Lögrétta - 28.09.1927, Side 3
4
LOGRJETTA
tíu ára hjúskapur er svo sjald-
gæfur að slíks viðburðar má
ekki vera ógetið opinberlega.
Hjer eiga líka í hlut landskunnur
klerkur og kennimaður og ein hin
ágætasta kona. Þykir líklegt að
margur sje sá er gleðst mjög
yfir giftu og gengi þessara
merku hjóna.
Samferðamaður.
Um ritgerðir Jóns Leifs, sem
komu í Beethoven-árbókinni,
hafa þýsk blöð og tímarit skrif-
að, að þær sjeu „mjög eftirtekt-
arverðar“ og að þær muni verða
lagðar „til grundvallar að kom-
andi listskilningi og meðferð á
verkum Beethovens“.
„Þingmannasamvinna“. Fyrir
ekömmu er komið út einskonar
ársrit norrænu þingmannasam-
vinnunnar fyrir 1926. Eru í því
ýmsar skýrslur um fjelagsskap-
inn, þar á meðal nokkrar línur
um íslensku deildina, en formað-
ur hennar er Jóh. Jóhannesson
og ritari Ásgeir Ásgeirsson. Enn-
fremur eru í ritinu ýmsar rit-
gerðir og skýrslur um norrænt
samstarf, fyrst og fremst í 1 ög-
gjafarefnum og um helstu laga-
setning hvers lands —. nema ís-
lands. Þar sem íslandsskýrslan
átti að standa gapir við lesand-
anum auð síða að öðru en því,
að þess er getið, að forráðamenn
ísl. deildarinnar hafi að engu sint
því, að gefa skýrslu um löggjaf-
arstarfið á íslandi. Þetta er óvið-
kunnanlegt og óþarft ráðlag. Úr
því verið er á annað borð að taka
þátt í þessari samvinnu, er víta-
vert að láta fram hjá sjer fara
einmitt þau tækifærin, sem helst
væri eitthvað á að græða til
þess að auka hjá hinum þjóðun-
um þekkinguna á ísl. málum og
efla samvinnuna.Þar að auki virð-
ist þessi skýrslugerð ekki vera
svo erfitt verk, að frágangssök
hefði verið að fá það unnið, ef
þingmennirnir hafa sjálfir verið
orðnir leiðir á því að fást við
sína eigin löggjöf, eins og ekki
er óskiljanlegt. Stórmál er þetta
að vísu ekki, en samt nokkurs
vert, að þessari samvinnu sje
sint eins alúðlega og kostur er
á, eða hætt við hana að öðrum
kosti. — Af þingmannasam-
vinnu mætti ýmislegt gott
hljótast, ef vel væri á haldið, og
áherslan 1 ögð á eitthvað meira
en skemtiferðir, ræðuskvaldur og
veitsluhöld, þótt ekki sje slíkt að
lasta þegar því er í hóf stilt í
og með öðru góðu.
Kristján Kristjánsson heitir
ungur íslenskur söngvari, sem
undanfarið hefur dvalið erlendis
við söngnám, en er nú nýkominn
heim hingað. Hann er af söng-
gefnu fólki kominn, sonur Krist-
jáns læknis Kristjánssonar á
Seyðisfirði og frú Kristínar Þór-
arinsdóttur og alinn upp hjá
þeim á einu söngmentaðasta
heimili austanlands. Kr. Kr. söng
nýlega á Akureyri við ágætan
orðstír. „Þar er söngmaður á
ferðinni“, segir Dagur, „sem hef-
ur háan, ekki sterkan, en bjart-
an og hreimfagran tenor. Það,
sem sjerstaklega einkennir
söng hans er óþreyttur glans
æskuraddar, þar sem ljettleiki,
lipurð og yndisleiki ljóma af
hverjum tón, auk smekklegrar
meðferðar á viðfangsefnum í
heild sinni“. Kr. Kr. ætlar að
koma hingað til Rvíkur innan
skamms og syngja. Þótt allmikið
sje hjer um söng og hljóðfæra-
slátt er hjer sá sönglistaráhugi
hjá mörgum, að þeir munu fús-
lega vilja kynnast nýjum efnileg-
um söngvara.
Eldur kviknaði síðastliðið laug-
ardagskvöld í kjallara í Berg-
staðastræti 53, en slökkviliðið gat
kæft hann áður en mikið tjón
hlytist af. Eldurinn kvað hafa
kviknað út frá bruggunaráhöldum
og setti lögreglan þess vegna í
varðhald tvo menn, sem nú hafa
játað, að þeir hafi haft þama
vínbruggun, en þeir em Guðm.
Jónsson, sem heima á í kjallar-
anum, og Guðm. Þorkelsson
heildsali.
Magnús Guðbjörnsson hijóp s.
I. sunnudag austan af Kamba-
brún og til Rvíkur, sömu vega-
lengd og hlaupin er í Maraþon-
hlaupinu (40 km. 200 m.). Hljóp
hann sama skeið í fyrra á 3 klst.
4 mín. 40 sek., en var nú 5 mín.
20 sek. fljótari og sá Vart á hon-
um mæði og fór hann til vinnu
sinnar á eftir eins og ekkert hefði
í skorist. Hraðast hefur Mara-
þonskeiðið verið hlaupið af sænsk-
um hlaupagikki,Ahlgren, á 2 klst.
24 mín. (árið 1913). Miðað við
hlaupahraða keppendanna þá,
hefði Magnús verið milli hins
fjórða og fimta.
Áfengismál. Hæstirjettur hefur
nýlega eftir kæm valdstjómar-
innar dæmt ísfirsku læknana
Eirík Kjemlf og Halldór Stef-
ánsson í 1000 kr. sekt hvom fyr-
ir óleyfilega útgáfu vínávísana og
jafnframt svift þá báða rjetti til
þess að gefa út áfengisseðla
framvegis. Stjómin hefur skipað
Bjöm Þorláksson frá Dverga-
steini til þess að hafa yfirumsjón
og endurskoðun áfengisávísana
læknanna.
Jón Þorleifsson frá Hólum hef-
ur malverkasýningu í Listvina-
fjelagshúsinu þessa dagana og er
fjölsótt og hefur selst mikið af
myndum hans. Þær em flestar úr
Homafirði og þar úr grend.
FisksaJa. I fyrradag seldi tog-
arinn Ari afla sinn (ísaðann) í
Englandi fyrir 1838 pund eða
rúml. 40 þús. kr. Jafnframt seldi
hann 30 körfur fiskjar fyrir ann-
an togara (Fjölni) og fjekk fyrir
um 2500 kr. og þykir hvom-
tveggja prýðileg sala.
Bjöm Guðmundsson á Marðar-
núpi, faðir G. B. landlæknis og
þeirra systkina andaðist að heim-
ili sínu Marðamúpi í Vatnsdal 23.
þ. m. Hann var merkur og vel
metinn dugnaðarbóndi, fæddur 14.
febrúar 1834 og hafði búið á
Marðaraúpi í meira en hálfa öld.
Páll ísólfsson hjelt fyrstu orgel-
leika sína á þessum vetri í Frí-
kirkjunni 22. þ. m. við góða að-
sókn, eins og vera á, enda er nú
aðgangurinn ódýr. Aðalviðfangs-
efnin voru eftir Reger og Bach.
Bach er öllum hljómleikagestum
hjer alkunnur og ljek Páll nú
Prelúdíum hans og fúgu í G-dúr.
Reger er síður kunnur, eða að
minsta kosti síður skilinn og dáð-
ur, þótt ýms lög hans hafi Páll
áður leikið og leikur væntanlega
fleiri, því Reger er hið tröllaukn-
asta tónskáld. Nú ljek Páll eftir
hann Introduktion og Passacaglia.
Fiðluleikarinn Takács aðstoðaði á
hlj ómleikimum.
Frú Ingibjörg Skúladóttir kona
Runólfs bónda í Norðtungu í
Borgarfirði andaðist á Landakots-
spítalanum 16. þ. m. og var lík
hennar flutt heim og jarðsett þar.
Frú Ingibjörg var mörgum kunn,
því á heimili þeirra hjóna kom
fjöldi fólks, enda er Norðtunga
alkunnugt rausnar og ráðdeildar-
heimiji og húsfreyjan var fyrir-
mannleg, glaðvær og gestrisin og
minnast hennar margir með sökn-
uði.
Málaferli. Þingmennimir Jón
Baldvinsson og Hjeðinn Valdi-
marsson hafa stefnt Morgunbl.
fyrir það að kalla þá „föðurlands-
svikara“ í greinum um fjárstyrk
danskra jafnaðarmanna til kosn-
ingastarfsemi flokksbræðra þeirra
hjer.
Grænlendingur einn, Isak Holm,
er nýkominn hingað til þess að
kynna sjer íslenskan landbúnað,
einkum fjárrækt. Hann hefur
undanfarið starfað í grænlenska
fjárræktarbúinu, en verður nú á
Lækjamóti nyrðra í eitt ár.
Víðvarpsstöð er Arthur Gook
að reisa á Akureyri.
Björn Blöndal læknir á Siglu-
firði andaðist þar 27. þ. m. af af-
leiðingum beinbrots, en hafði ver-
ið farinn að heilsu um langt
skeið. Hann var fæddur 11. sept-
ember 1865, sonur Gunnlaugs
Blöndal sýslumanns og Sigríðar
Sveinbjamardóttur skálds og
skólameistara Egilssonar. Hann
tók læknapróf 1889 og var síðan
lengi hjeraðslæknir í þingeyjar-
sýslu og Miðfirði. Bj. Bl. var
vinsæll maður og valmenni, söng-
maður góður og teiknari og bók-
hneigður, - fjelagslyndur gleði-
maður. Hann samdi nokkur söng-
lög og þýddi á síðari ámm nokkr-
ar skemtisögur. Ekkja hans er
Sigríður Möller og meðal bama
hans em Gunnlaugur málari og
frk. Kristjana, skrifari í Rvík.
Ámi Jóhannesson, hinn nýi leið-
togi Hjálpræðishersins er nú tek-
inn við starfi sínu hjer. Hann er
Hafnfirðingur að ætt og hefur
verið í Hjálpræðishemum síðan
hann var unglingur og lengstum
starfað í Danmörku. Síðast var
hann í „Staff College" Hersins í
London, en það er æðsta menta-
stofnun hans, ætluð leiðtogaefn-
um. Áður en Á J. fór heim hing-
að var hann kvaddur á fund yfir-
foringjans, Bramwell Booths.
Kvaðst hann lítið hafa verið
kunnugur Islandi fyr en nú á síð-
ustu árum, að hann hefði farið að
kynna sjer nokkuð íslensk mál og
litist vel á og árnaði íslandi allra
heilla og vænti þess, að íslending-
um gætist vel að þeirri þjóðlegu
breytingu, sem nú hefði verið
gerð á Hemum. Svo mun einnig
vera, og hefur Lögrj. áður minst
á það, að breyting í þá átt, sem
orðin er, væri æskileg. Á. J. hef-
ur allmikla reynslu í starfi því,
sem bíður hans hjer og í Færeyj-
Ný bók
eftir Pál Þorkelsson,
málfræðing.
Verð kr. 4.50.
Fæst hjá bóksölum.
Skólasöngvar
eftir
Friðrik Bjarnason.
önnur útgáfa, aukin og breytt.
Fæst hjá bóksölum.
*
Okeypis
og burðargjaldsfrítt sendist okkar
nytsama og mjög myndum prýdda
vöruskrá meC gummí- og breinlsatia-
vörum og leikföngum, einnig úrum,
bókum og póstkortum.
Samarlten, Afd. 67. Köbenham K.
SVEITAMENN! Verslið altaf
við Einar Eyjólfsson, Þingholts-
stræti 15, því hann hefur altaf
bestar og ódýrastar vörar.
um, sem hann er einnig settur
yfir. Hann er lipurmenni og lík-
legur til góðrar stjómar. Er
sjálfsagt að taka Hemum vel
þegar hann vinnur að þörfum
mannúðarmálum.
Litla kvæðið um litlu hjónin
heitir lítil og lagleg myndabók,
sem bókaversl. Jónasar Tómas-
sonar á ísafirði hefur gefið út.
Hefur Tryggvi Magnússon gert
þar myndir við eitt að vinsælustu
og smellnustu kvæðum Davíðs frá
Fagraskógi og er líklegt að útgáf-
unni verði vel tekið.
Sjóðþurðarmál Bmnabótafje-
lagsins mun óútkljáð enn og at-
hugun stjómarinnar á því ekki
lokið. Veltur á því hvort málið
verður látið niður falla, að lok-
inni rannsókn stjómarinnar og
með þeim skilmálum um endur-
greiðslu, sem hún kann að setja,
eða hvort hafin verður opinber
rannsókn, eins og líklegast er nú
talið. Gjaldkeri fjelagsins mun
hafa játað sig valdan að allri sjóð-
þurðinni, en boðist til að endur-
greiða hana, með hjálp ýmsra
manna, ef málshöfðun fjelli nið-
ur. Málaferli em hafin út af um-
mælum Alþýðublaðsins um málið.
Hafa hæstarjettarmálaflutnings-
mennirnir Pjetur Magnússon og
Guðm. Ólafsson stefnt blaðinu út
af orðum um húsakaup, sem
þeir hafi með höndum og átt
hafi að jafna sjóðþurðina. Hver
leið, sem valin verður til úrlausn-
ar þessa máls, er nauðsynlegt að
gengið verði hreinlega frá því og
með festu, bæði vegna þess að
óreiðu á ekki að þola í opinbera
lífi og til þess að ekki sjeu áfeld-
ir saklausir meiin, eins og oft
vill verða, þegar orðrómur fær að
leika lausum hala um hálfkörað
eða órannsökuð mál.
Prentsmiðjan Acta.