Lögrétta

Tölublað

Lögrétta - 09.09.1924, Blaðsíða 3

Lögrétta - 09.09.1924, Blaðsíða 3
LÖGRJETTA 8 yrði háskólanám í Reykjavík gert þeim mun aðgengilegra en nú, móts við hið erlenda, að ekki væri veruleg hætta á að alt úrval stú- dentanna leitaði úr landi til náms. ----o--- Sambandsfundur norrajnna Kvenrjeítindaíjelaga ö.--b. jiiiu \m i Heisingtors. Eftir itu Jtirietu lijarnnjeöinstíottur. Frh. —--------- iMæsta dag, þnðjudaginn 3. júni ki. lu árdegis, söínuöust fundar- konumar saman í „Solilennitets- salnum“ í Helsingfors. Saiurinn var skreyttur blómum fagurlega. Sömuleiðis var þar einnig mjög smekklega komiö fyrir flöggum allra 5 Norðurlanda-þjóöanna. Var íslenska flaggiö þar og mjög vel sett. Salurinn var troðfullur. For- seti Finnlands var ekki heima í borginni. En kona hans, frú Ester Stáhlberg, utanríkisráðherrann i'inski og allir sendiherrar, Dan- merkur, Noregs og Svíþjóðar, ásamt konum sínum. Sömuleiðis iuiltruar frá tveimur stærstu AI- þjóöakvenna-samböndunum: „The International Woman Suffrage Alliance“ og „The International Eouncii of Woman“, ásamt ýmsu fleiru merku fólki. þegar allir voru komnir 1 sæti sín ljek orkestur-flokkur borgar- innar finska þjóðsönginn, undir stjórn Ossian Fahstrams, sem all- ir hlustuðu á standandi. Síðan setti fröken Furuhjelm fundinn með snjallri ræðu. Tók hún fram það núverandi tímanna tákn, að alstaðar væri afturkastið að gægj- ast fram. Tók hún fram og þakk- aði þeim finsku konum, sem mest og best hef'ðu unnið að framgangi þessara mála og' undirbúningi þeirra i Finnlandi. Sömuleiðis ýms- ar þær ástæður sem hrundið hefðu þessum kvennamálum áfram. Ilmi Hollsten prófessorsfrú hjelt aðra kveðjuræðu á finsku. Fanst það á öllu, að reipdráttur var um völdin milli finska málsins og sænska, og að finskan vildi auðsjáanlega ekki bera skarðan hlut frá borði. Síðan töluðu í röð einn íulltrúi frá hverju hinna 5 Norðurlandanna og var þjóðsöngur hvers lands leik- inn á eftir ræðu þess fulltrúa. Á eftir minni ræðu var leikin einhver „íslensk melodia“, eins og stóð á dagskránni, sem jeg ekki þekti Klukkan 12 var þessu opnunar- liátíðahaldi lokið. Var þá etinn sameiginlegur Lunch. Kl. 3*4 vor- um við allar boðnar upp í höllina til forsetafrúar Stáhlberg í teboð. þar tók danska sendiherrafrúin, greifafrú Lercke, að sjer, að kynna mig og dönsku konumar fyrir for- setafrúnni. Verð jeg að segja það að mjer flaug í hug, er jeg gekk um þessa gömlu finsk-rússnesku landsstjóraíbúð, munurinn á henni og forsætisráðh.-bústað íslands. Fyrsta mál sem var til umræðu var samvinnan milli Norrænu land anna og hvernig henni skyldi hátt- að. Frú Gyrithe Lemcke frá Dan- mörk hafði framsöguna í því máli með kl.stundar fyrirlestri. Lagði hún til að lögum Nordiska kvinde- sag: „Samorganisationarinnar“ yrði breytt þannig, að 1. stjórnar- nefnd væri kosin, sem í væri 1 full- trúi frá hverju hinna norrænu landa, svo yrði norræna kvenrjett- indanefndin eða sambandsstjóm. 2. Sameiginlegir fundir haldast 4. hvert ár á þeim tíma og stað, sem ,,Samorganisationin“ ákveður. þeg ar einhver mikilvæg mál koma fyr- ir, sem snerta norrænar konur milli þessara funda, þá getur Sam- bandsstjórnin kallað saman minni fund til umræðu og ákvörðunar um þau mál sem fyrir liggja. Sambandsstjómin ákveður at- kvæðisbæra fulltrúatölu frá hverju landanna á þessum fundum í sam- ráði við það landið, sem býður fundinum til sín. Við minni fund- ina hefir hvert land rjett til að hafa einn fulltrúa og einn vara- íulltrúa. Atkvæðagreiðsla fer fram frá fulltrúum hvers lands sjerstaklega ef nokkur fulltrúanna óskar eftir því. Hvert af Sambandslöndunum hefir rjett til að láta vera að taka þátt í sameiginlegri framkomu, sem hin löndin hafa ákvarðað. Dagskiá og vinnuaðferðir á hverjum þessum fundi ákveður það landið, sem býður fundunum heim. það land ákveður einnig fundarstjórann og aðal-fundarrit- arann, en hina starfsmennina vel- ur fundurinn sjálfur. 4. Samvinnan í sjálfri „Sam- organisationen“ helst við gegnum nefnd eða nefndir frá hverju landi milli aðalfundanna. Um þetta mál urðu nokkrar um- ræður og var nefnd kosin i' það. B. B. (Island) lagði til að breytt væri nafninu Samorganisation. Kvað alt nafnið Nordisk kvinde- saksforeningen á Samorganisa- tionen vera óframbærilegt í dag- iegu tali. Vildi kalla það Det Nor- aiska kvinderets Forbund. For- bund væri gott og gamalt norrænt orð. Ýmsum þótti það gott, en þó ef til vill óvarlegt að svo stöddu að breyta nafninu. Tillögur frú G. L. voru svo samþyktar að því einu breyttu, að minni starfsfundir skyldu jafnan haldast eftir 2 ár. Frh. -----o---- Ljóðabrjef til Sveinbjörns skálds Björnssonar á sjötugs afmæli hans, 9. sept. 1924. Garpurinn Sveinbjöm glaður er í góðri elli; skáldið hrausta heldur velli, hinir oft þó fái skelli. Margoft liann í mótgangsstormi mætti hörðu. Helgar vættir halinn vörðu, honum sverð og brynju gjörðu. F.f hann mæða kreppukjör um kalda daga, fer hann þá í fylgd með Braga, finnur lind í grænum haga. ! Gott er að lyfta höfði hátt í hugarsorgum. Burt frá glaumi á gatna torgum, geta stefnt að æðri borgum. þjer hafa fylgt í framsókn allri festa’ og elja. þú hefir kunnað vini’ að velja. Vil jeg heppnismann þig telja. Enn býr hjá þjer andans hyr og ólga’ í barmi; reynsla er skráð á skírum hvarmi, skín í augum helgibjarmi. Gæfa er að gjöra vel svo gleðjist mengi. I Gripin þín á gígju-strengi get jeg til að vari lengi. Vertu sæil og velferð signdur, vinur góði! þú átt inni’ í sólskinssjóði, sem er okkar besti gróði. P. P. ----0----- Heilbrigðismál. Frh II. A. HJá Englendingum. Tekið úr Memorandum on the Teaching of Infant care and Manag1- ment in public elementary Schools 1910, London. (Skv. brjefi frá heilbr ráðuneytinu enska frá jan. 1924 er kenslunni enn í dag hagað á svipaðan hátt, en kenslutimum heldur fjölgað). I. Námsskeið fyrir stúlkubörn 7—12 ára. 1. þrif á sjálfum sjer, þar með ræst- ing á tönnum, nöglum, hárum. 2. Hreint loft, loftræsting. Sýnt hvern ig loftræsting skal hagað i herbergj- um svo að gagni komi, sýnt fram á, hver nauðsyn er á að hafa glugga opna dag og nótt, afleiðingar af því að lifa í illa loftræstum herbergjum, um nauðsyn sólskins. 3. Hiti. Hvemvegna börn og fullorðn- ir verða að halda sjer heitum og var- ast ofkælingu. Kent hvernig farið er að kveikja upp i ofnum, eldstór og ofn- ar sem loftræstingartæki. Eldshætta. Klæðnaður. 4. Kent itarlega hversu hreinlæti i öllu er mikilsverður þáttur í allri heil- brigði, — hreinlæti á kroppnum, hrein föt, hreinlæti í matartekju, umfram alt hreint neysluvatn, hrein mjólk, hrein- læti i öllum háttum og umgengni. 5. Matur og drykkur. Skýrt fyrir börnum, hversvegna fæða sje nauðsyn- leg, hverskonar fæða sje holl, æskileg eða alveg nauðsynleg, og hverskonar fæða sje óhæf. — Um nauðsyn mjólk- ur, einkum fyrir ungbörn. Borðsiðir. Hvernig borið er á borð. 6. Klæðnaður. Hver hentugastur. Hverskonar efni sje hentugast i nær- föt, hversvegna flúnel er ekki hent- ugt, jafnvel ekki hættulaust; hvernig farið er að halda fötum hreinum og þokkalegum, og hvernig þau verða best hirt og viðhaldið. 7. Svefn, hversvegna nauðsynleguiv Hversvegna litil börn eiga að fara snemma að hátta. Hvernig búið er um rúm, því haldið hreinlegu, rúmföt viðruð o. fl. þessh. II. Kent stúlkum 12—14 ára í skól- um á Englandi. Tekið úr Memor. on the Teaching etc. 1. Húshald. Hvernig vikutekjum verður hagtært á sem hentugastan liátt, kaup til húshaldsins; hvemig heimili er gert vistlegt og skemtilegt, smekklegt og aðlaðandi. Sparsemi. 2. Hófsemi. í þessu er farið eftir ágripi því um áhrif áfengis og tó- baks, sem skólaráðið hefir látið semja um þessi efni.*) 3. Almennustu atriðin í sjúkrahjúkr- un í heimahúsum. Sýnt hvernig sjúkl- ingunuin er leitað allrar hægðar og þæginda, eftir því sem föng eru til. Kent hvernig hjálpa má í viðlögum við minniháttar sjúkdómstilfelli (yfir- lið, uppsala, krampi, meðferð sára, lagður bakstur o. fl.); ennfremur þrif í sjúkrastofum, og kend aðalatriðin um smitun og sótthreinsun. 4. Kent um nauðsyn á þrifum og hreinlæti einstaklingsins, kend undir- stöðuatriðin í alm. heilbrigði manna í. *) Sbr. litla kverið um áfengi og tú bak, sem hjer var gefið út um árið og átti að kenna í barnaskólum. sveitarfjelaginu. Er þá ætlast til, að gerð sje nokkurnveginn grein fyrir til- gangi hinnar vísindalegu heilbrigðis- iræði alrnent; kend sótthreinsun og nauðsyn á vörnum gegn berklaveiki og hvernig þeim verður helst við kom- ið. Stúlkubörnum er sjerstaklega kend birðing ungbarna á 1. ári og þaðan af eldri. þessum kenslustundum er fyrst og fremst varið til að sýna fram á, hver nauðsyn er á að kunna alla ung- barnahirðingu og meðferð, hvernig þau skal klæða, laífga og mata, öll þrif á þeim, hvernig venja má þau snemma á hreinlæti; kent um nauð- syn á hæfilegum hita fyrir þau, hreinu lofti, hollustu sólarbirtunnar og hrein- læti á öllu í kringum þau. það er ætl- ast til að sjerstaklega sje brýnt fyrir ungu stúlkunum, hverjar hættur fyr- ir lif ungbama geti stafað af úhent- ugri fæðu og ýmsu óiagi á því, hvern- ig barninu er gefin fæðan og af alls- konar óhreinindum, og af ónógum (og eins af of miklum) og óhentugum kiæðnaði á bömum, af kulda, af ónóg- um svefni og óreglulegum, af skorti á hreinu lofti, skorti á nægilegri hreyf- ingu og mörgu öðru þessu líku, sem hver kennari á að vera fær um að út- lista á ýmsa lund. III. Kenslufyrirkomluag í alþýðu- skólum í Manchester fyrir eldri skóla- telpur, samið af Education Committée in Manchester (tekið úr Zeitschrift fúr Sáuglingsschutz, Bd. III. hefti 3. Haldnir fyrirlestrar með sýningum: 1. Laug barna, þvottar. a. Laugin höfð tiL b. Barnið laugað og því siðan þurk- að um kroppinn. Sýnt sjerstaklega hvernig farið er með augu þess, eyru, munn, nef, útskýrð öndun með nefi, bent á húðfellingar og þrif á þeim. c. Klæðnaður ungbarna, honum lýst nákvæmlega, og sýnt hvernig börnin eru færð í hverja flík. Hver og ein námsstúlka látin taka snið (úr papp- ír) af barnsfötunum og látin hafa þessi snið heim með sjer. Námsstúlk- urnar allar látnar sauma barnaföt, ytri og innri, á námsskeiðinu, bæði fyrir kornung börn eða hvítvoðunga og líka eldri börn. Útskýrt hver efni sjeu hentugust til fata handa börnum og alt um klæðnað þeirra til fótanna, bæði sokkaplögg og skófatnað. 2. Böð og þvottur (frh.). Hversvegna er hreinlæti svo nauðsynlegt? Hörund ungbarna (lýsing á þvi) og starfsemi þess. Hættan sem stafar af óþrifnaði. Gerlasmitun. Meðferð á fatnaði. Hirð- ing á hári, tönnum og nöglum. 3. Næring ungbarna. Brjóstbörn. Pelabörn. — Kúamjólk. Hættan við óhreinindi í mjólk og hvernig hjá þeim verður komist. Geymsla mjólk- urinnar.Pelarnir.þrif á þeim og totun- um. Reglur um blöndun og tilbúning ástandið nú, og horfurnar og stefnuna í framtíðinni. Skólasaga Islendinga er óskrifuð enn þá, svo að ýtarlegt sje. því miður. því í þeirri sögu mætti sjá margt merkilegt um menn- ingu þjóðarinnar og þróun. Jón Sigurðs- son skrifaði þó gott yfirlit um feril skóla- haldsins í skólamálaritgerð sinni í Nýjum Fjelagsritum (1842) A) En það er nauðsyn- legt, til þess að geta skilið mörg atriði þessara mála nútímans eða framtímans, að vita nokkur deili á ráðabruggi og reynslu fortímans. Fyrir því verða rakin hjer nokkur atriði þessarar sögu. það er þó enganveginn ætlunin, að reyna að skrifa neitt yfirlit um íslenska skólasögu í heild sinni, enda þarflaust í þessu sambandi. Margt af þessu er líka alkunnugt úr al- mennri sögu þjóðarinnar. þeir þættir sög- unnar, sem hjer verða dregnir fram, eru slíkir,sem mjer virðast svo sem undist hafi einhvernveginn inn í það, hvernig famast hefir í landinu allskonar innlendum fræð- um og í hvaða átt framtíðarinnar stefna þeirra í fortíðinni virðast benda. Að sjálf- sögðu koma þar fyrir ýms atriði, sem öll- um þorra sæmilega sögufróðra manna eru ekkert nýnæmi, einkum frá fyrri öldum. En þó verður ekki þegjandi fram hjá þeim x) Auk þessa má benda á grein í Tímar. Bmf. XIV (e. Janus Jónsson), ýmisl. i Safni V. (frá p. Thoroddsen), í Kirkjusögur Finns og Pjet- urs og víðar eru einstakar heimildir. Jóhann- es Sigfússon kvað hafa safnað miklu efni til alm. skólasögu. farið, vegna samhengis sögunnar, og þó aðeins stiklað á stærstu steinunum. þó hefir ekki fyr verið um þetta skrifað frá því sjónarmiði, sem hjer um ræðir. þar að auki gerist mikill hluti þeirrar sögu, sem hjer verður rakin, einmitt eftir að ritgerð J. S. kom út, og J. S. er sjálfur einn öndvegismaður hennar og ýmsir aðrir afreksmenn, sem tillagagóðir voru um hin meiri málin 1 íslenskri end- urreisnarviðleitni þeirra tíma. Eins og alkunnugt er, er snemma get- ið skólahalds í íslenskum sögum, þó frá- sagnirnar sjeu hinsvegar ekki þannig, að eftir þeim heimildum eifium sje unt að gera nákvæma grein fyrir skipulagi þeirra lengi fram eftir öldum. þess er getið þeg- ar um ísleif biskup í Skálholti, að „menn seldu honum sonu sína til læringar, ok váru þeir síðan góðir kennimenn“ (Bsk. Bmf. I. 63. Hungurvaka), enda segir íslendinga- bók svo um hann, að hann var miklu nýtri en aðrir kennimenn á þessu landi. Frá þessum skóla ísleifs spruttu svo smásam- an, samfara auknum utanferðum, ýmsir góðir lærdómsmenn, og jókst nú í landinu smásaman mentun og skólahald. Einn af lærisveinum ísleifs var Jón Ögmundsson, helgi, síðar Hólabiskup. Setti hann skóla á Ilólastað kringum 1110 og fyrir hann Gísla nokkum Finnason. Var það skólahald annálað, eins og reyndar alt líf og starf þessa „blessaða biskups". Segir Jóns- saga, að þá hafi mátt sjá um öll hús bisk- upsstólsins mikla iðn og athöfn, og hafi allir kepst við það, „hverr eptir sínu næmi, at fylla vandlaupa síns hjarta af þeim molum vizku brauðs, er þeirra kennifeður brutu þeim til andligrar fæðu, af hverjum vér sám blómiberaligan akr guðligrar miskunnar með fögrum ilm víða upprunninn“ (Bsk. Bmf. I. 240). Og ann- arsstaðar segir, að menn hafi lesið þar, lærðir og leikir „með heilagri græðgi“, til að afla þess, er fá mætti „af nægð guðligra auðæfa“ (1. c. 242). — Auk Skálholts- og Hólaskóla voru einnig snemma settir skól- ar í Haukadal, og gerði það Teitur ísleifs- son (d. 1110) og frá þeim skóla kom m. a. Ari fróði. 0g í Odda setti Sæmundur fróði skóla, enda segir sagan, að hann hafi verið „einhver mestr nytjamaðr guðs kristni á þessu landi“ (1. c. 156). þar var m. a. seinna lærður Snorri Sturluson eins og kunnugt er. Alloft er einnig getið ann- arsstaðar um slíkt skólahald, t. d. hjá þor- láki biskupi Runólfssyni og Klængi bisk- upi. þá var einnig oft skólahald við ýms klaustrin. Hafði þetta margskonar áhrif á bókvísi og alment mentalíf þjóðarinnar, beinlínis og óbeinlínis. Nokkuð hefir þó verið deilt um þessi efni, einkum áhrif klaustranna. þarf ekki í þessu sambandi að reyna að gera ýtarlega út um slíkt, því samkomulag er um það, alment talað, að þessi skóla- og mentunarstarfsemi hafi haft hið mesta gildi fyrir myndun og mót- un bókmentanna og andlega lífsins í heild sinni, hvernig sem menn vilja að öðru leyti skýra einstök atriði hennar. Til við- bótar þv'í, sem þegar er vikið á, þarf held- ur ekki annað en minna á nokkur nöfn önnur, sem tengd eru t. d. klaustrunum og mikilsverð eru á ýmsa lund i sögu hins andlega lífsins. Við þingeyrarklaustur eru tengdir þeir Karl Jónsson, Oddur Snorra- son og Gunnlaugur Leifsson, sem m. a. hafa skrifað hin merkilegustu rit um Nor- egssögu, sem alkunn eru (t. d. Sverris- saga), einnig Arngrímur sá, er reit Guð- mundar sögu góða, Bergur Sokkason o. fl. Af klausturmönnum í Veri má minna á Brand Jónsson, Runólf Sigmundsson ábóta og Grím prest Hólmsteinsson, og svo Eystein munk, höfund Lilju, og frá sið- skiftatímunum Sigurð Halldórsson og Gissur Einarsson. I Helgafellsklaustri var einnig Hallur Gissurarson, í Viðeyjar- klaustri Styrmir Kárason, samtímamaður og um skeið fjelagi Snorra Sturlusonar, og í Munkaþverárklaustri Nikulás Bergs- son. þetta eru alt menn alkunnir úr bók- mentasögunni, þó misjafnt sje reyndar eftir þá varðveitt, og má um þetta segja oft, að þá var „fagurlegt þat klaustr, sem svo var skipat af slíkum munkum“. það er þá líka á þessum grundvelli, að fræði- menn, eins og Finnur Jónsson fyrst og fremst, hafa komist að þeirri niðurstöðu, að „sagaeme i et overvejende antal er for- fattede af islandske præster og gejstlige" (Litt. hist. II. 289), eða að Jón Sigurðs- son hjelt því fram, að út frá skólahaldi Isleifs biskups væri „mestmegnis sprott- in og æxluð öll sú mentun, sem á íslandi var í fornöld, og langt skarar fram úr mentun hinna annara Norðurlanda að and- ligu fjöri og krapti“ (N. Fjelr. II. 85). Ekki gekk þetta skólahald þó ætíð jöfnum fetum og heldur skrykkjótt á köflum, og var ekki ávalt mikil „iðn ok athöfn“. Ár-

x

Lögrétta

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögrétta
https://timarit.is/publication/196

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.