Lögrétta - 10.08.1926, Qupperneq 1
[nnhtimta og afgreiðsla
í Þingholtsstrœti 1
Sími 185.
LOGRJETTA
Útgefandi og ritstjór'
Þorsteinn Gíslason
Þingholtsstræti 17.
Sími 178.
XXI. ár.
Reykjayik, þriðjudaginn 10. ágúst 192(5.
33. tbl.
Sjera Eggert Pálsson
prófastur og alþingísmaður.
6. þ. m. andaðist sjera Eggert
Pálsson prófastur á Breiðabóls-
stað í Fljótshlíð, 1. þm. Rang-
æinga. Kendi hann lasleika síðari
hluta þingtímans í vetur, og
þyngdi honum svo eftir að þingi
sleit, að hann fór utan í júnímán-
uði 1 vor, til að leita sjer lækning-
ar, og var skorinn þar upp. Mein-
ið var í lifrinni og ljek nokkur
vafi á, hvort um væri að ræða
krabbamein eða sull, en svo reynd-
ist, að þar var krabbamein, og
varð það bani hans. Mun hann
sjálfur hafa búist við því, er hann
fór hjeðan í vor, að hann ætti
ekki afturkvæmt heim lifandi. En
hann var þrekmaður mesti og
bar sjúkleikann vel.
Hann var fæddur 6. október
1864 í Sogni í Kjós, sonur Páls
Einarssonar bónda þar og konu
hans Guðrúnar Magnúsdóttur
Waage. 1886 útskrifaðist hann úr
Latínuskólanum og úr Prestaskól-
anum 1888. Ári síðar fjekk hann
veitingu fyrir Breiðabólsstað í
Fljótshlíð, og vígðist þangað 11.
ágúst 1889. Var hann þá nýkvænt-
ur Guðrúnu Hermannsdóttur
Johnsen sýslumanns á Velli í
Rangárvallasýslu, og hafa þau síð-
an búið á Breiðabólsstað með mik-
illi rausn og prýði.
Sjera Eggert varð brátt for-
gangsmaður sveitunga sinna og
sýslubúa í öllum málum, sem til
framfara horfðu. Hann var sjálf-
ur búmaður ágætur og hafði ein-
lægan áhuga á öllu, sem laut að
því, að auka og bæta ræktun
landsins. Vann hann sjer brátt
mikið álit og vinsældir 1 hjeráð-
inu, bæði sem kennimaður og for-
göngumaður í opinberum málum.
1902 var hann kosinn á þing,
og sat síðan á þingi sem full-
trúi Rangæinga fram til 1920,
fjell við kosningu haustið 1919, en
var aftur kosinn 1923. Hann var
fastur og einbeittur fylgismaður
Heimastjómarflokksins alla tíð
meðan þau mál, sem sá flokkur
beitti sjer fyrir, skifti þingi og
þjóð í flokka, og var járnbrautar-
lagning frá Reykjavík til Suður-
láglendisins hans mesta áhugamál.
Hefur hann skrifað í Lögrjettu
eftirtektarverðar greinar um það
mál, í sambandi við búnaðarfram-
farir á Suðurláglendinu. Á Al-
þingi var sjera Eggert vinsæll og
vel metinn, fastur og ábyggileg-
ur flokksmaður, sem hvergi vildi
þoká frá því, sem hann taldi rjett-
ast vera, en jafnframt sanngjam
alvörumaður, sem einnig ávann
sjer virðingu andstæðinga sinna í
stjórnmálum. Hann var mikill að
vallarsýn og hinn karlmannleg-
asti, þungur í skauti og skap-
festumaður hvar sem á reyndi, en
stillingamaður og prúður í fram-
göngu, hófsmaður og bindindis-
frömuður. Við dauða hans eiga
Rangæingar á bak að sjá stór-
nýtum manni og vinsælum hjer-
aðshöfðingja.
Þau sjera Eggert og frú Guð-
rún eignuðust eina dóttur, sem
Ingunn heitir, og er gift Skúla
Thórarensen frá Móeiðarhvoli,
sem nú er búandi á Breiðabóls-
stað, og hafði sjera Eggert fyrir
nokkru afhent þeim dóttur sinni
og tengdasyni bú sitt.
Stefán Stefánsson lögfr. frá
Fagraskógi, sonur Stefáns heitins
alþm., er nú tekinn við búi á
föðurleifð sinni og orðinn hrepp-
stjóri þar í hreppnum.
Þorbergui- Þórðarson hefur feng-
ið styrk úr Carlsbergssjóði til
þjóðfræðasöfnunar hjer á landi. —
Hann hefur um tíma dvalið er-
lendis, en er nú innan skamms
væntanlegur heim.
Hennálaráðherra Dana, L. Ras-
mussen, og fjelagar hans í ferð,
sem Danir gerðu út í sumar til
Jan Mayen, komu hingað nýlega
og dvöldu hjer nokkra daga.
Um víða veröld.
Slðustu fregnir.
Fjáimálin eru stöðugt aðalúr-
lausnar og deiluefni franska
þingsins. Poincas, sem nú er
f j ármálaráðherra, lagði til að
stofnaður yrði sjerstakur afborg-
unarsjóður, til greiðslu innan-
landslána og á höfuðtekjustofn
hans að vera tóbakseinkasalan.
Nokkui' skattur hefir einnig verið
lagður á erlenda ferðamenn, sem
til Frakklandsi koma. Ekki þó
talið, að þessar ráðstafanir muni
verða fullnægjandi til viðreisnar
frankanum. Lausaskuldir landsins
r.ema um 49 miljörður franka.
í Bretlandi stendur Kolaverk-
fallið ennþá yfir. Biskupamir hafa
reynt að koma á sáttum, en verk-
fallsmenn eru sagðir fremur frá-
hverfir tillögum þeirra. Um verk-
fallstímann hafa verið flutt inn
til Bretlands um 600 þús. smá-
lestir erlendra kola.
f Póllandi hefur Pilsudski verið
fengið í hendur alt að því ein-
ræðisvald yfir hernum.
Lausafregnir segja uppreisn
gegn ráðstjórninni í Rússlandi.
Pangalos alræðismanni í Grikk-
landi hefur verið sýnt morðtil-
ræði, en það mishepnaðist.
----o-----
Jón Sveinsson. Lögrjetta hefur
nokkrum sinnum áður sagt frá
fyrirlestraferðum Jóns Sveinsson-
ar, S. J., og bókum hans um æsku-
minningar hjeðan heiman frá ís-
landi. En fyrir þær bækur hefur
hann orðið kunnur og vinsæll
víða um lönd. Fyrirlestrarstarf-
semi hans um fsland er þó síður
kunn hjer, að öðru en því helst,
sem Lögrjetta hefur frá henni
sagt. En hann hefur svo að segja
árlega undanfarið flutt marga
fyrirlestra um fsland, einkum í
Þýskalandi. ^íðastliðinn vetur var
hann boðinn til þess að flytja
slíka fyrirlestra víðsvegar um
Suður-Þýskaland, en annars á
hann heima í Frakklandi og hefur
einnig flutt samskonar fyrirlestra
þar, og í Belgíu og Luxemburg.
Sumstaðar talaði hann þvisvar
sinnum sama daginn. Sumir fyrir-
lestrarnir voru fluttir í kaþólsk-
um skólum, eða klaustrum, en
aðrir í almennum samkomuhúsum
og víða í stærstu samkomuhúsum
borganna, fyrir húsfylli.
í Weissenhorn í Bayern flutti
hann t. d. þrjá fyrirlestra í lotu
sama kvöldið, og voru stutt hlje
á milli, og er slíkt þýskur siður.
Var þar fjölmenni. í öðru hlje-
inu stóð upp þýskur prestur frá
Hitzighausen, og bað um leyfi til
þess að mega syngja íslenska
þjóðsönginn, ó, guð vors lands.
Kunni hann hann utan að á ís-
lensku, og söng hann vel, að sögn.
Kvaðst hann hafa heyrt kvenna-
söngflokk syngja hann einusinni
er hann var á ferð í Reykjavík,
með skemtiferðaskipi frá Ham-
borg, hafa orðið hrifinn af lag-
inu, og síðan útvegað sjer nótur
og texta sjálfur.
Af öðrum stöðum, sem sjera J.
S. flutti fyrirlestra í, má nefna
klaustrið St. Ottilien í nánd við
Ágsborg, en þar eru milli 4 og 5
hundruð munkar, en alls á sjö-
unda hundrað manns. Mig skyldi
svo sem ekki undra það, sagði
sjera J. S. sjálfur, eftir heim-
sóknina í þessu klaustri, þótt
munkarnir kæmu einn góðan veð-
urdag og stofnuðu Benedikts-
klaustur á Islandi. — Ennfremur
talaði hann í Freiburg í Bresgau,
en þar er eitthvert hið stærsta
bókaforlag Þýskal., sem meðal
annars hefur gefið út bækur J. S.
og hafði eigandinn, Herder og
kona hans, sem er dóttir þekts
austurrísks uppeldisfræðings Will-
mann’s, boðið J. S. að dvelja hjá
sjer, og var hann þar í vikutíma
í góðum fagnaði. — Meðal margra
og fjölsóttra fyriidestra, sem hann
flutti þar í bænum, flutti hann
einn sjerstaklega fyrir starfsfólk
Herders-fjelagsins, en það er 6—
7 hundruð manns. Herder sjálfur
talaði á undan fyrirlestrinum,
mjög lofsamlega um ísland og ís-
enskar bókmentir.
Jón Sveinsson var um tveggja
mánaða tíma í þessu fyrirlestra-
ferðalagi, og talaði á heimleiðinni
m. a. í Liége (Lúttich) í Belgíu
og í París. — Hann hefur verið
boðinn í samskonar ferðalag
næsta vetur, en óvíst hvort af
því getur orðið, vegna ritstarfa
hans,
Peter Hognestad Björgvinjar-
biskup er nýkominn í kynnisför
hingað, og er hann fyrsti biskup,
sem hingað hefur komið frá öðr-
um norrænum þjóðum, síðan um
siðaskifti. Hann verður hjer hálfs,-
mánaðartíma og ferðast austur
um sveitir. Biskup og starfsemi
hans er lesendum Lögr. annars
áður kunn af ferðaminningum sr.
Gunnars Árnasonar, sem á sínum
tíma komu hjer í blaðinu, og að
miklu leyti sögðu frá biskups-
dæmi hans.
Sjötugsafmæli átti Halldór
fyrv. prentsmiðjueigandi Þórðar-
son 7. þ. m. Fjekk hann þá
margar heimsóknir og mörg
heillaóskaskeyti. Nokkrir vinir
hans. og kunningjar sendu hon-
um dálitla minningargjöf og
færðu honum hana Rikharð Torfa-
son bankaritari, Hallgrímur Bene-
diktsson stórkaupmaður og Gunn-
laugur Einarsson læknir, og af-
henti R. T. hana með nokkrum
þakkarorðum til H. Þ. og óskum
um hamingjusama ellidaga. Hefur
H. Þ. jafnan verið vinsæll maður
og vel metinn, enda að allra dómi
drengur hinn besti. Enn er hann
ungur í anda og ber aldurinn vel.
Fyrir 10 árum flutti Óðinn æfi-
ágrip H. Þ. og myndir af þeim
hjónunum.
Landsspítalinn. Hjer í bænum
hefur mikið verið um það talað
undanfarið, að miklir gallar væru
á byggingu neðstu hæðarinnar,
eða kjallarans á Landsspítalanum,
isem nú er verið að reisa. Hafði
steypan ekki harðnað eðlilega á
venjulegum tíma í veggjunum, og
var ýmsum getum að því leitt,
hvað valda mundi. Samkvæmt því,
sem bæjarverkfræðingurinn, sem
rannsakaði málið, hefur látið uppi,
er miklu meira úr þessu gert
manna á milli en rjett er. Segir
hann, að ónýtir blettir sjeu að
vísu í kjallarasteypunni, og verði
að brjóta þá úr og steypa í þá
aftur, og muni það kosta um 5000
kr., og megi gera það án þess
að raska þurfi að öðru leyti því,
sem steypt hefur verið. En það
er kjallari og loft yfir og fyrsta
hæðin. Steypuskemdin er talin
stafa af sýrum í sandinum, sem
notaður var í veggina, en það var
holta- eða mýrasandur, en í loft-
in er notaður fjörusandur, og eru
þau sögð gallalaus.
Thórstína Jackson flutti hjer
fyrirlestur síðastl. laugardags-
kvöld, sem hún nefndi „Erfiðleik-
ar og sigur“. Gaf hún þar yfirlit
yfir sögu íslenskra landnema í
Vesturheimi fram á þennan dag.
Hún taldi erfiðleikatímabilið í
sögu þeirra ná fram til 1890, eða -
þar um bil. Þá er framfaratíma-
bilið fram til 1914. Þá stríðstím-
inn og loks viðreiðsnartímabil-
ið eftir stríðið, frá 1919 til
þessa tíma. Er öllum hjer heima
ánægja að heyra svo vel og skil-
merkilega sagt frá gengi íslend-
inga vestan hafs og sigri þeirra á
erfiðleikum frumbýlingsáranna,
en þeir erfiðleikar voru miklir.
Ungfrú Th. J. hefur og flutt fyr-
irlestra á ýmsum stöðum hjer í
nágrenninu, svo sem í Borgarnesi
og í Keflavík. Nú fer hún innan
skams norður um land. Bók henn-
ar um Vestur-lslendinga, sem áð-
ur hefur verið sagt frá hjer í
blaðinu, kemur hingað að líkind-
um seint í þessum mánuði.
Óðinn. I fyrra hefti þ. á. —
(jan.—júní) er þetta efni: Emile
Walters málari, mynd og grein
eftir ur.igfrú Thorstinu Jackson,
og segir hún þar helstu drætti úr
æfiferli þessa íslenska málara,
sem nú er, á ungum aldri, að
vei'ða frægur maður í Bandaríkj-
unum, og lýsir nokkuð málverk-
um hans. — Þá er kvæði eftir
Þorstein Þ. Þorsteinsson skáld:
Frú Ingunn Stefánisdóttir, eftir-
mæli. — Tvö kvæði eftir Bjarna
Jónsson. — Mynd af sjera
Kristni Daníelssyni og grein um
hann, eftir sjera Friðrik J. Rafn-
ar. — Ríma af Helga kóngi
Hálfdánarsyni, eftir Sigurjón
Friðjónsson. — Myndir af Hirti
heitnum Snorrasyni alþm. og konu
hans, með grein eftir sjera Krist-
inn Daníelsson. — Myndir af
Magnúsi heitnum Bergmann og
konu hans, með grein eftir sjera
Kristinn Daníelsson. Kvæði eftir
Böðvar Guðjónsson frá Hnífsdal.
Grein um fjóra nýlega dána merk-
isbændur austan fjalls, eftir Böðv-
ar Magnússon á Laugavatni:
Björn G. Björnsson á Brekku,
Gísla Guðmundsson í Kjamholt-
um, Geir Egilsson í Múla og Þor-
finn Þórarinsson á Spóastöðum, og
fylgja myndir af þeim öllum og
konum þeirra. — Kvæði eftir
F’njósk. — Lausavísur eftir Eim
ar Sigurðsson á Akranesi. —
Grein um stofnendur fríkirkjunn-
ar á Reyðarfirði, eftir fræðimann
þar eystra, og fylgja myndir
helstu forgangsmannanna, en
þeir voru: Hans J. Beck á Sóma-
stöðum, Jónas Símonarson á
Svínaskála, Eiríkur Bjömsson á
Karlsskála, Eyjólfur Þorsteinsson
á Stuðlum, Indriði Ásmundsson í
Seljateigi, Jón Stefánsson í Sóma-
staðagerði, Gísli Nikulásson í
Bakkagerði, Bjami Oddsson frá
Kolluleiru og Bóas Bóasson frá
Stuðlum. Eru sögð þar æfiágrip
allra þessara manna. — Loks er
þar framhald af æfisögu sjera
Friðriks Friðrikssonar, og segir
hann þar frá aðdraganda þess, að
hann komst í Latínuskólann og
frá veru sinni þar fyrsta árið.
Mynd fylgir, sem sýnir hann 19
ára gamlan. Er æfisaga þessi
bæði fróðleg og skemtileg. —
Næsta hefti Óðins kemur út í
byrjun október í haust. Bíða
margar myndir og greinar, sem
áttu að komast í þetta hefti.
Úr djúpununi (De profundis)
heitir nýútkomin bók eftir enska
skáldið óscar Wilde, þýdd af
Ingva Jóhannessyni. Fæst í bóka-
verslun Þ. G. Verð 5 kr.