Lögrétta


Lögrétta - 06.04.1926, Page 2

Lögrétta - 06.04.1926, Page 2
2 LÖGRJETTA Víking skilvindan reynist best. Skilur 65, 120, 220 lítra. Nægar birgðir og varahluti hefir ávalt fyrirliggj- andi og selur og sendir um land alt, gegn póstkröfu Hannes Olafsson. Grettisgötu 2. Sími 871. Reykjavík. Borgin eilífa örfáar ferðaminningar. Ef'tir Gunnar Árnason frá Skútustöðum. Frh. ------------ örstutt frá þessari kirkju er Carcer Mamertinus. það er hið fomfræga og Ulræmda neðanjarð- arfangelsi. þar sem skaðlegustu óvinir ríkisins voru hafðir í haldi og píndir til dauða. þar ljetu þeir Jugurta og Versingatorix líf sitt. þykkir eru múramir og skuggalegt er þar. — Engin hætta að nein hljóð eða merki segi eftir — og engin von að nokkur slyppi. Klefarnir eru hver niður af öðrum og er farið eftir þröngum tröppum. Æði ofarlega er nú háheilög kapella þar sem einn klefinn var. þar eru sífelt munkar á bæn og verði. Segja þeir að þar hafi Pjetur postuli beðið dauða síns og benda á stað- inn í veggnum þar sem hlekkir hans voru festir, og staðina í gólf- inu þar sem hann lá og píndist. Og ferðamaðurinn sem komið hef- ur af forvitni og til að skemta sjer — hljóðnar og viknar. Jafn- vel mestu heimsmennimir drúpa höfði og finna óljóst, að hjer ættu þeir að krjúpa og biðja —- því þetta er sannlega heilagur staður. Norðaustanvert við Kapitolhæð, rjett hjá Piazza di Venezia er Foro Trajano. það þótti prýði- legast allra keisaratorganna. Nú er það eins og niðurgrafinn bama- leikvöllur milli borgarstrætanna. Hlgresi grær þar vel og upp úr því standa mörg meiri og minm súlnabrot. þó er þar ein mikil prýði, það er hin 45 m. háa Trajanssúla, sem á eru greyptar myndir úr herferð keisarans. Hef- ur sú súla lítt molnað undan tím- ans tönn og stendur eflaust óbrot- gjöm margar aldir enn. Undir henni er aska Trajans keisara geymd í gullkeri, en upp á hana setti Sixtus páfi V eirblendings- mynd af Pjetri postula. Er þessi súla þannig tákn sögu borgarinn- ar sem fleira. þarna niðri á Trajanstorgi er nú fult af villiköttum, sem af gamalli hefð og hjátrú eru aldir á kostnað borgarinnar. Að sumu leyti er það máske ekki sem óvið- feldnast margt kattagaman og kattaleikur hefir þar að sjálfsögðu verið líka í fyndinni. Pantheon er sú byggingin frá keisaratímunum, sem einna best hefur varðveitst. Agrippa vígði þetta hringmusteri 25 f. K., en í sinni núverandi mynd er það frá dögum Hadrians. Fyrst er 33,5 m. breitt og 13 m. hátt andyri, sem hvílir á fögrum granítsúlum. það ljet Septimus Severus gera. Hið innra er aðeins einn stórfeng- legur hringsalur, og yfir hanum hvelfist kúpull, sem er 9 m. aö þvermáli (lítið eitt meira en á Pjeturskirkjunni, en miklu lægri). Mjög var þetta skreytt til foma, en nú er það alrúið öllu skrauti. Eins og nafnið bendir til var byggingin upprunalega helguð höfuðgoðunum, en Bonifacius IV breytti musterinu í kirkju og kallast hún nú Santa María Rotonda. í Pantheon hvíla þeir Victor Emanuel og Umberto I. En skjótt gleymast þeir hjá gröf Rafaels, sem þar er og. Sú gröf er innar- lega hægra megin og er næsta látlaust minnismerkið, en svo mun flestum finnast sem andi Rafaels hvíli þar yfir og opni mönnum sýn inn í eilífan heim lista og fegurðar. Sunnanvert við borgina eru bað- hús Caracalla (keisari 311—317). Er hans að fáu góðu getið annars en þessara stórhýsa. Næst Colos- seum eru þær rústir stórfengleg- astar allra. Mikið stendur enn af múrunum og minna þeir helst á jötnaborg, enda er sagt að 16000 manns hafi getað baðast þar í einu. Allskonar böð mátti þar taka, en auk baðherbergjanna voru fagr- ir og miklir salir, þar sem fólk átti með sjer mót og viðræður. Enda krafðist lýðurinn jafnt bað- húsa af keisurunum, sem leikhúsa og korns. Enginn getur nú gert sjer í hugarlund dýrðleika og fegurð þessara sitórhýsa — heimsdrotnurunum einum hafa þau getað til hugar komið. En víst er um það. að auk skrauts- ins hefur þar engin þægindi skort. Meðal annars, var þar vestan- megin byggingarinnar (Stadium) íþróttavöllur, sem var 330 m. lang- ur og 120 m breiður. Sýnir það, að alt hefur verið þar í miklu stærri stíl en nokkra dreymir nú um. þá hefi jeg minst á ýmsar menjar gullaldarinnar, sem enn vekja undrun og aðdáun vegfar- andans. — Áður en jeg svo drep á það vald sem lengstan tíma hefur ráðið lögum og lofum 1 Róm og « » * -V t t» 81 * •‘likwjjí * i skapað henni mesta frægðina, skal enn getið þess bautasteins fomaldarinnar, er síst ætti að gleymast. það er Engilsborg. Hún stendur á vesturbakka Tíberfljóts, líkt og á mótum páfahverfisins og aðalborgarinnar og er það vel til fallið, því hún er í einu minnis- merki keisarafrægðarinnar og páfaljómans. Hadrian keisari á hugmyndina að Engilsborg, er hann ákvað að skyldi vera haugur sinn. Ætlað- ist hann til að hann yrði ein- stæður og varð svo líka. Neðri partur byggingarinnar, sem er mjög niðurgrafinn er eitthvað um 90 fermetrar. Á honum hvílir svo aðalhringhúsið sem er 67 m. að þvermáli. Upp á því stóð risavaxið líkneski af Hadrian keisara. — Antonius. Pius lauk við Engils- borg. Voru í neðri hæðinni fjöldi steingrafa, en í hringhúsinu miðju grafir þeirra Hadrians og drotningar hans. Síðan hefur Engilsborg tekið miklum stakkaskiftum. Snemma voru líkneskjurnar, sem skrýddu brúnirnar, brotnar og Bonifacius IV vígði 608 bænahús uppi á henni. þá var efst sett stytta Mikaels erkiengils í stað Hadri- ans. Brátt var og borgin gerð að vígi. Síðar varð hún fangelsi páf- anna eins og allir vita, loks her- mannaskóli, þar til í byrjun þess- arar aldar að hún var færð sem mest í sína upprunalegu mynd og friðhelguð fyrir öðru en augum umferðamanna. það sem nú er helst að sjá í Engilsborg eru ýms fræg herbergi, sem páfamir hafa látið skreyta, t. d. rjettlætissal- urinn, borðstofa Loós X, setu- stofa og baðherbergi Klemensar VII, loggía Júlíusar II sem Bram- ante bygði, loggía Páls III bygð af Sangallo o. s. fi*v. Veggmál- verk og steinmyndir þessara saia kann jeg ekki að meta, enda sjest minst af þeim þó snöggvast sje gengið í gegnum herbergin. — En heill sje þeim stórmennum, er hafa slíka listamenn í þjónustu sinni, sem þessir páfar allir. Eftir fomum vindustiga úr steini má komast upp á þakið — og þaðan er gott skygni yfir borgina miklu. það er og yndi að líta yfir Tíber, eins á kastala- brúna. þrír stöplar hennar em frá dögum Hadríans, en rið hennar eru skreytt fallegum líkneskjum. ð Reyniiiallaliálsi. Geng jeg upp íjallið í hádegishita, heimkynni vinanna kveð jeg um stund. Brjóstið er óvant; jeg boga í svita, bið jeg um hvíld til að lita á grund. Hvort mun ei útsýnið erfiðið bæta — altaf er vinningur marki að má •— néttúrubókin hin bjarta mig kæta, blööunum máluðum fjöllum og sjé? Hvílikur sigur! Hin sólgullna jörðin sjest hjeðan spegluð í Hvalfjarðarlé. Tignin á Botnsúlum blæðir um fjörðinn. Brynjudalsró vekur seiðandi þrá. þyrillinn opnuna kórónu krýnir. Kvakar hjer fuglinn um heillandi vor fæðuna ungunum ákafur tínir. Ætli hann viti um hjarðmanna spor? Hjerna fór drengur með hjörOina smáu, hjer mátti’ hann klifa hvem einasta dag. Lærði hann máske af hæðinni háu að horfa á brattann og nota sjar lag? Geng jeg á spor hans er sveima jeg svona, sefur í brjósti mjer keppni og þor? Óttaleg heimska! Jeg aðeins er kona, ónýt að feta í karlmannaspor. Verður mjer litið á blaðsíðu bjarta blikandi í norðri, jeg greina vil orð. þarna í miðjunni þekki jeg svarta þankanna strikið, sem vitnar um morð. Vitnar til mannlegra villidýrshvata, vitnar þó jafnframt um kvénlegan þrótt. Segir: þú mátt ekki gullinu glata, geturðu’ ei tápið í ættina sótt! Minnir á söguna af Helgu og Herði, hollvættur þessi við Fjallkonuskaut. þarna stóð Hólmverja hetjan að verði, heitmeyjar sinnar þar útlaginn naut. Kærleikur heitur og æskunnar yndi örlögum storkaði kvíða og sorg. Jarlsdóttur fríðri af fjarlægu strindí Freyja hjer tjaldaði skínandi borg. Vistirnar Hörður sem víkingur sótti víða um fjörðinn um nætur og kvðld. Vildi þá hjartanu uggur og ótti ástmeyjar kvikna og taka þar völd. Vomóttin draumkend og dallæðan mjúka dró þó um vangana huggunarmund, langnættið óf henni inndæla dúka iðandi Norðljósa faðmandi grund. Gullfögur drotning í landinu litla, lóðrjetta hólmanum börðum af sjé; kærði sig ekkert um upphefð nje titla ófleygi svanurinn firðinum é. En þegar hreiðrið af fjendum var íundið, fóstbræður tældir í ójafnan leik, gleðinnar hnakka að Helgu var undið, harmandi grjet þá hin volduga eik. Kvenhetjan prúða og móðirin mikla mátti’ ekki gráta það sorglega biót. V. Hugo: VESALINGARNIR. munuð fullnægja rjettlætinu, kviðdómarar o. s. frv. o. s. frv.“. Meðan málfærslumaður stjómarinnar var að tala, sat ákærði og hlustaði með opinn munninn, fullur af undrun, og blandaðist saman við hana nokkur aðdáun.Hann furðaði sig bersýnilega á því, að nokkur maður skyldi geta talað svona. Við og við, þegar tilþrifin voru mest og mælska málfærslumannsins flóði út yfir aila bakka, hristi hann höfuðið hægt og var það þungiyndisleg, þögul neitun hans, er hann hafði einskorðað sig við frá upphafi. Tvisvar, þrisvar sinnum heyrðu áheyrendumir, -sem sátu næstir honum, hann segja í hálfum hljóðum; ,,Já, sjáið til, þama eru nú afleiðingamar af því að þeir hafa ekki spurt herra Blavup!" Málfærslumaðurinn leiddi athygli kvið- dómaranna að þessum bersýnilega uppgerðar sljóleika, sem ekki var vottur um gáfnaskort, heldur um kænsku, Iymsku og leikni í því að villa rjettlætinu sýn, og benti þá á, hversu maðurinn væri gjörspiltur. Hann endaði með e.ð áskilja sjer fyrirvara um mál Gervais litla og krefjast þyngstu hegningar. Verjandi stóð upp, byrjaði með því að slá sækjanda gullhamra fyrir aðdáunarverða ræðu hans og svaraði síð- an eins vel og honum var unt, en svarið var veikt. Hann var bersýnilega að missa fótfestuna. Tíminn var kominn til þess að hætta umræðum. For- seti bauð ákærða að standa upp og lagði fyrir hann vana- legar spumingar: „Hafið þjer nokkuð frekar að segja yð- ur til varnar ?“ Maðurinn stóð upp og sneri hræðilegri húfu milli hamdanna og virtist ekki taka eftir spumingunni Forseti endurtók hana. Nú virtist maðurinn taka eftir og líka skilja. Hann hrökk við eins og maður sem er að vakna, leit umhverfis sig, á áheyrendur, á lögregluþjón- ana, á verjanda sinn, á kviðdómarana, á dómarana, lagði ógurlegan hnefa sinn á grindumar fyrir framan bekkinn sinn, horfði enn einu sinni umhverfis sig og tók nú alt í einu að ta!a, og starði nú á sækjanda. það var líkast eld- gosi. Ef dæma hefði mátt af því, hvemig orðin kamu út úr munni hans, samhengislaus, hröð, eins og í einni bendu, mátti ætla, að þau væru að brjótast um til þess að kom- ast öll út í einu. Hann mælti: „Jú, þetta hjerna þarf jeg að segja: Að jeg hefi ver- ið hjólasmiður í París, og það var auk þess hjá herra Baloup. það var ljóta lífið. Hjólasmiðir vinna altjent und- ir beru lofti, í görðum, hjá góðum húsbændum í skúrum, aldrei í lokuðum smiðjum, því að rúm þarf að vera, eins og þið skiljið. Á vetrum er kalt, og ekki ainnað að gjöra en berja sjer til þess að halda á sjer hita, en það vill hús- bóndinn ekki leyfa, því að það eyðir tíma, segir hann. Að taka á jámi, þegar ís leggur milli götusteinanna, er kulda- verk, þið megið reiða ykkur á það, og er ekki lengi að gjöra út af við mann. Menn verða gamlir við það verk, þó að þeir sjeu enn ungir. þegar fertugsaldri er náð, er öllu lokið. Jeg var fimtíu og þriggja og varð margt ilt að þola. Og svo eru daglaunamennimir svo illgjarnir. þegar mein- laus maður er ekki ungur lengur, kalla þeir hann gamlan bjána eða gamlan durg. Jeg vann mjer ekki inn nema þrjátíu súur á dag; jeg fjekk eins lítið og unt var fyrii vinnu mína, húsbændurnir notuðu sjer hvað jeg var gam- all. En svo átti jeg dóttir, sem þvoði fyrir menn, hún vami sjer dálítið inn, svo að við komumst af. Hún átti líka örð- ugt. Að standa allan daginn hálfur niður í þvottabala, í rigningu og snjókomu og stormum beint framan í sig — þó að frost sje, stendur á sama, það verður að þvo, ýmsir hafa lítinn fatnað og bíða eftir honum, og ef ekki er þveg- ið, fara viðskiftamennimir. Balarnir eru nærri því aldrei sæmilega þjettir, svo að vatnið lekur alstaðar úr þeim. Pilsin verða rennblaut að ofan og neðan. Vatnið kemst inn að skinni. Hún þvoði líka í þvottahúsinu „Rauðu börnin“ þar kemur vatnið út um krarna. það er ekki staðið í balan- um, en þvegið undir krananum fyrir framan og undið í kerin fyrir aftan. þar er þak yfir höfðinu, svo að kuld- inn er ekki eins napur, en gufa kemur úr heitu vatninu, og er hún hræðileg og spillir augunum. Hún kom heim klukkan sjö á kvöldin og flýtti sjer í rúmið, sd því að hún var svo þreytt. Maðurinn hennar barði hana. Nú er hún dáin. Við höfðum ekki mikið af gæfunni að segja, en hún vai’ sómastúlka, sem ekki fór á dansskemtanir, og hafði lítið um sig. Jeg man greinilega eftir Hvíta þriðjudegin- um*), þegar hún fór í rúmið klukkan átta. Já, svona var það. það er satt, sem jeg segi. þjer þurfið ekki annað en spyrjast fyrii'. 0 jæja, spyrjast fyrir — jeg er bjáni! Par- ís er regindjúp. Hver ætti svo sem að þekkja Champmat- hieu gamla? En jeg hefi bent á herra Baloup. Spyrjist einungis fyrir hjá herra Baloup. Annars veit jeg ekki, hvað menn vilja mjer“. Hann þagnaði og stóð kyr. Hann hafði talað hátt, hratt, hörkulega og rámur, í einhverri reiðilegri og ofsa- fenginni einfeldni. Einu sinni hafði hann þagnað til þess að kasta kveðju á einhvern af áheyrendunum. Staðhæf- ingar hans, sem hann virtist varpa hugsunarlaust út úr sjer, komu eins og hiksti, og samfara hverjum þeirra var látbragð, sem minti á skógarhöggsmann, sem klýfui’ brenni. þegar hann hafði lokið máli sínu, fóru áheyrend- urnir að skeliihlæja. Hann leit á þá, og þegar hann sá þá hlæja og skildi ekki af hverju þeir voru að hlæja, hló hann sjálfur með. það var óskemtilegt. Forseti, sem var athugull og góðfús maður, brýndi röddina. Hann minti „háttvirta kviðdómara“ á, að herra Baloup, fyrverandi vagnasmið, sem ákærði sagðist hafa unnið hjá, hefði verið stefnt árangurslaust. Hann hafði orðið gjaldþrota og ekki hafði tekist að finna hann. því- næst sneri hann sjer að ákærða, áminti hann um að taka vel eftir því, sem hann segði við hann, og bætti svo við: „Ástæður yðar eru nú þannig, að mikil nauðsyn ber til að þjer hugsið yður vel um. Alvarlegur grunur hvílir á yður, og hann getur haft óheillavænlegar afleiðingar. Ákærði, sjálfs yðar vegna hvet jeg yður í síðasta skifti til þess að svara skýrt ög greinilega þessum spurningum: *) Siðasti dagur kjötkveðjuhátíðarinnar.

x

Lögrétta

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lögrétta
https://timarit.is/publication/196

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.