Lögrétta - 22.04.1924, Blaðsíða 4
4
LÖGRJETTA
sem allur almenningur lítur nú til
,með einna mestum kvíða, og mörg-
um virðist svo, sem þingið hafi
hingað til verið fremur athafnalít-
ið um, þó víðar hafi þessi mál að
vísu reynst þung í skauti.
það er eins og mikill hluti af op-
inberu umræðunum um fjárhaginn
nú hafi snúist um það, sem í raun-
inni ætti að vera aukaatriði —það,
hverjum núverandi ástand væri
helst að kenna, — en minna hirt
um hitt, sem þó er áreiðanlega að-
alatriðið, hvemig eigi að bjargast
út úr þessu ástandi, eða öllu held-
ur óstandi. pví það er áreiðanlega
ekki leiðin til viðreisnar að ala á
sundrung og illdeilum um þessi
mál, og það er siðferðilegur ábyrgð
arhluti, sem fyr eða síðar kemur
mönnum í koll, að ætla að nota
þessa erfiðleika að ósanngjörnu og
illgjömu vopni í flokkaskærum og
mannametingi á öðrum sviðum
þjóðmálanna, til að troða niður
skóinn af gömlum andstæðingum
sínum, til að sundra kröftunum,
til að vekja tortrygni hjá kjósend-
um, og til að þvæla málin fyrir
þeim, í stað þess að skýra þau. það
er alveg rjett, sem fjármálaráð-
herrann sagði í ræðu sinni, sem fyr
er getið, að það verður affarasæl-
ast, að geta haldið sem bestum
friði um þessi mál.
Sökin á núverandi örðugleika-
ástandi er sjálfsagt margþætt,
bæði hjá þjóð og þingi og stjórn-
um, bæði sjálfráð og ósjálfráð.
Veldur þar bæði um nokkurt ahd-
varaleysi uppgangsáranna og sú
ringulreið, sem þá komst á ýmsar
íjárhagshugmyndir manna og
falskt mat á getu og möguleikum
inn á við, — og svo sú almenna
óáran út á við í umheiminum, sem
rót og riðlun ófriðaráranna skap-
aði.
Annars geta menn sjálfsagt
lengi deilt um sökina — allra helst
þegar ekki er leitað til þess eins
að komast að sanngjarnri niður-
stöðu, heldur til hins ekki síður, að
finna höggstaði og snögga bletti á
gömlum og nýjum andstæðingum í
öðrum málum jafnframt.
þegar til þess kemur þó, að
benda á lækninguna við þessum
fjárhagsmeinum, eru menn miklu
meira sammála, á yfirborðinu að
minsta kosti. þar er það spamað-
ur, sem öll kraftaverk á að gera.
Um það er enginn ágreiningur
milli flokkanna — allir vilja spara.
Og auðvitað er þetta alveg rjett
að mörgu leyti og sjálfsagt — þó
sparnaðurinn sje hinsvegar orðinn
mönnum svo tungutamur við öll
möguleg og ómöguleg tækifæri,
bæði hjá þeim, sem meina hann vel
og hinum, sem hann er ekki annað
en kjassmált kjósendaflaður, að
það er næstum því leiðinlegt, að
taka sjer orðið í munn. Heilbrigð-
ur sparnaður á að vera lögmál
þjóðarbúskaparins, ekki einungis í
öngþveiti erfiðleikanna, heldur
einnig í velgengni veltiáranna, svo
að mögru kýrnar þurfi ekki alveg
að gleypa þær hinar feitu. Og þess-
vegna einmitt, að hins sanngjarna
sparnaðarins var ekki gætt nægi-
lega þegar vel gekk, hvorki hjá
einstaklingum nje heildinni, þarf
nú, þegar að kreppir, að grípa til
ýmislegs sparnaðar, sem í raun-
inni er ósanngjarn. því sparnaður-
inn einn út af fyrir sig, er ekkert
mark í sjálfu sjer — hann er með-
al. Og úrlausnarefnið er það,
hvernig sparað verði sanngjam-
legast, án þess að þeim málum
þjóðarinnar, sem tilvera hennar
og framtíð byggist fyrst og fremst
á, sje hætta búin, án þess að mátt-
arviðir menningar hennar verði
veiktir eða möguleikum hennar
eytt.
Stjórnin, sem nú er nýtekin við,
má búast við því, að hún verði að
„þola mikla nauð“ um sína tíð. J>ví
ástandið er alvarlegt og erfiðfeik-
amir miklir, og þó viðsjár með
mönnum og flokkum. þessvegna er
eðlilegt, að vakandi auga vandlæt-
inganna verði haft með henni og
öllum hennar athöfnum, eins og
rjett er. En einmitt þessvegna á
hún líka rjett þess, að fá einhuga
aðstoð til þeirra mála, sem til við-
reisnar vita — þeirrar fjárhags-
legu viðreisnar, sem þjóðinni er
lífsnauðsyn, þeirrar viðreisnar,
sem hún getur öðlast ef hún vill.
— ■ »o~ ■ •
-A.lþin.g'i.
Verðtollur.
Eins og frá hefir verið sagt hjer
í blaðinu áður, bar fjárhagsnefnd
nd. fram frv. um bráðabirgðaverð-
toll, og var hann afgreiddur með
afbrigðum frá þingsköpum í báð-
um deildum, eftir allmiklar um-
ræður og nokkrar deilur. Aðallega
var deilt um afstöðu þessa máls við
haftamálið, og verður sagt nánar
frá því máli öllu seinna. Aðalatriði
laganna eins og þau voru samþykt
eru þessi: Hver, sem fær vörur frá
útlöndum, er skyldur til, áður en
vörurnar eru’ afhentar honum, að
sýna hlutaðeigandi lögreglustjóra
eða umboðsmanni hans reikning
yfir innkaupsverð þeirra, kominna
um borð í skip, er flytja á vörum-
ar hingað til lands. þetta nær til
allra vara, sem hingað eru sendar,
að undanteknum íslenskum afurð-
um, sem endursendar eru, og
venjulegum farangri ferðamanna.
Alla reikninga um vörur, er um
ræðir í 1. gr. 3., 6. og 7. lið laga nr.
38, 27. júní 1921, um vörutoll, svo
og reikninga um fólksflutningabif-
reiðar, tilbúnar hurðir og glugga,
skal lögreglustjóri eða umboðsmað
ur hans stimpla með merkjum
þeim og á þann hátt, er um ræðir
í lögum nr. 75, 27. júní 1921, og
skulu allir slíkir reikningar stimpl-
ast með 20% af innkaupsverði
þeirra vara. — Verði ágreiningur
um flokkunina, fellir ráðherra um
það fullnaðarúrskurð.
Undanþegnar þessu gjaldi eru
vörur þær, er nú skal greina:
Galvaniseraðir balar, brúsar og
fötur, bambus, bast, bíla- og hjól-
hestadekk og slöngur, botnvörpur,
botnvörpugarn, burstar og kústar,
dynamit, dælur, ný epli, ger, ger-
duft, glóðarlampar, hampur, kát-
sjúk (óunnið), kopar, kolsýra, kar-
bólín, lamir, lásar, gluggajárn,
skrár, læknistæki, lyklar, lampa-
glös, sútað leður og skinn, við-
hafnarlaus skófatnaður úr skinni
og gúmmí, gúmmíhælar og sólar,
lóðarbelgir, lampakveikir, lyfja-
vörur, meðalalýsi, málning, mottur
til umbúða, net, niðursoðin mjólk,
ostahleypir, pottar, pönnur, prent-
letur, prentsverta, prjónavjelar,
rafmagnstæki og mælar, ratin,
reikningsspjöld, röntgentæki, sára-
umbúðir. saumavjelar, seglgam,
síldarkrydd, skipsbrauð, smíðatól,
sveskjur, svínafeiti, trjeskór og
klossar, talsíma- og ritsímatæki,
ullarkambar, vaxdúkur, veggfóður,
vjelareimar, vír úr jámi og kopar,
vogir, önglar og öngultaumar,
tvistdúkur, flónel (Bommesie),
shirting, lasting, ljereft (dowlas,
stout), molskinn, nankin, boldang,
blautsápa, gam allskonar til heim-
ilisiðnaðar og nýtt grænmeti.
Enn fremur er stjórninni heim-
ilt að undanskilja þessum tolli þær
efnivörur, sem innlend iðnaðarfyr-
irtæki sanna fyrir henni, að þau
noti til starfrækslu sinnar.
Lög þessi eru þegar komin í
gildi og eiga að gilda til ársloka
1925. Nokkur ágreiningur varð um
síðustu liði undanþágunnar (frá
því byrjað er að telja vefnaðarvör-
urnar), og vildu sumir ekki hafa
þá liði, þar sem með því væri opnuð
leið til þess að koma flest allri
Yátryggingarfjelagið London
Phoenix og Norwicli IJnibn.
ZEig-xiir yfir ÍOOO na.illióixir IkrrónLa..
Eldsvoðaábyrgð — Sjóvátrygging — Sjó og Stríðsvátryggingar
Líftryggingar — Slysatryggingar og Ellistyrkstryggingar.
Barnatryggingar.
Hár Bonus. — Lág iðgjöld.
Pjelag þetta hefir útbú á íslandi. Stjórn útbúsins og aðalumboð
hefir .
Þorvaldur Fálsson
læknir.
Umboðsmenn óskast.
Bniiariaatiaad Kjalirussiliis.
Aðalfundur sambandsins verður haldinn laugardaginn 3. maí kl.
B Æ K TJ H>.
Ljóðaþýðing-ar, eftir Stgr. Thorsteins-
son, I., kemur út i vor, 3 sjálfstæð
bindi koma út.............kr. 3.50
Redd-Hannesarríma, eftir sama höf.
Ný hók....................kr. 3.00
Rökkur I. ár, skáldsögurit aðallega,
12 arkir..................kr. 3.00
Pöntunum að II. árg. veitt móttaka.
Fyrsti árg. Röltkurs og Redd-Hann-
esarrima fást nú hjá bóksölum.
Bækurnar má og panta frá útg.
Askriftayverð . að Ljóðaþýðingunum,
hverju bindi, er kr. 3.00 og fá þeir
áskrif. utan af landi, er vilja fá hin
tvö bindin og skifta við útg., sömu
kjör.
AXEL THORSTEINSON
Pósthólf 106, Reykjavik.
Shannong's Monument-Ate-
lier, Öster-Parimagsgade 42,
Khöfn. Stærsta og góðfræg-
asta legsteinasmiðja á Norður-
löndum. Umboðsmaður á Is-
landi:
Snæbjörn Jónsson,
stjórnarráðsritari, Rvik.
Stýrimanuastig' 14.
1 í liúsi Búnaðarfjelags íslands.
Magnús Þorláksson.
vefnaðarvöru undan tollinum, eða
að minsta kosti stórum auknir
erfiðleikarnir á framkvæmd lag-
anna. Síðustu liðunum (frá blaut-
sápa) var bætt inn í í ed.
1 sambandi við þessi bráðabirgða
lög hefir J. J. borið fram í ed. frv.
um sjerstakan verðtoll á nokkrum
fyrirliggjandi vörubirgðum. Er þar
gert ráð fyrir því, að lögreglu-
stjórar skuli kanna birgðir þeirra
tegunda, sem verðtollslögin ná
yfir, og fyrir eru í landinu þegar
þau koma til framkvæmda, og taka
einnig 20% verðtoll af þeim hjá
kaupmönnum og kaupfjelögum.
Málinu var vísað í nefnd.
Höftin.
Aðflutningshöftin hafa verið all-
mikið rædd undanfarið. Verður
nánar sagt frá málunum í heild
sinni síðar. Hjer skal aðeins getið
úrslitanna. En þau urðu þannig, að
samþykt var till. frá Jakob Möller,
um það, að vísa málinu til stjórn-
arinnar, enda teldi hann ekki rjett
að hefta innflutning á öðrum vam-
ingi en þeim, sem alóþarfur gæti
talist. Meiri hluti nefndarinnar
hafði annars borið fram rökstudda
um það, að hún treysti því, að
stjómin beitti heimildarlögunum
frá 8. mars 1920 til þess að hefta
innflutning eins og fært þykir, með
hliðsjón af fjárhagsástandi ríkis-
sjóðs. En þeir sem að dagskrá
þessari stóðu, töldu engu skifta
hvor till. yrði* samþykt, þeirra eða
Jak. M., úr því málið yrði fengið í
hendur stjórnarinnar með skírskot
un til heimildarlaganna um höftin,
og kom því dagskráin ekki til
atkv.
---o---
Umvíðaveröld,
Síðustu símfregnir.
Frá Moskva er símað, að miklar
gullnámur sjeu fundnar í Kirgesa-
steppunum í suðvestur Síberíu, og
er talið að við þetta muni gull-
fiamleiðsla Rússa geta sjöfaldast.
— Landsþingskosningar em nýaf-
staðnar í Bayern. þj óðræðisflokk-
urinn fekk 30 þingsæti, þýski
þjóðræðisflokkurinn 16, jafnaðar-
menn 14, bændaflokkurinn 8' og
kommúnistar 7 og aðrir flokkar
þaðan af færri. — 1 Grikklandi
hefir nýlega farið fram atkvæðar
greiðsla um það, hvort landið skuli
framvegis vera lýðveldi eða kon-
ungsríki, og voru 75 af hundraði
með lýðveldi.í símfregn frá Berlín
segir, að konungssinnar hafi haft
í frammi ýmislegt ofbeldi við kosn-
ingarnar, svo að landið hafi verið
lýst í umsátursástandi. Konduriot-
is stjómarformaður hefir bannað
öllum blöðum árásir á stjómina í
næstu 5 ár. Frá Aþenu er símað,
að gríska stjórnin hafi fengið
tiaustsyfirlýsingu með 259 atkv.
gegn 3. — Út af bankavandræðum
í Noregi hefir norska stjómin
ákveðið að veita Handelsbanken
stuðning. í símfregn frá Kristjaníu
er sagt, að vandræði þessi stafi
mest af ótta almennings við
ástandið. — Frá London er símað
að Smuts hershöfðingi, landsstjóri
í Suður-Afríku, hafi rofið þingið.
Er uggur í mörgum út af nýju
kosningunum, þar sem talið er lík-
legt að þjóðræknismenn og verka-
menn fái meirihluta, en þeir vilja
skilnað úr bretska alríkinu. — Frá
London er símað, að Bretinn Grin-
dell Matthews hafi fundið aðferð
til að framleiða og senda út í geim-
inn ósýnilega geisla, sem drepi alt
lifandi sem þeir hitta fyrir í 50
œílna fjarlægð. Bretar ætla að
nota þetta til að verjast loftárás-
um og eru jafnframt hættir við
ýmsar ráðagerðir um aukning
flugliðs síns. — Hugo Stinnes er
dáinn. Hann arfleiddi konu sína að
öllum auði sínum og verður fyrir-
tækjum hans öllum haldið áfram
undir stjórn fimm sona hans. —
Frá Aþenuborg er símað, að ákveð-
ið sje að skíra Grikkland upp og
kalla landið Hellenike Politeia. —
Horfur eru á samkomulagi um
skaðabótamálin milli allra Evrópu-
stórveldanna. (Verður sagt ítar-
lega frá því máli í næsta blaði).
Átta menn drukna.
Seyðisfirði 19. apríl FB.
Vjelbáturinn Seyðfirðingur fórst
í morgun fram undan Stöðvar-
firði, er hann var á leið hingað
heim frá Djúpavogi. Er gitskað á
að báturinn hafi rekist á blind-
sker.
Á bátnum voru 8 menn og fór-
ust þeir allir. Voru þeir þessir:
þórður Guðmundsson, sem var
formaður bátsins, Ólafur Einars-
son, Óli Steinn Jónsson, Sigurður
Gunnarsson og vermennimir Eirík-
ur Kröyer, Magnús þorsteinsson
og Guðmundur Haraldsson. Voru
allir þessir menn hjeðan úr bænum.
Ennfremur Sigþór Brynjólfsson
frá þórarinsstöðum.
Róðrarbátar frá Stöðvarfirði
fundu í dag fimm af líkunum og
voru þau öll með flotbelti. Enn-
fremur fundu bátarnir siglurána af
bátnum, og er giskað á, að tveir
mennirnir, sem ekki hafa fundist,
hafi ætlað að halda sjer uppi á
henni. Líkin, sem fundist hafa,
verða flutt hingað í kvöld. Bátur-
inn var óvátrygður og sömuleiðis
fiskfarmur sá, er hann var með.
Danske Lloyd,
hið alkunna vátryggingarfjelag
með því nafni, átti 25 ára afmæli
1. þ. m. Umboðsmaður þess hjer
er hr. Ólafur G. Eyjólfsson. Til
minningar um afmælið hjelt hann
boð á Hótel ísland 15. þ. m. og var
það vegleg veitsla og fór vel fram.
Hr. Ó. G. E. sagði þar sögu fjelags-
ins, mintist þeirra, sem mest hefðu
fyrir það starfað, og sagði frá
framförum fjelagsins. Stjómendur
þess eru nú cand. jur. Gangsted og
P. Heuerlin. E. Nielsen framkv.stj.
mælti fyrir minni fjelagsins og
hrósaði því fyrir þau viðskifti, sem
hann hefði átt við það. Hann sagði,
að Goðafoss gamli hefði verið
fyrsta íslenska skipið, sem þar
hefði verið vátrygt. Magnús Krist-
jánsson framkv.tj. mælti fyrir
minni umboðsm. fjel., Ó. G. E., og
þakkaði hónum veitsluna. Einnig
talaði Brynjólfur Bjarnason kaup-
maður og mintist viðskifta sinna
við fjelagið. Ó. G. E. mælti fyrir
minni E. Nielsens framkv.stj.
-----o----
Mannslát. 1. þ. m. andaðist á
heimili sínu hjer í bænum Jón
Magnússon frá Bráðræði, gamall
borgari þessa bæjar og alkunnur
merkismaður, háaldraður, fæddúr
8. nóv. 1835. Jarðarförin fór fram
frá Fríkirkjunni síðastl. föstudag
og var mjög fjölmenn. Flutti sjera
Ól. Ólafsson húskveðju, en sjera
Árni Sigurðsson flutti ræðu í
kirkjunni.
Silfurbrúðkaup áttu þau þórður
læknir Edilonsson í Hafnarfirði og
frú hans Helga, dóttir Benedikts
Gröndal skálds, 13. þ. m. Frímúr-
arar sendu þeim að gjöf málverk
eftir frú Kristínu Jónsdóttur.
Júlíus Júlínusson skipstjóri
hafði, er hann kom hingað með
Lagarfoss 11. þ. m. farið 100 ferð-
ir milli íslands og útlanda. Til
minningar um það var honum hald-
ið samsæti hjer, sem margir tóku
þátt í. Guðmundur Björnson land-
læknir mælti fyrir skál hans, en
Hjalti Jónsson skipstjóri mintist
frúar hans. Málverk eftir Ásgrím
var Júlíusi fært að gjöf.
Dánarfregn. Nýlega ljetst á
heilsuhælinu á Vífilsstöðum frú
Hólmfríður Eiríksdóttir, kona
Björns Hallssonar fyrv. alþingis-
manns á Rangá. Hafði hún legið
lengi á hælinu. Hún var merk og
væn kona, dóttir Eiríks heitins í
Bót í Hróarstungu.
Áfengisverslunin. 1 vetur varð
uppvíst um vöruvöntun í Áfengis-
verslun ríkisins, sem nam að sögn
nál. 28 þús. kr. Rannsókn var haf-
in og voru tveir menn settir í
gætsluvarðhald um tíma, meðan á
henni stóð, en nú hafa þeir fyrir
nokkru verið látnir lausir. Málið
mun nú vera hjá dómaranum.
Prentsmiðjan Acta.