, að Skógar geti þrifist hjer. Þegar að lokum komið er upp undir jökla, hverfur líka björkin og taka við holt og melar eða mýrarblettir, eins og sjá má á keiðum vorum og öræfum. Landið fær alt hinn sama svip og gróður og þar. Seinast er mosi einn og skófir, með dálitlu af harðgerð- ustu grösum og jurtum. Það er svo sem sjálfsagt, að það var ekkert áhlaupaverk, að leggja þessa miklu járnbraut yfir regin- fjöll og alt hvað fyrir var. Og það var í raun og veru erfiðara en menn skyldu ætla hjer heima, því landið er miklu torsóttara og hrikalegra um þessar slóðir en víðast heima. Yar á ótal stöðum ekki um annað að gera en að grafa stór og smá jarð- göng gegnurn fjallarana og aðrar torfærur. Sumstaðar er það engin smáræðis vegur, sem þannig er farið yfir í sótsvörtum jarðgöngum, ef- laust 5 kílómetrar á sumum stöðum, ef ekki miklu meira. Yerður því að láta ljós brenna í vögnunum, því víða taka hver jarðgöngin við af öðrum. Þá eru og afarlangir timb- ur-rangalar bygðir á löngum köflum yfir brautina, þar sem ekki var auð- ið að halda henni greiðfærri vegna skafla. Geri jeg ráð fyrir, að rang- alar þessir sjeu að mestu í kafi í fönn á vetrum. Það er eitthvað annað þetta ferða- lag á vorum dögum en áður var. Nú fara menn þannig á flugaferð yfir fjöll og ófærur, jafnvel í stór- hríðum um hávetur, og ekki aðeins yfir fjöllin, heldur gegnum þau. — Hamramt gufuaflið þeytir hjólsveif- nnum áfram eins og ekkert væri, og vagnabáknin, sem eru heil hús, með allstórum gluggum og mörgum smáherbergjum og göngum, stynja og skjálfa undan átökunum, þeytast áfram á teinunum, skrönglast yfir samskeytin, og sendast er minst von- um varir inn í kolsvart jarðganga- opið inn í jörðina. Og inni í svart- myrkrinu stynur alt og skelfur, öskr ar og hvín undan átökunum eims og elds, en þegar út úr göngunum kem- ur, gýs út úr þeim gráhvítur kúfur af gufu og reyk. Svo kvað Halldór: Eimsins kraftur áfram knýr, yfir heiðar, gegnum f jöll. Beiðin dunar, gnestur, gnýr, geysast fram, svo hræðast tröll. ♦ ------0------ BrððaliiirgðalNiitiuii til Jónasar »samferðamanns«. Nl. í stað þess nú, eins og jeg og aðrir höfðu búist við, að ganga enn vís- indalegar til verks, kæri „samferða- maður“. og skrifa svo lítinn pistil um afa minn, og þá frekar fööuraf- ann. því hanu hefir legið lengur í gröfinni, snúið þjer yöur beint að launakjörum míniun í IV. kafla greinar yðar, og það á þann hátt, sem óhætt er að fullyrða, að vakið hefir eftirtekt. Komist þjer þar að þeirri niðurstöðu, eftir að hafa marg prófað hana með yðar alþektu skarp skygni og reiknings-glöggleik, að jeg hafi kr. 148.444 í árslaun. Þjer getiS ímyndaS yður, kæri lærifaðir, hvort mjer hafi ekki orðið •við líkt og mjer væri gefinn rækileg- ur kinnhestur þegar jeg las þetta í Tímanum daginn eftir að jeg sendi skattaframtal mitt til skattstofunn- ar. Jeg hafði sem sje hugsað mjer að draga undan skatti um 146 þús- und krónur (byrjaði að starfa 1. júlí, og legg rjett saman!) árið 1921. Jeg athugaði ekki að sá á ekki að stela, sem ekki kann að fela, og að jeg átti í höggi við jafnsniðugan uppfyndingamann og þjer eruð, Bót í máli þó að þjer liafið lagt skakt saman upphœðimar um 4000 krónur mjer til hags við tekjuframtal. En athugum nú þetta örlítið nán- ar. Jeg reikna fyrst — eins og þjer — að jeg vinni 360 dajjjfi á ári og 24 tíma í sólarhring.Tímakaupmittyrði þá ekki nema um 18 krónur, og ef við segjurn að jeg vinni ekki nema 10 tíma á sólarhring verður tíma- kaupið rúmar 42 krónur. Jeg hef því, þrátt fyrir þessi laun, ekki eins hátt tímakaup og þjer fyrir skóla- stjórnina, því tímakaup yðar við Samvinnuskólann var 57 krónur áriö 1921. Berið þjer ferðakostnað yðar þar saman við kostnað við Sambands- laganefndina 1919 og utanför ráð- herra árið 1920. Að sjálfsögðu gerir þjer engan greinarmun á ársþóknun Sambands- laganefndarinnar kr. 2000.00 til bvers meðlims og ferðakostnaðinum, og er slíkt ekki furða. Það skiftir heldur ekki máli fyrir yður þótt t. d. faðir minn hafi umrætt ár greitt manni 1100 krónur fyrir að gegna embættinu fyrir sig meðan liann var á nefndarfundum. — Það að ferö nefndarinnar stóö yfir í 45 daga í staðinn fyrir 1 mánuð eins og þjer segið, er líka aukaatriöi. Sama er aö segja um utanfarar- kostnað ráöherra, en þar segið þjer aö J. M. hafi brúkað rúml. 12000 kr. til ferðar í Danmörku einni áriö 1920. — pað skiftir ekki miklu máli þótt kostnaður sá er landsreikning- urinn sýnir (kr. 12497.29) hafi geng ið til ferða J. M. og M. G. þannig að ferð M. G. til Kaupmannahafnar þá um haustið kostaöi ki'. 3000.00 af þessari upphæð. — Það skiftir líka tiltölulega litlu máli þótt ferð J. M. hafi staðið nœr 3. mánuðuúi en 2. eins og þjer reikniö og að hann í þeirri ferð fór einnig til London og Noregs í samb. við kolaverkfalliö, sem þá átti sjer stað í Englandi. Hitt skiftir meira máli, aö þjer skulið sýna það lítillæti að bera ferðir yðar saman við ferðir þéssara manna, og þá sjerstaklega ferðir forsætisráðherrans. — Það þarf ekki að taka það fram, að þjer getið vel búið á hóteli þar sem herbergið kostar 4—5 krónur á sólarhring, þeg ar forsætisráðherra, sem verður að koma sómasamlega fram er neyddur til að búa á hóteli þar sem húsnæðið eitt kostar 50—100 kr. á sólar- hring o. s. frv. Nei, Jónas sæll! Áður en þjer berið yður og ferðakostnað yðar næst saman við aðra menn og ferðakostnað þeirra, skulið þjer athuga, að beiti- skip vekja meira athygli en kafbátar og verða að haga sjer eftir því. Um. VII. og síðasta kaflann get jeg verið stuttorður. Hann er að mestu leyti afsökun á því, að þjer hafið í stað þess að halda yður við málefnið, yfirgefið það svo að segja bardagalaust og yður til verulegrar hneisu, og snú- ist að óviðkomandi mönnum: föður mínum og Jósef móðurbróður mín- um. — Ástæðuna segið þjer þá, að jeg hafi verið of nærgöngull við konu yðar. En ástæðan er efcki sú, og geta lesendur greina minna best um það dæmt. Þetta er aðeins bar- dagaaðferð, sem er yður lagin og oft hefir komið fram áður af yðar hálfu t. d. í saltfisksölumálinu, sátta boðunum við Morgunblaðið o. s. frv. og síðar mun að vikið í æfisögu yð- ar. — Jeg skal aðeins geta þess nú í þessu sambandi, að jeg þekki ekk- ert sjóðþurðarmál Jósefs móðurbróð ur rníns, þar sem jeg var í útlöndum er það kom fram. — En hafi eitt- hvað verið gert óforsvaranlegt í því máli, þá á hvorki J. M. eða Jóh. Jóh. sök á því. — Yður er fullkunnugt um, að það var Pjetur heitinn Jóns- son atvinnumálaráðherra, sem hafði með það mál að gera og að því va.r ráðið til lykta á Akureyri af Pjetri sjálfum með aðstoð Böðvars Bjark- an, lögfræðings. — Það er því Pjet- ur sál. Jónsson, sem lá á líkbörunum, er kaflinn um það mál kom út, sem á hnútumar, sem þjer eruð að kasta að J. M. og Jóh. Jóh. petta nag yðar í lík Pjeturs heitins er ekkert eins- dæmi í opinberri framkomu og yður einum sæmilegt. Jeg hefi nú gengið í gegnum grein Jónasar „samferðamanns“ og sje jeg ekki betur en að mjer hafi tekist að sanna, það sem til var œtlast, nefni- lega: að hann hafi árið 1921 haft 17.000 kr. laun fyrir skólastjórn Samvinnu- skólans. að hann hafi tvívegis (árin 1920 og ’21) fengið 3000 króna ferða- styrk frá Sambandinu. að hann hafi árið 1920 haft 2000 króna „aukaþóknun“ fyrir ritstjórn Tímaritsins, en þessi þóknun hefir sennilega veVið feld niður árið 1921 vegna útkomu fyrstu greinar minn- ar, og að Jónas liefir árið 1921 fengið 500 króna borgun frá Sambandinu fyrir „aukavinnu“, og er því allra manna ófærastur til að víta „ferða- mensku' ‘ og móttöku „tvöfaldra launa* ‘. Lárus Jóhannesson. -------o-------- SeitnasjúkdDmuriun á Islandi. Læknastjettin hefir bundist sam tökum um að hefja baráttu gegn geitnasjúkdómnum hjer á landi. Á síðastliðnu sumri áttu læknar hvaðanæfa .af landinu fund með sjer, til þess að ræða stjettarmál ogsheilbrigðismál. Þeir urðu meðal annars ásáttir um að hefja sam- rannsóknir á ýmsum efnum, er auka mættu vísindalega þekking á heilbrigði og sjúkdómum eða greitt gætu fyrir praktiskum fram kvæmdum við lækningar. Nefnd sú, sem Læknafjelag fa- lands kaus til þess að hafa for- göngu í þessum efnum (G líann- esson, G. Thoroddsen og G. Claes- sen) hefir ákveðið, að m. a. verk- efna skyldu læknar landsins reyna að iafna í vetur og vor skýrslum x:m alla geitnasjúka á landinu, til þess að fá glögga hugmvnd um útbreiðslu veikinnar og gera síð- an ráðstafanir til þess að lækna alla sjúklingana, væntanlega með fjárstyrk af almannafje, þar sem þess þarf. Geitur (flavus) era smitandi sveppsjúkdómur í höfðinu; þær kvikna aldrei af sjálfu sjer, þrátt fyrir óþrifnað og vanhirðu og enginn fær geitur án þess að smitast af öðrum geitnasjúkum. Sveppurinn veldur sárum og gul- leitu hrúðri, eyðir með tímanum hárvextinum og gerir sjúklingana á endanum að mestu leyti sköll- ótta. ef þeir ekki fá lækningu. Sárs<auki eða líkamleg óþægindi eru ekki mikil samfara þessara veiki, en þó má telja geitnasjúka mjög ógæfusama sjúklinga; út- slátturinn í höfðinu veldur því að þeir geta' ekki haft óþvingaðan um- gang við annað fólk og jafuað- arlega mæta þeir lítilsvirðing ná- granna sinna.Flestirfullorðnirmenn með geitur eru því mjög beygðir af sjúkdómi sínum og verða alt aðrir menn, þegar lokið er við að lækna þá. I raun rjettri er mjög ósanngjamt og heimskulegt að iíta niður á nokkurn mann fyrir það, að sú ógæfa steðjaði að honum, oftast nær á bamsaldri, að hann smitaðist laf geitum; slíkt getur fyrir alla komið. En á hinn bóginn er óafsafeandi af geitnasjúfeum að leita sjer ekki lækninga, svo framarlega, sem þess er kostur, enda þróast geitur helst hjá þjóðflokkum á lágu menn- ingarstigi. Er sjúkdómurinn læknandi? Því má óhikað svara á þá leið,

x

Lögrétta

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lögrétta
https://timarit.is/publication/196

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.