Lögrétta - 02.09.1924, Blaðsíða 4
4
LÖGRJBTTA
STRANDWOLD & DÚASON
SÍMNEFNI: DÚASON. ADMIRALGADE 21.
KÖBENHAVN K.
Selja í umboðssölu allar ísleuskar afurðir
fyrir hæsta yerð. Útyega allar erlendar vörur.
ast til að láta þessa kenslu fara
fram, en hafa þó fyrirskipanir frá
kenslumálaráðuneytinu um, hvern-
ig kenslunni skuli hagað að mestu
leyti. þó getur skólanefnd breytt
eitthvað til um kenslu-reglugerð-
ina eftir því, hvemig hagar til á
hverjum stað. Segja Englending-
ar sjálfir, að kensla þessi hafi und-
anfarin ár (10—15) farið fram í
öllum stærri borgum þeirra og all-
víða út um landið til sveita, og
svipað mun hafa átt sjer stað á
þýskalandi.
Set jeg nú hjer sýnishom af
kenslufyrirkomulagi í þessum lönd-
um í heilbrigðis- og hjúkmnar-
fræðum, eins og það var fyrir
ófriðinn mikla.
Gamall læknir.
Sambandsfundur
norrænna Kyenrjettindaflelaga
3.-6. jání 1924 i Helsingfors.
Eftir
frú Bríetu Bjarnhjeðinsdóttur.
það var með óþreyju og eftir-
væntingu, sem við norrænu fund-
arkonurnar, sem tókum okkur far
frá Stockhólmi með „Birgir Jarl“
til Helsingfors, litum loksins tak-
mark ferðarinnar — höfuðborg
hins frjálsa finska þjóðveldis, kl.
5 síðdegis á mánudaginn 2. júní.
Við höfðum vænst að koma dálítið
fyrri, því strax kl. 8 um kvöldið
áttum við að mæta á nokkurskon-
ar fagnaðarsamkomu. En þeg-
ar skipið rendi loks inn á höfnina,
eftir 22 tíma ferð, þá var öll óþolin-
mæði á enda.
Á hafnarbakkanum var fult af
fólki, og hátíðablær yfir öllu.Mátti
þar sjá’ móttökunefndina með ein-
kenni þeirrar virðulegu og erfiðu
stöðu, og húsfreyjur borgarinnar,
sem ætluðu að hýsa okkur, með
brosandi, gestrisin andlit. Var þar
veifað húfum og klútum á móti
okkur til heilsunar. þekti jeg
þar þegar fremsta í flokki fröken
Annie Furuhjelm, mína góðu kunn-
ingjakonu frá fyrri fundum. Hef-
ur hún nú í mörg ár verið mikils-
virtur ríkisþingsfulltrúi sænska
flokksins þar. Hún var nú formað-
ur í Kongressnefndinni, og hjelt
öllum þeim þráðum svo fast og vel
saman, að alt gekk eins og eftir
„snúru“.
þegar við farþegamir á Birgi
jarli höfðum svo afhent eða sýnt
öll nauðsynleg skilríki, var okkur
leyfð landgangan, og tóku þá okk-
ar tilvonandi húsmæður, eða þeirra
útsendarar á móti okkur. Bílarnlr
stóðu reiðubúnir að flytja okkur
hvort sem vera skyldi. En fyrst
var þó að sýna passann, sem lög
gera ráð fyrir. En nú varð að hafa
hraðann á, því kl. 8 skyldum við
allar mætast aftur með vertum
okkar til kvöldverðar. það sem
mjer aðallega hafði orðið starsýnt
á á skipinu, var það, að flestallir
fulltrúarnir voru rosknar konur.
Jeg sagði við eina þeirra, sem jeg
var kunnug, að þetta yrði víst
Kongress gömlu kvennanna. Mjer
sýndist við allar svo gamlar. Og
þegar jeg sem aðrir tók til máls
um kvöldið, til að þakka fyrir boð-
ið, þá hafði jeg orð á þessu og
sneri orðum mínum til ungu kvenn-
anna. — En bæði þá um kvöldið,
og síðar á öllum fundunum kom
einmitt þessi kvörtun fram hjá
flestöllum ræðukonunum: Alstaðar
væri afturkastið að gera vart við
sig. I staðinn fyrir frjálslynda,
víðsýna og áhugamikla framfara-
stefnu, þá væri unga fólkið nú svo
kærulítið, áhugalaust og íhalds-
samt. Ungu stúlkumar fyndu ekki
annað en að vel búna matborðið, er
þær nú settust að, með öllum þeim
rjettindum og gæðum, sem hug-
sjónakonumar gömlu hefði aðeins
dreymt um, væri svo sjálfsagður
hlutur, sem ekki þyrfti einu sinni
a ð hugsa um hvemig hefði feng-
ist, eða hvaða stríð og erfiði hefði
kostað.
5. þ. m. er fimtugsafmæli Guð-
mundar heitins Guðmundssonar
skálds. Hann var fæddur í Helli á
Landi í Rangárvallasýslu 5. sept.
1874, en andaðist í Reykj avík 19.
marts Í919.
Til minningar um fimtugsaf-
mæli hans kemur út safn af ljóða-
þýðingum, sem hann ljet eftir sig
og ekki höfðu verið í kvæðasöfn-
um hans, enda mun hann mest
hafa unnið að þessu þýðingasafni
á síðustu missirum æfi sinnar og
hugsað sjer að þær kæmu út i
sjerstöku safni. Verður þetta ekki
stór bók, en falleg og vönduð að
öllum frágangi og hin eigulegasta
öllum þeim, sem fögrum kveðskap
unna. Dr. Alexander Jóhannesson
skrifar formála fyrir bókinni.
Alt, sem inn kemur fyrir sölu
bókarinnar, er ætlað ekkju Guð-
mundar heitins og börnum þeirra,
en útgefendur eru ýmsir vinir
skáldsins.
Guðmundur heitinn Guðmunds-
son er eitt af bestu og vinsælustu
ljóðskáldum þessa lands, og ætti
ekki að líða á löngu áður út kæmi
heildarsafn af kveðskap hans.
---------------o---
Hermann Jónasson
frá ÞiDgeyrum.
Falla trjein fornu
fyrir haustnæðingum,
þó að helming hærri
hafi flestum verið.
þrýstir fjöður feigðar
fast að merkum stofni,
þegar nóttin þrumir
þungu regni búin.
Glaður gekstu móti
glamri stáls og jáma,
þess er hörðum höndum
heggur sverði og leggur;
söng í styrjarstáli
stóðstu þó ókviðinn,
því að löngu lífið
leitstu hinumegin.
Sá jeg fylking fríða
fara að þínum beði,
klædda skirnar skrúða,
skreytta ljósi og perlum.
Ómar liðinna alda
undir tóku í fjarska,
þegar þjóðmæringar
þuldu bænir og sálma.
þar var kominn Kári,
Ketill úr Mörk og fleiri;
Höskuldur og Helgi,
Hjeðinn, Njáll og Grímur;
buðu vini og bróður
bestu fylgdar njóta.
Lögðu líknar blessun
ljúfa of öðling háran.
Allir þeir, sem þektu
þig, og best er vissi
hvað þú áttir inni
inst í sálar ranni,
aldrei gleyma göfgum
gleði- og fræða-manni,
þó að lík hans liggi
lágt í moldar fjötrum.
Hafðu heilar þakkir
hugljúf fyrir störfin.
þarfur varstu þinni
þjóð, og vanst til bóta.
Aldrei fellur orðstír,
aldir þó að renni,
þess, er setur Saga
sjer við hjartarætur.
Ásmundur Jónsson
-----0-----
Hvergi hræddur. þegar jeg las í
Lögrjettu „Trúarjátningu hins
bersynduga“ eftir Jón S. Berg-
mann, skildist mjer að hann ætti
þar við sjálfan sig. Tók jeg hrif-
inn ofan og hrópaði: „Mikill kappi
er bróðir Bergmann!“ þessi trú-
arjátning er bergmál af - hinum
frægu orðum kappanns í rímunni:
„Hvergi hræddur hjörs í þrá, hlíf-
um klæddur mínum“. þökk fyrir
hughreystinguna.
Annar bersyndugur.
Sjálfstjórnarflokkur Færeyinga
hefur samkv. símskeyti frá þórs-
höfn, sem birt er í Politiken 12.
ág., samþykt eftirfarandi stefnu-
skrá:
þar sem Færeyingar eru sjer-
stök þjóð, hafa þeir rjett til að
ráða yfir Færeyjum og skal flokk-
urinn vinna að sjálfstjórn lands-
ins. — Engin lög skulu ná gildi t
Færeyjum fyr en þau hafa í heild
náð samþykki lögþingsins. — Hin
gömlu landsrjettindi Færeyinga
skulu verndast og rjettindi þau,
sem tapast hafa, skulu vinnast á
ný. — Frelsi skal fást til þess að
rita hið færeyska tungumál við öll
tækifæri. Skólafyrirkomulagið skal
endurbætast og færeyska verða
kenslumálið. — Kosningarrjett til
lögþings og í sveitastjómarmálum
skulu allir fá, sem náð hafa 21 árs
aldri. — Lögþingið skal fá aukin
fjárráð. — Færeyskar bruna-
tryggingar og slysatryggingar
skulu stofnaðar. — Fiskveiðalög-
gjöfinni skal breytt í það horf, að
hún eigi betur við í Færeyjum. —
Lögþingið skal ráða, hvernig skip-
að sje fyrir um hvalaveiðar. —
Samgöngur skulu bættar. — Vinna
skal að framförum færeyskra at-
vinnuvega, fiskveiða landbúnaðar,
verslunar, farmensku o. s. frv.
----------------o----
Knud Rasmussen. Framkvæmda-
nefnd 5. Thule-leiðangursins hef-
ur fengið símskeyti frá Knud Ras-
mussen, sem nýlega er kominn til
Kotzebue, fyrir norðan Nome í Al-
aska. Hefur leiðangursmönnum
orðið allvel ágengt og hafa þeir
komist að fullri raun um, að sam-
band er milli Grænlands-Eskimóa
og þeirra Eskimóa sem búa í miðj-
um norðuröræfum Ameríku og
vestar. Miklu hafa þeir leiðang-
ursmenn safnað af ýmsu tæi,
gömlum þjóðtrúarsögum og kenn-
ingum um trúarbrögð Eskimóa;
auk þess vopnum, áhöldum og
klæðnaði. Knud Rasmussen segir,
að það sje engum erfiðleikum
bundið fyrir þá, sem búa á svæð-
inu milli norður-segulpólsins og
Beringssunds, að skilja Eskimóa-
mál það, sem notað er í Grænlandi,
og að við uppgröft gamalla hauga
þar vestur hafi fundist sömu vopn
og áhöld, sem nú eru notuð í Græn-
landi. Rasmussen býst við að koma
til Danmerkur aftur í nóvember-
mánuði næstkomandi og ætlar
hann að leggja leið sína yfir
Seattle. Kbh. 28. ág. FB.
----o----
Skoðanafrelsi. í síðasta tbl.
dæmdi Lögrjetta í þrætumáli milli
Morgunbl. og Alþ.bl. um skoðana-
frelsi. Málið var miklu betur flutt
frá hálfu Alþ.bl.. En þótt málfærsl-
an væri öll í ljelegasta lagi hjá Mbl.
þá var ósigurinn í þessu máli ekki
beinlínis því að kenna, heldur vond-
um málstað, sem blaðinu hafði ver-
ið fenginn til flutnings af óvitr-
um mönnum. Mrg.bl. skildi frá
upphafi mál þetta ekki betur en
svo, að það hugsaði sjer að koma
fram sem verjandi hins ríkjandi
þjóðskipulags með grein, sem var
árás á einn af hymingarsteinum
þess.
þessi vísa átti að koma í Mrg.-
bl0 nú nýlega, en hefur líklega
str^ndað þar hjá Fenger:
Heyri guð: nú gefum vjer
gyðingdóminn Satan,
fyrst að ekkert framar er
fáanlegt hjá Nathan.
Smásöluverð. Samkv. Hagtíðind-
unum hefur smásöluverð í Rvík
hækkað um 5 af hundraði á síðastl.
ársfjórðung, en um 14 af hundraði
á síðastl. ári öllu. Yerðlag er talið
hafa verið hæst 1920, um haustið,
og er nú 31 af hundr. lægra en þá,
en aftur á móti um 216 af hundr.
hærra en það var fyrir 10 árum.
íslensk síldarverksmiðja. Síðast-
liðið vor skrifaði Óskar Halldórs-
son útgerðarmaður ítarlega hjer í
blaðinu um nauðsynina á því, að
komið yrði upp innlendum síldar-
vinsluverksmiðjum. Nú nýlega hef-
ur fjelag myndast hjer til þess að
koma þessu í framkvæmd og eru
það margir af eigendum togara-
fjelaganna, sem tekið hafa málið
að sjer, en í stjórn fjelagsins eru
framkvæmdastjórarnir Jón Ólafs-
son, Magnús Th. Blöndaihl og Páll
Ólafsson. Hefur verið keypt síld-
arstöð sú, sem Elías heitinn Stef-
ánsson átti á Reykjarfirði, og ráð-
gert að reisa þar fullkomna síldar-
vinsluverksmið j u.
Upp til f jalla. þeir Niels Nielsen
kennari, danskur náttúrufræðing-
ur, sem áður hefur verið hjer á
ferð, Pálmi Hannesson náttúru-
fræðingur og Sigurður Thoroddsen
stud. polyt., fóru í sumar rann-
sóknarferð til Hofsjökuls, Kerl-
ingarfjalla og Langjökuls. þeir
hafa rannsakað þar jarðmyndanir,
jurtagróður og dýralíf, og gert
landmælingar, því eldri landsupp-
drætti segja þeir ónákvæma á þeim
slóðum. þeir fóru hjeðan 25. júlí,
eru nýlega komnir aftur og nú
famir hjeðan áleiðis til Khafnar.
--------------o----
íslensk mannvirki.
Nýlega hafa komið út skýrslur
um opinber mannvirki hjer á landi
síðastliðið ár og verður sagt hjer
írá helstu atriðunum úr þeim,
n.önnum til fróðleiks, en nánar má
lesa um það í Tímar. V. F. 1.
Úr ríkissjóði var á árinu greitt:
t:l \egagerða kr. 355300 og til
brúagerða kr. 169100. Af veg’.in
voru þessir lagðir helstir: Stykkis-
hólmsvegur, Langadalsvegur í
Ilúnavatnssýslu, þelamerkurvegur
(c. 20 kílómetra inn Oxnadal)
Biskupstungnabraut (fullgerð að
Torfastöðum) Hvammstangabraut
(hjer um bil komin út á þjóðveginn
sunnan við Hvammstanga) og
Skagafjarðarbraut (hjer um bil
fullgerð frá Sauðárkróki að Gróf-
argilsá). pá var einnig unnið að
endurbyggingu sunnanlandsbrauta
og að sýsluvegum, einkum í Gull-
bringu- Mýra og Borgarfj- Húna-
vatns- og Eyjafjárðarsýslum. —
Nýir akvegir, sem lagðir hafa ver-
ið eru um 11 km. af þjóðvegum,
sem kostuðu c. 37 þús. kr., 8 km.
flutningabrautir, sem kostuðu c.49
þús. kr. og 25 km. sýsluvegir, sem
kostuðu c. 100 þús. kr. Af því hafa
hlutaðeigandi sýslufjelög greitt
um 60 þús. kr.
Helstu brýmar sem bygðar hafa
verið eru yfir Eyjafjarðará, Núpá
á Stykkishólmsvegi, Hrófá í Stein-
grímsfirði, Jökulsá í Skagafirði.
Af þessum brúm er Eyjafjarðar-
árbrúin langstærst. Er hún nær full
gerð, 191 m. að lengd, í þrennu
lagi, gerð úr járnbentri steypu og
hvílir á 56 járnbentum steypu-
staurum sem reknir eru 4—6 m.
niður í botninn, 4 í röð. Brúin sjálf
hefur kostað 110 þús. kr.
Af símum var lögð ný stauraröð
113,5 km. að lengd og 5 km. sæ1
sími að auki. Nýr þráður var
strengdur samtals 194,5 km. 15
nýjar síma- og eftirlitsstöðvar
voru opnaðar á árinu.
Af hafnarvirkjum var unnið að
viðgerð brimgarðsins í Bolungar-
vík og kostaði það um 20 þús. kr.
Á Siglufirði var einnig endurreist-
ur sjóvarnargarðurinn og kostaði
það 65 þús. kr. og er greitt til
helminga af ríkissjóði og bæjar-
sjóði Siglufjarðar.
Kaffisopinn inndæll er,
eykur fjör og skapið kætir;
langbest jaí'nan líkar injer
Ludvig David’s kaffibætir.
Að Flóaáveitunni var unnið
áfram, vjelgrafið af aðalfærslu-
skurðinum 1560 lengdarmetrar.
Af öðrum, handgröfnum, skurðum
voru grafnir 74 km. og fóru til
þess 16400 10 stunda dagsverk og
unnið í samningsvinnu. Kostnaður
við verkið á árinu var 240 þús. kr.,
en alls er hann orðinn 490 þús. kr.
frá upphafi. Jafnframt hafa jarð-
eigendur látið gera allmikið af
flóðgörðum á áveitujörðunum. pá
hefur einnig verið unnið að fyrir-
hleðslum í pverá og Markarfljóti
og er það kostað að þremur fjórð-
ungum af ríkissjóði og að fjórð-
ungi af sýslusjóði Rangvellinga,
eða þannig að hann ábyrgist
greiðsluna, en upphæðinni má
jafna niður á jarðirnar sem bjarg-
ast undan vatnságanginum. Vorið
1922 var hlaðið í Fróðholtsós, sem
rann á Vestur-Landeyjar og s. 1.
vor var byrjað á Djúpósi, sem er
um 300 m. á breidd, og Valalæk og
var lokið að teppa í báða ósana í
sláttarbyrjun. Kostaði þetta um
100 þús. kr.
-----o----
Varðskipið J»ór tók nýlega norskt
síldveiðaskip, Havellen, við land-
helgisveiðar og var það sektað á
Húsavík um 1500 kr., en afli og
veiðarfæri upptækt.
Bannlagabrot. Áfengi fanst hjer
nýlega á Islandi í tveimur 50 lítra
kútum og tveimur 15 lítra brúsum.
Áiti Færeyingur einn kútana, en
hásetinn einn brúsana. Var Færey-
ingurinn sektaður um 300 krónur,
en hinn um 250 kr. og áfengið gert
upptækt.
Sauðfjárbaðanir. Atvinnumála-
ráðuneytið hefur nýlega gefið út
auglýsingu um baðanir og segir
þar m. a. að til þrifabaðana á sauð-
fje má eínungis nota kreólín, sem
verksmiðjan „Hreinn“ býr til, með
eftirliti dýralæknisins í Reykjavík,
og Landsverslun Islands hefur
einkasölu á. Kreólín þetta skal til
lögskipaðra þrifabaðana blandað
með vatni í hlutfallinu 1 á móti 50.
Baðlögur búinn til úr 2 lítrum af
kreólíni og 100 lítrum af vatni- á
að nægja til að baða úr 30 kindur
í ullu. Best er að leysa kreólínið í
heitu vatni og bæta síðan við svo
miklu af köldu vatni að hlutfallið
náist og baðlögurinn verði um
30o c.
Mjólkurverð í Rvík hefur hækk-
að um 10 aura potturinn, kostar
nú 75 aura pottur af gerilsneyddri
mjólk, en 65 aura af annari.
Jón Magnússon forsætisráðherra
hefur um tíma að undanförnu ver-
ið austur á þingvöllum.
Snorri goði heitir nýr togari,
sem Kveldúlfsfjelagið hefur keypt,
smíðaður í Noregi, stórt og vand-
að skip og útbúnaður að sumu
leyti annar en áður hefur tíðkast.
Nýtt ættarnafn. Stanley Guð-
mundsson prestur á Barði í Fljót-
um hefur fengið sjer lögfest ætt-
arnafnið Melax.______________
Prentsmiðjan Acta.