Lögrétta - 08.07.1925, Page 1
[nntaeimta og afgreiðsla
í Veltusundi 3
Sími 178.
LOGRJETTA
Útgefandl og ritstjór'
1‘orsteinn Oíslason
Þingholtsstræti 17.
XX. á'r.
Reykjayík, miðyikudaginn 8. júlí 1925.
29. tbl.
Um víða veröld.
Paiestína.
Ekki alls fyrir löngu var sagt
frá því, að vígður hefði verið
Gyðingaháskóli í Jerúsalem, og
jafnframt, að einn hinn frægasti
vísindamaður Evrópu, Einstein
prófessor, sem er af Gyðingaætt-
um, færi þangað.
En þetta er ekki eini merkis-
viðburðurinn, sem er að gerast
þar í landi. Stórkostleg verknað-
arfyrirtæki eru þar í byrjun og
á góðum vegi áfram. Verkfræð-
ingurinn Rutenberg hefir gert
mikilfengilegar áætlanir um
fossavirkjanir í ánni Jórdan, en
hún rennur, svo sem kunnugt er,
gegnum Palestínu og út í Dauða-
hafið, en yfirborð þess er 400
metra fyrir neðan hafflöt. Kola-
námur eru engar í Palestínu og
lítið um eldsneyti. En nú á Jór-
dan að leggja landinu til fram-
vegis ljós og afl til iðnaðar.
Landið hefir lengi verið í
megnustu niðurníðslu. þar sem
áður voru fagrir skógar eru nú
grýttar og gróðurlausar hæðir,
eða óræktuð mýrafen. Og Araba-
þorpin, sem þar eru til og frá,
eru ljelegri bústaðir en aumustu
gripahús vesturlanda. það eru
lágir moldarkofar, klíndir’ strá-
um og úlfaldamykju, og í þeim
hafast við bæði menn og dýr. Alt
er þar óhreint og ódaunninn þar
inni svo mikill, að útlendingar
geta varla verið þar inni stund-
inni lengur. Svona er þessu lýst
af þeim, sem nú ferðast þar um,
eða dvelja þar við vinnu.
Eins og kunnugt er, á landið
nú að verða hæli Gyðinga, en
hefir frá ófriðarlokum staðið
undir vernd Englendinga. Eftir
að það skipulag komst á, hefur
Zíonsfjelagið, sem í eru auðmenn
af Gyðingaættum úti um allan
heim, keypt landflæmi í Pale-
stínu, og áður átti fjelagið þar
mikil lönd. Nú er tekið að rækta
þessi lönd með nýtískutækjum;
mýrafenin eiga að> verða að frjó-
sömum ökrum og gróðurlausar
fjallahlíðamar að aldingörðum.
Vegir eru gerðir og stórar vatns-
leiðslur ráðgerðar um langar
leiðir. En mannsaldrar líða áður
en fullur árangur sjest af því
starfi.
það er sagt, að miklu fleiri
sæki um innflutningsleyfi til
landsins en fengið geta. þeim
eru sett þau skilyrði, að þeir
annaðhvort eigi nokkurt fje til
þess að leggja fram í viðreisnar-
starfið, eða þá að þeir sjeu
hraustir og vel færir til þess að
taka að sjer einhverja þá vinnu,
sem fyrir hendi er. Ekki alls fyr-
ir löngu ferðaðist Balfour jarl
um alt landið, þegar hann vígði
háskólann í Jerúsalem, og var
mjög hrifinn. af þeim fram-
kvæmdum, sem þar áttu sjer
víða stað. Innflytjendurnir búa í
fyrstu í tjaldbúðum, sem mynda
smáþorp, þar sem landið er tek-
ið til ræktunar. Landið fá þeir
hjá stjórn landkaupasjóðs Zions-
fjelagsins, en vinnutæki hjá
stjórn viðreisnarsjóðs þess. Ný-
byggjarnir kaliast Halúzim og er
það gamalt hebreskt orð. Land-
kaupajóðurinn heitir Koren
kagemet og viðreisnarsjóðurinn
Koren hayesot, og eru þau nöfn
einnig hebresk. Nýju bygðarlög.
in kallast Dilb. Eftir nokkum
tíma hverfa tjöldin og í þeirra
stað koma smá trje hús og eru
þá mjög notaðir í þau kassar,
sem ýmislegur flutningur hefir
komið í austur, því landið er að
mestu trjálaust. Ferðamaður
einn lýsir ársgömlum smábæ,
sem hann kom til, á þá leið, að
þar voru komin' upp smá, rauð-
máluð trjehús og kringum þau
voru kýr frá ýmsum löndum:
danskar, hollenskar, sýrlenskar
o. s. frv. Honum var sagt að ver-
ið væri að reyna, hvert kynið
þrifist þar best. þar nálægt voru
stórar girðingar með fjölda
hænsna. Fjallbrekka í grendinni
hafði verið þakin mold og þar var
vínviður gróðursettur, en börn
hlupu um á nýræktarengi þar
fyrir neðan, sem var þakið feg-
ursta blómaskrúði, eins og aust-
urlensk ábreiða. Ferðamanninum
var sag*t, að þetta væri ein af
sameignarmanna-nýlendunum, er
kallast Kwutzot. þar er alt sam-
eiginlegt, menn borða saman,og fá
ekkert kaup, aðeins allar nauð-
synjar eftir þörfum. Ferðamað-
urinn ætlaði að gefa manni, sem
hann átti tal við, silfurpening* að
skilnaði. „Nei“, sagði maðurinn,
„ef þú vilt gefa hann, þá láttu
hann í einhvern safnbauk við-
reisnarsjóðsins; jeg hef ekkert
með pening-a að gera“. Svo kom
ferðamaðurinn til 40 ára gam-
allar nýlendu, sem Rothschild
baron hafði stofnað. þar segir
hann að nú sje heimsins stærsti
vínkjallari. þar eru stórir banan-
lundir og pálmatrjágöng. Til
dæmis um frjósemi jarðarinnar
þarna austur frá segir hann
þessa sögu. Fyrir 15 árum sett-
ust 60 fjölskyldur að á sandauðn
nálægt Jaffa við Miðjarðarhafið.
1919 voru íbúamir þar um 3000
en nú er þar bær með 32000 íbú-
um. þar eru mjög sótt sjóböð og
alls konar lífsþægindi.
Ctar. Michelsen
fyrv. forsætisráðherra Norð-
manna andaðist 29. f. m. Var það
hans verk fremur en nokkurs ein-
staks manns annars, að ríkja-
sambandinu milli Noregs og Sví-
þjóðar var slitið 1905. Hann
myndaði stjórn 11. mars það ár,
tók að sjer að fylgja fram ýtr-
ustu kröfum Norðmanna í deil-
unni við Svía og hjelt svo á mál-
inu, að skilnaðurinn hafðist fram
stórvandræðalaust. Fyrir þetta
verk hlaut hann mikla þjóðhylli í
Noregi. Hann rjeð og miklu um
það, að Noregur varð konungs-
ríki, en ekki lýðveldi, eftir skiln-
aðinn, þótt það reyndar væri
ákveðið með almennri atkvæða-
greiðslu. Ekki var hann við völd
lengur en til haustsins 1907, og
hefir lítt fengist við stjórnmál
síðan. Hann var skipaútgerðar-
maður í Bergen og vellauðugur.
í erfðaskrá sinni gaf hann allar
eigur sínar til opinberra þarfa.
Fæddur var hann 1857.
Síðustu símfreguir.
Um síðastl. mánaðamót kom.
fram í ensku blaði grein um starf-
semi sendiherra Rússa í Englandi
og var hún talin fjandamleg Bret-
um og lagt til, að honum yrði vís-
að úr landi, en álitið var að sjálfur
utanríkisráðherrann, Chamber-
lain, stæði þar á bak við. Lítur
út fyrir að alvarlegar viðsjár sjeu
nú milli Breta og Rússa og segii
fregn frá 7. þ. m. að sagt sje frá
Moskva, að ef Bretai' slíti stjórn-
Prefect Meulenberg.
málasambandi við Rússa og láti
þá ekki afskiftalausa í Kína, þá
sje hætt við að til ófriðar dragi
minlli þjóðanna. Út úr óeirðunum
í Kína var talað um fundarhald
með fulltrúun^ frá öllum þeim
þjóðum sem þar eiga hlut að
máli, en síðar sagt, að ekkert
mundi geta úr því orðið, með því
að þær mundu ekki geta orðið
sammála um, hvernig við því
máli skyldi snúist, og sjerstak-
lega mundu Bandaríkj amenn vera
þar á öðru máli en stórveldin hjer
í álfu.
Sagt er frá samtökum meðal
þeirra Rússa, sem nú eru land-
flótta til og frá og allir andstæð-
ingar ráðstjórnarinnar heima fyr-
ir, og ætli þeirr að koma saman
á rússsnesku þingi í París. Heima
fyrir í Rússlandi eru sagðar
óeirðir og að stjórnin hafi látið
taka fjölda manna og flytja til
Síberíu.
I Marokkó virðist gengi Abdel
Krims fara vaxandi og er sagt að
ýmsar kynkvíslir þar, sem áður
hafi verið vinveittar Frökkum,
sjeu nú gengnar í lið með honum.
Vantraustsyfii'lýsing Mac Don-
alds á Baldwinsstjórnina, sem
áður er frá sagt, var feld. —
Fregn frá Lundúnum frá 2. þ.
m. segir námaeigendui' hafa við
orð að láta hætta vinnu í næsta
mánuði nema ikaupgjald færist
niður, en verkamenn kreíjast,
þvert á móti, kauphækkunar.
Byltingin í Grikklandi er um
garð gengin og hefir þingið
greitt ráðuneyti Pangales hers-
höfðingja traustsyfirlýsingu. Er
sagt að hann ætli að taka Musso-
lini sjer til fyyrirmyndar.
Stjórn Frakklands héfir ráð-
gert að senda mann vestur til
Ameríku til þess að semja við
stjórn Bandaríkjanna um skuld
Frakka. En þegar enska stjórnin
frjetti, að þetta stæði til, ljet
hún sendiherra sinn í París til-
kynna frönsku stjóminni, að hún
ætlaðist til að einnig yrði samið
um skuldir Frakka við Breta.
Cailleaux er nú að reyna að bæta
úr fjárvandræðum Frakka með
innlendu stórláni.
Við nýafstaðnar þingkosningar
í Hollandi hefií fylgi jafnaðar-
mannaflokksins mjög aukist og
eru þeir nú fjölmennasti flokkur
þingsins, en hafa þó ekki þing-
mannafjölda að sama skapi sem
kjósendafjölda.
Amundsen kom á flugvjel
sinni til Ósló 6. þ. m. og var, svo
sem við mátti búast, tekið með
miklum fögnuði.
Ráðgerð er nú ferð til norður-
heimskautsins á Zeppelíns-loft-
fari sumarið 1927 og er það
Zeppelínsfjelagið þýska í sam-
bandi við alþjóðlegt norðurhafa-
rannsókna-fjelag, sem stendur
þar fyrir útbúnaðinum, en dr.
Eckener á að verða formaður á
loftfarinu og Friðþjófur Nansen
að stjórna rannsóknunum. Ráð-
gert. er, að loftskip þetta verði
giíðarstórt, 10 þús. 500 kúpík-
metrar, með 2000 h.a. vjel, og
muni kosta 10 milj. gullmarka.
Verða þjóðverjar að fá leyfi
bandamanna til þess að smíða
slíkt loftfar.
Fregn frá Stokkhólmi segir að
Sven Hedin ráðgeri rannsóknar-
för til Asíu á Zeppelíns-loftfari.
Fregn frá Stokkhólmi frá 2. þ.
m. seg'ir Sænska leikhúsið hafa
brunnið til kaldra kola.
Víkingaskipið, sem áður er frá
sagt, að farið hafi verið frá Fær-
eyjum áleiðis til Björgvinjar,
kom fram eftir 6 daga ferð og
hafði hún verið erfið.
Fregn frá San Francisco segii
frá miklum landsskjálftum þar á
Kyrrahafsströndinni og hafi
bærinn St. Barbara eyðilagst. 20
menn fórust, en um 300 særðust.
Tjónið metið 30 milj. dollara.
Fregn frá Tokíó segir frá mikl-
um landskj álftum í Japan, í hjer-
aðinu Tottori. Tveir bæir hrundu
og óttast menn að fjöldi fólks
hafi beðið bana.
n-
Meulenberg prefect í Landa-
koti er nýlega kominn heim úr
för sinni á heimssýninguna í
páfahöllinni í Róm. Hefur ritstj.
Lögr. fundið hann að máli og
lætur hann mjög vel yfir sýning-
unni og förinni. þess er áður get-
ið, að eftir að Norðurlandamenn
höfðu verið í áheyrn hjá páfan-
um, flutti Meulenberg prefect á
hátíðarsamkomu ræðu um Ísland
og á eftir hafi verið sunginn
þjóðsöngur okkar: „Ó, guð vors
lands“. — Einnig hjelt hann fyr-
irlestra um ísland á Hollandi,
Belgíu og Frakklandi,og er ekki að
efa það, að hann heldur kostum
íslands og íslendinga alstaðar
hátt á lofti.
Fyrir tveim árum kom v.
Rossum Kardináli hingað á för
sinni um Norðurlönd og öll um-
mæli hans um ísland og dvölina
hjer hafa verið mjög lofsamleg
og Islendingum til sóma. — það
er v. Rossum kardináli, sem.
óskaði eftir að Island tæki þátt
í heimssýning'unni, segir Meulen-j
berg prefect. En auðvitað var
það prefectinn, sem hafði veg ,og
vanda af því, hvernig ísland vai
sýnt þarna. — Jeg vildi gera
mitt til 'að eyða þeirri vanþekk-
ingu, sem ríkjandi er um ísland
úti um heiminn, segir hann, þar
sem hugmyndin er sú, að hjer
sjeu hálfgerðir skrælingjar. Jeg
vildi sýna menningu Islands að
fornu og nýju, sýna, hve hátt
það stæði meðal Skandinavíu-
ríkjanna. Ilann bendir svo á um-
mæli í einu af helstu blöðum
Norðmanna um sýninguna, og
segir þar, að íslenska sýningin
hafi haft mesta þýðingu af sýn-
ingum Norðurlanda og standi
framar sýningu Noregs. Einnig
bendir hann á ummæli í frönsku
blaði, er segir: Le pape s’arreta
devant la belle Islende, þ. e.: Páf-
inn nam staðar við hið fagra ís-
land.
það, sem sýnt var hjeðan,
voru bækur, fornar og nýjar, í
ýmsum útgáfum, m. a. handrit
af Njálu, stór og falleg bók.
Einnig safn af eftirlíkingum af
gömlum handritum. þar voru
fornsögurnar, fornbrjefasafn Is-
lands o. fl. ó. fl., yfir höfuð reynt
að gefa sem gleggsta hugmynd
um bókmentir landsins að fomu
og nýju. þá var þar fjöldi mynda
frá Islandi í stórum myndabók-
um, úrval mynda frá Ólafi Magn-
ússyni ljósmyndara o. fl. þar
voru íslenskir búningar og ísl.
handavinna, silfurbelti gömul og
ný, trjeskurður, gull- og sdlfur-
smíði, armbönd, men, hálsfestai
o. s. frv., einnig vefnaður og út-
saumur, alt úrvalsmunir, Mál-
verk voru þar einnig nokkur —
Alt þettta hafði Meulenberg pre-
fect útvegað og fylgdu því skýr-
ingar frá hoúum. Má af þessu
sjá, að það hefir ekki verið fyr-
irhafnarlaust fyrir hann, að gera
þessa sýningu úr garði. Á hann
skilið þalckir og hrós Islendinga
fyrir alla frammistöðuna þeirra
vegna á þessu merkilega alþjóða-
móti.
Merkur maður sænskur, sem
dvalið hefir í Róm, hefir nýlega
skrifað um sýninguna í Vati-
kaniu og þykir hún mjög yfir-
gripsmikil og merkileg. Hún varð
milku stærri, segir hann, en í .
fyrstu var ráðgert, og þangað
sækja menn frá öllum þjóðum.
Framsókn kristindómsins er
sýnd þar frá. fyrstu tímum og
fram á okkar daga. I fyrsta saln-
um er mjög stór uppdráttur af
Gyðingalandr, en svo koma höf-
uðdrættir kristnisögu heimsins í
öðrum sölum, sem standa í sam-
bandi við hann. I noklcrum
sölum eru til sýnis bækur og rit,
sem trúboðar hafa skrifað um
þau lönd, sem þeir hafa hver um
sig starfað í. Yfir höfuð nær
þessi sýning til allra þjóða jarð-
arinnar og gefur hugmynd um
lifnaðarhætti þeirra. þar eru t. d.
sýnd Budda-musteri frá Asíu og
þar er 4 metra há eftirlíking af
fjallinu helga í Kína. Menn kynn-
ast þar Indíánum frá Norður-
Ameríku og þar eru sýndar þær
hættur, sem útlendingum mæta í
heitu löndunum næst miðjarðar-
línnni, og hvernig helst megi
veijast þeim. Menn kynnast
dýralífi og jurtagróðri Brasilíu
og sömuleiðis heimskautaland-
anna o. s. frv. og yrði hjer of-
langt mál, að taka upp lýsingar
á öllu þessu. það er páfinn sjálf-
ur, Pius XI., sem átt hefir upp-
tökin að því, að koma þessari
miklu sýningu í framkvæmd, og
markmið hennar er auðvitað, að
sýna menningaráhrif kristin-
dómsins í öllum álfum heimsins.
----------------o-----
Gullbrúðkaup áttu 7. þ. m. Eyj
ólfur Runólfsson og Vilhelmína
Eyjólfsdóttir á Saurbæ á Kjal-
arnesi.
Ljóðmæli eru nýkomin hjer út
eftir sjera Guðlaug Guðmunds-
son, 160 bls., með mynd höf.,
og verður nánar getið síðar.