Lögrétta - 26.02.1923, Page 3
LÖGRJETTA
S
Fyr irliggjandi:
Rugmjöl. Hveiti, 4 tegundir Rúgur. Bankabygg. —
Hafragrjón völsuð (1 pökkum). Kandís. Svekjur. Rúsinur.
Pappir. Umslög. Merkiseðlar. Möppur (Brevordnere)
ása registrum. Blek og Pennar.
Handsápa. Gólfdúkaáburður. Stúffasirz. Tvisttau.
Fiskiumbúðastrigi. Anelinlitur egta.
Stangajárn flatt 5/4”.
Qlgeir FnðgeirssDn 5 5kúlasan.
Hafnarstrætilð. Sími46 5.
H; Frv. til laga um verðtoll á
nokkruin vörutegundum.
16. Frv. til f járaukalaga fyrir ár-
in 1920 og 1921.
17. Frv. til fjáraukalaga fyrir ár-
ið 1922.
18. Frv. til laga uin samþykt á
landsreikningunum 1920 og
1921.
Öll þessi 18 frumvörp eru lögð
fram í neðri deild, en í efri deild
þessi 8 frumvörp:
19. Frv. til laga um samþyktir
um sýsluvegasjóð:.
20. Frv. til hjúalaga.
21. Frv. til laga um breyting á
fátækralögum frá 10. nóv.
1905.
22. Frv. til laga um vatnsorku-
sjerleyfi.
23. Frv. til laga um varnir gegn
kynsjúkdómum.
24. Frv. til vatnalaga.
25. Frv. til laga um ríkisskulda-
brjef.
26. Frv. til laga uin skiftimynt
úr eirnikkel.
Af þessum stjórnarfrumvörpum
eru sum gamaíkunnug, svo sem
vatnalagafrumvörpin, sem mikið
hefir verið rætt um áður, og seg-
ist atvinnumálaráðherra þó leggja
þau fram til frekari athugunar,
þt hann búist hins vegar ekki við
því að þau verði afgreidd til fulln
ustu nú á þessu þingi, enda sjeu
þeir góðu möguleikar til fram-
kvæmda, sem fyrir hendi hafi ver-
i.) fyrir fáuin árum, nú horfnir
aftur.
Af hinum frv. eru það sjálfsagt
að ýmsu leyti breytingarnar á
skattalögunum, sem allur almenn-
ingur lætur sig einna mestu skifta.
En í lögunum nr. 14. frá 27. júní
1921 var gert ráð fyrir því, að
endurskoðun þeirra færi fram á
þessu ári. Segir svo í athugasemd-
um við frumv., að þar sem gömlu
skattarn:r eru afnumdir og nýtt
kerfi skattanefnda og yfirskatta-
nefnda sett á stofn, getur varla
komið til mála, að hverfa frá
tekjuskattsfyrirkomulaginu, held-
ur verður endurskoðunin að byggj
ast á því sem einu sinni er orðið
og færa það í rjett horf, sem helst
hefir orðið vart við að miður
færi eftir núgildandi lögum. ■
Frumvarp það, sem hjer liggur
fyrir, er yfirleitt samið með það
fyrir augum, að fara aðeins fram
á sjálfsagðar eða nauðsynlegar
breytingar frá því skipulagi sem
nú er komið á, enda fer endur-
skoðunin þapnig best úr hendi,
að liægra sje við að bæta en úr
að draga. Þær greinar frumvarps-
ins er fara fram á breytingar frá
núgildandi lögum eru þessar:
Aðalbreytingarnar seiu ráðgerð
ar eru í frv. frá því sem nú er,
eru þær, að skattur af tekjum
yfir 15 þús. kr. hækkar yfirleitt,
en lækkgr af þeim, sem þar eru
fyrir neðan. Þeðear breytingar
koma einkanlega fram í 6. gr. Nú
er t. d. gert ráð fyrir því, að
leggja ekki skatt á tekjur undir
2000 kr., í stað 1000 kr. áður á
ári, og er hann 10 kr., af 3—4
þús. kr. 20 kr. í stað 60 kr. áður,
a! 4—5 þús. kr. 40 kr. í stað 100
kr, áður, af 5—6 þús. kr. 70 'kr.
í stað 150 áður, af 6—7 þús. 110
kr. o. s. frv. Af 14—15 þús. kr.
árstekjum er nú gert ráð fyrir
790 kr. skatti, en eftir núgildandi
liigum á að greiða 510 kr. af 10—
lt þús. kr. tekjum. Af 20—30
þús. kr. árstekjum eru nú greidd-
ar 1460 kr., en er gert ráð fyrir
? stjórnarfrv. að greiða 1720 kr.
A£ 50—75 þús. kr. tekjum eru nú
greiddar 5060 kr., en nú er gert
ráð fyrir 8120 kr. skatti af 50—
60 þús. kr. tekjum, 10520 kr.
skatti af 60—70 þús. kr. tekjum
og 13020 kr. skatti af 70—80 þús.
kr. tekjum. Af 150 þús. kr. tekjum
eru nú greiddar 20310 kr., en er
nú gert ráð fyrir 35620 kr. af
liverjum 150 þús. og 30% af af-
ganginum þar yfir. Ymsar aðrar
breytingar eru, svo sem að sam-
skattur barna í foreldrahúsum
fellur burtu, frádráttur fyrir eig-
in persónu er feldur niður o. fl.,
en annars er frumvarpið samhlj.
migildandi lögum í einstökum
greinum.
Af öðrum frumvörpum skal
hjer getið frv. um breytingar á
embættaskipuninni. Er þar farið
fram á sameiningu ýmsra sýslu-
mannaembætta, Gullbringu, Kjós-
ar og Borgarfjarðarsýslur renni
saman, með sýslumannssetri í
Ilafnarfirði, Mýra, Snæfellsness og
Hnappadalssýsla verði eitt lög-
sagnarumdæmi og sitji sýslumað-
ur í Stykkishólmi, Dala og
Strandasýsla renni saman, en
sýslumaður sitji í Dalasýslu, Húna
vatns og Skagafjarðarsýslur sam-
e’nist undir sýslumann á Blöndu-
ósi, Eyjafjörður og Siglufjarðar-
kaupstaður renni hvorttveggja
undir sýslumanninn á Akureyri,
Suður-Múla og Austur-Skaftafells
sýslur renni saman og sitji sýslu-
maður á Eskifirði, en Yestur-
Skaftafellssýsla renni saman við
Árness og Rangárvallasýslu.
Þessi sameining á þó ekki að
fara fram undir eins, heldur jafn-
óðum og sýslurnar losna. Segir
stjórnin svo í athugasemdum við
frv. þetta, að „öllum sje orðið
það ljóst, að hinn fasti árlegi
kostnaður við starfrækslu hins op-
iubera sje orðinn gífurlega mikill,
og svo virðist sem atvinnuvegir
Þjóðarinnar muni varla í framtíð-
inni geta risig undir útgjöldum
j þessa átt, og er því nauðsyn að
reyna að sporna við öllum ónauð-
synlegum embættastofnunum og
draga úr hinum miklu útgjöldum
sem þegar eru orðin. Auk þess
getur það varla talist heppilegt,
að ofmíkið af vinnukrafti þjóðar-
innar gangi til starfrækslu opin- '
berra embætta“. Embættin sem j
frv. gerir ráð fyrir að hverfi úr !
sögunni eru 6, og eru árslaun ;
þeirra nú rúmlega 53 þús. kr. og |
skrifstofukostnaður að auki rúm-
lega 67 þús. kr. En nú eru alls
á landinu 20 bæjarfógetar og
sýslumenn, og eru laun þeirra nú
rúmlega 152 þús. kr. á ári og
skrifstofukostnaður um 100 þús.
króna.
í sambandi við þetta frv. um
iækkun sýslumannaembættanna
stauda einnig frumvörpin um af-
nám biskupsembætt-sins, landlækn
isembættisins og þjóðskjalavarðar-
embættisins. Störfum biskupsins
ev gert ráð fyrir að skifta milli
vígslubiskupa, sem annast vígslur
allar, stjórnarráðs og prófasta. —
Svipuð frumvörp hafa áðiu- komið
fram 1881, 1891 og 1903 (þá var
gert ráð fyrir að sameina ern-
bættið forstöðumannsembættinu
við prestaskólann) og 1905 kom
frarn þingsályktunartillaga um
það, að veita ekki biskupsembætt-
ið undir eins. Spamaðurinn, sem
gert er ráð fyrir af þessu frumv.
er rúmlega 14 þús. kr. á ári, eða
föstu launin 9500 kr., skrifstofu-
kostnaður 3.500 kr. og ferðakosln-
eður við vísitatíuferðir 1200 kr.
Ekki er þó ætlast til þess, að
[vessi breyting komi til fram-
kvæmda fyr en núverandi biskup
Itetur af embætti.
Með afnámi þjóðskjalavarðarem-
baútisins á að sameina það lands-
bökavarðarstarfinu, þegar annað-
hvort starfið losnar. Með þessu er
gert ráð fyrir 9500 kr. árlegum
sparnaði, miðað við núverandi
laun. Eins er um landlæknisem-
Lættið og afnám þess, og hefir
það mál einnig verið rætt áður.
Er gert ráð fyrir því, að störfum
landlæknis verði skift m:lli stjórn-
arráðsins og heilbrigðisráðs, sem
skipað ’ sje hjeraðslækninum í
Keykjavík og tveimur prófessor-
um úr læknadeild háskólans. —
Þessi breyting á einnig að verða
þegar núverandi landlæknis lætur
af embætti.
Loks má nefna frv. um breyt-
ing á fátækralögunum. Eru þau
borin fram samkv. þingsályktun
irá 1917. Er í þessu frv. t. d. gert
ráð fyrir því, að sveitfestutíminn
sje 5 ár, í stað 10 nú. — Að öðru
leyti vísast til upptalningarinnar
á frumvörpunum hjer að framan
eg verður síðar sagt nákvæmlega
frá meðferð þeirra, þegar þau
koma úr nefndum þeim, sem hafa
þau til athugunar.
1 e. d-. voru í gær, laugardag,
aðeins 2 mál á dagskrá, frv til
laga um ríkisskuldabrjef og um
skiftimynt úr eirnikkel og var
þe:m báðum visað umræðulaust
til fjárhagsnefndar.
í n. d. voru 7 mál á dagskrá,
fyrst um undanþágu frá bann-
lögunum 14. nóv. 1917. Þetta frv.
ec alveg samhljóða tilskipuninni
um undanþáguna frá í fyrra, sem
mik'ð hefir verið rætt um, að öðru
leyti en því, að orðin „til lolca
Alþingis 1923“ eru 1‘eld burtu og
bætt. er við setningu um sektar-
ákvæði. — Forsætisráðh. (S.E.)
talaði með frv., en Jón Baldvins-
sen gerði atliugasemdir, bæði um
framkvæmd laganna hjer innau-
lands og um það, hvað stjórnin
hefði gert til þess að konni í veg
fyrir það, að „bölvun spánarvíns-
ins“ yrði hjer til frambúðar. For-
sætisráðherra svaraði, að sjer
kæmi þessi ummæli á óvart, því
Andrjes Fjeldsted augnlæknir.
Hvílíkt hrun í hetjuli&i!
Hefur verið slitið friði?
Valkestir á vígasviði
varpa skugga’ á marga leið,
er áður virtist góð og greið.
Ekki’ er von að áfram miði
okkar gœfufleyi,
góðum vonum fœkkar dag frá degi.
Sorg er kveðin landi’ og lýði;
liggwr hníginn kappinn fríði,
hann, sem aldrei átök flýði,
ætíð fús til dáða var,
öðlings svip á enni har.
Þú varst, Andrjes, okkar prýði,
ohkar stolt og sómi,
um þig Ijek ce einhver gleðiljómi.
Vopnum andams vel þú beittir,
af viskulindum óspart neyttir,
löngum sjúkum lækmng veittir,
liðsintir á margan hátt
þeim, sem áttu eitthvað bágt.
Dimmri nótt i dag þú breyttir,
deyfð og hrygð % kœti;
von er að lát þitt vini’ og frœndur grceti.
Ekki vil jeg ýfa sárin,
ekki tala’ um liðnu árin,
ekki vekja amgurstárin,
aðeins biðja guð um það,
að endurfundir eigi stað.
Þótt við kembum hvítu hárin
komum við seinna, hinir,
þinir tryggu, þínir gömlu vinir.
Ing. Qislason.
með frv. væri aðeixis haldið lof-
orð frá síðasta þingi, sem verið
hefði skilyrði þess, að halda bestu
tollkjörunum á Spáni. Eftir dá-
lítið þjark mil'li hans og J. B. var
málinu vísað til 2. umr. með 17
atkv. gegn 1 (J. Baldv.), síðan
til allsherjarnefndar.
Næst var svq á dagskrá stjórn-
arfrv. um fækkun sýslumannaem-
bættanna og vorn haldnar um það
14 ræður, minna mátti ekki gagn
gera. Forsætisráðherra (S. E.) tal-
aði fyrst fyrir frv. og gat þess,
að ef því yrði vel tekið, mundi
stjórnin sennilega koma með fleiri
tillögur í svipaða átt, og hefði
emkum atvinnumálaráðh. (Kl. J.)
atliugað ýmsa möguleika þess,
hvernig spara mætti gjöldin með
fækkun embætta. Sagði hann, að
helstu mótbárurnar, sem hægt
væri að bera fram gegn sameining-
unni væru þær, ef unt yrði að
færa líkur fyrir því, að sýslurnar
yrðu annaðhvort of stórar fyrir
einn mann eða svo víðáttumiklar,
að félk gæti ekki haft full not
af embættismönnunum.En hvorugu
þessu væri til að dreifa, þar sem
sumar nýju sýslurnar væru alls
ekki stærri eða umfangsmeiri en
ýmsar þær, sem nú væru og eng-
inn kvartaði um, svo sem ísafjarð
arsýsla, Suður-Múlasýsla og Eyja-
fjarðarsýsla, áður en Siglufjörður
var skilinn frá, að ástæðulausu,
að hans dómi. Með auknum sam-
| göngum og símasambandi sagði
; hann einnig að minni þörf væri
1 á jafnmörgum sýslumönnum og
^ áður. Vegur og virðing ernbætt-
1 anna sagði hann einnig að mundi
1 aukast mikið frá þvi sem nú væri,
' nieð því að hafa umdæmin stærri,
enda mundu þá aðeins veljast í
; embættin úrvals-lögfræðingar,
1 gagnstætt því sem nú ætti sjer
slundum stað. Sýslumörkum yrði
þc ekkert raskað e.ða sjálfstæði
núverandi sýslna, og í þeim sýsl
um, sem mistu sjerstaka sýslu-
menn, ættu sýslunefndir að kjósa
sjer sjálfar oddvita, sem að
nokkru leyti kæmu í sýslumanns-
ins stað, og ættu að hafa 300 kr.
árslaun, en annars tækju hrepp-
stjórarnir við ýmsum störfum,
eins og eðlilegt væri, þar sem
manntalsþingin legðust niður með
þessu nýja skipulagi. Aðalatriðið
væri hjer ekki, að koma á sparn-
aði, sem hægt væri að þreifa á
undir eins á fyrsta ári, heldur að
koma sparnaðarviðleitninni í fast
kerfi, þó það kæmi ekki til fram-
kyæmda fyr en smám saman, eins
og hjer væri um að ræða, og
kæmi sparnaðurinn þá fram á
sínum tíma í því, að alt embætta-
bákn landsins yrði gert einfald-
ara og kostnaðarminna.
Allir þingmenn, sem um málið
tö'luðu, nema Þorst. Jónsson, lögð-
ust á móti stjórnarfrumvarpinu,
s. s. Bjarni frá Vogi, Jón Þorláks-
son, Jón Sigurðsson, Eiríkur Ein-
arsson og Magnús Jónsson. Sagði
Bjarni frá Vogi að enginn sparn-
aður mundi af þessu verða, fyr
en í fyrsta lagi eftir 10—20 ár,
því í öllum embættunum sætu
menn á besta aldri og væri frv.
aðeins fram komið af hjegóma-
skap og til þess að slá ryki í augu
manna, auk þess sem það lýsti
ræktarleysi manna og virðingar-
skorti fyr'r sögu þjóðarinnar og
fornum minnum, að ætla að rífa
þa.u upp með rótum og rugla svo
gömlum og góðum embættum, sem
sýslumannaembættin væru. — Jón
Sigurðsson sagðist fylgja öllum
þeim sparnaðartillögum sem unt
væri og sannað yrði að þjóðinni
í heild sinni yrði- sparnaður að.
En það áleit hanu að ekki mundi
verða um þessa sýslumannafækk-
un, þar væri fjeð aðeins tekið úr
öðrum vasanum og flutt í hinn,
því þótt ríkissjóði kynjji að spar-
ast nokkuð fje við þetta árléga