Lögrétta - 27.02.1924, Qupperneq 3
LÖGRJETTA
Jhliða eða samtímis upp í heim-
inum. pótt mörgum manninum
dyldist það á'ður, þá býst jeg YÍð
að hann muni sjá það nú, að á-
kjósanlegra og þjóðinni hollara
hefði það orðið, að hún hefði feng-
ið nokkurn tíma til þess að búa
sig undir fullveldið, heldur en að
hreppa það jafn snögglega og
fyrirvaralíti'ð, sem raun varð á.
pótt alt hefði sennilega farið vel
undir venjulegum eða eðlilegum
kringumstæðum enda þótt fyrirvar-
inn eða undirbúningurinn væri lít-
ill, þá hlutu hin raunverulegu not
sjálfstæðisins að verða minni en
ella, þar sem þjóðinni hlotnaðist
það á þeim tímum, er öðrum þjóð-
um margfalt mannfleiri og mátt-
ugri og á allan hátt grónari veitt-
ist erfitt að varðveita eitt efna-
lega og stjórnarfarslega frelsi. —
Bnda verður því ekki neitað, að
margt hafi á ýmsan hátt gengið
hjá óss á trjefótum síðan. Bn áð
láta það, sem þykir hjá oss hafa
farið aflaga skapa óspektir og
óeirðir á meðal vor, er síst til bóta,
og ætti því ekki að eiga sjer stað.
Að ráðast með ofsa og ósæmileg-
um aðdróttunum á þá menn, sem
staðið hafa öðrum fremur fyrir
málefnum þjóðfjelagsins á þessum
-erfiðu tímum, er fyrst og fremst
ómannúðlegt bæði vegna þess að
samskonar eða svipuð óhöpp og
erfiðleikar, sem hjer hafa steðjað
að hafa samtímis átt sjer stað
hjá því nær öllum öðrum þjóðum
og sömuleiðis af því, að sjálfir
höfundar slíkra árása hljóta að
vita það fyrir guði og samvitsku
sinni, að engum manni, ogþá ekki
heldur þeim sjálfum var unt áð
sjá fyrir og því síður fyrirbyggja
ýms þau óhöpp, sem fyrir hafa
komið. Hinsvegar er það ljóst að
-ekkert getur áunnist þjóðfjelag-
inu til hagsmuna við slíkar árásir
eða aðfinslur. pví „skeð er skeð
og hefði hefði — hjeðan af stoðar
ekki baun.“ pað, sem fyrir liggur
>er ekki það, áð fjörgviðrast ein-
göngu um það, sem orðið er, heldur
að leitast við með sameinúðum
kröftum að bæta úr bæði nýjum
og gömlum meinum þjóðfjelags-
ins. Að: oss fleygi áfram á fram-
farabrautinni er ekki að vænta
og síst eins og nú standa sakir. Bn
þó má engan veginn fullkomin
kyrstaða eiga sjer stað. pví það
®r og verður sannleikur, sem
skáldið segir: „pað er svo bágt
að standa í stað — því mönnunum
^únar annaðhvort aftur á bak
óða þá nokkuð á leið.“ En þær
litlu framkvæmdir og framfarir,
sem um getur verið að ræða verða
að byggjast á fylstu forsjá og
fyrirhyggjn.
Framh.
------o-------
Erl. stmftegttir
Van Eossum Tcardínáli.
Frá danska sendiherranum
20. febr.
van Rossum bardínáli hefir gef-
ið út bók um för sína til Norður-
landa í fyrra. ()Berlingske Tid-
ende“ birta m. a. kafla einn úr
bókinni, þar sem kardínálinn er
að lýsa hinum einkennilegu en
eftirtektarverðu framförum, og
hinum sjerkennilegu bókmentum
sem verði fyrir mönnum á íslensk-
nm bóndabæjum. Hin hátíðlega
móttaka stjómarinnar hafði haft
djúp áhrif, sem áttu rót sína að
rekja til eins undirstöðueinkennis-
ins í lundarfari íslensku þjó'ðar-
innar, sem sje til hinnar einstökú
íslensku gestrisni.
Fjármál Frakka.
Símað er frá París, að frum-
varp stjórnarinnar um 20% hækk-
un á sköttum hafi nú náð sam-
þykki þingsins. Við atkvæðagreiðsl
una. voru þeir 415, sem greidda
atkvæði með frumvarpinu, en 254
á mófi.
Lögreglustjóri Parísar hefir skip
að fyrir, að vörukauphöllinni skuli
lokað, svo að komist verði hjá ó-
gjaldeyris er nú látin hlíta ýms-
um reglum, sem loka fyrir það,
að verslun með hann geti talist
frjáls innanlands.
Bretland og nýlendurnar.
Símað er frá Capetown, að blað-
iö „Cape Times“ láti í ljósi óá-
nægju sína yfir því, að Ramsay
MacDonald forsætisráðherra skuli
hafa viðurkent sovjet-stjórnina
rússnesku, án þess að bera
það mál undir nýlendurnar
bretsku áður. Jafnframt kvartar
blaðið undan því, að undirróður
af hálfu bolsivíka sje nú meiri en
nokkurntíma áður, meöal innbor-
inna manna í Suður-Afríku.
Noregsbanki.
Noregsbanki hefir á síðasta ári
haft 20 miljón króna tekjuafgang.
Illuthöfum verður greiddur 8%
ársarður.
Bayem og alríkið þýska.
Símað er frá Berlín, að almenn
ánægja sje yfir því í Þýskalandi,
að gera megi ráð fyrir, að misklíð-
in milli Bayern og alríkisstjórnar-
innar í Berlín sje á enda kljáð.
Khöfn 21. febr. FB.
Samningar.
Símað er frá París, að Mussolini
hafi átt fund við sendiherra
Frakka í Róm og var umtalsefnið
það, hvort nokkur leið mundi geta
o-ðið til fjárhagslegrar samvinnu
milli Frakka og ítala, til þess að
■vega á móti flotaaukningu Breta
í Miðjarðarhafinu, sem talin er
vottur um yfirráðastefnu Breta á
tiifinu.
Skaðabæturnar.
Á ráðherrafundi í París í gær
voru aðalatriðin í skýrslu sjerfræð-
inganefndanna til umræðu og
fjelst ráðherrafundurinn á tillögur
nefndarinnar í ýmsum mikilvæg-
um atriðum, svo sem þessum:
Frakkar sleppa yfirráðum yfir
öllum atvinnumálum Ruhr-hjer-
aðsins, stjórn Frakka á járnbraut-
um er feld úr gildi, og sömuleiðis
samningar þeir, er Frakkar hafa
gert við iðjuhölda ýmissra atvinnu-
greina og margar aðrar hernáms-
ráðstafanir.
Frakkar vilja ekki að svo komnu
ganga að því að fara með her sinn
burt úr Ruhr-hjeraðinu. Eigi vilja
þeir heldur veita Þjóðverjum lengri
gjaldfrest en tveggja ára (í skeyt-
inu stendur 20).
Enslfa verkf allið.
Hafnarverkfallið stendur áfram,
en horfur á lausn deilunnar eru
nú taldar miklu betri en áður, með
því að vinnuveitendur hafa komið
fram með nýtt tilboð, betra en
það fvrra. Verkamannasamböndin
standa öll sem einn maður með
hafnarverkamönnum.
Stjórnin hefir tekið í sínar hend
ur flutninga matvæla frá hafnar-
stöðunum og skiftingu þeirra. Hiin
hefir og sett hámarksverð á nauð-
synjavörur.
(í síðara skeyti segir, að hafnar-
verkamenn hafi gengið að hinu
nýja tilboði og að vinna hefjist
aftur í dag).
Khöfn 22. febr. FB.
Enska verkfallið.
Símað er frá London, að verk-
falli hafnarvinnumanna í Englandi
hafi lokið í fyrrinótt.Fengu verka-í
menn allar kröfur sínar uppfylt-i
ar, (aðalkrafan var um 2 sh.
launahækkun á dag). Vinna hefst
aftur hið bráðasta.
Flotaaukning og atvinnuleysi.
pað hefir vakið afar miklai
furðu, innan verkamannaflokksins
og frjálslynda flokksins, að í gær
tilkynti þingfulltrúi flotamálaráð-
herrans það í neðri málstofunni að
stjórnin ætlaði sjer, til þess að
ráða bót á atvinnuleysinu, að. láta
smíða mörg beitiskip og tvo tund-
uspilla. •
Norskar vinnudeilur.
Símað er frá Kristjaníu: Sátta-
umleitnir þær sem reyndar hafa
verið til þess að ráða fram úr
verkamannadeilunni, hafa* með
öllu mistekist. Frá deginum í dag
skellur verkfall eða verkbann á
50 þúsund verkamenn.
23. febr.
Enska verkfallið.
FB. Samkvæmt símskeyti sem
Eimskipafjelagi íslands barst í
morgun frá afgreiðslu sinni í
Hull, hafa ný vandkvæði orðið á
sáttum í hafnarverkfallsmálinu. I
skeytinu segir svo: Hafnarvinnu-
menn hafa ekki tekið upp vinnu
enn, vegna þess að vinnuveitendur
í sumum höfnum eru því fylgj-
andi að hafna samningunum, sem
nýlega hafa verið gerðir. Samn-
ingsfundum um málið hefir verið
frestað þangað til á mánudaginn
kemur. Er ómögulegt að segja
hvenær vinna muni hefjast aftur.
Khöfn, 24. febr. FB.
Enska stjómin fylgisrík.
Símað er frá London: í lok um-
ræðu neðri málstofu bretska
þingsins um, að stjórnin láti smíða
fimm ný beitiskip, kom frjáls-
lyndi flokkurínn fram með van-
traustsyfirlýsingu á stjórnina.
Var hún feld með 372 atkv. gegn
73, og greiddu íhaldsmenn atkv.
með stjórninni, en ýmsir úr stjórn
arflokknum greiddu ekki atkv.
Geymslufje pjóðverja.
Undirnefnd s'jerfræðinganefed-
arinnar, sem skipuð var til þess
að rannsaka hve miklu fje pjóð-
verjar hefðu laumað úr landi til
geymslu í erlendum bönkum, hef-
ii- komist að þeirri niðurstöðu,
að pjóðverjar hafi komið fyrir
eigi minna en 8 miljard gnll-
mörkum erlendis.
Ruhr-hjeraðið og Belgar.
Símað er frá Brússel, að Jaspar
utanríkisráðherra Belga hafi í
gær haldið ræðu um skaðabóta-
málið í belgiska þinginu, og þar
áætlað tekjurnar af hernámi
Ruhr-hjeraðsins 100 miljón gull-
mörk á ári. Af þessari upphæð
ganga 81 miljón á ári í 12 ár til
afborgunar á hernámskostnaði
Frakka* (?). Afganginn fá Relgar,
*) f skeytinn stendur „amerik-
anske* ‘.
sem hafa 1. veðrjett í 500 miljón-
um gullmarka.
Khöfn, 25. febr.
Konungleg trúlofun.
Símað er frá Róm, að krónprins
Itala, Umberto prins af Piemont
og María prinsessa, dóttir Alberts
Belgakonungs, hafi birt trúlofun
sína.
i
■ i
Franska stjórnin hefir örugtfylgi.
(Frá París er jsímaið, -. Neðri
deild franska þingsins hefir lagt
fullnaðarsamþykki sitt á öll
skattalagafrumvörp stj órnarinn ar.
Var um 100 atkv. meiri hl. með
frumvörpunum.
Miklar tekjur.
Símað er frá London, að á
þeim hluta yfirstandandi fjár-
hagsárs ríkissjóðsins bretska, sem
liðinn er, hafi tekjuafgangurinn
orðið 100 miljón sterl pd. Verður
honum samkv. venju varið til
þess að afborga ríkisskuldirnar.
Hafnarverkfallið í Englandi.
Hafnarverkfallið heldur ennþá
áfram í nokkrum höfnum. Höfðu
vinnuveitendur boðist til að
hækka kaupið um einn shillings
strax og svo einn shillings aftur
í maí; en þessu hafa margir
verkamenn ekki viljað hlíta, og
krefjast þess, að kaupið verði
hækkað að fullu þegar í stað.
Búast menn á hverjum degi við
að verkfallinu ljúki.
— — Eimskipafjelagið fjekk
skeyti í gærkvöldi frá afgreiðslu
sinni í Leith, og er það svohljóð-
andi: Sættir hafa náðst í verk-
fallsmálinu, og hafnarverkamenn
byrja aftur að vinna á morgun.
D A G B Ó K.
22. febrúar.
Review of Reviews. Nýlega var
þess getið hjer í blaðinu, að í hinu
kunna enska tímariti R. of R. hefði
þá verið skrifað nokkuð um grein
prófessors Guðmundar Hannessonar
um þegnskylduvinnuna í Iðunni ný-
lega. Var sagt að þetta mundi vera
í fyrsta skifti, sem getið væri ís-
lenskrar tímaritsgreinar í þessu yf-
irlitsriti, sem eins og kunnugt er, er
m. a. ætlað að gefa stutt yfirlit um
það, sem merkast eða best kemur
fram í öðrum tímaritum víðsvegar
um heim. pó ekki skifti það miklu,
má þó geta þess, að þetta er ekki
allskostar nákvæmt, því áður hafði
verið getið Eimreiðarinnar, fyrst eft-
ir að hún kom undir stjórn Sveins
Sigurðssonar. Er skrifað iþar stutt-
lega um tvær greinar, ritgerð Matthí-
asar Jochumssonar um enska skáldið
William Morris og ritgerð meistara
Vilhjálms p. Gíslason um sögu ís-
lénskrar blaðamensku. pað er anuars
ekki nema gott eitt um það að
segja, og getur verið gagnlegt tins
og tekið var fram í fyrri greininni,
að R. 'of R. hefir nú fengið góða að-
stoð, sem einnig fylgist með ísl.
tímaritum.
X.
Alþýðuhlaðið þykir mörgum vtrið
hafa furðulega stóryrt og iiíyrt
undanfarið útaf ísaf jarðarkærunni.
Hefir það valið þinginu hin verstu
ókvæðisorð og ritað svo ósæmilega,
að jafnvel mörgum vinum blaðsine
hefir ofboðið ritháttur þess og eru
menn þó vanir að sjá sitt af hverju
mislitt í dálkum þess. pykir hiaum
rólegri flokksmönnum svo sem slík
blaðaménska sje síst til þess fallin
að bæta málstaðinn. En blaðið sjálft
virðist halda, að það geri lítið til
hvernig það hagi sjer eða skrifi —
menn taki ekki til þess — eða það
sjái ekki á svörtu, eins og talshátt-
urinn segir.
Halldór Pálsson, er getið var
hjer í dagb. í gær meðal um-
sækjenda um bæjarstjórastöðuna í
Vestmannaeyjum, er rerkfræðingur
hjer í bænum. Lauk hann fullnaðaT-
prófi eftir mjög stuttan námstíma,
með ágætis einkunn í marts 1922 við
verkfræðiskóla í Horsens, en próf frá
þeim skóla gefa öll sömu rjettindi í
danska ríkinu eins og próf frá Poly-
tekniska skólanum í Kaupmannaliöfn,
enda eru skriflegar úrlausnir þeirra,
er próf taka við skólann í Horsens
dæmdar af prófessorum Polytekniska
skólans í Kaupmannahöfn. Síðan
Halldór kom hingað til lands, í apríl
1922, hefir hann verið í þjónustu
vegamálastjórnarinnar.
Ásgeir Porsteinsson hefir nýlega
tekið með góðri einkunn fullnaðar-
próf í verkvísindum við fjölfræða-
skólann í Kaupmannahöfn. Hann
lagði aðallega stund á verklega efna-
fræði. Hann kom hingað með Tjaldi
síðast.
Vestmanaeyjum 21. febr. FB: Á
laugardaginn var hitti björgunarskip-
ið pór enskan togara „Moravia“ nr.
1015 frá Grimsby, við ólöglegar veið-
ar langt fyrir innan landhelgislínuna,
vestan við Eyjarnar. pegar togarinn
varð pórs var hjó harin af sjer vörp-
una og lagði á flótta. pór komst fast
að togaranum en gat ekki handtekið
hann vegna þess að vopn vantaði.
Hollenskur togari lagðist við akkeri
á víkinni hjer í fyrrakvöld og var
með bilaða vjel. Hvesti bráðlega að
austan og hrakti togarann þá upp að
hafnargarðinum og beiddist hjálpar.
pór dró togarann út og lagði honum
fyrir vestan eiðið. Togarinn greiddi
40 sterlingspund í björgunarlaun og
þóttist heppinn að hjálp skyldi vera
við hendina.
Sandgerði 21. febr. FB: Uppgripa-
afli var hjer í dag. Flestir bátar tem
komnir eru að hafa fengið yfir 20
skipund og hafa orðið að hausa mikið
af fiski um borð jafnóðum, vegna
rúmleysis. Er þetta langbesti afladag-
nrinn hjer á Vertíðinni.
Enska verkfallinu er nú sagt lokið.
FB. pilskipin eru sem óðast að
leggja út á veiðar. Samkomulag hefir
komist á milli hálfdrættinga og út-
gerðarmanna, um að útgerðarmenn
kaupi fisk hinna fyrnefndu fyrir 25
aura kg. af 1. flokks fiski og 48 au.
af 2. flokks fiski. Ennfremur hafa há-
setar fengið nokkra tilslökun á sum-
um útgjaldaliðum, sem þeim var gert
að greiða til hálfs við útgerðarmenn.
Akureyri 21. febr. FB: Af þeim
fimm mönnum sem hjer hafa veikst
af taugaveikinni hefir einn dáið, Jón
Guðnason frá Hvarfi í Bárðardal.
Sjúklingarnir eru allir einangraðir á
sóttvamarhúsinu og Hótel Goðafoss,
sem veikin kom fyrst upp á, hefir
verið lokað.
Líklegast þykir, að veikin sje hing-
að komin frá Húsavík.
Hereddur Gummuson hjet maður
einhver, sem kjósandi nokkur á ísa-
firði kaus sem þingmann fyrir kjör-
dæmið. Á öðram seðli stóð nafnxð
Horoldur Gvöðmunsson og einhver
fleiri slík prýðileg nöfn komu fyrir.
pessi atkvæði vom þó dæmd gild
til handa frambjóðandanum, Haraldi
Guðmundssyni. Hefir Alþýðublaðinu
hjer láðst að geta þessa í öllu þvi,
sem það hefir skrifað um ísafjarð-
arkosninguna og misritanir á nöfnuim
þar. Er það máske eðlilegt ef satt
er það, sem sagt er af mörgum í bæn-
um, að höfundur surnra þessa*a
greina, sje hið fallna þingmannsefni
sjálft.
23. febrúar.
Mikill afli. „Yalpole“ kom inn af
veiðum í gær til Hafnarfjarðar eftir