Lögrétta - 30.09.1924, Page 4
4
LÖGRJBTTA
E. A. ujóta sannmælis og skóla
hans, og mun jeg gera það fram-
vegis. En hitt er rangt, að jeg síð-
ast í grein minni taki aftur „allar
fullyrðingarnar um tilveruleysis-
rjett skóla“ hans. 1 fyrsta lagi hefi
jeg ekki sagt, að skóhnn ætti ekki
tilverurjett. En jeg get vel gert
það honum th þægðar að segja það
nú, að jeg tel hinn nýja skóla hans
eiga mjög htinn tilverurjett. Ber
tvent th þess, og skal jeg stutt-
lega gera grein íyrir því.
Nú vh jeg leyfa mjer að tilfæra
nokkur orð úr svari sjera Eiríks.
par stendur þetta meðal annars:
„Og að gefnu thefni af hálfu G.
A. Sveinssonar skólastjóra skal
jeg geta þess, að um skólastjórn
mína var jeg og skólanefnd altaf
sammála. En af öðrum ástæðum
varð ) jeg að fara þaðan“. Mjer
er ekki ljóst, hvert thefni jeg hefi
gefið th þess að menn hjeldu, að
ósamkomulag hefði verið milli
skólanefndar og sjera E. um
skólastarfsemi hans á Hvítár-
bakka. Og, að því er jeg best veit,
er það rangt, að hann hafi orðið
að fara frá skólanum. Menn hjer
efra vita yfir höfuð ekki th þess,
að nein nauðsyn hafi rekið hann
til þess. Mun skólanefnd jafnvel
hafa gengið töluvert eftir sjera E.
A. um að vera kyr. Eru því dylgj-
ur hans í garð skólanefndar alveg
ómaklegar. Af orðum hans má og
ráða, að hann hafi í flestu eða
öllu fengið að ráða fyrirkomulagi
skólans á Hvitárbakka meðan
hann var þar, og virtist hann því
ekki síður hafa tækifæri til þess
að koma þar í framkvæmd hugsjón
um sínum en nú á Hesti. Enda mun
sú breyting, er varð á kenslufyr-
irkomulaginu 1 skólanum, er sjera
E. A. tók við skólastjórn eftir
stofnanda skólans, herra Sigurð
þórólfsson, einkum vera verk
sjera Eiríks. Er því einkennilegt
að sjá þau orð hans, að hann sje
svarinn óvinur þeirrar stefnu, að
„færa alþýðuskólana hjer heima í
gagnf ræðaskólaf orm‘ ‘.
Af þessu má það þykja ljóst, að
sje sjera Eiríkur með skólahaldi
sínu að berjast fyrir hugsjón, þá
hefði hann eins getað gert það við
þann skóla, sem hann rjeði fyrir.
Var því lítil þörf á stofnun nýs
skóla, er starfaði að miklu leyti í
sama anda, í sömu sveit. það má
jafnvel þykja vafamál, hvort sjera
E. A. vinni með því hugsjón sinni
meira gagn en tjón. Verður þá um
leið thverurjettur hins nýja skóla
lítih.
*) Leturbr. gerð aí mjer. G. A. S.
&■,]/ •--Á-r.ÁÁ ~t. . |
Hitt atriðið er það, að mjer
virðist „nýi skólinn“, sem sýnt
hefir verið, að ýmsu leyti töluvert
fjær lífinu en flestir aðrir alþýðu-
skólar vorir, en varla miklu nær
því, sem sjera E. A. heldur fram.
Enn segir í svari sjera E. A.:
„Og er þá háttvirtur skólastjóri
það barn, að telja það móðgun við
sig, að jeg gat ekki sætt mig við
að láta skólastarfsemi alveg falla
úr höndum mjer eítir að jeg hafði
kynt mjer skólastarfsemi meðal
ágætra skóla erlendis og haíði
sjálfur, í sannleika sagt, yndi af
og áhuga fyrir þessu starfi?“ það
er hugarburður eiim hjá prestin-
um, að jeg hafi nokkurntíma talið
shkt móðgun við mig, enda hefi
jeg aldrei gefið það í skyn. Jeg
hefði meira að segja á engan hátt
getað tahð það móðgun við mig,
þótt sjera E. A. hefði haldið
áfram að vera skólastjóri á Hvít-
árbakka. Hefði jeg einungis talið
það bera vitni um loísverðan
áhuga hjá honum. En eigi þarf
lærðan mann sem hann til að sjá
það, að þá hefði jeg ekki orðið
forstöðum aður skólans.
það er vafalaust, aö jeg þekki
ekki ísiendingseðlið nógu vel, og
má vera, aö sjera Eiríkur geri það
betur. Jeg hefi þó þá skoðun — og
þar erum við hklega sammála, —
að íslendingar sjeu gáfuð þjóð;
skal jeg og vera manna síðastur
til að hverfa frá þeim orðum mín-
um. En alt um þaö eru þeir ekki
ahir snillingar, heldur liggur það í
hlutarins eðli, að allur fjöldi þeirra
eru meðalmenn, mælt á íslenska
alin, og verður því heilladrýgst að
sníða alþýðuskóla vora eftir þeim
„gullna meðalvegi“, er sjera E. A.
með mikihi fyrirlitningu nefnir
meðalmensku. pannig mun allur
fjöldi nemenda hafa mest not
kenslunnar. Má vera, að það verði
snihingunum hemill, en þó varla
til baga. Og síst fæ jeg skilið, að
það hljóti að hafa það í för með |
sjer, að „vonirnar, sem gerðar |
eru til nemendanna“, sjeu „aldrei |
settar ofar meðalmenskunni“.
Hlýtur sjera E. A. líka að vita
það, að setningar hans þessar eru
orðagjálfur eitt, því að allflestir
kennarar gera sjer hærri vonir
um einhverja nemendur sína, þótt
ekki ah þeir í brjósti þá fánýtu
von, að allir lærisveinar þeirra
verði afburðamenn.
1 grein sinni segir sjera E. A.
ennfremur þetta: „Og skóla minn
þykir mjer heiður að kenna frem-
ur við andann en efnið“. það mun
mega, eftir sambandi þessara orða
við aðrar setningar í sömu máls-
Frá landssímanum.
Vegna gengishækkunar krónunnar lækka símskeytagjöld til út-
landa og loftskeytagjaldið frá 1. næsta mánaðar að telja. T. d. lækkar
gjaldið fyrir 10 orða skeyti til Danmerkur og Englands úr kr. 7.05
niður í kr. 6.15, til Noregs úr kr. 8.40 niður í kr. 7.30, til Svíþjóðar
úr kr. 10.70 niður í kr. 9.30 og hlutfallslega til annara landa.
Reykjavík, 29. september 1924.
O. Porberg.
Smásöluverd
má ekki vera hærra á eftirtöldum tóbakstegundum, en hér segir:
IEbe3rls:tólDa.!k;:
Moss Rose (Br. American Tobakko Co. . . . . Kr. 8.70 pr. 1 lbs.
Old Friend do . . — 8.70 — 1 —
Ocean do . . — 10.35 — 1 —
Waverley do . . — 15.55 — 1 —
Glasgow í V* do . . — 15.55 — 1 —
do. í V, do . . — 16.10 — 1 —
0!d English do . . — 19.00 — 1 —
Garrick Mixt. do . . — 23.60 — 1 —
Utan Reykjavíkur má verðið vera því ingskostnaði frá Reykjavík ti} sölustaðar, en hærra, sem nemur þó ekki yfir 2°/0. flutn-
Landsverslun Zslands.
Hvítárbakkaskólinn.
Nokkrir nemendur geta enn fengið rúm í skólanum næsta vetur.
K 'ndar eru þe3sar námsgreinar: Islenska, Islandssaga, danska, enska,
ínannkynssaga, landafræði, dýrafræði, grasafræði, eðlisfræði, heilsu-
fræði, söngur, leikfimi og hannyrðir, svo og þýska og bókhald þeiin,
er þess óska.
Kostnaður var síðastliðinn vetur ca. 315 kr. fyrir stúlkur og ca.
382 kr. fyrir pilta.
Umsóknir sendist undirrituðum eða Birni Jakobssyni á Varmalæk
(símleiðis).
Hvítárbakka, 22. sept. 1924.
G. A. Sveínsson.
grein, draga þá ályktun, að mjer
muni þykja heiður að því, að
kenna Hvítárbakkaskólann fremur
við efnið en andann. Skiftir það
litlu máli, en þó veit jeg ekki,
nema að þeir menn, sem að skól-
anum standa, gætu með jafnmikl-
um rjetti kent hann bæði við efn-
iö og andann. pykir mjer engin
vansæmd að því.
Skal jeg nú ljúka máli mínu, en
tjá vil jeg sjera Eiríki það, að jeg
nenni ekki að munnhöggvast
meira við hann, enda tel jeg það
ekki samboðið virðingu minni.
En mjer er ánægja að því, hvenær
sem er, að ræða við hann þessi mál
og önnur, ef hann vill beita skyn-
samlegum rökum.
G. A. Sveinsson.
Lesbókin. Sig. Kr. Pjetursson
rithöfundur skrifar í Tímann síð-
astl. laugard. um Lesbók SigurÖar
Nordals, sem talað var um í síð-
asta tbl. Lögr. Greinin ber það
með sjer, að höf. er S. N. mjög
velviljaður og að honum mundi
miklu ljúfara að lofa verk hans en
að finna að þeim, en fcy&t getur
það engum dulist, sen gremina
les, að hann er óár ægður með bók-
ina sem Lesbók og' að hann álít-
ur hana lítt hæfa sýnisbók ísl.
bókmenta. En dómur S. Kr. P. er
svo vægur sem fremst má verða.
pað sanna er, að bókin er svo
óhæf til þeirrar notkunar, sem
hún var ætluð, að eftir útgáfu
hennar er jafnvel enn meiri þörf
á hæfhegri skólalesbók og sæmi-
legri sýnisbók ísl. bókmenta en
áður var. En hart er það, að ekki
skuli mega trúa bókmentasögu-
kennara háskólans fyrir, að leysa
viðunanlega af hendi jafnauðvelt
verk og samsetning slíkra bóka er.
pó kvað hann hafa fengið háan
styrk úr Sáttmálasjóði til þess að
vinna verkið.
Svar við greinum Snæbjarnar
Jónssonar um málanám hjer á
landi, eftir Hallgrím Jónasson
kennara í Vestmannaeyjum, kem-
ur í næsta blaði.
Siguiður Sigurðsson ráðunaut-
ur er nýkominn heim úr ferðalagi
um Snæfellsnessýslu og norðan úr
Húnavatnssýslu. Var hann rúmar
8 vikur í ferðinni. Fylgdist hann
með gangnamönnum að norðan
suður Kjalveg í Gránunes og það-
an fór hann svo sem leið liggur
suður í Biskupstungur o. s. frv.
Lætur hann allvel yíir heyskap,
þar sem hann fór um, og segir
hann alment betri en á hafi horfst.
Heyskapur. Eftir því sem kunn-
ugur maður skýrir Lögr. frá, hef-
ir veðráttan í sumar verið einkar
hagstæð í Borgarfjaröarhjeraðinu,
á Snæfellsnesi og í Dalasýslu, og
heyafli í þessum hjeruðumyfirleitt
góður og sumstaðar í betra meðal-
lagi. Sama er að segja um sýslurn-
ar hjer austanfjalls. Á Vestfjörð-
um var og tíðarfarið gott, en til-
finnanlegt grasleysi og sneggja
víða þar um slóðir. Heyskapur því
í minna lagi, en nýting fremur
!
góð. — f Húnavatnssýslu varð
heyskapur á endanum allsæmileg-
ur, þó snögt væri sumstaðar og
óþurkasamt um tíma. Eftir höfuð-
dag gerði þar þurka, og sláttulok-
in urðu víða góð. — I Skagafjarð-
arsýslu var veðráttan fremur
stirð fram eftir sumri og heyöfl-
unin erfið og tafsöm, en rættist
sæmilega úr að lokum. Er heyskap
ur þar talinn að vera undir það í
meðallagi víða, en sumstaðar þó
vel það. — Á öllum útnesjum, svo
sem á Vatnsnesi, Skaganum milli
Húnaflóa og Skagafjarðar, Fljót-
um og víðar, hefir sumarveðrátt-
an verið erfið mjög. Hirtust töður
þar sumstaðar ekki fyr en í byrj-
un september, eða 19 vikur af
sumri.
Sigurður Kristjánsson bóksali
gaf á sjötugsafmæli sínu styrkt-
; arsjóði prentara 1000 kr. minning-
I argjöf. Stjórn Bóksalafj elagsins
; færði honum minningargjöf: gull-
j dósir 1 bókarlíki með áletrun,
; mjög vandaðan grip og vel gerðan.
| Kvennaskólinn hjer í Rvík á 50
j ára afmæli á morgun, og verður
nánar á það minst í næsta blaði.
ina“ (sbr. Landstíð. H. 158). Seinna
(1853) var svo bætt við kirkjurjetti, og
tónkensla var ákveðin 1850.
þannig var þá loks kominn upp sjerstak-
ur prestaskóli 1 landinu sjálfu, til þess að
ráða bót á „saadann Forblindelsse oc wan-
wittighedt“, að þar væru aðeins fáir
„lærde oc duelige prestmendt“, eins og
segir i gömlu konungsbrjefi um ástand
prestastjettariimar íslensku.
Hefir nú verið lýst nokkuð upphafi og
aðdraganda þeirra þriggja æðri skóla-
stofnana, sem fyrir voru þegar háskólinn
var stofnaður, og runnu inn í hann. Er nú
eftir fjórða og síðasta deildin.
Heimspekisdeildinni íslensku var fyrst
og fremst ætlað að verða deild fyrir ís-
lensk fræði, jafnframt því sem þar yrði
kend heimspekin, eða forspjallsvísindin,
sem stúdentar allra deilda þyrftu að nema.
En þessi deild á sjer líka ákveðna forsögu,
þó henni hafi verið minni gaumur gefinn
en sögu hinna. Að sjálfsögðu ætti að leita
fyrsta frjóanga shkrar íslenskukenslu í
þeim söguáhuga og fróðleiksþorsta, sem
svo oft er rætt og ritað um sem íslenskt
þjóðareinkenni, bæði af góðu viti og
grönnu. Hefir verið vikið að því efni hjer
áður alment, og verður því sagan nú lát-
in hefjast á því, þegar fyrst kemur fram
ákveðin tillaga um það, að taka upp fasta,
sjerstaka kenslu í íslenskum fræðum hjer
innanlands. En það var á alþingi 1865 að
Jón Pjetursson fór fram á það „við hið
heiðraða þing, að það allra þegnsamlegast
beiði konung vorn að hann allra mildast“
stofnsetji „embætti í Reykjavík í sögu ls-
lands og íslenskum fornfræðum“. þessi
sögukennari átti að flytja opinbera fyrir-
lestra á vetrum, að minsta kosti klukku-
stund hvern rúmhelgan dag. Flutnings-
maðurinn rakti það, að blómgast hafi hjer
í fornöld allur fróðleikur, en þó einkum
sagnfræðin, og sjeu sögur þær, sem forfeð-
urnir rituðu, hafðar í hinum mestu met-
um um allan heim og muni ætíð halda
uppi heiðri hinna fornu íslendinga. „En
nú er líkt komið fyrir oss í þessu efni sem
öðrum: sagnfræðin er því nær útdáin
meðal vor og engir fslendingar rita nú
lengur sögur, eins og líka þekking vor á
sögu landsins frá því fomöldinni sleppir
er meðal vor næstum liðin undir lok“. En
hann vill láta sagnfræðina glæðast hjer
aftur, „með því þjóðlíf vort er nú farið að
vakna nokkuð aftur og vjer allir höfum
áhuga á því, að stuðla til þess eftir megni,
að land vort nái viðreisn og fari aftur að
ítaka framförum bæði í andlegum og lík-
Jamlegum efnum“. Og í stuttri framsögu-
ræðu segir hann m. a., til stuðnings uppá-
stungu þessari, að „sagnafræðin sje jafn-
aðgengileg fyrir almúgann sem l.ærða“
(Alþt. 1865 I. A. 380). — Konungsfulltrúi
svarar þessu öllu svo, að að vísu sje uppá-
stungan „vel hugsuð“, en þó vonlaust um
þessa 1600 dali, sem til framkvæmdanna
þurfi, enda verði hann að álíta, að „oss
vanhagi um margt meira en þetta“. Var
svo tillögunni hrundið með 10:9 atkv.
En 1867 ber J. P. þetta aftur fram, svo
fastur var hann og trúaður á málið, — en
segist þó gera það, „þar eð kringumstæð-
ur eru nú orðnar nokkuð öðruvísi“ en fyr
(Alþt. 1867, II. 311). Var þá sett nefnd í
málið. Segir þar þá m. a. í áliti meiri-
hlutans, en hann var málinu meðmæltur,
„að vísindin sjeu hið öflugasta ráð til þess
að koma hverju landi upp“. Pá var þó bætt
við í till.: fornfræðum Norðurlanda, og
segir í álitinu, að þau sjeu nauðsynleg til
rjetts skilnings á fornsögu fslands. Á móti
þessu talaði m. a. Pjetur Guðjónsson, „þó
hann fyllilega viðurkendi nauðsynina“ og
„þá nytsemi, sem þetta getur haft í vís-
indalegu tilliti“. En hann vill láta ein-
hvern „prívatmann“ byrja á þessu, sem
„finnur hjá sjer köllun og krafta“, og yrði
þá auðveldara að útvega fjeð. Aftur á
móti segir Jón Hjaltalín í umr., að þá væri
oss íslendingum illa farið, ef vjer vildum
Íekki meta að neinu svo mikilsvarðandi
vísindi, sem hjer er um að ræða. „íslend-
ingar geta staðið sig við það“, segir hann,
„að sloka niður í sig brennivín fyrir D/á
tunnu gulls á ári, en hafa þó ekki eða
þykjast ekki hafa ráð til að verja nokkur
100 dölum til nytsamra fyrirtækja, og þó
eru hjer á landi um 70 þúsund manns. —
-----Og jeg get sagt mönnum það, að
það er ekki vegna þjóðarinnar, er nú lif-
ir, eða vegna vor, er sitjum hjer í saln-
um, að menn virða oss erlendis, heldur
gera þeir það vegna forfeðra vorra og sögu
þeirra“ (Alþt. I. A. 191). Með þessu töluðu
einnig Ben. Sveinsson, Sveinn Níels-
son, Eir. Kúld, Arnljótur Ólafsson, Sveinn
Skúlason og H. Kr. Friðriksson. Var
þetta svo samþykt með 18:5 atkv. og
bænarskrá send konungi.
En ekki var þessu sint á hærri stöðum.
Á næsta þingi, 1869, kemur J. P. þó enn
á ný með tillögu um það „að endurnýja
hina þegnlegu bæn til vors allra mildasta
konungs“ (Alþt. 1869, II. 153). Var þá
aftur sett nefnd í málið og urðu um það
nokkrar umr. T. d. spurði Grímur Thom-
sen, hvort þessi kensla ætti að vera við
latínuskólann. Neitaði Jón því; það ætti
að vera sjerstök staða. Vildi Grímur helst
láta íslenskukennara lærða skólans halda
þessa fyrirlestra fyrir ákveðna þóknun.
Jón segir, að það geti verið gott og bless-
að, en þó þurfi það ekki að fara saman
að vera vel að sjer í tungunni og sög-
unni. Fór svo, að nefndin mælti með þessu,
en ljet skipulagið óákveðið, og var það
samþykt með nær öllum atkvæðum. Ennþá
varð þó ekkert úr framkvæmdum. Og
þegar J. P. vakti málið enn á þingi 1871,
þótti stjórninni „ísjárvert nú sem stend-
ur að leggja útgjöld til þessa á hinn ís-
lenska landssjóð“. Var málið þá felt með
14:6 atkv. og lýkur þar þess sögu. Hafði
Jón Pjetursson haldið fram málstað þess-
um með slíkri festu og drenglund, en þó
skilningi á eðli þess, og sanngirni, að
ómaklegt er, hversu eyðst hefir minningin
um afskifti hans af þessum málum, og
var hann þó merkur maður og fróður á
fleiri sviðum.
-o-
Prentsmiðjan Acta.