Lögrétta


Lögrétta - 08.07.1925, Síða 4

Lögrétta - 08.07.1925, Síða 4
4 Lö GRJETTA tölu við hin eiga þau að greiða minna, en ekki meira, til al- mennra þarfa. það er rjettlátt, því að þau leggja fram sinn skerf, ef þau ala börnin sín vel upp, þótt þau að sjálfsögðu noti sjer þá hjálp, sem ríkirfu er sjer- staklega skylt að láta í tje. Nl. Guðm. R. Ólafsson úr Grindavík. ---o--- Fug-larækt. I. það eru víst bráð-um 2 ár síð- an jeg skrifaði grein í Morgunbl. um arð af hænsnarækt. Nefndi jeg þar nokkur dæmi um arðvæna hænsnarækt í Danmörku. — Kunningi minn ljet þá í ljósi það álit sitt, að jeg hefði „seilst langt til loku“ í þessu efni. Sagði að jeg -hefði átt heldur að skýra frá reynslu hænsnaeigenda hér og arðsemi þeirra af hænsnarækt. það hefði jeg og viljað gera. En hluturinn er sá, að þeir eru til- tölulega fáir er halda skýrslur um fuglarækt sína. það er gallinn. þetta sem jeg sagði um arð- semi hænsnaræktarinnar hjá Dön- um, ætlaðist jeg til að hvetti þá sem lásu þessa Morgunblaðsgrein til að sinna eitthvað þessu máli, og athuga hvernig hænsnaræktar- búskapurinn ber sig hjer. Nú eru margir, bæði hjer í Reykjavík og annarsstaðar famir að stunda alifuglarækt, meir en áður gerðist. Hjá mörgum er þetta í byrjun og barndómi, og meðan svo er, vilja þeir lítið segja um árangurinn eða arðsem- ina af sínum tilraunum, og það er skiljanlegt. Árið 1892 fluttu Danir út um 140 miljónir eggja, er seldust fyr- ir 7 milj. krónur, en árið 1900 nam útflutningurinn 356,6 milj. eggja, og fengust fyrir þau 16,5 miljónir króna. — Árið 1922 fluttu þeir út 736,3 miljónir af eggjum, og andvirði þeirra nam 115,4 miljónum króna. Á þessum 30 árum hefir þá útflutningurinn gert meira en fimmfaldast, en verð eggjanna er sextánfalt og þó meira en áður var. — þetta ár, 1922 var tala alifugla þar um 20 miljónir. í Englandi og Wales taldist svo til, árið sem leið, að þar væru eins árs gömul hænsni og eldri um 15 miljónir, og að varpið næmi um 1800 miljónum eggja eða nálægt 120 egg á hænu til jafnaðar. Árið 1922 voru flutt inn til Noregs 3070 tonn af eggjum. En árið sem leið fluttu þeir út um 7000 tonn, og fullnægðu auk þess innanlandsþörfinni eða eftirspurn- inni. — Annars var talið fyrir fá- um árum, að öll eggjaframleiðsla þar í landinu hefði numið um 6 miljónum króna að verði. Á Frakklandi eru talin að vera 50 miljónir hænsna, er verpa um 7000 miljónum eggja. II. það er mjög misjafnt hvað hænur vei-pa mörguum eggjum á ári. Fer það eftir kynferði, en þó mest eftir því, hvernig hænsnin eru hirt o. s. frv. Danskur maður skýrir frá því, að besta varphæn- an er hann viti um, hafi orpið 252 eggjum á ári. Fæst egg und- an hænu á hænsnabúi nefnir hann 56. — I sumar er leið fjekk norskur bóndi 1. verðlaun fyrir hænsna- rækt, og voru verðlaunin 100 kr. Hann hefir venjulega 50 varp- hænur, og undanfarin 6 ár hefir eggjatekjan verið að jafnaði 127 —i.88 egg undan hænu. Fóður- kostnað hænsnanna reiknar hann 8—14 kr. á hvern fugl um árið, en beinan arð af eggjasölu og unga, telur hann kr. 16,50 til kr. 30,30. Annar bóndi í Noregi fjekk ár- ið 1921—22 rúm 150 egg undan hverri hænu til jafnaðar, og ágóð- ann metur hann 32 kr. á hænu. Hvert egg vóg til jafnaðar 68 gr. Um það kemur flestum hænsna ræktarmönnum saman, að stóru hænsnabúin beri sig lakar en hin, sem eru minni. Hirðing hænsn- anna verður að jafnaði lakari á stóru búunum en þeim litlu, og eftirlit og nákvæmni miður en skyldi. Eftir norskum skýrslum, árið 1921—22 um varpgæði hinna ýmsu hænsnakynja, var reynslan þessi: 1. Plymont Rocks, 160 egg und- an hænu til jafnaðar, og vóg egg- ið 70 gr. 2. Hvítur Italierne, 130 egg og eggið 62 gr. til jafnaðar. 3. Brún Itálieme, 119 egg og 60 gr. eggið. 4. Svartar Mínorka, 144 egg og 77 gr. eggið. 5. Jaðarhænsni, 132 egg og 53 gr. eggið. Á írlandi eru 26 milj. hænsna og eru þau virt á 300 miljónir króna. — þar var árið 1922—23 gerð samkepnistilraun með varp- hænur af ýmsum kynjum, og kom í ljós, að hvítar Italierne urpu 200 eggjum um árið til jafnaðar, hvítar Wyandor 195 eggjum, brúnar Italierne, 187, Rhode Island Red 185, Ancana 172 og svartar Italierne 164 e'ggjum. Á írlandi og Skotlandi eru 77 ahiferðakennarar eða ráðunautar í hænsnaræktr og þar af eru 33 konur. I Noregi er talið, að hænsnabú með 50—100 hænsnum þurfi um árið fyrir hvern fugl til jafnað- ar 40 fóðureiningar, í þessum fóðurtegundum: 15 kg. bygg, 10 — maís, 5 — hænsnafóður, 2 — síldarmjöl, 10 — kartöflur, 10 — rófur, og auk þessa gras- og matarleyf- ar. Eftir norsku verðlagi nemur þetta rúmum 16 kr. S. S. -----o---- Mentaskólinn. þaðan eru nýút- skrifaðir úr máladeild: a. Skóla- nemendur: Pjetur Hafstein, Da- víð þorvaldsson, Guðm. K. Pjet- ursson, Guðm. Ólafsson, Sæbj. Magnússon, þorv. Blöndal, Pjet- ur Benediktsson, Arnbj. Jónsson, Gunnar þorsteinsson, Gerður Bjarnhjeðinsson, öll með 1. eink. Komelius Haralz, Eir. Benedikts- son, María Hallgrímsdóttir, Úlf- ur Jónsson, Ilar. Sigurðsson, þorst. Ögm. Stephensen, Krist- ján Grímsson, með 2. eink., Jón Guðmundsson með 3. eink. — Utanskóla: Einvarður Hallvarðs- sot,, Bjöm L. Jónsson, Jónatan Hallvarðsson, Steind. Steindórs- son, þorst. Stefánsson, Björn Halldórsson, með 1. eink., Arngr. Björnsson, Bened. Stefánsson,- Hákon Guðmundsson, með 2. eink., Árni Guðmundsson, Val- geir Helgason , Sigurj. Guðjóns- , son með 3. eink. Úr stærðfræðisdeild útskrif- uðust: Hjálmar Vilhjálmsson, Torfi Jóhannsson, Gísli Halldórs- son, Bergsv. Ólafsson, Leifur Guðmundsson, með 1. eink., Gunnl. Briem Einarsson, Kjart- an Jóhannsson, Jóhannes Ás- kellsson, með 2. eink. og utan- skóla: Valdimar Briem með 2. eink. Langhæsta einkunn, 7,25, hlaut Pjetur Hafstein, sonur Marínós Hafstein fyrv. sýslumanns. Bmðkaup í fornum stíl hjelt Niels bóndi Sigurðsson á Æsu- stöðum í Eyjafirði 27. f. m., er hann gifti tvær dætur sínar, Helgu og Jónínu, hina fyrnefndu Pálma Jósefssyni kennara í Rvík, en hina síðarnefndu Sveini Frí- mannssyni útgerðarmanni í Ólafs- firði. Boðsgestir \oru um 200. Nína Sæmundsson myndhöggv- ari er nýlega komin hingað til bæjarins og fer um tíma í átt- haga sína austur í Fljótshlíð. Hún hefir nú lengi dvalið ytra, lengst í París, en einnig í Sviss og ítalíu og enn um tíma suður i Marrokko. Mynd hennar, „Móð- urást“, sem orð fór af á Parísar- sýningunni í fyrra, hefir nú verið keypt hingað fyrir 9000 kr. Jóltannes Patursson, hinn nafn- kunni stjórnmálaskörungur Fær- eyinga, dvelur hjer um tíma í heimsókn hjá dóttur sinni og tengdasyni. Var hann nýiega á skemtimóti við þjórsárbrú og • flutti þar ræðu. 25 ára stúdentar, sem mættust hjer í ár, gáfu Mentasikólanum málaða mynd af Jóni heitnum þorkelssyni rektor, gerða af Jóm Stefánssyni málara, sem er einn í hópnum. Annar í hópnum, Páll Sveinsson kennari flutti ræðu og kvæði á latínu við skólauppsögn er myndinn var afhent. Auk þeirra tveggja eru í hópnum: Jón Isleifsson verkfr., Lárus Fjeldsted lögmaður, Sigur- jón Markússon fyrv. sýslumaður, Sveinn Björnsson fyrv. sendi- herra, sjera Stefán Bjömsson á Hólum, sjera Ásgeir Ásgeirsson í Hjarðarholti, Páll Jónson lög- maður á íafirði o. fl. 40 ára stúdentar mættust hjer nokkir nú í byrjun þessa mánað- ar: Árni Jónsson prófastur í Görðum, sjera Einar Friðgeirs- son á Borg, sjera Guðl. Guð- mundsson, Lárus H. Bjarnason hæstarj.dómari, Magnús Bjamar- son prófastur á Prestsbakka, Pjetur Hjaltested stjórnarráðs- ritari, Ríkharð Torfason banka- bókari og þórður .Jensson stjóm- arráðsritari. Dánarfregn. Vjelstjórinn . á Varanger, Einar Guðbjartsson, er nýdáinn á Akureyri. Varð bráðkvaddur. Hafísinn. það er sagt að hafís- laust sje nú orðið á Ilalamiðinu. Glímumennimir eru nú komn- ir aftur frá Noregi og gekk ferð þeirra ágætlega að öðru leyti en því, að einn þeirra, Jörgen þor- bergsson, veiktist í taugaveiki og varð eftir í Noregi. — Islands- glíman var háð hjer rjett eftir að þeir komu heim og vann Sig- urður Greipsson Islandsbeltið í fjórða sinn. Frímúrarastúka er nýstofnuð á ísafirði. Dánarfregn. 28. maí síðastlið- inn andaðist á Gimli í Nýja-Is- landi þuríður Stefánsson, ekkja Helga Stefánssonar, Mývetnings, sem lengi hafði veiið vestra, en dóttir Jóns heitins Sigurðssonar alþingismanns á Gautlöndum. Stefán Stefánsson túlkur hefir samið á ensku dálítinn bækling handa erlendum ferðamönnum og ferðamannafjelagið Hekla gefið hann út. Frágangur allur er góður og myndir vandaðar. Fyrirlestur flutti Páll læknir Kolka frá Vestmannaeyjum hjer síðastl. mánudagskv., skýrði frá rannsóknum sínum á hinum dul- arfullu lækningum þar, sem mik- ið var talað um síðastl. vetur og vor. Taldi hann allar þær lækn- ingar h'igarburð og ekkert ann- að, en ýkjur sagði hann að væru í sögunum, sem af þeim igengju. Stórstúkuþing hefir verið háð hjer í bænum og var fjölment. F',ramkvæmdanefndin var endur- kosin, nema Sigurður kaupm. Kristjánsson á Siglufirði, sem ekki sótti þingið, og var kand. Sigurbj. Á. Gíslason kosinn í hans stað. Stórtemplar er Bryn- leifur Tobíasson kennari á Akur- eyri. Heiðursfjelagar voru kosn- ir: Sigv. Bjarnason trjesmiður, Stefán Runólfsson prentari og Sveinn Jónsson kaupm., allir í Rvík og Gísli Lárusson útgerðar- maður í Vestmannaeyjum. Danski stúdentasöngfl. kom hingað í morgun með Gullfossi og heilsaði Reykvíkingum með BÓKAVERSLUN þORSTEINS GÍSLASONAR Veltusundi 3, Reykjavík, hefir gefiö \it margar bestu bækurn- ar, sem út bafa kornið hjer á landi á siðari árum og þær bækur eru nú einnig, eftir verðlækkunina, ódýrari en aðrar brekur, sem gefnar hafa verið út á sama tima. Bækurnar eru til sölu hjá kaupfjelögunum úti um iand og hjá bóksölum þar sem kaup- ‘jelög eru ekki. Islensk endurreisn eftir Vil- hjálm þ. Gíslason, kom út haust- ið 1923, mjög fróðleg bók, og segir frá merkilegum atriðum úr sögu landsins á löngu tímabili, sem lítt hefir verið rannsakað áður á þann hátt, að heildaryfir- lit hafi fengist, og er þar margt dregið fram um menn og mentir 18. aldarinnar og fyrri hluta 19. aldarinnar, sem áður var í gleymsku. Bókin hefir verið not- uð við kenslu í skóla sjera Eiríks Albertssonar á Hesti. Úr ummælum um bókina í blöðum og tímaritum skal þetta tekið upp: „..Eftir r.iti þessu að dæma má fyllilega vænta þess, að hjer hafi bætst í hópinn efni- legur sagnfræðingur, sem eigi eftir að auðga sögubókmentir okkar með mörgu góðu riti“ (Vörður). — „Höf. gerir sjer mikið far um að rekja erlend áhrif á íslenska menning. þetta er ágætt. því einmitt í þessu efni hafa flestir sagnaritarar okkar syndgað“ (Skírair). — „Ilefir til- tölulega lítið verið ritað um þetta merMlega tímabil í sögu íslensku þjóðarinnar, síst í samhengi, svo að ritið, sem hjer kemur fram, er brautryðjandi á þessu sviði“ (Mrg.bl.). — „Yfirleitt virðist rannsóknin samviskusamlega og hlutdrægðnislaust gerð. Bókin er skemtileg..“ (Eimr.). — „Mjög margt af þeim málum, sem bókiin ræðir um, hefir gildi fyrir ís- lenskt þjóðlíf enn í dag, t. d. í trúmálum, verslunarmálum og skólamálum, fyrir utan skáldskap- inn“ Lögr). Bókin er 432 bls. og kostar 9 kr. í kápu, en í sjirtingsbandi 12 kr. og í skinnbandi 15 kr. íslensk þjóðfræði, eftir Vilhj. þ. Gíslason, kom út haustið 1924 og ræðir um nýtt fyrirkomulag á hinum hærri skólamálum og mentamálum hjer á landi. Er þar ágrip af skólamálasögu landsins og rakin tildrögin til stofnunar Háskóla Islands. Bókin er 160 bls. og kostar kr. . 3,50. söng frá þilfari skipsins. Móti söngflokknum var tekið með ræðu, sem borgarstjóri hjelt, og karlakór K. F. U. M. söng, undir stjórn Jóns Halldórssonar. Franconia heitir skemtiferða- skip frá Ameríku, sem væntan- legt er hinigað í kvöld-með fjölda farþega, og ætla margir þeirra á bílum til þingvalla. Páll þorkelsson gullsmiður, og fræðimaður verður á morgun hálfáttræður, en er enn vel hress og stundar bæði smíðar og rit- störf. Frú Júlíana Thordarson, kona hins fræga rafmagnsfræðings Hjartar Thordarson í Chicago, er nýlega komin hingað til bæjarins ásamt sonum þeirra tveimur upp- komnum og dvelja þau hjer um tíma. — þau hjónin dvöldu hjer fyrir mörgum árum eitt sumar. Sigurður Magnússon læknir á Vífilsstöðum hefir skrifað ritgerð um berklaveiki í júlíhefti enska heimsvísindaritsins Tubercle. Fannannsljóð Jóns S. Berg- manns fást í Bókaverslun þoi*st. Gíslasonar, Veltusundi 3. Læknafjelag íslands. I því átti að vera fundur hjer í bænum í byrjun þessa mánaðar, en fórst fyrir vegna þess, hve fáir læknar utan af landi komu. Guðmundur Emil Jónsson, son- ur Jóns múrarameistara í Hafn- Hefnrðn keypt Arsrit FræðafjeUi'rsiiis | ttg safii jiess mn Íslnníl og íslemliiiirn? Shannongs Moimineiit-Ate- lier, Oster-Farimagsgade ú Kliöfn. Stærsta og' góðfræg- asta legsteinasmiðja á Norður- iöndum. Umboðsmaður d Is- landí: Snæbjörn Jónsson, stjórnarráðsritari, Rvik. Islaudske frimerker önskes i bytte. Kan til gjengjæld gi norske frimerker og ældre utenlandske. Kjöper ogsaa nyere og ældre islandske merker. Send tilbud til Overretssakf. Kristian Forsting Kristiansund' N. Norge. Matarfélag Kennara- og Samvinnuskólans hefir starfað tvo síðastliðna vet- ur. Reyndist það félagsmönnum svo gott og ódýrt, að ekki hefir fengist sæmilegt fæði hér í Reykjavík með betri kjörum. þeir nemendur skólanna, sem hafa hug á að verða í félaginu næsta vetur, ættu að sækja um það til Gunnlaugs Björnssonar Bergstaðastræti 51 fyrir 20. september næstkomandi. Kaupbætir Lðgrjetti'. Um leið og menn borga yfir- standandi árgang Lögrjettu (20. árg.), geta þeir á afgreiðslu blaðsins fengið í kaupbæti, eftir eigin vali: Ljóðmæli eftir Grím Thomsen eða söguna Baskerville- hundurinn, eftir A. Conan Doyle, meðan upplag af þeim bókum endast. NB. Óski menn að fá kaupbæt- irinn sendan með póstum, verða þeir að senda í burðargjald 50 aura. Lögrjetta. Innan skams mun byrja í blað- inu neðanmálssaga, ein af fræg- ustu skáldsögum heimsbókment- anna, þýdd af Einari H. Kvaran og sjera Ragnari E. Kvaran. Nýir kaupendur að Lögrjettu frá 1. júlí þ. á. fá blaðið til ára- móta fyrir 5 kr. TAPAST HEFIR lág, jöi*p hryssa, merkt G. á vinstri síðu, aljáárnuð,með beisli. Sá, sem kynni að verða hennar var er vinsamlega beðinn að koma skeytum til Ól. Isleifssonar þjórsártúni. Hin ágæta bújörö, flrgilsstaöir (hálflendan) ásamt Vallarhjá- leigu í Hvolhreppi, Rangárvalla- sýslu, fæst til kaups og ábúðar í næstu fradögum. Jörðinni fylgir íbúðarhús úr timbri, heyhlöður sem taka 700 hesta af heyi. Gott fjós fyrir 10 nautgripi og önnur fjenaðarhús í góðu standi. Óvanalega góð og mikil beitilönd fylgja jörðinni. Menn snúi sjer til eiganda jarðarinnar, ábúandans Berg- steins Ólafssonar. arfirði, hefir nýlega lokið prófi í verkfræði við háskólann í Khöfn með hárri I. eink., aðeins 22 ára gamall. Gengi erl. myntar er í dag: Pnd. sterl. 26,25, 100 danskar kr. 111,16, 100 sænskar kr. 144,98, 100 norskar kr. 97,20, dollai' kr. 5,41 i/j._______________________ Prentsmiðjan Acta.

x

Lögrétta

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögrétta
https://timarit.is/publication/196

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.