Lögrétta - 19.03.1924, Page 3
LÖGRJETTA
8 '
*br. áður. S. E. var á móti öllum
breytingum á stjórnarskránni. J.
M. benti á J>að, að lengd kjör-
tímabilsins væri all-mismunandi í
ýmsum löndum, t. d. 7 ár í Eng-
landi, þó í reyndinni yrði það oft
«kki svo langt, beldur ca. 5 ár.
J. J. hjelt því fram, að ef í senn
væri bæði fækkað þingum og ráð-
berrum, væri það sama sem au&n-
ing skrifstofuvalds, en rýring
kjósendavalds í landinu. J. M.
taldi að það mundi skapa meiri
festu og samræmi í stjómina, að
hafa þar einn mann fastan, !and-
ritarann, og einn ráðherra, sem
skiftist til um eftir flokkaafstöð-
nnni, heldur en að hafa 2—3 ráð-
herra, sem allir væru háðir flokks-
fylginu. J. J. taldi aðalatríðið
þ>ingafækkunina og um það væri
samkomulag, einkum af sparnað-
arástæðum. pó kvaðst hann geta
ihugsað sjer það, að þing 'yrðu
samt í framtíðinni háð oftar, t. d.
ef þingstaðurinn yrði fluttur til
pingvalla og þingsköpum breytt
svo, að þingtíminn væri styttri
í hvert sinn. Mætti fá það nokkuð
fram með því að láta fjárveiting-
arnefndirnar koma fyr sam-
an og hafa fjárlagatill. sínar tilb.
þegaj- aðalþingið kæmi saman.
J. M. taldi, að ef von væri um
það, að fá fram fleiri breytingar-
till., væri þær vel hugsanlegar, án
þess að til skemda væri, t. d.
meiri eða minni fækkun þíng-
manna. En sannleikurinn mundi
sjálfsagt verða sá, að þó fólk
þættist vera með þingmannafækk-
mninni alment, þá mundi hver
Tim sig ekki vilja sleppa einmitt
sínum þingmanni.
Annars kom í umr. fram lítið
nýtt, sem ekki hefir áður verið
dregið fram í sambandi við þetta
mál, eða sett fram í nefndaráiit-
imurn nú.
Eftir nokkrar umr. var gengið
til atkvæða. Fóru leikar svo, að
-ákvæðið um landritarann var felt
með jöfnum atkv. (7 :7). Með því
Toru íhaldsflokksmennirnir allir,
•en móti því Framsóknarflokks-
mennirnir 5, og Sjálfstæðism. 2.
Aftur á inóti voru hinar till. sam-
þyktar, svo sem um þing annað
livort ár, um' fækkun ráðherra,
nm lenging kjörtímabilsins úr 4
í 6 og 8 í 12 ár, og um úrskurðar-
Trald hæstarjettar um kosninga-
kærur. Brtt. J. J. voru feldar.
-----o------
£rt. stmfregnir
Khöfn 12. mars. FB.
Franska ráðuneytið.
Símað er frá París, að ráðun&yti
Poincaré hafi samþykt að gera
það að fráfararatriði, ef öldunga-
deild þingsins samþykkir ekki
f járhagsfrumvörp stjómarinnar
óbreytt.
Frá Múhameðstrúarmönnum.
Símað er frá Jerúsalem, að
Múhameðstrúarmenn í Palestínu
forsætisráðherra. fyrirspurn um
það í þinginu, hvaða úrræðum
stjórnin ætlaði að beita til þess
að ráða bót á atvinnuleysinu. At-
vinnumálaráðherrann benti aðeins
á nokkrar leiðir, sem fyrverandi
stjórn hafði áður lagt til að farn-
ar yrðu og varð þetta til þess
að ýmsir hentu gaman að, og
kváðu auðsætt hvaða erindi
stjórnin ætti í valdasessinn.
Kolaverkfall.
Frjettastofan hefir fengið eftir-
farandi skeyti frá firma einu hjer
í bænum. Yar það sent frá Húll
í fyrradag.
„Samningar milli kolanámueig-
enda og verkamanna eru komnir
í mjög alvarlegt horf. Óttastmenn
að þeir fari út um þúfur í þessari
viku.
Nýr flotamálaráðherra.
Dómstjóri Kaliforníuríkis, Mr.
Wilbur, hefir verið skipaður flota-
málaráðherra í stjóm Bandaríkj
anna í stað Edwin Denby, sem
segja varð af sjer embætti vegna
olíuhneykslisins.
Gengi frankans.
Frankinn heldur áfram að stíga,
eins og undanfarna daga. Poincaré
forsætisráðherra hefir lagt fyrir
öldungadeildina ýms skjöl, sem
eiga að sanna, að gengisfall frank
ans undanfarið sje sprottið af því,
að pjóðverjar hafi notað inneign-
ir sínar erlendis til þess að lækka
gengi hans.
Wollfs frjettastofa í Berlín :ieit-
ar þessari staðhæfingu, og ber fyr-
ir sig sannanir, er hún hafi fengið
í þýska utanríkisráðuneytinu.
Khöfn 14. mars. FB.
Löghald lagt á bretskt skip.
Símað er frá New York: Stjóm-
in hefir lagt löghald á enska póst-
skipið „Orduna“. Er ástæðan sú,
að skipverjar hafa orðið vísir að
því að smygla inn til Bandaríkj-
anna bæði áfengi og kokaini.
Níu menn af skipshöfninni hafa
verið teknir fastir. Krefst stjómin
10 þúsund dollara tryggingarfjár
fyrir hvern manninn, en J mil-
jónir dollara vill hún fá í trygg-
ingu fyrir skipinu, svo að það
megi halda áfram ferðinni.
Frakkar taka lán.
Símað er frá París, að banka-
firmað Morgan í New York hafi
lánað Frökkum 100 miljón doll-
ara. Vextir af láninu eru 6% p.a.
og eiga Frakkar að endurgreiða
alt lánið í gulli innan ársloka.
Verið er að semja um samskonar
lán við Breta, Áhrifin af lántök-
unni hafa þegar gert vart við sig,
því franski frankinn hefir undan-
farna daga stigið svo mjög á að-
alkauphöllum , heimsins, að þess
eru engin dæmi um gjaldeyri
merkari þjóða. Tal dæmis fjell
sterlingspundið í gær í París úr
120 niður í 97 franka.
Khöfn, 14. mars. FB.
Krafa þýskra þjóðemissinna.
Símað er frá Berlín, að ýms
fjelög þjóðernissinna hafi birt
samþykt eina, þar sem þau skora
á stjórnina að vísa á bug kröfu
þeirri, sem var nýlega tilkynt
um„ að sendiherraráðið hefði
samþykt, að bandamenn taki
aftur upp hermálaeftirlit með
pjóðverjum.
Ákvæðin um kosningu ríkis-
forsetans.
Ríkisþingið feldi á miðvikudag-
inn tillögu þá, sem fram hafði
verið borin, um, að kosning ríkis-
kanslara skyldi fara fram jafn-
framt ríkis-þingskosningunum 11.
maí.
Lántaka Frakka.
Helmingur af láni því, er Frakk
ar hafa fengið hjá Morgan, á að
notast til þess að kaupa inn
franskan gjaldeyri.
Kosningum flýtt.
Kosningum til ríkisþingsins hef-
ir verið flýtt og ákveðið að þær
skuli fara fram 4. maí, í stað 11.
maí.
. Khöfn 17 .mars FB.
J?ing Egypta.
Símað er frá Kairo: Hið fyrsta
stjómskipulega þing Egypta, eftir
að landið varð sjálfstætt ríki, var
sett í gær. Fuad konungur hjelt
hásætisræðuna og drap þar á
helstu mál, sem fyrir þinginu
lægju; væri þar á meðal fyrst
og fremst að vinna að fullu sjálf-
stæði Egyptalands, og undirbúa
upptöku ríkisins í alþjóðasam-
bandið. Síðan var lesið upp heilla-
óskaskeyti frá forsætisráðherra
Breta, Ramsey MacDonald. Var
óhemju fjöldi fólks saman kom-
inn við þingsetninguna og mikiU
þjóðvakningarhugur ríkjandi.
Fjármál Frakka.
Frá París er símað, að öldunga-
deild franska þingsins hafi sam-
þykt heimildarlögin fyrir frönsku
stjórnina til þess að koma á ýms-
um endurbótum í f jármálum ríkis-
ins, án þess að spyrja þingið. —
Vora lögin samþykt með 13 at-
kvæða meiri hluta, og mun það
hafa verið vegna þess, að stjómin
hafði hótað að gera samþykkis-
neitun málsins að fráfararatriði.
Öldungadeildin hefir ennfremur
samþykt að afnema eldspítna-
einkasöluna.
Lánveitingar.
Símað er frá New York: Að
Morgansbankanum hrúgist nú til-
mæli úr ýmsum áttum um það að
taka þátt í ýmsum frönskum lán-
tökum. Mörg ensk blöð andmæla
harðlega lántökustefnu Frakka,
og krefjast þess, að enskar pen-
ingastofnánir veiti þeim ekki
meiri lán en orðið er.
Rússar og Svíar.
Símað er frá Stokkhólmi, að
stjórnin hafi viðurkent ráðstjórn-
ina rússnesku að lögum.
-------x------
Dagbók.
hafi einum rómi ákveðið að bjóða
konunginum í Hedjaz kalífatign.
Frá Konstantínópel er símað, að
Mustafa Kemal hafi tilkynt Mú-
hameðstrúarmönnum í Indlandi,
að völd kalífans væru nú komin
í hendur þjóðþingsins tyrkneska
°g stjórnarinnar.
Verkamannastjórnin
og atvinnuleysið.
Símað er frá London: í gær
gerði Stanley Baldwin, fyrverandi
Khöfn 16. mars FB.
Orduna látin laus.
Símað er frá New York, að
enska póstskipið „Orduna“ hafi
verið látið laust gegn tryggingu
þeirri, 3 miljón dollurum, sem
krafist var. Stjórn Bandaríkjanna
krefst þess að skipið verði gert
upptækt fyrir lögbrotin, eins og
heimilt er samkvæmt bannlögum
Bandaríkjanna, til refsingar sum-
um yfirtroðslum laganna.
14. mars.
FB: Kútter „Sigríður“ strandaði í
fyrrinótt í drífu við Stafnestanga.
Eigi er fullkunnugt ennþá hve mikið
skipið er skemt, eða hvort hægt er
að ná því út aftur. Skipið var að fara
hjeðan. Manntjón varð ekki.
(í gær kom sú fregn af „Sigríði“
að hún væri sokkin.
Dánarfregn. p. 12. þ. m- andaðist
að heimili sínu, Vatneyri við Pat-
reksfjörð, Sigurður Baehmann kaup-
maður. Var skamt milli hans og konu
Þessir
Mjólkurbrúsar
(patentbrúsar)
eru þeir allra sterkuatu og hentug-
i ustu, sem fáanlegir eru.
Fyrirliggjandi 10, 15, 20, og 30
ltr. brúsar.
Hjalti Björnsson 6tCo.
Simi 720. Símnefni Aktivity.
Aðalfundur
h \ r.f ti jíd ímrauí t-y.
Búnaðarfjelags íslands verður haldinn að Svignaskarði í Mýrasýslú.
föstudaginn 4. apríl 1924, og hefst klufckan 2 síðdegis.
Verkefni fundarins:
1 Skýrt frá störfum og fjárhag fjelagsins.
2. Fluttir fyrirlestrar um búnaðarmál, sem verða nánar aug-
lýst síðar.
3. Bornar fram og ræddar tillögur, til bendingar fyrir bún-
aðarþing. —
4. Kosinn einn fulltrúi og varafulltrúi á búnaðarþing fyrir
Vestfirðmgafjórðung.
Kosningarjett hafa allir meðlimir Búnaðarfjelags fslands í
Vestfirðingafjórðungi.
Allir eru velkomnir á fundinn!
Reykjavík, 13. mars 1924.
Fyrir hönd Búnaðarfjelags Islands.
S. SIGURÐSSON.
(húnaðarmálast jóri).
hans; hiin ljetst 20. f. m. pau hjón
voru mörgum hjer að góðu kunn.
Banamein beggja var lungnabólga.
15 mars.
Akureyri, 14. mars. FB. prjú til-
felli hafa komið hjer nýlega a£
taugaveiki, og verður veikin rakin
til 'sama staðar eins og áður, Hótel
Goðafoss. Alls hafa 15 manns tekið
veikina og tveir dáið; annar á Akur-
eyri, en hinn austur í pingeyjar-
sýslu.
FB. Kútter Sigríður sökk snemma
í fyrradag, eins og áður hefir verið
frá sagt hjer í blaðinu. Skipið var
vátrygt hjá Samábyrgð fslands. Skip-
verjar björguðust á skipsbátnum til
Sandgerðis, 29 talsins.
FB. Enskur togari, „Lord Fisher“
frá Húll, strandaði í Hafnarfirði á
miðvikudagskvöldið. Björgunarskipið
„Geir“ náði honum af grunni morg-
uninn eftir. Skemdir urðu ekki telj-
andi á skipinu-
Akureyri í gærkvöldi. FB. Ágúst
Benjamínsson skólapiltur úr Reykja-
vík, var í dag að handleika hlaðna
byssu. Hljóp þá skotið úr henni og
kom hægra megin í kviðinn og fór
út um huppinn. Læknarnir telja, að
áverfcinn muni ekki verða mannin-
um að bana.
16. mars.
FB: Vestmannaeyjum 15. mars. Al-
gerlega aflalaust hefir verið hjer
seinustu dagana.
Kirkjubæjarklaustri, 15. mars. FB.
í fyrrinótt kl. 1 strandaði færeysk
seglskúta, Delfinen frá Thorshavn,
við Skaftárós. Á skútunni voru 15
menn og drukknaði einn þeirra í
lendingunni. Skamt var liðið síðan
skipið fór frá Færeyjum, og hafði
aðeins lítið af fiski innanborðs. Komp
ás skipsins var í ólagi, og var það
ein orsök strandsins.
Seyðisfirði, 15. mars. FB- Frakk-
nesk skúta, Manon frá Dunkerque,
strandaði í gær utanvert við Fá-
fekrúðsfjörð, á skeri einu undan
Skálavík. Skipshöfnin bjargaðist.
17. mars.
Frá Akureyri var símað í gær, að
þar væri besta tíð nú og ofurlítill afli
af þórski á Pollinum og utan við
hann.
SBung hafa tveir bændur í Eyja-
firði sótt austur til Mývatns í vetur
— sendu sinn manninn hvor með
hest og sleða og komu þeir með um
1200 pund silungs. Er svo sagt fyrir
norðan, að það muni vera í fyrsta
sinn, að Eyfirðingar sækja siiung
austur yfir Vaðlaheiði.
Sjera Magnúsi Guðmundssyni hefir
verið veitt Nesþinga prestakall (Ól-
afsvík) samkvæmt kosningu safnað-
arins.
Dánarfregn. Aðfaranótt sunnudags-
ins ljetst á Landakotsspítala Halldór
Guðmundsson rafmagnsfræðingur. —
Hans verður nánar minst hjer í blað-
inu síðar.
FB. Umsóknarfrestur um Vest-
mannaeyjaprestakall og Laufáspresta-
kall var útrunhinn 15. þ. m. Um Vest
mannaeyjar hafa sótt kandídatarnir
Baldur Andrjesson og Hálfdan
Helgason; settur prestur Sigurjón
Árnason og Vigfús pórðarson prest-
ur í Eydölum. Um Laufás hafa sótt
Ásmundur Gíslason prófastur á Hálsi,
sjera Ingólfur porvaldsson, sjera Her
mann Hjartarson á Skútustöðum,
sjera Gunnar Benediktsson í Saurbæ,
sjera Björn O. Björnsson Ásum ■£
Skaftártungu, sjera Sigurjón Jónsson
Kirkjubæ í Hróarstungu og Sveinn
Víkingur Grímsson, aðstoðarprestur
að Skinnastað.
FB Taugaveikin á Akureyri. (Sím-
skeyti til landlæknis frá hjeraðslækn-
inum). Alls eru átta sýktir af tauga-
veiki á Akureyri, ennfremur tveir í
Fljótunum, sem smitast hafa njer
og tveir í Bárðardal, sem vafasamt
er hvar smitast hafa. Smitun allra
sem veikst hafa er frá Hótel Goðafoss.
Ægisíðu 17 .mars B: Bátar sem
róa ur pvkkvabæ fá nú hæst uppund-
ir 50 í hlut.Er óskapleg mergð af fiski,
en stirðar gæftir og togararnir ern í
hrönnum upp undir landi og gera