Lögrétta

Issue

Lögrétta - 03.06.1922, Page 3

Lögrétta - 03.06.1922, Page 3
LÖGRJBTTA S fiirm bersynduQi. Skáldsaga eftir Jé* Bjénutam. Það fór hrollur um hann, þegar hann tók um nakinn handlegg Bryndísar. Maður henn- ar tók um hinn. Þá æpti hún eins og hann hefði komið við opið sár. Og hann fékk löðrung. En á Skarphéðinn leit hún enn lengi. Svo var eins og skilningsglampi þokaðist fram í flótta;eg augun. Eftir nokk- ura stund brosti hún daufu brosi, og lét hann slðan leiða sig inn. Oddvitinn kom dapur og niðurlútur á eftir. Skarphéðinn ætlaði að fara sem skjótast aftur. Þessi hörmulegi atburður hafði komið svo óvænt og lamað allar hugsanir hans. En þá bað oddvitinn hann, að staldra við hjá sér. »Eg sé að mér er ofurefli einum að ráða við Bryndísi*. Skarphéðinn gat ekki neitað manninum um þetta. Hann var alt í einu orðinn svo einstæðingslegur 'og ráðþrota. En það þurfti einskis með. Bryndís sat róleg á rúminu og starði upp í loftið. Ein- stöku sinnum hló hún hátt. En á eftir kom alt af [hörkusvipur á hana og^Jvottaði þá fyrir gömlu festudráttunum. »Hvenær merktist þetta á konunni fyrst?« spurði Skarphéðinn. »Eg sá það fyrst í morgun«, svaraði odd- vitinn, »eða heyrði öllu heldur, því um leið og bún reis upp i rúmiuu, hló hún þennan ní8tandi kuldahlátur. Svo vatt hún sér fram úr rúminu og fór að ganga um gólf, hlæj- andi öðru hvoru. Stundum heyrðist mér hún vera að tala um byltingar og yflrráð, og stundum um vatnsfall, sem nú væri búið að brjóta sér farveg. Og stundum grét hún. Svona hélt hún áfram meðan eg var að klæða mig«. Skarphéðinn stóð þögull og horfði á Bryn- dísi. Hún bærði varirnar eins og hún væri að tala við einhvern. Alt í einu leit hún á Skarphéðinn, spratt á fætur og gekk til hans og sagði: •Loksins ertu kominn! Loksins vann eg sigurinn! Eg vissi það fyrir löugu*. Það var annarlegur fögnuður i röddinni. Svó benti hún niður á gólfið og sagði: »Krjúptu á kné og kystu fætur minar og vottaðu mér hollustu þina. Nú drotna eg. Nú hlýðir þú — lok8Íns«. Hún stóð þarna háleit og gerfileg, föst á svip og dró andann hægt eins og hún væri að hlusta. Eitt augnablik datt Skarphéðni i hug að hlýða og krjúpa að fótum þessarar konu. sem of sterkar og ótamdar tilfinningar höfðu sprengt. En hann stóð samt kyr. Þegar hann hreyfði sig ekki, sneri Bryndís sér að oddvitanum, leit á hann frá hvirfli til ylja, gekk siðan fast að honum og hrækti enn í andlit hans. Svo settist hún aftur á rúmið. Skarphéðinn stóð þarna um stundarsakir. Hann langaði til að rétta oddvitanum ein- hverja hjálpar- og stryrktarhönd. En hvað gat hann? Hann stóð þarna frammi fyrir sama ofureflinu og oddvitinn. Hér gat eng inn neitt. Skarphéðinn hætti kenslu mánuði fyr en hann hafði ætlað sér. Honum varð veran á Hjalla óbærileg. þessi sífeldi hlátur vit- skertrar konunnar barst alt af að eyrum hans. Og honum fanst hann segja: Þetta er þ é r að kenna. Ógæfan kom í fylgd með þ é r inn á þetta heimili. Hann reyndi ekkert að afsaka sig. Óham- ingjan hafði áreiðanlega komið með honum á þetta heimili. Ef Bryndís hefði aldrei þekt hann, þá var nokkurnvegin víst, að líf hennar hefði haldið áfram að vera sami fosslausi straumurinn, tómt og tilbreyt- ingarlaust, en heilt og óbrjálað. En nú var hún hrunin til grunna, var mannleg rúst, og mundi líklega verða það til æfiloka. — Nokkurum dögum eftir að hann hætti kenslunni reið hann niður að Hvoli. Hann hafði ekki komið þar allan veturinn. Halldór tók honum með alúð. Þórunn var róleg, og var ekki að sjá á henni neina geðshræringu. En Skarphéðinn grunaði, að undir þessari yfirborðs-ró dyldust þungar öldur. Halldór þóttist sjá, að Skarphéðinn væri óglaðari en veturinn áður. Hann hafði heyrt um brjálsemi Bryndísar og hverjar orsakir menn sögðu vera fyrir henni. Og hann skildi, að þetta, auk þeas sem fyrir var, mundi hvíla á kennaranum eins og þung og sár byrði. Hann vissi ekki, hvort rétt mundi vera að færa þetta í tal, en þó gat hann ekki stilt sig um að spyrja: »Hvernig líður Brydisi?« »Það er vist erfitt að segja um, hvernig henni líður. Við þekkjum svo lítið sálar- ástand vitskertra manna. En víat er það að engin bati er sjáanlegur*«. »Hvernig ber oddvitinn þetta?« »Sæmilega. Hann vonar, að þetta sé ekki nema stundarsturlun. — En hvað segir fólk- ið hérna í grendinni um þetta? Er eg ekki talin orsök í þessari óhamingju? Gerist nokkur hörmulegur atburður hér, svo eg sé ekki talin orsök hans?« Halldór brosti. »Ekki vil eg segja svo mikið. En hitt er vist, að ekki þykjast men* vera í neinum vafa um, að koma þín að Hjalla og breytni þar sé orsökin«. »Eg bjóst við því, vissi það raunar. Og það er að nokkuru leyti rétt. Eg kom eins og Btormur inn i líf þessarar konu. En þó hef eg ekkert að ásaka mig fyrir annað en það, að eg réðist kennari að Hjalla. 1 þessu máli stend eg hreinn, Halldór*. Hálfdapurlegt finst mjer það aö þurfa að reka þannig unga fólkið úr sveitunum og niður á bæjamöl- ina eða sætrjen á hafi úti. NorS- mönnum er vorkunn, en vjer gerum það sama, þótt landið sje illa ræktað og illa notað, og jarðirnar hefl flæmi. Hver sem ferðast um Noreg getur varla öðru trúaS, eno sveitir vorar gætu framfleytt tvöföldum fólksfjölda eða meira. Jeg hafði því miður lítið að segja af unga fólkinu í ibr minni, og þó sjest framtíðarstefnan hvergi betur en á hugsunum unga fólks- ins. Þrjá unga stúdenta hitti jeg þó í Norheimssundi og spjallaði um ýmislegt við þá. Þeir komu þangað siglandi á ljómandi fallegri lysti- skútu, sem einn þeirra átti eða fað- ir hans. I stjórnmálum sögðu þeir Bolsehevíka hafa vakið mesta eftir- tekt, og hölluðust margir á þásveif- ina, líkt og heima. Stingur þetta í stúf við Hafnarstúdenta, sem eru eindregnir íhaldsmenn, sem stend- ur. Trúmál sögðu þeir að fæstir hugsuðu um, og trúardaufir væru flestir. Ekki leit út fyrir að neinn grunur hefði vaknað hjá þeim um það, að lýðstjórn og þingræði vorra tíma væri á sandi bygt og með mikl- um göllum. Spíritisma og theosofi lvöfðu þeir ekkert af að segja. Á- hugamál þeirra sýndust vera þjóð- f jelagsendurbætur, og veitir ekki af að einhver hugsi um þær á þessum dögum. Þessi litla viðkynning virt- ist mjer bera góðan vott um sæmi- legt andlegt líf og áhuga hjá svo ungum mönnum, þð minsta kosti fór því fjarri að þeir væru hug- sjóna- og áhugalausir mn alt, nema námið. Þætti mjer margt ólíklegra en að einhver þeirra yrði þingmað- ur á sínum tíma, og hann af betri endanum. Yfir fjöllin. Jeg hafði nú dvalið nálega 2 daga í Norheimssuúd og þóttist ekki mega tefja lengur. Jeg borgaði því reikning minn,*) og lagði af stað í bíl yfir fjöllin milli Harðangurs og næsta fjarðar. — Gengu einir 6 bílar fastar ferðir þessa leið á degi hverjum, og oft- ast fullir báðar leiðir. Var það víst eigandi veitingahússins, sem átti þá að miklu leyti. Þetta var all- langur vegur, en ekki kostaði akst- urinn meira en 5—10 kr., ef mig rjett minnir. Jeg býst við að sumum hefði þótt ferðin byrja geigvænlega. Gekk veg urinn neðan úr dalverpinu og upp á fjöllin eftir svo nefndu Tókagili. Gil þeta var afardjúpt, og lágu ýmist að því snarbrattar urðar- brekkur eða standhamrar. Vegur- inn lá nú eftir þessu góðgæti. Þar sem mögulegt var, var björgum hlaðiðundir hann í brekkunni, en þar sem standhamrar tóku við, var sprengd svo breið skeið inn í berg. ið, að fært var fyrir vagna. Var þá stundum grafið svo djúpt inn { bergið, að súlur stóðu eftir af berginu framan vegarins, með breiðum ljósopum á milli, en þar sem verst gengdi voru grafin jarð- göng á all-löngum pörtum, og var þar myrkur. Nú fór því fjærri að vegurinn lægi neðst í gljúfrinu, svo skamt væri að detta niður í ána. Nei, vegurinn lá miðja vegu hátt uppi í klettunum, og hyldjúpt gilið fyrir neðan mann. Var þar *) Greiðasala £ Norheimasund var þannig: Morgunkaff i með eggi og branði 2 kr. Miðdegismatur 5 kr. Kvöldmatur 3 kr. Svefnherbergi 4 kr. En hjer var líka sdt vel eg rík- toannlega úti látíð. vís bani, ef nokkuð hefði út af bor- ið. Ýfir alt þetta brunaði bíllinn, og oft upp mikinn bratta, og alt geklt vel, enda var bílstjórinn van- ur ferðalaginu. Tvær norskar ung- frúr, sem sátu hjá mjer, virtust óhræddar með öllu. Það kann nú að þykja óþarfi að segja frá þessum Tókagilsvegi, en í mínurn augum hafði hann sína þýðingu. Ef einhverjum heima hefði verið bent á slíkt vegarstæði, þá þykir mjer ekkert sennilegra en að hann hefði talið þann mann vit- lausan, sem kæmi til hugar að leggja þar veg. En Norðmönnum óx þetta ekki í augum. Það hefir ef- laust verið vandlega athugað hvar skárst væri að komast yfir fjöllin og tengja bygðimar saman, en eng- inn vegur fundist betri eða auð- unnari, þó þessi væri illur. Og svo er ráðist á ófæruna með öllum nú- tímans tækjum og að lokum er vegurinn kominn. Alt þetta sýnir dirfsku og kjark. „Þar sem enginn vegur er, þá bý jeg mjer hann til sjálfur“ segir enskt máltæki og þetta er siður kjarkmanna í öllum lcndum. Mjer fanst þessi sveita- vegur vera merkilegur minnisvarði yfir þá kynslóð, sem bygði kann og gefa hverjum sem um hamn fer bæði áminningu og ágætt fordæmi. Þegar upp var komið 14 vé'gur- inn auðvitað eftir Slakka eða breiðu skarði milli fjaBannia. — Þarna uppi var ekki um annan skóg að tala en lágviaxið og krækl- ótt birki líkt og heimia. Þama sá jeg ljóslega þ*r margumtöluðu fjallaslægjur, og er þar skjótt laf að segja, að þær vom algerlega eins og heima gerifit í góðum eða að minsta kosti sæmilegum bygð- um. Voru þar allmiklir mýraflák- ar og ágætur mór í, en grasvöxt- ur svo góður, að vjer hefðum tal- ið þar góða slægju. Þarma vora menn víða við heyskap og leist mjer björgulegar á þetta enhjakk ið í urðunum niðri í sveitinni. Sást það Ijóslega hjer, að veðr- átba og gróður heima er svipað því sem gerist uppi á fjðllum í Noregi, þar sem fcomið er upp úr furubeltinu og jafnvel birkið er farið að eiga erfitt uppdráttar, verða lágvaxið og kræklótt. Svo ljelega landskosti búum vjer við ÍSlendingar, þó nmrgir lofi þá. Jeg hefi áður getið þess, að bændur setja hey sitt saman uppi á fjöllunum og áka því heim á vetrum. Voru hjer hingað og þang að heyskútar bænda, þar semsett var saman heyið. Þeir voru þann- ig gerðir, að sett var upp steifcleg trjegrind, eins og byggja skyldi húskofa, og þak lagt yfir hana en veggir óklæddir. Þarna undir þakinu var heyið borið samanogvoru þetta smáfúlgur einar sem jeg sá. Sennilega er hjer enginn fjenaður hafður á fjöllunum eftir heysfcap- artímann, því annars hefði heyinu verið hætta búin, er það stóð óvar- ið til allra hliða.------- Ferðasögu minni er nú lokið í þessu blaði en í raun og veru er sag- an ekki nema hálfsögð og margt það eftir sem jeg hefði mest að segja frá. Meðal annars var kaflinn um Bergen byrjun ein. Lengst dvaldi jeg í Staf- angri fyrst út á Molde við Hafursfjörð við mælingar á her- mönnum hjá Bryn herlækni og ágæt- um mannfræðing, síðan um vikutíma í bænum við athugun á miklum spít- ala, sem þar var verið að byggja. Síðast var jeg nokkra daga um kyrt í Bergen og bauð Sandberg yfirlækn- ir mjer að búa í herbergjum sinnm í sjúkrahúsinu. Lifði jeg þar í góðu yfirlæti og var að lokum ekið til skips í skrautlegum rafmagnsbl1. í Færeyjum heimsótti jeg landlæknir þeirra eyjarskeggja og hitti þar Sig- urg Jónsson læknir. Var mjer tekið ágætlega og sýndur landsspítalinn, sem Færeyingar voru að byggja. Verður hann allmikið hús, en þá var undirstaðan aðeins lögð og þó ekki öll. Jeg hef ekki haft tíma til þess að ljúka frásögu minni síöan jeg kom heim, svo þetta brot verður aðnægja. Jeg var aðeins rúman mánuð í öllu ferðalaginu 'ogskrifaðiferðasögunia að mestu leyti á kvöldin í Stavanger, þegar jeg gat ekki annað starfa*. Segi svo aðrir lengri sögu og betri, sem bregða sjer mánuð til útlanda og vinna að alt öðru en að segja frjettir af ferð sinni. G. H. fiuorum á afl trúa? Jónas Hriflumaður er að halda því fram í Tímanum nú síðast, að viðskiftamenn Sambandsins 'sjeu skuldlausir, eða því sem næst. En rjett áður hefur Hallgrímur Kristinsson sagt, líka í Tímanum, að þeir væru í „skuldafeni", og talið mjög stfo áríðandi fyrir þá, að „falla ekki dýpra í það en orðið er“. Aimarhvor þeirra hlýt- ur að fara með rangt mál. En hvorum á að trúa? Jeg fyrir mitt leyti tel engan efa á því, að trúa beri Hall- grími en ekki Jónasi, bæði af því að orð Jónasax hafla svo oft áður reynst óábyggileg í mörg- um málum, og svo líka af hinu, að þar sem þeir hafa báðir, eins og kunnugt ex, verið fylgdarmenn bænda út í „fenið“, sem Hall- grímur talar am, þá ber það vott um nokkra samvitskusemi að sá fylgdarmaðurinn hrópar nú upp og biður bændur að vara sig, þar sem Jónas virðist aftur á móti ekfci vilja sjá ófæruna, en otar mönnum til áframhalds í sömu stefnu og áður. Það mun því rjettara að trúa Hallgrími og taka undir með honum: Varið ybkur, bændur góðir, á „skulda- feninu“ — og „varið ykk- ur á Jónasi“, væri ekki ólíklegt að Hallgrímur vildi bæta við, er hann hefði lesið grein Jónas- lar. Hallgrímur er án efa farinn að sjé, að stefnan, sem þeir leið- sögumennirnir tóku í upphafi, er ekki rjett, en Jónas annaC hvort sjer það ekki enn, eða þá vill ekkj sjá það, af því að það fer í bág við óskir hans. En vera má, að ósamræmið milli þeirra stafi af því, að Hallgrímur er án efa miklu fróðari í versl- unarmálum en Jónas. Kaupfjelagsstjóri einn utan af landi var hjer staddur í vor, og ' í sambandi við fcaupfjelagsmálin barst Jónas í tal við hann og iðja hans við Tímann. Kom það í ljós, að kaupfjeliagsstjórinn hafði eng- ar mætur á Jónasi. M. a. sagði hann: „Og svo er þetta — —“, svo sem hann ákvað, „aíltaf að skrifa um verslunarmál, sem hann hefur ekki vit á fremur en —!“ Jeg segi frá þessu Jónasi til af- Isökunar í ágreiningsmiáli hans við Hallgrím, svo að bændur þurfi ekki að halda, að það hljóti að vera gegn betri vitund, sem Jón- asi virðifit áhugamál, að gyllft fyrir þeim ,Jenið“, en orð Hall- gríms finst mjer trúleg, að þama sje hætta á ferðum, enda þótt- ist jeg hafa sjeð þettia áður en hann benti á það. Leifnr.

x

Lögrétta

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lögrétta
https://timarit.is/publication/196

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.