Lögrétta

Tölublað

Lögrétta - 12.08.1924, Blaðsíða 2

Lögrétta - 12.08.1924, Blaðsíða 2
2 LÖGRJETTA Heilbrigðismál. Frh. ---------- Árið 1922 var endurskoðuð Reglugerð um læknanám í Stóra- Bretlandi, og henni breytt á þann veg að læknisfræðiskenslunni skyldi fremur en áður beitt að því að kenna læknanemum að af- stýra sjúkdómum og brýnt fyrir háskólakennurum að beina kenslunni sem mest í þessa átt. Læknirinn á ekki eingöngu að hafa lært að þekkja sjúkbóm- ana og lækna þá, heldur á hann að læra að sjá hinar dýpri rætur til sjúkdómanna, skýra þær fyrir sjúklingunum og vara þá við að stranda á sama skerinu aftur, ef bent verður á einhverja leið fram- hjá því. Læknirinn á ekki að láta sjer nægja að lækna einstakling- inn, heldur að leita uppi þau lög eða meginreglur, sem mannkynið þarf að fara eftir í lifnaðarháttum sínum til þess að forðast van- heilsu, að svo miklu leyti sem unt er. . . . „ . . Læknisvísindin eiga að vinna að því að mannkynið nái meiri þroska fyrir það að þurfa ekki að dragast með alla þessa sjúkdóma, sem nú þjá það. Á mörgum sviðum hefir það tek- ist að afstýra sjúkdómum eða draga úr þeim nú á síðustu ára- tugunum. Árið 1893 dóu t. d. á Englandi 6801 úr taugaveiki, eða 229 manns af hverri millión; 10 árum síðan, eða 1903, dóu þó ekki nema 3.347 eða ca. 120 af millión; 1913 dóu 41 af millión, og 1923 einir 12 af hverri millión. Með öðr- um orðum: taugaveikiner að hverfa hjer hjá oss (á Engl.). Neytsluvatnið er nú betra en áður*) var, vatnsleiðslur í stað brunna, fráræsla betri, sorphrein- un fer fram, fæðutegundir rann- sakaðar og höfð stöðug 'gát á þeim. Auk alls þessa hefir bólu- setning verið þó iiokkuð notuð gegn þessum sjúkdómi. . . Samskonar skýrslur eru um bólusótt, sem má heita horfin hjá því sem áður var. Mótstaðan gegn *) Hvað skyldi þessi lseknir segja um Húsavík hjer á landi? Jiar er taugaveiki ár eftir ár, en )>eir eru enn að vila það fyrir sjer, Húsavíkur- menn, hvort þeir eigi að leggja út í kostnað við vatnsleiðslu eða láta danka svona áfram nokkur ár enn! bólusetningu alltaf að rjena. Eitt- hvað kann að mega finna til for- áttu lögum vorum um bólusetn- ingu, en hinu verður þó ekki and- mælt, að þessi breyting til batnað- ar (lækkun á dánartölunni) er þeim að þakka . . . það má eiga það 'víst að ef bólusetning legðist nú niður, þá mundi bólan fara að herja á ný“. (Hún kemur frá Austurlöndum, er þar landlæg; þangað koma farmenn frá ýmsum þjóðum, sem lítt hirða um bólu- setningu, t. d. Rússar, Spánverjar, Balkanskagaþjóðir o. fl.). „þriðja dæmið er um b e r k 1 a- v e i k i n a“. Um miðja 19. öldina dóu úr lungnaberklum ljðugar 3 þúsundir af hverri millión, en árið 1921 er dauðratalan af lungna- berklum komin niður í 854 af millión. Betri mjólk, betri húsakynni, betri með- ferðásjúklingum, hráka- v a r ú ð, betri lifnaðar- hættir yfirleit t“. þá er minst á ungbarnadauða. „I lok 19. aldar dóu 150 ungbörn af hverjum 1000, (sumstaðar, í íðnhjeruðum uppundir 300 af 1000) en árið 1922 er dauðratal- an komin niður í 77 af þús. þetta er mörgu að þakka: betri meðferð á ungbömum alment, mæður farnar að læra ungbarna meðferð og frek- ar farnar að hafa þau á brjósti tn áður tíðkaðist. . . Alt er þetta að þakka læknisfræðinni, fram- förum í henni á flestum sviðum“. Margir aðrir sjúkdómar eru þó enn ótaldir. Er nú ekki hægt að afstýra þeim eða draga úr þeim? Jú, vissulega. Læknar eiga að læra meira í heilsufræði, og einkanlega meira um varnir gegn sjúkdóm- um, og þeir eiga að benda fólkinu á allar þær umbætur í lifnaðar- háttum sem gætu dregið úr sjúk- dómunum". . . . Saterus-skólinn gaf út heilsu- reglur á 12. öld. „Nú ber að auka þessar reglur breyta þeim og bæta við þær eft- ir nýjustu þekkingu í heilsufræð- inni“. . . . „I fæðingar-vísindum ætti að leggja aðaláhersluna á að af- s t ý r a af fremsta megni öllu því sem háska getur valdið fyrir móð- ur og barn þegar fæðingu ber að höndum, — rannsaka konur um meðgöngutímann, afstýra barns- fararsótt, afstýra meðfæddum fransós, augnveiki nýfæddra (af Lesbók Lögrjettu VI. Hngsjónir. Erindi flutt á prestastefnu 27. júni 1924 af Halldóri Jónssyni sóknarpresti að Reynivöllum. Mjer finst jeg ekki þurfi að biðja afsökunar á því, þó jeg minn- ist hjer á sama málefni og í fyrra, af því að jeg er jafn sannfærður og þá og eigi síður um nauðsyn þess fyrir lífsglæðing kirkju og kristnilífs þessa lands, sem og glæðing hverskonar fagurra hug- sjóna yfirleitt. það er safnaðarsöngurinn. Hinu verð jeg að biðja afsök- unar á, að jeg tel mjer nauðsyn- legt að endurtaka sumt af því, sem jeg sagði í fyrra, en verð þá að treysta á þolinmæði yðar um leið og jeg fylgi reglunni um, að aldrei sje góð vísa of oft kveðin. Einnig verð jeg að biðja afsök- unar á því, að sjálfan mig verð jeg að nefna í þessu sambandi, eða það starf, sem jeg er að ieyna að vinna heima hjá mjer máli þessu til liðs. það er skiljanlegt, að Prestur í fámennu sveitapresta- kalli getur ekki komið neinum stór- virkjum til vegar, einn út af fyrir sig, en ef allur þorri presta tæki upp svipaðan sið, mundi málinu borgið. — Kem jeg siðar að því atriði. Mjer er skiljanlega ekki nema lítið kunnugt um það, hvort orð mín í fyrra hafa haft áhrif, það er á þann hátt, að prestar landsins hafi farið að sinna safnaðarsöngn- um með verklegri hluttöku og starfi í þá átt. En jeg hefi orðið þess var, að sumum prestum og ýmsu fólki meðal leikmanna þótti vænt um, að jeg hreyfði þessu máli. — Öllum, sem hafa talað hlý- lega um þetta mál, öllum sem í orði eða verki hafa lagt því lið, leyfi jeg mjer að flytja alúðar þakkir. Jeg veit, að hverjum presti, sem reynir þetta og vinnur fyrir þetta mál, verður það blessunar- ríkt og ánægjulegt í starfi þeirra og enginn mun sjá eftir því, þótt hann verði mikið að hafa fyrir. öllum yðar er kunnugt um, að undanfarið hefir verið einkar tíð- rætt um ýmisleg vandræði í við- skiftalífinu meðal vor, um skuldir ríkissjóðs og skuldir stofnana og einstaklinga bæði við útlönd og innbyrðis, svo að til vandræða hef- ir þótt horfa. Jafnframt hefir þótt kenna margvíslegra ókosta 1 almenningslífinu: skemtanafíkn- ar, hirðuleysis, eyðslusemi meir en góðu hófi gegnir, ólöghlýðni og óorðheldni, sundrungar og stjetta- rígs. Sumir segja, að bágt sje að vita, hverjum megi treysta, en hinsvegar kenni um of undan- færslu undan rjettmætum skyld- um, en tilhneiginga um of til þess að velta sem mest byrðum yfir á aðra. lekanda uppruna), auka þekkingu cg kunnáttu í meðferð ungbarna, með kenslu í skólum, á námsskeiðum og með öllu móti sem við verður komið“. . . „Læknirinn á að gera sjer ijóst: hversvegna hefir þessi og þessi sjúklingur orðið að fara í sjúkra- hús ? Hvað hefir komið fyrir hann, í lifnaðarháttum hans, — (vinnu, oftökum eða hverju öðru?) Hvernig atvikaðist það að hann varð svona veikur? Ekki er alt tilviljun eða forlög. Leitið og þjer munuð finn a“. . . Læknirinn á að vera v í ð s ý n n. Fátækt, iðnaðar- vinna, ýmislegur óvandi (óhóf eða þessháttar) aðbúnaður, húsa- kynni, matartekja, smitvegir, — alt þetta þarf að athugast engu síður en sjálf lækningin, hvort sem hún verður með notkun lyfja eða með bólusetningu, blóðvatns- lækning eða lækning með líffæra- efnum (thyreridin, pituitim) eða sólskini, sjóböðum eða öðrum böðum, rafmagni, radium, nuddi, huglækningum eða hverju öðru sem við kann að eiga í hvert skifti“. „Að sjálfsögðu á læknirinn að reyna að lækna sjúklinginn, ef hann mögulega getur, en hinu má hann heldur ekki gleyma, að hann má ekki sleppa hendi af neinum sjúkling fyrr en hann er búinn að koma honum í skilning um eðli sjúkdómsins, sem að honum gekk, cg hvernig sá sjúkdómur náði tökum á honum, og þá verður hann eins að muna hitt, að benda hon- um á hver leið sje til þess að verj- ast þessum sjúkdómi framvegis. það skal fúslega játað að öll- um þessum spumingum er vand- svarað svo vel sje; læknirinn þarf því að vera víðsýnn, eins og jeg sagði áður, og vel að sjer á sem flestum sviðum, en leysi hann úr öllum þessum flóknu spurningum svo að fullu gagni komi, má í sannleika telja hann postula hinn- ar nýju stefnu læknisfræðinnar, þeirrar, að reyna að afstýra sjúkdómum. Hlutverkið það er erfitt, en huggun má það vera hverjum sönnum lækni að vera þess minn- ugur, að hann er að vinna i‘. ð því háleita markiað lengja mannslífið, — gera það fyllra, betra, afkastameira, því að þetta er það mark sem öll læknisví sindi eiga að stefna að. Framh. Gamall læknir. ----o----- Æðey, í fegurðarlendu og friðsælu stöð mig farkostur loksins ber til eyjar sem mig hefur ávalt dreymt og æðurin helgar sjer. Nú kem jeg til þín á fagnafund og færi þjer hjarta mitt, er úar bliki sín ástarljóð um áttliaga veldi sitt. En skrúða tignina best hann ber er blasir við hreiður gjörð og lognalda vaggar sjálfri sjer í svefnró um stafaðan fjörð. Er eggtíðin birtist og umhyggja vex og alúð við hækkandi sól, er Æðey gersemi allra mest og unaðar höfuðból. Hjá arðsælu metfje að eiga dvöl er árbót og lypting sönn. Ef elli getur ei yngt sig hjer er innræti komið í fönn. Er sigldi jeg frá þjer um sólariagsbil og sá yfir rikdóm þinn, þá fann jeg hvernig þitt aðdráttarafl fór eldi um huga minn. Á Æðey sjást ekki ellimörk, hún yngist í rauri og sjón. Með eftirsjá lít jeg um öxl til þín er andi minn kveður Frón. Guðmundur Friðjónsson. Athugas. Kvæði þetta um Æ ð e y, sem hjer að ofan er prentað, er eftir skáldið Guðmund á Sandi. Kom hann snöggvast til Æðeyjar i fyrravor og litaðist um í eynni, er hún var í blóma sínum. En eftir að hann kom heim til sín, sendi hann Æðeyjar fjöl- skyldunni kvæðið. Kvæðið birtist hjer án leyfis höf- undar. Ásgeir Guðmundsson í Æðey sendi 1 vor kuúningja sínum hjer í bænum kvæðið, og hefir sá beðið ,.Lögrjettu“ um að flytja það, og von- ar, að bæði Ásgeir og höfundur kvæð- isins misvirði það ekki. Sendir hann báðum, Guðmundi og Ásgeiri, kveðju guðs og sína. ----o----- Ferð um Snæfells- og Hnappadalssýslur. Jeg fór frá Reykjavík 27. maí i Borgames, áleiðis vestur að Haf- fjarðará, til að byggja þar laxa- klakhús fyrir Thor Jensen fram- kvæmdarstj., eins og jeg hafði lof- að. þá var svo að undirbúning vantaði og ekki hægt að byrja fyr en þ. 30. og var byggingunni lokið 2. júní. það er það vandaðasta hús sem jeg hefi bygt, að öllu leyti, og á að taka nálægt 300 þúsund laxahrogn, og var það með 7 glugg- um, og alt svo vandað sem jeg hafði þekkingu til, því jeg var beð- inn að hafa það svo. En á þriðjudaginn kom síra Kjartan á Staðastað til mín að Rauðamel, og bað mig að koma til sín og byggja klakhús, svo nú fór jeg með honum vestur að Staða- stað. Á leiðinni sá jeg margt, og það mikið fallegt, bæði landið og ár, og þó einkum landslagið, og vegir ágætir. Til dæmis er þar sljettur ölduhryggur, sem gengur frá austri til vesturs, eftir endilöng- um sveitum þar, og á leiðinni vest- ur að Staðastað sá jeg 3 fremur litlar ár, en þó nógu stórar til þess að lax- og sjóbirtingur geti gengið upp eftir þeim, enda hafði verið þar veiði áður, en er nú lítil. Ekki sá jeg vötn fyr en jeg kom vestur að Staðastað, og er þar eitt það fallegasta pláss, sem jeg hefi far- ið um, það er að segja vesturhlut- inn af Staðarsveit. þar kennir flestra gæða, sem hægt er að sjá á þessum tíma árs. þar eru mörg vötn, sem silungur getur þrifist í, og það nokkuð stór, og eru æðar- varpshólmar í sumum og mættu vera í þeim flestum, enda er æðar- varp talsvert á Staðastað. Jeg bygði þar klakhús og var þar ekki gott hússtæði, oflítið frárensli, en presturinn vildi endilega láta það komast upp; hann er áhugamikill við búskapinn. Og þegar jeg var að enda við það hús, kom Jón Stefánsson frá Vatnshorni til að sækja mig, til að byggja silungs klakhús hjá sjer, og fór jeg þang- að. þetta er vestur undir Snæfells- jökli. þar ljómandi fallegt pláss, og má heita að þar geti verið mikil lífsþægindi. Sjórinn er stutt frá, og á Vatnshorni eru 2 silungsvötn stór rjett við bæinn og er nú mjög lítill silungur í þeim. Vildi því sem sumum kynni að virðast hjálpin felast í, verða að oflítilli hjálp af eðlilegum ástæðum. Ýms bönn og óendanleg höft hafa eðlilega of litla þýðingu, ef fólkið fer í kring um þau og finst einatt það vera til þess neytt. Svo er annað, að þegar ýmsum höftum er ljett af, sækir í sama horfið og ef til vill í verra horf en áður, meðan þeirri meginorsök er ekki breytt, sem veldur þessu öllu. En hver er þrándurinn í Götu, sá erfiðasti og viðsjárverðasti þránd- urinn í Götu ? það er auðvitað hugsunarhátt- urinn. Og gæti nú skynbærum mönnum í alvöru komið til hugar, að stjórn eða löggjafarþing ráði við hann? Jeg held vissulega ekki. En hvað er það þá í hugsun- arhættinum sem að er? það er án alls efa of lítil rækt við kristin- dóminn sjálfan og hugsjónir Krists. það er þungamiðja kristin- dómsins sjálfs, kærleikurinn, sem er og sljófur. það er ábyrgðartil- finning kristindómsins, sem vant- ar um of. þessvegna er hæginda- hugurinn. þessvegna er tilhneig ingin til þess að varpa byrðum yf- ir á aðra, þessvegna er kæruleysið, óorðheldnin í viðskiftunum og margt og margt, sem að er. þess- vegna er það auðsætt, að hjálpin verður að koma a ð n e ð a n, frá fólkinu sjálfu, frá öllum almenn- ingi. Vaxi kærleikshugurinn, lifni og glæðist ræktin við kristindóm Um þetta er mikið rætt og rit- að og hver maður veit, að þetta er helsti satt. Og við vitum það, að til þess að rjetta við fjárhag ríkisins hefir orðið meðal annars að taka til ýmissa örþrifaráða, en það kalla jeg, þegar draga verður hið ýtr- asta úr almennum, gagnlegum framkvæmdum og sjálfsagt dugir ekki til. — Fólkið hefir þyrpst saman í bæina, sjerstaklega hing- að til Reykjavíkur og svo eru kröf- urnar um kauphækkun og vinnu- leysi á hina hlið. Atvinnuvegirnir standa höllum fæti og enginn veit, hvernig eða hvenær verður komist úr þessari kreppu, sem orðin er til fyrir rás margra viðburða. Sem stendur lítur helst ekki út fyrir annað en kyrstöðu, en kyr- staða á þeirri braut, sem á að vera þróun, er í raun og veru sama sem afturför. Hverju þetta sje að kenna, gæti enginn, þó hann vissi, sagt í fáum orðum. Til þess eru margar og miklar ástæður. S u m a r or- sakir er s t r í ð i ð með öllum þess afleiðingum. Aðrar liggja í eðlilegri þróun, að vissu leyti í meiri menningu, en menn- ingin er, eins og við vitum, tví- eggjað sverð og er nauðsyn, sem ekki yrði hjá komist, eins og við vitum. Stríðinu getum vjer ekki breytt,^ það er liðið sjálft, þó það enn haldi áfram í vissum skilningi víðs- vegar. Framþróunin verður ekki heft og það er heldur ekki æski- legt. En þá er að minnast þess, að hinar mörgu samverkandi orsakir hafa gert eitt að verkum og þar í felst þungamiðja vandræðanna, sem við er að stríða og yfir vofa. Og það sem þær hafa gert að verk- um er það, að þær hafa sýkt hugs- unarháttinn meðal almennings, af- vegaleitt hann. þó að skuldafjötr- arnir sjeu af ýmsum, eðlilegum og jafnvel sjálfsögðum orsökum að nokkru leyti, þá hefir sljófur hugsunarháttur skapað þá, með- vitundarleysi eða sofandi meðvit- und um sinn vitjunartíma, ábyrgð- arleysi almennings og leiðandi manna í meðvitundinni um köllun sína. það er hann, eigi síst. sem þarf að laga og efalaust umfram alt hann, þá lagast alt annað af sjálfu sjer. Ýmsir byggja, sem von er til, vonir sínar á þingi og stjórn og allskonar ráð reynir þingið að koma með til bóta. Margt hefir því verið fundið til foráttu, mörg- um hefir þótt um of kenna eyðslu- semi og fyrirhyggju-leysis um framtíð landsins. En má ekki þing- ið til að vera eins og þjóðin sjálf ? Má það ekki til að vera líkum kost- um gætt og hún sjálf og hafa svip- aða ókosti? Reyndin verður þó sú, að engin stjórn ræður út af fyrir sig við ástandið. Ekkert löggjafarþing ræður heldur við það, sem heldur ekki er von. Ýmsar ráðstafanir,

x

Lögrétta

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögrétta
https://timarit.is/publication/196

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.