Lögrétta - 06.04.1927, Blaðsíða 1
1 ■ .......-rrr
XXII. ár.
Reykjavflc, mlðvikudaginw 8. ftyii! Í927.
I!
1
19. tbL
Um víða veröld.
Frá Kínverjum.
Engin stjómmál vekja nú eins
mikla athygli um víða veröld og
Kínamálin, sem rakin hafa verið
ítuttlega í undanfömum blöðum.
Það, sem nú er einkum barist um
í Kína, er afstaðan til útlendra
áhrifa þar og útlendrar menn-
kigar og hafa Kínverjar samt
dcki getað staðið óskiftir í and-
spymunni gegn erlenda valdinu,
vegna gamalla væringa innan-
iands, óstjómar og agaleysis og
k>ks eru skoðanir þeirra sjálfra
■okkuð skiftar um það, hvaða
■tefnu eigi að taka gagnvart út-
lendingum. Hefur Lögrj. nýlega
skýrt þessi mál frá sjónarmiði
Kantonmanna.
Til þess að geta skilið kín-
versku deilumar þurfa menn að
kunna nokkur skil á ástandi lands
og þjóðar. En Kína er ekki ein-
•ngis eitt hið elsta menningar-
land heimsins, heldur einnig
eitt hið mesta framtíðarland.
Hafa því margar þjóðir reynt að
afla sjer þar ítaka og eiga þar
hagsmuna að gæta og koma því
deilumálin þar nú óþægilega við
margar Evrópuþjóðir.
Kína hafði verið keisaradæmi
aftan úr fomeskju, þegar það
var gert að lýðveldi 12. febrúar
1912 og heitir nú á kínversku
’Chung-Hua Min-Kua. Samkvæmt
stjómskipunarlögum frá 10. okt.
1928 er í landinu þingbundin
stjórn og meginþættir hennar
forseti, kosinn til 5 ára og tví-
skift þing. í efri deild sitja 264
fulltrúar, kosnir til 6 ára og í
neðri deildinn i 596 fulltrúar
kosnir til 8 ára. Landinu er ann-
ars skift í ömt og sýslur, sem a
kínversku heita Sheng og Hsien
og hafa sjerstök þing og all-
mikla sjálfstjórn í ýmsum mál-
um. Heldur hefur þó gengið erf-
iðlega um framkvæmd þessa
nýja skipulags og oft farið svo,
að hershöfðingjar eða ofbeldis-
menn (tuchun’ar) hafa ráðið
lögum og lofum í ömtunum, ó-
háðir ríkismiðstjóminni, þó vald
þessara tuchun’a hafi að vísu
verið afnumið með lögum frá
1923. Er það auðsjeð hversu erf-
itt muni vera um framkvæmdir
nýs stjómskipulags í agasömu
þjóðfjelagi og sundurþykku, þar
sem íbúamir eru alt að 400
miljónir og allólíkir, en landið
alt um 45 sinnum stærra en Is-
land.
Ofan á þetta bætist svo íhlut-
un erlendra þjóða, sem að ýmsu
hafa hagað sjer eins og ríki í
ríkinu og ekki orðið einingunni
til styrktar eða þjóðlegri menn-
ingu, þó nýtt líf og framtak hafi
komið í þjóðina á ýmsum svið-
um fyrir þeirra áhrif. Erlendu
áhrifin í Kína hafa komið fram
á tvennan hátt — hjá trúboðum
og fjesýslumönnum. Einhvei'
mesti fjármálamaður Breta,
Inchape lávarður, sem hagsmuna
á að gæta í Kína, hefur nýlega
kent það kristniboðunum fyrst og
fremst og framferði þeiira,
hversu útlendingaóvildin sje nú
orðin þar mögnuð. Aðrir kenna
Chen ráðherra.
það hinsvegar kaupsýslumönnun-
um, ágengni þeirra og ofbeldi, en
segja að kristniboðarnir sjeu hin-
ir einu útlendingar, sem komi til
Kína með óeigingjarna mannúð-
arstarfsemi. Undir þessa skoðun
hafa tekið merk ensk blöð, t. d.
Westminster Gazette. Frá trú-
boðunum stafa annars elstu er-
lendu áhrifin í Kína, þó tilfixm-
anlegri fyrir fjárhag og stjómar-
far hafi hin áhrifin orðið á síð-
ustu áratugum. Trúmálum Kín-
verja sjálfra er annars þannig
farið, að þeir hafa þrenn megin-
trúarbrögð eða lífsskoðanir,
1 Konfuciustrú, Búddatrú og Tao-
trú og munu Buddatrúarmenn
flestir, en margir hallast að öll-
um stefnunum í senn. Af öðrum
trúarflokkum eru Múhamets-
menn fjölmennastir, máske upp-
undir 10 milj. telja sumir. Róm-
versk kaþólskir menn hafa haft
bækistöð í Kína um 3 aldir og
eru þar nú um 2 milj. og 200
þús. og hafa 37 biskupa og 1400
vestræna presta og 1000 kín-
verska (1923). Hefur páfinn einn-
ig orðið til þess nú, fyrstur er-
lendra höfðingja, að viðurkenna
þjóðernisstefnu og stjóm Kín-
verja. Hinn núverandi páfi, Píus
XI., hefur með boðskapnum
Rerum ecclesiæ hafið nýja stefnu
í Austurlandamálunum og 5.
júní í fyrra birti aðalmáigagn
kaþólsku kirkunnar í Peking
brjef frá honum þar sem því
er lýst yfir, að kaþólska kirkj-
an þar í landi sje þjóðleg, sjálf-
stæð kirkja innan hins kaþólska
kirkjufjelags. 28. október í fyrra
voru vígðir í Róm sex fyrstu
kínversku biskupamir. Sá heitir
! Lébé, sem einna mest hefur að
| þessu unnið við páfastólinn og
j svo hinn postullegi sendiherra í
! Kína, Constantini. Mótmælendur
i hafa rekið trúboð í Kína frá því
i 1807 og em þar um 620 þús.
j en um 6600 starfsmenn, trúboð-
j ar og læknar innlendir og er-
j lendir. Loks hefur rússneska
j rjetttrúnaðarkirkjan rekið kín-
verskt trúboð frá því 1685 og á
í landinu 32 kirkjur og teljast til
þeirra um 5 þús. Kínverjar og
20 þús. Rússar. Nokkuð er einn-
ig af kínverskum Gyðingum,
einkum í Honan hjeraði.
Ahrif kaupsýslu- og stjóm-
málamanna fóru fyrir alvöm að
hefjast í Kína á síðari helmingi
síðustu aldar. Hafa stjómir
hinna erlendu ríkja sjálfar haft
ýms afskifti af Kína-málum og
útlendingar setst allmikið að í
landinu, þó fáir sjeu á móts við
Kínverja. En 1928 var talið svo,
að alls væm í Kína 325 þús. út-
lendingar. Flestir þeirra voru þó
Japanar, rúml. 200 þús. og af
Evrópumönnum vom Rússar
flestir, 85 þús., en þá Bretar 14
þús., Ameríkumenn 9 þús.,
Þjóðverjar 2 þús. og Norður-
landamenn um 1300. Þessir út-
lendingar em að nokkru leyti í
höfuðborginni, Peking, 4 þús.
(íbúar alls, með útborgum 1 milj.
300 þús.), en einkum í Shanghai
og Kanton, en það em einhverj-
ar stærstu og helstu verslunar-
borgir landsins (íb. 1 milj. og
j 900 þús.).
Rússar urðu einna fyrstir til
j þess Evrópumanna, að seilast til
' valda í Kína. Þeir fengu ýms
; sjerrjettindi í Port Arthur og
Talienwan árið 1898 og tóku
Mansjúríu 1900, eftir boxaraupp-
reisnina. En upp af þeim málum
spratt rússnesk-japanska stríðið
1904. Að því loknu fengu Japan-
ar ýms sjerrjettindi og leyfi í
Kína, m. a. til jámbrautalagn-
inga og 16 hafnir 1 Mansjúríu
voru þá opnaðar fyrir útlend-
ingum. Færðu Japanar sig seinna
upp á skaftið í kröfum sínum,
einkum eftir 1915, en í deilunum,
sem nú standa yfir virðast þeir
nokkuð hafa dregið taum Kín-
verja gagnvart Evrópumönnum,
eða reynt að koma á sáttum.
Bretar fengu um líkt leyti og
Rússar ýms sjerrjettindi í Wei-
Hai-Wei í Sohantung og sjerleyfi
til 99 ára í Hong-Kong. Um sömu
mundir fengu Frakkar einnig
ýms sjerleyfi í Kwang-Ohore-
Wan flóa þar í nánd og nokkm
seinna yfirráð yfir 2 eyjum þar
í flóanum. Með sjerrjettindum
þeim og ítökum sem þessar er-
lendu þjóðir hafa þannig eignast
hafa þær náð í sínar hendur
talsverðum hluta af peningamál
um, verslun og siglingum Kín-
verja, þó mikill hluti þessaia
mála sje að vísu einnig beinlínis
og óbeinlínis undir kínverskum
yfirráðum. Verslunarvelta Kín-
verja við útlönd nam 1923 rúml.
191 milj. sterlingspunda og vai
innflutningurinn um 30 milj.
hærri en útflutningurinn. Það ár
sigldu til Kínverskra hafna
tæpl. 183 þús. skip. Ástandið í
siglingum að og frá landinu má
sjá nokkuð af því að af þessum
skipafjölda áttu Bretar flest og
fluttu rúml. 7 milj. smálesta, og
Japanar 61/2 milj., en Kínverjar
sjálfir um 2 milj. Einnig eíga
Bretar allmikið af jámbrautum
í landinu og nokkuð af verk-
smiðjum. En iðnaður er í tals-
verðum uppgangi í Kína, einkum
ýmsar baðmullarverksmiðjur og
hveitimyllur og vinnur við slík-
ar verksmiðjur um 3 y2 milj.
| manna. Kínverjar eru annars
| aðallega landbúnaðarþjóð og
rækta baðmull, te og kom nokk-
uð, einkum á smájörðum. Fjár-
hagur ríkisins hefur verið frem-
ur bágur og fjármálin í óreiðu.
Árið 1923 vom tekjumar taldar
um 528 milj. dollara, en gjöldin
rúml. 20 milj. hærri, en ríkis-
skuldir á sama tíma alls um 723
milj.
Það eru samt ekki þessi fjár-
mál og viðskiftamál ein út af
fyrir sig, sem mest áhrif hafa
haft á kínverskt þjóðemi og
þjóðlíf, þó mest þyki þjóðræknis-
sinnum þau kreppa að sjálfstæð-
ismálum þjóðarinnar nú orðið
Mestum breytingum á þjóðinni
hafa valdið kynnin við vestræna
menningu. Þau kynni urðu til
þess, að Kínverjar gerbreyttu
öllu hinu foma mentamálaskipu-
lagi sínu, með fræðslulögum frá
3. sept. 1905, í vestrænt snið.
Em nú í landinu um 10 ríkishá-
skólar. Einn hinn helsti er hinn
þjóðlegi háskóli í Peking, sem
stofnaður hafði verið 1898, en
var gerbreytt 1917. Em við hann
250 kennarar og 3000 stúdentar,
þ. á. m. nokkrar stúlkur síðan
1920. Ymsa lægri skóla hafa
Kínverjar einnig sjálfir, auk
skóla trúboðsstöðvanna, en nokk-
uð er hin nýtísku fræðslustarf-
semi þeirra enn á ringulreið. Auk
skólanna hafa þeir um 1900
fyrirlestrastöðvar til almennings-
fræðslu og um 750 umferðafyrir-
lestraflokka. Á síðustu ámm
hafa þeir komið upp 185
bókasöfnum í vestrænu sniði og
286 alþýðubókasöfnum. 1 land-
inu em gefin út um 1000 alls-
konar blöð, þ. á. m. ýms á er-
lendum tungum eða á kínversku