Lögrétta

Tölublað

Lögrétta - 15.07.1924, Blaðsíða 2

Lögrétta - 15.07.1924, Blaðsíða 2
2 LÖGRJETTA Helfró. Hann bækir á brekkuna síðla dags, sjer ekki hríðina norður á fjöllum, tetar sig upp eftir hjalla af hjöllum, heldur svo áfram til sólarlags. pá var sem stormur úr læðingi leystist, hann lambdi, barði, hamaðist, geystist, og norðanhríðin svo nöpur og dimm nágreipum spennir hann, ferleg og grimm. Hjer er ei fært að halda á, en hálfu verra að komast til baka, því við af brekkunni váklettar taka; vargurinn hlaut þar margan ná. Hann heldur í veðrið, en verður að þoka, veginum er nú búið að loka. Viltum er til varna smátt og vonleysið er ráðasmátt. Pá sjer hann að framundan lýsir á leið, á lýsuna gengur hann allshugar feginn, hirðir ekki um hel eða veginn, heiðin finst honum sljett og greið. Fyrir sjer lítur hann háreista höllu, af höllinni lýsir sem sólblik á mjöllu; þar sjer inn í glæstan guðasal, með glitfagrar súlur og myndaval. Hugfanginn stendur og horfir á þá himnesku dýrð um gjörvallan salinn; í huga hans fölnar blómskreyttur balinn, blómin verða eins og sinustrá. Á hvelfingu glitra gimsteinaraðir sem guðlegir laukar alblómgaðir, veggtjöldin ekki verða skýrð, hann veit ei slíka jarðneska dýrð. - -....-v—i- Fegurst af öllu á þeim stað var undrafögur kona á stóli, skínandi hvítum klædd var kjóli, krýndi enni demantshlað. Enginn að sjá þá sjón hefir fengið, og síðan aítur til jarðlífs gengið. Hún send var af himni honum, er dó, í helstríðinu að veita fró. Við fótskör hennar þá lágt hann laut: Lof mjer að dvelja hjer, fagra drotning. Jeg krýp þjer í auðmýkt og lýt í lotning, láttu mig ekki aftur braut. Hún rjettir út hendina, á höfuð hans styður, þá hnje hann máttvana á grúfu niður. Hún hafði svæft hann sveíninum þeim, er sækir að lokum alla heim. Vertu ekki að gráta, vinur minn, þó vonirnar bregðist stöku sinnum, í lífsins þrautum lyf vjer finnum, lyfið geymir hugurinn. Leitirðu, færðu lækning' nauða, í lífi von og fró í dauða. þjer veitt var ekki án smyrsla sár, án sælu ekki nokkurt tár. G. Bjömsson. Kaflar úr Brjefi frá Bandaríkja-tslendingi um íslensk stjómmál og stjórnar- far á síðustu ámm. ------Niðurl. Jeg veit ekki hvort jeg á að minn ast á gengið, það er svo margþætt mál. Fyrst má telja tapið á sjávar- afurðunum, er fyrsti bylurinn skall á. pað tap ásamt verðfalli fjölda togara, sem keyptir voru þegar verst gegndi, hefir jetið upp allan ágóða útgerðarinnar árin á undan og líklega meira þó. Einstak- ir menn hafa vitanlega setið eftir með hagnað, en heildin líklega ver farin en áður. Gróði bændanna er meiri í orði en á borði, virðist mjer. Allur þeirra gróði er mismunurinn á framleiðslukostnaði og söluverði búsafurðanna árin 1915—1920, að frádregnum reksturshalla næstu ára á eftir, meðan jafnvægi var að komast á og afurðirnar fjellu í verði miklu meira og skyndilegar en framleiðslukostnaðurinn. Roll- an, sem kyr var í kotinu eða jetin heima, steig aldrei í verði. Afurð- in steig í verði, en bústofninn í rauninni ekki. Sama gildir um ann- að lausafje og jarðirnar. Bóndinn, sem borgaði skuldir sínar á góðu árunum, græddi að vísu þá, en fór ekki sá gróði er afurðirnar íjellu? Sá sem seldi lömb og annað lausa- fje, auðgaðist ekki heldur, þótt verðið væri hátt, því að nú er hon- um borgað með 50 aura krónu, og hvar er þá gróðinn ? Tekjuhalli ríkissjóðs, sem veltur á milljónum árlega, lántökur og verslunarhalli, sem skifta tugum milljóna, og ekki síst seðlaútgáfan, sem lítið verðmæti stóð á bak við, alt eru þetta orsakir til gengis- fallsins, og aðalsökin hvílir á stjórn og þingi. Lánin að mestu óþörf og orðin að miklu leyti að eyðslufje. pað átti að vera stjórninni innan handar að takmarka innflutning- inn og hafa eftirlit með útfluttum vörum, þannig, að trygging væri fyrir því, að andvirði þeirra gengi aðeins í rjettmætar greiðslur. pað hefir máske ekki verið mikill flótti gjaldmiðils úr landinu, en þó grun- ar mig, að ekki sje með öllu örgrant um það. íslenskir fjármálamenn og „spekúlantar“ virðast mjer vera svo vel að sjer í sinni grein, að jeg býst við, að þeim hafi ekki alveg sjest yfir þetta ráð, þegar þeir sáu Lesbók Lögrjettu V. EM ilin ð íslanðl. Eftir Snæbjörn Jónsson. I. Einangrunarpólitíkin. En se donnant une langue de civilisation propre, une nation s’isole des autres. A. Meillet. The whole civilised world is a co-operative manufactory of knowledge. Tungumálanefndin bretska 1918. pað er ekki sjaldgæft að heyra það látið í ljósi, að einangrun okk- ar íslendinga frá umheiminum í þúsund ár hafi verið okkur til bless unar. Henni sje það að þakka, að okkur hafi tekist að varðveita tungu okkar og þjóðerni, auk þess sem hún hafi bægt frá okkur ýmsu minniháttar böli. Af þessari sögu- legu ályktun er hin svo aftur dreg- in, að þennan ómetanlega varnar- garð, einangrunina, megum við með engu móti láta rofna, þareð þá muni steðja að okkur í framtíð öll sú ógæfa, sem hann hafi bægt frá okkur í liðinni tíð. Enginn mun vilja um það deila, að það sje sökum einangrunarinn- ar, hve lítið íslensk tunga hefir breytst síðan á landnámsöld. par er um einfalt og óvillugjarnt at- riði að ræða. Aftur á móti fer fljótt að oskyrast ef haldið er lengra eft- ir hugsanabraut föðurlandsvin- anna, svo að þær eru nú sin í hverri áttinni vörðurnar, sem vísa að næsta áfanganum, sólskinsbrekku hvað að fór. Eitt af því allra versta er þó seölamergðin. Fyrir nokkr- um árum sá jeg nokkuð um það ritað, hve mikið veltufje þyrfti 1 landinu, og á því átti seðlaútgáfan að vera bygð. En sannleikurinn er sá, að seðlarnir voru gefnir út langt fram yfir þarfir, og af því leiddu „spekúlationir“. pað þarf ekki að vera gull á bak við seðlana, kjöt og fiskur eru alveg eins góð trygging, en verðmæti verður að standa á bak við seðilinn, annars er hann einskis virði. pað er ekkert annað en verðmætið, sem á bak við stend- ur, sem gefur honum gildi. Hluta- brjef í stórhýsi, sem gefur af sjer góðan arð, gengur kaupum og sölu og getur verið eins góð eign eins og gull. En gleypi jörðin hús og grunn, þá er hlutabrjefið orðið verðlaust, nema vátrygging komi til. Sama gildir um verðbrjef í jörð, ef skriða íellur, sem eyðileggur byggingar, tún og engi, þá er verð- brjefið einskis virði, af því að verð- mætið, sem stóð á bak við það, er ekki lengur til. Svona er það líka þjóðernisins. pað vakir auðsjáan- lega ekki hið sama fyrir öllum sem hampa því þraut-þvælda orði. T. d. virðist mjer, að Jón Jónsson (Að- ils) hafi lagt dálítið annan skiln- ing í það en ritstjórinn, sem leiddi rök að því, að það væru hestarnir okkar (en af þeim kemur „okkar ágæta íslenska hrosshár“) sem best hefðu viðhaldið íslensku þjóð- erni, eða greinarhöfundurinn sem nýlega benti á, að það væri lestur íslandssögunnar. En ef við lát- um það tákna blátt áfram kyn- stofninn, þá mun mega telja það nokkurnveginn áreiðanlegt, að hann hefði blandast meira en hann hefir gert nú í tíu aldir, ef við hefðum verið í nánari kynnum við aðrar þjóðir. Við skulum því kalla það sann- að, að það sje einangrunin, sem varðveitt hefir tungu okkar og þjóðerni. En er það nú alveg ugg- laust, að þessi varðveitsla hafi ver- ið okkur hrein og bein guðsbless- un? Jeg veit, að það hlýtur að vera ákaflega ljótt að efast um slíkt, og sá sem gerist sú fordæða að láta efann í Ijósi, ætti sjálfsagt að brennimerkjast sem óalandi og óferjandi föðurlandssvikari. Eigi að síður verð jeg að dirfast að gera þetta, því jeg efa mikillega. Hvert sem jeg lít í nálægum löndum, verða fyrir mjer þjóðir, sem tala annað mál en þær gerðu fyrir þúsund árum, en samt sem áður eru þessar þjóðir a. m. k. eins vel mentaðar og við; flestar miklu betur. Og er það þá svo voða glæp- samlegt, að mjer skuli detta í hug, með seðlana. pað sem á bak við þá stendur, gefur þeim verðmæti. Gangi það verðmæti úr sjer raun- verulega eða hlutfallslega, þá falla seðlarnir í verði eða missa jafnvel alveg gildi sitt. petta lögmál sýndi sig líka, þegar sjávarafruðirnar fjellu í verði. pær gáfu seðlunum gildi, og með verðfalli þeirra fjellu seðlarnir. I stað þess að brenna seðlana, voru þeir með lögum gerð- ir að gildum gjaldmiðli innanlands. pað var því líkt sem að gefa steina fyrir brauð. Enn má nefna kauphallarbrask, sem við ekkert verðmæti styðst, — aðeins alls óvissar gróðavonir. Ilvað þetta eitt getur mikil áhrif haft á gengið, sýnir 40% verðfall frankans eftir nýárið í vetur fyrir einbert brall. Hann steig að vísu fljótlega aftur, og það hærra en áður, en brallararnir sitja eftir með hundruð milljóna dollara tap. Síðast en ekki síst má nefna efna hag, hæfileika og mannkosti. Til- trúin á framleiðslumögúleika og mannkosti þjóðarinnar hefir ekki að ef til vill hefðum við getað hang- íð í tölu siðaðra þjóða, þó að víð hefðum talað sömu tungu og ein- hver þeirra gerir? Um þjóðernið er það að segja, að þegar jeg fer að svipast um til þess að finna hvað skeð hefir, þegar tveir eða fleiri þjóðflokkar blönduðu blóði, þá tekst mjer ekki að finna eitt ein- asta dæmi þess, að afkvæmið yrði fyrir þá sök afmán eða ættlerar. Hinsvegar rekst jeg á það víðsveg- ar um heim, að einmitt þær þjóð- irnar, sem mestum hæfileikum eru búnar og atgervi, eru af blönduð- um uppruna. pegar svo þar við bætist, að fræðimenn hafa marg- sinnis bent á það, að merkilega margir af afburðamönnum mann- kynsins hafa verið af blönduðu ætterni, er þá ekki von, að óbrot- inn alþýðumaður eins og jeg veik- ist í trúnni á þessa hreinræktunar- kenningu ættjarðarvinanna? Sannleikurinn er sá, að jeg skoða þetta margtuggna glamur í besta lagi sem fimbulfamb fávísra glanna. pegar menn með sæmilegri skynsemi láta sjer það um munn fara, get jeg ekki að því gert að dæma það ennþá harðara. Einangrun okkar á liðnum tím- um hefir óefað að sumu leyti ver- ið okkur til góðs, enda er fátt svo ilt, að einugi dugi, en þó ætla jeg það sannast, að alls og alls hafi hún verið okkur til meiri bölvun- ar en orðum verði mælt eða tölum talið. En jafnvel þó að við kynnum að hafa verið betur farnir á liðnum öldum fyrir það, að við vorum ein- óveruleg áhrif á gengið. Morgan lánaði 100 milljónir dollara til þess að stöðva gengi frankans, af því að hann trúði á frönsku þjóðina og treysti henni, eftir því sem hann hefir sjálfur sagt frá. pað er ekki allra skaði að krón- an er aðeins 50 aura virði og að sumu leyti ekki óheppilegt, meðan verið er að gera upp reikninga seðlaflóðs (inflations) tímabilsins. Setjum svo að þú hafir keypt jörð 1919 fyrir 10000 kr„ jörð sem áð- ur var og nú er ekki nema 5000 kr. virði. pegar afurðir búsins, sem jörðin ber og framfleytir, fjellu í verði, var þjer gert ómögulegt að borga andvirði hennar með 100 aura krónum,en nú borgar þú sann- virði með 50 aura krónum. Fram- leiðendur skaðast ekki á lágu gengi krónunnar, og það gerir ekki svo mikið til, hvar hún stendur, ef gengið er aðeins fast. Austurríska krónan var stöðvuð á lágmarki, og þar hefir reynslan sýnt, að það er ekki verðgildi krónunnar sem mest ríður á, heldur hitt, að gengið sje angraðir, þá er ekki þar með sann- að, að einangrun sje okkur hall- kvæm í framtíðinni. Matthías komst heppilega að orði þá eins og oftar, er hann sagði, að tíðin væri að hafa fataskifti. En þeir sem alt af horfa um öxl sjer, eiga ósköp erfitt með að átta sig á því, að tím- arnir sjeu að breytast, enda er það ofur skiljanlegt, því örlög þeirra sjálfra eru ávalt hin sömu og konu Lots. pað er lögmál náttúrunnar, en ekki sleggjudómur tilviljunar- innar, sem bæði hún og þeir verða að beygja sig fyrir. Breytingarnar í heiminum eru miklu hraðari og miklu víðtækari nú á síðustu tímum en þær hafa áður verið. Fjarlægðirnar virðast vera gersamlega að hverfa fyrir nýjum og stórkostlegum uppfundn- ingum, og samskifti þjóðanna, bæði andleg og líkamleg, aukast þarafleiðandi hröðum skrefum. pað þarf enga spádómsgáfu til þess að segja það fyrir með öruggri vissu, að áður en sú kynslóð er öll til grafar gengin, sem nú er uppi. verður hversdagslífið búið að taka svo gagngerðum breytingum, að engan óraði fyrir slíku þegar þeir voru í vöggu, sem nú eru komnir á fulltíða aldur. peir sem lengst ganga í því að segja fyrir um hin- ar miklu byltingar, sem í vændum sjeu, eru einmitt mennirnir, sem dýpst hafa skygnst inn í leyndar- dóma vísindanna og sem best þekkja það, hve nauðsynlegt það er að kunna staðhæfingum sínum hóf. pað er engin þörf á skörpum stöðugt. Gildi krónunnar hefir eng- in áhrif á verðlag útfluttra vara. Verðlag á heimsmarkaðinum er miðað við gull. Annari skoðun hef- ir þó verið haldið fram heima. pað var tekið til dæmis, að maður keypti 200 kr. virði í erlendum vörum og skyldi borga þær síðar með 100 kg. af kjöti, nú fjelli krón- an um 20%, og þá þyrfti 125 kg. af kjöti til þess að borga erlendu vöruna. þetta er ekki rjett, því að það var aðeins krónan en ekki kjöt- ið sem fjell. Ef vöruverð færi eftir gengi í hverju landi, þá ætti t. d. jafnstór og samskonar timburfarm ur að vera helmingi dýrari frá Sví- þjóð en frá Noregi. Svona hugsa ýmsir menn heima. En það nær engri átt. --o-- Athugasemd. í Lögrjettu 27. f. m. og 10. þ. m. hefir sjera Eiríkur Albertsson birt grein um „nýjan skóla“,*) er hann stofnaði á heimili sínu síðast- liðið haust. Grein þessa hefði jeg helst viljað leiða þegjandi hjá mjer, en jeg tel, að í henni sje að þarflausu og ranglega sveigt að þeirri stofnun, er jeg nú veiti for- stöðu, og þá auðvitað mjer per- sónulega, og því ætla jeg að biðja Lögrjettu fyrir þessar línur. Skeytum er raunar beint til fleiri slíkra stofnana og óbeint til allrar kennarastj ettar landsins, og er þá best að jeg svari einhverju af þeim um leið, úr því að jeg tók mjer penna í hönd. Öllum þeim, er eitthvað hafa fengist við unglingafræðslu, hlýtur að þykja vænt um hinn mikla áhuga sjera E. A. í uppeldismál- um. Hitt er þorra manna ekki alveg Ijóst, hví hann „varð að láta af“ forstöðu Ilvítárbakkaskólans, og eiga menn því enn erfiðara með að gera sjer grein fyrir nauðsyninni á stofnun nýs unglingaskóla stutta bæjarleið frá Hvítárbakka, með því að hann hafði þar óneitanlega fullkomlega óbundnar hendur til að kenna allar þær námsgreinar, sem voru „lifandi og fyrir lífið“. Greinin er annars lítið annað en *) Auðkendu orðin í þessari aths. eru tekin úr grein sjera E. A., en letur- breytingar eru mínar. G. A. S. skilningi á rás viðburðanna til þess að skilja það, að sá tími er nú þeg- ar liðinn, að nokkurri þjóð geti tekist að halda uppi einangrunar- pólitík. pað er hvorki fyrir Islend- inga nje aðra að hlaða um sig Kínverjamúr. pað getur meira að segja engin þjóð sjer að skaðlausu gert tilraun til þess. Nú er það ein- mitt lífsskilyrði fyrir hverja þjóð að vaka og fylgjast með í hinum miklu byltingum sem eru að ger- ast. Hvort sem það nú er af trölla- trú á þá vernd og blessun, sem ein- angrunin hafi veitt okkur á liðn- um tímum og skorti á hæfileika til þess að skilja, að það sem við átti endur fyrir löngu, getur verið alls- óhentugt í dag, eða þá af því að áhrif margra alda einangrunar sjeu okkur runnin svo í merg og bein, að við getum ekki undan því oki losnað, þá er það víst, að ein- angrunarpólitíkin er enn ofarlega á baugi á Islandi. Hún gægist al- staðar út, en hjer skal aðeins minst á eina mynd hennar, þ. e. ein- angrun í andlegum efnum. pað hefir fallið í okkar hlut að tala tungu þá, er engin önnur þjóð skilur, en af því leiðir það, að við erum mállausir gagnvart umheim- inum og jafnframt erum við eðli- lega að kalla má bókalausir. pað er langt frá öllum möguleika að jafn lítil þjóð sem Islendingar geti haldið uppi bókmentum til nauð- synlegrar fræðslu þjóðinni, svo að hún geti staðið mentuðum þjóðum á sporði. Til þess þyrftum við að

x

Lögrétta

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögrétta
https://timarit.is/publication/196

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.